Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Sjá, tíndu birkifræ og sáðu á Merkurrana með Landgræðslunni hausið 1995; og unnu við gönguleiðina frá skálunum í Húsadal upp í Sönghelli sumarið 1996.
Síðan aðstoðuðu félagsmenn Sjá Chas Goeman og hans góða fólk við stígagerð í Þórsmörk eina helgi sumurin 2013 – 2016.
Á öðru starfsári sínu, 1987, hófust Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, í samvinnu við Ferðafélag Íslands, vinnu við að lagfæra vinsælu gönguleiðina úr Langadal upp á Valahnúk, en hún var þá mjög illa farin. Samtökin gerðu vikulangar lotur að þessu verki (1987, 1988, 1999, 1990 og 1992). Íallt unnu sjálfboðaliðar þar u.þ.b. 300 dagsverk. Þessum verkefnum er lýst í sérstakri skýrslu.
Þessi viðgerð dugði allvel í 20 ár, en síðustu ár hafa fjölþjóðlegir sjálfboðaliðar, Thorsmork trailteam, undir stjórn Chas Goeman tekið upp þráðin og bætt um betur, auk þess að gera dágóða göngleið á Valahnúk úr Húsadal.