.: Framsækni – virðing – fagmennska Iðan fræðslusetur er í fararbroddi í símenntun iðngreina, með fræðslu, miðlun og þjónustu sem stuðlar að framþróun í iðnaði. Við erum með þér í liði.
Vatnagarðar 20 .: 104 Reykjavík .: Sími: 590 6400 .: idan@idna.is .: www.idan.is
leiðari Þetta er Embla, sem er hluti af lokaverkefninu. Hver nemandi hannar sitt eigið tímarit, og ræður umfjöllunarefninu. Í minni Emblu setti ég þá hluti sem ég hef mestan áhuga fyrir um þessar mundir. Svo eftir áratug get ég kíkt á þetta blað og litið á það sem tímavél og lesið um hvað ég hafði áhuga á. Innblásturinn á hönnunin er í takt við viðfangsefnin. Stóra spurning er: hvað ég mun gera í fram tíðinni? Sannleikurinn er sá að ég hef verið að auka við mig menntun, grafískri mið lun í Tækniskólanum og stúdentspróf úr tölvuleikjabraut úr Menntaskólanum á Ás brú. Kannski mun ég halda áfram í grafík kannski prófa ég eitthvað allt annað. En eitt er víst að allt það sem ég læri mun nýtast mér í framtíðinni En það er búið að vera mjög skemmtilegt og lærdómsríkt að læra hérna í Tækniskólanum.
Umbrot Þorsteinn Hugi Daníelsson
4
Um mig
Hönnun Forsíðu Þorsteinn Hugi Daníelsson Nemendamynd Auðbjörg Helga Guðmundsdóttir
6
The Thing
Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Pappír Innsíður: Digi Finesse silk 130 gr. Kápa: Digi Finesse silk 170 gr.
8 Þróun Batman's
4 | Embla
um mig... ... Ég heiti Þorsteinn Hugi Daníelsson en flestir kalla mig Hugi. Ég er fæddur þann 14. nóvember árið 2003 og mestan hluta ævi minnar hef ég búið í Reykjavík. Á unga aldri fluttist ég til Barcelona á Spáni og bjó þar í þrjú ár. Árið 2019 byrjaði ég í glænýjum skóla, Menntaskólanum við Ásbrú og lærði þar tölvuleikjagerð og útskrifaðist þaðan árið 2022. Ég var forvitinn yfir grafískri miðlun því að pabbi minn er að vinna í þessum bransa, þannig að ég skráði mig í námið. Ég hef áhuga á bíómyndum, tölvuleikjum, og teiknimyndasögum, einnig hef ég gaman að mannkynssögu líka. Ofur-hetjum og eru hasar-, sci-fi- og hryllingsmyndir í sérstöku uppáhaldi hjá mér, aðallega frá níunda áratugnum (80’s). Þar fæ ég mestan innblástur.
Embla | 5
The Thing From Outer Space Í heimi hryllings- og vísindaskáldsagna bíó myndum, stendur myndin „The Thing“ eftir John Carpenter tímans tönn og er oft talið meistaraverk. Þegar myndin kom fyrst út fékk hún ekki góðar móttökur hjá gagnrýnendum og almenningi. En þegar á leið varð hún vinsælli og vinsælli og öðlaðist „cult status“ og er talin klassík í dag. Sagan og hugmyndin að „The Thing“ var byggð á skáldsögu John W. Campbell Jr. „Who Goes There?“ sem var gefin út árið 1938 og er endur gerð kvikmyndarinnar „The Thing from Another World“ frá 1951 í leikstjórn Howard Hawks og Christian Nyby. Sagan snýst um hóp vísindamanna á Suðurskautslandinu sem finna geimveru sem getur líkt eftir hvaða lífveru sem hún kemst í snertingu við. Carpenter laðaðist að mannlegum en jafnframt hrollvekjandi forsendum skáldsögunnar og möguleikum hennar til að kanna þemu eins og ofsóknarbrjálæði, einan grun og traust í streituríku umhverfi. Carpenter, sem hafði áður leikstýrt hinni byltingarkenndu hrollvekju Halloween (1978) og The Fog (1980) setti saman hóp hæfileikaríkra samstarfsmanna, þar á meðal handritshöfundinn Bill Lancaster, tæknibrellumeistarann Rob Bottin og tónskáldið Ennio Morricone. Með þessa hæfileikaríku áhöfn á sínum stað var sviðið sett fyrir hinn fullkomna geimveru hrylling, sem verður betri með hverju árinu sem líður. Ótti í einangrun Einn af mest sláandi þáttum „The Thing“ er áþreifanlegt andrúmsloft ótta og einangrunar. Myndin var fyrst og fremst tekin upp í bresku Kólumbíu í Kanada, þar sem áhöfnin lenti í erfiðum veðurskilyrðum, sem gerði umhverfið og einangrunar tilfinninguna enn raunverulegri. En myndin á að gerast á Suðurskautslandinu. Byltingarkennt tæknibrelluverk Rob Bottins gegndi lykilhlutverki í að skapa martraðarkenndar umbreytingar geim-
6 | Embla
verunnar í hinar ýmsu óhugnanlegu lífverur. Þessum tæknibrellum, sem settu nýjan staðal fyrir hryllingsmyndir þess tíma, er enn fagnað í dag fyrir nýstárlegt og ógnvænlegt eðli sitt. Tónlistin í „The Thing“ er samin af hinu goðsagnakennda tónskáldi Ennio Morricone. Hún ýtir undir allar þær tilfinningar sem myndin á að kalla fram og hjálpar til við hið forboðna eðli myndarinnar. Samanlagt stuðluðu þessir þættir, þ.e.a.s. tæknibrellurnar, tónlistin og upptöku staðsetningin mikið að andrúmslofti myndarinnar.
The Thing gerð af Rob Bottin.
Kalt veðurfar og enn kaldari viðtökur Þegar „The Thing“ kom út árið 1982, stóð hún frammi fyrir óheppilegum örlögum. Hún var frumsýnd á sama tíma og önnur vísindaskáldsögumynd um strandaða geimveru. En það er hin gífurlega vinsæla „E.T. the Extra-Terrestrial“ eftir Steven Spielberg. Fyrir vikið átti hún í erfiðleikum með miðasöluna og þénaði aðeins brot af fjárhagsáætlun sinni. Gagnrýnin var mis góð eða réttara sagt mis slæm. Sumir gagnrýnendur lofuðu tæknibrellur hennar og spennu en öðrum fannst grafískt innihald hennar truflandi. Hrollvekjandi og svartsýn hryllingsmynd Carpenter var á skjöni við hina bjartsýnu og fjölskylduvænu „E.T.“. Talið er að þessi andstæða í innihaldi og sköpun hafi átt stóran þátt í því að „The Thing“ féll í gleymsku
tiltölulega stutt eftir útgáfu hennar. En sá hlær best sem síðast hlær, því í dag er „The Thing“ ein vinsælasta og virtasta vísinda hrollvekja sögunnar og er enn þann dag í dag sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim. Hún hefur svo sannarlega fengið þá viðurkenningu í dag sem hún skilið.
Kurt Russel.
Að þiðna úr ísnum Á árunum sem fylgdu upphaflegu útgáfu „The Thing“ varð myndin gífurlega vinsæl hjá fá mennum en dyggum hóp kvikmyndaáhugafólks sem líkja má við sértrúarsöfnuð.Þemu myndar innar um traust og ofsóknaræði slógu í gegn hjá
áhorfendum og kvikmynda brellurnar héldu áfram að koma áhorfendum á óvart og hræða þá. Einn af lykilþáttunum sem stuðlaði að gagnrýnni endurmati myndarinnar var breytingin á hrollvekjunni sjálfri. Eftir því sem hryllings bíó þróaðist, með meiri áherslu á sálrænan hrylling og tæknibrellum, var farið að skoða „The Thing“ í nýju ljósi. Gagnrýnendur og kvikmyndagerðarmenn viðurkenndu áhrifamátt myndarinnar, sérstaklega í mótun líkamshryllings sem undirflokki bíómynda. Í dag stendur „The Thing“ sem vitnisburður um varanlegan kraft tæknibrellna og frásagnar í hryll ings bíómyndum. Henni er fagnað fyrir getu sína til að vekja ótta og spennu, jafnvel áratugum eftir útgáfu hennar. Staða myndarinnar hefur breyst frá því að vera misskilin, vanmetin gimsteinn yfir í dáða klassík. „The Thing“ er áminning um að fyrstu viðtökur kvikmyndar eru ekki alltaf til marks um langtímaáhrif hennar og velgengni. Það er lýsandi dæmi um hvernig samstarfsverkefni, undir forystu hugsjóna leikstjóra, getur framleitt listaverk sem stenst tímans tönn. Það sannar að sönn klassík rís yfir mótlæti til að finna sinn rétta stað sem ein af bestu kvikmyndum sögunnar.
Fótbolti Sund Körfubolti Skíða íþróttir Hlaup Embla | 7 Ármúli 12 • 104 Reykjavík • 568 3200 • sleipnir.is
8 | Embla
„The Dread Batman“ Batman eða „Leðurblökumaðurinn“ varð fyrst fyrir augum almennings 27. maí 1939 í Detective Comics #27 og á undanförnum átta tíu árum er Batman orðið eitt þekktasta vöru merki sem til er á jörðinni. Batman hefur kom ið fram í kvikmyndum, í slatta af teiknimynda sjónvarpsþáttum og í fleiri teiknimyndasögum en ég gæti mögulega talið upp. Endalaus stríð hans og sigrar gegn hinu illa, bæði í borginni Gotham og innra með honum sjálfum, hefur heillað áhorfendur víðs vegar um heiminn og gert hann að einni vinsælustu táknmynd í popp menningu heimsins. Sköpun Batman's eftir rithöfundinn Bill Finger og teiknarans Bob Kane var undir áhrifum frá mörgum „pulp“ hetjum þess tíma (1930–40) eins og „The Shadow“ og „The Phantom“, þar á meðal velgengni Superman’s árið áður, og jafnvel skissu af „Fljúgandi vél“ frá Leonardo Da Vinci. Ríki aðalsmaðurinn á daginn og hinn hefndarfulli árvekni á næturnar naut mikilla vinsælda og hefur hann þurft að þola mikla erfiðleika í lífi sínu og tók hann þó nokkurn tíma að finna sjálfan sig og þróast að fullu í táknið og manninn sem við þekkjum í dag.
Myndasögur hafa verið flokkaðar í fjögur mismunandi tímabil: Gullöldin (1938–1956), silfuröldin (1956–1970), bronsöldin (1970–1985) og dimma-/nútímaöldin (1985–?). Það er mikil rökræða um hvort og hvenær þetta síðasta tímabil sé á enda og ef svo hvenær var það. Öll þessi heiti og tímabil komu við endurskoðun sem einungis er hægt að skoða í baksýnis speglinum. Ákveðnar stefnur í stíl og þemu réðu því. Gullöldin byrjaði með komu Superman í blaðinu Action Comics #1 árið 1938. Tímabilið einkenndist af ofurhetjum og var þekkt fyrir saklausari og þjóðræknari tón. Silfuröldin var endurvakning ofurhetjanna og er oft viður kennd af kómískum og hugmyndaríkum, vísindalegum söguþráðum og yfirdrifnum tóni. Bronsöldin vék frá „kjánaskap“ silfur aldarinnar og myndasögur urðu flóknari og samfélagslega meðvitaðri og tóku ofurhetjur í alvarlegri átt. Dimma-/nútíma tímabilið er víðfeðmt tímabil þar sem myndasögur tóku grimmari stefnu, brjóta niður margt af því sem á undan kom og fjölluðu um þroskaðri málefni og myndmál. Meiri raunveruleiki minna grín og glens.
Gullnu árin (1939–1956) Bob Kane var teiknarinn en það var Bill Finger sem skapaði hið táknræna útlit sem var frum sýnt í Detective Comics #27 árið 1939, einu ári eftir frumraun Superman's og byrjun gullaldar teiknimynda sagnanna. Þetta tímabil lagði grundvöllinn að mikilvægum grunni fyrir persónusköpun Batman's sem hélt áfram með framtíðarútgáfum á karakternum. Uppruni hans kom ekki í ljós fyrr en Detective Comics #33, sem sýndi hörmulegan dauða foreldra hans sem mótaði „The Dark Knight.“ Auk þess voru óteljandi mörgum frægum og þekktum illmennum hans mótuð á þessu tímabili, til dæmis: The Joker (1940), Catwoman (1940), Penguin (1941), Scarecrow (1941), Two-Face (1942) og The Riddler (1948). Batman 1939–1940 var mjög ólíkur þeim sem við þekkjum í dag, hann var líkari „pulp“ hetjunum og hetjunum (sem tóku málið í sínar hendur). Á þessum tímapunkti hafði reglu hans um að drepa ekki, ekki enn verið komið á, og ekki heldur andúð hans á byssum. Hann ráfaði um borgina sína, skaut niður vampírur, henti þrjótum fram af byggingum og hengdi risastór skrímsli utan á flug vélinni sína. Þessi fyrsta útgáfa af Bat man varði ekki lengi og ekki leið á löngu þar til breytingar urðu á í höfuðstöðvum DC. Teymið sem samdi myndasögurn ar um Batman vildi láta hann fá að stoðarmann, einhvern sem hann gæti séð um og hjálpað, Nokkurs konar tenging við hið mannlega eðli. Batman varð nokkurs konar
10 | Embla
föðurímynd. Þannig að í Detective Comics #38 var Robin (Undra drengurinn) kynntur til leiks. Með komu þessarar nýju ofurhetju fengu önnur börn meiri áhuga á bókinni og foreldrarnir líka. Áhyggjur foreldranna á drápum Batman's mótuðu að lokum aðal reglu hans um að drepa ekki þegar þáverandi ritstjóri Whitn ey Ellsworth sagði núverandi rithöfundi Bill Finger að stöðva hann í að drepa og Bill gerði það með gleði. Batman myndi á þeim tíma punkti ekki lengur beita banvænu valdi, eins og fram kemur í Batman #4 þar sem hann sagði „Við drepum aldrei með vopnum af neinu tagi.“ Flest framlag þessa tíma tilheyrir Bill Finger sem því miður fékk aldrei þann heiður sem hann átti skilið á meðan hann lifði fyrr en allt of seint. Hann lést árið 1974 en hann fékk ekki viðurkenningu fyrir áhrif sín og sköpun á Batman fyrr en bókin „Bill the Boy Wonder: The Secret Co-Creator of Batman“ kom út árið 2012.
Bill Finger.
Enginn silfur vegur (1956–1970) Með minnkandi vinsældum ofurhetja kom að lokum gullaldar myndasögunnar, DC teiknimyndasögur voru farnar að kanna aðr ar tegundir af myndasögum, og voru bara með áherslu á einungis þrjár vinsælustu per sónurnar þeirra Superman, Wonder Woman og Batman. Árið 1954 kom út bókin „Seduction of the Inn ocent“ sem svívirti myndasöguiðnaðinn og fullyrti að hún væri skaðleg fyrir unga áhorf endur. Svo á sama ár var Myndasögueftirlitið eða „The Comics Code Authority“ stofnað og teiknimyndasögum var mikið stjórnað af því. Þá sneru teiknimyndasögur Batman frá því að vera róttækar leynilögreglusögur í það að verða háþróuð vísindaskáldsögu plott og í staðinn fyrir að berjast á móti glæpaforingja og brjáluðum trúð urðu það risastór vélmenni og geimverur. Söguþráðurinn varð undarlegri og undarlegri með hverju nýju hefti, mörg
um hugmyndum var varpað fram en fæstar þeirra náðu fótfestu. Adam West sjón varpsþátturinn sem átti sér stað samtímis var vel heppnaður og vinsæll, en myndasögubókin átti undir högg að sækja og var næst um því hætt að framleiða hana. Ástæðan fyrir þessu er frekar einföld, það voru til betri kostir, Superman pass aði bara miklu betur inn í tóninn í þessum myndasögum. Þannig að til að bjarga Batman myndasögunum þurfti eitthvað að gerast og því var komið af stað breytingum og unnið í lausnum.
VERÐMÆTUSTU TEIKNIMYNDASÖGUR BATMAN'S Staða
Útgáfa
Verð
1.
Batman #1
2.22 milljón
2.
Detective Comics #27
1.50 milljón
3.
Detective Comics #29
0.28 milljón
4.
Detective Comics #31
0.18 milljón
5.
Detective Comics #38
0.13 milljón Embla | 11
Brons endurreisnin (1970–1985) Mörgum finnst gaman að deila um hver bjarg aði Batman úr djúpinu og skilaði honum til fyrri dýrðar, margir spyrja; „hver bjargaði Bat man?“ Sumir myndu segja að það væri Tim Burton… aðrir Frank Miller… fyrir mig? Var það maður að nafni Dennis O'Neill. Hann og allir aðrir listamenn og rithöfundar áratugarins. Detective Comics #395 var skrifuð af Dennis O'Neill og teiknuð af Neal Adams og hafði þessi myndasaga og þeirra verk gífurleg áhrif á komandi kynslóðir, þar sem þeir héldu áfram að búa til marga klassíska söguþræði saman. Rithöfundurinn Dennis O’Neill hafði í hyggju að koma Batman aftur sinna dökku róta og tengja hann í raunveruleikann, hann vildi líka gera teiknimyndasögur Batman meira samfé lagslega meðvitaðar og sýna þyngri þemu og tjáði sig um mörg þjóðfélagsmál þess tíma. Robin var að mestu leyti tekinn frá bókinni og settur í háskóla og Batman var tekin út úr höfuðstöðvum sínum og úr landi og var settur nær hjarta borgarinnar. Illmennirnir hans urðu minni kjánalegir og meiri hættulegir, en héldu samt áfram í brellurnar sínar. Batman var leynilögga aftur, sem einbeitti sér meira að glæpum á lágu stigi, en hann stöðvaði líka hinar einstöku áætlanir um heimsyfirráð og ævintýri á heimsvísu því þetta tímabil fékk mikinn innblástur frá James Bond. Rithöfundar veittu persónunni meiri nýj ungar og margbreytileika og lögðu áherslu á harmleikinn í uppruna hans og gáfu hvatn ingu hans og viðhorfum ný lög, frumkvöðla rithöfundar eins og Steve Englehart héldu
12 | Embla
áfram að bæta við goðafræðina, endurkynntu og endurskilgreindu gamlar persónur eins og Hugo Strange og Deadshot. Nokkur eftir tektarverð ný illmenni komu til sögunnar en enginn var eins áberandi síðar og Ra's al Ghul, sem varð aðalandstæðingur Batmans í mynd Christopher Nolan Batman Begins (2005). Til að hjálpa til við róttækari og raunverulegri mynd af persónunni, þá státaði sjöundi ára tugurinn af nokkrum af bestu listamönnum sem Batman hefur átt, listamönnum eins og Neal Adams, Marshall Rogers, Dick Giorda no og fleirum tókst að lífga upp á Batman og veruleikann hans. Undanfarinn áratug var Batman endurvakinn, þótt andi bronsaldar myndi halda áfram að hafa áhrif löngu áður en honum lauk og heldur áfram að hafa áhrif á margar helstu endurtekningar persónunn ar. Þar á meðal Batman teiknimyndaseríuna frá 1992 sem margir telja vera besta útgáfan af karakternum, hún endurheimti sama létta en alvarlega tón þessara klassísku mynda blaðasagna og nýtti einnig nokkra söguþræði frá gamla tímanum. Árið 1985 kom út risastór viðburðabók sem heitir Crisis on Infinite Earths sem hver einasta hetja í DC tók þátt í, sem straumlínulagaði heiminn DC’s til að auðvelda aðgang fyrir nýja lesendur sem voru hræddir vegna þéttleika heimsins sem þeir hafa byggt upp. Þessi endurræsing DC opnaði hliðin fyrir nýrri, gróf ari og dekkri tímabil fyrir „The Caped Crusader“.
Dekkri og jafnvel grófari (1986– 1996?) Árið 1986 breyttist allt með útgáfu hinnar byltingarkenndu fjögurra hefta smá seríu Bat man: The Dark Knight Returns. Skrifuð og teiknuð af Frank Miller með Lynn Varley og Klaus Janson, aldrei áður hefur ofurhetju teiknimyndasaga náð slíkum grófleika og sýnt eins mikið ofbeldi eins og þessi saga. Vegna velgengni þessar ar bókar og Watchmen sama ár urðu ofurhetju myndasögur djarfari og hugrakkari, og þær áttu svo sannarlega þátt í uppgangi andhetja níunda áratugarins sem komu og fóru með áratugnum.
Mynd eftir Alex Ross.
Þó áhrif hennar á iðnaðinn hafi dvínað í gegn um áratugina, eru áhrif hans enn til staðar að einhverju leyti. Í teiknimyndasögunni er Bat man meira lýst sem ofur ofbeldisfullri andhetju með harkalegt viðhorf, sem elskaði spennuna og naut sársauka og ótta við óvini sína, langt frá hinni hefðbundnu hetju fyrri tíma. En það er vinsamlegasta ímyndin af Batman, sem hefur áhrif á flestar nútíma endurtekningu persón unnar, sérstaklega í kvikmyndum. Batman varð drungalegri og vondri og missti eitthvað af þeirri samúð sem hann hafði áður. Útgáfan á Batman eftir Tim Burton (1989) styrkti þessa dekkri mynd fyrir almenningi.
Ráðstefna um kynbundið ofbeldi
í Hörpu 1.–2. desember
alvöru Réttlæti alvöru Jafnrétti
Vissir þú?… TDKR opnaði nýjan sjóndeildarhring af frá sagnar möguleikum, rithöfundar gátu farið á nýja staði sem þeir aldrei gátu farið á áður. Teiknimyndasögurnar byrjuðu að leita að nýj um leiðum til að skora á myrka hefnandann, það var nóg af líkamlegum átökum, en líka andlegum og hugmyndafræðilegum áskorun um. Hver ný saga og rithöfundur vildi brjóta niður „The Dark Knight“ og steypa honum sífellt dýpra inn í tómið, til að ögra siðferðis reglunum sem hann er skilgreindur af og það gerði Batman flóknari sálfræðilega í ferlinu. Bob Kane.
Sögurnar sem fylgdu seint á níunda áratugnum höfðu endurskoðað Batman, illmenni hans og samband hans við þau, vinsæl dæmi eru „The Killing Joke“ frá árinu 1988 eftir rithöfundinn Alan Moore og listamanninn Brian Bolland sem fjallaði um þráhyggju og hættulegt samlíf þeirra, og svo er það „Arkham Asylum“ frá árinu 1989 eftir Grant Morrison og Dave McKean, sem lagði fram hugmyndina um að Batman væri alveg jafn brjálaður og restin af óvinum hans. Þegar Batman varð drungalegri, varð heimur inn hans það einnig, horfin eru duttlungafullu, grín og brellu illmennin forðum. „The Joker“ varð óútreiknanlegur hryðjuverkamaður frekar en grín prakkari. „The Riddler“ var ekki lengur að undirbúa vandaðar þrautir heldur dauða gildrur og „Two-Face“ varð minna upptekinn af tölustafnum 2 og langaði frekar að klippa þig í tvennt… þú veist hvað ég meina. Ein mikil vægasta breytingin í teiknimyndasögunum var andlát seinni Robin í söguþræðinum „A Death in the Family“ árið 1988, þar sem aðdáendur réðu örlögum hans í gegnum símakosningu. Árið 2012 var upphafið að annarri stórri endur ræsingu DC alheimsins með New 52 seríunni, síðan þá hefur Batman fengið stöðuga endur myndanir og haft nokkur frábær skapandi teymi, oft sprottin af áhrifamiklu starfi fortíðar.
14 | Embla
… að upphaflega ímyndaði Bob Kane, teiknarin á bakvið fyrstu blöðin, að Batman væri ljóshærður maður í rauðum samfesting með svarta domino grímu, eins og það er séð hérna fyrir neðan.
S t ó vand rt a Lítið
mál
mál?
fyrir
1967 Litlaprent stofnað
1974 Nýtt húsnæði
okku
r!
Prentun er okkar fag. Hjá Litlaprenti starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun til margra ára. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki.
1999 Litlaprent flytur á Skemmuveg 4
2012 Litlaprent kaupir Miðaprent
Skemmuvegi 4, blá gata | 200 Kópavogur | 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is
Stór
höfð
a 31
, 3. h
æð • 110 Re grafi a@g ykjavík • rafia Sími .is :5
52 8
• Kjaramál • Orlofsmál • Lífeyrismál • Fræðslustyrkir
Kjaramál skipta máli í lífi hvers launþega. Láttu Grafíu sjá um þau fyrir þig. Vertu með okkur. Við munum standa með þér.
755