Skip to main content

Embla - Ragna Fríða Sævarsdóttir

Page 1

Embla

1


Komdu í heimsókn Iðan er samfélag sem iðar af lífi. Hlutverk Iðunnar er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrir­ tækja og starfsmanna í iðnaði. Hjá Iðunni er boðið upp á ýmis þjónustur og einnig er hægt að finna ýmislegt efni á heimasíðu Iðunnar. Boðið er upp á ráð­ gjöf ­ að vaxa í starfi, nýjungar ásamt sveigjanleika og jafnrétti til náms. Öllum er velkomið að kíkja í kaffi og kleinu!

Þjónustur Iðunnar: • Fræðslusetur • Námskeið • Námssamningar

• • • •

Endurmenntun Fræðsla Hæfnismat Raunfærnimat

@idanfraedsla

Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík | S: 590 6400 | idan@idan.is | www.idan.is

2

Embla


Leiðari Nú styttist í annarlok. Þetta tímarit var unnið í stofu 308 í húsi Tækniskólans við Háteigsveg. Indesign, illustraitor, og photoshop voru helstu forrit sem voru notuð. Embla er lífstílstímarit þar sem þú getur lesið um tölvuleiki og tónlist. Þetta nám hefur verið mjög fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi. Ég mun sakna þess að vera nemandi Tækniskólans. Ég vil þakka kennurum mínum, bæði í grunnnáminu og sérsviði, fyrir hjálpina við námið. Þakkir fara einnig til samnemendur minna fyrir góða samvinnu og góðan félagsskap í og utan skólann.

Umbrot og hönnun R. Fríða Sævars. Hönnun á forsíðu R. Fríða Sævars. Útgefandi Upplýsingartækniskólinn Prentun Upplýsingartækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír Digi Finesse Silk 130gr Digi Finesse Silk 170gr

Takk fyrir mig! Fríða Sævars

Efnisyfirlit Um mig Minecraft Five Nights at Freddy‘s Undertale Among us K-pop Sm Entertainment YG Entertainment JYP Entertainment

4 6 8 9 10 11 12 13 14

Embla

3


4

Embla


Um Mig Ég heiti Ragna Fríða en er kölluð Fríða og er fædd 28. janúar árið 2000. Fyrstu átta ár ævi minnar bjó ég á litlum sveitabæ í Mýrdalshrepp. Árið 2008 flutti ég á Eyrabakka sem ég bjó þar til að ég byrjaði í Tækniskólanum. Ég hóf nám við Tækniskólann árið 2020 eftir árs námspásu. Ég útskrifaðist sem stúdent á listalínu úr Fjölbrautaskóla Suðurlands vorið 2019. Þar kynntist ég grafískri miðlun fyrst, ég vann hönnunarkeppni í þeim áfanga þar sem lagt var fyrir okkur að hanna merkingar á ruslatunnur skólans.

gaman af stjörnuspeki og galdrafræði, ég hef safnað allskonar kristölum og er oftast með nokkra í vasanum. Þó ég viit ekki mikið um tísku hef ég mjög gaman af henni! Ég reyni að vera töff klædd flesta daga. Mér finnst gaman að versla notuð föt á nytjamörkuðum og að reyna púsla þeim saman. Eins og áður er minnst á finnst mér gaman að föndra, ég hef „föndrað“ mín eigin föt, prjónað, heklað eða saumað.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á list. Mér finnst gaman að teikna, mála og flest föndur sem er lagt fyrir mig. Auk þess finnst mér mjög gaman að horfa á þætti og hlusta á tónlist á tungumálum sem ég kann ekki. Ég hef líka

Embla

5


Indie tölvuleikir Indie tölvuleikir eru tölvuleikir sem eru framleiddir af einstaklingum eða litlum hóp einstaklinga en ekki af stórum fyrirtækjum. Margir svona leikir hafa orðið mjög vinsælir til dæmis Minecraft, Five Nights at Freddy‘s, Undertale, Among Us og margir fleiri.

Minecraft Minecraft er mest seldi töluvleikur allra tíma. Flestir þekkja þennan leik eða hafa spilað hann. Minecraft var búinn til af einum manni, Markus Persson, einnig þekktur sem Notch, fyrsta útgáfan af leiknum kom út árið 2009. YouTube stuðlaði að vinsæld Minecraft þar sem margir spiluðu leikinn og hlóðu upp myndböndum sínum á vídeó-veituna. Leikurinn kom út á tímabili þar sem myndbönd á YouTube um tölvuleiki voru mjög vinsæl. Það sem heillar marga við Minecraft er að ekki er ein leið til að spila leikinn. Hver leikmaður getur spilað hann á sína eigin vegu. Vinsælustu leiðir til að spila leikinn eru survival, multi player, creative og hard core. Í survival spilarðu einn og átt að reyna að lifa af. Þú getur

6

Embla

byggt hús, barist við skrímsli, siglt um höfin og margt fleira. Ef þú villt ekki spila einn getur þú spilað multiplayer. Margar leiðir eru til að spila multiplayer, þú getur spilað survival, creative eða hardcore en einnig hafa spilendur sett upp ýmis „mini games“. Mini games eru allskonar en fara á móti hefðbundna survival, þú getur spilað allskonar leiki eins og til dæmis lazertag. Í creative færðu aðgengi að öllum hlutum í leiknum og skrímslin ráðast ekki á þig. Flestir nota creative til að byggja. Að lokum er hardcore. Hardcore er í raun alveg eins og survival en ef þú deyrð þá geturu ekki spilað í þeim heimi lengur. Einnig eru skrímslin sterkari og er talsvert erfiðara að spila.


DanTDM Einn YouTuber sem stuðlaði að vinsæld Minecraft var Daniel Robert Middleton, DanTDM. Dan hlóð upp fyrsta Minecraft myndbandi sínu í ágúst 2012. Myndbönd Dans voru einstök þar sem hann bjó til karaktera sem voru í flest öllum myndböndum hans, þeir voru Dr Tryaurus og Grim. Í dag er Dan með yfir 26 milljón áskrifendur á YouTube rás sinni og með yfir 18 milljarða áhorf samanlagt á öllum myndböndum sínum. YouTube rásin hans er með Guinness heimsmetið fyrir flestu áhorf á YouTube rás sem framleiðir Minecraft myndbönd.

DanTDM á Web summit 2014

Ljósm.: Óþekktur

Ráðstefna um kúgun lesbía Dagana 1. og 2. maí verður haldin ráðstefna í Hörpunni af samtökum íslenskra lesbía, Saffó, í samstarfi við samtökin 78 og kvenréttindina félag íslands. Ýmis málefni verða tekin fyrir eins og til dæmis þjófnaður hugtaksins „lesbía“ af klám-

iðnaðinum, „compolsary heterosexuality“ í gangnkynhneigðu samfélagi og margt fleira. Dagrún Jónsdóttir, Guðlaug Björk Pálsdóttir, Margrét Hafsteins og margir fleiri fyrir lesendur koma fram.

Helstu fyrirlesarar

Dagrún Jónsdóttir Hún

Guðlaug Baldursdóttir Hún

Margrét Hafsteins Hán

Nánari upplýsingar á samfélagsmiðlum okkar

Embla

7


Five Nights at Freddy‘s Five Nights at Freddy‘s er sería af horror tölvuleikjum framleitt af Scott Cawthon. Fyrsti leikurinn kom út árið 2014, Scott byrjaði á því að gera leiki fyrir börn en eftir að fá kvartanir um að karakterarnir hans væru hrollvekjandi datt honum í hug að gera horror leik. Fyrsti Five Nights at Freddys, eða FNAF, leikurinn gerist á pizzastað þar sem þú leikur öryggisvörð sem er að fylgjast með búllunni. Það sem gerir leikinn að horror leik er að andsetin vélmenni ganga um pizzastaðinn á nóttunni sem eru að reyna að drepa þig. FNAF leikurinn varð vinsæll upprunalega ­fyrir „jump scares“. Mikið af youtube og twtich streimerum spiluðu leikina sem gerði þá enn vinsælli.

Hafþór Ingi, langtíma aðdáandi FNAF, spilar FNAF: Secret Location

LJÓSM.: R. Fríða Sævars.

Nú hafa komið út tíu FNAF leikir og eru meira en 130 karakterar í öllum leikjunum. Aðal vélmennin í leikjunum eru Freddy, Bonnie, Chika og Foxy.

Karakterarnir

Hve mörgum leikjum

Hvaða leik hann

hann kemur fram

kom fyrst fram í

Freddy

10

FNAF

Bonnie

8

FNAF

Chika

8

FNAF

Foxy

8

FNAF

Golden Freddy

7

FNAF

Circus baby

5

FNAF: Sister Location

Markiplier Mark Edward Fischbach er einn af þeim vinsælustu „gaming“ YouTuberum. Mark varð vinsæll fyrir að spila ýmsa tölvuleiki á YouTube, þar af Five Nights at Freddy‘s. FNAF myndböndin hans eru nokkur af hans vinsælustu, fyrsta myndbandið hans er með meiri en 102 milljón áhorf. Mark er ein stærsta ástæðan fyrir vinsæld FNAF leikjanna þar sem margir áhorfendur hans fundu leikina í gegn um myndbönd hans. Vegna vinsæld hans lék hann í sýnishorni af tíunda FNAF leiknum, Five Nights at Freddy‘s: Special Delivery.

Markiplier

8

Embla

Ljósm.: Gage Skidmore


Undertale Undertale er 2D leikur sem kom út fyrir Windows og OS X árið 2015. Leikurinn tekur innblástur af ýmsum leikjum svo sem Brandsih, Super Mario og Mother. Einnig bjó höfundur leiksins, Toby Fox, til „maps“ fyrir Mother áður en hann fór að framleiða sína eigin leiki. Leikurinn fylgir barni sem dettur í heim undir jörðinni þar sem ýmis skrímsli búa. Barnið þarf að reyna að komast aftur heim og leikmaðurinn stýrir því. Það eru margar leiðir til að vinna leiki til dæmis með því að drepa öll skrímslin, oft talað um sem „genoside route“, en einnig getur maður unnið leikinn með því að sleppa þeim, oft talað um sem „passive“ eða „neutral route“.

tónlist fyrir ýmis verk svo sem, vef-teiknimyndasögunni Homestuck og tölvuleiknum Earthbound. Tónlist á mikinn hlut í leiknum. Allir aðal karakterarnir eru með sitt eigið lag og hver „bardagi“ er einnig með sitt eigið lag. Nöfn margra karaktera í Undertale eru gerð sem grín, til dæmis er einn af fyrstu karakerunum sem þú hittir í leiknum Toriel sem kennir þér hvernig á að spila leikinn eða gefur þér „tutoriel“. Þrír karkaterar í leiknum eru nefndir eftir fontum, Sans, Papyrus og W.D. Gaster. Sans og Papyrus eru nefndir eftir comic sans og papyrus og er allt sem þeir segja í leiknum skrifað í þeim fontum. W.D. Gaster er nefndur eftir   (wing dings), þó kemur hann ekki fram í leiknum nema ef þú gramsar í skjölum leiksins. Einnig er karakterinn ­Alphys talinn af sumum spilurum leiksins vera byggður á fontinum Alpha en þó er það sem hann segir ekki í þeim fonti.

Tónlist og fontar í Undertale Áður en Toby Fox bjó til Undertale samdi hann

Karakterar úr Undertale, teiknað af Línu Rós Hjaltested

Ljósm.: R. Fríða Sævars.

Embla

9


Among us spilað á farsíma

Among Us

Among us er tölvuleikur sem líkist spilinu varúlfur eða mafía. 4–14 leikmenn spila við hvorn annann, 1–3 leikmenn eru valdir sem „Imposter“ allir aðrir eru „Crewmates“. Crewmates leysa verkefni í geimskipi meðan þeir reyna að forðast imposter-ana. Imposter á að drepa crewmates án þess að neinn sjái. Ef imposter nær öllum crewmates án þess að neinn sjái vinnur hann en ef crewmates ná honum vinna crewmates. Leikurinn kom út árið 2018 en varð ekki mjög vinsæll fyrr en um mitt árið 2020. Leikurinn varð mjög vinsæll bæði vegna þess að lang flestir voru fastir heima vegna covid-19 heimsfaraldursins og margir twitch streimarar spiluðu leikinn. Í nóvember 2020 voru um 500 milljón spilendur samkvæmt SuperData Research. Lang flestir, um 97% spilara, spila fríu útgáfuna af leiknum sem færst í google play og Appstore en einnig er til útgáfa sem er seld fyrir PC

10

Embla

Ljósm.: R. Fríða Sævars.

tölvur. Leikurinn er einn af mest seldu leikjum á Steam árið 2020, og komst inn á „The Year‘s Top 100“ lista. Í maí 2021 gáfu Innersloth, framleiðendur leiksins, leikinn í eina viku í Epic Games vefversluninni, þá viku voru yfir 15 millíjón eintök sótt. Í vinsældar bylgju leiksins var leikurinn spilaður af fólki á öllum aldri, en ef þú spilar leikinn núna eru spilendur börn. Þó leikurinn hafi verið mjög vinsæll árið 2020 entust vinsældir hans ekki mjög lengi, allavegana að meðan fullorðinnna spilenda. Í dag þykir mörgum leikurinn grín. En þó lifir hann áfram í net heimi. Vegna vinsæld leiksins hefur verið minnst á hann í ýmum leikjum, bíómyndum og fleiru. Innersloth með k-popp hljómsveitinni BTS og gáfu út styttur af karakterum leiksins í stíl við hvern meðlim sveitarinnar. Einnig í sýnishorni af bíómyndinni Snoopy in Space er karakternum Woodstock hent úr geimskipi í sama stíl og er gert í leiknum.


K-pop K-popp er tónlistartegund sem á bakgrunn sinn í Suður Kóreu. Seinustu ár hefur k-popp orðið mjög vinsælt alþjóðlega. BTS, Blackpink, BIGBANG, Wonder Girls og margir fleiri eru ástæðan fyrir vinsældum k-popp. Seo Taiji and Boys er oft talin vera fyrsta k-popp hjómsveitin. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu árið 1992 og hættu saman árið 1996. Meðlimirnir voru Seo Taiji, Yang Hyun-suk og Lee Juno. Stærstu grúbburnar i hverri kynslóð Oft er talað um að k-popp eigi sér kynslóðir. Í fyrstu kynslóðinni, 1992–2002, var k-popp að verða til, með innblæstri frá bandarískri og japanskri tónlist. Vinsælustu tólistarmenn kynslóðarinnar voru Seo Taiji and Boys, H.O.T, god, Sechskies, Shinhwa, og BoA Önnur kynslóðin kom í lok kreppu í Kóreu, 2003– 2010, k-popp var séð sem fullkomin leið til að auglýsa Kóreu. BIGBANG, TVXQ, Super Junior,

Girls‘ Generation, Wonder Girls, KARA, 2ne1, SHINee, INFANITE og fleiri voru andlit annarar kynslóðar k-popp. Þriðja kynslóðin er þegar k-popp varð vinsælla í Ameríku og Evrópu, 2011–2017, með samfélagsmiðlum var mikið auðveldara fyrir k-popp grúppur í þessari kynslóð að fá fylgjendur. Annað sem þriðju kynslóð k-popp gerðði vinsæl var að hafa sinn eigin heim í kringum hópinn. Mörg tónlistar­ myndbönd fylgja sögulínu og jafnvel eru hljómsveitirnar með krafta, til dæmis EXO. Vinsælustu artistar frá þessari kynslóð eru BTS, BLACKPINK, EXO, Twice, Red Velvet, Got7, iKON og fleiri. Nýjasta kynslóðin í k-popp er sú fjórða, 2018-núverandi. Í dag er k-popp meira en bara tónlistartegund þar sem flestar hljómsveitir eru með sína eigin fagurfræði og heim í kringum tónlistina. Stærstu hljómsveitarinnar eru ITZY, Stray Kids, Æspa, Tomorrow X Together, LOONA og Fleiri.

BoA BoA var aðeins 11 ára þegar hún vann áheyrnarprufu hjá SM Entertainment sem er fyrirtækið hún vinnur enn fyrir í dag. Aðeins 13 ára gaf hún út sína fyrstu plötu, ID; Pease B. Í dag hefur hún gefið út tuttugu plötur, tíu á kóresku, níu á japönsku og eitt á ensku. Hún hefur einnig tekið þátt í allskonar verkefnum með öðrum k-popp listamönnum. Hún hefur sungið á lögum með TVXQ, Shindong, U-Kwon og fleirum. Nýlega var henni bætt við í „supergroup“ með öðrum konum frá SM. Super-hópurinn heitir Got the Beat og er með meðlimir frá Girls Generation, Red Velvet, Aespa og svo auðvitað BoA. BoA er mjög vinsæl í Kóreu og alþjóðlega og hefur oft verið kölluð „The Queen of K-pop“.

BoA singur í San Francisco pride, 2009

Ljósm.: Charlie Nguyen

Embla

11


The big three Eitt af því sem gerir k-popp einstakt er að lang flestir k-popp hópar eru myndaðir af fyrirtækjum. Listamennirnir sækja um með því að mæta í áheyrnarprufu og eyða svo næstu árum í að æfa sig til að komast í k-popp grúbbu. Oft er talað um the big three, sem eru þrjú stærstu k-popp fyrirtækin sem ruddu brautina fyrir k-popp í dag. Þessi fyrirtæki eru SM Entertainment, YG Entertainment og JYP Entertainment.

SM Entertainment SM var stofnað árið 1989 af Lee Soo-man. Margir af stærstu k-popp listamönnum hafa komið frá SM, TVXQ, Super Juinior, SHINee, Girls Gen­ eration, EXO, Red Velvet, NCT, Æspa og fleiri. SM var fyrsta stóra k-popp fyrirtækið og gerði æfingar ferlið áður en listarmennirnir taka sínu fyrstu skref sem hljómsveit eða söngvari vinsælt. Seinustu ár hefur SM breytt frá hefðbundnu k-popp, boy- eða girlband lookinu. Listamenn eins og NCT og Æspa eru með sérstök „consept“. NCT er með fjórar undir grúbbur sem þeir vinna aðallega með, NCT Dream eru yngstu meðlimir NCT og gera meira krúttleg lög, NCT 127 gerir aðarlega EDM tónlist, NCT U gerir allskonar og WayV er kínverska útgáfan af NCT. NCT Dream, NCT 127 og WayV eru alltaf með sömu meðlimina en NCT U skiptir um meðlimi með hverju lagi. Einnig hafa þeir gert undir grúbbur sem endast bara á einni plötu, NCT 2018 og NCT 2020. Ný­ legat var SM að leita af nýjum meðlimum fyrir NCT Hollywood. Alls eru eru 23 meðlimir í NCT.

12

Æspa er að mestu leiti frekar hefðbundin stelpuhljómsveit en hver meðlimur er einnig með teiknaða stelpu sem sitt tákn. Þær teiknuðu eru líka meðlimir sjálfar en þó taka þær ekki ekki þátt í hverju lagi. Red Velvet eru einnig frekar hefðbundin stelpuhljómsveit, allir meðlimirnir eru mennskir og það eru alltaf sömu fimm konurnar og þær gera krútt­ leg, háklassa, skrítin og girl crush consept. Það sem gerir stelpusveitina einstaka er að allar plötur þeirra falla undir annað hvort „Red“ eða „Velvet“, hver er munurinn? Red lög eru krúttleg, tónlistar myndbandið er oftast í pastel litum og stelpurnar eru klæddar litum. Lögin Happiness, Ice Cream og Dumb Dumb falla undir red. Velvet lögin eru með meiri fullorðins þemu, myndböndin falla í dökka lita palletu og stelpurnar eru klæddar í dökkum litum oftast. Psycho, Be Natrual og Bad Boy falla undir Velvet. Einnig hafa þær framleitt nokkur lög sem falla undir bæði Red og Velvet. Rookie og Russian Rulette eru bæði mjög krúttleg lög og lita palletur tónlistar myndbandanna eru pastel en texti laganna tækla alvarlega málefni.

Embla

Auglýsing af annari japanskri plötu Red Velvet

Ljósm.: Hiu Yan Chelsia Choi


ÁTTU GAMLA BÓK BLACKPINK á rauða deriglinum fyrir Golden Disk Awards, 2019

Ljósm.: Newsenstar1

YG Entertainment

YG Entertinment var stofnað árið 1996 af Yang Hyun-suk, fyrrum meðlim af Seo Taiji and Boys. Lengi vel voru artistarnir undir YG þekktir fyrir að hafa YG stíl. Tónlistin þeirra er með mikinn innblástur frá hipp hopp senunni í Bandaríkjunum, rapp og dans eru mikilvægir partar af list þessara söngvara. BIGBANG, iKON, 2NE1, 1TYM og Epik High eru góð dæmi um listamenn sem falla undir YG stílinn.

Átt þú bók sem hefur séð betri daga? Eða bækling sem þarf að endast lengur? Jafnvel kort sem þér langar að varðveita? Hjá bókbandsstofunni Örkin tökum við gömul bréfsefni og bækur og lögum. Við getum lagað bæði harðspjalda bækur og kiljur, jafn sem blöðunga, bréfsefni, vegakort og nánast öll bréfsefni sem þér dettur í hug!

Akdong Musician, AKMU, falla ekki undir þennan stíl þrátt fyrir að vera frá YG Entertainment. Tónlist þeirra fellur oftast undir popp eða EDM. Einnig taka þau sig ekki of alvarlega og gefa út stundum grín tónlist. Winner er önnur grúbba sem fellur ekki inn í hefðbundna YG stílinn. Þó þeir gera stundum hipp hopp tónlist voru þeir auglýstir sem háklassa strákahljómsveit. Þeir hafa einnig prufað ýmsar tónlistartegundir eins og blús, sagnadans, jaðarrokk og diskó. Eins og AKMU skrifa Winner sína eigin tónlist og hafa frelsi yfir hvað þeir gefa út.

Dalvegur 2, 201 Kópavogur bokbandsstofan@orkin.is |441 4141 | orkin.is

@orkin

Embla

13


JYP Entertainment JYP Entertainment er yngsta af „the big three“, stofnað árið 1997 af söngvaranun J. Y. Park. Fyrsta k-popp grúbban sem varð mjög vinsæl í Ameríku og evrópu voru Wonder Girls. Ferill þeirra í bandaríkjunum byrjaði þegar þær komu á „The wendy williams show“ árið 2009 og spiluðu Tell Me. Eftir það fengu þær fylgd í bandaríkjunum, þær gáfu út lög á ensku og fóru í tónleikaferð með The Jonas Brothers. Wonder Girls eru ekki eina gúppan frá JYP sem hefur náð alþjóðlegri fylgd. Twice er líklegast vinsælasta hljómsveit sem hefur komið frá JYP. Þær urðu vinsælar nánast strax eftir að gefa út sína fyrstu plötu. Lagið Cheer Up varð vinsælt fyrir að vera mjög krúttlegt, lög þeirra næstu árin voru með mjög krúttlegum stíl í kjölfarið. Þær hafa

Kingdom: Legendary War Kingdom/Queendom er sería af þáttum framleitt af Mnet Entertainment þar sem 6-7 K-popp listarmenn eða hljómsveitir keppa á móti hvort öðru. Þættirnir eru skiptir niður í riðla og kosið er um sigara af aðdáendum, dómörum, kepp-

Meðlimir Stray Kids

14

Embla

Ljósm.: JYP Entertainment

selt flestar plötur af öllum listamönnum undir JYP Entertainment hingað til og vinsæld þeirra er alls ekki niðuleið.

Þó JYP er þekktari fyrir stelpuhljómsveitirnar sínar eru einnig strákahópar undir fyrirtækinu. Á seinustu árum hafa Stray Kids orðið mjög vinsælir. Nýjasta plata þeirra, ODDINARY, hlaut fyrsta sæti á billbord top 200 og seldi yfir 600.000 eintök. Stray Kids er einstök hjómsveit þar sem „leader“ hljómsveitarinnar valdi alla meðlimina sveitarinnar. Þeir semja þeir alla sína tónlist. Árið 2010 skrifaði JYP undir samning með Big Hit entertainment að hjálpa þeim með hópinn 2AM. Big Hit seinna stofnaði sveitina BTS sem í dag er vinsælasta strákasveit alþjóðlega.

endum og einnig telja áhorfsfjöldi á YouTube myndbandi af þeim riðli. Í seríu þrjú af þáttunum, Kingdom: Legendary War, tóku Stray Kids þátt og unnu. Í fyrsta þætti spiluðu allar sveitirnar lag eða blöndu af lögum að eigin vali í 100 sekúndur. Fyrsta riðli komu þeir svo fram með fyrsta lagið þeirra sem varð vinsælt. Í öðrum riðli spiluðu þeir lag frá Annari hljómsveit sem einnig tók þátt í þáttunum. Í þriðja riðli voru sveitunum blandað saman og skipt niður í hópa, hver hópur mátti svo spila hvaða lag sem þeir vildu. Í seinasta riðli spiluðu svo allar sveitirnar nýtt lag sem þeir frumsömdu fyrir þættina.


Ertu með hugmynd? Við hjá Litlaprent bjóðum upp á allskonar þjónustu. Vantar þig uppsetningu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum eða umbrot á blöðum og bókum? Við tökum við alls kyns verkefni til uppsetningar. Prentun er okkar fag. Hjá Litaprent starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun til margra ára. Litlaprent býður upp á fjölbreytt úrval á frágangi prentverks.

FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi | S: 540 1800 | Fax: 540 1801 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is


Með okkur ertu áhyggjulaus Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stór atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.

Sími: 552 8755 www.grafia.is grafia@grafia.is Stórhöfði 31, 3. hæð1 110 Reykjavík

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameingarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðu okkar


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Ragna Fríða Sævarsdóttir by Tækniskólinn - Issuu