Skip to main content

Embla - Laura Daniela Cano Hurtado

Page 1

Grafísk miðlun 6. tbl. 10. árg.

Haust 2021

E M B L A EMBLA

1


Námskeið og fræðsla Við hjálpum þér að vera besta útgáfan af sjálfum þér.

Námskeið Námssamningur Endurmenntun Fræðslusetur Raunfærnimat Fyrirtækjaþjónusta Hæfnismat Fræðsla

Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | idan@idan.is | www.idan.is


Kynning 05 Gleði í eldhúsinu 06 Ímyndir 08 Latin heimurinn 10 Kólumbísk kaffi 12 Til þín 14

Leiðari Þá er komið að lokum þessa ævintýris. Þetta er búið að vera mjög krefjandi ferðalag en á sama tíma mjög skemmtilegt. Embla er án efa stærsta verkefnið okkar til þessa og með Ask þar sem við fáum að hanna þessa fallegu tímarit sem ég vona innilega að þið njótið að lesa. Efnistök blaðsins eru fyrst og fremst gleði í eldhúsinu með tengdamóður minni Guðrúnu Hrund Sigurðardóttur sem var algjör sælkerakokkur. Ég deili með ykkur tveimur af uppáhalds réttunum mínum frá henni. Næst mun ég greina frá viðtali sem ég tók við listakonuna Guðrún Hrund var. Þá greini ég frá viðtali sem ég tók við tónlistarmann sem segir okkur frá suðuramerískri tónlist. Jafnframt mun ég gleðja ykkur með kólumbísku kaffi. Loks mun ég ljúka blaðinu með minningarorðum umtengdamömmu mína sem lést 3 september sl. Ég vil þakka öllum frábæru kennurum mínum fyrir góða leiðsögn í gegnum námið án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika. Með þakklæti Laura Daniela Hurtado

Umbrot og hönnun Laura Daniela Hurtado Hönnun forsíðu Laura Daniela Hurtado Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír UPM digi 150 g/ m² UPM digi 250 g/ m²


4 EMBLA


LAURA DANIELA

Y N N I N G

Nokkrum dögum eftir komu okkar í Fossvog, þar sem okkar nýja heimilið yrði, fór ég í Fossvogsskóla þar sem börnin og kennararnir tóku á móti mér með mikilli ást og væntumþykju. Það var mjög erfitt að geta hvorki skilið þau né tjáð mig en það kom ekki í veg fyrir að ég lærði tungumálið. Það var erfitt en án efa hef ég lært það með mikilli virðingu og þakklæti í garð íslensku þjóðarinnar.

Réttarsholtskóli, Menntaskólinn í Kópavogi og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ hafa verið mitt skólaferðalag þar sem ég hef lært mikið af dvöl minni í hverjum og einum skóla. Ég var mjög óákveðin í hvað ég vildi læra en vildi þó gera eitthvað þar sem ég gæti nýtt hugmyndir mínar og sköpunargáfu. Ég hóf því nám við Tækniskólann vorið 2020. Í náminu lærði ég grunninn að grafískri miðlun, m.a. uppsetningu texta, myndvinnslu, týpógrafíu og hönnun. Allt er þetta kunnátta sem ég veit að mun nýtast mér vel í áframhaldandi námi og starfi síðar meir. Nú er náminu mínu að ljúka og nýir tímar taka við og er ég tilbúin fyrir allt sem koma skal.

Ljósmynd: unsplash.com

K

Ég heiti Laura Daniela Hurtado og ég er stoltur Kólumbíumaður sem fæddist í Calí, höfuðborg salsadansins. Ellefu ára gömul flutti ég til Íslands með fjölskyldu minni, móður minni og bróður. Þökk sé verkefni Rauða kross Íslands sem gaf okkur tækifæri til að flytja til þessarar fallegu eyju. Það eru 14 ár síðan ég steig fyrst á land á Íslandi og síðan þá hef ég áttað mig á því hversu dýrmæt menning okkar í Suður-Ameríku er. Maturinn, tónlistin, listin, fólkið, veðrið og síðast en ekki síst tungumálið.

EMBLA

5


Gleði í eldhúsinu Guðrún Hrund Sigurðardóttir var fyrrverandi ritstjóri Gestgjafans, Eldhúsið var einn af uppáhaldsstöðum hennar. Hún var mikill kokkur og sælkeri og það var heiður að vera hluti af mörgum stundum okkar saman í eldhúsinu þar sem við ræddum saman um kólumbískan mat og allskonar gúrme. Hér deili ég með ykkur tveimur uppskriftum hennar sem voru mínar uppáhalds.

Grænmetisbaka Hráefni smjördeig, 4 plötur (Findus) olía 1 tsk. oreganó meðalstór sæt kartafla, skræld og skorin í bita 1–2 hvítlauksgeirar, saxaðir 1 askja sveppir, saxaðir 1 askja spínat, saxað 2 dl fetaostur í kryddlegi rifinn parmesanostur 4 egg 2 dl rjómi basilíka, söxuð, má sleppa salt pipar

Leiðbeiningar Fletjið deigið út þar til það er hæfilega þunnt og leggið í smurt bökuform og stráið oreganó yfir. Penslið kantana með olíu. Sjóðið kartöflurnar í 5 mín. Hellið þá vatninu af og setjið kartöflurnar i skál. Hitið olíu á pönnu og steikið sveppi og hvítlauk í nokkrar mínútur eða þar til sveppirnir eru farnir að brúnast. Takið þá af pönnunni og setjið í skálina ásamt kartöflunum. Steikið spínat á sömu pönnu í nokkrar mínútur og bætið síðan út í sveppablönduna. Saltið og piprið. Hellið blöndunni í bökubotninn og dreifið fetaosti yfir ásamt rifnum parmesan. Þeytið saman egg og rjóma. Kryddið með salti og pipar. Hellið blöndunni yfir bökuna og stráið rifnum parmesanosti yfir ásamt basilíku. Bakið við 180°C í u.þ.b. 30 mínútur. Berið fram með salati 1 tsk. óreganó

Texti og ljósmyndir: Laura Daniela Hurtado


Saltfiskur með sítrónusósu Hráefni 1 kg saltfiskur, hnakkastykki 2 sítrónur, skornar í sneiðar olía 1 laukur 1½–2 dl hvítvín pipar salt steinselja, til skrauts

Leiðbeiningar Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn í nokkrar mín. Eða þar til hann er farinn að brúnast örlítið. Leggið sítrónusneiðarnar á botninn á eldföstu móti. Raðið fiskbitunum ofan á og dreifið síðan lauknum yfir fiskinn. Hellið hvítvíni yfir og saltið og piprið eftir smekk. Bakið við 180°C í u.þ.b. 15 mín. eða þar til fiskurinn er eldaður. Skreytið með steinselju og berið fram með ofnsteiktum kartöflum.

Hárvörur Húðvörur Förðun Allt á einum stað Opið alla daga kl. 11–18 Strandgata 32 í Hafnafirði 830 3344 | www.glowup.is

@glowupverslun @glowupverslun


Ljósmynd: Georg Kr. Lárusson

Guðrún Hrund Sigurðardóttir Guðrún Hrund Sigurðardóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1981 og kennaraprófi frá textíldeild KHÍ 1985. Þá útskrifaðist hún sem fatahönnuður frá Københavns mode- og design skole 1989. Hún starfaði sem fatahönnuður og kennari árin 1989–1999 en á árunum 1999–2012 var Guðrún Hrund blaðamaður, stílisti og síðar ritstjóri tímaritsins Gestgjafans. Hún þótti einstakur samstarfsmaður og naut vinsælda. Guðrún átti sér alltaf draum um að mennta sig í fatahönnun en tók textílkennaraprófið fyrst til að undirbúa sig vel. Hún fór síðan til Danmerkur þar sem hún lærði fatahönnunina. Hún kom heim úr því námi 1989. Allan tímann var málaralistin hluti af lífi Guðrúnar og seinni ár tók sá þáttur yfir. Hún lék sér alltaf með vatnsliti, krít, akrýl og olíuliti. Guðrún leitaði víða fanga í list sinni en mest í íslenskri náttúru. „Nú mála ég helst minningar um landslag og kalla myndir mínar. ÍMYNDIR því ég er að fást við ímyndað landslag.“ sagði Guðrún.

8 EMBLA

Myndirnar sem hún málaði sýndu vel hvernig hægt er að ímynda sér íslenskt landslag með fallegum hætti. Hún hafði mjög fallega sýn á allt og í myndunum hennar endurspeglast það mjög vel. Það er friður, ró, en það er líka smá ótti, angist og dulúð en allt endurspeglar það hvernig lífið er. Augnablikin sem við lifum á hverjum degi. Suma daga skin sól og aðra er skýjað. Í hvert skipti sem ég og Guðrún töluðum um list lagði ég vel við hlustir. Hún var alltaf svo elegant að það var ekkert annað hægt en að horfa á hana og hlusta. Mjúka röddin hennar yfirfærði mig einfaldlega inn í málverkin hennar. Ég get sagt það með sanni að oft þegar ég horfði á málverkin hennar náði hún að taka mig aftur heim til Kólumbíu sem var mjög dýrmætt. Þannig gat ég ímyndað mér fallega landið mitt í gegnum fallegu málverkin hennar. Síðustu árin var Guðrún með málverk sín til sölu og sýnis m.a. í Gallerý Grástein og Art67 í miðbæ Reykjavíkur. Þar naut hún hylli og þá sérstaklega hjá ferðamönnum þar sem hún þótti fanga anda íslensks landslags vel. Guðrún var tengdamóðir mín sem ég elskaði heitt. Með henni eyddi ég dýrmætum tíma. Við hana var hægt að ræða um allt sem tengdist hönnun og list, en hún var sannur listamaður. Guðrún lést eftir margra ára baráttu við krabbamein í september síðastliðnum.


ÍMYNDIR

„Íslenskt landslag og íslensk birta heilla mig, hálendið, þokan og dulúin.“

Texti og ljósmyndir: Laura Daniela Hurtado

„Í myndum mínum reyni ég að fanga þetta andrúmsloft þannig að hver og einn áhorfandi geti notið þess og upplifað á persónulegan hátt.


LATIN HEIMURINN Hvernig kviknaði ástríða þín fyrir suður-amerískri tónlist?

Tómas Dan Jónsson er 35 ára gítarleikari frá Íslandi og Belgíu. Hann hefur búið víðs vegar um heiminn og hafa ferðalög hans mótað hann sem hljóðfæraleikara. Síðustu fimmtán ár eða svo hefur svo latin heimurinn á hug hans og hjarta og hefur hann leitast við að kynna Íslendingum tónlist þeirra. Meðal verk efna sem hann hefur tekið þátt í má nefna Mi Gente, sem var latin tríó skipað, Juan Borges (Kúba) og Margréti Rán. Einnig hefur hann tekið þátt í ýmsum tónleikum þar sem Dagur hinna dauðu er heiðraður ásamt annað hvort Margréti Rán eða Svanlaug Jóhannsdóttur. Hver hvatti þig til að búa til tónlist? Foreldrar mínir segja að ég hafi alltaf haft dálæti á tónlist en mig minnir endilega að það hafi verið „Red Hot Chili Peppers“ sem urðu til þess að ég fór að æfa gítar. Síðan þá hef ég ekki horft til baka og það er varla stund sem ég man eftir án gítars.

Þegar ég er 18 ára þá fer ég út sem skiptinemi til Ekvador og þar sem tónlist var lífið mitt þá fór ég út í bókasafn Hafnarfjarðar og leitaði að suður amerískri tónlist en fann svo sem lítið annað en Salsa. Tómas R. Einarsson hafði líka nýverið gefið út Havana diskinn sinn og var hann mjög heillandi. En það var í rauninni ekki fyrr en ég lærði að tala spænsku sem latin tónlistarheimurinn opnaðist fyrir mér. Við það opnaðist Carlos Vives fyrir mér, sem var nýbúinn að gefa út diskinn, El rock de mi pueblo (Bæjarrokkið), og hafði sá diskur mikil áhrif á mig. Einnig var Juanes að gefa út Mi Sangre (blóðið mitt) sem innihélt meðal annars „La camisa negra“ á þessum tíma og kunni ég flest öll lögin á þeim disk utan af. Auðvitað voru fleiri söngvarar og tónlistartegundir eins og salsa, cumbia, merengue og auðvitað má ekki gleyma að reggueton var að ryðja sér til rúms og komu lög eins og Gasolina (Daddy Yankee) út þegar ég var úti sem skiptinemi. Í raun má segja að ég hafi haft heppnina með mér þar sem ég fékk að upplifa suður-ameríska tónlist frá mörgum mismunandi sjónarhornum og ég bý að því í dag. Hver er mesti munurinn á íslenskri og suður-amerískri tónlist að þínu mati? Í fyrsta lagi þá verð ég að segja að íslensk tónlist er mjög bókstafleg og við tökum hlutina stundum of alvarlega. Í tónlist frá latín ameríku þá snýst þetta miklu meira um tilfinningar. Kynorkan í tónlist frá latín ameríku er líka miklu meira til staðar. Ég á erfitt með að útskýra það betur en það er oftast auðveldast að sjá muninn á Íslendingum sem dansa Salsa og síðan einhvern frá latín ameríku að dansa það sama. Íslendingurinn mun sýna þér alla snúningana sem hann/hún kann á 1 mínútu á meðan að innfæddur mun dansa með kynorkunni og ef lagið býður upp á snúning þá fær hann mögulega að læðast með.


„Sumir klífa fjöll, aðrir hlaupa maraþon, ég, ég spila á gítar. Gítarinn er mitt athvarf“ Áttu þér uppáhaldshljóðfæri sem er notað í Kólumbíu? Ljósmynd: Jón Bergþór Kristinsson

Ef það er eitt hljóðfæri sem væri uppáhaldshljóðfærið mitt frá kólumbíu þá hlýtur það að vera harmónikkan sem er notuð í flest öllum tónlistartegundum þar. Það er örlítið frábrugðið venjulegri harmónikku að því leitinu að hún er pentatónísk og alveg hnappa. Þessar harmónikkur geta því aðeins spilað lög í 3 tóntegundum og þurfa því harmónikuleikarar frá Kólumbíu að eiga 4 nikkur til þess að geta spilað öll lög. Þetta þýðir þá líka að erfitt eða leiðinlegt er að hækka um tóntegundir í þessum tónlistartegundum.

Hljóðfæri fólksins Þýskir landnemar báru hljóðfærið, sem samanstendur af belg og tveimur viðarkössum, með sér til Rómönsku Ameríku á miklum ólgutímum í heimsálfunni á 19. öld. Í Kólumbíu er harmonikkan ómissandi hluti af flestri þjóðlagatónlist. Þá var hljóðfærið áberandi þar í landi sem einskonar samskiptamiðill, þar sem farandsöngvarar frá löndum Karíbahafsins ferðuðust með harmonikkuna á bakinu á milli bæja og fluttu fréttir í einskonar söngvastíl með hljóðfærið að vopni.

Texti: Laura Daniela Hurtado

„Fylltu hjartað þitt af salsalífi og hlustaðu á þessi lög - þú munt ekki sjá eftir því“ Útgáfudagur Flytjandi

Lag

Plata

1984

Grupo Niche

Cali Pachanguero

No hay quinto malo

1996

Roberto Roena

Cómo te hago entender

Los Rostros de la Salsa

1975

Fruko

El Preso

Fruko el Grande

1989

Willie Colón

El Gran Varon

Top Secrets

1988

Eddie Santiago

Lluvia

Sigo atrevido


Kólumbíska kaffi - besta kaffi í heimi Kaffi í Kólumbíu á sér um 300 ára sögu eða síðan jesúítar komu með það í farteskinu á 18. öld. Sagan segir að aukin kaffiframleiðsla í Kólumbíu hafi verið að þakka jesúítaprestinum Francisco Romero í bæ í Norte de Santander sem heitir Salazar de las Palmas. Þegar trúmenn hans fóru til játningar, lagði presturinn til við þá sem syndaaflausn að rækta kaffi. Því er haldið fram að þökk sé þessu hafi kaffiframleiðsla farið að breiðast til annarra héraða og um 1850 hafi hún náð til Cundinamarca, Antioquia og Caldas. Tveir mikilvægir atburðir áttu sér stað árið 1959: Juan Valdez fæddist, en hann er einskonar andlit kaffiræktunar í Kólumbíu, og Café de Colombia skrifstofan var opnuð í Tókýó, en það var risastökk fyrir framleiðsluna og er Japan næststærsti neytandi Café de Colombia í heiminum í dag. Árið 1984 var sérstakt innsigli Café de Colombia búið til, sem auðkennir það í öllum heimshornum.

Texti: Laura Daniela Hurtado 12 EMBLA Ljósmyndir: unsplash.com


Íslensk hönnun Síðan 1971

Innblásið af íslenskri náttúru Laugavegur 61 / Kringlan / Smáralind Sima: 552 4910 www.jonogoskar.is


Þetta tímarit er til minningar um tengdamóður mína sem lést 3. september sl. Hér fjalla ég um margt sem hún dáði og elskaði. Góðan mat, myndlist og tónlist. Það var svo skemmtilegt að elda með þér Guðrún. Þú smakkaðir með mér allskonar suðuramerískan „gúrmemat“ sem ég gerði fyrir þig og ég er svo þakklát fyrir það. Sömuleiðis er ég svo þakklát fyrir allan þann góða mat sem þú eldaðir alltaf og færði hugann minn heim til Kólumbíu, eins og kjúklingarétturinn sem þú gerðir nokkrum vikum áður en þú fórst frá okkur. Þú hafðir mikinn áhuga á að kynnast menningu Suður-Ameríku, bæði tónlist og matargerð og þér fannst þetta svo æðislegt. Með listinni þinni ferðuðumst við saman til Suður-Ameríku . Við dönsuðum og sungum við tónlistina hans Tómasar og með góðu kólumbísku kaffi töluðum við um allt milli himins og jarðar. Ég veit þú hefðir verið svo ánægð með tímaritið og ég tileinka þér það. Ég elska þig svo heitt og sakna þín. Þín Laura Daniela

14 EMBLA

Texti: Laura Daniela Hurtado

Til þín


Umhverfisvæn og örugg prentun

Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.

Opið mánudaga til fimmtudaga: 8:00– 16:00 Opið föstudaga: 08:00– 14:30 Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogi 540 1800 litaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is


Ert þú að nýta réttindin þín? Námsstyrkir ● Kjaramál ● Olorfssjóður ● Sjúkrasjóður

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðar­ sambandi Íslands. Ávinningur sam­ eingarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu

GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

Kynntu þér réttindi þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heima­ síðunni okkar

www.grafia.is

Stórhöfða 31 | 110 Reykjavík | 5400 100 | grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook