Sjáflboðaliðasamtök um náttúruvernd unnu við Kerið í Grímsnesi eina helgi1989 og einn dag 1990.
Lagfærðar gróðurskemmdir, stígar afmarkaðir, tyrft yfir sár í sverði, hreinsað rusl, sáð í flög, hlaðinn grjótkantur, rifin tréþrep og sett steinþrep í staðinn o.fl.
Sjálfboðaliðar höfðu aðstöðu í félagsheimilinu Borg (1989) og í Alviðru (90).
Stuðningur og samstarf við Ferðamálaráð, Náttúruverndarráð, Landgræðsluna, Landvernd, Vegagerðina og eigendur Kersins. Síðan gerði Vegagerðin bílastæðið og girðingu meðfram því.
Allt vandlega undirbúið og skipulagt í samráði við Náttúruverndarráð og þáverandi eigendur, Helgu og Guðmund Benediktsbörn. Þau voru með að hluta og Guðmundur bauð fólkinu í sumarbústað þar hjá.