Baráttan um Stapagötuna á Vogastapa 2010 – 1018 Frá árinu 2010 hafa Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd farið árlega vinnuferðir á Vogastapa til að hafa hemil á lúpínu sem er að leggja hina fornu Stapagötu undir sig. Stapagatan er gömul þjóðleið milli Voga og Njarðvíkur og liggur yfir Vogastapa. Hún var fjölfarin þar til fyrsti vagna- og bílvegurinn var lagður milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur um 1912. Gatan er nú vinsæl gönguleið og merkilegar fornminjar. Lúpína er nú að klæða allan Vogastapa og ógnar Stapagötunni. Hún verður nánast ófær og ósýnileg þar sem lúpínan leggst yfir hana. SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK UM NÁTTÚRUVERND og nokkrir Vogabúar hafa undanfarin sumur slitið upp lúpínu í og við götuna og reynt þannig að verja hana nærst Vogum en á köflum nær Njarðvík er komin það mikil lúpína að þar er það nánast ógerningur. Ef takast á að halda götunni þarf að vinna þar á hverju sumri næstu áratugi. Það er vel þess virði. Hér liggur gatan um Reiðskarð við Vogavík. Hún er býsna djúp sem sýnir að hér hafa margir steinar verið teknir úr götunni gegnum aldirnar.
Gullkollur (Anthyllis vulneraria) er lávaxin, falleg planta, algeng á Reykjanesskaga en annars sjaldgæf. Gullkollur bindur nitur andrúmslofstins í plöntunæringu, líkt og alaskalúpína (Lupinus nootkatensis), en bíður ósigur þar sem hann mætir henni. Hér vex hann í götunni í Reiðskarði og ofan við það.