Skip to main content

Embla - Sara Kristín Sigurðardóttir

Page 1

EMBLA 4. tbl. 12. árg. Grafísk miðlun haust 2023

| Heilsa| Líkamsrækt| Mataræði |


Margir möguleikar í framtíðinni

Raunfærnimat Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein. Að loknu raunfærnimati er hægt að halda áfram námi og ljúka sveinsprófi.

Vatnagarðar 20 • 104 Reykjavík • S: 590 6400 • idan@idan.is • www.idan.is


4.

Efnisyfirlit Um mig 4 Heilsa 6 Líkamsrækt 8 Mataræði 10 Fæðubótarefni 12 Fiskur 13 Svaladrykkir 8

6.

10.

Ritstjórn, skrif, umbrot og hönnun Sara Kristín Sigurðardóttir

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prófarkalesari Bryndís Jóna Sigurðardóttir

Leiðari Embla er einstaklingsverkefni sem hver og einn nemandi hannar sitt eigið tímarit sem verður að einu stóru sem heitir Askur. Þetta verkefni var mjög stórt og mikið en mjög skemmtilegt á lokametrunum í náminu mínu. Fjórða tölublað Emblu er komið út og er fullt af áhugaverðu efni. Embla er „lífsstílstímarit“ sem fjallar um mig, heilsu, líkamsrækt og mataræði og segi ýtarlega frá því og vona að fólk hafi gaman af tímaritinu mínu. Takk fyrir mig.

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 light - 9/13 Univers 55 roman - 9/13 Univers 65 bold - 9/13

Pappír Innsíður Digi Finesse silk 130 gr. Kápa Digi Finesse silk 170 gr. Forsíðumynd Unsplash


Um mig Sara Kristín Sigurðardóttir Ég heiti Sara Kristín Sigurðardóttir og er 35 ára gömul. Til fimm ára aldurs bjó ég í Reykjavík en flutti þá í Garðabæinn þar sem ég bjó til ársins 2018 en þá flutti ég í Kópavoginn þar sem ég bý enn í dag. Ég byrjaði í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2004 og útskrifaðist þaðan árið 2011 en á þeim tíma vann ég öll sumur í Kjötsmiðjunni sem er fyrirtæki í eigu foreldra minna. Eftir útskrift fór ég í 100% starf þar. Janúar 2022 komst ég inn í Upplýsingatækniskólann og fór á braut sem heitir grunnnám upplýsinga og fjölmiðlagreina. Sú braut er undirbúningsbraut fyrir sérsvið sem tók tvær annir að klára. Eftir það komst ég svo inn á sérsviðið í grafískri miðlun og er að klára það núna í desember 2023. Eftir námið ætla ég að fara að vinna aftur 100% starf í Kjötsmiðjunni í pökkun. Til stendur að fara í útskriftarferð með foreldrum mínum til Orlando sem er í Flórida í byrjun næsta árs. Í mars á næsta ári ætla ég að sækja um ljósmyndun sem byrjar næsta haust.


Heilsa Við vitum öll að hrey­fing er öflugt vopn gegn strei­tu. Hins vegar getur of mikil hreyf­ing valdið líkam­legu álagi, svo aðrir þættir, svo sem næg hvíld, svefn og næring hafa mikilvægt hlutverki við að draga úr álagi við þátttöku í keppnisíþróttum eða kröftugri hreyfingu. Menningar­ saga vesturlanda­ búa sýnir sama viðhorf, þó hún byggi á þekkingu og reynslu eldri kynslóða fremur en nýlegum vísindum. Með því sem líf okkar verður ein­fal­dara, verða þessar almennar staðreyndir augljósari. Að afla tekna verður auðveldara með hverjum degi og krefst minni undirbúnings. Með lélegri næringu, lítilli hreyfingu og þyngdaraukningu þá versnar heilsa bæði líkamlega og andlega. En hvernig er hægt að ná nægilegri hreyfingu? Mælt er með kröftugri hreyfingu í 20–30 mínútur 2x á viku. Þetta er hámarks- og hæfilegurtáknrænn hæfileiki til að endurnýja úthald, styrk, sveiflu, samhæfingu og beinreka.


Ekki setja óþarfa rusl í líkamann sem ekki gagnast við æfingar, keppni eða endurhæfingu. Markmið góðrar næringar er að tryggja að líkaminn hafi nægan orku fyrir hreyfingu, leiki og aukaæfingar. Einnig er mikilvægt að passa að endurhæfa sig eftir allt álagið. Notaðu þjónustu sem er í boði t.d. íþróttafélaginu, þjónustumiðstöðvunum og heilsugæslum.

SPORT ER STÍLL ALLRA

Sportstíll er glæný íþróttavöruverslun sem opnaði í Ármúla 18, þann 16. maí síðastliðnum. Við bjóðum upp á frábærar vörur á frábæru verði. Við erum með merki eins og Adidas, Nike, Under Armour og fleiri. Við sérhæfum okkur í boltaíþróttum. Ármúli 18 | 104 Reykjavík | 567 8888 | sportstíll.is sportstill@sportstíll.is


Líkamsrækt Líkamsrækt er líkamleg virkni sem felst í mismunandi athöfnum til að stuðla að aukinni líkamsstyrk, þol, heilsu og hreysti. Þetta byggir á mismunandi hreyfingu, æfingum og íþróttum. Hreyfing er yfirleitt skilgreind sem allar starfsemi sem krefjast virkni vöðva og auka orkunotkun líkamans umfram hvíldar­stig. Hrey­­f­­ing er einnig hægt að skil­­­greina út frá fjórum at­­riðum: erf­i­ði (hversu er­fið), tími (hversu lengi), tíðni (hversu oft) og teg­­und (hvaða hreyfingu er um að ræða). Streita er að fullorðnir ættu að stunda mið­lungs erfiða hreyfingu daglega og börn ættu að stunda miðlungs og erfiða hreyfingu dagl­­ega. Fullorðnir ættu að stunda erfiða hreyfingu að minnsta kosti tvisvar í viku og í 20–30 mínútur í einu. Hreyf­ing getur minnkað líkur á mörgum lang­ varandi sjúkdómum og sjúk­­dómum sem teng­ jast lífs­­stíl. Hér má nefna hjarta­­sjúkdóma, off­ itu, sykursýki 2 og þunglyndi. Það minnkar líka líkur á heilablæðingum, ristilkrabbameini og brjóstakrabbameini. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á stoðkerfið og andlega heilsu. Hollt, fjölbreytt og gott mataræði er nauðsynlegt fyrir okkur öllum, en þarfir okkar eru misjafnar og allir þurfa að aðlagast þeim. Heilbrigður matur stuðlar að vellíðan, minnkar mörg heilsuvandamál og fyrirbyggir aðra. Hægt er að sækja um styrki fyrir líkamsræktarkorti í gegnum stéttarfélagið sem viðkomandi er í.


Mataræði „Hollt, fjölbreytt og gott mataræði er nauðsynlegt fyrir okkur öll, en þarfir okkar eru misjafnar og allir þurfa að aðlagast þeim. Heilbrigður matur stuðlar að vellíðan, minnkar mörg heilsu vandamál og fyrirbyggir aðra. Mataræðið ætti að samsetjast úr þremur jöfnum hlutum. Einn þriðjungur matarins ætti að vera kolvetni, svo sem kartöflur, pasta, hrísgrjón og gróft brauð. Annar þriðjungur ætti að vera prótein, til dæmis fiskur, kjöt, egg, baunir og mjólkurafurðir. Síðasti þriðjungurinn ætti að vera grænmeti og ávextir. Athugið að skammturinn á ekki að vera stærri en dagleg orkuþörf.

Mjúk fita ætti að vera notað í stað harðar fitu við matargerð og saltið ætti að vera notað í hóflegu magni. Þau matvæli sem hægt er að kaupa tilbúin til neyslu eiga það til að innihalda of mikið salt. Sykur er flokkur af kolvetnum. Það er mælt með að hann sé ekki meira en 10% af mataræðinu. Því meira sem er neytt af sætindum því meira kallar líkaminn á slíkt. Því er gott að hafa ekki of mikið af þeim freistingum á heimilinu, heldur grípa frekar í grænmeti og ávexti. Mælt er með að borða a.m.k. fimm skammta af þeim á dag, og einn skammtur er jafngildur einum meðalstórum ávexti, eins og til dæmis pera eða epli.“

„Hollt og gott mataræði“


Æfingaprógramm

ÆFING

MAGN

TÍMI

DAGUR

Armbeygja

20

10 mín.

mánudagur

Framstig

15

5 mín.

þriðjudagur

Mjaðmalyfta

25

20 mín.

miðvikudagur

Hliðarplanki

10

15 mín.

fimmtudagur

Hnélyfta

20

10 mín.

föstudagur

Tvíhöfði

10

5 mín.

laugardagur

Þríhöfði

30

25 mín.

sunnudagur

Fæðubótarefni Það er oftast engin þörf hjá okkur fyrir fæðubótarefnum, en vegna þess hversu lítið sólarljós er hjá okkur á veturna á Íslandi, þá er D. vítamín skortur hjá mörgum. Því er ráðlagt að bæta því við sérstaklega eins og með lýsi og drekka mjólk. Ef einstaklingur er á sérstöku mataræði, er gott að fá ráðleggingar frá lækni um hvort fæðubótarefni séu skynsamleg eða nauðsynleg.


10% af allri

Fiskur Það er vitað að hollt mataræði minnkar líkur á sjúkdómum, sérstaklega langvarandi sjúkdómum eins og hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki 2 og offitu. Fiskur inniheldur mikilvæg prótein, vítamín D og fitusýrum Omega 3 sem líkaminn þarf. Fiskneysla hefur minnkað á Íslandi miðað við áður, en ráðlagt er að borða fisk a.m.k. tvisvar í viku. Flestar fiskbúðir bjóða upp á tilbúna fiskrétti sem þarf aðeins að setja í ofn, sem er góður og fljótlegur kostur til að bæta fiski í mataræðið.

prentþjónustu

Ný alhliða

prentþjónusta


Svaladrykkir Vatn er sá allra besti drykkur sem er hægt að fá sér til að stilla þorsta. Mælt er með því að drekka allt að tvo lítra á dag og enn meira við mikið vökvatap eins og til dæmis í þegar er verið að stunda líkamsrækt. Gosdrykkir og koffíndrykkir eru mjög vinsælir hér á landi og en þeir innihalda mikið magn af hitaeiningum og gervisætu. Drykkirnir hafa örvandi áhrif á líkamann, eins og aukinn blóðþrýstingur, svo því er nauðsynlegt að takmarka neyslu þeirra. Góður punktur að nefna að orkudrykkir eru ekki leyfðir fyrir börn yngri en 15 ára.


FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

Prent fyrir alla, alltaf, allstaðar

Prentun er okkar fag. Hjá Litlaprenti starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun til margra ára. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki.

Svansvottun

Hafðu

samband.

Skemmuvegi 4 • 200 Kópavogi • 540 1800 litlaprent@litlaprent.is • www.litlaprent.is


KJARAMÁL LÍFEYRISMÁL SJÚKRASJÓÐUR

ERT ÞÚ Í RÉTTA STÉTTARFÉLAGINU?

FRÆÐSLUSTYRKIR

Hafðu samband.

ORLOFSSJÓÐUR

Stórhöfða 31, 3. hæð |110 Reykjavík | Sími 552 8755 | Fax 562 3188 | www.grafia.is | grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Sara Kristín Sigurðardóttir by Tækniskólinn - Issuu