Kvennaboltinn 2022 - Við erum Þór/KA

Page 1

Kvennaboltinn Við erum Þór/KA

2022

Þökkum liðið!

Þegar líður að áramótum er góður siður að líta um öxl, velta fyrir sér því sem gert var eða ekki gert, fagna því sem tókst vel, læra af hinu. Á meðan horft er um öxl erum við auðvitað einnig að horfa fram á veginn, velta fyrir okkur hvað og hvar við getum gert betur, bætt okkur, orðið betri en við sjálf vorum á árinu sem er að líða. Þannig bætum við okkur, þannig bætum við samfélagið okkar, með því að líta í eigin barm og gera betur. eftir vel útfærða skyndisókn.

Hér í þessu rafræna riti lítum við yfir árið hjá Þór/KA í máli, myndum og tölum. Árið var viðburðaríkt, sigrar og ósigrar, brekkur og beinar brautir. Stelpurnar og þjálfarar í 3. flokki vöktu mikla athygli fyrir

frábæran árangur á árinu - bikaróður hópur þar á ferð.

Störf sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni og annars staðar hafa verið í brennidepli og ekki að ástæðulausu. Íþróttahreyfingin byggir tilveru sína hreinlega á starfi sjálfboðaliðanna. Án þeirra værum við ekki til. Meðal þess sem gert var til að vekja athygli á störfum sjálfboðaliða var sérstakur dagur tileinkaður þeim og tilnefningar á íþróttaeldhuga ársins úr röðum sjálfboðaliða. Ánægjulegt að sjá að þar voru hátt í 200 sjálfboðaliðar úr 24 íþróttagreinum tilnefndir. Þetta sýnir að fólk kann að meta störf sjálfboðaliðans.

Umræða um starfsemi íþróttafélaga og íþróttaliða er stundum óvægin og þá

2
Stjórn Þórs/KA kjörin á aðalfundi félagsins 2022. Frá vinstri: Björgvin Hrannar Björgvinsson, Íris Egilsdóttir, Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður, Bjarni Freyr Guðmundsson, Guðrún Una Jónsdóttir ritari og Nanna Björnsdóttir.

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

gleymist stundum að meirihluti þeirra sem koma að starfinu eru sjálfboðaliðar. Stjórnarfólk þar á meðal, og mörg fleiri sem vinna að betri umgjörð fyrir íþróttafólkið okkar.

Það gleymist líka stundum að íþróttafólkið okkar vinnur líka sjálfboðavinnu. Það er ekki þannig að hver einasti leikmaður í meistaraflokki fái greitt má svo líka bæta að stelpurnar í Þór/KA, stjórnarfólkið, foreldrar, aðstandendur og aðrir velunnarar vinna mikla sjálfboðavinnu í fjáröflunarverkefnum fyrir félagið. Þar er um að ræða mikið vinnuframlag sem fólk utan hópsins sér ekki og gerir sér yfirleitt ekki grein fyrir umfangi þess.

Leikmenn og stuðningsfólk fagna sigri saman. Myndir. Egill Bjarni Friðjónsson.

fólks þökkum til þeirra sem starfa í stjórn að þeim fjölbreyttu verkefnum sem þar eru unnin, til allra þeirra sem vinna verkin í kringum félagið og gera rekstur þess mögulegan, til allra þeirra sem starfa við umgjörð liðsins og leikja þess. En svo má ekki heldur gleyma þeim sem ekki eru sjálfboðaliðar heldur eru í vinnu hjá félaginu. Þetta rit er líka liður í því að þakka þjálfurum og öðru starfsfólki fyrir framlag þeirra til félagsins okkar á liðnu ári. Takk!

Þór/KA óskar ykkur öllum farsældar á nýju ári og þakkar samstarfið og vinnuframlag og stuðning ykkar allra á árinu sem er að líða.

Hlökkum til að fá ykkur öll á völlinn í sumar til að styðja stelpurnar okkar.

Þetta blað er liður í að koma út á meðal

Áfram Þór/KA!

4

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Þór/KA 2022

Mynd tekin í lok september.

Aftasta röð frá vinstri: Perry John James Mclachlan þjálfari, Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir markvarðaþjálfari, Steingerður Snorradóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir, Sandra María Jessen, Unnur Stefánsdóttir og Hannes Bjarni Hannesson sjúkra- og styrktarþjálfari.

Miðröð frá vinstri: Haraldur Ingólfsson, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Andrea Mist Pálsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Amalía Árnadóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir, Arna Eiríksdóttir og Jón Stefán Jónsson þjálfari.

Fremsta röð frá vinstri: Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Tiffany McCarty, Sara Mjöll Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir fyrirliði, Harpa Jóhannsdóttir, Saga Líf Sigurðardóttir, María Catharina Ólafsdóttir Gros og Margrét Árnadóttir.

Leikmenn sem vantar á mynd: Agnes Birta Stefánsdóttir, Arna Kristinsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Hulda Karen Ingvarsdóttir, Krista Dís Kristinsdóttir, Rakel Sjöfn Stefánsdóttir, Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir og Vigdís Edda Friðriksdóttir.

Mynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net

6

Aftari röð frá vinstri:

Starfsmaður T3, Hannes Bjarni Hannesson sjúkraþjálfari, Perry Mclachlan þjálfari, Jón Stefán Jónsson þjálfari, Arna Kristinsdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir, Hulda Karen Ingvarsdóttir, Amalía Árnadóttir, Margrét Árnadóttir, Tiffany McCarty, Jakobína Hjörvarsdóttir, Arna Eiríksdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir.

Fremri röð:

Starfsmaður T3, Rakel Sjöfn Stefánsdóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir, Steingerður Snorradóttir, Krista Dís Kristinsdóttir, Sandra María Jessen, Bríet Jóhannsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Sara Mjöll Jóhannsdóttir, Andrea Mist Pálsdóttir, Saga Líf Sigurðardóttir, María Catharina Ólafsdóttir Gros, Unnur Stefánsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir.

Hópur 27 leikmanna og þriggja þjálfara í æfingaferð í júlí ásamt starfsfólki Tenerife Top Training (T3) æfingasvæðisins á Tenerife.
7

Meistaraflokkur Molar og myndir

Keppni í Bestu deild kvenna lauk laugardaginn 1. október. Hér er samantekt eftir árið, alls konar fróðleikur, tölulegar upplýsingar og hitt og þetta. Að sjálfsögðu skreytt með myndum frá okkar bestu mönnum.

Ein ljósmynd er á við þúsund orð, eða eitthvað um það bil. Áður en við hugum að fróðleiksmolum og tölum frá árinu eru hér tvær hópmyndir af stelpunum. Við höfum um árabil notið mikillar velvildar nokkurra ljósmyndara og eru myndaalbúmin frá leikjum Þórs/KA í Bestu deild-

inni, Mjólkurbikarnum og Kjarnafæðismótinu á árinu sem er að líða orðin 18 talsins, með yfir þúsund myndum. Flest albúmin eru frá Agli Bjarna Friðjónssyni og Þóri Tryggva, en einnig er eitt albúm frá Jóni Óskari Ísleifssyni. Skapti Hallgrímsson á svo nokkrar liðsmyndir sem við höfum notað. Að auki má finna myndaalbúm frá Barcelona Cup og öðrum afrekum sem stelpurnar í 3. flokki unnu á árinu, auk mynda Þóris Tryggvasonar frá lokahófinu. Í myndasafninu eru einnig stúdíómyndir og kynning á leikmönnum, en þær myndir

Margrét Árnadóttir að leggja upp sigurmark gegn Þrótti. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson
8

tók Auðunn Níelsson. Það vefst stundum fyrir okkur að finna hentugan tíma (og veður) til að taka hópmynd, stundum dregst það úr hófi og sjaldnast náum við öllum saman á slíka mynd.

Fimm mót, 32 leikir

Félagið tók þátt í fimm meistaraflokksmótum, Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum, Lengjubikarnum, Faxaflóamótinu og Kjarnafæðismótinu. Tvö þau síðastnefndu teljast þó ekki með sem fullgild KSÍ-mót og lúta þau öðrum reglum varðandi gjaldgengi leikmanna. Leikir í þessum mótum eru ekki taldir með í skráningu meistaraflokksleikja á vegum KSÍ.

upp á sömu helgi og meistaraflokksliðið var fyrir sunnan og fengu því yngri leikmenn það verkefni að mæta liði Tindastóls í Boganum á sama tíma, sem skýrir þann fjölda leikmanna sem spiluðu fyrir Þór/KA á árinu.

Kjarnafæðismótið var ekki klárað að fullu í byrjun árs og brugðu mótshaldarar á það ráð að láta bikarleik tveggja liðanna, Völsungs og FHL, í maí gilda sem leik í Kjarnafæðismótinu. Leikskýrsluna má finna undir Mjólkurbikarnum, en úrslit leiksins einnig færð inn í Kjarnafæðismótið. Segja má að sami leikur hafi verið „spilaður“ 6. febrúar og 10. maí.

Þór/KA vann tvo leiki og tapaði einum í Kjarnafæðismótinu, vann tvo leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði einum leik í Faxaflóamótinu, endaði í 2. sæti í báðum þessum mótum.

Stelpurnar

Þátttakan í Faxaflóamótinu var þannig að farið var í tvær helgarferðir, um miðjan janúar og í byrjun febrúar, og spilaðir tveir leikir í hvorri ferð, við misjafnar aðstæður. Einn af leikjum Kjarnafæðismótsins bar

Í Lengjubikarnum vann liðið þrjá leiki og tapaði tveimur, endaði í 3. sæti B-riðils og komst því ekki áfram í undanúrslit mótsins. Alls tók 21 leikmaður þátt í leikjum liðsins í Lengjubikarnum. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Sandra María Jessen skoruðu tvö mörk hvor í þeirri keppni.

Í Mjólkurbikarkeppninni hefja liðin í efstu deild leik í 16 liða úrslitum. Þór/KA mætti Haukum á heimavelli og vann, 6-0. Liðið beið síðan ósigur gegn Selfyssingum á útifelli í átta liða úrslitum. Margrét Árnadóttir skoraði tvö mörk í bikarkeppninni

9
lentu tvisvar í kuldalegum aðstæðum í Mosó, í Faxaflóamótinu og Lengjubikarnum.

og þær Andrea Mist Pálsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Sandra María Jessen og Tiffany McCarty eitt hver, en eitt mark var sjálfsmark andstæðings.

Þór/KA (og Þór/KA/KS) á að baki 22 tímabil í efstu deild, þar hefur liðið verið samfleytt frá 2006, eða í 17 tímabil. Á árunum 2008 til og með 2019 var Þór/KA eina liðið sem var öll árin í einu af fjórum efstu sætum deildarinnar.

Þór/KA endaði sumarið í 7. sæti Bestu deildarinnar í sumar, með 17 stig eða rúmlega 0,94 stig að meðaltali í leik. Liðið vann fimm leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði 11 leikjum, markatalan var 25-47.

Samanlagt vann liðið 13 leiki á árinu, gerði þrjú jafntefli og tapaði 16 sinnum.

Við það má svo bæta tveimur leikjum sem spilaðir voru í desember og eru liður í Kjarnafæðismótinu 2023, en Þór/KA er með tvö lið í því móti og unnu þau bæði stórsigra í desember.

Þór/KA var eina íslenska liðið sem vann Íslandsmeistarana í Bestu deildinni, en Stjarnan hafði áður unnið Val í Lengjubikarnum í vetur og Slavia Prag vann Val í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni.

Sandra María markahæst Þrír leikmenn komu við sögu í öllum 18 leikjum liðsins í Bestu deildinni, þær Sandra María Jessen, Harpa Jóhannsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir. Sandra María og Harpa spiluðu auk þess allar

10
Margrét Árnadóttir fagnar marki með Söndru Maríu Jessen. Sandra vissi það ekki þarna, en hún var að skora 100. mark sitt í meistaraflokksleikjum með Þór/KA. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

mínútur í öllum 18 leikjunum. Andrea Mist og Sandra María spiluðu auk þess báða leikina í bikarkeppninni, en þar var Harpa varamaður.

Alls kom 21 leikmaður við sögu í leikjunum 18 í Bestu deildinni, en auk þeirra voru þrjár á skýrslu í einum eða fleiri leikjum án þess að hafa tekið þátt í leikjunum, þær Amalía Árnadóttir, Bríet Jóhannsdóttir og Sara Mjöll Jóhannsdóttir. Sara Mjöll var varamarkmaður í 16 leikjum af 18 í deildinni, auk þess að spila báða leiki Þórs/KA í bikarkeppninni.

Sjö leikmenn skoruðu í leikjum liðsins í Bestu deildinni, auk eins sjálfsmarks andstæðings. Sandra María Jessen skoraði mest fyrir Þór/KA í Bestu deildinni, átta mörk. Næst kom Margrét Árnadóttir (6), Tiffany McCarty (3) og Hulda Ósk Jónsdóttir (3). Arna Eiríksdóttir skoraði tvö mörk og þær Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros eitt hvor. Markið sem Ísfold Marý skoraði var sérlega glæsilegt, með þrumuskoti af vítateigslínu upp í bláhornið á móti Keflavík syðra, en þetta var fyrsta mark hennar í efstu deild.

Tvisvar innan við 20 sekúndur að skora

Tvisvar í sumar tók það Þór/KA innan við 20 sekúndur að skora mark. Í útileiknum gegn Aftureldingu í 3. umferðinni kom Sandra María Jessen Þór/KA í 1-0 eftir aðeins 19 sekúndna leik. Í heimaleiknum

gegn ÍBV komust gestirnir yfir, en frá því að Þór/KA byrjaði á miðju liðu níu sekúndur þar til Sandra María hafði sent boltann fyrir markið og leikmaður gestanna skorað sjálfsmark.

Krista Dís Kristinsdóttir í bikarleiknum gegn Haukum. Krista Dís var yngsti leikmaðurinn sem kom við sögu í leikjum liðsins í deild og bikar á árinu en hún varð 16 ára í október.

Mynd: Þórir Tryggva.

Eitt yngsta lið deildarinnar

Alls komu 43 leikmenn við sögu í leikjum liðsins í þeim fimm mótum sem félagið tók þátt í á árinu, Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum, Lengjubikarnum, Faxaflóamótinu og Kjarnafæðismótinu. Meðalaldur leikmanna var 19 ár og fjórir mánuðir. Eins og nefnt var hér að framan skýrist þessi fjöldi og lágur meðalaldur meðal annars af einum leik í Kjarnafæðis-

12

mótinu. Ef aðeins eru tekin opinberu KSÍmótin þrjú komu 27 leikmenn við sögu.

Besta deildin: 21 leikmaður spilaði fyrir Þór/KA, meðalaldur 21 ár og hálfur mánuður.

Mjólkurbikarinn: 18 leikmenn spiluðu, meðalaldur 21 ár og fjórir mánuðir.

Lengjubikarinn: 21 leikmaður spilaði, meðalaldur 21 ár og þrír mánuðir.

Faxaflóamótið: 18 leikmenn spiluðu, meðalaldur 21 ár og þrír mánuðir

Kjarnafæðismótið: 32 leikmenn spiluðu, meðalaldur 18 ár og fimm mánuðir.

Í hópi 30 leikmanna sem eru/voru á

úr yngri flokkum Þórs og KA, þar af nokkrar sem upphaflega hófu æfingar sem börn á Dalvík og Grenivík. Tvær koma frá Bandaríkjunum, en önnur þeirra kom aðeins við sögu í leikjum á undirbúningstímabilinu. Hinar koma upphaflega frá Völsungi, Tindastóli og Grindavík, ásamt því að við höfðum eina að láni frá Val í sumar.

Eins og sjá má á fæðingarárunum eru í þessum hópi fimm stelpur sem voru gjaldgengar í 3. flokki og af þessum 30 eru 13 gjaldgengar með 2. flokki.

Nokkrir leikja- og markaáfangar

Fyrstu leikir í efstu deild

Unnur Stefánsdóttir (2004), sem kom til okkar frá Grindavík í vetur, spilaði sína fyrstu leiki í efstu deild í sumar, en hún kom við sögu í 16 leikjum í deildinni og tveimur í bikarkeppninni. Hennar fyrsta innkoma í efstu deild var í sigurleiknum gegn Val þann 3. maí, en hún var í fyrsta skipti í byrjunarliði í efstu deild gegn Selfossi þann 14. maí.

en sá leikur fór fram í Boganum í byrjun maí.

og spiluðu með meistaraflokki Þórs/KA á árinu eru fæðingarárin þessi: 1990, 95, 97, 97, 98, 98, 98, 98, 99, 99, 99, 00, 00, 00, 00, 01, 02, 03, 04, 04, 04, 05, 05, 05, 05, 06, 06, 06, 06, 06.

Af umræddum 30 leikmönnum koma 24

Krista Dís Kristinsdóttir (2006) kom í fyrsta skipti við sögu í leik í efstu deild þegar hún kom inn á undir lok leiks á Selfossi 16. ágúst.

Angela Mary Helgadóttir (2006) kom í fyrsta skipti við sögu í leik í efstu deild þegar hún kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri gegn Val þann 3. maí. Hún var í fyrsta

13

skipti í byrjunarliði í efstu deild í 3-3 jafnteflisleik á heimavelli gegn KR þann 14. júní.

Sandra María Jessen skoraði í haust sitt 100. mark í meistaraflokksleikjum fyrir Þór/KA (sjá mynd). Á skjáskotið sem fylgir fréttinni kemur ekki fram mark sem hún

Unnur Stefánsdóttir í leik gegn Keflavík. Hún spilaði sína fyrstu leiki í efstu deild í sumar, en hún kom til okkar frá Grindavík fyrir tímabilið. Mynd: Þórir Tryggva.

skoraði í meistarakeppni KSÍ 2011. Af þessum hundrað hefur hún skorað 81 mark í A-deild, 11 mörk í bikarkeppni, fjögur í deildabikar, eitt í meistarakeppni KSÍ, eitt í Meistaradeild Evrópu og tvö í því sem kallast „annað/óskilgreint“. Af þessum 100 mörkum eru fjórar þrennur, allar í A-deild, gegn Selfossi 2012, ÍA 2016 og Grindavík 2017 og 2018. Eitt hundraðasta markið kom á 85. mínútu þegar Sandra María jafnaði leikinn í 3-3 gegn ÍBV á heimavelli 14. september.

Lánssamningar við

nágranna

Fimm lánssamningar voru gerðir við nágrannafélög í vor og sumar. Amalía Árnadóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir voru lánaðar til Völsungs. Amalía kom til baka í júlí og var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði 3. flokks, en Una og Sonja kláruðu tímabilið með

14

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Völsungi. Amalía kom ekki við sögu í leikjum meistaraflokks í sumar, en var í leikmannahópnum í nokkrum leikjum.

Una Móeiður var verðlaunuð sem efnilegasti leikmaður Völsungsliðsins í sumar á lokahófi félagsins. Hún spilaði samtals 14 leiki í 2. deild og Mjólkurbikarnum og skoraði fimm mörk.

Sonja Björg skoraði mest allra leikmanna Völsungs í sumar, en hún spilaði samtals 15 leiki í 2. deild og Mjólkurbikarnum og skoraði 11 mörk.

Arna Kristinsdóttir var lánuð til Tindastóls í vor og Rakel Sjöfn Stefánsdóttir í júlí. Arna spilaði eingöngu með Tindastóli, sem og Una Móeiður og Sonja Björg með Völsungi.

Amalía Árnadóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir í grænu Völsungstreyjunum. Amalía snéri aftur heim í Þór/KA í júlí. Sonja Björg var markahæst leikmanna Völsungs í sumar.

stóli í sumar, en hafði áður komið við sögu í níu leikjum hjá Þór/KA í deild og bikar.

Arna spilaði samtals 19 leiki með Tindastóli í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum og skoraði tvö mörk. Auk þess spilaði hún einn leik í Lengjubikarnum. Arna kom inn á sem varamaður í 5-0 sigri Tindastóls gegn Augnabliki í næstsíðustu umferð deildarinnar, þegar liðið tryggði sæti sitt í Bestu deildinni að ári. Þessi leikur var jafnframt 100. KSÍ-leikur Örnu í meistaraflokki.

Una Móeiður Hlynsdóttir undirritar sinn fyrsta samning við Þór/KA í apríl, ásamt Björgvini Hrannari Björgvinssyni úr stjórn Þórs/KA.

Rakel Sjöfn spilaði sex leiki með Tinda-

Af þessum 100 eru sjö í A-deild (Þór/KA), 47 í B-deild (Tindastóll og Hamrarnir) 23 í C-deild (Hamrarnir), fimm í bikarkeppni (með öllum þremur liðunum), 14 í deildabikar og fjórir flokkast undir „annað/

16

óskilgreint“. Arna hefur spilað þessa leiki á meðan hún hefur verið á samningi og/ eða skráð í Þór/KA, en lánuð til Hamranna eða Tindastóls. Af þessum 100 leikjum eru 13 með Þór/KA, 19/2 með Tindastóli og 68/1 með Hömrunum.

Öflugir fulltrúar í yngri landsliðunum

Ellefu Þór/KA-stelpur spiluðu landsleiki með yngri landsliðum Íslands á árinu, þar af sex leikmenn úr meistaraflokki, auk þess sem nokkrar í viðbót voru kallaðar til æfinga.

Angela Mary Helgadóttir spilaði átta leiki með U16. Þegar þetta er ritað er hún í verkefni með U17 landsliðinu, undankeppni EM, og hefur þegar spilað tvo leiki með því liði.

Iðunn Rán Gunnarsdóttir spilaði fjóra leiki með U17 landsliðinu.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir spilaði tvo leiki með U18 og tvo með U19 landsliðinu.

Jakobína Hjörvarsdóttir spilaði tvo leiki með U19 landsliðinu, en hún var frá vegna meiðsla frá ágúst í fyrra þar til í ágúst á þessu ári, að loknu EM hléinu. Hún var valin í U19 landsliðið mjög fljótlega eftir að hún hóf að spila að nýju eftir meiðslin.

Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir spilaði þrjá leiki með U17 landsliðinu, tvo leiki með U18 landsliðinu og einn leik með U19 landsliðinu.

Krista Dís Kristinsdóttir spilaði átta leiki með U16 landsliðinu og skoraði eitt mark. Þegar þetta er ritað er hún í verkefni með U17 landsliðinu, undankeppni EM, og hefur þegar spilað einn leik með því liði.

María Catharina Ólafsdóttir Gros spilaði þrjá leiki með U19 landsliðinu á árinu, á meðan hún var á samningi hjá FC Celtic í Skotlandi.

Sonja Björg Sigurðardóttir spilaði þrjá leiki með U16 landsliðinu.

Unnur Stefánsdóttir spilaði einn leik með U18 landsliðinu.

Tvær úr árgangi 2007 spiluðu landsleiki á árinu. Karlotta Björk Andradóttir og Kolfinna Eik Elínardóttir spiluðu báðar

17
Kolfinna Eik Elínardóttir og Karlotta Björk Andradóttir í landsliðsbúningnum.

tvo leiki með U15 landsliðinu.

Þá má nefna að Margrét Árnadóttir og Sandra María Jessen voru boðaðar á æfingar hjá A-landsliðinu í október. Arna Eiríksdóttir, sem var á láni hjá okkur frá Val í sumar, spilaði einn leik með U23 landsliðinu, skráð sem A-landsliðsleikur, á meðan hún var hjá Þór/KA. Margrét Árnadóttir spilaði flesta leiki Þegar öll mótin eru talin saman spilaði Margrét Árnadóttir flesta leiki fyrir Þór/ KA á árinu, alls 30 leiki og skoraði í þeim 13 mörk. Næstar á eftir Margréti komu Unnur Stefánsdóttir (29), Andrea Mist Pálsdóttir (28), Hulda Björg Hannesdóttir (27), Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (27), Harpa Jóhannsdóttir (26), Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (25), Sandra María Jessen (23) og Tiffany McCarty (21).

Ef við teljum eingöngu KSÍ-mótin,

Sandra María Jessen skoraði flest mörk fyrir Þór/ KA í Bestu deildinni í sumar, átta mörk. Hún náði stórum áföngum í markaslorun fyrir Þór/KA í sumar. Sjá á bls. 20.

Lengjubikar, Mjólkurbikar og Bestu deildina eru það Margrét og Andrea Mist Pálsdóttir sem spiluðu flesta leikina, 24, Sandra María Jessen og Unnur Stefánsdóttir 23, Hulda Björg Hannesdóttir, Harpa Jóhannsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir 22.

Ef frá eru talin „æfingamótin“ í byrjun árs spiluðu eftirtaldir leikmenn sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk Þórs/KA á árinu:

Angela Mary Helgadóttir (2006), spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Þór/KA á árinu (Lengjubikar, Besta deildin, Mjólkurbikarinn), en átti áður að baki leiki með Hömrunum.

Amalía Árnadóttir (2006) spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með Þór/KA í Lengjubikarnum, en átti áður að baki leiki með Hömrunum. Hún skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki í bikarleik með Völsungi 30. apríl.

Krista Dís Kristinsdóttir kom við sögu í einum leik í Bestu deildinni og einum í Mjólkurbikar, sem eru hennar fyrstu meistaraflokksleikir með Þór/KA, og þar með fyrsti leikur í A-deild, en hún átti áður að baki leiki með Hömrunum.

Una Móeiður Hlynsdóttir spilaði fjóra leiki með Þór/KA í Lengjubikarnum, en átti

18

áður að baki meistaraflokksleiki með Hömrunum.

Sonja Björg Sigurðardóttir spilaði einn leik með Þór/KA í Lengjubikarnum, átti áður að baki leiki með Hömrunum.

Nýir leikmenn sem spiluðu sína fyrstu leiki fyrir Þór/KA á árinu: Arna Eiríksdóttir, Brooke Ann Lampe, Tiffany McCarty og Vigdís Edda Friðriksdóttir.

Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Margrét Árnadóttir. Kimberley var valin efnilegasti leikmaður Þórs/KA á árinu og Margrét valin besti leikmaður tímabilsins.

Myndir: Þórir Tryggva

19

Félagsmet í markaskorun

Mark Söndru Maríu Jessen á fyrstu mínútu í 2-1 sigurleik gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum 8. maí var ekki aðeins sögulegt fyrir þær sakir að það var skorað eftir aðeins 19 sekúndna leik. Með markinu setti Sandra María nefnilega félagsmet hjá Þór/ KA. Þetta var 75. mark hennar fyrir félagið í efstu deild og fór hún þar með upp fyrir Rakel Hönnudóttur, sem skoraði 74 mörk fyrir Þór/KA í efstu deild fram til ársins 2011.

Sandra María hélt svo áfram að bæta metið með hverju marki í sumar og hefur núna skorað 81 mark í efstu deild. Eins og fram kemur á öðrum stað í þessu riti er hún jafnframt komin í 100 mörk fyrir félagið þegar tekin eru með mörk í bikarkeppni, deildabikar, Evrópukeppni og öðrum mótum.

Sandra fékk viðurkenningu frá stjórn Þórs/KA í næsta heimaleik eftir að metið féll, en með henni á myndinni efst á síðunni er Nanna Björnsdóttir úr stjórn Þórs/KA.

Myndir: Þórir Tryggva

20

Tilnefndar

Nú líður að því að félögin sem standa að Þór/KA velji íþróttafólk ársins úr sínum röðum. Bæði félögin munu halda samkomur og verðlauna sitt fólk á fyrstu dögum ársins 2023.

Þór/KA tilnefnir einn leikmann hjá hvoru félagi sem verður í kjöri sem íþróttakona Þórs annars vegar og íþróttakona K.A. hins vegar.

Margrét Árnadóttir var í haust verðlaunuð af þjálfurum Þórs/KA sem besti leikmaður tímabilsins og er hún tilnefnd af Þór/KA í kjöri íþróttakonu K.A.

Sandra María Jessen er tilnefnd af Þór/ KA í kjöri á íþróttakonu Þórs, en eins og fram kemur á öðrum stöðum í ritinu varð

hún markahæst leikmanna liðsins í Bestu deildinni í sumar, skoraði átta mörk, auk þess sem hún bætti félagsmet Þórs/KA og hefur nú skorað flest mörk allra leikmanna félagsins í efstu deild.

Þær Margrét og Sandra María eru báðar verðugir fulltrúar félagsins okkar í kjöri á íþróttakonum Þórs og K.A., en það íþróttafólk sem verður fyrir valinu hjá félögunum er síðan tilnefnt af þeim þegar kemur að kjöri ÍBA á íþróttafólki Akureyrar.

Janúarmánuður 2023 mun leiða þetta allt í ljós, en ÍBA mun að venju halda sína hátíð um eða upp úr miðjum janúar þar sem íþróttafólk ársins á Akureyri verður heiðrað.

21

Hulda Björg Hannesdóttir Kollubikarinn

Kollubikarinn - sem veittur er í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur - var afhentur í sjöunda sinn á lokahófi Þórs/KA í haust. Hulda Björg Hannesdóttir fyrirliði er handhafi Kollubikarsins 2022.

Kollubikarinn er veittur til minningar um Kolbrúnu Jónsdóttur, fyrrverandi leikmann og stjórnarmann.

Við val á þeim leikmanni sem hlýtur Kollubikarinn eru hafðir til hliðsjónar eiginleikar sem prýddu Kollu sjálfa, áræðni, harka og dugnaður, svo einhverjir séu nefndir. Það er stjórn Þórs/KA sem velur þann leikmann sem fær Kollubikarinn hverju sinni.

Kolbrún starfaði lengi í kvennaráði

22

Þórs/KA, en lést á árinu 2016, langt fyrir aldur fram.

Við afhendinguna var meðal annars lesin upp umsögn liðsfélaga Huldu Bjargar um hana, en hún hljómar svona: Hulda er liðsfélaginn sem að þú myndir taka mér þér í stríð. Hún rífur þig áfram þegar þú ert að gefast upp, hrósar þér þegar þú ert að standa þig vel og lætur þig vita þegar þú þarft að gera betur. Eins og sannur leiðtogi á að vera. Hulda leggur sig alltaf fram, gerir aðra betri í kringum sig og er yndisleg manneskja. Allir vilja hafa eina Huldu í sínu liði!

Hulda Björg hefur orðið á lokahófi Þórs/KA í haust.

dóttur, sem hafa báðar komið mikið við sögu hjá Þór/KA, til að afhenda bikarinn. Ágústa lék um árabil með Þór/KA og starfar nú sem þjálfari hjá félaginu. Arna Kristinsdóttir hefur leikið bæði með Þór/KA og Hömrunum, ásamt því að hafa farið á lánssamningi til Tindastóls.

Handhafar Kollubikarsins:

2016: Karen Nóadóttir

2017: Sandra María Jessen

2018: Arna Sif Ásgrímsdóttir

2019: Lára Einarsdóttir

Dætur Kollu afhentu bikarinn Stjórn Þórs/KA fékk dætur Kolbrúnar, þær Ágústu Kristinsdóttur og Örnu Kristins-

2020: Heiða Ragney Viðarsdóttir

2021: Harpa Jóhannsdóttir

2022: Hulda Björg Hannesdóttir

23

Aftari röð: Aron Birkir Stefánsson, Sigurbjörn Bjarnason, Hulda Björg Hannesdóttir, Siguróli Kristjánsson og Egill Ármann Kristinsson. Fremri röð: Ágústa Kristinsdóttir, Pétur Heiðar Kristjánsson, Jóhann Kristinn Gunnarsson og Birkir Hermann Björgvinsson.

Mynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net

Þjálfarateymið

Stjórn Þórs/KA kynnti á haustdögum nýtt og öflugt þjálfarateymi sem myndað hefur verið í kringum starfsemi félagsins, en Þór/KA rekur meistaraflokk, 2. flokk og 3. flokk undir sínum merkjum. Ráðning þjálfara og samsetning teymisins gengur meðal annars út á aukið samstarf og tengsl milli meistaraflokks og yngri flokkanna.

24

Flestir þeirra þjálfara sem nú hafa undirritað samninga við félagið höfðu þegar hafið störf þegar æfingar hófust í október og nóvember, en nú má segja að teymið í kringum alla flokka félagsins sé fullmyndað og tilbúið í slaginn.

Áður hafði Jóhann Kristinn Gunnarsson skrifað undir samning sem aðalþjálfari meistaraflokks, en undanfarið hefur verið unnið að því að raða í störf í þjálfarateyminu og mynda öflugt teymi til að halda utan um hinn stóra og öfluga hóp sem félagið býr að í meistaraflokki og 2. og 3. flokki. Sú breyting verður meðal annars með undirskriftum núna að þjálfarar yngri flokkanna verða einnig hluti af þjálfarateymi meistaraflokks og samvinna og tengsl á milli flokkanna aukin frá því sem áður hefur verið.

• Jóhann

• Pétur Heiðar Kristjánsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks, aðalþjálfari 2. flokks og afreksþjálfari yngri flokka

• Ágústa Kristinsdóttir, yfirþjálfari yngri flokka og annar aðalþjálfara 3. flokks

• Birkir Hermann Björgvinsson, aðstoðarþjálfari 2. flokks

• Hulda Björg Hannesdóttir, annar aðalþjálfara 3. flokks

• Aron Birkir Stefánsson, markvarðaþjálfari allra flokka

• Siguróli Kristjánsson, yfirmaður knattspyrnumála og fl.

• Egill Ármann Kristinsson og Sigurbjörn Bjarnason styrktarþjálfarar.

25
Kristinn Gunnarsson, aðalþjálfari meistaraflokks

Siguróli Kristjánsson – eða Moli eins og flestir þekkja hann – mun gegna fjölbreyttu og víðtæku hlutverki með öllu þjálfarateyminu. Hann mun meðal annars vinna með leikmönnum varðandi hugarfarsþjálfun og verða þjálfarateyminu til ráðgjafar á breiðum grundvelli.

Um alla þessa þjálfara og ferilskrá þeirra mætti skrifa langar fréttir og margar því flestir þessara einstaklinga hafa langa reynslu á sínu sviði. Mörg þeirra hafa starfað hjá Þór/KA áður og þekking þjálfarateymisins á leikmannahópum flokkanna því mikil og mun koma sér vel í því starfi sem fram undan er. Stjórn Þórs/KA bindur miklar vonir við

þennan öfluga hóp og býður nýtt og eldra starfsfólk velkomið til starfa.

Frá því að þessi kynning fór fram í nóvember hefur Silvía Rán Sigurðardóttir, fyrrum leikmaður með Þór/KA, bæst í hópinn og verður hún með styrktarþjálfun í 2. og 3. flokki.

26

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Þór/KA í Macron

Stjórn Þórs/KA hefur gert samstarfssamning við íþróttavöruframleiðandann Macron til næstu fjögurra ára. Þór/KA vörur verða fáanlegar í Msport í Kaupangi og í vefverslun.

Leikmenn í öllum flokkum Þórs/KA –meistaraflokki, 2. flokki og 3. flokki –munu því klæðast æfinga- og keppnisfatnaði frá Macron næstu árin. Macron er ört vaxandi íþróttavöruframleiðandi með höfuðstöðvar í Bologna á Ítalíu.

Með samningnum lýkur fjögurra ára tímabili okkar í Nike-fatnaði, en Þór/KA hafði þar á undan notað Hummel-fatnað í fjölda ára, síðustu árin í gegnum Sport 24, en áður í gegnum forvera þess, Toppmenn og sport, og viljum við í Þór/KA nota tækifærið og þakka þessum fyrirtækjum og starfsfólki þess gott samstarf til fjölda ára.

Æfingafatnaður er nú þegar fáanlegur í versluninni Msport og í vefverslun á macronnordurland.is, auk þess sem leikmönnum hefur nú þegar gefist kostur á að panta sér fatnað á hagstæðu verði.

Aðdáendur og stuðningsfólk geta nú jafnframt fengið Þór/KA fatnað í Msport

eða vefversluninni á macronnordurland.is.

Það verður hins vegar aðeins lengri bið eftir sjálfum keppnistreyjunum, en nú stendur yfir hönnunarferli og val á keppnisfatnaði. Við munum að sjálfsögðu kynna vel hér á heimasíðunni og samfélagsmiðlum okkar þegar keppnisbúningarnir koma til landsins.

28

Að ofan: Hluti af Macronvörulínunni fyrir Þór/KA. Til hægri: Þjálfarar í Macronfatnaði þegar þjálfarateymið var kynnt í haust.

19
29

Alma Sól Valdimarsdóttir og Steingerður Snorradóttir á lokahófi Þórs/KA í haust. Sá háttur var hafður á hjá 2. flokki að stelpurnar kusu sjálfar verðlaunahafa úr sínum hópi.

Alma Sól var verðlaunuð sem besti liðsfélaginn og Steingerður sem besti leikmaður 2. flokks í sumar.

Mynd: Þórir Tryggva

30

U20: Fámennar en öflugar!

Eftir eins árs hlé sendi Þór/KA aftur lið til keppni í 2. flokki þetta árið. Áður en við skoðum tölur og mola frá sumrinu er hér smá upprifjun á sögunni.

Þegar leið að Íslandsmóti 2020 varð ljóst að ekki var nægur mannskapur til að halda úti hvort tveggja liði Hamranna og liði 2. flokks og var lið 2. flokks þá dregið úr keppni. Fyrir tímabilið 2022 var þessu snúið við og félagið skráði lið til keppni í 2. flokki, en Hamrarnir tóku ekki þátt í

Íslandsmótinu. Jafnframt var gert samkomulag við Völsung á Húsavík um samstarf. Þrír leikmenn á 2. og 3. flokks aldri voru lánaðir til Völsungs og Völsungi bætt við í liðið okkar í 2. flokki - og spilað undir heitinu Þór/KA/Völsungur.

Þór/KA hafði átt lið í A-deild í 2. flokki óslitið frá 2003, en undir merkjum Þórs/ KA/KS vann 2. flokkur B-deildina 2002. Íslandsmót í 2. flokki kvenna fór í fyrsta skipti fram árið 2001.

31
Þessi hópur sótti sex stig suður með sigrum á Aftureldingu og Fjölni. Aftast frá vinstri: Birkir Hermann Björgvinsson þjálfari, Helga Viðarsdóttir, Alma Sól Valdimarsdóttir, Elsa Dögg Jakobsdóttir, Steingerður Snorradóttir, Sigrún Rósa Víðisdóttir, María Björk Friðriksdóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Marey Dóróthea Maronsdóttir Olsen, Ágústa Kristinsdóttir þjálfari og Helga María Viðarsdóttir. Miðröð: Tanía Sól Hjartardóttir, Hafrún Mist Guðmundsdóttir, Lilja Björg Geirsdóttir og Hanna Klara Birgisdóttir. Fremstar: Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Ísabella Júlía Óskarsdóttir.

Á þessu árabili hefur Þór/KA átt í samstarfi við KS, Völsung og Hamrana. Liðið hét Þór/KA/KS 2003-2005, síðan Þór/KA 2006-7 og svo Þór/KA/Völsungur 20082011, aftur Þór/KA 2012-13 og Þór/KA/ Hamrarnir 2014-2019. Þrátt fyrir að tefla ekki fram liði í Íslandsmóti tók lið 2. flokks þátt í bikarkeppninni 2021 undir heitinu Þór/KA/Tindastóll/Hamrarnir.

Þór/KA/Hamrarnir vann Íslandsmeistaratitla árin 2016, 2017 og 2019 og bikarmeistaratitil 2017. ATH!!!

Molar og tölur

Þór/KA/Völsungur spilaði í B-deild í sumar, eins og fram kom í upphafi þessarar greinar.

• Fjölnir vann B-deildina með yfirburðum, en eina liðið sem sigraði Fjölni í sumar var Þór/KA/Völsungur, ekki einu sinni, heldur tvisvar.

• Liðin mættust tvisvar í B-deildinni U20 og einu sinni í bikarkeppninni. Okkar stelpur höfðu betur í bikarkeppninni, 31, en liðin unnu hvort sinn leik í deildinni. Allar viðureignir þessara liða í sumar unnust á útivelli.

• Sigurleikur okkar gegn Fjölni í deildinni var eini leikurinn í deildinni sem Fjölnir vann ekki.

• Áhugavert er að líta á stöðutöfluna í B-

Staðan í Íslandsmóti 2. flokks U20, B-deild. Skjáskot af ksi.is.

deildinni U20 (sjá mynd), en keppni þar virðist ekki vera lokið. Samkvæmt vef KSÍ hefur leikur ÍBV og Stjörnunnar/ Álftaness ekki farið fram – eða þá að úrslit hafa ekki verið skráð því leiknum hafði verið frestað og var síðast á dagskrá sunnudaginn 16. október í Vestmannaeyjum. Úrslit þessa leiks ráða því reyndar hvort Þór/KA/Völsungur endar í 3. eða 4. sæti. Ef ÍBV vinnur (eða vann) þennan leik enda okkar stelpur í 3. sæti. Ef Stjarnan/Álftanes nær (eða náði) í stig í leiknum fara þær upp fyrir okkur.

• Liðið lék 14 leiki í Íslandsmótinu og þrjá í bikarkeppninni. Í deildinni vann liðið átta leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði fimm, en í bikarnum komu tveir sigrar og eitt tap.

• Stærsti sigur sumarsins kom í Mosfellsbænum gegn Aftureldingu. Þar unnu okkar stelpur 8-0. Daginn eftir, raunar innan við sólarhring síðar, sigruðu þær

32

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

efsta lið deildarinnar, Fjölni, 4-2.

• Enginn leikmaður náði að spila alla þessa 17 leiki, en fjórar spiluðu 13 af 14 leikjum í deildinni, þær Hanna Klara Birgisdóttir, Ísabella Júlía Óskarsdóttir, Marey Dóróthea Maronsdóttir Olsen og Sigrún Rósa Víðisdóttir.

bikarkeppninni, þær Hafrún Mist Guðmundsdóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Ísabella Júlía Óskarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir, Marey Dóróthea Maronsdóttir Olsen, Steingerður Snorradóttir og Tanía Sól Hjartardóttir.

• Steingerður Snorradóttir og Tanja Sól Hjartardóttir skoruðu tvö mörk í bikarkeppninni og þær Elsa Dögg Jakobsdóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir eitt hver.

Átján markaskorarar!

• Alls skoruðu 18 leikmenn mark eða mörk fyrir liðið í deildinni, þar af sex leikmenn sem skoruðu einnig mörk í bikarkeppninni, en samtals skoraði liðið 54 mörk í sumar, 44 í deild og 10 í bikar.

• Hafrún Mist Guðmundsdóttir og Tanía Sól Hjartardóttir skoruðu flest mörk fyrir liðið í deildinni, sex mörk hvor, Hildur Jana Hilmarsdóttir skoraði fimm.

• Sjö leikmenn spiluðu alla þrjá leikina í

• Markaskorarar sumarsins, samanlagt í deild og bikar, þar sem seinni talan hjá nokkrum eru mörk í bikarkeppninni: Tanía Sól Hjartardóttir 6+2 Hafrún Mist Guðmundsdóttir 6 Steingerður Snorradóttir 4+2 Hildur Jana Hilmarsdóttir 5 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir 4+1 Iðunn Rán Gunnarsdóttir 3+1 Una Móeiður Hlynsdóttir 3 Emelía Ósk Kruger 2

Lilja Björg Geirsdóttir 2 Elsa Dögg Jakobsdóttir 1+1 Sonja Björg Sigurðardóttir 1+1 Amalía Árnadóttir 1 Bríet Jóhannsdóttir 1 Emilía Björk Óladóttir 1 Helga Dís Hafsteinsdóttir 1 Karlotta Björk Andradóttir 1 Krista Dís Kristinsdóttir 1 Tiffany McCarty 1

34
Tveir af þjálfurum U20, Ágústa Kristinsdóttir og Birkir Hermann Björgvinsson á hliðarlínunni á Varmárvelli í Mosfellsbæ.

Alls komu 44 leikmenn við sögu í leikjum liðsins í deildinni og 21 í bikarnum, að mestu sömu leikmenn, en samtals 46 sem tóku þátt í leikjum liðsins í deild og bikar í sumar.

• Af þessum 46 leikmönnum voru 14 enn gjaldgengar í 3. flokki (2006-2007) og tvær í 4. flokki (2008-2009). Tólf eru fæddar 2006, tvær 2007, ein 2008 og

liði Breiðabliks/Augnabliks, sem meðal annars skart-aði öflugum eldri meistaraflokksleikmönnum, þar á meðal einni erlendri.

• Liðið fór í undanúrslit í bikarkeppninni, en eftir 3-1 sigur á Fjölni kom 4-2 sigur gegn Tindastóli, en síðan 4-3 tap gegn

• Í 2. flokki eru sérreglur um notkun eldri leikmanna, en í stuttu máli má nota fjóra eldri leikmenn sem ekki voru í byrjunarliði meistaraflokks í næsta leik á undan. Undanfarin ár var miðað við þrjá árganga eftir að leikmenn fara upp úr 2. flokki, en fyrir þetta tímabil var reglunni breytt og má nú nota þrjá leikmenn án hærri aldursmarka. Einnig var sett regla til bráðabirgða fyrir tímabilið 2022 og fjölgað um einn árgang, sbr.: „Ákvæði til bráðabirgða keppnistímabilið 2022: Allir leikmenn sem eru 20 ára á almanaksárinu eru hlutgengir í 2. aldursflokki kvenna keppnistímabilið 2022 og teljast ekki til þeirra fjögurra eldri leikmanna sem heimilt er að nota. Heimilt er að hafa fjóra eldri leikmenn í hverjum leik í 2. aldursflokki kvenna, sem hófu ekki leik með meistaraflokki félagsins í næsta leik á undan.“ • Alls komu sjö leikmenn við sögu í leikjum liðsins í sumar samkvæmt þessari reglu, þær Agnes Birta Stefánsdóttir, Anna Mary Jónsdóttir, Hafrún Mist Guðmundsdóttir, Helga María Viðarsdóttir, Lilja Björg Geirsdóttir, Sara Mjöll Jóhannsdóttir og Tiffany McCarty.

35
Fyrir leik í Mosó. Og berjast!

meistarar Margfaldir

Það eru engar ýkjur að halda því fram að stelpurnar í 3. flokki hafi slegið í gegn á árinu. Þær eru hreinlega bikaróðar og þjálfararnir þeirra líka.

Tvöfaldur sigur á Barcelona Girls Cup ásamt nokkrum einstaklingsverðlaunum, þrefaldir deildarmeistarar í A-riðli Íslandsmótsins, Íslandsmeistarar, bikarmeistarar, deildarmeistarar í C-riðli lotu 1, deildarmeistarar í B-riðli lotu 3, silfurverðlaunahafar í Íslandsmóti B-liða.

Liða- og einstaklingsverðlaun í Barcelona

Þór/KA stelpur fjölmenntu til Barcelona og sendu fjögur lið til þátttöku í Barcelona Girls Cup. Skemmst er frá því að segja að

báðir árgangarnir, 2006 og 2007, unnu mótið í sínum árgöngum. Að auki fengu nokkrar Þór/KA-stelpur einstaklingsverðlaun.

•Emelía Ósk Kruger var valin besti leikmaður mótsins í árgangi 2006.

•Ísabella Júlía Óskarsdóttir var valin besti markvörðurinn í árgangi 2006, en hún og liðið hennar fóru í gegnum mótið án þess að fá á sig mark.

•Karlotta Björk Andradóttir varð markahæst allra leikmanna í 2007 árgangnum.

Þór/KA var með tvö lið í hvorum aldursflokki, 2006 og 2007, auk þess sem leikmenn úr 2. Flokki voru með í för í eins konar æfingaferð, en vegna heimsfaraldurs hafa ferðir yngri flokka á mót

36
Barcelona-fararnir mættu út á völl í leikhléi í leik Þórs/KA og KR í Bestu deildinni. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Karlotta Björk Andradóttir (að ofan), Emelía Ósk Kruger (efri til hægri) og Ísabella Júlía Óskarsdóttir (neðri til hægri) fengu allar einstaklingsverðlaun á Barcelona Girls Cup. Myndirnar eru af Facebook-síðu mótsins.

erlendis fallið niður undanfarin ár.

A-liðið í árgangi 2006 vann mótið án þess að fá á sig mark, vann alla fimm leiki sína og markatalan 12-0. B-liðið í sama árgangi endaði í 5. Sæti mótsins og varð þar með sigurvegari neðri hluta mótsins, sæti 5-8. Liðið vann báða úrslitaleikina í neðri hlutanum í vítaspyrnukeppni eftir jafntefli.

A-liðið í árgangi 2007 vann alla sína leiki í riðlinum sem og í úrslitakeppninni og endaði með markatöluna 24-1. B-liðið í árgangi 2007 keppti um 9.-16. sætið og endaði mótið á að vinna WSS Barcelona í leik um 15. sætið.

Þjálfarar 3. flokks eru Ágústa

37

Barcelona Girls Cup-meistarar, árgangur 2006.

Aftari röð frá vinstri: Ólína Helga Sigþórsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Arna Rut Orradóttir, Amalía Árnadóttir, Helga Dís Hafsteinsdóttir, Hildur Jana Hilmarsdóttir, Sigrún Rósa Víðisdóttir og Júlía Margrét Sveinsdóttir.

Fremri röð frá vinstri: Sonja Björg Sigurðardóttir, Ísabella Júlía Óskarsdóttir, Krista Dís Kristinsdóttir, Emelía Ósk Kruger og Anna Guðný Sveinsdóttir.

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Barcelona Girls Cupmeistarar, 2007 árg.

Aftari röð frá vinstri: Hildur Anna Birgisdóttir Nína Rut Arnardóttir Elísabet A. Stefánsdóttir Kolfinna Eik Elínardóttir Karen Dögg Birgisdóttir Hólmdís Rut Einarsdóttir Tinna Sverrisdóttir

Fremri röð frá vinstri: Karlotta Björk Andradóttir Sunna Þórveig Guðjónsdóttir Klara Parraguez Solar Katla Bjarnadóttir Rebekka Sunna Brynjarsdóttir

Þór/KA2 5. sæti 2006

Aftari röð frá vinstri: Lilja Gull Ólafsdóttir Úlfhildur Embla Klemensdóttir Hanna Klara Birgisdóttir Herdís Agla Víðisdóttir Rut Marín Róbertsdóttir Karítas Hrönn Elfarsdóttir Emilía Björk Óladóttir Fremri röð frá vinstri: Elsa Dögg Jakobsdóttir Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir Helena Hafdal Björgvinsdóttir María Björg Steinmarsdóttir Maríana Mist Helgadóttir

40

Þór/KA 2, árgangur 2007

Aftari röð frá vinstri: Gunnella Dís Gunnarsdóttir Elsa Dís Snæbjarnardóttir Valdís María Gunnarsdóttir Harpa Hrönn Þórðardóttir Aníta Mist Fjalarsdóttir Dagbjört Rós Hrafnsdóttir Ísafold Gná Ólafsdóttir

María Björk Friðriksdóttir Fremri röð frá vinstri: Eva Hrund Hermannsdóttir Arna Dögg Hjörvarsdóttir Nadía Hólm Jónsdóttir Kristjana Vera Kelley Sunneva Elín Sigurðardóttir Marey Dóróthea Maronsdóttir Olsen. María og Marey eru úr 2. flokki, en laumuðu sér á þessa mynd sem „þjálfarar“.

Kristinsdóttir, Birkir Hermann Björgvinsson og Pétur Heiðar Kristjánsson. Fararstjórar í ferðinni voru Elma Eysteinsdóttir, Erla Ormarsdóttir, Eyrún Kristína Gunnarsdóttir og Sigrún Björk Sigurðardóttir. Hluti af leikmönnum úr 2. flokki var einnig með í þessari ferð án þess að taka þátt í mótinu, en fararstjóri með þeim hópi er Valdimar Pálsson. Bikarmeistarar

A-liðið í 3. flokki fór alla leið í bikarkeppninni og endaði keppnina í úrslitaleik gegn Breiðabliki/Augnabliki á Þórsvellinum. Okkar stelpur stóðu uppi sem sigurvegarar og bikarmeistarar með 2-0 sigri. Félagið setti upp glæsilega umgjörð um leikinn, fjölmargir áhorfendur mættu og úr varð hin besta skemmtun og auðvitað skemmdi ekki fyrir að vinna bikarinn. Hildur Anna Birgisdóttir og Amalía Árnadóttir sáu um að skora mörkin í bikarúrslitaleiknum. Sjá liðsmynd á næstu síðu.

Íslandsmótið með

nýju sniði

Í ár var tekið upp nýtt fyrirkomulag á keppni í 3. Flokki. Íslandsmótið hófst í byrjun mars og var því skipt í þrjár lotur þannig að lið gátu unnið sig upp (eða fallið) á milli riðla eftir árangri í lotunum.

Þór/KA sendi tvö lið til keppni í Íslandsmóti A-liða og eitt í Íslandsmót B-liða. Í stuttu máli sagt stóðu öll liðin sig frábærlega, sigrarnir hrönnuðust upp, stigin komu í bílförmum heim eftir ferðalög í nánast öll landshorn og bikaræðið hélt áfram.

Dramatíkin tók völdin á lokakaflanum hjá liði A1, sem mætti Haukum/KÁ í Hafnarfirði í síðustu umferðinni og þurfti að vinna leikinn auk þess að treysta á hagstæð úrslit í

41

Bikarmeistarar í 3. flokki 2022

Fremri röð frá vinstri: Júlía Margrét Sveinsdóttir, Arna Rut Orradóttir, Emelía Ósk Kruger, Tinna Sverrisdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Angela Mary Helgadóttir, Rut Marín Róbertsdóttir, Karlotta Björk Andradóttir og Krista Dís Kristinsdóttir.

Aftari röð frá vinstri: Birkir Hermann Björgvinsson, Pétur Heiðar Kristjánsson, Bríet Jóhannsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Elísabet A. Stefánsdóttir, Ólína Helga Sigþórsdóttir, Amalía Árnadóttir, Anna Guðný Sveinsdóttir, Emilía Björk Óladóttir, Helga Dís Hafsteinsdóttir, Katla Bjarnadóttir, Tiffany McCarty, Sonja Björg Sigurðardóttir og Ágústa Kristinsdóttir.

Mynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net

öðrum leik. Þetta dæmi gekk fullkomlega upp. Stjarnan/Álftanes og FH/ÍH gerðu 3-3 jafntefli á sama tíma og Þór/KA vann sinn leik í Hafnarfirðinum.

Lokastaðan í A-riðli varð þannig að Þór/ KA vann Íslandsmeistaratitilinn, með 18 stig, en FH/ÍH endaði í 2. sæti með 17 stig.

Áður hafði Þór/KA (A1) unnið bæði lotu 1 og 2 í A-riðlinum með nokkrum yfirburðum og hafði fyrir lokaleikinn unnið 17 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Sú staða kom upp að ef FH/ÍH hefði unnið lokaleikinn gegn Stjörnunni/ Álftanesi hefði Þór/KA misst af Íslandsmeistaratitlinum með eitt tap á bakinu, en

FH/ÍH getað unnið hann þrátt fyrir að hafa tapað sjö leikjum samtals í lotum 1-3. Umbunin fyrir að vinna A-riðilinn bæði í lotu 1 og 2 var einungis að liðið fékk fleiri heimaleiki en útileiki, en þegar kom að þriðju lotunni byrjuðu öll lið á núlli og FH/ ÍH vann leikinn gegn Þór/KA.

Þetta eina tap varð næstum til þess að okkar stelpur misstu af titlinum, sem hefði verið mjög sárt í ljósi þess að hafa aðeins tapað þessum eina leik. En fótboltinn er óútreiknanlegur, Þór/KA er Íslandsmeistari í 3. flokki!

Eins og áður sagði sendi Þór/KA tvö Alið til keppni á Íslandsmótinu. Lið A2 hóf

42

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Íslandsmeistarar í 3. flokki 2022

Fremri röð frá vinstri: Helga Dís Hafsteinsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Tinna Sverrisdóttir, Karlotta Björk Andradóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Arna Rut Orradóttir. Aftari röð frá vinstri: Pétur Heiðar Kristjánsson, Krista Dís Kristinsdóttir, Emelía Ósk Kruger, Bríet Jóhannsdóttir, Amalía Árnadóttir, Anna Guðný Sveinsdóttir, Ólína Helga Sigþórsdóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir og Birkir Hermann Björgvinsson.

Mynd: Erla Ormarsdóttir

keppni í C-riðli og vann hann í fyrstu lotunni. Þar með færðist liðið upp í B-riðil og endaði þar í 3. sæti í lotu 2 og vann Briðilinn í lotu 3. Þannig má segja að lið A2 hafi unnið tvo deildarmeistaratitla og félagið ætti því rétt á að vera með tvö lið í A-riðli þegar keppni á Íslandsmótinu hefst í mars, en ákveðið hefur verið að senda aðeins eitt A-lið til keppni að þessu sinni.

Sannarlega glæsilegt hjá stelpunum okkar að vinna bæði Íslandsmeistaratitil og að vinna B-riðilinn einnig með liði Þórs/ KA2.

Silfur í Íslandsmóti B-liða

Þriðja liðið frá Þór/KA tók þátt í Íslandsmóti B-liða. Eftir að hafa hafnað í 2. sæti deildarinnar fór liðið í úrslitakeppni. Stelpurnar sigruðu lið Snæfellsness í undanúrslitum, en töpuðu gegn FH/ÍH í úrslitaleik, 0-2. Silfurverðlaun niðurstaðan hjá Þór/KA í keppni B-liða. Mögnuð tölfræði Lítum aðeins á tölurnar, sigra, jafntefl, töp og markatölu hjá þessum þremur liðum í 3. flokki.

44

Deildarmeistarar í B-riðli, lotu 3, í 3. flokki 2022

Aftari röð frá vinstri: Karítas Hrönn Elfarsdóttir, Nína Rut Arnardóttir, Herdís Agla Víðisdóttir, Elísabet A. Stefánsdóttir, Rut Marín Róbertsdóttir, Dagbjört Rós Hrafnsdóttir, Maríana Mist Helgadóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Ágústa Kristinsdóttir.

Fremri röð frá vinstri: Klara Parraguez Solar, Lilja Gull Ólafsdóttir, María Björg Steinmarsdóttir, Rebekka Sunna Brynjarsdóttir, Úlfhildur Embla Klemensdóttir og Katla Bjarnadóttir. Á myndina vantar Emilíu Björk Óladóttur.

Þór/KA - A1: 18 sigrar, 1 jafntefli, 1 tap, markatala 66-22. Auk þess fjórir sigrar í bikarkeppni, markatala 13-1. Þór/KA - A2: 14 sigrar, 2 jafntefli, 2 töp, markatala 51-22. Þór/KA - B-lið: 9 sigrar, 1 jafntefli, 4 töp, markatala 43-30.

Samanlagt unnu liðin okkar í 3. flokki því 45 leiki á árinu, gerðu fjögur jafntefli og töpuðu sjö leikjum. Þessar tölur ljúga ekki, frábær árangur hjá stelpunum og þjálfurum.

Þjálfarar 3. flokks eru Ágústa Kristins-

Bikaróðir þjálfarar. Peddi, Ágústa og Biggi.

dóttir, Birkir Hermann Björgvinsson og Pétur Heiðar Kristjánsson. Tiffany Mc-

45

Silfurverðlaun á Íslandsmóti B-liða

Aftari röð frá vinstri: Gunnella Rós Gunnarsdóttir, Karen Dögg Birgisdóttir, Aníta Mist Fjalarsdóttir, Arna Dögg Hjörvarsdóttir, Sunna Þórveig Guðjónsdóttir, Dagbjört Rós Hrafnsdóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Elsa Dís Snæbjarnardóttir, Aldís Eva Aðalsteinsdóttir, Nadía Hólm Jónsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Valdís María Gunnarsdóttir, Klara Parraguez Solar, Sunneva Elín Sigurðardóttir, Eva Hrund Hermannsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Ísey Ragnarsdóttir, Kristjana Vera Kelley og Harpa Hrönn Þórðardóttir.

Carty aðstoðaði einnig við þjálfun og Harpa Jóhannsdóttir var í þjálfarateyminu yfir vetrarmánuðina.

Margar að spila marga leiki

Tvær spiluðu alla leiki A1-liðsins í Ariðlinum, Bríet Jóhannsdóttir og Tinna Sverrisdóttir. Bríet var jafnframt markahæst hjá því liði, skoraði 16 mörk í deildinni og eitt í bikarnum. Ólína Helga Sigþórsdóttir kom næst með tíu mörk, þá Júlía Margrét Sveinsdóttir með sjö og þær Anna Guðný Sveinsdóttir og Krista Dís Kristinsdóttir sex mörk hvor. Alls tóku 29

leikmenn þátt í leikjum liðsins í A-riðlinum, Íslandsmeistaraliðinu, í sumar. Nokkrar þeirra spiluðu þó aðeins 1-5 leiki, en voru að jafnaði með A2 liðinu.

Hjá A2-liðinu var það Rut Marín Róbertsdóttir sem spilaði flesta leiki, en hún spilaði alla 18 leiki liðsins. Næstar komu Karítas Hrönn Elfarsdóttir, María Björg Steinmarsdóttir og Úlfhildur Embla Klemenzdóttir með 16 leiki í Íslandsmótinu. Emilía Björk Óladóttir skoraði mest fyrir A2-liðið, 14 mörk og Rebekka Sunna Brynjarsdóttir kom næst með tíu

46

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Mættar í Bogann í leikhléi í leik Þórs/KA og Stjörnunnar, auðvitað með bikara í farteskinu. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

mörk. Alls komu 30 leikmenn við sögu í leikjunum hjá A2liðinu.

B-liðið spilaði færri leiki en hin liðin, alls tíu leiki í deildinni og tvo í úrslitakeppni. Tvær spiluðu alla 12 leikina með B-liðinu, Aníta Mist Fjalarsdóttir og Gunnella Rós Gunnarsdóttir. Gunnella Rós var jafnframt markahæst hjá B-liðinu með níu mörk, en þær Klara Parraguez Solar og Eva Hrund Hermannsdóttir skoruðu fimm mörk hvor.

Þegar talið er saman hjá öllum liðunum kemur í ljós að Rut Marín Róbertsdóttir tók þátt í flestum leikjum allra leikmanna 3. flokks í Íslandsmóti og bikarkeppni, en hún kom við sögu í 28 leikjum með A1 og A2. Næst kemur Emilía Björk Óladóttir með 26 leiki og síðan Hildur Anna Birgisdóttir og Katla Bjarnadóttir með 24 leiki.

Samtals tóku 49 leikmenn þátt í leikjum þessara þriggja liða í Íslandsmótinu í sumar.

48

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Leikmenn 2022 tölur og myndir

Á næstu 30 síðum eru myndir og upplýsingar um jafn marga leikmenn sem komu á einn og annan hátt við sögu hjá meistaraflokki Þórs/KA á árinu.

Hér er átt við leikmenn sem spiluðu leiki í Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum og/eða Lengjubikarnum, voru á samningi eða að staðaldri í æfingahóp meistaraflokks og/eða fóru með liðinu í æfingaferð til Tenerife í júlí.

Hver leikmaður fær eina síðu þar sem birtar eru upplýsingar um leiki og mörk í

meistaraflokki, landsleiki og fleira yfir allan ferilinn, ásamt sams konar tölum fyrir árið 2022. Þetta er svo skreytt með myndum sem minna enn og aftur á mikilvægi ljósmyndara við að skrá íþróttasöguna og mikilvægi þess að eiga við þá gott samstarf. Flestar myndir af leikmönnum tóku Þórir Tryggvason og Egill Bjarni Friðjónsson og má sjá „Þórir Tr. ´22“ neðst í hægra horni eða „E.B.F. ´22“ neðst í vinstra horni á myndum þeirra. Nokkrar myndir eru af leikmönnum sem

50
Marki fagnað. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

spiluðu með Völsungi á lánssamningi, en flestar þeirra eru frá Hafþóri Hreiðarssyni og 640.is. Nokkrar myndir eru teknar af Facebook-síðu Barcelona Girls Cup, en fjórar af þessum 30 voru í liði Þórs/KA sem vann það mót í árgangi 2006. Fáeinar myndir tók ritstjórinn sjálfur og nokkrar komu einnig frá foreldrum leikmanna.

Leikmenn sem eingöngu komu við sögu í Kjarnafæðismótinu eru ekki á meðal þessara 30, en það eru 14 leikmenn sem spiluðu einn eða fleiri leiki í því móti. Þessi fjöldi skýrist aðallega af einum leik, sem leikmenn í 2. og 3. flokki spiluðu þar sem leikir Þórs/KA í Faxaflóamótinu sköruðust við leik í Kjarnafæðismótinu.

Þrátt fyrir mikla þróun í myndbúnaði snjallsíma jafnast gæði símamynda enn sjaldan eða aldrei á við það sem færir ljósmyndarar með góða vél og aðdráttarlinsu ná að fanga í hita leiksins.

Þær 14 sem spiluðu leik eða leiki í Kjarnafæðismótinu, en ekki aðra leiki með meistaraflokki á árinu eru:

Anna Guðný Sveinsdóttir Arna Rut Orradóttir Elsa Dögg Jakobsdóttir Emelía Ósk Kruger Emilía Björk Óladóttir Helga Dís Hafsteinsdóttir Hildur Jana Hilmarsdóttir Hildur Marín Bergvinsdóttir Ísabella Júlía Óskarsdóttir Karlotta Björk Andradóttir Marey Dóróthea Maronsdóttir Olsen Ólína Helga Sigþórsdóttir Rut Marín Róbertsdóttir Tanía Sól Hjartardóttir Áhorfendur að leikjum liðsins á komandi ári mega svo auðvitað búast við að einhverjar af þessum fjórtán verði að staðaldri í hóp hjá meistaraflokki og láti ljós sitt skína inni á vellinum í vor og sumar. Við búum svo vel að eiga margar efnilegar stelpur sem eru á leið upp. Allar tölulegar upplýsingar um leikmenn eru fengnar af vef KSÍ.

Úr leik Þórs/KA og Tindastóls í Kjarnafæðismótinu 2023, en sá leikur fór fram 18. desember 2022. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson
51
Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Agnes Birta stundar nám við háskóla í Bandaríkjunum ásamt því að spila fótbolta með skólaliðinu. Hún spilaði einn leik í bikarkeppninni með 2. fl. U20, en engan leik hér í meistaraflokki hér á landi 2022. Myndirnar eru frá 2021.

19 2022 Lengubikar A-deild (Þór/KA) 1 Lengjubikar C-deild (Völsungur) 4/1 Mjólkurbikar (Völsungur) 2/1 2. deild (Völsungur) 4 2. og 3. flokkur 16/6
2022 Besta deildin 18/0 Mjólkurbikar 2/1 Lengjubikar 4/1 Faxaflóamótið 3/1 Kjarnafæðismótið 1/1
2022 Besta deildin 7 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 3 Kjarnafæðismótið 2 U16 og U17 landslið 10 2. og 3. flokkur 13/1
2022 Besta deildin 16/2 Mjólkurbikar 1 A-landsleikir 1 Spilaði með Val í Reykjavíkurmóti og Lengjubikar áður en hún kom á lánssamningi til Þórs/KA.

2022 Lengjudeildin (Tindastóll) 16/2 Mjólkurbikar (Tindastóll) 3 Lengjubikar (Þór/KA) 1 Arna spilaði í haust sinn 100 meistaraflokksleik, þegar taldir eru saman leikir í A-deild með Þór/KA, B-deild með Tindastóli og Hömrunum, C-deild með Hömrunum, bikarkeppni, deildarbikar og öðrum mótum. Auk þeirra eru svo 14 leikir í mótum sem ekki eru á vegum KSÍ.

2022 Kjarnafæðismótið 4/3 2. og 3. flokkur 2/1 3. flokkur 24/17
2022 Lengjubikar 2 Faxaflóamót 2/1 Samdi við Þór/KA í desember 2021, en fékk sig lausa undan samningi í lok mars af persónulegum ástæðum.
2022 Besta deildin 18 Lengjubikar 4 Kjarnafæðis- og Faxaflóamót 4
19 2022 Besta deildin 16 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 4 Kjarnafæðis- og Faxaflóamót 5
2022 Besta deildin 6 Lengjubikar 5 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 5
19 2022 Besta deildin 15/3 Mjólkurbikar 2/1 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 1
2022 Besta deildin 8 Mjólkurbikar 1 Lengjubikar 5 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 4 U17 landslið 2 2. flokkur 13/4
19 2022 Besta deildin 16/1 Mjólkurbikar 1 Lengjubikar 4 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 6 U19 og U18 landsleikir 6 2. flokkur 6/5
2022 Besta deildin 7 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 1 U19 landslið 5 2. flokkur 2
19 2022 Besta deildin 15 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 5/2 Kjarnaf.– og Faxaflóamót 4/3 U17, U18, U19 landslið 5 2. flokkur 6
2022 Besta deildin 1 Mjólkurbikar 1 Kjarnaf.– og Faxaflóamót 5/2 U16 og U17 landslið 9/1 2. og 3. flokkur 24/8
19 2022 Besta deildin 17/6 Mjólkurbikar 2/2 Lengjubikar 5/1 Kjarnaf.– og Faxaflóamót 6/7
2022 Besta deildin 8/1 Kjarnafæðismótið 1 U19 landslið 3 Lék með Celtic FC í Skotlandi frá júlí 2021 þar til hún kom aftur í Þór/KA ágúst 2022.
19 2022 Besta deildin 6 Lengjudeildin (Tindastóll) 6 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 1 Kjarnaf.– og Faxaflóamót 2
2022 Besta deildin 10 Mjólkurbikar 1 Lengjubikar 5 Kjarnaf.– og Faxaflóamót 3
19 2022 Besta deildin 18/8 Mjólkurbikar 2/1 Lengjubikar 3/2 Kjarnafæðismótið 1/2
2022 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 1 Faxaflóamótið 2 2. flokkur 1
19
2022 Mjólkurbikar (Völsungur) 1 2. deild (Völsungur) 14/11 Lengjubikar 6/4 Kjarnafæðismótið 2/2 U16 landslið 3 2. og 3. flokkur 5/7
19 2022 Besta deildin 6 Mjólkurbikar 1 2. flokkur 16/6
2022 Besta deildin 14/3 Mjólkurbikar 2/1 Lengjubikar 4 Faxaflóamót 1/1
19 2022 2. deild (Völsungur) 12/4 Mjólkurbikar (Völsungur) 2/1 Lengjubikar (Þór/KA) 4/0 Lengjubikar (Völsungur) 2/0 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 6/2 2. flokkur 3/3
2022 Besta deildin 16 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 5 Kjarnaf.- og Faxaflóamót 6/1 U18 landslið 1 2. flokkur 2
19 2022 Besta deildin 9 Mjólkurbikar 2 Lengjubikar 5/1 Faxaflóamót 2
19
ætingin skiptir máli, stuðningurinn skiptir sköpum!
M

Þór/KA þakkar samstarfsfyrirtækjum gott samstarf og stuðninginn á árinu.

Mætingin skiptir máli, stuðningurinn skiptir sköpum! Mikilvægi sjálfboðaliðans verður seint ofmetið 86
Þórir Tryggvason mundar linsuna á leik. Mynd: Páll Jóhannesson Egill Bjarni Friðjónsson á margar myndir í þessari útgáfu sem og í albúmum á thorka.is. Mynd: Páll Jóhannesson
89
Skapti Hallgrímsson á akureyri.net er alltaf klár með linsuna þegar við þurfum á honum að halda. Mynd: Páll Jóhannesson

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.