Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvrnd (Sjá) fóru helgar-vinnuferð á Strandir í ágúst 2002.
Á Ströndum veður gerast góð
gleðjast sprund og halir.
Yndisleg var okkar slóð
ilma grónir dalir.
Í Húsavík við heppin gistum
húsráðendum góðum hjá.
Unnu bæði orðsins listum
og ýmsu kunnu að segja frá.
Sagnareka settum niður
svo og stikur góða leið.
Í þeim hafður eðalviður
augu að gleðja langt um skeið.
(Elísabet Ingólfsdóttir orti og gerði skýrsluna)