Skip to main content

Vinna Sjá á Þingvöllum 2010 - 2013, með tillögum

Page 1

Sjá í Þingvallaþjóðgarði 2010 – 2013 Verk og tillögur Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) voru stofnuð 1986 og var tekið mið af hugmyndafræði og vertækni breskra sjálfboðaliðafélaga, einkum BTCV. Í 32 ár hafa þau staðið fyrir vinnuferðum á ótal staði og virkjað sjálfboðaliða til þess að láta hendur standa fram úr ermum við að vernda náttúru Íslands og gera hana aðgengilegri fyrir almenning að njóta. Farnar hafa verið nærri 200 vinnuferðir á um 85 staði víða um land og unnin þar nærri 6 þúsund dagsverk úti í náttúrunni. Það samsvarar því að a.m.k. ein manneskja hafi verið í fullu starfi í rúman aldarfjórðung - kauplaust. Tilgangurinn með samtökunum er: - Að vernda náttúruna - Að veita fólki tækifæri til þess að vinna að náttúruvernd - Að auðvelda fólki umgengni um náttúruna, að fræðast um hana og njóta náttúrufegurðar Samtökin hafa löngum haldið vöku sinni og leitað sjálf að brýnum verkefnum sem þjóni þessum tilgangi og aðrir eru ekki að sinna. Á aðalfundi samtakanna 2009 var ákveðið að leita að þörfum verkefnum í Þingvallaþjóðgarði sem þjónuðu þessum markmiðum og hentað gætu samtökunum. Einnig var tekið mið af þeim markmiðum stjórnvalda og þjóðgarðsins sjálfs að mæta aukningu ferðamanna með því dreifa álaginu af ferðum þeirra með því að opna þeim nýjar áhugaverðar leiðir. Haft var samband við Ólaf þjóðgarðsvörð og Guðrún yfirlandvörður kom á fund stjórnarinnar. Í framhaldi af því efndu samtökin til skoðunarferða á Þingvöll undir leiðsögn Sigrúnar Helgadóttur sem þekkir þar vel til og var að ljúka við bók um þjóðgarðinn. Síðan voru farnar nokkrar vinnuferðir á árunum 2011 – 2013 og skrifaðar skýrslur um hvert verkefni. Í þessu skjali eru rétt tæpt á helstu verkum og tillögum samtakanna. Úr ársskýrslu stjórnar Sjá um vinnuna árið 2011 Sjálfboðaliðasamtökin byrjuðu á árinu á nýju verkefni í Þingvallaþjóðgarði. Það er að frumkvæði Sigrúnar Helgadóttur sem hefur verið að rannsaka og skrifa um þjóðgarðinn undanfarin ár og var hún okkar verkstjóri í því öllu ásamt Þorvaldi. Verkefnið er að finna, merkja og opna fornar leiðir til Þingvalla sem ekki hafa verið farnar lengi. Þær hafa því gróið saman með lyngi, kjarri og trjám og horfið sýn manna. Sigrún og Ólafur maður hennar höfðu leitað mikið og fundið nokkrar leiðir með hjálp ýmissa gagna sem m.a. voru fengin frá þjóðgarðinum. Undirbúningur verkefnis Sjá var í samráði við þjóðgarðsvörð og fræðslufulltrúa þjóðgarðsins. Farnar voru 2 dagsferðir til að leita að leiðum, þann 30. apríl (13 manns) og 18. júní (9 manns, þar af tveir frá Ferli). Í síðara skiptið buðum við Ómari Smára í Ferli með okkur og varð árangurinn af þeirri samvinnu m.a. að finna Sigurðarsel sem heimildir eru til um en enginn vissi hvar væri. Um fund þennan birtust fréttir í blöðum. Svo fórum við þriðja sinni 24. sept. (5 manns) og merktum leiðina frá Klukkustíg yfir Hrafnagjá að forna eyðibýlinu Þórhallastöðum, um 2 km leið, með því að hnýta bláa borða í trjágreinar. Þurfti sums staðar að velja milli leiða þar sem gatan skiptist á flatlendum svæðum. Þá var allt klárt fyrir fyrsta opnunarátakið, en 1. okt. mættu 22 sjálfboðaliðar og unnu frá 10:30 – 16:30 við að klippa og saga og luku við fyrrnefnda leið. Öll þessi vinna var mjög


skemmtileg og hóflega erfið í dásamlegu umhverfi og veðri sem var allt frá rigningu upp í glaða sólskin. Ekki spilltu haustlitirnir í síðustu ferðunum. Síðasta ferðin var jafnframt fyrri hluti afmælishátíðar samtakanna í tilefni þess að þau hafa lifað og starfað í aldarfjórðung. Síðari hluti hátíðarinnar var veisla í Alviðru.

Bréf formanns til Þingvallanefndar 18. febrúar 2010 Til Þingvallanefndar og þjóðgarðsvarðar Á siðasta aðalfundi Sjálfboðaliðasamtaka um náttúruvernd sem haldinn var í nóvember á síðasta ári kom fram að gamlar þjóðleiðir í þjóðgarðinum á Þingvöllum væru sumsstaðar orðnar nokkuð ógreinilegar þar sem gróið væri yfir þær og þær því ekki eins aðgengilegar ferðamönnum sem skyldi. Jafnframt kom fram sú hugmynd að samtökin gætu tekið að sér það verkefni að stika þessar gönguleiðir og gera þær greiðfærar með því klippa trjágróður þar sem þess er þörf. Tekið var vel í þess hugmynd á fundinum og bjóða samtökin því fram krafta sína við þetta verkefni og eftir atvikum fleira sem þarf að gera í þjóðgarðinum. Sjálfboðaliðasamtök um nátturuvernd hafa m.a. unnið að sambærilegum verkefnum allt frá stofnun samtakanna fyrir 24 árum og hafa félagsmenn því nokkuð víðtæka reynslu á þessu sviði. Nálægðin við höfuðborgarsvæðið veldur því að nokkuð auðvelt er að koma fólki á svæðið án verulegs tilkostnaðar. Jafnframt því hugsanlega gæti verið mögulegt að virkja einhverja til starfa sem eru tiltölulega aðgerðarlitlir um þessar mundir. F.h. Sjálfboðaliðasamtaka um náttúruvernd Vigfús Ó. Vigfússon, formaður Bréf aðal-landvarðar 22.okt. 2010 Sæll Þorvaldur og þakka þér fyrir samtalið fyrr í dag. Hér koma nokkrar hugmyndir í framhaldi af því.  Gönguvegur; milli Flosagjár og Skógarkots. Klippa, hreinsa grjót, afmarka og lagfæra. Gönguvegur er eina leiðin í Hrauninu sem er vörðuð frá upphafi til enda. Það má geta sér þess til að ástæðan sé sú að þetta er stysta leiðin milli Skógarkots og Þingvallastaðar og sjálfsagt hafa börn eða stálpaðir krakkar oft verið send einhvrra erinda þarna á milli. Gönguvegur heitir svo vegna þess að Brúnsstígur á Háugjá sem fara þarf yfir er ófær hestum. Leiðin er mikið farin enda falleg og víðsýnt af henni. o ég mundi áætla 4 menn í 2 daga. 8 dagsverk, en þá er ég líka að tala um að talsverð natni verði lögð i verkið... :)  Vatnskotsgata; milli Skógarkots og Vatnskots. Á þessarri leið þarf fyrst og fremst að klippa greinar og hreinsa upp lausagrjót. En einnig og ekki síður að laga endana beggja megin. Skýra þá og afmarka vel, ekki síst niður við Vatnskot. o í þetta verk mundi ég slá á 4 menn í 1 dag... þ.e. 4 dagsverk  Vatnskotsvegur; milli Vatnskots og Silfru.... Þá leið þarf að klippa ansi vel, grjóthreinsa og færa til vatnsleiðslu m.a. Einnig velja og afmarka vel upphaf og enda við Vatnskot og Silfru. o hér er líklega óhætt að slá á 3 – 4 menn í tvo daga. 6 – 8 dagsverk. Á þessum leiðum er hvorki verið að brjóta nýtt land eða eiga við fornleifar. Aftur á mót mynda þessir þrír leggir fjölbreytta hringleið sem ætti að vera auðveld yfirferðar fyrir nánast hvern sem er. Í því sambandi er vert að nefna að eldra fólk sækir mjög í að hemsækja gömlu býlin í Þingvallahrauni og fyrrnefndar leiðir eru vinsælar til þess. Því væri verulegur fengur að koma þeim í það horf að sómi sé að. -----------------------------------------------------------------------


Auk þessa vil ég nefna leiðina meðfram Sleðaásgjánni, milli tjaldsvæðisins á Leirum og Bolaklifs. Þá leið þarf að leggja fallega í landið og stika til að byrja með. Þar með opnast hringleið frá tjaldsvæðinu um Bolaklif og Réttargötu í Hrauntún þaðan sem síðan er hægt að ganga annaðhvort í Skógarkot eða niður á tjaldsvæðið aftur um Leiragötu. Talsvert verk er síðan framundan við að koma Leiragötu í gott horf sem getur beðið betri tíma. ----------------------------------------------------Eins og ég nefndi í samtalinu fyrri í dag, þá leggur þjóðgarðurinn áherslu á að gönguleiðir séu greiðfærar og öruggar enda getur stofnunin verið bótaskyld gagnvart slysum eða óhöppum sem verða kunna á merktum gönguleiðum teljist þær ekki forsvaranlegar. Það verður einnig að sýna ákveðið raunsæi varðandi getu garðsins til þess að viðhalda þeim leiðum sem þegar eru til staðar og bæta síðan við eftir því sem rekstur og aðrar aðstæður leyfa. Til þess að svo geti orðið, jafnvel fyrr en síðar, þiggur þjóðgarðurinn með þökkum alla þá aðstoð sem býðst. Bestu kveðjur og með von um gott samstarf Guðrún St. Kristinsdóttir, Þingvöllum

Réttin í Skógarhólum.

Verkefni sem hentað gætu Sjálfboðaliðasamtökunum - tekið saman eftir skoðunarferð undir leiðsögn Sigrúnar Helgad. 30. 4. 2011 Leita að týndum leiðum, klippa úr þeim og merkja þær. Best að gera á vorin (maí) áður en gróður hylur þær. Væri gott að fá, auk Sigrúnar, til liðs fleira fólk með þjálfun í að greina fornminjar í landslagi. Mér dettur þá fyrst í hug Ómar Smári og annað fólk í Ferli sem hefur fundið og kortlagt ógrynni gamalla leiða í Landnámi Ingólfs. Lagfæra hleðslur við munna fjárhellisins frá Gjábakka sem er við Hrafnagjá. Til þess þyrfti leyfi Fornleifaverndar, auk þjóðgarðsvarðar. Varla meira en dagsverk fyrir 5-10 manns og hægt að vinna með handverkfærum. Fella og nýta greniskóg í Ölkofradal Markmiðið væri að vernda vatnsbólið og hinn sérstæða Ölkofradal sem er að hverfa í greniskóg. Talsvert af trjánum eru hentug í jólatré. Æskilegt væri að vinna verkið í desember, þannig að hægt væri að nýta minni trén og toppa þeirra stæri sem jólatré og hugsanlega nýta sleða til að koma þeim niður að vegi. Lagfæra réttina við Skógarhóla. Hlaðin fjárrétt frá 1925, áður skilarétt Þingvallamanna. Réttin er býsna stór, hlaðin úr hraungrjóti og illa farin. Hrunið er víða úr henni og mikið verk að gera vel við hana. Þar þyrfti öfluga lyftingamenn eða lyftingatæki því sumir steinarnir eru vel yfir 100 kg að þyngd. Sumum í hópnum leist ekkert á verkið, enda ekki


allt aflraunamenn. Aðstaða í skemmu hestamanna gæti hentað okkur ágætlega. Líklega færi best á að vinna þetta verk með atvinnumönnum sem væru með hjálpartæki, t.d. Guðjóni Kristinssyni og félögum á Selfossi, en hann hefur oft unnið með Sjálfboðaliðasamtökunum. Þorvaldur Örn Úr stefnumörkun þjóðgarðsins 2004-2024: http://www.thingvellir.is/media/skjol/stefna-vefur-mars-2005.pdf 8. Aðgengi og umferð 8.2. Framtíðarsýn til 2024 Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er opinn öllum allan ársins hring og þangað koma Íslendingar oft auk verulegs hluta erlendra ferðamanna. Umferð gesta er stýrt á virkan og skipulegan hátt til að tryggja að álag á náttúru, fornminjar og önnur gæði verði ekki umfram skilgreind ásættanleg mörk. Á ferð sinni um þjóðgarðinn fá gestir skýr skilaboð um reglur sem þeim ber að lúta um aðgengi og umferð. Gönguleiðir og aðrir afþreyingarmöguleikar eru vel merktir og fræðsla um það sem fyrir augu ber stendur víða til boða með ýmsum hætti. Bílvegir og bílastæði eru fullnægjandi til að taka við gestum á öruggan og skilvirkan hátt en áhersla er lögð á að gott kerfi stíga leiði gesti fótgangandi milli helstu staða. Jafnframt er gert ráð fyrir hestaumferð á völdum stígum utan viðkvæmustu og fjölförnustu staða, enn fremur umferð hjólreiðamanna á helstu stígum og aðgengi fyrir hreyfihamlaða á helstu áfangastaði. Bílaumferð er að mestu haldið utan viðkvæmustu staðanna, s.s. þinghelgarinnar og umferð vélknúinna ökutækja á stígum og troðningum er bönnuð. Vega- og stígakerfi er þannig úr garði gert að það sé sem minnst áberandi og tryggi hljóðlátt og öruggt flæði gesta. Þessi atriði eru nánar útlistuð í kafla 8.3 um meginmarkmið. Þar segir m.a. Eitt af markmiðum stígakerfisins er að dreifa fólki og þar með álagi um þjóðgarðinn. Til þess að þetta takist er nauðsynlegt að allar leiðir séu vel merktar og skýr grein gerð fyrir áhugaverðum áfangastöðum. Göngustígar eru áberandi í þessari framtíðarsýn þjóðgarðsins. Einnig umhverfisfræðsla og stýring álags af völdum ferðamanna. Athygli vekur að gönguleiðir skulu vera vel merktar og stígakerfið sem minnst áberandi, en hvort tveggja er mjög í samræmi við áherslur Sjálfboðaliðasamtakanna frá upphafi. Í kafla 10.3. um meginmarkmið vegna vistkerfis segir um trjáhirðu: Gróður sem ekki er upprunninn á Þingvöllum verði fjarlægður úr þinghelginni, s.s. barrtré og aspir og á þeim stöðum öðrum þar sem slíkur gróður er nærri markverðum menningarminjum. Umhirða og grisjun barrtrjáa á öðrum svæðum miði að því að náttúrulegur gróður fái notið sín.

Önnur ferðin á Þingvöll 2011, lau. 18. júní. Við vorum 9 talsins: Undirritaður Þorvaldur Örn, Sigrún Helgadóttir og Ólafur Andrésson hennar maður, Ragnheiður E. Jónsdóttir, Björg Ólínudóttir, Sigrún Davíðsdóttir, Jóhanna Berghild Hergeirsdóttir, Ásbjörn Harðarson og Ómar Smári Ármannsson. Þeir tveir síðastnefndu eru félagar í Ferli. Undirritaður hafði beðið Ómar um að koma með í þessa ferð og leggja okkur lið, en hann hefur rannsakað Reykjanesskagann allt til Þingvalla í rúma tvo áratugi, ekki síst gamlar þjóðleiðir. Ómar útskrifast sem fornleifafræðingur viku fyrir þessa ferð. Erindið í þessari ferð var að kanna gamlar leiðir um sunnanverðan þjóðgarðinn og var ákveðið að einbeita sér að leiðinni að Hellishæð, Selsstíg og Klukkustíg. Leiðir þessar


hafa ekki verið farnar í áratugi og eru að mestu horfnar í skóg og því vandasamt að finna þær og fylgja þeim. Sigrún og Ólafur maður hennar höfðu margsinnis skoðað þessar leiðir og voru komin með GPS-uppdátt að legu þeirra sem við fylgdum. Oft greindist leiðin í margar götur og álitamál hver þeirra sé aðal gatan og eins hver þeirra væri heppilegust fyrir ferðamenn og náttúruskoðendur. Hópurinn dreifðist stundum um ólíkar götur og prófaði þannig hver væri heppilegust. Víða var mjög erfitt að komast um vegna þétts birkiskógar, enda vex birki- og víðinýgræðingur gjarna upp úr götum sem lítil umferð er um. Fyrsta áning var við hellinn á Hellishæð, en leiðin liggur við hann. Hann var áður skjól fyrir sauðfé eins og títt var á þessu svæði þar sem auðfé gekk úti í skóginum. Í síðari áningarstað, þegar skammt var eftir að Hrafnagjá, var mikið rætt um Sigurðarsel sem margar heimildir eru um en enginn vissi hvar væri. Sigrún las upp heimildir um selið og sagði frá ólíkum merkingum á korti. Síðan var gengið áfram sem leið lá að Hrafnagjá og skipti engum togum að Ómar Smári gekk fram á röð af steinum sem hann fullyrti að væri rústir stekks (þar sem féð var rekið inn) og að rústir selshúsanna hlytu að vera þar skammt undan. Eftir að hafa horft í kringum sig kom hann auga á húsarústir sem sást móta fyrir, vel huldar gróðri. Við nánari könnun tókst að staðsetja stofu, eldhús, búr og lítið úthýsi sem gæti hafa verið brunnur. Þetta var 278. selið sem Ómar Smári finnur og skrásetur í Landnámi Ingólfs. Geri aðrir betur! Það voru upplýsingar frá Sigrúnu Helgadóttur sem komu honum á sporið en enginn okkar í hópnum nema hann hefði komið auga á selstóftirnar jafnvel þótt við hefðum staðið á þeim! Selið er á afar flottum stað þar sem sér bæði yfir Þingvellina og Hrafnagjána. Þetta sel var 278. selið sem Ómar Smári kortleggur í Landnámi Ingólfs. Veðrið var gott og ferðin afar fróðleg og skemmtileg. Sérstaklega voru Ómar, Sigrún og Ólafur hafsjór fróðleiks. Ómar Smári heldur úti vefnum www.ferlir.is þar sem m.a. má lesa um Sigurðarsel: http://www.ferlir.is/?id=14997 með ljósmyndum, skýrslum og texta þar sem segir m.a.: Þetta verður að teljast sérstaklega merkur fundur, bæði vegna þess að líklega hefur enginn núlifandi maður áður litið tóftirnar augum og auk þess verður staðsetningin að teljast merkilegt innlegg í sögu búsetu á Þingvöllum fyrr á öldum.

Fundur selsins var strax daginn eftir komin á mbl.is, sjá http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/06/19/sigurdarsel_fundid/. Tíminn leyfði ekki að við könnuðum Klukkustíg til hlítar, það var gert um haustið. Á norðurbakka Hrafnagjár eru leifar af girðingu sem þarft væri að fjarlægja (nema hún teljist fornminjar?). Sömuleiðis mikið af upprúllað kolryðguðu girðingarneti sem er leifar annarrar girðingar austan Hrafnagjár. Það er engin spurning í okkar huga að það þarf að merkja þessar gömlu leiðir og klippa kjarr og saga úr þeim stærðar tré því víða er vaxinn svo mikill skógur í göturnar að þær eru nánast ófærar. Þarna sjáum við fram á skemmtileg verkefni fyrir sjálfboðaliða: að stika, saga og klippa. Einnig væri þarft að fjarlægja girðingaleifarnar, þó það sé ekki jafn skemmtilegt verkefni. Samtökin bjóða stjórn þjóðgarðsins og þjóðgarðsverði krafta sína og sérþekkingu til að þessar leiðir opnist almenningi og þjóðgarðurinn njóti sín sem best.


Undirbúningsferð í Þingvallaþjóðgarð 27. sept. 2011 Við Sigrún Helgadóttir, Sigrún Davíðs, Sveinn Jóhannsson og Jóna kona hans áttum dýrðlegan dag á Þingvöllum og unnum gott dagsverk. Við vorum að undirbúa það að opna hinn forna Klukkuveg eftir viku en hann hefur verið týndur í áratugi og kjarrið hefur breitt sig yfir hann. Við lögðum bílunum á bílastæði þar sem þjóðvegurinn fer yfir Hrafnagjá, en það er einmitt á Klukkustíg (á þingvöllum var stígur einungis notað þar sem leið liggur yfir gjá). Þarna er óleyst vandamál sem magnaðist við lagning nýs vegar til Laugarvatns. Nú þeysir þarna ótrúlegur fjöldi á bílum sínum gegnum þjóðgarðinn og okkur vistist enginn virða 50 km hámarkshraða sem þó er rækilega merktur. Eins og nú er háttað er fótgangandi fólk í lífshættu á hinum forna Klukkustíg yfir Hrafnagjá. Þarna verða yfirvöld Þjóðgarðsins og vegamála að ráða bót á áður en slys hlýst af. Eftir að hafa sloppið lifandi frá ökuþórunum þræddum við okkur eftir hinum horfna Klukkuvegi með hjálp GPS-hnita sem Sigrún Helgadóttir og Ólafur, maður hennar, hafa staðsett og safnað undanfarin ár. Klukkuleiðin liggur nefnilega frá Klukkustíg og áfram milli Klukkuhóla að hinu forna eyðibýli Þórhallastöðum og Ölkofradal. Við merktum alla þessa leið með bláum borðum sem við hnýttum í trjágreinar, þannig að nú fyrst er aðuvelt að rata hana. Það verður enn auðveldara eftir að fjöldi sjálfboðaliða er búinn að saga öll tré og klippa allar greinar sem þvælast fyrir þeim sem nú reynir að fara leiðina. Þegar við höfðum merkt leiðina norðureftir og gengum hana til baka virtist á flestum stöðum alveg ljóst að einmitt þarna lægi leiðin. Á þeim stöðum sem gengið er á milli tveggja hraunkolla er yfirleitt aðeins ein mjög greinileg gata en á sléttari svæðum greininst hún gjarna í margar samsíða götur. Þar þurftum við að velja hvaða götu ætti að merkja og klippa. Við létum það ráðast af því hvaða gata væri greinilegust og einnig hverja væri auðveldast að ganga. Það sem hlest tafði vinnu okkar var berjatínsla. Þarna er allt blátt af stórum bláberjum, áberandi blá því lyngið er orðið skærrautt og reyndar byrjað að fella laufið. Þau voru mjög bragðgóð. Við fimm sem fórum þessa undirbúingsferð erum þar með reiðubúin að verkstýra stórum hópi sjálfboðaliða og klára að opna þessa leið næstkomandi laugardag 1. okt. Að því verki loknu er sjálfboðaliðum og öðrum félagsmönnum boðið til afmælisveislu í Alviðru í heimleiðinni, borða þar góðan mat og spjalla og spekúlera um fortíð og framtíð samtakanna sem hafa lifað góðu lífi í aldarfjórðung. Menn gætu helst spurt hvernig það samræmist náttúruvernd að saga og klippa innlendan trjágróður. Svarið væri þá að með því að opna þessa leið erum við að beina umferð náttúruskoðara og útivistarfólks að nýjum stöðum og hlífa þannig öðrum fjölfarnari svæðum þar sem þeir annars myndu fara um. Skýrsla Sjá um Þingvelli 2011 á issuu: https://issuu.com/umhverfismal/docs/_ingvallask_rsla_sj__2011_lagf_r_


Í bók Sigrúnar Helgadóttur um Þingvallaþjóðgarð, sem kom út í nóvember 2011, er eftirfarandi stílfært kort af gönguleiðum um Þingvallahraun teiknað af Baldri Snorrasyni.

Þær leiðir sem þarna eru merktar rauðar teljast troðningar. Sumir troðningar eru auðgengnir, en þó ekki ljóst hvar best er að fara, þeir eru merktir með heilli, rauðri línu. Aðrir eru mjög yfirgrónir og erfitt að sjá þá, merktir með rauðri punktalínu. Fjölmörg verkefni bíða því vinnufúsra handa á Þingvöllum. Þar má nefna: Verkefni I.  Stika Klukkuveg sem þegar hefur verið hreinsaður.  Hreinsa og stika Klukkuveg frá Þórhallastöðum (14) á reiðleiðina.


Við þetta opnast skemmtilegur hringur sem fólk gæti gengið frá Skógarkoti um Þórhallastaði. Verkefni II.  Stika leið frá Fjárhúsmúla (11) að Leirum (9), með Leiragjá.  Á þeirri leið þarf að smíða prílur yfir sauðfjárveikivarnargirðingu.  Stika vel, jafnvel lagfæra, stíg yfir Almannagjá nyrðri, næst Ármannsfelli.  Skoða leiðina með Sleðaásgjá og hugsanlega lagfæra hana. Við þetta yrði leiðin greið frá tjaldsvæðinu og þjónustumiðstöðinni á Leirum að Ármannsfelli og Bolabás. Nú aka flestir þessa stuttu leið enda er hún ógreiðfær gangandi fólki. Verkefni III.  Kanna hringleiðina: Flosagjá (6), Skógarkot (12), Vatnskot (10) og um Vatnskotsveg að Silfru og Flosagjá.  Meta hvað þarf helst að gera til að leiðin verði augljós í landinu og auðgengin.  Hreinsa lausagrjót, klippa úr götum og afmarka þær þar sem þarf. Sumir hlutar hringleiðarinnar eru augljósir og greiðfærir en aðrir ekki. Sérstaklega þarf að huga að tengingum á leiðunum s.s. á milli Vatnskotsvegar og Gönguvegar og á milli Vatnskotsgötu og Vatnskotsvegar. Verkefni IV.  Hreinsa úr leið frá Klukkustíg (17) upp á Girðingargötu.  Stika Girðingargötu þar sem þörf er á.  Hreinsa og stika leiðina frá Girðingargötu, á milli Svínhóla og með Hrafnagjá að Klukkustíg.  Kanna fleiri leiðir. Girðingargata er víðast mjög greinileg í landinu og auðgengin. Hún fer ekki að fornum fjárhellum. Með því að benda á hana opnast geysilega fallegt og mikið gönguland austan Hrafnagjár. Hvað mikið er hægt að gera árið 2012 ræðst af ýmsu m.a. því hversu snemma er hægt að byrja í vor fyrir snjóalögum og veðri. Viðbúið er að einhverjum verkþáttum verði frestað til 2013 og eitthvað ófyrirséð muni bætast við 2012. Lagfæring þessara gatna er í samræmi við það hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamanna ,,að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.” Nær samhljóða ákvæði er einnig að finna í Stefnumörkun þjóðgarðsins 2004-2024, kafla 8:4 . Það myndi jafnframt styrkja heildarmynd gönguleiðanets Þingvallaþjóðgarðs. Flestar þessara gatna eru þegar merktar á þau kort sem lengi hefur verið dreift til ferðamanna en eru á köflum illfærar. Fornar götur teljast til fornleifa og því var haft samráð við Fornleifavernd ríkisins þegar verkið er undirbúið. Ekki verður hróflað við götunum sjálfum heldur einungis gróðri sem hefur vaxið í þeim eftir að notkun þeirra lagðist af. Við verkið eru notaðar mismunandi klippur og einnig bogasagir auk GPS-tækis og margvíslegra gagna á blöðum og í tölvu en þjóðgarðurinn mun leggja til stikur og eitthvað af verkfærum. Beinn kostnaður er einkum ferðakostnaður á milli höfuðborgarsvæðisins og Þingvalla og matarkaup fyrir sjálfboðaliðahópana og eitthvað af verkfærum og timbri. Mestu verðmætin liggja þó í vinnuframlagi sjálfboðaliðanna. Flestir


þeirra hafa mikla reynslu af því að leggja, endurbæta og merkja náttúrulegar gönguleiðir og í hópnum er fólk með menntun eins og umhverfisfræði, líffræði og garðyrkju sem nýtist í að skipuleggja og vinna verk þetta. Sótt var um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamála en fékkst ekki, en Sjá fengu 30.000 kr. styrk frá Þingvallaþjóðgarði til matarkaupa sem kom sér vel í helgarferð við Vatnskot.

Sjá árið 2012 á Þingvöllum Úr skýrslu stjórnar um starfið 2012: Í Þingvallaþjóðgarð voru farnar 4 ferðir, þ.e. 3 dagsferðir og ein helgarferð. Fyrst 21. apríl kannaði 8 manna hópur leiðir milli Bolabáss og tjaldmiðstöðvarinnar að Leirum og lagði drög að vinnu þar. Þann 19. maí unnu 8 manns að lagfæringum á nokkuð fjölfarinni gönguleið á austurbarmi Sleðaásgjár milli Leira og Bolaklifs. Þar vantar brú á hættulega gjá við Leirur til að hægt sé að ljúka verkinu. 26. maí byrjuðu 8 manns að opna nýja og eldgamla leið milli Bolaklifs og tjaldsvæðisins á Leirum, m.a. klippa úr og lagfæra leið yfir gjá nokkra sem ekki hefur verið farin lengi og var þéttgróin kjarri. Þarna vantar prílu yfir girðingu, fleiri stikur, meiri klippingu og skilti. Helgina 22. – 24. júní unnu 13 sjálfboðaliðar við að lagfæra og stika betur hringleið frá Þingvöllum að Vatnskoti og Skógarkoti, u.þ.b. 6 km leið. Tjaldað var á huggulegu tjaldstæði í Vatnskoti á bakka Þingvallavatns þar sem hægt var að hlusta á og fylgjast með ferðum fugla, m.a. himbrima. Þar áttum við huggulegar kvöldstundir.

Leiðir á milli Leira og Bolabáss kannaðar laugard. 21. apríl 2012 Engin greiðfær merkt gönguleið er nú á milli aðaltjaldsvæðis og þjónustumiðstöðvar þjóðgarðsins annars vegar og Bolabáss og Ármannsfells hins vegar. Þeir sem vilja fara þessa leið geta ekki annað en ekið/gengið malbikaða veginn meðfram Hvannabrekku og um Leynistíg. Gönguleið þarna á milli væri þó ekki nema rúmlega tveir kílómetrar og yki afþreyingarmöguleika tjaldgesta og drægi úr bílaumferð. Skoðaðar voru tvær leiðir: a) Frá tjaldsvæðinu miðju, með Leiragjá og að vestasta hluta Bolabáss, undir Fjárhúsmúla, kölluðum hana„Bolabásgötu“. b) Frá veginum austan tjaldsvæðisins og með Sleðaásgjá en hún kemur að Bolaklifi austan við Bolabás.


A. „Bolabásgata“ frá tjaldsvæðinu með Leiragjá að Fjárhúsmúla Fyrst var könnuð leið frá bílastæði suðaustan undan Fjárhúsmúla að tjaldsvæðinu á Leirum. Þetta getur ekki talist vera gömul þjóðleið þótt vitað sé að þarna fór fólk mikið á milli, einkum um Alþingishátíðina 1930 þar sem hluti hátíðarhaldanna fór fram í Bolabás. Talsvert er af götum eftir fólk og fénað og völdum við leið sem fylgir að mestu frekar ógreinilegum götum fyrst í stað. Fara þarf yfir þjóðgarðsgirðinguna sem jafnframt er sauðfjárveikivarnargirðing (í frekar lélegu ástandi). Þar þarf að setja prílu.Við gerðum ráð fyrir að hún kæmi við horn á girðingunni og sagði Sigrún að Einar, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins, hefði mælt með þeim stað fyrir prílur. Sunnan girðingar þarf að fara yfir gjá og fundum við ágætan stíg yfir hana. Bendir gróður til þess að hann hafi verið talsvert farinn áður en ekki í seinni tíð, enda gatan að gjánni gróin kjarri og girðingin heftir för. Stígurinn yfir gjána sést ekki á meðfylgjandi mynd en fólkið stendur nærri honum. Þegar komið er yfir stíginn og niður hallinn með gjánni er gatan greinileg. Hún er að Skammt norðan girðingar. Ármannsfell og Fjárhúsmúli hluta notuð af vísindafólki sem rannsakar út frá því. Bílarnir á bílastæði þar sem væri upphaf þar mosa. Hún kemur að Leiragjá þar sem eða endi leiðarinnar að norðanverðu. gjáin er lítil og fylgir gatan austurbarmi hennar til suðurs þar til gjáin er orðin mjög djúp. Þar tekur við úfið sprungusvæði við gjána og teljum við ráðlegt að velja leið þaðan beint á mitt tjaldstæðið, bæði til að sneiða hjá sprungunum og til að stytta leið tjaldgesta í Bolabás. Neðri myndin sýnir götuna til suðurs við gjána nokkuð norðar en þar sem beygt væri frá gjánni. Verkefni þarna eru að klippa kjarr á fáeinum stöðum, tína laust grjót, stika leiðina og merkja við endana. Við syðri endann gæti staðið Bolabás x km en við nyrðri endann Leirar tjaldsvæði xx km. Um miðbik leiðarinnar, eða við „Bolabásgata“ við Leiragjá. Leiragjá, þverar hún leiðina að Jónsstíg. Spurning er hvort ekki ætti að merkja þar líka. Á þeim köflum sem leiðin fylgir ógreinilegum og margskiptum götum


þyrfti að stika nokkuð þétt (allt niður í 20 m á milli stika) til að leiða fólk inn á eina leið sem yrði síðan greinileg þegar margir hefðu gengið hana. Annars væri nóg að setja stikur á allt að 50 m bili. Leið þessi var stikuð og kliptt mánuði síðar, sjá hér síðar. Þessi vestari leið hentar vel fólki til að ganga frá tjaldsvæðinu eða þjónustumiðstöðinni yfir í vestasta hluta Bolabáss. Þetta eru til dæmis þeir sem vilja ganga á Ármannsfell upp Fjárhúsmúla og þeir sem ganga vilja hringleið í Bolabás og koma til baka leiðina meðfram Sleðaásgjá (eða öfugt). Leiðin yrði mjög greiðfær eftir fyrrnefndar lagfæringar og lítið um mishæðir. Hún er auðkennd á kortum í Þingvallabók Sigrúnar og segir hún Ólaf þjóðgarðsvörð hafa lýst sig sammála því að „Bolabásgata“ ætti að vera greiðfær leið. Núna fer fólk oftast á milli þessara staða akandi eða gengur eftir þjóðveginum. B. Leið milli Leira og Bolabáss, meðfram Sleðaásgjá Í könnunarferðinni 21. apríl könnuðum við leiðina eftir eystri barmi Sleðaásgjár. Við Sleðaásinn (Bolaklif) er bílastæði og príla yfir girðinguna. Leið þessi er ekki merkt en það mikið gengin að hún er mjög greinileg. Aðalvandi fólks er að rata inn á hana. Hún byrjar að norðan, á sama stað og Réttargatan að Hrauntúni, en aðeins Réttargatan er merkt.

Upphafið við Bolaklif

Upphafið við Bolaklif

Greinileg gata en mishæðótt

Syðri endi Sleðaásleiðarinnar er við þjóðveginn, rétt austan við tjaldsvæðið, og byrjar þar á sama stað og Leiragata sem er merkt. Aðstæður þarna eru slæmar, við mjög fjölfarinn veg og engin gönguleið meðfram honum sem tengir gönguleiðirnar og tjaldsvæðið. Reyndar er hægt að klofa yfir gjána rétt norðan við veginn og þar var lítil göngubrú fyrir tveim áratugum að sögn Sigrúnar. Þar þyrfti að byggja nýja göngubrú með handriðum og jafnvel huga að frekari öryggisatriðum.

Upphafið við þjóðveginn

Þarna þarf að setja aftur hlera yfir gjána


Fyrsta spölinn frá hleranum þarf að leiða fólk framhjá sprungum.

Merkja þarf allar þessar leiðir

Gatan meðfram Sleðaásgjá er svo greinileg að það ætti ekki að þurfa að stika hana þétt nema þar sem hún er ógreinileg eða þar sem hún verður færð til. Annars staðar gætu stikur verið með löngu millibili. Við gengum hana ekki alla í könnunarferðinni heldur áleiðis frá báðum endum. Það er nauðsynlegt að merkja upphafsstaðina og æskilegt að tína úr henni grjót og klippa kjarr á stöku stað. Guðrún yfirlandvörður sagði þetta um leiðina í tölvubréfi haustið 2011: Auk þessa vil ég nefna leiðina meðfram Sleðaásgjánni, milli tjaldsvæðisins á Leirum og Bolaklifs. Þá leið þarf að leggja fallega í landið og stika til að byrja með. Þar með opnast hringleið frá tjaldsvæðinu um Bolaklif og Réttargötu í Hrauntún þaðan sem síðan er hægt að ganga annaðhvort í Skógarkot eða niður á tjaldsvæðið aftur um Leiragötu. Talsvert verk er síðan framundan við að koma Leiragötu í gott horf sem getur beðið betri tíma.

Hugmyndir þessar voru ræddar við Ólaf Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörð, á stuttum morgunfundi á Amokka mánud. 30. apríl. og honum send skýrslan um skoðunarferðina. Þar féllst hann á að láta smíða brú yfir gjána við Leirur og lagði til að við tækjum þessa leið á undan vestari leiðinni, „Bolaklifsgötu“ sem við og gerðum.

Framkvæmdir við leið B meðfram Sleðaásgjá, laugard. 19. maí. Þann 19. maí skundaði vaskur hópur sjálfboðaliða á Þingvöll og hófst handa. Alls unnu átta manns þennan dag, þar af unnu fimm allan daginn. Það var prýðis vinnuveður, léttskýjað og norðan gola eða kaldi. Þjóðgarðurinn lagði til verkfæri og stikur eins og við þurftum. kl. 11:15 hófumst við handa SA við Sleðaásgjána við Leirur, u.þ.b.100 m NA þjóðvegarins þar sem Sleðaásgatan greinist frá Leiragötunni. Tínt var laust grjót úr götunni og viðráðanlegir steinar sem stóðu upp úr henni voru fjarlægðir með járnkarli og gjarna settir í nálæg moldarflög. Beittar nibbur á stórum steinum voru brotnar af eða rúnnaðar af með slaghamri. Þar sem kjarr óx í götunni eða fast við hana var það klippt og sagað rækilega þannig að ætti


að duga í nokkur ár. Síðan voru settar stikur á áberandi staði við götuna, strjált þar sem gatan var greinleg en þéttar þar sem hún var ógreinileg og einkum þar sem við reyndum að færa hana til. Við færðum hana til á 3-4 stöðum þar sem hún var að okkar mati hættulega nálægt gjánni og /eða lá að óþörfu um brattan hól. Við nostruðum við SVhlutann en seinasta hlutann hefði mátt nostra meira við ef tíminn hefði leyft það og einnig vantar þar stikur því að við urðum uppiskroppa með þær. Gatan er að okkar mati greiðfær göngufólki eins og við skildum við hana og vonandi hægt að rata hana. Þó væri gott að fara aftur yfir hana síðar NA frá, bæta í 10 – 20 stikum og e.t.v pjakka burt meira af grjóti. Gott væri að fá mat landvarða á Þingvöllum og almennra vegfarenda á ástandi götunnar áður en við klárum verkið. Einkum á því hvort þar leynast hættur. Við teljum okkur hafa breytt legu götuna frá helstu hættum en betur sjá augu en auga. Ætlunin var að vinna vestari leiðina á svipaðan hátt næstu helgi og fara svo aftur yfir báðar leiðirnar nokkru síðar og fínkemba þær. Þá væri gott að komin væri brú á Sleðaásgjána við þjóðveginn, príla yfir girðinguna á vestari leiðinni og skýrar merkingar við báða enda beggja gatnanna. Þorvaldur spurði Guðrúnu landvörð viku síðar hvort hennar fólk hefði kynnt sér ástand götunnar eftir lagfæringar okkar. Hún sagði svo vera, að gatan hefði lagast en hana þyrfti að laga meira og stika betur til að standast kröfur sem gerðar eru í þjóðgarðinum. Við áttum leið um Leirur í septemberbyrjun og var þá engin brú komin á gjána og þessu verki því ólokið.

Framkvæmdir við leið A „Bolabásgötu“, laugard. 26. maí Við mættum átta sjálfboðaliðar á tveim bílum við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum rétt fyrir kl. 11. Við vorum: Dagbjört, Ebeneser, Finnur, Jóna, Katla, Ólafur, Sigrún og Sveinn. Finnur er sonur Eysteins, fyrrverandi formanns Þingvallanefndar, og hafði verið í sveit hjá séra Eiríki þjóðgarðsverði þegar hann var lítill og rifjaði upp ýmislegt gamalt og fróðlegt fyrir okkur hin. Skemman var opnuð fyrir okkur og við fengum lánaðar klippur, járnkall og sleggjuhamar. Við ókum upp að Fjárhúsmúla, gengum þaðan og unnum okkur suður leiðina að Leirum. Við stefndum á hornstaurinn á sauðfjárveikivarnar- þjógarðsgirðingunni. Við settum ekki niður stikur næst veginum til að draga ekki fólk að girðingunni á meðan ekki er búið að setja yfir hana prílur. Rétt sunnan girðingarinnar er þarna stígur yfir gjána, annars vegar mjög gróinn og illsýnilegur og hins vegar grýttur, þótt auðveldlega mætti fara þar. Við klipptum úr stígnum og löguðum grjótið og merktum leiðina með stikum. Eftir það var tiltölulega auðvelt að fara þarna yfir gjána. Sunnan stígsins er leiðin niður lítinn hall og þar þurfti að klippa úr henni. Þá var komið á greinilegan troðning suður með hallinum og leiðin var greið. Á nokkrum stöðum þurfti að velja úr tveim leiðum, á einum stað að klippa og saga rækilega. Við settum niður nokkrar stikur, sérstaklega ef um tvær leiðir var að velja.


Þar sem komið var á troðning sem Ingibjörg Svala, vistfræðiprófessor, hefur farið eftir til að komast á mosarannsóknarreiti. Settum við stóran stein í þann troðning en stikur með Bolabásgötunni. Svo skemmtilega vildi til að þegar við vorum í þjónustumiðstöðinni, sleikjandi ís eftir að verki var lokið, kom Inga Svala þar og gátum við sagt henni að við hefðum lagt stein í götu hennar og hún fagnaði því! Hún hafði lengi gert sér grein fyrir þeim vanda, að það hve hennar götur eru greinilegar í mosanum beinir fólki að rannsóknarreitunum en af réttri leið. Við Leiragjá greinast götur, (þar þyrfti að vera vegpóstur). a) leið suður með Leiragjá, b) leið yfir Leiragjá upp á veg, c) leið austur á Jónsstíg, ógreinileg fyrir þá sem ekki þekkja til d) leið norður en hún greinist síðan í Bolabásgötu og að rannsóknareitum. Við vorum að koma leið d) og fórum nú leið a) suður með Leiragjá. Gatan var mjög greinileg með gjánni eins og oft er. Við höfðum margoft skoðað leiðina, og áttum gpspunkta, hvar við vildum beygja frá gjánni til að fara beint á tjaldsvæðið. En þennan dag brást tæknin okkur og minnið, og við beygðum til austurs ekki alveg á réttum stað. Sú leið sem var valin var er þó líklega ekkert verri en hin, en það má skoða síðar. Alls staðar þurfti að klippa sig í gegnum kjarr til að komast á opna svæði norðan tjaldsvæðis. Það gerðum við og komum syðst á tjaldsvæðið. Með gjánni og að tjaldsvæðinu stikuðum við gisið, fyrst og fremst til að við, eða aðrir sem vildu skoða leiðina og e.t.v. vinna hana betur en við gerðum, fyndu hana. Þetta var því um 5 klst. vinna fyrir 8 = 40 klst. = vikuvinna! Að auki ferðatími til og frá vinnustað sem mætti reikna klukkustund á mann hvor leið og getur þetta því hæglega reiknast 8 dagsverk. Framhaldið: Mikilvægt er að prílur komi yfir þjógarðsgirðinguna „Bolabásgötu“ sem fyrst. Þá þarf að ljúka við að stika yfir melinn norðan girðingar að horni hennar. Einnig þarf að koma brú yfir Sleðaásgjá við tjaldsvæðið. Að sögn þjóðgarðsvarðar og yfirlandvarðar er ætlunin að flytja þangað brú sem verið er að leysa af hólmi annars staðar. Þá geta farið litlir hópar, t.d. sjálfboðaliðar eða landverðir, og smátt og smátt lagað leiðirnar. Annars vegar frá tjaldsvæði í Bolabás við Fjárhúsmúla og hins vegar austan Sleðaáss að Bolaklifi. Þarna kemur skemmtileg hringleið og góð afþreying fyrir þá sem eru á tjaldsvæðinu. Frá þjónustumiðstöð og að Ármannsfelli aðra hvora leiðina, um Bolabás og hina leiðina til baka eru rúmlega sex kílómetrar. Þeir frískustu geta svo bætt Ármannsfelli við! Nú er líka lítið mál að stika Jónsstíg og í raun mikilvægt að gera það áður en leiðin týnist alveg. Þá væri kominn styttri hringleið frá tjaldsvæðinu en ef farið er alveg upp í Bolabás. Sá hringur er rúmlega þrír kílómetrar.


Kaffitímar eru mikilvægir. Finnur, Sveinn og Jóna.

líka

Framkvæmd við leiðir milli Vatnskots, Skógarkots og Þingvallabæjar 22. – 24. júní Vinnulotan nú var frá föstudegi til sunnudags. Alls tóku 13 sjálfboðaliðar þátt og unnu flestir þeirra tvo daga, en 2 unnu þrjá daga og 2 einn dag. Alls geta þetta talist vera 26 dagsverk. Þar með eru dagsverkin í Þingvallaþjóðgarði vel 50 þetta árið og er þá heimavinna umsjónarmanna verksins við undirbúning, skipulag og skýrslugerð ekki talin með. Tjaldað var á hinu undurfagra tjaldsvæði í Vatnskoti í boði þjóðgarðsins sem einnig veitti 30.000 kr. fjárstyrk til matarkaupa fyrir hópinn. Aðstaðan á tjaldsvæðinu er á allan hátt frábær. Þó fannst okkur að þar mætti vera hlaðið útigrill á vel völdum stað, m.a. til að forðast eldhættu þegar fólk er að nota eigin einnota grill sem mjög margir sýnast gera. Svo vantar skýrar merkingar þeirra gönguleiða sem liggja frá Vatnskoti. Þarna áttu sjálfboðaliðarnir dýrðlegar samverustundir kvölds og morgna og sofnuðu við fjölraddaðan fuglasöng, m.a. himbrima. Sól skein allan tímann og var ýmist lygnt eða svalur vestlægur vindur. Föstudagur Sigrún Helgadóttir, Þorvaldur Örn og Finnur Eysteinsson mættu í Vatnskot laust fyrir hádegi á föstudeginum og unnu við Vatnskotsveg til kvölds. Hann var lagfærður og stikaður frá Vatnskoti og að leiðinni sem liggur frá vegi og suður á Lambhaga, Lambhagagötu. Vatnsslanga liggur víða eftir endilangri götunni eða meðfram henni og er mjög til lýta og leiðinda. Við prófuðum að færa hana fjær götunni nærri Vatnskoti og var það hægt vegna þess að þar er skóglaust. Hún er samt enn allt of áberandi og truflandi. Ef færa ætti hana í skóginum þyrfti að taka af vatnið og skrúfa í sundur nokkur samskeyti og væri þá hægt að fela hana í kjarrinu. Það teljum við vera auðveldustu leiðina til að losna við hana úr augsýn göngufólks með minnstu raski. Annað ráð væri að grafa hana eða rispa ögn niður við götuna með skóflum og járnkarli. gæti orðið erfitt og fylgdi óhjákvæmilega rask sem tæki nokkur ár að jafna sig. Þegar fólk kemur eftir Vatnskotsvegi á Lambhagagötu lendir það í vanda. Bílastæðið blasir við og fara margir þangað og upp á veg en aðrir fylgja slöngunni áfram og lenda þá á sprungusvæði og enda líka uppi á bílveginum þar sem er beygja á honum og umferð hættuleg. Í báðum tilfellum gengur fólk síðan með eða á mjóum veginum að Silfru eða Flosagjá.


Lausnin er að okkar mati sú að finna leið áfram yfir hraunið í vestur að nýgerðu götunni góðu sem liggur með Silfru og fylgja henni upp á Þingvallatún. Við skoðuðum aðeins hugsanlega leiðir en það var orðið kvöldsett svo að við gengum niður Lambhagagötuna niður að vatni, yfir Lambhagann nyrst, sunnan garðs, og með vatninu til baka. Þessa leið þarf að laga og klippa úr og gerðum við það lítilsháttar, svona í leiðinni. Sveinn og Jóna mættu um kl. 15 og gengu beint til vinnu og svo bættist Ólafur við rétt í lok vinnudags og gekk vasklega í matargerð ásamt Sigrúnu og fleirum. Grilluð var bleikja (þó ekki úr Þingvallavatni) og bragðaðist guðdómlega. Um nóttina komu Ebeneser og Dagbjört og Jóhanna, Sigríður Rut og Signý Ósk á laugardagsmorgni. Laugardagur Á laugardeginum unnu 11 sjálfboðaliðar (flestir allan daginn) við Vatnskotsgötu, frá Vatnskoti að Skógarkoti, og svo áfram við Gönguveg frá Skógarkoti að þjóðveginum við Flosagjá. Alla þessa leið var klippt kjarr og lyng, hreinsað lausagrjót og steinar losaður með skóflu eða járnkarli og fjarlægðir úr götunni þar sem þeir voru mjög til baga, Leiðin sem lagfærð var á þennan hátt er tæplega 5 km. Syðsti hluti Vatnskotsgötu, sem liggur á milli eldri bílvegarins (Konungsvegar) og tjaldsvæðisins í Vatnskoti, var nú stikaður í fyrsta sinn. Upphafsmerki götunnar er norðan bílvegarins og vantar nú að setja einnig slíkt skilti við upphaf götunnar við þjónustuhúsin á tjaldsvæðinu. Gatan frá bílveginum norður að Skógarkoti var vel stikuð og þurftu sjálfboðaliðar þar litlu að bæta við, helst að slá á nokkrar stikur. Gönguvegurinn er mjög vel varðaður frá Skógarkoti að Háugjá. Helsti vandinn er sá að vegfarendur eru að bæta grjóti í þessar fornu vörður. Við ákváðum að stika spottann frá Háugjá að bílveginum við Flosagjá en það verk beið þó næsta dags.

Stígurinn yfir Háugjá er flottur, að hluta manngerður.

Kristrún við merkta vörðu.

Til að sjá hvernig loka mætti Vatnskotshringnum gengum við eftir malbikuðum vegi frá Flosagjá að þjóðargrafreitnum við Þingvallakirkju og áfram handan hans um túnið uns við komum að vönduðum göngustíg meðfram Silfru. Þá áfram eftir honum niður undir vatnið en beygðum þá til austurs uns við komum að Vatnskotsveginum með


vatnsleiðslunni þar sem vinnu okkar við þann veg lauk kvöldið áður. Við skoðuðum og mátum þessa leið og undirbjuggum vinnu sunnudagsins. Við grilluðum aftur við frumstæðar aðstæður á laugardagskvöld og snæddum úti í nokkuð nöprum vestankalda sem gekk ekki niður fyrr en við höfðum flúið í húsaskjól og troðið okkur öllum inn í pínulítið hjólhýsi sem Ebenezer og Dagbjört höfðu meðferðis og við kölluðum skrifstofu Sjálfboðaliðasamtakanna. Þar áttum við notalega kvöldstund með kaffi og súkkulaði. Við slíkar aðstæður fer fram mikilvæg umræða um verkefnin og starf samtakanna. Þá um kvöldið bættust systurnar Kristrún og Ragnheiður í hópinn, komu hvor úr sinni áttinni; Heiða úr Vogum og Kiddý frá Hvamstanga. Sunnudagur: Eftir morgunverð á sunnudeginum voru tjöldin tekin niður og óku 9 sjálfboðaliðar til vinnu á mörkum þinghelginnar. Nú skyldi loka hringnum þannig að fólk gæti gengið sæmilega hættulítið hvað bílaumferð varðaði hringinn um Vatnskot, Skógarkot, Flosagjá, Þingvelli. Skipt var liði. Annar hópurinn fékk það verkefni að stika frá Háugjá, með Gönguvegi að bílveginum við Flosagjá og gekk það greiðlega. Upphafsskilti Gönguvegarins er austan við bílveginn og þar er ekkert bílastæði. Eðlilegt væri að telja leiðina byrja við bílastæðið við Flosagjá, nokkra tugi metra þar frá, og að skiltið væri þar. Þá þarf að þvera bílveginn, sem er mikið keyrður, og eftir troðningum að dæma ganga flestir á ská yfir veginn, sem eykur enn á hættuna, og ganga síðan eftir veginum niður á bílastæðið. Þetta er hættulegur spotti eins og aðstæður eru nú. Vegurinn er þröngur, fer yfir blindhæð, klettaveggur er við aðra vegabrúnina og hátt niður af hinni. Þarna er mikil umferð, oft stórra bíla, og ekki alltaf farið varlega. Sjálfboðaliðarnir skoðuðu svæðið og veltu vöngum yfir hvar væri besta og öruggasta leiðin og sýndist sitt hverjum. Við komum auga á nokkrar lausnir. Allar gera þær þó ráð fyrir að fólk gangi beint vestur yfir veginn og að Vegagerðin setji upp skiltið Gangandi vegfarendur og máli sebrabraut á malbikið (mætti gera víðar). Síðan mætti velja og vinna leið norðan í hæðinni og niður á bílastæðið en þannig yrði umferð gangandi best aðskilin frá bílaumferð. Eða að afmarka gönguleið með veginum, með vegriði og merkingum, svo gangandi fólk hafi ótvírætt sitt rými á veginum. Þar sem sjálfboðaliðar ræddu málið kom þar að Torfi, einn af landvörðum þjóðgarðsins, og gaf sig á tal við hópinn. Hann tali taldi sérstaka gönguleið þarna óþarfa, fólk gæti gengið eftir bílveginum. Svo fór að þessi stutti spotti var ekki stikaður og hringnum því ekki alveg lokað og er það miður. Vonandi verða þarna gerðar úrbætur áður en slys verður. Hinn hópurinn, fjórir sjálfboðaliðar, gengu niður með Silfru og fundu heppilega leið frá henni og yfir á gatnamót Vatnskotsvegar og Lambhagagötu. Klippt var úr leiðinni og hún stikuð. Allur hópurinn stikaði síðan frá bílastæðinu við Silfru, um Þingvallatún og að Skötutjörn, nálægt þjóðgargrafreit, þaðan sem er malbikuð leið aftur á Flosagjá. Vinnu lauk upp úr kl. 14.


Stígurinn yfir Skötugjá, í Þingvallatúninu.

Samantekt og tillögur 2012 Þann 21. apríl voru kannaðar leiðir á milli tjaldsvæðis á Leirum og Ármannsfells, 20. maí var unnið við lagfæringar á leiðinni með Sleðaásgjá og 26. maí unnið við leiðina frá tjaldsvæði að Fjárhúsmúla, „Bolabásgötu“. Sjálfboðaliðar sjá ótal verkefni á Þingvöllum fyrir vinnufúsar hendur. Bæði að vinna betur þær leiðir sem þegar hefur verið unnið við og ný verkefni.  Í fyrra klipptum við leiðina á milli Klukkustígs og Þórhallastaða. Enn er eftir síðasti spottinn frá Þórhallastöðum að Pelahellu. Gaman væri líka að tengja þessa leið, sem kannski má kalla „Klukkuveg“, öðrum leiðum þjóðgarðsins. Mikilvægt er að þjóðgarðurinn fari fram á það við Vegagerðina að setja undirgöng í veginn á Klukkustíg. Það hefði auðvitað átt að gera sumarið 1974 þegar þessi vegur var lagður í ævafornan stíg sem fram að því hafði verið þjóðleið gangandi og ríðandi.  Þegar þjóðgarðurinn hefur sett prílur yfir girðinguna norðarlega á „Bolabásgötu“ þarf að ljúka við að stika hana.  Guðrún yfirlandvörður telur að vinna þurfi enn frekar að leiðinni með Sleðaásgjá. Mikilvægara er þó að þjóðgarðurinn setji brú yfir gjána við tjaldsvæðið eins og talað hefur verið um.  Hægt er, og reyndar mikilvægt, að merkja leiðina um Jónsstíg á milli Bolabásgötu og Sleðaásgjár.  Lagfæra þarf Lambhagagötu.  Stika þarf leið með vatninu sem nýtist göngufólki og beinir því góða leið með vatninu án þess að fara of nærri vatnsbakkanum þar sem veiðimenn halda sig.  Í fyrra skoðuðum við líka leiðir í austurhluta þjóðgarðsins, leiðir með Hellishæð, Svínhólum, Hrafnagjá o.fl. sem við hefðum fullan hug á að vinna í. Sjálfboðaliðasamtökin vilja gjarna ræða við þjóðgarðsvörð um þessi verkefni og önnur ef áhugi er fyrir hendi hjá þjóðgarðsstjórnendum. Ýmislegt annað - tillögur Við undirbúning og framkvæmdir okkar í sumar höfum við séð ýmislegt sem við viljum gera að tillögum okkar eða setja fram til umhugsunar.


Vegvísar í þjóðgarðinum sjást yfirleitt vel þar sem fólk er fótgangandi, t.d. við bílastæði, en sjást illa úr bílum. Þannig sést vegvísir að tjaldstæðinu í Vatnskoti mjög illa en veiðiskilti þar sjást betur. Einn vegvísir var greinilega rangur. Hann var við reiðveginn við Skógarkot og er letrað á hann Skógarkotsvegur, og undir með smærri stöfum Skógarkot 1,9 km. Það stenst ekki því þarna er verið að merkja leiðina frá Skógarkoti. Við sögðum Torfa landverði frá þessu. Hann vissi af þessari villu og sagðist hafa bent á hana fyrir nokkrum árum. Við hvöttum hann til að sjá til þess að þetta yrði leiðrétt. Það sárvantar mun fleiri vegmerkingar (vegpresta) í Þingvallaþjóðgarði á gatnamótum. Spurning hvor ekki væri rétt að hafa a.m.k. suma þeirra einfaldari og ódýrari en jafnframt með skýrari (stærri) áletrun og tryggja betur að þeir sjáist, t.d. vegna kjarrs. Ráð væri að reyna að fá Vegagerðina til að setja upp aðvörunarskiltið Gangandi vegfarendur þar sem gönguleiðir skera akbrautir. Einnig að mála þar sebrabrautir á malbikið. Færa þarf vatnsleiðsluna sem liggur eftir Vatnskotsvegi.

Könnunarferð í Þingvallaþjóðgarð 28. mars 2013 Sveinn, Jóna og Áki fóru á föstud.langa, 28. mars með Sigrúnu og Óla á Þingvöll í frábæru veðri. Gengu úr Vatnsvíkinni upp í gegnum Jónslund og áfram inn á kunnuglegan Klukkustíginn "okkar" ca. miðjan með viðkomu í nýja Þinvallahelli. Þaðan að Þórhallarstöðum og borðuðu nesti og héldu síðan að Ölkofradal, síðan að Pelahellu og reiðstíginn til baka að bílnum við Vatnsvík. Það er e.t.v.hámark tveggja klukkustunda verk að klippa frá Jónslundi og að Klukkustíg fyrir ca. 5-6 manns ef leyfi fæst hjá Þjóðgarðsverði og yrði það meiri skemmti-eða skoðunarferð ef af verður. Ekkert er svo svert að þurfi að saga, en góðar greinaklippur + handklippur og e.t.v. hekkklippur fyrir grönnu víðirenglurnar duga. Þau gengum fram á stórfurðulegan "hlut" í Jónslundi sem augljóslega hefur verið þar í æði mörg ár og sést hvergi að úr fjarlægð.


Þjóðgarðurinn hafnaði því að klippt yrði úr þessari leið. Var þetta síðasta verkefni Sjá í Þingvallaþjóðgarði í þessari lotu. Þorvaldur Örn tók þetta plagg saman úr nokkrum skýrslum. Til eru tvær skýrslur á vef issuu um samstarfsverkefni Sjá og Þingvallaþjóðgarðs: Skýrsla um vinnu Sjá í Þingvallaþjóðgarði 2011: https://issuu.com/umhverfismal/docs/_ingvallask_rsla_sj__2011_lagf_r_ skýrsla Sjá um vinnu í Þingvallaþjóðgarði 2012, milli Bolabáss og tjaldsvæðisins á Leirum https://issuu.com/umhverfismal/docs/sja_in_thingvellir_2012_skyrsla


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Vinna Sjá á Þingvöllum 2010 - 2013, með tillögum by Þorvaldur Örn Árnason - Issuu