GRAFÍSK MIÐLUN
VOR 2021 13. TBL. 10. ÁRG.
Hvar sem er Hvenær sem er
Fræðslumolar Vefnámskeið Hlaðvörp
Símenntun gefur þér kost á betri tækifærum á atvinnumarkaði. IÐAN fræðslusetur býður upp á fjölda námskeiða fyrir fagfólk í iðnaði.
Vatnagarðar 20 104 Reykjavík
Sími 590 6400 idan@idan.is
www.idan.is
Efnisyfirlit Um mig Hrund Guðmundsdóttir Viðtal
Andy Warhol Ásthildur og Kristín Viðtal
Leiðari Nú líður að lokum á þessu frábæra en jafnframt krefjandi námi. Þessi tími hefur litast af fjar- og staðnámi til skiptis og þó það hafi ekki verið leiðin sem ég ímyndaði mér þá lærði ég heilmargt á því. Þetta hefði aldrei tekist án frábæra kennarateymisins sem stóð við bakið á okkur í gegnum þessa erfiðu tíma. Frá því að ég byrjaði í þessu frábæra námi hef ég fundið að þetta er eitthvað sem ég vil halda áfram að gera og jafnframt læra meira. Ég veit að þetta mun ekki vera mitt síðasta skipti á skólabekk í námi af þessum toga. Þetta tímarit er lokaverkefnið í þessu námi og fengum við að velja efnið. Ég ákvað að taka tvö ólík viðtöl, annað við frænku mína Hrund sem er grafískur hönnuður og hitt við systur mína Ásthildi og unnustu hennar Kristínu sem eru verðandi mæður. Einnig gerði ég umfjöllun um listamanninn Andy Warhol. Ég vona að þið skemmtið ykkur jafn vel að lesa tímaritið og ég gerði við að brjóta um það.
Umbrot og hönnun Vildís Inga Salbergsdóttir Hönnun forsíðu Vildís Inga Salbergsdóttir Mynd á kynningaropnu Heiða Norðkvist Halldórsdóttir Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír Innsíður 150 g/m2 Kápa 170 g/m2
Vildís Inga Salbergsdóttir Ég heiti Vildís Inga og er fædd og uppalin í Keflavík en bý núna í Hafnarfirði. Við erum fjögur á heimilinu en ásamt mér búa mamma, pabbi og kötturinn Pési. Ég á afmæli 4. maí og deili ég honum meðal annars með bresku leikkonunni Audrey Hepburn. Ég hef alltaf haft áhuga á öllu sem tengist list og útskrifaðist ég sem stúdent af myndlistarbraut úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2017. Í því námi komst ég aðeins betur að því hvað ég vildi og vildi ekki gera í tengslum við listnám. Ég fór í einn áfanga af grafískri hönnun og lærði aðeins á Adobe forritin og þar kviknaði áhuginn á því. Eftir nám fór ég að vinna í eitt og hálft ár en fann að ég þurfti að læra eitthvað meira í tengslum við grafík. Þegar ég skoðaði grafíska miðlun í Tækniskólanum tók ég ákvörðun um að þetta væri eitthvað sem ég þyrfti að prufa. Ég hef ekki séð eftir því og hef lært margt á þessum tveimur árum. Í framtíðinni myndi ég vilja fara í áframhaldandi nám eins og t.d. grafíska hönnun.
Embla | 5
Hrund ásamt nýju/gömlu Letterpress prentvélinni
Hrund Guðmundsdóttir Hrund Guðmundsdóttir er sjálfstætt starfandi hönnuður, myndskreytir og listamaður í Hveragerði. Hún útskrifaðist árið 1998 úr MHÍ, Myndlista- og handíðaskóli Íslands, sem varð svo hluti af LHÍ, Listaháskóla Íslands, við stofnun skólans árið 1999. Hrund hefur unnið sem hönnuður og hönnunarstjóri á Íslensku auglýsingastofunni og verið grafískur hönnuður á Brandenburg ásamt því að starfa sjálfstætt fyrir íslensk fyrirtæki og ensk en hún bjó í London á árunum 2001–2008.
6 | Embla
Rass
ga tí la
Ég heiti Hrund Guðmundsdóttir og ég er sjálfstætt starfandi hönnuður, myndskreytir og listamaður í blómabænum Hveragerði. Ég er eigandi hönnunar- og útgáfufyrirtækisins Klettagjá ehf., ásamt því að reka bæjarfjölmiðilinn Krummann. Áður en ég flutti til Hveragerðis bjó ég í Englandi í u.þ.b. átta ár og var næstum sest þar að til frambúðar en sé í dag ekki eftir því að hafa flutt aftur til baka. Ég á engin tengsl við Hveragerði en eftir að búa í stórborg þá kom ekkert annað til greina en að búa á stað í nálægð við náttúruna. Ég á mann, tvö börn, kött og hænu og gæti ekki verið ánægðari með staðinn sem við búum á, en ég bý í Laufskógum, undir Hamrinum í Hveragerði og með hver í bakgarðinum mínum og þaðan get ég labbað, hjólað eða skíðað út í buskann.
Ég held ég hafi alltaf haft áhuga á grafískri hönnun og þá sérstaklega auglýsingagerð. Mér fannst auglýsingarnar skemmtilegri en barnatíminn í gamla daga og mamma sagði að ég hefði aldrei misst af auglýsingunum. Ég elskaði að teikna stafi og útbúa letur og skrift og ég var alltaf teiknandi. Ásta frænka mín vann í Odda og skaffaði mér endalausan teiknipappír. Í grunnskóla var teikning og skrift það sem mér þótti skemmtilegast og verkefni þar sem ég var fengin til að gera plaköt, tilkynningar eða annað sem átti að hengja upp. Ég fór í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og var í raun alls ekki viss hvað ég vildi læra eða gera og var á náttúrufræðibraut (þá var engin listabraut þar) og hundleiddist öll stærðfræðin og eðlisfræðin og veit í raun ekki hvað ég var að pæla að hafa valið þetta. En ég hrúgaði á mig eins miklu og ég gat og síðustu tvær annirnar átti ég bara eftir stærðfræði og eitthvað smotterí en þá var loksins í boði
ba
Myndskreytingar: Hrund Guðmundsdóttir
Segðu mér aðeins frá þér
Hvenær kviknaði áhuginn á grafískri hönnun?
myndlistaáfangi í fyrsta skipti, sem ég skráði mig í og þá hreinlega breyttist allt. Kennarinn Sigríður Sigurðardóttir hvatti mig virkilega til að sækja um í fornámið í MHÍ og hjálpaði mér að útbúa möppu til að senda inn. Fornámið var frábært. Þar fékk maður að kynnast allskonar listformi og valsa um milli allra deildanna og forvitnast. Ég ætlaði mér alltaf í grafíska hönnun en fékk líka mikla hvatningu til að sækja um í málun en ég kaus frekar hagnýta myndlist og komst inn í hönnunarnámið strax næsta vetur. Hversu lengi hefur þú starfað í geiranum? Vá ég þarf alveg að telja. 24 ár, ég er sem sagt orðin ein af þessum „gömlu“ í bransanum. Ég fékk sumarvinnu á Íslensku auglýsingastofunni árið 1997. Ári seinna útskrifaðist ég úr grafískri hönnun í MHÍ og hef starfað við það allar götur síðan. Fyrst á Íslensku auglýsingastofunni, síðan sem freelance í London og svo á Brandenburg og svo í mínu eigin fyrirtæki í Hveragerði.
Mig langar að vita aðeins um prentvélina sem þú varst að kaupa Þegar Covid-19 skall á minnkaði starfshlutfallið mikið hjá mér. Fjölmörg fyrirtæki sem ég vann fyrir drógu saman seglin og sum lokuðu alveg. Þarna fékk ég tíma til að endurskoða aðeins hvað mig langar virkilega að gera en það er að fara aftur að teikna og vinna meira í höndunum. Ég er búin að vinna það sem aðrir vilja og þurfa í yfir 20 ár og nú langar mig að búa til mitt eigið efni. Þegar ég bjó í London sá ég Heidelberg Letterpress prentvél auglýsta til sölu og langaði svo að eignast hana þar sem ég hef alltaf verið skotin í þessari gömlu prenttækni, þ.e.a.s. hæðarprentun. En við vorum í svo litlu húsnæði að ég hefði aldrei komið henni fyrir en sá samt alltaf eftir að hafa sleppt boðinu. Ég vann verðlaun í samkeppni sem stelpurnar í Reykjavík Letterpress stóðu fyrir fyrir nokkrum árum um hönnun á letterpress nafnspjaldi. Ég ákvað að fyrst ég gæti gert hvað sem er, hannaði ég nafnspjald fyrir köttinn minn.
VIÐ MÚRUM MEÐ ÞÉR Við tökum að okkur • • • • • •
Flotun Flísalagnir Múrklæðningar Steining Plötusteypa/vélslípun Mynstursteypa
Komdu í heimsókn til okkar og við hjálpum þér að finna lausnina
SJÁLFBÆRNI Múrverk á Facebook
Múrverk á Instagram
Sími 421 7897
Hafravellir 5, 221 Hafnarfjörður
Þær hafa alltaf tekið svo vel á móti mér þegar ég hef heimsótt þær og eftir hverja heimsókn sá ég meira og meira eftir að hafa skilið vélina eftir í Englandi. Fyrir algjöra tilviljun sá ég þessa Heidelberg Letterpress vél auglýsta til sölu þar sem þurfti að losa húsnæði og var hún búin að standa lengi ónotuð. Ég stóðst ekki mátið og nú kúrir hún í bílskúrnum mínum, ég sem sagt pakkaði saman „heimagymminu“. Þessi vél er ótrúleg. Hún nýtist ekki bara sem prentvél heldur get ég stansað í henni ýmislegt s.s. pappaöskjur og allskonar form síðar meir. Núna vinn ég aðallega tækifæriskort í vélinni en er líka að útbúa listaverk sem verða seld í römmum í takmörkuðu upplagi. Ég teikna allt sjálf í skissubækur og svo á ipad og vinn filmurnar sjálf alltaf þegar ég get. Ég er svo í samvinnu við prentara sem er að kenna mér á vélina, tækni og viðhald, útbúa klisjur og þar með hjálpa mér að láta drauminn verða að veruleika um eigið mini-prentstúdíó. Hvernig er að vera einyrki? Það að vinna svona einn hefur bæði kosti og galla. Ég sakna mest að vera ekki í sama rými og annað skapandi fólk, velta á milli hugmyndum og fá lánuð augu og rýna verk hvert annars. Vinna
saman lúðra á ÍMARK og taka þátt í svoleiðis húllumhæ. En þegar maður vinnur svona einn verður maður líka dekraður. Það er hægt að skreppa í sund kl. 11 án þess að einhver skipti sér af því eða taka langa helgi eða vinna eldsnemma eða fram á nótt hvað sem hentar manni best. Maður er ekki fastur í sömu rútínu eins og svo margir aðrir og ef ástandið er þannig, valið sjálfur sín verkefni. Helsti ókosturinn er að þurfa að sjá um peningahliðina sem er svo allt annað en það sem skapandi heilabú vill fást við. Skrifa reikninga, skila vsk. skýrslum gera tilboð o.fl.
Ég stofnaði Klettagjá 2014 með vinkonu minni sem útgáfufyrirtæki fyrir bæjarblaðið Krummann í Hveragerði. Í dag á ég fyrirtækið með manninum mínum og hefur Krumminn hætt að koma út í prentformi en flýgur nú stafrænn. Ég vinn ýmiskonar grafíska hönnun og hef alveg síðan 2003, mest unnið fyrir lyfjafyrirtækin Alvogen, Actavis og Florealis. Umbúðir, bæklinga og hvað sem þarf að útbúa. Regluverkið í lyfjaiðnað inum er mjög strangt og hentar mér vel að vinna svona nákvæmnisvinnu. Auglýsingavinnan er ekkert eins og í gamla daga þegar maður fékk góðan tíma í hugmyndavinnu, og svo í skissuvinnu og svo var farið í að taka myndir og vinna allt efnið og tók þetta dágóðan tíma, oft nokkrar vikur kannski. Í dag er hraðinn orðinn svo mikill að allt umhverfið er breytt. Heimurinn hefur minnkað svo með tilkomu netsins að nú situr maður í smábæ á Íslandi og vinnur fyrir fyrirtæki m.a. í Englandi, Grænlandi og Noregi. Verkefnin eru mjög fjölbreytt frá því að vera ofurnákvæmnis vinna í umbroti og umbúðahönnun yfir í að myndskreyta bjórmiða eða útbúa nýtt útlit á ísbúð. Ég hef ekki útbúið ferilskrá eða auglýst mig, verkefnin koma bara til mín einhvern veginn. Einhver segir einhverjum frá því sem ég hef hannað og er það besta leiðin. Hægt er að skoða þetta helsta sem ég hef verið að útbúa á www.klettagja.is.
8 | Embla
ANDY
Warhol Mynd: Vildís Inga
byrja var hann tengdur við Nýraunsæisstefnuna, sem var hópur listamanna sem urðu þekktir í kringum 1960. Þeir byggðu listaverkin sín á hugmyndum Dadaista frá 1920, og túlkuðu verkin sín sem kaldhæðnislega andstæðu Abstrakt Expressjónisma og leit að róttækri nýrri byrjun. Eftir að hafa snúið sér að Popp-list voru hversdags efnishyggja og neytendamenningin þess virði að mála. Verk Warhol voru ýmist upphafning eða gagnrýni á amerísku dægurmenninguna, vörumerki hennar og fræga fólkinu. „Það besta við þetta land er að í Ameríku þróaðist sú hefð að þeir ríku kaupa í raun það sama og þeir fátæku. Þú til dæmis getur verið að horfa á sjónvarpið og séð kók, og þú veist að forsetinn
Texti: Vildís Inga Salbergsdóttir
Á sjöunda áratug voru Bandaríkin orðin mjög iðnaðar- og neytendavædd. Ungir listamenn svöruðu þessu með því að búa til alveg nýja listastefnu sem umturnaði myndlistarlífinu í New York og Los Angeles. 1963, eða þar um bil, varð til orðið „Popp-list“ eða „Pop Art“, fyrir þessa nýju listastefnu sem átti að endurspegla samtíma viðhorfið til lífsins. Orðið „Pop“ er stytting á orðinu , „popular“ eða „vinsæll“. Listamennirnir notuðu hversdagslega hluti og fræga fólkið sem innblástur og breyttu þeim í listaverk. Andy Warhol varð fljótt frægur og nokkurs konar miðpunktur í Popp-lista hreyfingunni. Alveg frá byrjun einkenndust listaverk hans af samsetningu kaldhæðni og hrifningu sem og fjöldaframleiðslu sem hafði verið talin ólistræn fram að þessu. Warhol gerði súpudósir og kók flöskur að stórstjörnum. Slíkt hið sama gerði hann við fræga fólkið úr kvikmyndabransanum, rokk tónlist og pólitík. Silkiþrykkin hans af Elvis Presley, Jacqueline Kennedy, Elizabeth Taylor, Marilyn Monroe og Mao Zedong urðu að ímynd tuttugustu aldar. Uppruni Andy Andy Warhol byrjaði á því að læra auglýsingalist í „School of Fine Arts“ í Pittsburgh. Eftir að hann flutti til New York vann hann sem auglýsinga listamaður. Þessi vinna átti síðar eftir að hafa mikil áhrif á alla listræna vinnu hans. Þegar Warhol var að
Andy Warhol
Mynd: Google
Embla | 9
„Að þéna peninga er list og að vinna er list og góð viðskipti er besta listin“ Andy Warhol drekkur kók, Liz Taylor drekkur kók, og þú getur einnig drukkið kók. Kók er bara kók, og engin upphæð getur gefið þér betra kók en það sem róninn á horninu er að drekka. Allt kókið er eins og allt kókið er gott.“ – Andy Warhol. Silkiþrykk Silkiþrykk er aðferðin sem Warhol er þekktastur fyrir. Hann gerði oftast margar útgáfur af sömu myndinni en engin þeirra varð eins vegna þess að hann vildi hafa þær ófullkomnar. Þegar silkiþrykk hans er skoðað þá sér maður að litirnir eru oft út fyrir „línurnar“ og hann notaði mikið af neon litum í myndirnar. Þegar hann gerði Elizabeth Taylor þá fór varaliturinn út fyrir varirnar, augnskugginn fór fyrir ofan augabrúnirnar og liturinn á hárinu er ekki alveg þekjandi á nokkrum stöðum. Þetta var hans leið til þess að fjöldaframleiða myndirnar án þess að það væri of tímafrekt. The Factory eða „Verksmiðjan“ byrjaði sem vinnustofa Warhol, sem var staður þar sem allir listamenn komu til þess að gera tilraunir í listum, m.a. tónlistarfólk. Mest bar þar á hljómsveitinni The Velvet Underground. Warhol kynnti hljómsveitina fyrir þýskfæddu söngkonunni Nico. Eftir það gaf hljómsveitin út plötu sem hét The Velvet Underground & Nico. Warhol gerði plötuumslagið sem var gulur banana límmiði sem á stóð „afhýðið rólega“. Undir límmiðanum var bleikleitur banani.
Tvöfaldi Elvis Elvis Presley var og er mjög þekkt tákn sjötta áratugarins. En í kringum sjöunda áratuginn var komin ný kynslóð af listafólki og var það farið að skyggja á frægð hans. En vegna silkiþrykkja Warhol hélt Elvis stöðu sinni sem ímynd þessa tíma. Myndina Double Elvis eða „Tvöfaldi Elvis“ gerði Warhol með því að láta sömu myndina skarast á silfurlituðum bakgrunni. Þetta átti að sýna Elvis á hreyfingu á fletinum eins og í kvikmynd. Campbell’s súpudósir Eitt vinsælasta verk Andy Warhol eru Campbell’s súpudósirnar. Verkið samanstendur af 32 handmáluðum Campbell’s súpudósum, ein dós fyrir hverja bragðtegund. Myndirnar eru málaðar með akrýlmálningu, en mynstrið sem er neðarlega í kringum dósina er stimplað. Hann hefur gert fleiri verk tengd Campbell’s súpudósum, meðal annars með silkiþrykki, en þetta er fyrsta verkið með dósunum frægu. Warhol sagði að Campbell
Portrett verk
C
am
10 | Embla
pb ell’ s sú
le
Vinsæl portrett Warhol sýna Marilyn Monroe sem fagra ímynd af popp menningunni. Goðsögn kvikmyndastjörnunnar lifir enn þann dag í dag, ekki síst eftir þessa túlkun Warhol á henni. Hann notaði silkiþrykk til þess að útsetja myndina af stjörnunni í mismunandi stærðum, óteljandi litum og gerði jafnvel samsetningar með allt að 150 myndum. Með því að gera þetta á þennan hátt vann hann alltaf með sömu myndina af Monroe, stilla úr myndinni Niagara. Þegar Monroe lést 2. ágúst 1962, sýndi Warhol fram á sorg sína með því að framleiða meira en 20 silkiþrykk myndir af henni út það ár. Eitt mest framúrskarandi verk hans er Marilyn Diptych. Helmingarnir, annar prentaður á bjart neon, hinn í svörtu bleki, eiga að tákna líf og dauða með andstæðum sínum.
pudó
s
og Go nd: y M
„Listamaður er einhver sem framleiðir hluti sem fólk þarf ekki á að halda“ Andy Warhol súpudósin hafi verið uppáhalds verkið sitt og að „Ég hefði átt að gera bara Campbell’s súpudósirnar og halda áfram að vinna með þær… vegna þess að allir gera hvort eð er bara eitt málverk.“ Verkin eftir Andy Warhol eru enn þann dag í dag Listaverk
Selt árið
Verð
1.
Silver Car Crash (Double Disaster)
2013
105.4 milljónir dollara
2.
Eight Elvises
2008
100 milljónir dollara
3.
Triple Elvis
2014
81.9 milljónir dollara
4.
Turquoise Marilyn
2007
80 milljónir dollara
5.
Green Car Crash (Green Car Burning I)
2017
71.7 milljónir dollara
Fimm dýrustu listaverk eftir Andy Warhol
Númer
þekkt um allan heim, og ættu flest allir að þekkja a.m.k. eitt verk. Þau eru alveg frá Marilyn Monroe og Elvis Presley að Campbell’s súpudósum og kók flöskum. Hann var og er enn þekktasti Popp listamaðurinn.
3. 3. júní júní 1968 1968 3. júní 1968 var Andy Warhol skotinn af Valerie Solanas, öfga femínista, á vinnustofu sinni The Factory. Hún hafði eitt sinn komið með handrit handa Warhol til að lesa. Handritið bar nafnið Up Your Ass. Honum fannst handritið vera „gróft“ og hann hélt að hún væri að vinna með lögreglunni og að þetta væri þeirra leið til þess að góma hann. Solanas byrjaði að hringja í hann og biðja um peninga þegar hann sagðist hafa týnt handritinu. Eitt af þeim skiptum þegar hún hringir bíður hann henni að vera í stuttu atriði kvikmyndinni I, a man og fá 25 dollara fyrir í stað þess að fá peninga fyrir að gera ekkert, sem hún þáði. En það var ekki nóg fyrir Solanas því skömmu síðar kom hún á vinnustofu Warhol og skaut hann og Mario Amaya, list-gagnrýnanda og særðust þeir illa. Þegar komið var á sjúkrahúsið lést Warhol í eina og hálfa mínútu en læknar náðu að bjarga lífi hans og Amaya. Um kvöldið sama dag kemur Solanas upp
að lögreglumanni og segir að hún hafi skotið Andy Warhol, vegna þess að „hann hafði svo mikla stjórn á lífi mínu“. „Ég vildi bara að hann sýndi mér athygli. Að tala við hann var eins og að tala við stól“ – Valerie Solanas. Warhol varð hræddur við dauðann eftir að hafa komist nærri honum. Hann varð varkár og var ekki sama hvaða fólk hann hafði í kringum sig og leyfði ekki lengur hverjum sem var að koma á vinnustofuna, The Factory. Hann fór ekki eins mikið út og hann hafði gert áður og hann tók lífinu með mun meiri alvöru. Hann varð hræddur við dauðann. „Allt er eins og draumur fyrir mér eftir að ég var skotinn. Mér finnst ég ekki vita hvort ég sé á lífi eða dáinn. Ég var ekki hræddur áður og eftir að hafa dáið einu sinni ætti ég ekki að finna fyrir hræðslu. En ég er hræddur. Ég skil ekki af hverju.“ – Andy Warhol.
Embla | 11
Ásthildur (hægra megin) og Kristín (vinstra megin)
Myndskreytingar: Ásthildur og Kristín
Ásthildur og Kristín Segið mér aðeins frá ykkur
Hvernig kynntust þið?
Við erum par um þrítugt (30 & 31) og erum búsettar í Reykjavík. Ég (Á) starfa sem stöðvarstjóri hjá N1 í Hafnarfirði. Ég er með BA-gráðu í mannfræði og MA-gráðu í mannauðsstjórnun. Ég er mikil útivistar- og íþróttamanneskja sem hefur áhuga á flestu. Ég (K) er sjálfstætt starfandi þýðandi. Ég er með BA-gráðu í spænsku og MA-gráðu í þýðingafræði. Ég hef áhuga á útivist, jóga og listum almennt. Við eigum það einnig sameiginlegt með mörgum að þykja óskaplega gaman af því að ferðast og höfum síðan við kynntumst ferðast mikið saman, bæði innanlands og utan. Einnig fluttum við saman til Barcelona þegar við höfðum verið saman í um fimm mánuði og bjuggum þar í átta mánuði. Það hitti svo vel á að við vorum báðar á síðustu önninni í okkar BAnámi og vildum báðar taka smá pásu til að leika okkur áður en við færum í áframhaldandi nám. Markmiðið var að finna vinnu þar úti sem gekk því miður ekki þar sem atvinnuleysi í Barcelona er og var á þessum tíma ansi mikið. Við höfðum fyrir vikið ágætan tíma til að túristast og gera skemmtilega hluti auk þess sem Ásthildur spilaði rugby og ég (K) stundaði magadans.
Við kynntumst fyrir rétt rúmum sex árum síðan í partýi hjá sameiginlegri vinkonu. Nokkrum vikum síðar hittumst við aftur fyrir tilviljun á grímuballi í Iðnó og þar byrjaði ástin að blómstra. Í kjölfarið bauð ég (Á) Kristínu á stefnumót og hlutirnir þróuðust út frá því.
12 | Embla
Hvenær tóku þið ákvörðun um að eignast barn? Við tókum lokaákvörðun á nýársdag 2018 en fyrir það höfðu barneignir verið í umræðunni um nokkurt skeið. Hvernig er ferlið búið að leggjast í ykkur? Ferlið lagðist í upphafi vel í okkur og fórum við inn í það fullar eftirvæntingar. Það hófst með viðtali í febrúar 2018, þar sem við tókum ákvörðun um að reyna glasameðferð og vorum þá settar á biðlista. Haustið 2018 fór Ásthildur í eggheimtu og við fengum í kjölfarið fimm fósturvísa. Einn af þeim var strax settur upp hjá mér (K) og hinir fóru í frysti. Þessi uppsetning leiddi til þungunar og við töldum okkur einar af þeim heppnu að þetta skyldi ganga upp í fyrstu tilraun. Raunin varð þó töluvert
TVÖFÖLD önnur því þessi þungun endaði með fósturláti á fyrsta þriðjungi meðgöngu. Í kjölfarið fór Kristín í fjórar uppsetningar í viðbót, þrjár þeirra leiddu til neikvæðs óléttuprófs og ein með öðru fósturláti á fyrsta þriðjungi. Síðasta neikvæða prófið kom í janúar 2020 og þá tókum við ákvörðun um að næst færi ég (Á) í tæknisæðingu. Fyrstu tvær tæknisæðingarnar enduðu með fósturláti á fyrsta þriðjungi. Þegar þarna var komið sögu vorum við orðnar ansi bugaðar og stefndum í raun á aðra glasafrjóvgun. Við áttum þó tvo sæðisskammta eftir og ákváðum að láta reyna á eina tæknisæðingu í viðbót, mun svartsýnni en oft áður. Okkur til mikillar ánægju gekk þessi tilraun upp og nú er ég komin átta mánuði á leið. Þetta ferli er því búið að vera ansi lærdómsríkt og strembið. Það er í raun búið að vera algjör rússíbanareið tilfinninga, sem einkennst hefur af endalausri bið. Í svona ferli er alltaf verið að bíða eftir einhverju; viðtali, uppsetningu, að fá að taka óléttupróf, að komast í snemmsónar o.s.frv. Að öll þessi bið endi svo með fósturláti getur verið ansi strembið. Því vorum við orðnar ansi vonlitlar eftir fjórða missinn, en erum ánægðar að hafa ekki gefist upp.
MÓÐURÁST
RÁÐSTEFNA
Í HÖRPU 1.–2. maí
Tvöföld móðurást er ráðstefna sem haldin er af samtökunum Samást og snýr hún að misrétti sem mæður í samkynja samböndum verða fyrir í samfélaginu. Tilgangur ráðstefnunnar er að sýna fram á misréttið sem mæður í samkynja samböndum verða fyrir og hvað væri hægt að gera til þess að koma í veg fyrir það.
Er einhver sérstök fræðsla eða ráðgjöf í boði fyrir verðandi samkynja foreldra? Nei, ekki svo við vitum til. Pör og einstaklingar sem fara í svona tæknifrjóvgunarferli hafa þó kost á því að fá viðtal við félagsráðgjafa, óháð kynhneigð. Mögulega bjóða Samtökin 78 upp á slíkt, en við höfum ekki kynnt okkur það.
Skannaðu kóðann fyrir frekari upplýsingar. Skráning á ráðstefnuna fer fram á samast.is
2 0 2 1
Hafið þið fundið fyrir fordómum sem verðandi samkynja foreldrar? Nei, ekki beint. Við höfum þó orðið varar við alls konar litla hluti sem beinast ekki að okkur persónulega en minna mann á að okkar fjölskylduform sé utan normsins. Þar á meðal má nefna foreldraskráningu í Þjóðskrá, en ég (K) þurfti að senda staðfestingu frá Livio til Þjóðskrár um að barnið hafi verið getið með gjafasæði og að við vorum saman í ferlinu. Þetta er eitthvað sem sís kynja karlmenn þurfa ekki að skila inn. Þeir eru sjálfkrafa skráðir foreldri barnsins síns eftir svona ferli, óháð því hvort sæðið hafi verið þeirra eða ekki. Þetta er svona vegna lagagerðar sem ýmsir hafa sett út á og hefur verið tekið upp á Alþingi oftar en einu sinni. Þetta er hrein og klár lagaleg mismunum sem á sér enga aðra skýringu en gamaldags fordómafull viðhorf þeirra sem ráða. Þrátt fyrir að margt heilbrigðisstarfsfólk sé vakandi fyrir ólíkum fjölskylduformum lentum við þó nokkrum sinnum í því að gert væri ráð fyrir því að við værum vinkonur eða systur þegar við komum t.d. í skoðanir þegar við vorum að missa fóstur. Þá var Kristín t.d. spurð hvort „þau“ væru líka að reyna heima þegar Ásthildur stóð við hlið hennar en margir virðast eiga erfitt með að hugsa um pör sem annað er sískynja karl og konu. Þegar við greinum frá því að við séum par verða margir mjög vandræðalegir. Einnig er fræðsluefni tengt meðgöngu oft á tíðum miðað að gagnkynja pörum og hinu gagnkynhneigða normi. Það er líka nánast undantekningarlaust gert ráð fyrir að við séum „samkynhneigt par” þegar við erum í
14 | Embla
raun „samkynja par”, en Kristín skilgreinir sig sem tvíkynhneigða. Í hugum margra virðist ekki vera annað til en gagnkynhneigð og samkynhneigð. Allt þetta er kannski ekki dæmi um beina eða meðvitaða fordóma en er vissulega dæmi um ákveðinn ósýnileika. Við höfum líka oft rekist á fordómafulla umræðu á netinu varðandi barneignir hinsegin fólks. Þar á meðal eru ýmsir sem telja að tvær konur geti ekki alið upp drengi, því þá vanti föðurímynd. Þótt svona umræða sé vissulega leiðinleg þá eru þetta vonandi viðhorf sem eru smátt og smátt að breytast með aukinni fræðslu og sýnileika. Þetta er eitthvað sem við sjálfar höfum þó engar áhyggjur af og teljum kyn foreldra skipta engu máli. Mestu máli skiptir að börn eigi í það minnsta eitt foreldri eða umönnunaraðila sem veitir þeim þá skilyrðislausu ást, stuðning og öryggi sem þau þarfnast. Hversu hæfir umönnunaraðilar eru til að veita börnum það sem þau þarfnast kemur kyni ekki á neinn hátt við. Við höfum heyrt ýmislegt um að samkynja foreldrar hafi rekist á alls kyns hluti þegar það kemur að börnum þeirra. Þá er til að mynda algengt að ekki sé gert ráð fyrir öðru á eyðublöðum en að barn eigi einn föður og eina móður og þarf þá fólk sem hefur annars konar fjölskylduform að krassa yfir hálft eyðublaðið og fylla inn í. Einnig höfum við heyrt að í einhverjum tilfellum sé það foreldri sem ekki er líffræðilega skylt barninu eða börnunum álitið á einhvern hátt minna foreldri barnanna sinna en það sem er líffræðilega skylt þeim. Þetta eru þó allt hlutir sem við höfum ekki upplifað sjálfar en erum meðvitaðar um að við gætum lent í eftir að barnið fæðist.
Þitt prent er okkar mennt
Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Forvinnslu – prentun – frágangur. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.
Skemmuvegi 4 200 Kópavogi
www.litlaprent.is litlaprent@litlaprent.is
Sími 540 1800 Fax 540 1801
Þín kjaramál eru okkar mál Kynntu þér réttindi þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar. www.grafia.is
Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
GRAFÍA
Stórhöfði 31 110 Reykjavík
Sími 552 8755 grafia@grafia.is