Baráttan um Stapagötuna á Vogastapa 2010 – 1014 Fjögur sumur hafa Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd farið vinnuferð á Vogastapa eina kvöldstund til að hafa hemil á lúpínu sem er að leggja Stapagötuna undir sig. Stapagatan er gömul þjóðleið milli Voga og Njarðvíkur og liggur yfir Vogastapa. Hún var fjölfarin þar til fyrsti vagna- og bílvegurinn var lagður milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur um 1912. Gatan er nú vinsæl gönguleið og merkilegar fornminjar. Lúpína er nú að klæða allan Vogastapa og ógnar Stapagötunni. Hún verður nánast ófær og ósýnileg þar sem lúpínan leggst yfir hana. SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK UM NÁTTÚRUVERND og nokkrir Vogabúar hafa undanfarin sumur slitið upp lúpínu í og við götuna og reynt þannig að verja hana nærst Vogum en á köflum nær Njarðvík er komin það mikil lúpína að þar er það nánast ógerningur. Ef takast á að halda götunni þarf að vinna þar á hverju sumri næstu áratugi. Það er vel þess virði. Hér liggur gatan um Reiðskarð við Vogavík. Hún er býsna djúp sem sýnir að hér hafa margir steinar verið teknir úr götunni gegnum aldirnar.
Gullkollur (Anthyllis vulneraria) er lávaxin, falleg planta, algeng á Reykjanesskaga en annars sjaldgæf. Gullkollur bindur nitur andrúmslofstins í plöntunæringu, líkt og alaskalúpína (Lupinus nootkatensis), en bíður ósigur þar sem hann mætir henni. Hér vex hann í götunni í Reiðskarði og ofan við það.
Að kvöldi þriðjudagsins 3. júní 2014 (fjórða árið í röð) mættu um 10 manns til vinnu á Vogastapa. Það voru Þorvaldur, Sveinn, Heiða, Særún, Oktavía, Ívan, Ragnar Karl, Jón Ben, Daníel og Kristján Karl yngstur (6 ára). Tekið var rösklega til hendinni í 2 ½ tíma. Svo var kakópása með góðu spjalli. Allt var hreinsað í og við götuna í Reiðskarði og út fyrir Kvennagönguskarð. Mikið var skilið eftir þar fyrir utan. Þorvaldur Örn fór á sömu slóðir mánuði síðar. Þá var dálítið komið upp af litlum lúpínuplöntum þar sem við höfðum hreinsað allt hvað við gátum. Einn staðurinn leit út eins og sjá má á myndinni. Bæði voru þetta rótarskot og ungplöntur af fræi. Það var þó viðráðanlegt að fjarlægja þetta allt, tók mun skemmri tíma en hafði tekið að fjarlægja alla breiðuna mánuði áður. Hér, skammt ofar, miðja vegu milli Reiðskarðs og Grímshóls, hefur lúpínan náð að vaxa yfir götuna - og gat Þorvaldur ekki, einn síns liðs, fjarlægt svo stóra breiðu í það skipti. Fyrir 3 árum var þarna bara lítill, sakleysislegur toppur sem hefur margfaldast að stærð. Hún þrífst ákaflega vel á Vogastapa og best í skjólsælum lautum eins og í götunni. Þorvaldur fór þangað aftur nokkru síðar með 6 ára sonardóttur, fjarlægði alla breiðuna og rúmlega það! Á nokkrum stöðum er lúpínan komin yfir hábrún stapans og líður ekki á löngu þar til hún litar þann hluta Vogastapa sem blasir við úr Vogum. Í aðalskipulagi Voga er þessi hluti Vogastapa hverfis-verndaður, bæði gegn byggingum og framandlegum plöntum, en sveitarfélagið hefur ekki treyst sér til að framfylgja þeirri vernd hvað lúpínuna varðar. Þar þarf að verða breyting á.
Hér liðast Stapagatan upp á Grímshól, hæsta punkt Vogastapa (76 m.y.s.). Hér eru lúpínutoppar út um allt. Þorvaldur tók þá sem eru í götunni og næst henni - og frestaði þannig vandamálinu um ár eða svo. Að hans áeggjan kom þarna Sesselja Guðmundsdóttir, sem á ætt að rekja að Brekku undir Vogastapa, og fjarlægði lúpínu og fræbelgi bæði á Grímshól og á brúninni fyrir ofan Brekku.
Hér á Grímshóli hefur lengi verið útsýnisskífa. Ljónslappinn er hinn hressasti og alls ráðandi þarna á toppnum, en lúpínan á í vök að verjast í næðingnum en breiðist þó út og mun taka völdin þarna sem annars staðar ef hún ein fær að ráða. Þekkt þjóðsaga tengist Grímshól. Hér eru tvær útgáfur hennar: http://www.fva.is/.../Verbudir/Arnastapi/Grimsholl.htm og http://is.wikisource.org/.../Gr%C3%ADmsh%C3%B3ll_%282%29
Þegar komið er út fyrir Grímshól, langleiðina að Grynnri Skor, lokar lúpínan leiðinni alveg. Þarna er gatan breið, nokkuð djúp og gróin en týnist alveg í mittishárri lúpínu. Milli Grynnri Skorar og byggðar í Innri-Njarðvík er gatan víða greið og fín, að mestu laus við lúpínu og væri enn hægt að verja stærstan hluta hennar. Þorvaldur fór þá leið og tók staka toppa við götuna og neðan hennar á þessum kafla. Stapagötunni eru gerð skil í myndaflokkum á facebook-síðu Sjá.
Sjálfboðaliðar hægja á lúpínu á Vogastapa 28. maí 2013 kl. 19-22. Það er brýnt verkefni að hindra að gamla Stapagatan yfir Vogastapa, milli Njarðvíkur og Voga, týnist í lúpínu. 2013 er þriðja árið sem Sjálfboðaliðasamtökin taka þarna til hendi. Mæting var við N1 í Hafnarfirði kl. 18:15 og við N1 í Vogum kl. 19, og á Vogastapa eftir það. Veðrið var notarlegt, hægur vindur, skýjað en þurrt. Það mættu í allt 18 sjálfboðaliðar á öllum aldri, allt frá 5 ára og upp undir sjötugt; 5 af höfuðborgarsvæðinu, 3 úr Reykjanesbæ og hinir úr Vogum. Verkefnið var kynnt á vef Víkurfrétta, á Fésbók og í fréttabréfi og tölvupósti samtakanna. Unnið var efst í Reiðskarði og efst í Kvennagönguskarði. Teknir voru þeir toppar og breiður sem lengst teygja sig yfir háhrygg Stapans. Jarðvegurinn er mjög grýttur og mjög erfitt að ná upp rótunum. Við notuðum skóflur, kvíslar, fíflajárn, hníf o.fl. tiltækt. Ekki hefði veitt af að hafa líka járnkall og haka. Unnið var af fullum krafti í 2 ½ tíma og endað í kakóhressingu efst í Kvennagöngustarðinu um kl. 22. Ekki vannst tími til að fara öllu lengra meðfram Stapagötunni en móts við Brekkuskarð, en vitað er um toppa og breiður utar sem teknir voru í fyrra og brýnt væri að taka aftur. Af höfuðborgarsvæðinu mættu: Sveinn Jóhannsson*, Jóhanna Berghild*, Örn Þorvaldsson*, Dagbjört Óskarsdóttir* og Hafdís. Úr Reykjanesbæ ,komu Rannveig L. Garðarsdóttir, Elín og Kristín. Úr Vogum voru Heiða*, Þorvaldur*, Særún, Oktavía, Ívan, Ragnar Karl, Kristján Karl, Guðrún, Heiðar Snær og Daníel Örn. Félagsmenn eru stjörnumerktir, 6 talsins. Það má hiklaust segja að þarna hafi verið unnin góð 6 dagsverk. Eins og sjá má þegar ekið er eftir Reykjanesbraut klæðir lúpínan drjúgan hluta af Vogastapa. Hún hefur breiðst þar ótrúlaga ört út á 30 árum. Hún er þar að græða upp hálfgróið land sem er hið besta mál. Hún er frábær landgræðsluplanta og þarf ekki að kosta til neinum áburði. Gallinn er hins vegar sá að hún veður yfir allt, jafnt moldir sem berjalyng, og þjarmar að Stapagötunni, gömlu þjóðleiðinni milli Voga og Njarðvíkur sem gengin var um aldir og er nú að verða vinsæl leið göngufólks. Lúpínan hefur nú þegar lokað Stapagötunni á kafla utan við Grímshól en ætlunin er að verja götuna austan Grímshóls. < Vogastapi, séð frá Vogavík Gamlar þjóðleiðir eru friðaðar samkvæmt lögum og auk þess eru ákvæði í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga um að verja nyrsta hluta Vogastapa fyrir ágengum framandi plöntum. Hverfisfriðunarákvæðin í aðalskipulaginu eru svo hljóðandi: H-2: Vogastapi að Vogavík Vogastapi er mikilvægt útivistarsvæði og hluti útsýnis frá Vogum. Hann hefur álíka gildi fyrir íbúa Sveitarfélagsins Voga og Esjan fyrir Reykvíkinga. Hann er að vísu lægri en Esjan en hefur það framyfir að ganga í sjó fram. Þetta friðaða belti nær yfir hábungu Vogastapa frá Vogavík að mörkum Reykjanesbæjar. Innan þess er Stapagatan, gamla þjóðleiðin milli Voga og Njarðvíkur en gamli akvegurinn til Keflavíkur, sem lagður var snemma á 20. öld lendir rétt sunnan þess. Skilmálar hverfisverndar H-2 • Engar byggingar verða leyfðar á þeim hluta Vogastapa sem sést úr Vogum, né heldur undir hlíð hans í Vogavík. • Svæðið verði friðað gegn raski og framandlegum áberandi plöntum, t.d. lúpínu. • Stapagatan verði merkt og notuð í óbreyttri mynd sem gönguleið.
Á myndinni er ung lúpínuplanta að nema land í lyngmóa. Ef að líkum lætur verður lúpínan búin að vaxa berjalynginu yfir höfuð eftir ca. 3 ár og drepa það með því að taka frá því birtuna.
Gengið í slóð forfeðranna í Stapagötunni
Hér er gatan horfin í lúpínu – og ófær gangandi fólki.
Hópurinn nýtur veitinga efst í Kvennagönguskarði, eftir vel unnið verk.
Allt það starf til að verja Stapagötuna, sem hér er lýst, er unnið fyrir gíg ef ekki verður farið árlega og hreinsað upp ungviðið sem ávallt sprettur upp af fræbanka þeim sem lúpínan kemur sér upp. Jafnframt þjarmað að jaðri lúpínubreiðanna með því að hindra blómgun og forðasöfnun rótanna.
F.h. Sjáflboðaliðasamtaka um náttúruvernd: Þorvaldur Örn Árnason