HULDA SÓL | HAUST 2019
GRAFÍSK MIÐLUN Fréttabréf G
RA
FÍ
SK
G
RA
FB
IÐ
LU
N
TU
LY P
Æ
M
LE
K
H
U
R
S
R
Hvað er grafísk miðlun? Grafísk miðlun á rætur sínar og forsendur í prentiðnaðinum. Um er að ræða prent smíðina með breyttum áherslum. Starfs sviðið felur í sér hönnun allra helstu tegunda prentgripa og tæknilegan frágang á þeim til útgáfu (vinnsla fyrir prentun) auk þess sem það tekur til hönnunar skjágripa. Starfsvettvangur er einkum í prent smiðjum, auglýsingastofum og við útlits hönnun fyrir sjónvarp og netmiðla. Stór hluti starfsins felst í hönnun og umbroti þar sem unnið er með myndir og texta. Grafískur miðlari þarf að kunna góð
skil á textameðferð og setningu, þekkja vel leturgerðir og stílbrigði og hafa gott vald á myndbyggingu og táknf ræði síðuhönnunar. Hann þarf að kunna reglur um íslenska greinarmerkjasetningu fyrir prentun og vera vel að sér í greinarmerkjasetningu algengra erlendra mála, svo sem ensku og dönsku. Hann þarf að kunna að ganga frá efni til prentunar, taka á móti gögnum og vinna þau áf ram til vinnslu í prentvél í samræmi við gæðakröfur í prentsmiðjum og þarf einnig að þekkja til grundvallaratriða í prentun og bókbandi.
Grafískur miðlari þarf að geta notað við eigandi hugbúnað við hönnun blaða, bóka, tímarita, umbúða, auglýsinga, auglýsinga efnis og skjámynda og geta unnið öll al geng vinnuskjöl á þessu sviði. Mikilvægt er að hann hafi góðan skilning á forsendum þess hugbúnaðar sem hann vinnur við svo hann geti auðveldlega lagað sig að nýjum og endurbættum hugbúnaði þegar þörf er á. Störf á sviði grafískrar miðlunar eru afar fjölbreytt og krefjast víðtækrar fræðilegrar og tæknilegrar þekkingar og færni. Tekið af www.tskoli.is
Að skipuleggja umbrotið Áður en umbrotsskjal er búið til verður að ákveða skorna stærð verksins. Það getur jafnvel verið gott að ákveða þykkt (síðu fjölda) og pappírstegund, því hvorttveggja hefur áhrif á kjalbredd prentgripsins og ræður einhverju um liti í hönnuninni. Bók band hefur einnig sitt að segja í umbrotinu, m.a. getur það ráðið því hvernig leggja á myndir yfir innri spássíu. Gott er að gera útlitsteikningu (með síðuskissum) til að auðvelda skipulagninguna. Á þessu stigi er einnig mikilvægt að velja tegund og fjölda lita, t.d. einn lit, fjórlit eða sérliti. Í sumum tilfellum getur umbrotsmaður einnig þurft að vita hvernig síðurnar koma
2 |
til með að raðast á prentörkina. Þá má útvega sér brotsýni (dummy) hjá prentsmiðjunni sem sýnir hvaða síður munu prentast saman. Þetta getur t.d. komið að gagni við að skipu leggja notkun á sérlitum, en einnig til að geta rætt hvernig setja á saman skammt af síðum handa prentsmiðjunni ef ekki ert hægt að senda allt efnið í einu. Á brotsýninu sést líka hvar tveggja blaða og miðopnur myndast í prentgripnum.
Sniðmát Týpógrafískar stillingar fyrir efnisgreinar (málsgreinar) eða einstök tákn má vista sem efnisgreina- og táknsnið (Paragraph- og Character Styles). Þau má síðan nota á aðra
textabúta sem eiga að fá sömu stillingar. Ef efnisgreina- eða táknsniðum er breytt, gildir þessi breyting fyrir alla þá staði í textanum þar sem þessi snið voru notuð. Litablöndur er hægt að vista sem almenn snið, eða þá litaprufur, sem má beita á síðu þætti og breyta á sama hátt og efnisgreinaog táknsniðum er breytt fyrir texta. InDesign býður einnig upp á síðuþátta sniðmát (Object Styles) sem í má geyma allar stillingar fyrir ramma, t.d. rammastrik, gegnsæi, skugga og innfellingar ými. Þessu sniðu má svo beita á aðra ramma og breyta þeim miðlægt á sama hátt og efnisgreina sniði fyrir texta. Grafísk miðlun, bls. 197–198
Ekki nota allar leturgerðirnar þínar í sama verkið Ef þú notar of margar leturgerðir í sama verkið er hætta á því að það sem þú vilt koma til skila týnist. Í hverri leturgerð er leturfjölskylda og algengast er að hún samanstandi af regular, bold, italic og bold italic. Til eru stærri leturfjölskyldur eins og Helvetica eða Universe en þær inni halda útfærslur eins og condensed, thin, light, black, ultra black og fleira. Ef ein tegund er notuð eru fyrirsagnir og millifyrirsagnir úr leturfjölskyldunni eins og Bold og áherslur í texta Italic. Það er í lagi að nota eina leturgerð í fyrir sagnir og aðra í meginmál og má þá velja steinskrift í fyrirsagnir en alltaf þarf að velja þverendaletur í meginmál. Hægt er svo að endurtaka leturgerðina í fyrirsögninni aftur í millifyrirsagnir.
Stærð og gerð leturs Letur hefur verið flokkað í nokkra flokka eins og áður hefur komið fram en stein skrift (San serif ) og þverendaletur (Serif, Antiqua, Roman) eru þau letur sem notuð eru í meginmáltexta. Steinskrif er aldrei valin í langan texta þar sem hún er ekki eins læsileg og þverendaletur. Það myndar betri myndir af orðunum og flýtir fyrir lestri og það ætti alltaf að vera markmið
Arial - steinskrift
Þegar unnið er að framsetningu upplýs inga þarf að huga að ýmsu og eitt það mikilvægasta er textinn. Hann þarf að vera þægilegur aflestrar, stærðin á honum þarf að passa efninu, ákveða þarf hversu breiðir textadálkarnir eru og hvernig þeir eru jafnaðir.
Times - þverendaletur
Letur
að lesa og fer oftar línuvillt. Ef þú ert að lesa þennan texta í tölvu, prufaðu þá að stækka skjalið á skjánum og þú finnur strax hvernig hægist á lestrinum. Samræmi milli breiddar á dálkum og stærð á letri skiptir einnig miklu máli svo ekki myndist göt í texta. Ef valið er 10pt letur þarf línan að vera um 8–10 cm. Eftir því sem letrið stækkar lengist línan og svo öfugt.
Dálkabreidd stýrist af ýmsu hönnuðarins að auðvelda lestur. Þverenda letur er letur eins og Times letrið og steinskrift eins og Arial. Bæði steinskrift og þverendaletur eru notuð í veggspjöld, auglýsingar, í minni bæklinga og jafnvel ársskýrslur en í bækur með miklum texta verður að velja þverendaletur. Punktar eða pt eru mælieining fyrir stærð leturs. Þegar stærð leturs er valin þarf að gera sér grein fyrir hver er að fara að lesa upplýsingarnar og hversu áhugaverðar þær eru. Velja þarf stærra letur fyrir börn en fullorðna og fer stærðin eftir lestrargetu. Börn sem eru að byrja að læra að lesa þurfa letur allt að 36pt en allt niður í 12pt fyrir 12 ára. Þegar fólk hefur náð góðum tökum á lestri er algengast að nota 8–12pt letur en það fer alveg eftir gerð letursins. Letur getur verið stórgert eða smágert og þess vegna þarf alltaf að gera leturprufur þegar unnið er með texta. Leturprufur eru gerðar þannig að layout prentgripsins er ákveðið og síðan er textanum rennt inn í það. Leturgerð er valin á textann og prentað út. Þannig þjálfast hönnuðurinn í að þekkja leturgerðir og hvernig þær haga sér í texta.
Leturfótur eða línubil Leturfótur eða línubil í meginmáli ætti að vera 2–3 punktum stærra en letrið. Ef letrið er t.d. 10pt að stærð ætti leturfótur að vera 12–13pt í bókum. Hægt er að leyfa sér meira línubil þegar unnið er með stærra letur eins og í auglýsingu eða á veggspjaldi. Ef of þröngt er á milli lína í miklum texta er erfitt að lesa en það á líka við um of mikið línubil. Viðmiðunarregla er að ef þú ert með 10p letur þá á að vera á minnst 12p fótur (línubil-leading). Ef línubilið verður of mikið fer textinn að detta í sundur og hættir að mynda heild. Leturlínan (breidd textaboxins) tekur líka mið af stærð letursins. Breidd á textadálki ætti aldrei að vera meiri en svona 12 sm eða 65 slög (stafir og bil í línu) en það fer svolítið eftir stærð letursins. Ef hann er breiðari þarf sá sem les að færa höfuðið fram og til baka við lestur og veldur því að sá hinn sami verður fyrr þreyttur
Textaflöturinn eða dálkurinn er fyrst og fremst háður stærð prentflatarins. Dálka breidd ætti aldrei að vera minni en um 5 sm en dálkar í fréttablöðum eru 4,7 sm og leturstærð er um 10pt. Samræmi milli breiddar á dálkum og stærð á letri skiptir miklu máli svo ekki myndist göt í texta. Stór göt niður heilan textaflöt eru kölluð „á“ enda myndast oft form sem hægt er að fylgja niður allan dálkinn eins og á. Bæði ár og mikið af orðskiptingum eru merki þess að dálkurinn sé of mjór miðað við stærð leturs. Þá er hægt að breyta annaðhvort stærð leturs eða breidd dálksins. Ef orð skiptast á milli lína oftar en 3svar í röð er það merki um slæmt samræmi í leturstærð og dálkabreidd. Einnig þarf að passa upp á orðskiptingar. Til eru forrit sem passa upp á þetta en hafa þarf í huga að þau eru ekki fullkomin svo alltaf þarf að lesa yfir og sjá hvort orðum er rétt skipt.
Mikilvægir punktar þegar unnið er með letur › Læsileiki leturs byggist á leturgerð og leturstærð. › Hæfileg notkun lofts getur lyft undir útlitshönnunina en loft í óhófi getur orðið til þess að efnishlutar týnist eða verði munaðarlausir (virðist án tengsla við efnið). › Hæfileg notkun áhrifavalda er ætlað að undirstrika efni og efnisþætti. Óhófleg notkun áhrifavalda getur skapað sóðalegt útlit. › Vandvirkni í uppsetningu er stórt atriði. Huga skal vel að dálkabreidd, orðabilum, skipting orða milli lína og áherslum. › Góð aðgæsla smáatriða skiptir miklu máli. Huga skal að samræmi í bilum, að lesmálslínur standist á yfir síðu og opnu og samspil sé á milli mynda og fyrirsagna. › Fagmennska í vinnubrögðum. Þegar alls þessa er gætt ætti fagmennska að skína af verkinu þegar því er lokið.
Tekið saman af Brynhildi Björnsdóttur
| 3
Rafbækur „Rafbók er efni á stafrænu formi sem myndar heild og er ætlað að miðla upp lýsingum með texta, táknum og myndum.“ Rafbók nær því yfir mjög vítt svið skjala á tölvutæku formi. Rafbækur geta til dæmis verið textaskrá (txt), ritvinnsluskjal (doc) eða vefsíða (html). Algengt er að skilgreining á rafbók sé þrengri, til dæmis sem stafræn eftirmynd af útgefinni prentaðri bók. Sú skilgreining er að vissu leyti hamlandi eða villandi. Hugtakið lófabók er þrengri skilgreining en hugtakið rafbók. Lófabækur geta til dæmis verið á ePUB, Kindle eða sem bóka forrit (BookApp). Þessar gerðir eiga það sameiginlegt að aðlaga sig að því tæki og lestrarforriti sem bókin er lesin í. Sumar gerðir bjóða lesandanum til dæmis að breyta stærð, gerð eða lit texta, aðrar innihalda myndir og sumar bjóða upp á margmiðlun og gagnvirkni. Þetta gerir lófabækur mun aðgengilegri fyrir lesendur með ólíkar þarfir og hentar lestri á ólíkum og misstórum tækjum. Allir rafbókalesarar gera ráð fyrir lófabókum sem aðal rafbókaforminu.
Hver er munurinn á rafbók og lófabók? Allar lófabækur eru rafbækur. Allar raf bækur eru hins vegar ekki lófabækur. Hug takið lófabók nær aðeins yfir þær rafbækur sem hannaðar eru til þess að vera lesnar í smáum tækjum eða í rafbókaforritum. Lófabækur eru ekki fastmótaðar heldur er uppbygging þeirra hönnuð til þess að laga sig að því tæki sem notað er til lestursins.
Hver er munurinn á prentaðri bók og lófabók? Prentaðar bækur eru hannaðar þannig að þær notast við ákveðið letur, blaðsíðustærð, línubil, lit og fleira. Þar stjórnar útgefandi eða höfundur staðsetningu texta, máls greina og mynda nákvæmlega. Lófabækur eru hannaðar þannig að hægt sé að lesa þær í tækjum sem eru af öllum stærðum og gerðum. Það eru engar „blaðsíður“ í lófabókum. Lófabókin gefur lesandanum vald að lesa eins og hann vill með þeirri textastærð sem honum þykir þægilegust og hann getur oft breytt leturgerð og lit texta
eða „pappírsins“. Það gefur lesandanum kost á að njóta efnisins án þess að láta um búðirnar trufla sig. Rafbókin á ekki eftir að líta eins út í öllum tækjum. Lesendur vilja orð höfunda og hugmyndir, ekki útlitið á þeim. Tekið af www.emma.is
Glyphs
Euroskills
Fontur inniheldur venjulega miklu fleiri stafi en þá sem sjálst á lyklaborði tölvunnar. Til að komast að þessum „földu“ stafaaf brigðum og rittáknum má halda niðri mis munandi lyklasamstæðum á lyklaborðinu, t.d. alt + einhver bókstafur. Það getur verið erfitt að festa sér þessar samsetningar í minni. Nokkrar hjálparleiðir eru til að finna falin tákn. Þegar um er að ræða táknfonta sem innihalda enga venjulega bókstafi eru þessar leiðir óhjákvæmilegar til að finna rétt tákn. Í Adobe InDesign má finna gluggann glyphs sem gefur góða yfirsýn yfir öll þau tákn sem fontur hefur að geyma. Þessi gluggi sýnir einnig sérstakar aðgerðir í OpenType-fontum þar sem sækja má ýmis tákn og samsteypur (e. ligatures). Adobe InDesign býður þar að auki upp á eigin aðgerð type » insert special character, til að bæta t.d. höfundarréttar tákninu eða föstum stafabilum inn í textann.
Keppt er í iðn- og verkgreinum í al þjóðlegu keppnunum, Worldskills og Euroskills. Ísland tekur þátt í Euroskills sem haldið er á tveggja ára fresti. Árið 2020 verður keppnin haldin í Austurríki. Íslandsmót iðngreina er einnig haldið annað hvert ár, árið á móti Euroskills keppninni.
Grafísk miðlun, bls. 206
4 |
Haraldur Örn
Laufey Dröfn
Axel Fannar
Ísland hefur þrívegis sent keppendur í grafíski miðlun á Euroskills: › Laufey Dröfn Matthíasdóttir keppti í Leipsig í Þýskalandi árið 2013 › Axel Fannar Friðriksson keppti árið 2016 í Gautaborg í Svíþjóð. › Haraldur Örn Haraldsson keppti árið 2018 í Búdapest í Ungverjalandi. Sjá má myndir frá keppnunum á heimasíðu Verkiðnar www.verkidn.is. Helga Tómasdóttir