Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd unnu 80 dagverk við Eldgjá 30. júní - 6. júlí 1993. Gerð var ný gönguleið að fossinum og gamalli og illa farinn leið lokað. Fyrir utan malarburð voru gerð 14 þrep úr náttúrugrjóti og 20 tréþrep, í brattar brekkur.
Gist var í skála í Lambaskarðshólum. Unnið í samvinnu við Skaftárhrepp og Ferðamálaráð, sem lögðu til kostnaðinn. Þarna er enginn skortur á dásemdar náttúru til að njóta.