Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Sjá, hafa unnið með skógræktarfélagi Skilamannahrepps á Akranesi kvöldstund á hverju ári í 14 ár.
Unnið er undir stjórn skógræktarfélagsins, en verkstjóri af hálfu Sjá hefur verið Grétar Einarsson, öll árin.
Unnið hefur verið við gróðursetningu, grisjun og lagfæringu gönguleiða, ýmist við Akranes eða á skógræktar- og útivistarsvæðinu í Slögu. Skógræktarfélagið hefur lagt til áhöld og efni og boðið upp á kaffi úti í guðsgrænni náttúrunni. Félagsmenn Sjá hafa komið saman á einum eða tveimur bílum. Ánægjuleg árviss samvinna.