Útskriftarnemendur vor 2020
Ljósmyndun
tækniskólinn
Hvítt á hvítu / svart á svörtu
sameiginlegt verkefni Í þessu verkefni átti að velja sér einn svartan og einn hvítan hlut fyrir auglýsingamyndatöku. Mynda átti svarta hlutinn á alveg svörtum bakgrunni og hvíta hlutinn á alveg hvítum bakgrunni. Form og útlínur urðu að vera skýrar og greinilegar. Útkoman varð tvær myndir. Hér má sjá eina mynd frá hverjum nemanda.
2
Hrefna Morthens - bls. 112
Rakel Rún - bls. 26
Lára Lind - bls. 82
3
Heiða - bls. 132
Bríet - bls. 44
Nabduen - bls. 16
4
Katrín Björg - bls. 122
Hulda Margrét - bls. 102
Elín Björg - bls. 54
5
Ólafía Björt - bls. 8
Katrín Ása - bls. 72 6
ร sar - bls. 92
Brynjar Leรณ - bls. 36
7
8
Ólafía björt Benediktsdóttir Hæ ég heiti Ólafía Björt, er fædd árið 2001 og er því 18 ára. Ég er uppalin í Hafnarfirðinum og hef búið þar allt mitt líf. Um 10 ára aldurinn byrjaði ég að taka upp fjölskyldumyndavélina og var alltaf að leika mér að taka myndir af náttúrunni í kring eða fjölskyldunni. Þegar ég var 12 ára þá fékk ég mína fyrstu myndavél og var svo ánægð með hana, en fékk fyrstu alvöru myndavélina þegar ég var 14 ára. Þegar ég var að útskrifast úr grunnskóla fann ég ekkert nám sem hentaði mér, svo mundi ég eftir þessu námi frá kynningu sem ég fékk í 9. bekk og fannst mjög spennandi sem varð til þess að ég ákvað að sækja um nám í ljósmyndun. Árin mín í þessum skóla hafa verið svo skemmtileg og ég myndi ekki vilja breyta neinu við upp lifun mína hér í Tækniskólanum.
olafia_photo
9
10
11
12
13
14
15
16
Nabduen phumpraman Ég er 25 ára gömul, fædd og uppalin í Taílandi. Ég flutti til Íslands árið 2011 og hef búið á Íslandi í 9 ár. Ég hef haft áhuga á ljósmyndun frá því ég kom til Íslands og fékk smá-myndavél frá mömmu. Eftir að ég útskrifaðist af málabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla ferðaðist ég oft til útlanda. Ég elska að ferðast ein af því að ég vil hafa nægan tíma fyrir mig til að ganga og taka myndir. Mér finnst gaman að ljósmynda náttúru, dýr og landslag. Einnig tek ég mikið af myndum af fólki, portrett myndir bæði í stúdíó og úti. Lokaverkefnið mitt sýnir mismunandi landslag með einangruðum húsum. Það eru 5 mismunandi hús, staðsetningar og útsýni. Ég held að þetta séu eins og draumahús og að fólk myndi vilja búa í þessum húsum, sérstaklega á þessum tímum á meðan við þurfum að halda félagslegri fjarlægð.
nabduen_photography
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
Rakel Rún Garðarsdóttir Ég er ljósmyndari, hestakona og náttúruunnandi. Ég veit fátt betra en að vera úti í náttúrunni með myndavélina í góðum félagsskap. Ég er frá Hvammstanga en er búsett í Reykjavík. Áhugi minn á ljósmyndun kviknaði mjög snemma og ég hafði alltaf hug á því að læra meira um ljósmyndun. Ég hlustaði hins vegar alltaf á umhverfi mitt um að háskólamenntun væri praktískari leið en eftir að hafa farið tvisvar í háskólann og ekki fundið mig þar ákvað ég að fara í nám í ljósmyndun í Tækniskólanum. Ég hef mjög mikinn áhuga á flest öllu sem viðkemur ljósmyndun og elti þessa sælutilfinningu sem ég fæ við að taka góða mynd.
rakel.run www.rakelrun.com
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
Brynjar Leó Hreiðarsson Ég fékk ungur að aldri áhuga á ljósmyndun vegna foreldra minna sem voru alltaf eitthvað að stússast með myndavélar. Eftir að grunn skólanum lauk fannst mér hræðileg hugsun að ganga bóknámsveginn, vildi frekar gera eitthvað skapandi svo ljósmyndun í Tækniskólanum varð augljós kostur. Ég hef áhuga á listrænni ljósmyndun, allt frá landslagi og abstrakt yfir í portrett og heimildarljósmyndun. Ég fæ mikinn innblástur úr tónlistarheiminum og veröld kvikmyndanna en ég stefni á að verða kvikmyndagerðarmaður líka. Ljósmyndun er skemmtilegur og skapandi miðill sem veitir margar leiðir til tjáningar á listrænan hátt og mér finnst það frábært.
brynjarle_ https://brinnilh.wixsite.com/brynjarleo/
37
38
39
40
41
Urรฐur
42
43
44
Bríet Guðmundsdóttir Ég er 24 ára, fædd og uppalin í Skagafirði. Áhugi minn á ljósmyndun kviknaði snemma. Myndavélin var oftar en ekki með í för hvert sem ég fór en ég byrjaði mest að taka myndir af landslagi og náttúrunni. Eftir að ég kláraði stúdentsprófið heima á Króknum fór ég í Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Ég var alltaf með augastað á ljósmynda náminu í Tækniskólanum og byrjaði ég þar í grunnnáminu haustið 2018. Tíminn í skólanum hefur verið krefjandi en á sama tíma virkilega skemmtilegur og lærdómsríkur. Eftir útskrift í vor er stefnan að flytja norður við fyrsta tækifæri og langar mig að vinna við ljósmyndun þar í framtíðinni. Í dag veit ég fátt betra en ljósmyndun, ferðalög, útivist, handavinna og samvera með góðum vinum.
brietgudmundsdottir
45
Kálfshamarsvík
46
47
48
49
50
51
52
53
54
Elín björg guðmundsdóttir Frá því að ég man eftir mér hef ég tekið myndir. Ég man eftir mér 6 ára gamalli að kaupa mér einnota myndavél fyrir vasapeninginn. Um leið og filman fylltist hófst söfnun fyrir nýrri myndavél. Nú er ég 35 ára gömul og hefur þessi köllun aldrei yfirgefið mig. Ég hef reynt fyrir mér í alls konar námi og störfum en myndavélin er alltaf innan seilingar. Draumadagur hjá mér er að gleyma mér í náttúrunni og festa á filmu það sem hrífur mig í umhverfinu. Ég vill sýna ykkur augnablikið eins og ég upplifði það á þessarri stundu. Ég vill mynda sannleik og fegurð, heppilega því þetta tvennt er alls staðar. Heimurinn er svo fallegur. Ég hef verið starfandi ljósmyndari í 3 ár og er með studio sem heitir Hvergiland. Ég tek að mér alls kyns studiomyndatökur, heimildafrásagnir, event ljósmyndun og vörumyndatökur.
hvergilandphotography
55
56
57
58
59
60
61
62
63
Matarmyndataka
sameiginlegt verkefni Verkefnið var að mynda mat að eigin vali. Markmiðið var að þjálfa skynbragð á litaval, áferð, lýsingu og stemningu. Leikmunir voru mikilvægir. Útkoman varð tvær myndir. Hér má sjá eina mynd frá hverjum nemanda.
64
Bríet - bls. 44
Brynjar Leó - bls. 36
65
Katrín Björg - bls. 122
Nabduen - bls. 16
66
Ólafía Björt - bls. 8
Hrefna Morthens - bls. 112
67
Hulda Margrét - bls. 102
Lára Lind - bls. 82
68
Heiรฐa - bls. 132
ร sar - bls. 92
69
Katrín Ása - bls. 72
Elín Björg - bls. 54 70
Rakel Rún - bls. 26
71
72
Katrín Ása Karlsdóttir Ég er 24 ára gömul, fædd og uppalin í Vesturbænum í Reykjavík. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á ljósmyndun. Ég byrjaði mjög ung að taka myndir af landslagi, fjölskyldu og vinum. Mín helstu áhuga svið innan ljósmyndunar í dag eru einmitt annarsvegar landslag, en ég veit fátt skemmtilegra en að ferðast og vera úti í náttúrunni og hinsvegar fólk, sama hvort það er götulíf eða uppstillt portrait. Það sem heillar mig mest við ljósmyndun er að geta fangað falleg og skemmtileg augnablik sem aðrir geta síðan notið. Mig hafði lengi langað að læra ljósmyndun, þegar ég lét verða af því haustið 2018. Ég mun seint sjá eftir því enda ótrúlega krefjandi, lærdómsríkur og skemmtilegur tími. Eftir útskrift er draumurinn að fara í áframhaldandi nám til útlanda og í framtíðinni er ætlunin að starfa sem ljósmyndari á einn eða annan hátt.
katrinasa.photography
73
74
75
76
77
78
79
80
81
82
Lára Lind Jakobsdóttir Ég hef verið að taka myndir síðan að ég fékk mína fyrstu myndavél í fermingargjöf. Mér finnst rosalega mikilvægt að við notum sköpun okkar og vægi til þess að segja sögur. Formið sem listin gefur okkur er nefnilega ekki form, heldur víðátta. Að læra að skapa og koma hugmyndum sínum á blað er rosalega mikilvægt og ég hef ávallt reynt að fylgja því. Í gegnum allskonar ferli hef ég kynnst frábæru fólki sem kemur saman til að skapa eitthvað brjálæðislegt og fallegt. Takk allir sem hafa hjálpað mér að komast á þennan stað, ég gerði það alls ekki ein.
laralindphoto
www.laralindphoto.com
83
84
85
86
87
88
89
90
91
92
Ísar Þorsteinsson Ég fæddist árið 2001 í Kópavogi og er uppalinn þar. Ég hef lengi haft áhuga á ljósmyndun eða frá því að ég fékk mína fyrstu myndavél um 10 ára aldur. Ég hef þörf fyrir að tjá mig í gegnum list og mér finnst ljós myndun góður vettvangur til þess. Landslagsljósmyndun var og hefur alltaf verið mitt uppáhalds áhugasvið innan ljósmyndunar. En nýverið hef ég fengið áhuga á fjölbreyttari ljósmyndun eins og heimildarljós myndun, abstrakt og listrænni ljósmyndun. Ég vildi prófa óhefðbundið nám og læra það sem ég hafði áhuga á og fór því í Tækniskólann að læra ljósmyndun.
isarthorst
93
94
95
96
97
98
99
100
101
102
Hulda margrét Óladóttir Ég er 36 ára, fjögurra barna móðir, unnusta, viðskiptafræðingur ásamt því að starfa sem ljós myndari síðastliðin tvö ár samhliða námi mínu. Ég hef mest verið að mynda fjölskyldu- og barna ljósmyndir ásamt því að taka fótboltamyndir fyrir fotbolti.net. Síðustu 6 mánuði hef ég verið að taka að mér stærri verkefni fyrir bæði stofnanir og fyrirtæki. Ljósmyndastúdíóið mitt ber nafnið Hvítir Skuggar og er staðsett í Brautarholti 16 í Reykjavík. Ég hef ávallt haft mikinn áhuga á ljósmyndun og myndaði mjög mikið á filmu þegar ég var unglingur. Ég ætlaði alltaf upphaflega að fara í ljósmyndanám en allir í kringum mig sögðu við mig „það er ekki hægt að lifa á þessu”. Ég gerði því það sama og margir aðrir sem voru í sömu sporum og ég, það er að klára háskólanám, fara á vinnumarkaðinn og stofna fjölskyldu. Það var ekki fyrr en 12. mars 2016 sem ég fékk þá tilfinningu um að lífið væri of stutt að lifa annars manns draumi. Það var ekki fyrr en ég eignaðist yngsta barnið að ég áttaði mig á því að við sköpum okkar eigin framtíð og hamingju og að nú væri rétti tíminn, eini tíminn til þess að gera róttækar breytingar á lífi mínu og læra ljósmyndun. ég sé ekki eftir því í dag. Ég er ekki ein þeirra sem fékk áhugann á ljósmyndun út frá því að mynda landslag eða mynda allt sem á vegi þeirra var. Eftir sjálfsskoðun komst ég að því að ég hef allan tímann verið portrettljósmyndari í grunninn. Ég sækist í að mynda fólk, fyrir mér eru allir einstakir, og ég elska þegar ég næ fram persónutöfrum hvers og eins. Ég legg mikla áherslu á vönduð vinnubrögð, bæði í myndatökunni sjálfri sem og í eftirvinnslunni. Ef áhugi eða spurningar vakna þá endilega hafðu samband við mig í síma 897 0250 eða sendu mér tölvupóst á hulda@huldamargret.is Ást og friður, Hulda Margrét
Huldamargretphotography; Huldamargretsportphotography
www.huldamargret.is
103
growing together
104
105
106
107
108
109
Confessions of Isolation
110
111
112
Hrefna Morthens Ég er 25 ára Selfyssingur sem dreymir um að búa í Bandaríkjunum og starfa við ljósmyndun. Fyrstu myndavélina mína fékk ég í fermingargjöf og hún fylgdi mér alla daga allan daginn, hvort sem það var út að borða með krökkunum, að hitta vinkonurnar eða að plata fjölskyldumeðlimi í myndatökur. Það var svo ekki fyrr en 2017 sem ég fór til Viborg í Danmörku, að ég fór að læra ljósmyndun að viti. Þar kláraði ég eina önn í grunnnámi við Medieskolerne, kom svo heim og fékk að vera hjá Laufeyju Ósk í Stúdíó Stund og læra af henni. Hún kom mér á bragðið að fara í Tækniskólann og í dag er ég mjög ánægð með það. Ég klára námið í skólanum fljótlega og held svo áfram eftir það hjá Laufeyju. Ég er algjör “hopeless romantic” og hef verið það síðan ég man eftir mér, svo það kemur ekki mörgum sem þekkja mig á óvart að ég vil stefna að því að verða ljósmyndari sem myndar ástfangið fólk, hvort sem það er á brúðkaupsdaginn eða einfaldlega því þeim langar í fallegar myndir af sér saman. Auk þess að mynda ástfangið fólk þá hef ég áhuga á klassískum fjölskyldumyndum og tískuljósmyndun. Ég stefni að því að setja upp stúdíó en þykir ótrúlega gaman að leika mér með náttúrulega lýsingu og landslag í myndum og vil bæði mynda inni og úti.
hrefna.morthens
113
114
115
116
117
118
119
120
121
122
Katrín Björg Andersen Fyrir 12 árum eignaðist ég mína fyrstu alvöru myndavél. Síðan þá hef ég fiktað við ljósmyndun og alltaf haft gaman af. Á þessum 12 árum hef ég oft fengið hvatningu um að fara læra fagið. Það var svo haustið 2019 sem ég lét loks vaða og skráði mig í nám í ljósmyndun í Tækniskólanum. Námið hefur verið krefjandi en alveg einstaklega skemmtilegt. Í náminu fékk ég tækifæri til að finna mitt svið innan ljósmyndunar ásamt því að kynnast flestum hliðum fagsins. Áður hafði ég lært grafíska miðlun og tekið sveinspróf í prentsmíði.
katrinandersen_photography www.andersen.is
123
124
125
126
127
128
129
Lokaverkefni seinni önn
Vörumyndataka fyrir Jöklamús, fyrirtæki sem framleiðir smyrsl úr 18 íslenskum jurtum.
130
131
132
Heiða Norðkvist Halldórsdóttir Ég er 21 árs, fædd og uppalin í Reykjavík. Áhuginn fyrir ljósmyndun var lengi til staðar en hófst fyrir alvöru þegar ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð þaðan sem ég útskrifaðist vorið 2018. Mér finnst skemmtilegast að mynda fólk, bæði portrett og tískumyndir. Fólk er svo mismunandi og að fá aðra til þess að líða vel fyrir framan mynda vélina finnst mér svo mikilvægt. Fatastíll fólks er líka eitthvað sem ég pæli mikið í og finnst mjög áhugavert. Einnig heillast ég mikið af formum, línum og skuggum sem er í raun allt í kringum okkur. Í grunninn hef ég mjög vítt áhugasvið og langar til þess að læra meira og starfa á fjölbreyttu skapandi sviði í framtíðinni.
heidanh
133
Penta - Greek, Meaning Five
134
135
136
137
138
139
MYNDIR FRÁ BERLÍN
Ég fór með bekknum í tveggja vikna námsferð á haustönn
140
141
Tískumyndataka
sameiginlegt verkefni Verkefnið var tískuþáttur sem myndi birtast í tímariti eða sambærilegum miðli. Myndirnar máttu vera teknar í stúdíói eða á vettvangi í umhverfi að eigin vali. Fatnaðurinn átti að vera “söluvaran”. Markmiðið var að vinna með öðrum og æfa stíliseringu. Útkoman varð skapandi fimm mynda sería Hér má sjá eina mynd frá hverjum nemanda.
142
Katrín Björg - bls. 122
Hulda Margrét - bls. 102
143
Lára Lind - bls. 82
144
Rakel Rún - bls. 26
ร sar - bls. 92
Heiรฐa - bls. 132 145
Brynjar Leรณ - bls. 36
Nabduen - bls. 16 146
Bríet - bls. 44
Katrín Ása - bls. 72
Ólafía Björt - bls. 8
147
Hrefna Morthens - bls. 112
Elín Björg - bls. 54 148
Útskriftarnemendur 2019 - 2020
Efri röð frá vinstri: Rakel Rún Garðarsdóttir • Katrín Björg Andersen • Hulda Margrét Óladóttir • Nabduen Phumpraman • Hrefna Halldórsdóttir Morthens • Katrín Ása Karlsdóttir • Bríet Guðmundsdóttir Neðri röð frá vinstri: Ísar Þorsteinsson • Elín Björg Guðmundsdóttir • Heiða Norðkvist Halldórsdóttir • Ólafía Björt Benediktsdóttir • Lára Lind Jakobsdóttir • Brynjar Leó Hreiðarsson