Fréttabréf TKÍ
Tónmenntakennarafélag Íslands
Horft um öxl 2024-2025


September 2024 var viðburðaríkur mánuður í starfsemi Tónmenntakennarafélags Íslands. Fyrstu helgina í september var að vanda námskeiðshelgi hjá félaginu með hæfilegri blöndu af fræðslu og samveru sem lauk með aðalfundi. Eyjólfur Eyjólfsson sagði frá notkun langspils í tónmenntakennslu og vakti mikla athygli og mörg urðu áhugasöm að smíða sitt eigið langspil! Harpa Þorvaldsdóttir sagði frá verkefninu Syngjandi skóli og benti á leiðir til að efla söng í skólum. Doktor Bragi Þór Valsson fjallaði um notkun Solfa kerfisins með kórnemendum og síðast en ekki síst
kynnti Ingibjörg Erlingsdóttir lagavalið fyrir Landsmót íslenskra barnakóra sem haldið var á Hvolsvelli í lok september. Að auki sögðu þær Helga Margrét Marzellíusardóttir og Ásta Magnúsdóttir frá nýjum kórasamtökum sem þá voru í bígerð, tilurð og ávinningi. Mæting á Haustnámskeiðið var góð eða um 20 þátttakendur auk fyrirlesara og stjórnar. Sameiginlegur kvöldverður, grill og kvöldvaka með hljóðfæraleik og söng að gamla laginu setti punktinn yfir. Góð og gagnleg lög rifjuð upp eins og okkur tónmenntakennurum einum er lagið! Að lokinni morgungöngu þeirra
hressustu í heilnæmu sveitaloftinu á Flúðum þá miðluðu og deildu félagar vinsælum hugmyndum úr tónmenntakennslu og kórstarfi og fórum við því heim með vel virkandi efni úr sameiginlegum hugmyndasarpi. Þessi liður á haustnámskeiðinu hefur vakið lukku enda gagnlegt fyrir okkar fólk að fá ábendingar um efni sem reynist vel í kennslu.
Aðalfundarstörfum lauk um hádegi á sunnudeginum og við héldum afar sátt heim frá orlofshúsum KÍ í Heiðarbyggð á Flúðum sem hefur reynst TKÍ vel fyrir þetta námskeið síðastliðin þrjú ár.
Landsmót íslenskra barnakóra
Eins og fram hefur komið þá hélt TKÍ Landsmót íslenskra barnakóra á Hvolsvelli 27.29. september 2024. Ellefu kórar víðs vegar að, samtals um 200 kórbörn, sóttu mótið og sungu af hjartans lyst íslensk dægurlög og lokatónleika í Félagsheimilinu Hvolnum þar sem fullt var út úr dyrum í blíðskaparveðri. Undirrituð skrifaði grein um kóramótið sem birtist í Skólavörðunni í vor og fjallaði um mikilvægi ungmennakóra og að nýta söng til heilsuefling
ar sem víðast í samfélaginu. „Ósýnilega námsskráin“ eða félagslegur þáttur menntunar kemur sterkt inn í kórstarfi en er því miður víða vanmetið eins og sjá má í framhaldsskólum þar sem kórstarf hefur nánast lagst af nema í þremur skólum á öllu landinu. Þess má geta að á kóramótinu á Hvolsvelli var aðeins einn skólakór frá Reykjavík og er það áhyggjuefni að ekki fleiri skólastjórnendur skuli sjá sér hag í því að halda úti kórstarfi í sínum skólum. Núverandi stjórn TKÍ mun af fremsta megni halda áfram að stuðla að eflingu kórstarfs og tónlistarkennslu fyrir börn og ungmenni.
Haustnámskeið TKÍ 5.6. september nk.
TKÍ býður tónmenntakennurum til samfundar að vanda fyrstu helgina í september og í þetta sinn á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar má sjá í auglýsingu hér í fréttabréfinu. Á dagskránni er kynning á rannsókn um tengsl rytmaþjálfunar og lesturs, nýtt og metnaðarfullt námsefni kynnt til sögunnar auk kynninga frá HÍ og LHÍ á námsleiðum til tónmenntakennaranáms. Við munum syngja og leika saman gott og gagnlegt efni, nýtt og gamalt í bland og endum laugardaginn 6. september á aðalfundi félagsins. Um kvöldið stefnum við svo á að fjölmenna á afmælistónleika Magga Eiríks í Hörpu enda eru lögin hans þjóðargersemar sem tónmenntakennarar eins og aðrir hafa notið þvert á kynslóðir. Það er von stjórnar að sem flestir tónmenntakennarar nái að nýta sér þessa helgi til að þétta raðirnar, safna forða fyrir kennsluárið og endurnýja tengsl við fagstétt sína, tónmennt.
Tónlistarnám fyrir öll
Þessi misserin, á tímum mik
illa breytinga og þróunar á íslensku samfélagi, er tíðrætt um jafnrétti til náms og menntun fyrir alla. Á sama tíma hefur dregið úr stuðningi til tónlistarskóla þrátt fyrir lengri biðlista í tónlistarnám og skólahljómsveitir sem hafa sýnt og margsannað vægi sitt til góðs fyrir alla aldurshópa en þó ekki síst börn þvi lengi býr að fyrstu gerð. Menntamálaráðuneytið boðar því miður einnig niðurskurð til grunnskólanna þrátt fyrir mælanlega aukningu á vanlíðan, ofbeldi og fátækt
barna. Það er á tímum sem þessum sem það er mikilvægt að muna að tónlistin byggir brýr þar sem tungumálinu sleppir. Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að tryggja öllum grunnskólabörnum tónmenntakennslu. Þannig tryggjum við jafnan rétt til náms og tómstunda og inngildingar nýrra Íslendinga sem mörg hafa skert aðgengi að starfsemi utan skóla vegna tungumálaörðugleika og tengslaleysis. Inni í grunnskólunum, sem og fleiri skólastigum, er tækifærið til
að skapa öllum börnum jafnan rétt til menntunar. Auglýsa þarf eftir tónmenntakennurum og kórstjórum og skólastjórnendur þurfa að hafa skilning á gildi þess konar menntunar. Einn slíkur kennari eða kórstjóri getur hreyft við mörgum nemendasálum með söng sem eykur máltilfinningu, orðaforða og hrynþjálfun. Síðast en ekki síst styður tónlistarkennsla og kórstarf við félagslegan auð sem kalla má „ósýnilegu námsskrána“ þar sem menntun gefur okkur færi á að næra mennskuna í okkur sjálf

um og í samfélagi við aðra. Menntun hefur með mennskuna að gera og hana ræktum við saman. Svo ég vitni í hana Tótu okkar og orðatiltækið sem var þema Landsmóts íslenskra barnakóra í Kópavogi 2023 „Syngjandi barn er hamingjusamt barn!“.

Mig langar að enda þennan pistil með hugleiðingu um áhrifamátt samvinnu.
KVARTETT
Enginn söngvaranna syngur sömu nóturnar Stundum syngja þau ekki einu sinni orðin á sama tíma
En ég tek eftir samhljóminum því þau stefna öll að sama marki Enginn einn gerir samhljóminn heldur samruni þeirra sem heild
Samhljómur á hvaða sviði sem er næst á sama hátt og samhljómur í söngkvartett Þar sem öll syngja með sinni rödd Árangurinn er samstæð heild
Þátttaka leiðir til jafnvægis Ég þarf ekki að taka alla ábyrgð til að eiga hlutdeild í samfélagi
Því ég á hópi söngvara að þakka
Með kveðju, Ása Valgerður Sigurðardóttir formaður TKÍ

Kostir félagsaðildar TKÍ eru:
Forgangur á viðburði á vegum TKÍ
Aukin stéttarvitund
Fagfélag þinnar greinar
Aukin samvinna og samkennd
Betra upplýsingaflæði stéttarinnar
Frábærir félagsmenn o.fl.

TKÍ - Tónmenntakennarafélag Íslands
Stjórn 2025-2026
Ása Valgerður Sigurðardóttir formaður
Hallur Guðmundsson meðstjórnandi
Ingibjörg Erlingsdóttir gjaldkeri
Stefán Þorleifsson varaformaður
Kolbrún Hulda Tryggvadóttir, ritari
Kennitala: 650376-0219
Reikningsupplýsingar: 0322-26-16602
Netfang: tki1951@gmail.com
Heimasíða: www.tonmennt.net
Þeir uppskera sem sá
Þórunn Björnsdóttir heiðurslistamaður Sagna 2025

Á dögunum hlaut Þórunn Björnsdóttir tónmenntakennari og kórstjóri með meiru heiðursverðlaun á verðlaunahátíðinni Sögum 2025 fyrir ómetanlegt framlag til barnamenningar og tónlistaruppeldis um árabil. Í viðtali við Tótu eins og við mörg köllum hana, orðaði hún það svo fallega að hún tæki við þessum verðlaunum fyrir hönd allra annarra barnakórstjóra og barnakóra á Íslandi. Hér má lesa tilvitnun í þakkarræðu Tótu á verðlaunahátíð Sagna:
„Mig þykir afskaplega vænt um að vekja athygli á starfi barnakóra, ekki síst að vekja athygli á því mikilvæga tónlistaruppeldi sem fer fram í kórum, um allt land. Það vill þannig til að það eru þúsundir barna um allt land sem syngja í kórum og þessi börn fá tækifæri til að upplifa þá einstöku gleði sem fylgir því að syngja í kór. Barnakór er nefnilega ekki hrúga af krökkum inni í einhverri stofu, heldur er þetta samfélag sem börnin mynda á kóræfing
um, samfélag þar sem allir kórfélagar skipta máli og það vita allir sem hafa sungið með börnum, að syngjandi barn er hamingjusamt barn – það er ekkert flóknara en það! En, okkur vantar fleiri barnakóra og okkur vantar fleiri kórstjóra, til þess að gera samfélagið okkar miklu skemmtilegra. Það er nefnilega bjargföst trú mín að með því að stórefla allt barnakórastarf þá getum við bætt líðan og félagsfærni svo margra barna og um leið erum við að varðveita tungumálið
okkar, íslenskuna, því þau læra ekki bara ógrynnin öll af lögum og ljóðum á kóræfingum heldur þróa þau með sér sjálfstraustið, samvinnuna og samkenndina og það er fátt mikilvægara! Ég var svo heppin að vinna alla mína starfsævi í syngjandi skóla með skemmtilegustu börnum sem hægt er að hugsa sér, með frábærum skólastjórnendum sem öll vildu hafa kór í skólanum sínum og með samkennurum sem studdu kórinn í öllu sem við tókum okkur fyrir
hendur. Takk elsku Kársnesskóli fyrir að halda áfram að vera syngjandi skóli. Ég þakka núverandi skólastjóranum mínum fyrir að vera með mér hérna í kvöld og elsku Þóra mín og elsku Álfheiður takk fyrir að halda áfram og taka við keflinu, ég er svo stolt af ykkur. En síðast en ekki síst þá vil ég þakka öllum þeim þúsundum barna sem hafa verið hjá mér í kór, ég hefði ekki getað hugsað mér betra ævistarf! Takk fyrir.“

https://sites.google.com/view/skopumsaman

https://sites.google.com/view/islenskthjodlogtonmennt