Glæný verslun opnar í maí! Vsk. númer: 1780 | Kt. 050512 – 6789
Markhópur
Jóga Mantra er sérvöruverslun sem selur einungis vörur tengdar jóga og er markhópurinn þar af leiðandi jógaunnendur á öllum aldri, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Að því sögðu er megin aðaláhersla lögð á konur.
Starfmannastefna
Jóga Mantra leggur mikla áherslu á að vera með fjölbreyttan og vel upplýstan starfsmannahóp. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun og fræðslu um þær vörur sem fyrirtækið er að vinna með svo hægt sé að bjóða viðskiptavinum upp á fyrirmyndarþjónustu. Hjá fyrirtækinu ríkir jafnrétti og eru starfsmenn hvattir til þess að koma með skapandi hugmyndir að fjölbreyttum leiðum til þess að uppylla væntingar viðskiptavinarins. Fyrirtækið vill gera vel við starfsfólk sitt og fá allir starfsmenn sem hafa unnið hjá fyrirtækinu í mánuð starfsmannakort sem veitir þeim sérstakan starfsmannaafslátt.
Kúnnavild Með
skráningu
í
Mantraklúbbinn
fær
viðskiptavinurinn 10% afslátt sem og tilkynningar um komandi tilboð verslunarinnar. Fyrirtækið er með tvennskonar kort, annarsvegar Mantra klúbbkort og hins vegar Mantra gullkort. Með gullkortinu fær viðskiptavinurinn allt það sama og klúbbkortið veitir en einnig boð á sérstakar tilboðsopnanir sem haldnar eru tvisvar á ári. Þar eru veittir frábærir afslættir, gjafapokar og margt fleira sem ekki er í boði á venjulegum
opnunartíma. Einungis þeir meðlimir sem hafa verslað að minnsta kosti 10 sinnum yfir fyrsta hálfa árið með klúbbkortinu hafa rétt á því að uppfæra í gullkort (ath. takmarkað pláss í boði).
Vörurnar okkar
Jóga Mantra er með hágæða vöruúrval sem nýtist byrjendum jafnt sem lengra komnum. Samhliða því að selja frábærar vörur frá fyrirtækjum eins og Beyond Yoga, Carbon38 og Pure Apparel er verslunin einnig með sitt eigið vörumerki. Þó svo að aðaláherslan sé íþróttafatnaður, þá er verslunin einnig með gott úrval af öllum þeim tækjum og tólum sem þú gætir þurft til þess að gera upplifunina sem ánægjulegasta.
Auglýsingaherferð
Herferðin samanstendur af A5 bæklingi fyrir birgja, A4 auglýsingabæklingi, heilsíðuauglýsingu í Vikuna, 3 dálka auglýsingu
Lógó
hjá Morgunblaðinu og Fréttablaðinu, buzz auglýsingu í stætóskýli og tvenns konar klúbbakortum. Herferðin gengur út á að auglýsa sérstakt opnunartilboð þar sem allar vörur verða á 15% afslætti og þar að auki fá nýir viðskiptavinir 25% afslátt af næstu kaupum ef verslað er fyrir meira en 5000 kr. Fyrsta mánuðinn verður seldur sérstakur byrjendapakki á frábæru verði og mun hann innhalda 3 vörur sem hjálpa þér að taka fyrstu skrefin inn í jógaheiminn. Einnig verður Mantraklúbburinn kynntur og leiðbeiningar um hvar sé hægt að skrá sig.
Kostnaðaráætlun VERK
TÍMI/MAGN
VERÐ
A5 bæklingur
500 eintök
45.000 kr
A4 bæklingur
4000 eintök
120.000 kr
Vikan
Heilsíða
70.000 kr
Dagblað
3 dálkar
111.900 kr
Fjórföld í 4 daga
94.400 kr
1000 eintök, 2 hliðar
19.400 kr
200 eintök, 2 hliðar
10.900 kr
Buzz/Strætó Mantra klúbbkort Mantra gullkort
Heildarverð: 471.600 kr
Aðeins um okkur! Jóga Mantra er glæný íþróttavöruverslun sem sérhæfir sig í öllu því sem tengist jóga. Verslunin er með fjölbreytt vöruúrval og leggur mikið upp úr því að bjóða uppá allt það besta fyrir jógaiðkandann. Jógamenningin á Íslandi er alltaf að eflast. Fólk er farið að hugsa meira um andlega og líkamlega heilsu og eftirspurn eftir góðum íþróttavörum því að aukast. Jóga er ein vinsælasta leiðin til þess að stilla hugann og losa um spennu í líkama af sökum álags. Jóga hentar fólki á öllum aldri, ungum jafnt sem öldnum. Hlökkum til að sjá þig! Starfsfólk Jóga Möntru
Opnunartímar Opið frá kl. 10 – 19 alla virka daga Opið frá kl. 11 – 18 um helgar
Ármúli18 | 104 rvk | 567 8888 | info@jogamantra.is | jogamatra.is