Skip to main content

Þórsmörk, vinna Sjá við stígagerð 1987 til 1992

Page 1

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Sjá, laga jarðvegsog gróðurskemmdir og leggja stíg á Valahnúk úr Langadal í 5 vinnuferðum, sumurin 1987, 1988, 1989, 1990 og 1992.

Verkstjóri Sjá öll árin var Örn Þorvaldsson. Þorvaldur Örn Árnason tók saman ljósmyndir og gögn sem samtökin varðveita og vistaði á netið 2019.


Leit svona út áður en hafist var handa í júní 1987


Hér höfðu göngugötur breyst í djúpar vatnsrásir, sem nú voru fylltar með grjóti og möl.


Aðal vinnan 1987 var að gera við gróður- og jarðvegsskemmdir.


Notuð voru 15 cm víð plaströr, plastdúkur og fötur til að flytja mikið magn af möl og sandi, sem tekið var ofar í hlíðinni, en brekkan var of brött fyrir hjólbörur.


Mölin dregin á plastdúk


Fyllt í djúpar vatnsrásir og jarðvegssár grædd.


Reynt að gera lokaða vatnsrás, reyndist ekki vel, var aflögð árið eftir.


Verkefnið 1988 – framhald frá 1987: Að lagfæra gönguleiðina á Valahnúk úr Langadal. Farið var 22. júní og dvalið í viku. Samtals unnu 20 einstaklinga, 6 voru alla dagana en 14 að auki um helgina. Engir útlendingar að þessu sinni. Gist var ýmist í tjöldum eða í skála F.Í. þar sem við höfðum aðstöðu. Matur var keyptur inn sameiginlega. Verkefnið var að halda áfram þar sem frá var horfið í fyrra, en því var skipt í 5 hluta. Á flæestum stöðum var um að ræða skorninga sem myndast höfðu er vatn rann eftir slitnum grassverðinum. Í neðsta hluta hafði verið settur sandur í slóðina en stór hluti hans hafði runnið úr aftur. Þar settum við tréþrep og fylltum að með sandi. Í miðhluta hafði verið fyllt í djúpan skorning og hlaðin steinþrep og var það í lagi. Þar var bætt við þrepum og stunginn niður holbakki og tyrft yfir. Allt var í lagi á melnum. Í fyrra fór mest vinnan fram í efri hlutanum, hlaðin mörg þrep og fyllt í mikla skorninga. Það var allt í lagi en gerðar smávægilegar lagfæringar. Í efsta hlutanum voru í fyrra gerðar vatnsráðir úr torfi en þær voru orðnar gagnslausar. Þar voru nú hlaðnar tröppur og fyllt upp með möl og sandi sem að stórum hluta ver tekið úr snarbrattri skriðunni og varð að vinna þar í taug og belti. Þetta var stærsta verkefnið í ár og tókst það vonum framar. Eitt svæði hafði nú bæst við: marlarnáman frá í fyrra. Þar höfðum við verið of frek og tekið of mikið mikið gróft efni ofan af leirundirlagi. Þar hafði vatn runnið og rutt með sér leir og sandi niður. Það mokuðum við upp aftur og fylltum yfir með grjóti úr nágrenninu og vonum að það verði í lagi. Að lokum var borið á og sáð grasfræi þar sem þörf var á. Veður var ekki gott, en þó stundum fallegt. Vinnan var hóflegri nú en í fyrra. Ekki var farið í langar göntutúr, en tvo styttri. Ángæju höfðum við af spili og söng kórs frá Finnlandi sem dvaldi í skálanum í tvo daga, einnig af að syngja saman. Áframhald næsta sumar: Á neðsta svæði: Halda áfram smíði tréþrepa. Á miðsvæði: Hlaða nokkur steinþrep. Á efsta svæði þarf að hlaða fleiri þrep. Verkefnið 1989, ein vika, frá 21. júní. Haldið áfram með verk frá árinu áður. Samtals unnu 19 einstaklingar, 5 – 11 virku dagana og 16 um helgina. Fjórir voru útlendingar: Belgi, Ameríkani og tveir Bretar. Flestir gistu í skálanum og aðstaðan var þar. Á neðsta svæði var allt í góðu lagi og þar kláruðum við að setja þrep alla leið sem við ætluðum. Á mið hlutanum var bætt við steinþrepum og girtir af slitnir grasfletir. Efri hlutinn, þar sem fyrsta árið var fyllt í tvo samhliða skorninga, var allt í lagi. Í þrengslunum þar fyrir ofan var grasrótin farin að láta á sjá, en þar var ekkert gert. Efst uppi var tröppugerð frá í fyrra í góðu lagi. Tröppum var fjölgað og verkum lokið á þeim stað. Viðgerðin á malarnámunni í fyrra hefði tekist, sem betur fer. Að lokum var sáð grasfræi og borinn á áburður. Veður var nokkuð gott og vinnan hóflegri en fyrsta árið. Farið var í gönguferð að jökli, og aðrar styttri. Örn Þorvaldsson, verkstjóri Sjá.


Í Langadal í Þórsmörk við upphaf vinnu Sjá annað sumarið, 1988


Á efri myndinni sést að gatan ofarlega í Valahnúk hafði breyst í djúpan vatnsfarveg


Frídagur Sjá í Þórsmörk 1987, halda af stað í gönguferð, á skriðjökul.


Þátttakendur í vinnuferðum voru oft beðnir um stutta frásögn af ferðinni og hvernig þeir upplifðu hana. Hér á eftir segja tveir þátttakendur frá, annar 1989, hinn 1990. Ljósmyndir af blaðsíðum úr fjölrituðu fréttabréfi samtakanna sem komu út tvisvar til fjórum sinnum á ári.


Í kvöldsól í Langadal. Útigönguhöfði og Réttarfell í bakgrunni, handan Krossár.

Síðasta vikulanga lotan við gönguleiðina á Valahnúk var 19. - 24. júní 1992. Aðstæður voru þær sömu og árin áður. Lausir endar hnýttir. Unnin 45 dagsverk. „Verkefnið var að byggja alveg upp, að segja má, þrep neðstu brekkunnar (það sem gert var á fyrsta ári). Vatn hafði grandað þeim að mestu. Þannig að þarna lærðum við af reynslunni að láta vatn ekki komast í stígana, einnig að hafa þrepin fleiri en færri (hallann um 8°). Fólk var almennt mjög ánægt með ferðina“. Örn Þorvaldsson segir svo frá, en hann var verkstjóri Sjá í öllum þessum lotum. Þessi þrep entust vel, voru flest heil 20 árum síðar.

Árið 1986 voru íslensku sjálfboðaliðasamtökin stofnuð af drífandi konum sem höfðu unnið að stígagerð með hópum frá bresku sjálfboðaliðasamtökunum BTCV, þeim Eygló Gísladóttur og Jóhönnu B. Magnúsdóttur sem báðar unnu á Keldum; vinkonunum Sólrúnu Harðardóttur og Salbjörgu Óskarsdóttur; Helgu Edvald, Tryggva Jakobssyni, Hlyni Óskarssyni o.fl. Sigrún Helgadóttir átti einnig drjúgan þátt í stofnuninni en hún þekkti vel til náttúruverndar í Bretlandi. Sólrún Harðardóttir fór þetta sumar (1986) til Bretlands gagngert til að taka þátt sem sjálfboðaliði hjá BTCV – og aftur sumarið 1990. Sjá hefur frá upphafi helgað sig stígagerð og gróðurvernd og félagsmenn sótt námskeið á því sviði. Á öðru starfsári sínu, 1987, hófust Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, í samvinnu við Ferðafélag Íslands, vinnu við að lagfæra vinsælu gönguleiðina úr Langadal upp á Valahnúk, en hún var þá mjög illa farin. Samtökin gerðu vikulangar lotur að þessu verki (1987, 1988, 1999, 1990 og 1992) og í allt unnu sjálfboðaliðar þar u.þ.b. 300 dagsverk. Þessi viðgerð dugði allvel í 20 ár, en síðustu ár hafa fjölþjóðlegir sjálfboðaliðar undir stjórn Chas Goeman tekið upp þráðin og bætt um betur, auk þess að gera dágóða gönguleið á Valahnúk Húsadalsmegin. Sjáflboðaliðasamtök um náttúruvernd tíndu birkifræ og sáðu á Merkurrana með Landgræðslunni hausið 1995 og unnu við gönguleiðina frá skálunum í Húsadal upp í Sönghelli sumarið 1996. Síðan aðstoðuðu félagsmenn Sjá Chas og hans góða fólk við stígagerð í Þórsmörk eina helgi sumurin 2013 – 2016. Þorvaldur Örn Árnason raðaði saman þessum ljósmyndum og frásögnum sem Sjálfboðaliðasamtökin hafa varðveitt.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Þórsmörk, vinna Sjá við stígagerð 1987 til 1992 by Þorvaldur Örn Árnason - Issuu