Aðdragandinn að stofnun Sjálfboðaliðasamtaka um náttúruvernd var koma sjálfboðaliða frá samtökunum British Trust for Conservation Volunteers, BTCV, á árunum 1978-1985. Þeir unnu að gerð náttúrustíga í Jökulsárgljúfrum, Krýsuvík, við Gullfoss, í Skaftafelli og víðar, sem þá var nýnæmi. Náttúruverndarráð greiddi götu þeirra. Nokkrir Íslendingar lögðu hönd á plóg með þeim og smituðust af hugmyndafræði þessara bresku samtaka og stofnuðu
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) vorið 1986, og stóðu strax að vinnuferðum m.a. í Krýsuvík, til að lagfæra gönguleiðir og leggja stíga. Hér segir einnig frá vinnu Sjá í Krýsuvík 1987 og 1988.