Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Sjá,
gerðu göngustíg með fossinum með 300 trétröppum. Þetta var Sjálfboðaliðavinna eina helgi sex sumur í röð, alls 200 dagsverk.
Árið 1990 voru komnar áberandi ljótar moldarslóðir upp brekkuna við Skógafoss og þörf á úrbótum, enda lítið verið gert framað því. Í samráði við Náttúruverndarráð og Austur-Eyjafjallahrepp var ráðist í að breyta einni af götunum í góða gönguleið, bera möl í hana í handbörum og smíða í allt 300 tréþrep. Hinar slóðirnar voru græddar upp. Verkið tók 6 ár, unnin ein löng helgi hvert ár, 10-15 manns í senn. Örn Þorvaldsson sjálfboðaliði og rafvirki var verkstjóri öll árin.
Mölin var borin í "sjúkrabörum". Vandað var vel til kanta úr torfi og vatni veitt úr götunni. Gatan var einbreið, enda lítið um stóra ferðamannahópa á þeim tíma.