Skip to main content

Embla - Sara Hanh Hong Bui

Page 1

EMBLA

GRAFÍSK MIÐLUN VOR 2021 10. TBL.

EMBLA | 1


MEÐ ÞÉR ALLA LEIÐ Prent-og miðlunargreinar eru skapandi og þróast hratt. Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi. IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.

Þjónusta •

Fræðslusetur

•

Námskeið

•

Námssamningar

•

Endurmenntun

•

Fyrirtækjaþjónusta

•

Fræðsla

•

Hæfnismat

•

Raunhæfismat

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | idan@idan.is | www.idan.is


LEIÐARI Þá er komið að því að þessi önn sé að enda. Þess­i önn hefur verið bæði skemmtileg og krefjand­i. Langir dagar og nætur með hugmyndastíflu, liggjandi á gólfinu með nokkur tár og Kórónuveiran gerði það svo sannarlega ekki auðveldara, en það var allt þess virði. Ég sá mig sem kokk í mörg ár en ákvað að taka stóra u beygju og fór í grafíska miðlun. Námið er skemmtilegt og maður kynnist frábæru fólki. Ég hef lært margt í þessu námi bæði að vinna sjálfstætt og í hópvinnu, það má síðan ekki gleyma að ég er farin að skoða allar umbúðir og elsku blessaða matseðla sem ég fæ í hendurnar, það mætti halda að ég eyði meiri tíma í að skoða matseðlana heldur en að ákveða hvað ég ætla að panta mér. Ég tel mig hafa valið rétta braut til að útskrifast úr og get sagt að ég sé alls ekki eftir því! Í Emblunni minni fjalla ég um flóttamenn og hvar hluti af þeim eru í dag. Ástæðan afhverju ég valdi þetta efni er vegna þess að foreldrar mínir eru flóttamenn. Ég vill gefa fólki smá innsýn í hvernig það er að vera flóttamaður, allt frá því að flýja landið og að fá nýtt heimili. Emblan mín er mjög persónuleg því í ferlinu fann ég mynd af pabba þegar hann var í flóttabúðunum, það má segja að ég grét í nokkra klukkustundir. Ég er svo endalaust þakklát og stolt af foreldrum mínum fyrir að hafa hugrekki til þess að flýja frá heimalandinu sínu til að fá betra líf. Ef það væri ekki fyrir þau þá veit ég ekki hvar ég væri í dag. Þannig hér mun ég kynna sögu foreldra minna. Ég vill enda á því að þakka kennurunum fyrir að kenna mér allt, þau eru búin að standa sig mjög vel í að kenna bæði í staðnámi og í fjarnámi á Teams og ég er endalaust þakklát. Með bestu kveðju,

EFNISYFIRLIT 4

Um Mig

6

Flóttamenn á Íslandi

8 Bátafólk - Af eigin reynslu: viðtal 10

Lífið sem flóttamaður

12

Snögg fatahreinsu með asískum blæ

Umbrot og hönnun Sara Hanh Hong Bui Hönnun forsíðu Sara Hanh Hong Bui Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers Gill Sans MT Segoe Script

EMBLA | 3


4 | EMBLA


UM MIG Ég heiti Sara Hanh Hong Bui og er 21 árs gömul. Ég er frá Vietnam en er fædd og uppalin á Ísland­i. Á þessum 21 árum hef ég alltaf búið í Grafarvoginum. Ég er útskriftarnemi í grafískri miðlun í Tækni­skólanum og er einnig að ljúka við stúdents­prófið í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Áður enn ég fór í Tækniskólann var ég að stunda nám í Borgarholts­ skólanum og tók þá 2ja ára pásu frá náminu til þess að fara að vinna á hjúkrunarheimili og að gera neglur á aðra þar sem mamma er naglafræðingur og kenndi hún mér á þá tækni. Ég hef verið að vinna á hjúkrunarheimili síðan með skóla. Síðan ég man eftir mér hef ég verið með mikinn áhug­a á list eins og að teikna, mála, farða, og ljósmyndun.

Ég teiknaði og málaði mikið þegar ég var yngri en tæknin tók yfir það og er þá mikið í forritum en held samt í að skissa! Ég hef einnig gaman af því að elda, spila tölvuleiki, smíða og brennandi áhuga á flúrum. Það sem ég er að stefna á núna, er að klára námið og hugsan­lega taka B.A. gráðuna í Bandaríkjunum. Annars eins og er þá er ég búin að fikta mikið í að hanna flúr fyrir bæði mig og aðra og ætla þá að byrja að flúra. Ég ætla að fylgja fótspor mömmu minnar og er þá núna að vinna í að stofna eigið fyrirtæki til hliðar. Það verða spennand­i tímar fram­ undan og er ég þá mjög spennt að sjá hvert lífið tekur mig!

EMBLA | 5


FLÓTTAMENN Á ÍSLANDI Tekið hefur verið á móti hópum flóttafólks allt frá árinu 1956, og hafa alls komið til landsins 597 einstaklingar. Flóttamannaráð Íslands var stofnað árið 1995. Ný stefna var þá tekin upp við móttöku flóttafólks og hafin samvinna við einstök sveitarfélög sem hafa tekið að sér móttöku við fólkið og aðstoð við það fyrsta árið. Frá þeim tíma hefur verið tekið reglulega á móti hópum fólks og verk­efnið unnið í samstarfi við Rauða kross Íslands og deildir Rauða krossin­s í viðkomandi sveitarfélagi. Velferðarráðuneytið semur annars vegar við sveitarfélagið og hins vegar við Rauða kross Íslands um aðstoð við hvern hóp, en alls hafa komið til landsins með þessum hætti 380 einstaklingar. Ákvörðun

Grahan flóttabúðir í Sar Pass, Indíu.

6 | EMBLA

um móttöku hópa er tekin af ríkisstjórn Íslands hverju sinni. Ákvörðun um móttöku hópa er ævinlega unnin í nánu samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og byggt er á gögnum frá stofnuninni. Innflytjendaráð var stofnað á árinu 2005 og samhliða nefnd um flóttafólk sem hefur tekið við hlutverki flóttamanna­ ráðs sem lagt hefur verið niður. Innflytjendaráð er skipað af ráðherra sem fer með málefni innflytjenda. Það skal vera stjórnvöldum til ráðgjafar við stefnumótun í málaflokknum og fjallar um helstu atriði sem snerta aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi. Tekið saman af Stjórnarráð Íslands

Ljósm.: Siddhant Soni


Þeir flóttamenn sem valdir hafa verið til að koma hingað til lands hafa komið í 15 hópum frá 6 löndum á 47 ára tímabili. Flóttaland Ungverjaland Fyrrum Júgóslavía Víetnam (S) Pólland Víetnam (N) Víetnam (N) Serbía/Króatía Serbía/Króatía Serbía/Króatía Kosovo/Albanía Serbía/Króatía Serbía/Króatía Serbía/Króatía Alls

Ár 1956 1959 1979 1982 1990 1991 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2003

Fjöldi flóttamanna sem komu 52 32 34 26 30 30 30 17 23 75 24 23 24 420

Fjöldi flóttamanna í dag 14 4 21 3 29 23 21 15 23 36 24 23 24 260

Fjöldi hópa 1 1 1 1 1 1 1 1 1 3 1 1 1 15

LOKA ÚTSALA! 20% af öllum vetrarvörum til 21. apríl 2021

20%

EMBLA | 7 Ármúli 18 | 104 Reykjavík | 567 8888 | snaefellverslun@snaefell.is | snaefellverslun.is | Opið 10 – 18 alla daga


Mynd 8.1

BÁTAFÓLK Víetnamskt bátafólk eða svokallaðir bátafólk er flóttafólk frá Víetnam. Fólkið flúði með bátum eða skipum eftir Víetnamska stríðið árið 1975. Um 1.5 milljón manns náðu að flýja landið en ferðin var þó erfið fyrir þau, 200.000–400.000 manns lifðu ferðina ekki af. Fólkið drukknaði, glímdi við veikindi, dó úr vökvaskorti, varð fyrir borði vegna þrengsla, lentu í slæmu veðri eða náðu jafnvel ekki til lands. Bátafólkið sigldi til þeirra landa sem voru næst þeim og voru h­elst­­u löndin Hong Kong, Malasía og I­ndónesía. Fólk var að flýja

Víetnam því það var svo fátækt eftir stríðið. Bátafólkið fékk að dvelja í þ­­essu­m löndum í nokkur ár í flóttabúðum, þar til önnur lönd sáu sér fært að taka við þeim. Þessar ferðir kröfðust mikils hugrekkis því þær voru upp á líf og dauða. Löndin tóku síður vel á móti flóttafólki þegar leið á. Fólk fórnaði sér til þess að fá betra líf þótt það þyrfti að yfirgefa fjöl­ skyldur sínar í nokkur ár. Sumir hafa ekki enn sameinast fjölskyldu sinni enn þann dag í dag, en þó hafa tugir þúsunda Víetnama fundið nýtt heimili og lifa betra lífi. Tekið saman af Söru Hanh Hong Bui

Mynd 8.2

8 | EMBLA


IN G I E AF U L S N Y E R VIÐTAL VIÐ

VIGGÓ HONG

Í dag er Viggó aðstoðarkokkur á Rikki Chan á Ísland­i og á hann þrjár dætur. Hann fékk að fara aftur til Vietnams árið 1993 og h­­efu­r nú farið nokkrum sinnum heim síðan þá.

Mynd 8.1: Bátafólk í Sham Shui Po, lokuðum flóttabúðum. Ljósm.: Sam Chan Mynd 8.2: Fóttamenn bíða eftir að fá að fara til Bretlands. Ljósm.: SCMP Pictures

Viggó Hong Van Bui í Pillar Point

„Ég flúði árið 1986 frá fjölskyldunni minni úti í V­ietna­m til Hong Kong. Ég var aðeins 19 ára gamall að verða 20 ára þegar ég fór. Ég og 7 vinir mínir keyptu­­m okkur bát og fórum. Eins og flestir á þessum aldri hefðu verið, var ég hræddu­­r við að fara og fá ekki að sjá fjölskyld­ una mína aftur. Ég vissi ekki hvort ég myndi lifa eða deyja en ég gerði það sem ég þurfti að gera fyrir betra líf. Þegar við komum vorum við færðir yfir á Sham Shui Po flóttabúðir, mér leið eins og ég væri í fangelsi. Þrjú ár sem ég var þarna, vann ég sem sjálfboðaliði að skammta mat og fékk ekki að fara út úr svæðinu. Árið 1989 fékk ég að fara yfir í flóttabúðirnar Pillar Point, ég fekk vinnu sem aðstoðarkokkur og síðan var ég í iðnaðar­vinnu. Ég kynntist síðan konu að nafni Ninna Truong í flóttabúðunum, við eignuðumst stelpu sama­­n og fengum að fara til Íslands árið 1991“.

Ljósm.: Óþekktur

Viggó Hong Van Bui er fæddur árið 1966 og er frá Vietnam. Viggó er einn af báta­fólkinu á myndinni. Ég fékk Viggó til að segj­­a mér söguna sína sem flóttamaður.


LÍFÍÐ SEM FLÓTTAMAÐUR Saga Ninnu

Flóttabúðir

Ninna Truong Minh Ngo er fædd árið 1970 og er frá Vietnam. Ninna er eigandi Amerísku Nagla­snyrtistofunnar. Ninna á mann að nafni Viggó Hong Van Bui og eiga þau saman þrjár dætur, Helena Hue Thu Bui, Elín Nhung Hong Bui og Sara Hanh Hong Bui. Ninna á alls 5 systkini og búa þau 4 hér á Íslandi, einn úti í Vietnam og einn úti í Bretlandi.

Árið 1988 fór Ninna á bát með tveimur e­­lstu bræðum sínum ásamt 48 manns til Hong Kong. Þegar þau komu til Hong Kong fóru þau í flótta­búðir sem heita Pillar Point. Í flótta­ búðunum, Pilla­r Point voru bara Víetnamar. Staðurinn var umkringdur gaddavírum og fólk sem var með vinnu þurfti skilriki til að komast inn og út úr staðnum en atvinnulausir voru bara inni í búðunum en fengu samt að borða þrisvar á dag og fengu líka föt til skiptana. Meðan hún var í Hong Kong fékk hún fyrst vinnu sem saumakona en síðar fékk hún starf í verksmiðju. Ninna var úti í Hong Kong alls í 3 ár og voru hún og Viggó 2 af 30 manna hópi sem fékk inngöngu til Íslands árið 1991.

Ég fór með bræðrum mínum þegar ég var 17 að verða 18 ára. Það var erfitt að kveðja mömmu og pabba því ég vissi ekki hversu langt væri þangað til að ég fái að sjá þau aftur.

Nýbúar í Norðri

Ljósm.: Óþekktur

Til Íslands Þegar Ninna kom til Íslands árið 1991 var hún að læra íslensku og hóf síðan starf hjá efnalauginni Hvíta húsið í Kringlunn­ i og fékk síðan starf hjá prentsmiðju R. ­ Guðmundsson. Ninna fékk ekki greitt hjá prentsmiðjunni og fékk þá að hætta og vera á atvinnuleysisbótum. Ninna ákvað þá að flytja til Englands árið 1998 meðan hún var á atvinnu­leysisbótum og læra að vera nagla­ fræðingur. Hún bjó þar í 7 mánuði og flutti síðan aftur til Íslands og vann hjá snyrtistofu Hönnu Kristínar Diðriksen í 2 mánuði áður enn hún opnaði stofuna sína, Ameríska nagla­ snyrtistofan. Tekið saman af Söru Hanh Hong Bui

10 | EMBLA


UM AMERÍSKU NAGLASNYRTISTOFUNA Ameríska naglasnyrtistofan var stofnað árið 1999 og er staðsett á Engjateigi 17. Fyrirtækið er fjölskyldu­fyrirtæki og eru þær þá tvær sem vinna þar, eig­andinn, Ninna Truong Minh Ngo og dóttir hennar Helena Hue Thu Bui. Nafn fyrirtækisins er til heiðurs kennara Ninnu í Englandi vegna þess að hann er frá Ameríku. Ameríska naglasnyrtistofan býður upp á handog fótsnyrtingu. Ninna tók þátt í keppni­nn­i Tískan í ásetningu gervi­nagla flokki og hlaut 1. sætið í þeim flokk árið 2000. Ninna leggur áherslu á að kúnnum líði vel og hefur þá farið að gera neglur á fólk á sjúkrahúsinu, hjúkrunarheimilum og í heimahúsi. Kúnnar hennar Ninnu eru sátt með þjónustuna og segja að þjónustan sé góð, hröð og traust. Ninna hefur þann kost að tengjast vel við kúnna sína og eru þá margir fastakúnnar sem hafa verið með Ninn­­u í allt að 22 ár og eru enn nýjir að bætast við í dag. Tekið saman af Söru Hanh Hong Bui

SYSTKININ Systkinin eru alls sex en eru þau fjögur sem búa á Íslandi. Yngsti bróðir Ninnu, Róbert, kom árið 1994, árið 2001 kom Xuyen, elsta s­ysti­r og næst var það Vu, elsti bróðir Ninnu til Íslands. Ninna og fjölskyldan hennar eru mjög dugleg og eiga alls fjögur fyrirtæki á Íslandi.

Ninna Truong Minh Ngo

Ljósm.: Helena Hue Thu Bui


SNÖGG FATAHREINSUN MEÐ ASÍSKUM BLÆ Um Snögg Fatahreinsun sem staðsett hefur verið í Suðurveri árum saman ber rammíslenska nafnið Snögg. Bryndís rekur fata­ hreinsunina í dag og hefur verið að því síðan árið 2015. Nafnið gefur fyrirheit um hraða þjónustu sem er óneitanlega kostur í nútímasamfélagi. Þegar inn er komið mætir manni mjög hlýlegt viðmót eiganda fatahreinsunarinnar, Bryndísar Phuong To, og á henni er enginn asi. Hjá henni vinnur mágkona hennar og með henni skottast lítill strákur, dökkhærður og fallegur. Snögg fatahreinsun býður einnig upp á 20% afslátt fyrir nemendur.

12 | EMBLA

Bryndis Phuong To

Ljósm.: Sólveig Baldvinsdóttir


Saga Bryndísar Bryndís segir að eiginmaður hennar, Róbert Huan Ngo hafi fyrst komið hingað frá heimalandi þeirra Víetnam 1994 en systir hans kom hingað 1990 sem flóttamaður. Hún hvatti bróður sinn til að koma til Íslands því hér væri vinnu að fá sem hann gerði og sótti Bryndísi síðan þremur árum síðar eða 1997. Hún er því búin að vera á Íslandi í 23 ár og talar núna mjög góða íslensku. Þau eiga tvö börn, stúlk­u, Rósa Linh Ngo, fædda 1998 en hún er í háskólanámi í Bandaríkjunum og dreng, Róbert Nam Ngo, fæddan 2004 en hann er á fyrst­a ári á íþróttabraut í MK. Börnin eru bæði fædd á Íslandi svo nú eru þau öll íslenskir ríkisborgarar. Þegar Bryndí­s var komin til Íslands fluttu foreldrar hennar og systkini hingað líka og sömuleiðis fjölskylda eiginmanns hennar. Bryndís fékk vinnu í Fönn skömmu eftir komuna til landsins. Fljótlega bætti hún við sig vinnu við að skúra í þremur skólum, einum menntaskóla og tveimur leikskólum. Hún var að vinna í Fönn til 2007 en þá færði hún sig yfir í fata­ hreinsunina Snögg. Bryndís hélt áfram að skúra í skólum ásamt því að vinna í fatahreinsuninni á daginn. Þegar Snögg fór á sölu 2015 var Bryndís búin að spara nógu mikið til að geta keypt fyrirtækið og síðan hefur hún rekið sitt eigið fyrirtæki í framandi landi. Hún tekur fram að þennan tíma hafi hún unnið geysilega mikið og varla tekið sér frí einn einasta dag. Tekið saman af Lifdununa.is

EMBLA | 13

Nóatún 17 | 105 Reykjavík | Sími 519 6488 Opið mán til fös 09 – 18 & lau 10 – 14


TATTOO HANNANIR

EFTIR MIG


Þú hannar – við prentum

FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

Við gerum þína hugmynd að veruleika Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Forvinnslu – prentun - frágangur. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.

Skemmuvegi 4, Blá Gata | 200 Kópavogi | Sími 540 1800 | FAX: 540 1801 | Opið virka daga : 8:00 – 16.00 |litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is


ÞEKKTU RÉTTINDI ÞÍN Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is

Stórhöfða 31, 3. hæð | 110 Reykjavík | Sími 552 8755 | grafia@grafia.is | www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Sara Hanh Hong Bui by Tækniskólinn - Issuu