Árin 1992 og 1993 unnu Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd 120 dagsverk við að verja gíginn Grábrók í Borgarfirði frekari skemmdum vegna traðks ferðamanna og leggja betri leið á fjallið.
Fyrra árið var lokað og mokað til gömlum, óþörfum og ljótum slóðum, og lagður nýr stígur að fjallinu norðanverðu, smíðuð trappa, færð skilti og sett upp ný.
Síðari árið var haldið áfram með nýjan stíg frá nýju bílastæði á fjallið á minna áberandi stað, smíðaðir stigar og lokað troðningum sunnan og vestan á gígnum. Mjög vel heppnað!