Jón Eiríksson kúabóndi, listamaður og áhuga ljósmyndari býr á sveitabænum Búrfelli í Miðfirði. Hann býr þar einn og er með erlenda vinnukonu í vinnu hjá sér við að aðstoða sig á búinu. Jón á hvorki sjónvarp né GSM-síma svo oftast er bara hægt að ná á hann í hádeginu eða á kaffitímum.
Það eru aldrei dauðar stundir í lífi Jóns og eyðir hann ekki löngum tíma inni í heimahúsi. Þegar að hann er ekki að sinna störfunum á bænum þá er hann annað hvort í listagalleríinu eða vinnuherberginu að mála og skissa.