Róbert Steinar Aðalsteinsson
Japanska ritmálið
Kaffi fróðleiksmolar og Bialetti
Grænn hollustu orkudrykkur
Leiðari Jæja, þá er þetta blessaða tímarit loks komið á enda Þetta hefur verið skrítinn vetur, við höfum þurft að gera tímaritið heima og gegnum fjarkennslu. Ég hef samt lært heilan helling við að rembast heima hjá mér og tel ég að þessar skrítnu aðstæður hafi bara bætt mína kunáttu helling. Ég fer um víða völl í tímaritinu Emblu, frá Norðfirði til Japans svo eitthvað sé nefnt. Vonandi hafið þið gaman af þessari vitleysu sem ég ritaði niður. Ég vil þakka kennurum fyrir alla aðstoðina og einnig samnemendum fyrir að vera með mér í þessu. Takk fyrir mig.
Boltafélag Norðfjarðar
Myndir eftir mig
embla. Ritstjórn
Róbert Steinar Aðalsteinsson
Umbrot og hönnun
Róbert Steinar Aðalsteinsson
Nemendamynd
Tjörvi Valsson
Forsíða
Róbert Steinar Aðalsteinsson
Útgefandi
Tækniskólinn
Pappír
Innsíður : UPM digital 150 gr Kápa : Color laser 250 gr
3 | embla.
embla. | 4 2
Róbert Steinar Aðalsteinsson Ég var skírður Róbert Steinar Aðalsteinsson árið 1996. Ég deili fæðingardegi með Jason Statham og Söndru Bullock, nánar tiltekið 26. júlí. Dóri Gylfa er minn uppáhalds leikari en við félagarnir höfum það sameiginlegt að vera álíka hæfileikaríkir í djögli, einnig kallað gripl. Samkvæmt heimildarsíðunni wikapedia er djögl skilgreint sem „hvers konar handfjötlun hluta sem krefst færni. Dæmi um djögl er sú list að halda þremur eða fleiri boltum á lofti þannig minnst einn sé ávallt í loftinu.“ Ég hóf nám 2018 í Upplýsingatækniskólanum. Sjálfur var ég ekki alveg viss hvað ég var að fara út í við skráningu til náms í grafískri miðlun en ég vissi þó að ég væri á réttri braut, þar sem áhugi minn liggur í hönnun almennt.
Námið er búið að vera lærdómsríkt og skemmtilegt og þar eru frábærir kennarar sem þekkja sinn geira gríðarlega vel. Í dag myndi segja að kunnátta mín í forritum eins og Indesign, Photoshop, og I llustrator sé góð og ég ætti að geta tekist á við stærri verkefni í framtíðinni. Mín uppáhalds verkefni eru bókaumbrotin, ég hef óstjórnlega gaman af bókarkápum og var það mér mikil skemmtun að fá að hanna nokkrar sjálfur. Grafísk miðlun er góður staður til að byrja ef þitt áhugasvið liggur í hönnun. Ef þú ert eins og ég og hefur lítinn bakgrunn í Adobe forritun þá er grafísk miðlun frábær staður til að byrja. Ég er stoltur að hafa klárað grafíska miðlun og einnig er það heiður að hafa kynnst virkilega skemmtilegu fólki.
5 | embla.
Kaffi
Texti: Te og kaffi / Róbert Steinar Aðalsteinsson
Myndir: pexels.com
fróðleiksmolar og Bialetti
embla. | 6
Á meðan ég skrifa þessa grein er ég að sötra á rjúkandi heitum kaffibolla sem ég rændi frá Krambúðinni, en það er önnur saga sem ég mun rita seinna um. Í dag ætla ég að skrifa um eitt af mínum áhugamálum og það er að sjálfsögðu kaffi, nánar tiltekið Bialetti Moka Espress kaffikannan. Mér finnst fátt skemmtilegra en að laga kaffi í Bialetti kaffikönnunni minni sem mín yndislega kær asta gaf mér í jólagjöf. Nokkrir fróðleiks molar um kaffi. Grasafræðin gar telja að kaffi komi upprunalega frá Eþíópíu, sem er staðsett í norður Afríku og þaðan hafi það breiðst út í heiminn. Í dag er kaffi ræktað í yfir 50 löndum og meðal þeirra er Ísland. Yfir 20 miljónir manna hafa atvinnu af ræktun kaffi. Kaffi er ekki bara besti drykkur í heimi en einnig er það algengasta verslunarvara heims og næstverðmætasta á eftir olíu. Í seinni hluta 15. aldar spruttu upp fyrstu kaffihúsin og það í borginni Mekka í SádiArabíu. Þetta þótti góð hugmynd og
menn voru fljótir að gera sitt eigið kaffihús í sínum eigin borgum. Kaffihúsin voru algjörar byltingar vegna þess að aldrei áður hafði verið staður þar sem fólk safnast saman á einum stað og ræða málin sín á milli. Fyrsta kaffihúsið í Evrópu var stofnað í Feneyjum árið 1650. Kaffihús Florian Francescari sem er á San Marco torgi í Feneyjum var opnað árið 1720 og er enn opið í dag.
Bialetti Bialetti sem er moka espress kaffikanna, eins og kom fram hér að framan, er hönnuð af fræga fyrirtækinu Bialetti. Bialetti er ítalskt hönnunar fyrir tæki sem gerir allt frá espresso kaffivélum í pönnur og potta. Bialetti var stofnað 1919 og hefur það verið gangandi síðan. Nafnið Bialetti er kennt við ítalska verkfræðinginn Alfonso Bialetti. Alfonso er ekki bara þekktur fyrir að hanna moka espresso kaffikönnur, einnig var hann með yfirvaraskegg sem menn myndu drepa fyrir. Margir vilja meina að Alfonso sé keimlíkur manninum sem er á kennimerki Bialetti.
Kannan virkar þannig að vatni er hellt í botninn og svo er kaffið sett í sérstakt hólf fyrir ofan en best er að nota grófmalað kaffi. Sett er svo könnuna á heita hellu og beðið eftir að vatnið í henni sjóði. Þegar suða byrjar að myndast mun vatnið streymast í gegnum kaffikorginn og safnast fyrir í könnunni. Mælt er með að handþvo könnuna og helst ekki með sápu. Kannan kemur svo í allskonar litum og stærðum. Þar á meðal rauðum, svörtum og gráum svo eitthvað sé upptalið. Stærsta kannan inniheldur um það bil 12–18 bolla og er það ráðlagt fyrir fimm manns. Sú minnsta er aðeins talin vera fyrir eina manneskju og getur hún gert 1–3 bolla. Bialetti gerir ekki bara frábært kaffi heldur er hún einnig frábær og falleg hönnun sem lífgar uppá eldhúsið.
Boltafélag Norðfjarðar
Texti: Róbert Steinar Aðalsteinsson
Myndir: Einkasafn Gunnars Larsson
Á austurlandi er fallegur staður sem kallast Neskaupstaður. Neskaupstaður er 1500 manna bær sem situr við fjörðinn Norð fjörð. Saga Neskaupstaðar er köld og dapur leg. Síðan snjóflóðið 1974 hefur lítið glatt heimabúa, enda lítið að gleðjast yfir þegar þú býrð á Neskaupstað. Það fáa sem íbúar Neskaupstaðar geta beðið spenntir yfir er að Gunni og Felix mæta og trylla lýðinn á sumrin og einnig að Launaflsbikarinn fari af stað á ný.
embla. | 8
Boltafélag Norðfjarðar er stolt Neskaupstaðar og berjast þeir á hverju ári um Launaflsbikarinn ef þeir eiga 25.000 krónur, sem er þátttöku gjaldið. Áður en Boltafélagið hóf keppni hét liðið Egill rauði og var það stofnað árið 1915. Það góða ár 1996 var svo Egill rauði keyrður í tímabundið þrot vegna fjarmálaóreiðu og því nýtt félag stofnað, Boltafélag Norðfjarðar eða BN’96. Fyrsta tímabil boltafélagsins var tekið með trompi og náðu leikmenn að hampa Launaflsbikarinn það ár. BN eru gríðarlega sigurstrangir í Launaflsbikaranum og hafa þeir unnið keppnina 2018, 2012 og 2011 svo eitthvað sé nefnt. Aðalsteinn Þórðarson, Ey steinn Gunnarsson og Örn Rósmann eru nöfn sem allir aðdáendur BN’96 kannast við, en þeir spiluðu einnig fyrir Egil rauða hér áður fyrr. Eysteinn var valinn efnilegastur öll tímabilin sem hann spilaði fyrir félagið nema einu sinni, þá tók Örn Rósmann titil inn. Það var mikil sorg á Neskaupstað þegar uppeldisstjarna BN‘96 Kristinn Agnar ákvað að leggja skóna á hillunnar, þá aðeins 28
ára að aldri. Gaman er að segja frá því að miðillinn fotbolti.net skrifaði grein um það og er það í eina skipti sem BN er nefnt á þeim ágæta miðli. Boltafélag Norðfjarðar keppir í fallegum grænum og hvítum röndóttum bolum, BN bolir ættu að vera til á öllum heimilum svo fagrir eru þeir að líta á. Hér áður fyrr voru búningarnir með láréttar grænar rendur, en eftir því sem leikmenn urðu eldri og gildari var búningum breytt í lóðréttar renndur.
Merkið er gríðarlega fallegt eins og allur búningurinn. Í miðju merkisins eru stafirnir b og n, skrifaðir í fallegu og skemmtilegu skrautletri. Fyrir ofan stafina stendur svo nafn félagsins og undir þeim stendur hvenær félagið var stofnað. Undir þessu öllu er svo setning á latínu, secundus pila. Secundus þýðir seinni og pila þýðir bolti. Seinni bolti hefur alltaf verið mottó félagsins og þar með sagt er algjör óþarfi að reyna of mikið á sig. Ég segi bara eins og leikmenn segja áður enn þeir fara á völlinn „við getum ekki neitt, við erum vonlausir, því við erum BN“.
Deyja fyrir klúbbinn Ég er stoltur stuðningsmaður BN’96 og er ég enn stoltari að hafa fengið að spila tvo leiki fyrir þetta merkilega félag. Vegna tilfinningaflæðis voru myndgæði ekki betri.
Launaflsbikarmeistarar Ár
Sigurvegarar
Bær
2020
?
2019
UMFB
Bolungarvík
2018
BN ‘96
Neskaupstaður
2017
Leiknir B
Fáskrúðsfjörður
2016
Leiknir B
Fáskrúðsfjörður
2015
Spyrnir
2014
UMFB
2013
Máni
2012
BN ‘96
Neskaupstaður
2011
BN ‘96
Neskaupstaður
?
Fljótdalshérað Bolungarvík Nesjum í Hornafirði
9 | embla.
Japanska ritmálið
Texti: Wikipedia
Mynd: pexels.com
Robert Steinar Að a lsteinsson
Í Japan er ótrúlega margt fallegt að sjá og Kanji er japanska heitið yfir kínversk tákn. menning Japans er ólík öllu öðru en við Fyrst þegar kanji kom til Japans var það þekkt íslendingar könnumst við. Japan sem er oft sem Hantákn og í Japan þá var eingöngu kallað land rísandi sólar hefur mikið fallegt til talað mál, ekkert ritað mál. Japanir fengu uppá að bjóða. Er þá ritmál japana fremst kínversk tákn að láni og eftir það þróaðist í flokki að mínu mati og margir sammála japanska í ritað mál. Japanska ríkið útbjó mér að ég tel. Stafir japanskra lista yfir kanji, 1945 tákn sem letursins eru ólíkir hver öðrum og allir íbúar Japan voru beðnir um líkjast þeir meira kennimerkjum, að læra. ólíkt því sem við þekkjum frá okkar stafrófi. Land rísandi sólar Hiragana er eitt af tveimur at kvæðatáknrófa í japönsku, hitt Japan Við japanskar skriftir er notast er katakana. Þau eru ólík kanji á við þrjú kerfi, það er hiragana, því leyti að þau lýsa atkvæðum katakana og kanji. Kanji skriftin frekar en hugtökum og eru þau kemur frá Kína og var innleidd talin líkari hebresku heldur en í Japan á 4. öld. Katakana er einungis notað öðrum austurlenskum ritkerfum. Hiragana fyrir tökuorð úr öðrum tungumálum og Hira samanstendur af fimmtíu grunntáknum og gana er notað til þess að sýna beygingu orða tveimur aðgreiningarmerkjum. Í nútíma með samstöfum. Japanskar skriftir eru æva japönsku er katakana oftast notað til þess að gamlar og hafa fundist skriftir frá árinu 712. skrifa orð fengin frá erlendum tungumálum.
embla. | 10
A B C D E F G H
11 | embla.
GRÆNN - ORKA - VÍTAMÍN - STEINEFNI - HOLLUSTA
embla. | 12 Mynd: pexels.com
AVA K A D Ó - S P Í N AT - G R Æ N T E P L I - A G Ú R K A - E N G I F E R - S Í T R Ó N U S A F I
Texti: Róbert Steinar Aðalsteinsson
Grænn hollustu
orkudrykkur
Innihald 1 handfullur lófi af spínati 1 avakadó 1 heilt grænt epli 1/3 agúrka Engifer eftir smekk 1/2 kreist sítróna Þú hendir öllum hráefnunum í þeytara. Bíður svo spenntur eða spennt eftir að öll hráefnin eru sameinuð í grænt gums og drekkið svo með bestu lyst. Ég mæli með að allir prufi drykkinn, enda er hann stútfullur af vítamínum, steinefnum og fjöri. Ekki skaðar það að hann er einnig hrikalega braðgóður. Ég fékk þessa uppskrift hjá mömmu minni, mamma er dugleg að henda í grænan drykk og býður mér oftast líka. Ef ég það skilið.
Myndir eftir mig
Finnigan veggspjaldið hafði ég hrikalega gaman af, þetta er minn vinur og æfingar félagi Hjálmtýr Axel Sigurðsson. Þetta er sem sagt alvöru bókakápa sem ég varð að herma eftir. Sjálfum finnst mér myndin af fjallinu skemtilegust, en það er bara ég. Hver er þín uppáhalds?
Texti: Róbert Steinar Aðalsteinsson
Mynd: Róbert Steinar Aðalsteinsson
Hér að neðan eru nokkur verk sem ég hef gert eftir tíðinna. Ég hef gaman af því að dunda mér í photoshop og hanna eitthvað sem mínum augum finnast fallegt að sjá. Grafísk miðlun er góð leið til að læra nýja og spennandi hluti í Photshop, einnig er Youtube frábær kennari líka. Dave
embla. | 14 Texti: Róbert Steinar Aðalsteinsson
Mynd: pexels.com
Hér að neðan eru nokkur verk sem ég hef gert eftir tíðinna. Ég hef gaman af því að dunda mér í photoshop og hanna eitthvað sem mínum augum finnast fallegt að sjá. Grafísk miðlun er góð leið til að læra nýja og spennandi hluti í photshop , einnig er Youtube frábær kennari líka. Dave Finnigan veggspjaldið hafði ég hrikalega gaman af, þetta er minn vinur og æfingar félagi Hjálmtýr Axel Sigurðsson. Þetta er sem sagt alvöru bókakápa sem ég varð að herma eftir. Sjálfum finnst mér myndin af fjallinu skemtilegust, en það er bara ég. Hver er þín uppáhalds?