Fjórir Sjáflboðaliðar Sjá fóru að Dröngum, með flugi, bíl og báti, til að vinna þar með heimafólki við að laga gamlan gönguveg ofan við bæinn undir Bæjarfjalli og hlaða vörður á Drangahálsi. Allt undir verkstjórn Guðjóns Kristinssonar hleðslumeistara sem er fæddur og að hluta uppalinn á Dröngum. Hin þekktu Drangaskörð blasa við frá bænum. Á Dröngum hefur ekki verið föst búseta í áratugi en afkomendur síðustu ábúenda eru þar á sumrin og annast m.a. um æðarvarpið.
Verkinu var ekki lokið og stóð til að efna til annarar vinnuferðar, en það er ekki einfalt mál.