Haraldur Arnar Einarsson, félagi í Sjálfboðaliðasamtökum um náttúruvernd (Sjá), var landvörður í Hvannalindum. Hann sá þörfina á að laga kílómeters langan gönguslóða þar sem voru að markast ljót för í viðkvæman svörð. Hann verkstýrði síðan vinnuferð frá Egilsstöðum helgina 3-4 júlí 1992. Þar mættu 33 sjálfboðaliðar, full rúta. Flestir voru að austan, frá Naust og ungliðahreyfingu björgunarsveitarinnar Gró, en 5 frá Sjá komu að sunnan. Borið var í stíginn, gert við gróðurskemmdir og brú yfir læk endursmíðuð. Frábært framtak!