Skip to main content

Hús feðra minna - Laura Alejandra Salinas Moreno

Page 1

Frรกsรถgn sem gerir andlitiรฐ fagurt


Hús feðra minna I FRÁSÖGN SEM GERIR ANDLITIÐ FAGURT


Hús feðra minna I FRÁSÖGN SEM GERIR ANDLITIÐ FAGURT

Jörn Riel


Hús feðra minna I, Frásögn sem gerir andlitið fagurt Bókin heitir á frummálinu: Mine fædres hus I, En fortælling hvoraf man får et smukt ansikt ©Jörn Riel Íslensk þýðing: ©Haukur Már Haraldsson Útgefandi: Mál og menning Öll réttindi áskilin. Hönnun kápu: Laura A. Salinas Umbrot: Laura A. salinas Prentvinnsla: Upplýsingatækniskólinn Bók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar eða útgefanda. ISBN 9788-7418-5774-9


Efnisyfirlit

1 Skýring Samúels frænda............................... 7 2 Pétur og húsið hans ..................................... 15 3 Um Gill frænda, Lilla Johnson og Sam........ 19 4 Fundur Péturs og Jóbalds á Allensléttunni... 22 5 Þegar Aviaja fannst....................................... 32 6 Meira um Aviöju.......................................... 36 7 Jón ærlegi...................................................... 42 8 Um Nikódemus............................................ 47 9 Hundakaup herra Pickerins.......................... 52 10 Um trommusöng Ivitaqs og það þegar Gill frændi varð ástfanginn........................... 56 11 Um Kinguk og það sem síðar gerðist............ 60 12 Táin hans Uleroqs......................................... 64 13 Nonni níufingur........................................... 68 14 Daginn fyrir brottför.................................... 72 15 Downty City................................................ 78 16 Brottförin..................................................... 80


I Skýring Samúels frænda Ég á tvo feður. Til að full­nægja kröfum sann­leikans ætti ég vissulega að eiga fimm, en félagarnir urðu sammála um að útnefna Pétur og Jóbald hina raunsönnu feður og gera þá Samúel, Gilbert og Lilla Johnson að eins konar frændum. Ég var getinn og fæddur í ósköp venjulegu heim­skauta­sam­bandi. Móðir mín var hviklynd stúlka af Tununerkiut ætt­bálkinum, eða eins og Samúel frændi útskýrði það fyrir mér síðar; hún hafði stórt hjarta og mjög heitt hjarta, sem svo auðveldlega hafði rúmað alla fjöl­skylduna. Ég fæddist sumardag einn á þriðja ára­tugnum. Móðir mín annaðist mig í sjö vikur en þá safnaði hún saman sínu stóra og gjaf­ milda hjarta og skenkti það skinna­kaup­manni, Moisise að nafni, sem einmitt þá átti leið um svæði félaganna. Kamíku­pósturinn sagði að parið hefði leitað til norð­vestur­svæðanna til að ferðast með Netsilik-eskimóunum, sem var hreint ekki ósennilegt, þar sem Moisise var getinn netsilik-konu af nokkrum valinkunnum mönnum í verslunar­stöðinni við Warwickflóa. Móður mína bar aldrei á góma í húsi Péturs og ég, sem skildi ekki nauðsyn slíkrar veru, saknaði hennar ekki. Mér nægði fóstur­móðir mín, Aviaja; elskuleg gömul eskimóakona sem mennirnir tóku í húsið skömmu eftir að ég fæddist. Það var fyrst þegar ég var tíu

HÚS FEÐRA MINNA I  | 7


Aviaja,eskimóakona

Ljósm: Hörður Helgason

ára og hafði um langt skeið fundið fyrir einhverju nýju og sætljúfu sunnan buxna­strengsins, að ég fór að velta fyrir mér leyndar­dómum tilurðarinnar. Kvöld nokkurt leitaði ég Sam frænda uppi til að fá forvitni minni fullnægt. Þetta var fagurt vorkvöld og Sam sat við ána og þvoði. Hann hafði, Aviöju til sárrar armæðu, ávallt verið mikill áhuga­maður um fata­þvott. Og af sinni venjulegu hug­kvæmni hafði hann smíðað út­ búnað, dráttar­búnað, sem að minnsta kosti veitti fötunum ákveðinn ferskleika, þótt hann þvægi þau ekki tandurhrein. Úti í miðri ánni var komið fyrir gömlu skipsankeri. Frá ankerinu lá tvöfaldur koparþráður að árbakkanum. Á þræðinum var komið fyrir lykkjum með hálfs meters milli­bili og í þær var fest skyrtum, buxum, sokkum og hverju

8 | HÚS FEÐRA MINNA I


því öðru sem þarfnaðist þvottar. Síðan var allt togað út í ána þar sem vatnið freyddi um það yfir nóttina, eða lengur, eftir því sem Sam frænda þótti hæfilegt. Eftir þennan þvott var dreift úr plöggunum renn­blautum á lyngið að húsabaki, þar sem þau þornuðu fljótt í mið­nætur­sólinni. Á veturna fékk þvotturinn að frjósa í lengd sinni og var síðan stillt upp við hús­gaflinn til hægfara vindþerris. Sam frændi notaði aldrei annað en vatn til þvotta. „Sápa,“ sagði hann, „er viðurstyggð sem eyðileggur bæði húð og föt.“ Sam frændi er lærður. Hann hafði farið í háskólann, var dr. phil. og notaði hálfgleraugu með mjög þykku gleri. Ég settist við dráttar­búnaðinn, lét bakhlutann hvíla á hælunum og vafði hand­leggjunum utan um hnén. „Sam frændi,“ sagði ég. „Hvaðan koma yrðlingar tófunnar?“ „Að aftan, drengur minn. Ævinlega að aftan.“ Ég taldi þetta fullnægjandi svar, þar sem ég hafði oft séð tófu gjóta. „En Pétur og Jóbald?“ hélt ég áfram. „Hvernig gátu þeir eignast mig? Hvernig gátu þeir það, Sam frændi?“ Sam togaði síðustu lykkjuna út í strauminn með skelfingarrykk. Hann festi línuna vandlega áður en hann sneri sér við og leit á mig fölbláum augum yfir hálf­gler­augun. „Þú áttir móður, drengur.“ „Hvað þá?“ „Móður. Þú komst úr einni svoleiðis.“ „Hvernig þá, Sam frændi?“ „Tja, það er nú ekki svo auðvelt að útskýra það.“ Hann hallaði undir flatt og sat um stund eins og hann væri að hrista vatn úr eyrunum. „Heyrðu, þú ættir heldur að spyrja feður þína. Reyndu Jóbald; hann getur áreiðanlega útskýrt þess háttar miklu betur en ég.“ „Ég er búinn að spyrja hann,“ sagði ég. „Hann vildi ekkert segja.

HÚS FEÐRA MINNA I  | 9


Hann bara teygði hand­leggina í áttina að Ungfrú Mollý og hrópaði: „Herra, gef mér einnig styrk í þetta“ og svo þaut hann upp í fjall að kasta steinum í höfuðið á sér. Hann veit áreiðanlega ekkert um þetta, heldurðu það, Sam frændi?“Ég færði mig nær honum.„Þegar ég spurði Pétur, sagði hann að þú værir einn af þeim sem allt vissu. Hann sagði að þú gætir útskýrt jóm­f rúar­fæðingu fyrir mér, ef um slíkt væri að ræða. Hvað er eiginlega móðir?“ Sam stundi þungan. „Jæja, sagði Pétur það? Sagði hann það í raun og veru? Þá verð ég víst að reyna.“ Hann lagði handlegg um axlir mér og þrýsti mér að sér. „Sjáðu til, pjakkur litli. Við mann­ fólkið erum ekki eins frábrugðnir öðrum spendýrum og við sjálfir viljum vera láta. Ef út í það er farið, erum við heldur ekki nema tvö skref frá trjám frum­skógarins. Þú hefur áreiðanlega séð hvernig Angut stekkur stundum á Qaqataq, ekki satt?“ Angut og Qaqataq voru tveir af sleða­hundunum okkar og voru oft leidd saman vegna gæða afkvæma þeirra. „Þau eru bara að leika sér,“ sagði ég, „það segir Pétur. Aviaja segir að þau séu að hlæja saman. Það er sennilega eins og þegar ég stekk höfrung yfir Lilla Johnson.“ Sam frændi tók hand­legginn af öxlum mér og tók að fægja gleraugun sín. Ég settist á hækjur fyrir framan hann og hélt áfram sigri hrósandi. „En ég er bara miklu duglegri en Angut. Hann bara stendur bakvið Qaqataq og kemst ekki yfir hana. Ég kemst yfir Lilla Johnson í hvert sinn, líka þegar hann er með bein hné.“ Sam frændi hristi höfuðið. „Það getur vissulega líkst höfrunga­ hlaupinu þínu, en þó er það ekki full­kom­lega það sama. Sjáðu til, hundarnir hafa ekki áhuga á að komast yfir og það hefur fullorðna fólkið reyndar ekki heldur, ef út í það er farið. Ef þú fylgist vel með Angut og Qaqataq næst þegar þau stökkva hvort á annað, tekur vandlega eftir því sem gerist og hvað það er í raun og veru sem þau

10 | HÚS FEÐRA MINNA I


Angut og Qaqataq

Ljósm: Hörður Helgasson

eru að gera og ef þú telur svo dagana þar til Qaqataq gýtur hvolpum, þá skilur þú hvernig á því stóð að Pétur og Jóbald eignuðust þig með móður þinni.“ „Nú, þannig,“ sagði ég lítið eitt von­svikinn. „Það vissi ég vel. Þá hafa Pétur og Jóbald stokkið höfrung yfir sömu tíkina á þennan sérstaka hátt og stuttu síðar kom ég út úr henni þar sem hún pissar líka.“ „Á vissan hátt, drengur minn, var það einhvern veginn þannig.“ „Hvar er þá tíkin núna; þessi sem varð móðir mín?“ spurði ég. „Tja, það var þannig að hún fór í burtu með ungum manni, náunga sem hún vildi heldur … stökkva höfrung með.“ „En Sam frændi, heldurðu að hún eignist enn hvolpa?“

HÚS FEÐRA MINNA I  | 11


„Örugglega, vinur minn, örugglega. Hún er ennþá ung kona.“ Sam frændi svitnaði þótt kvöldið væri fremur svalt. „Hefur þú stokkið höfrung, Sam frændi?“ „Tja, já, það hef ég vissulega. En nú eru mörg ár síðan.“ „Ég gæti líka vel hugsað mér að prófa það,“ sagði ég. Við sátum og horfðum út á ána. Fötin börðust um í straumnum og línan var svo strekkt að ég gat náð fram tónum með því að slá á hana með fingrunum. Kvöld­sólin skreið eftir fjall­stoppunum og frá firðinum heyrðust snarpir hvellir frá ís sem brotnaði á flóðinu. „Sam frændi,“ hvíslaði ég. „Gat móðir mín spýtt lang­spýting?“ „Hún tuggði ekki skro, að mig minnir.“ „En gat hún það?“ „Það held ég ekki.“ „Það getur Aviaja,“ fullvissaði ég hann um, hamingju­samur.

Tíu ara dreng spyr: Hvar er mamma?

12 | HÚS FEÐRA MINNA I

Ljósm: óþekktur


II Pétur og húsið hans Á lyngi­klæddum skika, hundrað metra frá ánni og við rætur fjallsins sem kallað var Ungfrú Mollý af því enginn hafði áhuga á að komast upp á það, stóð húsið. Þetta var gott hús. Hús með fagra rödd og angaði af einlægni. Það var hlýtt og þurrt, friðarins hús; musteri ástar og vináttu, hús sameinaðra þjóða, eða öllu heldur sam­einingar­hús þjóðanna; hús Bakkusar, dóms­hús, stjórnar­setur, hús visku og alls kyns lista, veiði­ hús, hús Herrans, hús Péturs og hús félaganna; en upp­haf­lega var það þó hús Patreks sáluga McHuges. Patrekur McHuges var þung­lyndur maður frá Downty City, bænum sem á árum áður hafði verið fram­vörður sið­menn­ing­ar­ inn­ar í norðri. Af ástæðum sem nú eru löngu komnar í glatkistuna neyddist McHuges til að yfirstíga þau mörk sem armur laganna náði til. Þegar hann, í leit sinni að veiði­svæðum, náði til dalsins við Fynesfjörðinn, gekk gegnum Gæsa­skarðið og stóð loks við rætur Ungfrú Mollýar, opinberaði náttúran sig fyrir honum í skrauti sem hann skildi ekki, en sem hann fann fyrir í djúpi sálarinnar; djúpi sem hann hafði ekki tekið eftir áður. Hann kreisti aftur augun til að fá fegurðar­á­hrifin í smá­skömmtum. Sólglitrandi vatnið með fjólubláum ísjökunum, lyngi­þakin slétta mót austri, bylgjandi val­múa­breiðan sem huldi landið um­hverfis smávötnin fimm og áin sem hlykkjaðist í

HÚS FEÐRA MINNA I  | 13


Húsið hans Péturs

Ljósm: Hörður Helgasson

Downty City

Ljósm: Hörður Helgasson

14 | HÚS FEÐRA MINNA I


sumar­leti gegnum sólbrúnt lyngið. Patrekur McHuges fann hvernig þessi yfir­þyrmandi fegurð opnaði þung­lyndan huga hans og vakti með honum tilfinningu sem var eins skýr og vinsamleg og ef hann hefði drukkið hálfa flösku af viskíi. Þð hlaut að vera vilji skaparans að hér yrði numið land. McHuges sneri aftur til Downty, þar sem hann umbreytti í kyrrþey sínum fáu eigum í birgðir, verkfæri og fagurlega útbúið bruggtæki. Hann kvaddi góða vini og hélt fullur eftir­væntingar áleiðis til Ungfrú Mollýar og Fynesfjarðarins. Auk dráttar­kerru með marg­vís­legum varningi hafði hann meðferðis fjóra áhugaverða hunda (af ólíkum kyn­stofni, því þeir voru fjarlægðir af götum Downty í flýti), Remington bakhlæðu með hana, ásamt konu nokkurri. Hann átti hamingjurík ár á heim­skauta­svæðunum. Hann elskaði hundana sína, húsið sem hann byggði sjálfur og drykkinn sem dag og nótt draup reglu­bundið eins og tif í klukku niður í geymi brugg­ tækisins. Konan hans var sterk, brún og ástríðufull. Patrekur McHuges dó árið 1897. Lifur hans var ekki sterk. Konan, sem erfði stórkostlegar birgðir hans af heima­brugguðu viskíi, fylgdi honum nokkrum mánuðum síðar. Það var ekkert að lifrinni í henni; hún kunni sér einfaldlega ekki hóf. Veiði­mennirnir sem bjuggu í nágrenninu gófu hina dauðu, skiptu með sér flöskubirgðum heimilisins, förguðu einstæðum hundum McHuges og negldu vandlega fyrir glugga og dyr. Þannig stóð húsið í myndrænni hrörnun þar til það var á ný tekið til íbúðar 1915.

Sameinuð í húsinu hans Péturs

Pétur kom frá Dauðsmannsflóa yfir Willsonhæðirnar og niður gegnum hið þrönga Gæsaskarð. Þegar hann stóð á litla lyngi­ klædda skikanum milli árinnar og hússins, fór nákvæmlega eins

HÚS FEÐRA MINNA I  | 15


fyrir honum og fyrir McHuges á sínum tíma. Blóðið jók ferðina í æðunum og hann fékk tilfinningu í hálsinn sem gerði það að verkum að hann langaði bæði til að hlæja og gráta. Innra með Pétri fæddist ómótstæðileg þörf til að segja eitthvað vel viðeigandi og eftir að hann hafði hugsað sig lengi um, lýsti hann tilfinningum sínum með: „Mikið djöfull er þetta flott!“ Pétur nam sér land. Þar sem húsið hafði eftir öllum sólar­merkjum að dæma staðið ónotað í mörg ár, bjó hann þar um sig áhyggjulaus. Veiði­mennirnir á svæðunum í kring, en sumir þeirra höfðu tekið þátt í að loka stöð McHuges, viður­kenndu Pétur fljótlega. Þeir komust að því, að ýmislegt var líkt með fyrr­verandi og nú­verandi eiganda, til dæmis ást á hundum, veiðum, heimabruggi og konum. Auk þess var Pétur ævinlega reiðubúinn að verja rétt sinn til staðarins með einstaklega sannfærandi rökum. Þegar hlerarnir höfðu verið teknir frá og reyk­háfurinn sendi frá sér reyk til himins á nýjan leik, fóru eskimóar og blóð­blandaðir

Ungfrú Mollý

16 | HÚS FEÐRA MINNA I

Ljósm: Hörður Helgasson


veiði­menn að streyma til hússins. Pétur tók hjartanlega á móti þeim og veitti þeim ríkulega. Þessir mörgu vinir færðu húsinu konur sem hlóðu Pétur með rausnarskap kynþáttar síns. Konurnar áttu sér samastað í húsinu samkvæmt flóknum reglum um þarfir og kring­um­stæður. Fyrsti áratugurinn var einnig tími ferðalaga hjá Pétri. Með húsið sem mið­punkt flæktist hann víða um auðnina, stundum með netsilikkum, stundum með baffínum en ekki síst með Odoniarssuaq, sem síðar verður sagt frá. Það var ekki fyrr en á þriðj­a ár­at­ ugn­um að á­hug­i Péturs á löng­ um sleða­ferðum og töfrandi kvenna­málum dvínaði. Það kallaði fram táraflóð hjá glaðværum stúlkunum og var slíkt áfall fyrir Odoniarssuaq að hann fluttist inn á hrein­dýra­slóðirnar og tók á nýjan leik upp flökku­lífið með ætt­flokki sínum. Pétur hafði þegar þetta var eignast vini sem sest höfðu að í húsinu. Trygga vini sem hann gat deilt með marg­vís­legri gleði hvers­dags­ lífsins. Pétur var elstur og fyrir því báru menn enn meiri virðingu. Vinir Péturs voru þeir Gilbert, Jóbald, Samúel og Lilli Johnson. Aðrir eins vinir fundust ekki í þessum hluta heimsins. Auk þess bættist ég við þennan litla sam­býlis­hóp um miðjan þriðja áratuginn og stuttu síðar eski­móa­konan Aviaja. Hér á eftir mun ég gera grein fyrir frændum mínum, Gill, Lilla Johnson og Samúel.

HÚS FEÐRA MINNA I  | 17


III Um Gill frænda,Lilla Johnson og Sam Af frændum mínum þremur var Gilbert örugglega sá til­finninga­ næmasti. Hann var draum­óra­maður og færði drauma sína í búning tónlistar og ljóða. Þegar ég til dæmis hafði einu sinni spurt hann um tilurð mína, hafði hann fest augu sín á himninum og svarað sterkum rómi: Enn ófæddur, enn aðeins bruni í lendum, enn aðeins faðmlag, skjálfti, baugur, glóð! Enn aðeins mjöður losta. – svar sem vitanlega hljómaði vel, en sem hafði ná­kvæm­lega enga þýðingu fyrir mig. Raunar gekk Gill frænda betur í síð­rómantískum stíl og það var ekki nema sjaldan sem ljóð hans voru svo nýstárleg að formi til og það sem birt er hér að ofan. Gill frændi fæddist í San Fransisco, sonur vinnu­fælins slátrara sem eyddi full­orðins­árum sínum í veitinga­húsinu „Káta Albatrosnum“.

HÚS FEÐRA MINNA I  | 19


Móðirin var þögul, sterk­byggð kona sem skipti tíma sínum milli hrein­gerninga „fyrir þá fínni“ og öldrykkju með eigin­manninum í Albatrosnum. Foreldrarnir litu á soninn Gilbert sem algjöran villi­ gróður. Hann var ein af þessum ódrepandi villijurtum sem náttúran lætur stundum vaxa í görðum heiðarlegs fólks og maður verður að reyna að lifa með í allri auðmýkt. Faðirinn orðaði það svo meðal vina sinna, að það væri aðeins tvennt sem plagað hefði hann í lífinu: Lekandi og Gill. Það var afar sjaldgæft að drengurinn ræddi við foreldra sína. Gerðist það, var það með orðum og setningum sem voru þeim viðlíka torskilin og hebreska eða tunga bantúnegranna. Drengurinn lifði í drauma­heimi sem byggður var forynjum, góðum álfum, ó­raun­veru­legum litum og hljóðum. Jafnvel áður en hann hafði lært að skrifa skáldaði hann langar epískar ballöður sem hann tautaði upp­hátt fyrir sjálfan sig. Væri hann ekki upp­tekinn af ljóðlist, spilaði hann á heima­gerðar flautur eftir nótnakerfi sem hann hafði sjálfur byggt upp með aðstoð rúðu­strikaðrar reiknings­bókar og talnanna frá einum upp í tólf. Til mikils léttis fyrir foreldra sína var hann tekinn snemma úr skóla. Faðirinn, sem eins og svo margir feður á undan honum geðjaðist engan veginn tilhneigingar drengsins til bókmennta og tónlistar og leit á skólavist sem heimskulegt dútl, fékk í gegnum sambönd sín í Albatrosnum hið merkilega barn sitt ráðið í niður­ suðu­verk­smiðju, sem framleiddi hádegis­verði fyrir hermennina á vígvöllum Evrópu. Gill, sem náttúran hafði gætt vin­gjarn­legri og með­færilegri lund, sætti sig þolinmóður við örlög sín og hann annaðist gúllaskanónu sína með svipuðum metnaði og aðrir ungir Ameríkanar önnuðust vopn sín í ókunnugum löndum. Frístundunum eyddi hann með foreldrum sínum í Albatrosnum, þar sem hann spilaði fyrir drykki

20 | HÚS FEÐRA MINNA I


handa fjöl­skyldunni á vanstillt píanó kráar­eig­andans. Á slíku kvöldi hitti hann Lilla Johnson. Styrj­öldinni var lokið og nýi heimurinn jafnt sem sá gamli voru að fá timburmenn eftir vímu sigursins. Í þrjú ár hafði Gill sprautað dósir fullar af óskilgreindu hráefni, í þrjú ár hafði hann staðið á sama stað, andað að sér sama súra loftinu, unnið sömu handtökin, – þriggja ára dauði. Gill var reiðubúinn að brjótast út. Lilli Johnson byrjaði hinum megin frá. Hann hóf ferðina á efstu rim þjóð­fé­lags­stigans með föður af aðal­sættum. Sá var á ferðalagi í Georgíuríki árið 1902. Þessi virðulegi faðir tryggði móður Lilla Johnson, svonefndri eld­húsjóm­frú á Hótel Longfeather, álitlega fjárhæð sem gerði henni kleift að ala önn fyrir Lilla Johnson, vaxandi systkinahópi og einum eða tveimur elskhugum. Tiginn uppruninn veitti Lilla Johnson vissa tign í barna­skaran­ um. Þegar sem drengur hafði hann þá bjargföstu skoðun að það væri umhverfið sem ætti að þjóna honum, en ekki öfugt. Þegar hann var fimmtán ára fluttu móðirin og systkinahópurinn suður á bóginn með frönskum prédíkara sem bent hafði á mexíkanska landa­mæra­ þorpið Deríó sem endur­komu­stað Krists. Meðan fjölskylda hans og prédíkarinn biðu þannig hins mikla dags í heilagri þolinmæði, reyndi Lilli Johnson að slá í gegn sem nautna­seggur. Hann var ekki gæddur hæfileikum föður síns. Tvisvar heimsótti hann tyftunar­hús borgarinnar áður en hann að síðustu róaðist niður sem uppvaskari á upphafsstað sínum, Hótel Longfeather. Hér hitti hann æviást sína. Hún var ganga­stúlka á daginn og vann sér fyrir kryddi lífsins á nóttunni. Því miður sýktist stúlkan af sjúkdómi sem hinir fjöl­mörgu vinir hennar ræddu ógjarnan um. Sjúkdómurinn kostaði Lilla Johnson og hálft hundrað annarra sómakærra borgara sérlega sárs­auka­fulla meðferð og rúmlegu með miklum sótthita. Eftir þessa sorglegu reynslu flæktist Lilli Johnson um land og

HÚS FEÐRA MINNA I  | 21


ríki í tvö ár. Hann lærði út í ystu æsar hina vanda­sömu list heima­ bruggunar og þróaði á þessum tíma bragð­lauka sína svo að þeir nálguðust fullkomnun. Snilli hans spannaði allt frá Agaves-spíra, Tequila og Mescal yfir Imiaq að hinu grípandi kínverska Sam-Sú. Náðargjöf hans leiddi hann til Frisco, þar sem einmitt í þá daga var rík þörf fyrir dugandi mann. Fundur hans og Gills leiddi til samkvæmis í Albatros, samkvæmis sem enn er minnst þegar sólin brennir tunguna í sandpappír í Sacramentódalnum Gill og Lilli Johnson urðu ásáttir um að fara í langferð um hina þyrstu Ameríku. Gegnum eyði­merkur Nevada, eftir hinu lífi sneydda salt­vatni, yfir fjall­garða Montana og lengra í norður lá leiðin. Gill spilaði og Lilli Johnson bruggaði. Þeir fóru yfir landa­mærin sunnan við Lyfjahatt og fylgdu Saskatchewanánni til Prins Albert. Þar hófu þeir hina löngu ferð upp í gegnum norð­vestur­svæðið. Tilviljunin leiddi þá að húsi Péturs. Eftir því sem sagnir herma átti sér stað minni­háttar ó­sam­komu­lag við lög­reglu­þjóninn í Downty City, eftir líflega sam­komu í Singapore, veitingahúsi Ernestós Whitecook. Til að friða yfirvöldin og gefa auk þess Ernestó tækifæri til að endur­byggja húsnæði sitt svo að segja frá grunni, héldu þeir lengra mót norðri, eins og svo margir mætir menn á undan þeim. Þeir heilluðust samstundis af kofa Patreks McHuges, af Pétri og þeirri undur­sam­legu ró sem stafaði af staðnum. Einkum virkaði hið síðar­nefnda sem græðandi áburður eftir hin órólegu flækingsár. Þeir aðlöguðust fljótlega hinum daglegu háttum, sem kröfðust svo lítils en veittu allan heiminn að launum.

Sam tók ákvörðun að ferðast til nýrra landa

Um uppruna Sams frænda veit ég undarlega lítið. Hann fæddist einhvers staðar í Póllandi, tók próf í mannfræði við háskólann

22 | HÚS FEÐRA MINNA I


í Varsjá og yfirgaf föður­landið fimmtán árum áður en ákveðinn veggfóðrari fór að bæra á sér í ná­granna­ríkinu. Starf hans leiddi hann víða. Hann valdi fljótlega eskimóafræði sem sérgrein og ferðaðist um stóran hluta heim­skautsins með aðstoð vinsamlegra eskimóa. Nauðsynlegur þáttur í fræðunum voru einnig heim­sóknir til Suður- og Mið-Ameríku, því hann var ákafur stuðnings­maður nýrrar kenningar sem sagði að eskimóar væru varanlegur blending­s­kyn­þáttur, víxl­blandaður Lagao-Santa kyn­þættinum og asískum mongólum. Sam frændi hafði slegið máli á sterklegar hauskúpur með háum en grönnum hvirfil­fleti, frá Brasilíu yfir Mið-Ameríku og Bandaríkin alla leið upp til ísauðna heim­skautsins. Á vissan hátt má segja að Sam frændi hafi samlagast fræðum sínum og vísinda­störfum. Hann er mjög vel að sér í tungu eskimóa og lifnaðar­háttum og eins og eskimóarnir hefur hann miklar mætur á munn­mæla­sögum heim­skauta­landsins og dularöflum. Tungutak hans smitaðist mjög af tjáningar­að­ferðum eskimóanna, þannig að hans daglega mál getur virst nokkuð myndrænt. Sam frændi kom veltandi að húsinu tveimur árum áður en ég fæddist. Hann valt niður brattar hlíðar Willsonhæða, gegnum Gæsa­skarðið, yfir litlu sléttuna og upp að suðurgaflinum á húsi félaganna. Í kjölfar hans kom þver­byggður dráttarsleði, vindflegið tjald og loks trékassi með kortum og handbókum um mann­f ræði. Sam kom fjúkandi í óveðri og það var alls ekki samkvæmt eðli hans. Hann hefði átt að koma muldrandi niður fjallið á fögru lognstilltu kvöldi, lýstu rauðgulu skini hnígandi sólar. Pétur og Lilli Johnson heyrðu höggið þegar hann skall á gaflin­ um. Þeir stukku út til að kanna hvað gerst hefði. Í gegnum snjó­ fokið sáu þeir lítinn þéttvaxinn mann sem fálmaði hálfrotaður eftir hálf­gler­augunum sínum.

HÚS FEÐRA MINNA I  | 23


Sam að tjalda í óveðri

Ljósm: Hörður Helgasson

Pétur fann gler­augun og hann hjálpaði ókunna manninum á fæt­ ur og bauð inn í hitann. Lilli Johnson sá um föggur mannsins og eftir að hafa rannsakað þær kom hann þeim fyrir í einum útiskúrnum. Sam var leiddur til sætis við langborðið og hóf að hreinsa gleraugun með skyrtulafinu. „Maður tjaldaði líklega of hátt,“flissaði hann. „Það var hressileg salibuna sem maður fékk.“ Sam hagræddi gleraugunum á nefinu. „Í litlu gili sem á kortinu er kallað Meyjarbrjóstin.“ Það liðu undrunar­hljóð frá mönnunum við borðið. Þeir störðu gapandi á Sam. Meyjar­brjóstin eða Rasskinnar Geltings, eins og hæðirnar voru einnig nefndar í minningu feitlagins gildruveiði­ manns, voru tveir ávalir hnjúkar á toppi Willsonhæða. Allir vissu að þessir hnjúkar voru ævinlega ísilagðir og hálir á haustin og enginn veiði­maður með vitglóru lét sér koma til hugar að tjalda þar, jafnvel

24 | HÚS FEÐRA MINNA I


ekki í rjóma­logni. Pétur ræskti sig vandræðalega. Það var erfitt að segja eitthvað gáfulegt í þessari stöðu. „Jahá … hm ... sagðirðu Meyjarbrjóstin? Við köllum þær Rass­ kinnar Geltings, en ég trúi að það sé sami staðurinn. Þú slóst upp tjöldum þar uppfrá, segirðu. Hm. Varstu veikur?„ spurði hann, „eða að niðurlotum kominn af þreytu? Við þekkjum það félagi. Augun fyllast af snjó og eitthvað sem er þyngra en blý fyllir stígvélin. Ójá, þá tjaldar maður hvar í fjandanum sem vera skal ... en á Rasskinnum Geltings!„ Sam virti gestgjafa sína fyrir sér alvarlegur í bragði. „Ég vil ekki halda því fram að ég hafi verið sérlega þreyttur og það var ekkert rok meðan ég tjaldaði. Sjáið þið til, ástæðan til þess að ég tjaldaði einmitt þarna var að ég fann sjaldgæfa steingervinga í gilinu. Ég tjaldaði yfir þá og hefði höggvið þá lausa í nótt.“ Gill, sem ekki var viss um hvað orðið steingervingur þýddi, færði sig laumulega lítið eitt frá Samúel. Varkárni hlaut að vera dyggð undir þessum kringum­stæðum. „Steingervingar?“ spurði hann. „Slíks dýrs hef ég aldrei heyrt getið áður. Er feldur þess síður eða stutthærður?“ „Það hefur engan feld,“ svaraði Sam. „Stein­gervingar eru for­ söguleg dýr eða plöntur, sem nú finnast steinrunnin.“ Gill kinkaði kolli rólegur í bragði. „Ég skildi heldur ekki þegar þú sagðist ætla að höggva þau laus,“ sagði hann eins og til að afsaka spurningu sína. „Ég hef aldrei heyrt um neinn sem höggvið hefur veiðidýr upp úr klettunum. Þess vegna spurði ég.“ Lilli Johnson drap tittlinga til félaganna. „Sagðirðu forsöguleg, Sam?“ Sá ókunnugi var örugglega gullnáma af frásögnum. „Segðu mér; getur maður líka verið svo lánsamur að rekast á forsögulega refi og bjarndýr í steinum?“ „Auðvitað, vinur minn. Þú finn­ur steingerða refi og birni og

HÚS FEÐRA MINNA I  | 25


mörg önnur landdýr. Það er ákaf­ lega áhugavert og maður getur til dæmis leitt að því líkur að margar dýra‑tegundir hafi lifað í mörgum heims­álf­um. Þann­ig hafa menn fund­ið steing­erða moskusuxa í evr­ ópsku sjávar­lagi og menn hafa líka fundið stein­gervinga af risa­eðlum sem að stærð taka langt fram þeim stærstu hvölum sem við þekkjum.“ Þessi síðasti saman­burður gerði Sam „mannfræðingur“ félagana feimna. Menn voru vanir Ljósm: óþekktur dig­urb­ark­a­legu tali. Það var sem öll þessi mikla náttúra, þetta villta lands­lag með klettum og ísbreiðum, hinar endalausu freð­mýrar og kílómetra há fjöllin hvettu fólk til að tvöfalda eða þrefalda allar stærðir. En að tala um dýr sem væru stærri en hvalir var nánast að stíga yfir mörk vel­sæmisins. Á hinn bóginn var ljóst að Samúel var ein­stakur sögumaður. Lilli Johnson varð fyrstur til að rjúfa þögnina. Hann spurði lítið eitt tillitslaus: „Hvaða starf stundar þú, Sam. Kaupirðu steindýr eða þess háttar?“ „Nei, ég er eiginlega aðeins mann­f ræðingur,“ svaraði Sam. Gler­ augun voru enn tekin af nefinu og með­höndluð af skyrtulafinu. „Jarðfræði er aðeins smá tómstundagaman sem ég sýsla við þegar tækifæri gefst.“ Pétur lagði stórar hendurnar á borðið fyrir framan sig. Hann sneri lófunum upp. Þannig sýslum við allir við sitt af hverju,“ sagði hann. „Við félagarnir höfum að vísu mestan áhuga á því sem lifir. Við veiðum sjávar- og landdýr, skilurðu? En svona hefur mann­

26 | HÚS FEÐRA MINNA I


fólkið mismunandi áhugamál, guði sé lof. Mætti maður spyrja, til að svala forvitni Lilla Johnson, hvað það er sem fært hefur þig á þessar slóðir?“ Sam andaði á gleraugun og fægði kunn­áttu­sam­lega. „Það eru mann­fræði­rann­sóknir, sem fært hafa mig hingað. Nú er um að ræða rannsókn á netsilik eskimóum. Auk þess hefur maður áætlanir um að leita ummerkja eftir sadlermiutana, sem dóu út um aldamótin. Ætlan mín er að ná til norðurhluta Baffin, áður en vetur gengur í garð.“ Pétur leit hugsandi á lófa sína. „Einmitt það, já. Jahá, það er ýmislegt sem við skiljum hér í húsinu. Mann­f ræði­rann­sóknir. Vissu­ lega hefur maður oft heyrt um slíkt, en maður er að verða of gamall til að muna merkingu allra þessara erfiðu orða.“ Sam svaraði tillitssamur: „Mann­f ræði snýst eins og þú veist, um uppruna mannsins og mismunandi kynþætti.“ „Þarna kom það,“ gall í Pétri. „Mér fannst ég líka hafa heyrt eitthvað um þetta áður. Bíddu nú við, þá ert þú það sem kallað er mann­vísinda­maður ?“ Sam kinkaði kolli og brosti til viðstaddra. „Andlega séð og dálítið ýkt er ég það sjálfsagt, en daglega nefnist ég aðeins mann­f ræðingur.“ Lilli Johnson laut yfir borðið og lagði fingur á öxl Sams. „Heyrðu Sam, þetta veit ég töluvert um,“ sagði hann. „Það hefur eitthvað með hauskúpur að gera, er það ekki?“ „Rétt.“ Sam kom gler­augunum fyrir á neðri helmingi nefsins. „Höfuðskeljar eru ómissandi í mínu fagi.“ „Ég þekkti einu sinni braskara frá Brasilíu,“ hélt Lilli Johnson áfram. „Hann var í sömu grein og þú. Alveg vitlaus í hausa af Tucano indíánum. Þú hefðir átt að sjá þá, Sam. Það var vinna. Nánast listiðn. Svo voru þeir ósviknir. Það er mikið um pretti í þessu starfi, Sam, þú verður að viður­kenna það; þú veist, með apa­höfuð, lélega suðu og þess háttar.“

HÚS FEÐRA MINNA I  | 27


„Það er sjálf­sagt rétt,“ samþykkti Sam, „en ég er á þeirri skoðun að vísindi vinar þíns hafi verið af öðrum toga en mín.“ Lilli Johnson kreppti hnefann og hélt honum við andlit Sams. „Þeir voru um það bil svona stórir,“ útskýrði hann, „og verulega vel saumaðir saman við bæði augu og varir. Það er enginn vafi á að þetta voru sömu vísindi og þín, Sam. Ég þekki þennan náunga mjög vel, verð ég að segja, því við stóðum í ýmsum við­skiptum saman. Og,“ bætti hann við, eins og til endanlegrar sönnunar, „hann var með nákvæmlega sams konar gleraugu og þú.“ „Ekki skyldi maður neita því að vinur þinn hafi viss mannfræðileg áhugamál,“ sagði Sam vingjarnlega, „en maður verður þó að reikna með því að hans höfuð­áh ­ uga­mál hafi verið við­skipti.“ „Þar hittirði naglann á höfuðið, Sam. Hann smyglaði hausunum í gegnum Kúbu og seldi þá ríkum túristum í Flórída.“ Einingu var náð og nú seig þægilegt and­rúms­loft yfir mennina við borðið. Gill sauð selkjöt og Lilli Johnson bar fram Sam-Sú. Sam var neyddur til að borða svo mikið að tunga hans, eins og hann orðaði það sjálfur, stóð næstum upp á endann. Þegar menn sátu við kvöld­drykkinn eftir máltíðina, spurði Gill: „Segðu mér, Sam, ætlarðu raun­veru­lega að fara alla leið upp til norður­enda eyjarinnar í ár?“ Sam lagði glasið varlega á borðið og hallaði sér aftur á bak í stólnum. „Maður vill vita eitthvað um sadlermiutana, sem eftir því sem sagt er voru hreint stór­kost­legt fólk. Þeir voru yfirmáta sóðalegir, líklega mestu svínin á heim­skauta­svæðunum. Húsin þeirra voru svört af sóti, vegna þess að konurnar þeirra hugsuðu ekkert um lampana og veggir þeirra og rúm­stæði voru klístrug og angandi af spiki. Furðulegt fólk með furðulega siði. Mér hefur verið sagt að þeir hafi borið spikið frá veiði­stöðvunum þannig, að þeir skáru stórt gat í miðjuna og smeygðu spik­stykkjunum yfir höfuðið eins

28 | HÚS FEÐRA MINNA I


og kraga. Jafnvel þótt fólkið sé nú horfið, hljóta að finnast einhverjir Baffín­lendingar sem muna ennþá eftir þeim.“ Pétur horfði að­dáunar­augum á þennan litla, þéttvaxna náunga. „Þú veist sjálfsagt heil ósköp, Sam og hefur ferðast mikið. Ég myndi aldrei láta mig dreyma um að fara svo langt norður­eftir að hausti til. Er það ekki töluverð áhætta að ferðast einn um þessar breiddar­ gráður með þann útbúnað sem þú hefur?“ „Hjá mér er spurningin um farangur ekki eins mikilvæg og um ferða­félaga,“ svaraði Sam. „Ég hef, eins og þið hafið tekið eftir, lítinn útbúnað og er á allan hátt lítil­mót­legur ferðamaður. En maður talar fjórar eski­móa­mállískur og hefur frið­samlegt hugarfar.“ „Ferðist maður með eskimóum gegnir allt öðru máli,“ sagði Pétur og kinkaði kolli. „Betri ferða­félagar finnast ekki. Málið er bara að finna þá, Sam. Mér er næst að halda að þú hefðir átt að hefja ferðina fyrr. Það eru margar dag­leiðir til næstu útstöðvar og Herrann einn veit hvar hirðingjarnir halda sig á þessum tíma árs. Nú er haust, Sam, eins og þú fékkst að reyna þegar þú faukst niður af Rasskinnum Geltings.“ Pétur teiknaði með vísifingri á borðplötuna. Lilli Johnson sá að hann var í klemmu, að hann átti erfitt með að finna réttu orðin. Loks komu þau. „Það er ekki lengur sérstaklega mikið pláss hér í húsinu og ég get vel skilið að þú skulir vilja komast sem fyrst til að sinna verkefnum þínum. Sjálfsagt erum við ekki mjög vísindalegir í okkur, þótt við vitum ýmislegt um sitt af hverju. En hafir þú löngun til að hvílast um stundar­sakir og skoða stein­gervingana hér í kring í ró og næði, hýsum við þig með ánægju. Síðan getum við flutt þig á fyrstu ísalögum til Ukusik, sem er næsta mannabyggð.“ Sam hristi höfuðið. „Þetta er mjög vingjarnlegt af ykkur, en maður myndi aðeins verða til aukinnar fyrirhafnar. Þið mynduð fljótlega verða þreyttir á að hafa miðaldra ónothæft flón í húsinu. Ég get hvorki veitt né verkað skinn.“

HÚS FEÐRA MINNA I  | 29


„Þú myndir gera okkur greiða með því að dveljast hjá okkur,“ sagði Pétur nánast biðjandi. Hann var að hugsa um hve skemmti­ legur ávinningur Sam myndi verða og hve skelfilegt það yrði ef einhver ná­grannannan tryggði sér hann til langframa. Hann horfði spenntur á gestinn. Breitt bros breiddist yfir hrukkótt andlit Samúels. „Það gerist stundum að maður fyllist gleðilegri tilfinningu og situr því bara og skortir orð,“ sagði hann. „Þakka ykkur fyrir. Maður verður þá kyrr.“ Sam komst aldrei á norður­enda Baffíneyjar. Til þess þó að hafa reglu á hlutunum og til að gróa ekki fastur við Ungfrú Mollý, ræddi hann um það á hverju ári að hafa sig af stað. Þó gætti hann þess vand­lega að koma fram með þessar fararóskir sínar á þeim árstíma er komandi vetur hafði þegar komið í veg fyrir sérhverja tilraun til ferðalaga. Samúel eignaðist góða vini, stað þar sem hann gat iðkað fræði sín í ró og næði og loks – þegar ég kom í heiminn – fjölskyldu. Hér á eftir ætla ég að segja frá Jóbald og fundum hans og Péturs á Allansléttunni sumarið 1933.

30 | HÚS FEÐRA MINNA I


„Sam stundi þungan. „Jæja, sagði Pétur það? Sagði hann það í raun og veru? Þá verð ég víst að reyna.“ Hann lagði handlegg um axlir mér og þrýsti mér að sér. „Sjáðu til, pjakkur litli. Við mann­fólkið erum ekki eins frábrugðnir öðrum spendýrum og við sjálfir viljum vera láta. Ef út í það er farið, erum við heldur ekki nema tvö skref frá trjám frum­skógarins. Þú hefur áreiðanlega séð hvernig Angut stekkur stundum á Qaqataq, ekki satt?“ Angut og Qaqataq voru tveir af sleða­hundunum okkar og voru oft leidd saman vegna gæða afkvæma þeirra.“ —Jörn Riel


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Hús feðra minna - Laura Alejandra Salinas Moreno by Tækniskólinn - Issuu