Frumkvæðið að vinnu Sjá við göngustígagerð við Seljalandsfoss kom frá landeigendum, sem fengu styrk frá Pokasjóði. Heimamenn tóku þátt í undirbúningi og vinnu. Samráð haft við Náttúruverndarráð, enda er fossinn friðlýstur, og Vegagerðina, enda var gönguleiðin að fossinum færð þangað sem hún er nú. Tjaldað við Hamragarða. Í frítíma skoðaðir hellar í Kverkinni og gengið upp fyrir fossinn og upp með ánni.
Gerður nýr göngustígur með þrepum upp bratta brekku sunnan við fossinn og græddar upp gamlar, djúpar moldargötur sem skáru grasbrekkuna fjær fossinum. Mikil breyting til góðs, því áður komu farþegar drullugir í bílana eftir göngu að fossinum.
1991 var haldið áfram vinnu við göngustíg beggja vegna fossins; grjóthreinsa , hlaða steinþrep, græða jarðvegssár og færa gönguleiðina með ánni. Í kjölfarið var vönduð göngubrú sett á stöpla elstu brúarinnar yfir ána og þá komin hringleið undir fossinn.
2005 voru stígarnir endurbættir og sjálfboðaliðarnir kynntust Austur-Landeyjum.