Þrír félagar Sjálfboðaliðasamtaka um náttúruvernd voru 14. - 19. júlí 1998 á Hellissandi og gerðu stíg í skógræktarlandi þar, merktu leið og settu niður trjáplöntur. Skúli Alexandersson, formaður skógræktarfélagsins greiddi götu sjálfboðaliðanna, en verkstjóri þeirra var Jóhanna Jóhannesdóttir. Unnin voru 20 dagsverk í þurru en svölu veðri.