Fimm sjálfboðaliðar óku á jeppa frá Ferðafélagi Íslands inn í Nýjadal á Sprengisandsleið í ágúst 2003 til að stika leið frá skála FÍ í Nýjadal. Skipt var út ónýtum stikum, nýjum bætt við og nokkrar vörður endurhlaðnar. Mjög krefjandi að bera stikur og áhöld langa leið í hvassviðri.