Skip to main content

Embla - Snæbjörn Sigurður Steingrímsson

Page 1

GRAFÍSK MIÐLUN

7. TBL. 10. ÁRG. HAUST 2021


N A TUR

E Ð S I LU

FR

S Ð Æ

FR

ÆÐ

SL

SÝNDU HVAÐ Í ÞÉR BÝR

IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prenttæknigreinum og matvælaog veitingagreinum.

AN

US

ET

UR

Hjá IÐUNNI er boðið upp á alls konar námskeið sem bæði eru kennd á staðnum og í fjarnámi á vefnum. Einnig eru félagsmönnum veittir styrkir fyrir ferðir á námskeið erlendis.

Iðan fræðslusetur ehf. Vatnagarðar 20 S. 590 6400 – www.idan.is idan@idan.is


4

UM mig

6

topp 10 hip hop plötur

8

rafíþróttir

10

tiramisu

12

dr. gunni

14 Gíraffi

Hönnun og umbrot Snæbjörn S. Steingrímsson Forsiða Snæbjörn S. Steingrímsson Útgefandi Þessari önn er senn að ljúka og þetta tímarit er sannkallað uppgjör náms grafískrar miðlunar. Það hefur ýmislegt gengið á síðan ég hóf nám í inngangi upplýsingatækni haustið 2019. Ég kláraði fyrstu önnina í fjarnámi og vegna kórónu‑ veirufaraldurs færðust næstu tvær annirnar á rafrænt form mér til mikillar hamingju. Í byrjun árs 2021 hóf ég svo fyrri önn í grafískri miðlun í dagskóla. Með hjálp námsráðgjafa varð mér ljóst að ef ég kláraði einn íslenskuáfanga í sumarnámi væri mér kleift að útskrifast núna um jólin. Það gerði ég og því stefni ég núna á útskrift með grafískri miðlun. Allt í allt hef ég haft gaman að náminu og eiga kennararnir lof skilið fyrir góða leiðsögn. Takk fyrir mig og ég vona að þið njótið þess að fletta í gegnum þetta rit.

Tækniskólinn Nemamynd Snæbjörn S. Steingrímsson Prentun og frágangur Tækniskólinn Pappír UPM Digi 150 g/m2 UPM Digi 250 g/m2 Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Engravers Regular 19/22.8


Um mig Ég heiti Snæbjörn Sigurður Steingrímsson og er útskriftarnemi í grafískri miðlun Ég hef alltaf haft gaman að hönnun og útliti hluta. Þegar ég var ungur þá teiknaði ég mikið en sú tómstundariðja minnkaði með árunum. Nú þegar ég skrifa þetta er ég spenntur fyrir því að klára námið og takast á við þeim áskorunum sem koma í kjölfarið. Ég er fæddur á því herrans ári 1990, 25. júlí. Fyrstu árin mín einkenndust af búslóðaflutningum en loks árið 1997 settumst við fjölskyldan að í Engjahverfi við Grafarvog. Í Engjaskóla stundaði ég grunnskólanám og uppáhalds fögin mín þar voru myndmennt og smíði. Mér gekk þó ágætlega líka í bóknáminu en það var eitthvað við að skapa eitthvað frá grunni sem mér líkaði. Eftir grunnskóla gáfust mér fáir kostir í menntaskóla þar sem að ég tók samræmdu prófunum ekki mjög alvarlega.

Ég fór því á málabraut við Borgarholtsskóla og átti góð ár þar í félagslífi. En illa gekk að taka á náminu sem ég stundaði þar vegna þess að áhuginn var lítill og tilgangurinn minni. Svo að löng saga sé stutt þá hef ég stundað nám við nokkra mismunandi framhaldsskóla og líklega verið á öllum brautum sem í boði eru, án þess að finna raunverulega hvers vegna. Árið 2015 fór ég í einkaflugmannsnám og kláraði bóklega hlutann með góðri einkunn sem kenndi mér það að ekkert sé útilokað. Loks eftir mikla ígrundun og sjálfsskoðun erlendis, svo eitthvað sé nefnt, fann ég það sem mig langaði alltaf til að læra; grafísk hönnun. Ég skráði mig í Tækniskólann haustið 2019 og hófst handa við grafíska miðlun. Þegar til baka er litið hef ég lært allt sem ég kann og haft gaman að í leiðinni. Eftir útskrift hér liggur leið mín í áframhaldandi nám við háskóla, en það er óákveðið sem stendur hvert báran flytur mig.


Topp 10 mest seldu hip hop plötur allra tíma


Sæti

Plata

Artisti

Seld eintök

1.

Speakerboxx/The Love Below

Outkast

11,4 milljónir

2.

The Marshall Mathers LP

Eminem

10,5 milljónir

3.

The Eminem Show

Eminem

10,3 miljjónir

4.

Life After Death

The Notorious B.I.G.

10,3 milljónir

5.

Please Hammer, Don‘t Hurt ’Em

MC Hammer

10 milljónir

6.

Greatest Hits

Tupac Shakur

10 milljónir

7.

All Eyez on Me

Tupac Shakur

9 milljónir

8.

Licenced to Ill

The Beastie Boys

9 milljónir

9.

Country Grammar

Nelly

8,5 milljónir

Get Rich or Die Tryin‘

50 Cent

8,3 milljónir

10.

Vantar þig múrara? Hjá Múrverki hf. starfa faglærðir múrarameistarar og sveinar. Ekki nokkurt verk er okkur um megn. Við bjóðum fjölbreytta þjónustu:

Flotun a p y e t s r u Mynst nir Flísalag Steining eypa Plötust Múrklæ

ðning

Vér múrum...

www.murverk.is s. 687 8375


Rafíþróttir og félagslegur Ávinningur þeirra Undanfarin ár hefur umfjöllun um rafíþróttir tekið stakkaskiptum og enn fleiri ungmenni eru farin að stunda tölvuleikjaspil á keppnisstigi, ekki einungis í afþreyingarskyni. Þegar litið er á tölvuleikjaspilun sem íþrótt er eðlilegt að fólk undri sig á því hvernig hægt sé að setja það í sama flokk. Þegar ungt fólk fór að hefja þessa iðju var litið á þetta sem félagslega einangrandi tímasóun en með aðkomu íþróttafélaga og einstaklinga sem sérhæfa sig í tómstundafræðum er búið að rétta úr kútnum og nálgast tölvuleikjaspilun á jákvæðan og uppbyggjandi hátt. Hér fyrir neðan eru textabrot úr ansi áhugaverðri BA ritgerð þeirra félaga, Valgeirs Þórs Jakobssonar og Þorkels Más Júlíussonar, í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Titill hennar er „Þetta bjargaði lífi mínu“: félagslegur ávinningur rafíþróttaiðkunar. „Neikvæðar umfjallanir um tómstundir af hverju tagi hafa neikvæð áhrif á iðkendur tómstundarinnar og ýta þær undir neikvætt viðhorf fólks til tóm‑ stundarinnar sem á við og er því mikilvægt að upplýsa fólk um þá jákvæðu þætti sem hægt er að ýta undir og rækta til þess að iðkendur og tómstundin sjálf fái tækifæri í að þroskast í jákvæða átt. Tölvuleikjaiðkun hefur einkennst af neikvæðri umfjöllun í fjölda ára þar sem að þessi tómstund getur stuðlað að ýmsum kvillum eins og félagslegri einangrun, þunglyndi og skertrar líkamlegrar og andlegrar heilsu. Þessar staðhæfingar hafa við rök að styðjast eins og rannsóknir og fræðirit hafa sýnt fram á í gegn um tíðina. Tómstundin þessi hefur samt sem áður breyst mikið síðastliðin ár og tíðkast nú til dags að stunda rafíþróttir þar sem spilaðir eru tölvuleikir með öðrum í liði og reynt að vinna bug á andstæðingunum. Keppt hefur verið í tölvuleikjum í áratugi en síðastliðin ár hafa þessar keppnir farið að taka á sig nýja mynd. Með vinsældum rafíþrótta hefur umgjörðin og skipulagið í kring um þessa tómstund tekið breytingum og nú í dag eru rafíþróttir ekki ósvipaðar öðrum íþróttum hvað varðar umgjörðina. Rafíþróttir eru byrjaðar að skipa sér sess á Íslandi og eru íþróttafélögin hver á eftir öðrum byrjuð að setja upp rafíþróttadeildir innan sinna stofnanna og eru einnig sjálfstæð rafíþróttafélög að skjóta kolli sínum upp í auknum mæli víðs vegar á landinu. Er rafíþrótt alvöru íþrótt? Þegar farið er yfir þá stöðu sem rafíþróttir eru í, hvað varðar viðurkenningu á að vera flokkuð sem íþrótt í akademíska samfélaginu, er það ljóst

að þrátt fyrir að ekki enn sé búið að viðurkenna rafíþróttir sem gilda íþrótt hjá alþjóðlegum íþróttasamtökum, þá eiga rafíþróttir og aðrar íþróttir margt sameiginlegt og vert sé að taka fram að algengasta notkunin á orði rafíþrótta gefur að einhverju leiti til kynna að um íþrótt sé að ræða (Wagner, 2006). Þegar 10 rafíþróttir eru bornar saman við lista yfir þau skilyrði sem íþrótt þarfa að uppfylla til að geta orðið meðlimur í alþjóðlegum samtökum íþróttasamtaka, gefinn út af GAISF (Global Association of International Sports Federations) sem stóð áður undir nafninu Sport Accord, þá uppfylla rafíþróttir skilyrðin í fleiri en einum flokki íþrótta til þess að geta gerst meðlimur þessara samtaka (SportAccord, e. d.)


Með nýrri tækni og hjálp alnetsins hefur tölvuleikjaspilun í einrúmi breyst að nokkru leiti til hins betra með bættri samskiptatækni og auknum möguleika á hópiðkun tölvuleikja í gegn um alnetið. Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar á tengingu félagslegrar einangrunar og tækni nútímans og hafa niðurstöðurnar margar sýnt orsakatengsl þarna á milli en fræðimenn hafa tekið fram að tölvuleikir spilaðir í gegn um alnetið geta verið undantekning hvað þetta varðar. Tölvuleikir bjóða upp á raunveruleg sýndarrými þar sem tækifæri býðst á að fá félagsskap og mynda félagstengsl. Talað er um að öll félagstengsl geta haft jákvæð áhrif á þig ef það er hlúað vel að tengslunum og þau veita gildi í formi stuðnings og samskipta. Sýnt hefur verið fram á það, að það að fara á alnetið gat oft á tíðum dregið úr einmanaleika og aukið gæði samskipta einstaklinga (Perry o.fl., 2018, bls. 203). Til þess að fá sem mest út úr félagstengslum sem myndast á alnetinu í gegn um tölvuleiki þarf að skoða tvo þætti, hvers konar félagstengsl myndast og hvers háttar ástríða er til staðar í garð tölvuleiksins.”

Þú getur lesið ritgerðina í heild sinni hér:


Tiramisu

Eftirréttinn tiramisu er hægt að fá út um allan heim í alls konar útgáfum. Þessi samleikur kaffiblautra dömufingra, mascarpone krems, eggja, sykurs og kakódufts, er ítalskt góðgæti með mikla sögu og sérkennilegt bragð. Á Ítalíu er deilt um það hver á í raun og veru heiðurinn af uppskriftinni en opinberlega hefur verið útkljáð um það mál og Campeol fjölskyldan á veitingastaðnum Le Beccherie í Treviso hlaut heiðurinn. Hér kemur uppskrift frá Salt eldhúsi:

2 pakkar ladyfingers 200 ml sterkt kaffi 50 ml Kahlua eða Amaretto Mascarpone krem: 3 blöð matarlím 150 ml marsala 6 stk eggjarauður 170 gr sykur 500 ml rjómi 500 gr mascarpone

1. Setjið matarlímið í bleyti í köldu vatni. 2. Hitið vínið og leysið matarlímið upp í því. 3. Eggjarauður, sykur og vín er blandað saman í skál. 4. Setjið yfir „bain-marie” (sjóðandi vatnsbað) og hrærið stöðugt, hrærið blönduna þar til hún hefur þykknað lítillega en passa þarf að hita hana ekki of mikið. 5. Takið af hitanum og setjið á hrærivélina með þeytara. Haltu áfram að þeyta á mið­ lungs hraða þar til blandan hefur kólnað lítillega. 6. Þeytið rjómann þar til hann er létt þeyttur og setjið til hliðar. 7. Hrærið eggjablöndunni smám saman út í mjúkan mascarpone ostinn og blandið síðan þeyttum rjóma varlega saman við.

nokkrar staðreyndir •

Tiramisu þýðir á ítölsku „togaðu mig upp.“

Tiramisu á sér rætur í ítölskum vændishúsum og var ætlað gestum sem frygðarlyf (e. aphrodisiac).

Faðir uppskriftarinnar sem við þekkjum í dag, Ado Campeol, lést nýverið 93 ára að aldri.

Borgin Treviso á Ítalíu er upphafsstaður tiramisu.

Stærsta tiramisu sem hefur verið lagað er u.þ.b. 3 tonn og var það gert í Gemona del Friuli árið 2015.

Í Kína er tiramisu mest smellta ítalska orðið á veraldarvefnum.

Nýverið var 21. mars skilgreindur sem Tiramisudagurinn.

Það eru til söguleg gögn um tiramisu frá árinu 1800.

Ado Campeol


„Krakkar, ef þið smælið framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í ykkur.“ Dr. Gunna þarf vart að kynna fyrir íslensku þjóðinni. Hann er annálaður tónlistarmaður með meiru sem gaf nýverið út plötu sína Nei, ókei. Dr. Gunni hefur gefið út ógrynni af tónlist og bókum um tónlist auk þess að hafa verið meðlimur í hljómsveitum á borð við Dordingla, F/8, Geðfró, S.H. Draumur, Bless og Unun. Ég fékk að spyrja hann nokkurra spurninga.

Hvað heitir þú fullu nafni? Gunnar Lárus Hjálmarsson

Hvað finnst þér best að hlusta á þegar þú ferð í göngutúr? Einhver góð hlaðvörp, en ef ég fer í fjallgöngu þá hlusta ég bara á náttúruna.

Við hvað starfar þú? Ég er opinber starfsmaður og starfa sem þjónustu­ fulltrúi hjá Þjóðskrá.

Hvernig er dagsformið? Ég er reyndar aðeins þunnur núna eftir árshátíð, en annars er dagsformið yfirleitt mjög gott.

Hver er besta hljómsveit í heimi? Bítlarnir.

Mynd: Txell Bonet


Hvaða verki þínu ertu stoltastur af? Ætli Goð með S.H.Draumi og Abbababb! sé ekki það besta og svo auðvitað nýjasta platan, Nei, ókei, með hljómsveitinni Dr. Gunni.

Í hvaða menntaskóla gekkst þú? MK.

Hvað eru eftirminnilegustu tónleikar sem þú hefur farið á og hvers vegna?

ÆVlNTÝRaLEGaR FJÓRHJÓLaFERÐlR Komdu í SaFaRl ferð með okkur

VERÐ FRá 14.990 lSK

Í apríl 1980 spilaði ég mína fyrstu tónleika með hljómsveitinni sem ég var í þá, Dordinglum. Við hituðum upp fyrir Fræbbblana og Utangarðsmenn, en eftir þessa tónleika varð Bubbi eiginlega stjarna á Íslandi. Sama ár um sumarið fór ég á The Clash í Laugardalshöll og það var líka gríðarlega eftirminnilegt og gott.

Hvaða plötuumslag þykir þér vera mest viðeigandi? Pink Flag með hljómsveitinni The Wire. Frábært umslag um frábæra plötu.

Hvaða staður á Íslandi er þér kærastur? Ísland er bara ógeðslega flott eiginlega hvert sem maður fer. Vestfirðir, Þórsmörk, Eyjafjörður – þetta er allt flott og gaman að koma þarna. Kannski ég segi bara að Skagafjörðurinn sé mér kærastur því pabbi ólst þar upp og á gamals aldri fór ég með honum um æskuslóðirnar.

Orð að leikslokum? Krakkar, ef þið smælið framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í ykkur.

www.safari.is

821 1311

Lambhagavegur 19

113 Reykjavík


HUGSAÐU STÓRT Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.

Forvinnsla Prentun

Frágangur LÍ F HJ IÐ Á ER OK Í KU LIT R

Skemmuvegi 4 – 200 Kópavogi – Sími 540 1800 – litlaprent@litlaprent.is – www.litlaprent.is


Ert þú að nýta réttindin þín? Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig. Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameingarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upp‑ lýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is.

Þí

ni

rh

ag

sm

un

ir

lig

gj

a

hj

á

ok

ku r

Stórhöfða 31, 110 Reykjavík – Sími 552 8755 – grafia@grafia.is

Þjónusta Kjaramál Lífeyrismál Sjúkrasjóður Orlofssjóður Fræðslustyrkir


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Snæbjörn Sigurður Steingrímsson by Tækniskólinn - Issuu