Skip to main content

Embla - Sigurður Einar Jónsson

Page 1

11. TBL. 10. ÁRG. VOR 2021 11. TBL. 10. ÁRG. GRAFÍSK MIÐLUN VOR 2021

1


Með hjálp Iðunnar standa þér allar dyr opnar

Kynntu þér fjölda námskeiða og tækifæri til endurmenntunar inn á www.idan.is

2 Iðan fræðslusetur • Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík • Sími 590 6400 • www.idan.is • idan@idan.is


05. kynning 06. í krafti fjöldans 08. sjálfvakinn bruni 10. viðtal við sniper 12. aftur&aftur&aftur 14. bamboozled Þá er seinni önn sérsviðs grafískrar miðlunar að ljúka og ég vill byrja á því að þakka öllum kennurum og samnemendum fyrir góðar stundir. Það fylgja þessu blendnar tilfinningar, mikil gleði fólgin í því að klára námið en á sama tíma leiðinlegt að þessu sé lokið. Þetta nám er ótrúlega fjölbreytt og kom verulega á óvart. Þetta opnar ákveðnar dyr fyrir manni og maður sér ýmislegt í nýju ljósi. Maturinn sjálfur er t.d. það síðasta sem ég skoða á matseðli í dag. Mig langaði til þess að vinna með textaþungt umbrot. Til þess að æfa mig í textagerð skrifaði ég greinarnar sjálfur (sem var nú bara nám út af fyrir sig) með hjálp frá Internetinu og þegar ég varð uppiskroppa með orðalag þá leitaði ég í gömul morgunblöð. Tímaritið er í raun samansafn af hlutum sem mér þykir áhugaverðir og vona að þið hafið gaman að. Mæli með grein Ólafs Halldórssonar frá árinu 1988 í Morgunblaðinu um sjálfvakinn bruna.

Ritstjórn Sigurður Einar Jónsson Samsetning tímarits Sigurður Einar Jónsson Forsíða Sigurður Einar Jónsson Útgefandi Tækniskólinn Nemendamyndir Heiða Norðkvist Halldórsdóttir Prentun Útskriftarefni grafískrar miðlunar Letur Univers 45 light, Univers 55 Roman, Univers 65 Bold

3


S i g u rð u r Einar Ég heiti Sigurður Einar Jónsson og er fræddur árið 1993. Ólst upp í Garðabæ en bý í dag í gamla Vesturbæ ásamt kærustu og kisa. Leið mín að þessu námi er frekar óhefð­bundin. Ég var í menntaskóla á árunum 2009–2012 en sagði mig úr náminu vegna þess að ég var engan veginn að tengja við það og fannst ég þurfa að prófa eitthvað annað. Eftir nokkur ár á vinnumarkaðinum fann ég að ég vildi sérhæfa mig. Ég skráði mig því til náms í grafískri miðlun hér í Tækniskólanum. Ég fékk áhuga á hönnun út frá því að skoða plötuumslög. Fannst áhugavert hvernig hægt er að túlka tilfinningar, andrúmsloft og tíðaranda með formum, litum og letri. Ég er hrifinn af allri bjögun og því sem er viljandi „illa“ gert, sérstaklega í tónlist og grafík. Ég er mjög ánægður með þetta nám og núna hlakkar manni bara til að koma sér fyrir í faginu, nema maður fari í áframhaldandi hönnunarnám. Takk fyrir mig.

5


Hópþrýstingur er vanmetið afl sem getur valdið því að við veljum dómgreind, skoðanir eða hegðun hópsins fram yfir okkar eigin. Dr. Solomon Asch komst að þessari niðurstöðu í rannsókn sem hann gerði árið 1951. Í rannsókninni fékk hann 8 manns til sín undir því yfirskyni að um rannsókn á skynjun væri að ræða. Sjö voru leikarar sem svöruðu samkvæmt fyrirmælum læknisins. Áttundi maðurinn – sá sem raunverulega var viðfangsefni rannsóknarinnar – hafði ekki hugmynd um raunverulegan tilgang rannsóknarinnar. Dr. Solomon Asch var að rannsaka áhrif hópþrýstings á einstaklinga; fylgjum við eigin sannfæringu þótt hópurinn mæli gegn henni? Rannsóknin var einföld. Í hverri umferð fengu viðfangsefnin að sjá tvær myndir, A og B. Á mynd A var eitt lóðrétt strik og á mynd B voru þrjú strik, merkt 1, 2 og 3. Mennirnir áttu svo að svara hvert þriggja strikanna á mynd B væri jafn­stórt strikin­u á mynd A. Í upphafi svöruðu allir mennirnir rétt, enda augljóst hvaða strik væru jafnstór. Í þriðju umferð fóru leikararnir sjö að gefa vísvitandi röng svör – öll þau sömu. Áttundi maðurinn gerði slíkt hið sama. Þrátt fyrir að sannanir fyrir því gagnstæða væru beint fyrir framan hann. Hann fór gegn eigin dómgreind og samræmdi sig hópnum. Í annarri útgáfu af þessari rannsókn var einum leikaranna gert að svara rétt. Þá reyndist

6

auðveldara fyrir áttunda manninn að fylgja eigin sannfæringu ef annar hafði svarað rétt á undan honum. Rannsóknin benti þannig til þess að það sé fólki erfiðara að fara gegn samhljóða hópi. Það er því mjög mikilvægt að láta skoðun sína í ljós ef maður tilheyrir hóp sem maður telur hafa rangt fyrir sér. Það getur þó verið varasamt ef hóphugsunin er sterk.

Það á ekki að vera hægt að svara þessu vitlaust

Hóphugsun Rannsókn Dr. Asch sýndi fram á að fólk á e ­ rfiðara með að hugsa og haga sér sjálfstætt í hópum. Hollusta við hópinn verður oft ofan á í b ­ aráttunni við dómgreind og getur leitt af sér skerta


ákvarðana­töku og siðferðislegan halla. Ef einhver mælir gegn skoðunum hópsins getur hann átt á hættu að vera lastaður og jafnvel útskúfaður. Fólk hættir því ekki á að andmæla hópnum af ótta við refsingar. Ef hópur fólks sameinast í ótta er hætta á hjarðhegðun. Hjarðhegðun er það fyrirbæri þegar fjöldi fólks hagar sér með sama hætti. Hún litast oft af því að einn hermir eftir öðrum í þeirri trú að sú hegðun sé skynsamlegri. Í stað þess að leitast sjálfur eftir svörum þá fylgir einn öðrum, og svo koll af kolli. Hjarðhegðun er sérstaklega áberandi þegar fjöldi fólks óttast sama hlutinn á sama tíma – líkt og hópur dýra á flótta undan rándýri. Það er gott að vera meðvitaður um þau áhrif sem hópamyndanir hafa á okkur. Skoðanir hópsins endurspegla oft ekki skoðanir einstaklingsins og bjögunin getur verið mikil. Hópur getur þannig á endanum sameiginlega tekið ákvarðanir sem enginn einstaklingur innan hópsins myndi taka. Texti: Sigurður Einar Jónsson | Mynd: Google (CC leyfi)

Hópsturlun Nornabrennurnar í Salem er eitt þekktasta dæmi hópsturlunar. Á 16. öld fengu tvær ungar stúlkur í smábænum Salem Village flogakast. Læknisfræði þessa tíma gat ekki útskýrt af hverju flogin stöfuðu. Stúlkurnar sjálfar staðhæfðu að yfirnáttúruleg öfl stæðu á bak við þetta og fljótlega eftir það greip um sig mikil hræðsla í bænum. Fleiri stúlkur fóru að fá flogaköst og konur í bænum voru ásakaðar um galdra. Efnt var til réttarhalda í flýti, allar konur sem lágu undir grun voru leiddar fyrir dómara og þær sem ekki játuðu á sig galdra voru teknar af lífi. Þær sem játuðu fengu hinsvegar að halda lífi, eins kaldhæðnislegt og það er. Alls voru 20 konur teknar af lífi áður en almenn skynsemi greip aftur um sig. Læknar nútímans hafa lagt fram ýmsar skýringar á flogaköstum stúlknanna, allt frá stressi til brauðmyglu.

Ný útivistarvöruverslun opnar í Ármúla 18 þann 8. júní. Í tilefni þess verðum við með fullt af flottum tilboðum og allt að 20% afslátt af völdum vörum dagana 8.−10. júní.

FACEBOOK.COM/TINDURUTIVIST

INSTAGRAM.COM/TINDURUTIVIST

Opnunartímar 7

TINDUR ÚTIVISTARVÖRUVERSLUN • ÁRMÚLI 18 • 104 RVK

mán. til fös. 10:00−18:00

SÍMI 567 8888 • TINDUR@TINDUR.IS • WWW.TINDUR.IS

lau. & sun. 12:00−16:00


Sjálfvakinn bruni (e. spontaneous combustion)

Sjálfvakinn bruni er hið furðulega fyrirbæri þegar skyndilega kviknar í fólki án þess að augljós kveikjugjafi komi við sögu. Eldurinn er þá talin byrja inn í líkamanum og fólk brennur við svo mikinn hita að jafnvel bein brenna, þótt bruninn valdi aðeins bara smávægilegum skemmdum á húsgögnum. Hugtakið sjálfvakinn bruni (e. spontaneous combustion) kom fyrst fram árið 1746 í grein eftir Paul Rolli sem birt var í tímaritinu „Philosophical Transactions of the Royal Society“. Cornelia Zangari Bandi Tilefni greinarinnar var dularfullur dauðdagi ­ítalskrar greifynju. Í frásögn Rollis kemur fram að Cornelia Zangari Bandi, sem var á sjötugsaldri, hafi þótt sopinn góður og lét hún oft bera á líkama sinn kamferolíu með brandí út í til að lina verki sem hún þjáðist af. Þerna konunnar hafði komið inn í herbergi hennar­til að vekja hana einn morguninn. Þegar þangað var komið var herbergið þakið sóti og öskuhrúga á miðju gólfinu. Ásamt öskunni voru tveir fótleggir fyrir neðan hné, þrír fingur og hluti af höfuðkúpu. Ljóst var að greifynjann hafði á einhvern hátt brunnið þótt aðrir hlutir eins og rúm og húsgögn í herberginu hefðu sloppið algjörlega. Þetta dularfulla fyrirbæri, sjálfvakinn bruni, hefur um aldir verið mönnum mikil ráðgáta. Til forna töldu menn þetta refsingu frá almættinu fyrir miklar syndir en á 18. og 19. öld var talið líklegast að fyrirbærið stafaði af drykkjuskap.

8

Mannslíkaminn gæti þannig orðið svo mettaður af alkóhóli að hann ætti það á hættu að brenna til ösku af sjálfsdáðum. Nicole Millet Eftirmálin að dauða frú Nicole Millet lýsa þessum­ tilgátum um áfengismettun vel. Herra og frú Millet ráku krá og gistiheimili í Frakklandi árið 1725. Kvöld eitt vaknaði herra Millet við mikla brunalykt. Hann vakti gestina og sagði þeim að flýta sér niður á jarðhæðina. Þar komu þeir að jarðneskum leifum frú Millet. Hún var orðin að öskuhrúgu einni sem lá ofan á hægindastól, en á einhvern ótrúlegan hátt var hægindastólinn bara smávægilega skemmdur. Lögreglustjórinn sem kom á staðinn var ekki lengi að komast að niðurstöðu – herra Millet hafði myrt konu sína. Sem betur fer fyrir Millet var Claude-Nicolas Le Cât á staðnum. Sá var aðstoðarskurðlæknir og vakti hann athygli lögreglustjórans á því hversu mikinn eld þyrfti til að brenna mannslíkama til ösku. Næst spurði hann herra Millet hvort konan hans hefði verið drykkfelld. Millet sagðist ekki muna til þess að hún hefði farið allsgáð að sofa síðastliðin tuttugu ár. Við þetta svar var Le Cât sannfærður um að frú Millet hefði látist af völdum sjálfsvakins bruna. Irving Bentley Annað tilvik, dauði Irving Bentleys er nær okkur­ í tíma. Hann átti sér stað árið 1966 í Norður-­ Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Don Gosnell var að taka stöðu af gasmælum bæjarins og var til


þess kominn í kjallara dr. Bentleys. Hann varð var við reyk og undarlega lykt og kom auga á öskuhrúgu sem lá í horni kjallarans. Fyrir ofan hrúguna var gat brennt í gegnum loftið. Gosnell hraðaði sér í kjölfarið upp í íbúð ­Bentleys, þar sem hann fann mannsfót inni á klósetti. Við þetta var Gosnell mjög brugðið og er hann sagður hafa hlaupið út úr húsinu og öskrað „Dr. Bentley er brunninn upp til agna!“. Þetta mál vakti sérstaka athygli slökkviliðsmanna og annarra sem voru vanir aðkomu að málum af þessum tagi. Fyrir utan hægri fótlegg Bentleys – ásamt inniskó sem hann hafði verið klæddur í – var nefnilega ekkert eftir af doktornum.

Fótleggur Bentleys ásamt holunni í gólfinu

Í máli Irving Bentleys gripu yfirvöld til þeirrar ­kenningar að dánarorsökin væri reykeitrun. Um það var fyrst skáldað einhvað á þá leið að gamli maðurinn hefði kveikt sér í pípu upp í rúmi og að hann hefði óvart kveikt í náttfötum sínum í leiðinni. Þá næst hafði hann staulast fram úr rúminu, dottið fram fyrir sig og orðið eldinum að bráð. Á þessari kenningu voru margir vankantar, til dæmis var pípan enn á statífi næst rúmi hins látna og því ómögulegt að hann hafi kveikt í sér með þeim hætti. Réttarlæknir úrskurðaði því að dánarorsök væri köfnun ásamt 90% bruna líkamans.

Þau dauðsföll sem kennd eru við sjálf­ vakinn bruna hafa viss sameiginleg einkenni. Líkami hins látna brennur til ösku☺– ásamt holdi og beinum – að undanskyldum hluta útlima og í ein­ staka til­fellum höfði. Húsgögn og aðrir nærliggjandi munir sleppa yfirleitt með litlar sem engar skemmdir og sama gildir um ­klæðnað hins látna. Ef við setjum hlutina í samhengi þá þarf líkbrennsluofn til dæmis að brenna í eina og hálfa klukkustund við 1200°C, en síðan í eina til tvær og hálfa klukkustund við tæpar 1000°C til þess að brenna mann­ eskju til ösku. Að því loknu þarf að mylja beinin í mortéli. Þess ber líka að geta að við húsbruna kemst hitinn í mesta lagi um 800°C. Hitinn sem myndast við sjálfvakinn bruna hlýtur því að vera gífurlegur, sér­ staklega í ljósi þess að mannshold er ekki sérlega eldfimt og mannsbein fara ekki að brenna til agna fyrr en um 1650°C. Ekki er vitað með vísu hversu algengur sjálfvakinn bruni er – læknar viðurkenna almennt ekki að sjálfvakinn bruni geti átt sér stað og líklegast er almenn tilhneiging til þess að hafa hljótt um slíka atburði – en fjöldi þekktra tilvika er á þriðja hundrað. Síðasta skráða tilfellið af þessu tagi er dauði Michael Faherty frá árinu 2010. Hinn 76 ára gamli Faherty fannst látinn í íbúð sinni í Galway. Hann lá á bakinu í stofunni, líkaminn brunninn upp til agna, en einungis lítilsháttar skemmdir á ná­ lægum húsgögnum. Talið var í fyrstu að kviknað hefði í honum út frá arineldi í stofunni en það var fljótlega útilokað og eftir rækilega rannsókn á málinu tilkynnti réttarlæknirinn Ciaran McLoughlin að at­ vikið hlyti að stafa af sjálfvöktum bruna en með þeim ummælum að „á því væru engar fulllnægjandi skýringar“. Texti: Sigurður Einar Jónsson / Ólafur Halldórsson Myndir: Unsplash & Google (CC leyfi)

9


10


ég er Velkominn í viðtal Sniper, mig langaði aðeins til að…

Hvaða rugl er í gangi hérna

Byrjum bara á byrjuninni, ef þú myndir segja okkur aðeins frá upphafinu? No comment

ekki Stefnur og straumar, hvaða skilgreiningar myndir þú segja að þinn stíll falli undir? Ég er ekki að fara að svara þessu

Hversu lengi hefur þú verið að mála? Eru fleiri listamenn í fjölskyldunni þinni? Já… lengi, amma

Hvar ertu uppalinn?

Það er ekki séns að ég svari þessu

að fara Ef við gefum okkur að þú sért uppalinn á Íslandi, hvernig hefur það haft áhrif á stílinn þinn?

Elska rúnir og víkínga hjálma og ….. ertu van­ gefinn? Haltu kjafti

Hvaða rugl var í gangi hér?

Nú hefur þú snert botninn nokkrum sinnum, ef þú værir til í að segja aðeins frá því? Hmm, er það samt? Hver var að segja það?

svara

Þegar þú leitar að vegg til að mála, hverju ertu helst að leita að? Þetta mun vera ein heimskasta spurning sem ég hef fengið á ævi minni Eru einhverjir aðrir miðlar þar sem þú færð útrás fyrir sköpunargáfunni? ….

Hver er uppáhalds DJin þinn? Geri ekki upp á milli DJa

þessu Lokaorð?

já Varstu búinn að leggja inn á mig mannstu?

Sigurður Einar Jónsson tók viðtalið Myndir úr einkasafni

Hvaða rugl er í gangi hér?

11


aftur & aftur

Er þetta teiknað í síðustu viku eða árið 1980?

„Við lifum í svokallaðari retró– maníu, þar sem menn horfa stöðugt aftur til fortíðar og taka mið af öllu því sem nú þegar hefur verið gert þegar skapa á eitthvað nýtt“ – Þórður Ingi Jónsson Það er mikill kraftur fólginn í endurtekningu. Þetta hafa frambjóðendur, plötusnúðar og kennarar vitað í langan tíma. Lykillinn að náttúrulegri tilhneigingu eru tíðar endurtekningar og til þess að ná tökum á hæfileikum er mikilvægt að æfa sig – aftur og aftur og aftur. Heilinn á okkur vinnur stanslaust úr því ­stöðuga upplýsingaflæði sem til hans berst. Hann er lang orkufrekasta líffæri líkamans, telur aðeins 2% af líkamsþyngd en er ábyrgur fyrir 20% af ­orkunotkun okkar. Heilinn – í sparnaðarskyni – kann betur við hluti sem eru honum kunnugir, og það sem heilanum þínum líkar vel við líkar þér vel við. Hann myndar jákvæð tengsl við hluti sem hann þekkir og jákvæðari tengsl því betur sem við þekkjum þá. Þess vegna erum við t.d. líklegri til þess að trúa einhverju sem við höfum heyrt áður,

burtséð frá því hver sannleikurinn er. Heilinn kýs þannig endurtekið efni fram yfir nýjungar vegna þess að það er auðveldara að vinna úr því. Við finnum fyrir þessu þegar við erum t.d. að velja hvaða bíómynd við viljum horfa á hverju sinni. Við erum líklegri til þess að velja myndir með kunnulegu þema, því við þekkjum það og áhorfið verður fyrir vikið auðveldara. Þú heyrir t.a.m. nýtt lag í útvarpinu og finnst það leiðinlegt. Ef þú heyrir lagið nógu oft næstu vikur á eftir er líklegt að heilinn þinn myndi jákvæð tengsl við lagið og fari að finnast það betra, jafnvel gott. Fredric Jameson spáði því að í hinu póstmóderníska ástandi myndi menningin bera keim af fortíðarþrá og stælingum á eldra efni. Þetta hefur ræst, eins og sjá má á endurvakningu og vinsældum á fagurfræði síðustu áratuga í tónlist, kvikmyndum og tísku. Hugtakið fútúrískt á þannig ekki lengur við um hvernig við sjáum framtíðina, heldur vísar hugtakið til þess hvernig fólk á 20. öld leit á hana. Erum við kannski hætt við framtíðina? Með því að líta stöðugt til baka og endurvekja gamla framtíðarsýn erum við ásótt af framtíð sem aldrei kom.


RÁÐSTEFNA Vofufræði Hugtakið vofufræði var upprunalega sett fram af Jacques Derrida. Hann sagði að við værum ásótt af því sem ekki væri lengur til, og því sem ekki hefur enn orðið til. Derrida sagði að upplifun okkar minnti á eins konar draugagang, þar sem hún getur í senn verið fjarverandi en raunveruleg. Við gerum nútímanum skil með því að bera hann saman við fortíðina, á sama tíma og við sjáum fyrir okkur framtíðina. Þegar þú hlustar á laglínu þá heyrir þú kannski bara eina nótu í einu. Þú ert þó meðvitaður um nóturnar sem þegar hafa heyrst og þú hlustar eftir nótunum sem koma næst. Þannig upplifirðu það sem er fjarverandi og viðstatt á sama tíma. Eitt aðalatriði vofufræðinnar er að rýna í afhverju við viljum stöðugt endurlífga hið liðna. Í grein um vofufræði frá árinu 2012 ritaði breski fræðimaðurinn Mark Fisher: „Brotthvarf framtíðarinnar hafði það í för með sér að sérstök tegund af félagsfræðilegu ímyndunarafli dó. Hæfileikinn til að ímynda sér heim sem er allt öðruvísi en sá sem við búum í. Menn þurftu að sætta sig við aðstæður þar sem menningin myndi halda áfram án þess að hún myndi nokkurn tímann raunverulega breytast.“

Texti: Sigurður Einar Jónsson / Þórður Ingi Jónsson

H A R PA 1.-2.

MAÍ

N Ú T Í M AVÆ Ð U M M E N N TA K E R F I Ð MINNA AÐHALD, MEIRA SVIGRÚM

13


bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled Van Meegeren byrjaði upphaflega að falsa málÞegar bandamenn fóru í gegnum málverkasafn verk eftir þekkta meistaramálara vegna þess að Hermans Göring eftir seinni heimsstyrjöld, fundu hans eigin verk fengu ekki það lof sem honum þeir rúmlega 1200 málverk. Eitt málverkanna fannst hann eiga skilið frá gagnrýnendum samsem fannst þar var „Christ and Adulteress“– tímans. Hann aðhylltist náttúru- og raunsæisstíl meistarav­erk málarans Johannes Vermeers. á tímum þar sem avant-garde listhreyfingin var Í augum hollenskra yfirvalda var um föðurlands­ svik að ræða – hver hafði selt nasistum menningar­ ríkjandi. Í reiði sinni fór hann því að falsa verk eftir arfleið hollensku þjóðarinnar? þekkta listamenn í þeim tilgangi að niðurlægja Maður að nafni Hans Van Meegeren var í kjölgagnrýnendur og sérfræðinga. farið handtekinn. Meegeren var ríkur maður, átti Frægðin sem Van Meegeren hafði vonast fasteignir og tvo næturklúbba. Eftir þrjár vikur ­eftir sem listmálari öðlaðist hann að lokum sem maður­inn sem lék á Göring. í fangelsi játaði Van Meegeren brot sitt – hann hafði selt Göring verkið. En málverkið reyndist ekki sú þjóðargersemi sem menn höfðu í upphafi Texti: Sigurður Einar Jónsson | Mynd: Google (CC leyfi) haldið – Van Meegeren hafði nefnilega sjálfur málað myndina. Falsanir Van Meegerens Hann játaði í kjölfarið að hafa málað Málverk Ár Kaupandi Kaupverð sex málverk með áletruðu nafni 1936 Boymans 4 millj. dollara Vermeers og selt þau fyrir sam- The Supper at Emmaus tals 3.000.000 dollara (30 milljónir 1937 W. van der Vorm 1,6 millj. dollara dollara á núverandi gengi). Þetta Interior with Drinkers voru ótrúleg tíðindi og listfræðingar 1940 D.G. van Beuningen 3,25 millj.dollara stóðu á öndinni þar sem Vermeer The Head of Christ hafði lengi verið sú stjarna sem málaralist annarra var dæmd eftir. The Last Supper 1942 D.G. van Beuningen 7 millj. dollara

14

The Blessing of Jacob

1942

W. van der Vorm

5,75 millj.dollara

Christ with the Adulteress

1942

Herman Göring

6,75 millj.dollara


BÍTLARNIR HÆTTU, EKKI VIÐ

15 Prentsmiðjan Litlaprent • Skemmuvegi 4, 200 Kópavogur • Sími: 540 1800 • www.prent.is • litla@prent.is


Einbeittu þér að vinnunni og láttu okkur um smáa letrið

Ertu búin/n að kynna þér réttindi þín? Kynntu þér kjaramál, kauptaxta og lífeyrismál eða notaðu reiknivélina inn á heimasíðu okkar www.grafia.is til þess að vera viss um að þú sért að fullnýta réttindi þín.

Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

GRAFÍA

16 GRAFÍA • Stórhöfði 31, 110 Reykjavík • Sími: 540 0100 • www.grafia.is • grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Sigurður Einar Jónsson by Tækniskólinn - Issuu