Skip to main content

EMBLA

Page 1

EM B LA GRAFÍSK MIÐLUN

1. TBL. 9. ÁRG.

VOR 2020


Ertu að tengja?

Vefnám er ný fræðsluleið hjá IÐUNNI þar sem kennslan fer alfarið fram með myndskeiðum á veraldarvefnum. Okkar markmið er að auðvelda öllum að bæta við sig þekkingu og auka framboð á gagnlegum vefnámskeiðum jafnt og þétt. Skráning fer fram á idan.is

Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

Sími: 590 6400

idan@idan.is

idan.is


LEIÐARI Eftir mikla vinnu er tíma­ritið til­búið. Þetta tíma­rit var unnið undir ó­hefð­bundnum kring­um­stæðum. Venju­lega værum við nem­endurnir að vinna Emblu undir leið­sögn kennara upp á Há­teigs­ vegi en þetta ár þurftum við að vera heima vegna sam­komu­banns í boði Covid-19. Þetta blað var unnið al­farið að heiman með að­stoð kennara og nem­enda í gegnum micros­oft teams. Þetta var krefjandi verk­efni sem ég tók vel í og lærði heil­mikið af. Ég vil þakka kennurum mínum sem halda utan um sér­svið grafískar miðlunar, það er dýr­mætt að fá svona frá­bæra leið­sögn frá fjöl­breyttum hóp af fag­mönnum innan greinarinnar.

4 Hulda Sól

6 Kóala

Ég vona að þú njótir þess að fletta í gegnum blað­ið.

8 Bojack Horseman

EM B LA Umbrot og hönnun Hulda Sól

Forsíða Hulda Sól

Ljósmyndir Unsplash og Pexels

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn

12 Vísindavefurinn: spurningar og svör

Prentun Tækniskólinn

Letur Univers 45 light 9/13 pt

Pappír Innsíður: UPM digital 150 gr Kápa: Color laser 250 gr

14 Prump?


4

EM B LA


Hulda Sól

Ég heiti Hulda Sól og er fædd í desember ár­ið 1996 í Reykja­vík. Það­an flutti ég til Sví­ þjóð­ar, síð­an á Blöndu­ós, síð­an á Akra­nes, svo Hvera­gerði og að lok­um aft­ur til Reykja­ vík­ur. Ég ólst upp á mörg­um stöð­um og hver stað­ur mót­aði mig á mis­mun­andi hátt. Ég náði ekki að festa al­menni­lega ræt­ur í æsku vegna flutn­inga, ­þurfti oft að skipta um skóla og yf­ir­gefa æsku­vini. Það eina sem ég náði að gera reglu­lega var að teikna. Ég hef allt­af haft áhuga á mynd­list, hönn­un og út­liti. Mér fannst skemmti­leg­ast á æsku­ár­un­um að búa til ka­rakt­era og semja teikni­mynda­sög­ur. Ég gat gleymt mér marga klukku­tíma á dag bara að teikna og ímynda mér alls­kon­ar sög­ur. Ég fékk fyrstu teikni­töfl­una mína þeg­ar ég var 12 ára göm­ul. Ég not­aði hana til að teikna í mynd­vinnslu­for­rit­inu Gimp og Photoshop. Ég

fór að vafra um á net­inu og uppg­vöt­aði þar heim full­an af inn­blæstri og alls­kon­ar teikni­ stíl­um. Ég æfði mig á hverjum ein­asta degi og varð betri og betri. En síð­an komu fram­ haldsskóla­ár­in þar sem ég bar meiri ábyrgð á mínu eig­in námi. Ég hafði ekki eins mik­inn tíma og áð­ur til að teikna. Það tók mig 6 ár að klára stúd­ent­inn og á þeim tíma­punkti var ég al­veg hætt að teikna. En síð­an uppg­öt­vaði ég graf­íska miðl­un í Tækni­skól­an­um. Þar gat ég not­að ímynd­un­ar­afl­ið og tölvu­kunn­áttu mína í nám­ið. Ég hef lært af­skap­lega mik­ið síð­an ég byrj­aði og er mjög þakk­lát fyr­ir alla frá­bæru kenn­ar­ana sem standa að þessu námi. Ég hef fund­ið grein þar sem er gott jafn­vægi á sköp­un og tækni­leg­um frá­gangi þar sem ég fæ að njóta mín.

EM B LA

5


Kóala

Kó­ala­birn­ir eru svaka­leg dýr. Þetta eru ástr­ölsk poka­dýr og finn­ast villt­ir á tak­mörk­uð­um skóg­ ar­svæð­um við aust­ur­strönd Ástr­al­íu. Kó­ala­birn­ir eru 70–80 cm á hæð og vega frá 4 og upp í 14 kg. Þeir eru með föl­grá­an feld og oft­ast hvít­gul­ir í fram­an; minna í út­liti mjög á leik­fanga­bangsa enda kall­að­ir birn­ir. En þeir eru ekki birn­ir, þeir eru poka­dýr sem gefa frá sér af­skap­lega skrít­in hljóð. Mataræði Kó­ala­birn­ir eru jurta­æt­ur og hafa sér­hæft sig í fæðu­vali, þeir éta lauf trjá­teg­unda af ætt­kvísl­inni Euc­alypt­us; sem er eitr­að. Melt­inga­kerfi kó­ala­ bjarna þarf að leggja hart að sér að melta lauf­in, brjóta nið­ur eit­ur­efn­in og vinna úr tak­mörk­uð­um nær­ing­ar­efn­um. En þessi eig­in­leiki er ekki

með­fædd­ur. Við got eru kóa­laung­ar rétt und­ir 1 gramm á þyngd, blind­ir og hár­laus­ir. Þeir eyða svo næstu mán­uð­um í poka móð­ur sinn­ar þar til þeir eru nógu þrosk­að­ir til að byrja að borða lauf. En til þess þurfa þeir að fá ákveðn­ar ör­ver­ur til að þróa þarma­flór­una. Kó­ala­ung­ar­nir halda þá í átt að enda­þarmi móð­ur sinn­ar og borða úr­gang henn­ar, en fyr­ir þetta augna­blik fram­leið­ir hún sér­stak­an úr­gang sem lík­ist helst niðu­gangi sem kall­ast „pap“ sem er af­skap­lega nær­ing­ar­rík­ur úr­ gang­ur. Svo geta kó­ala­ung­ar byrj­að að borða lauf. En kó­ala­birn­ir fá mjög litla orku úr mata­ræð­inu og eyða mest­um hluta sóla­hrings­ins sof­andi, allt að 16 klst. Þeir hreyfa sig hægt og ró­lega en eru virk­ ast­ir rétt eft­ir sól­set­ur, þá sitja þeir í trjágrein­um og tyggja lauf­blöð í ró­leg­heit­un­um.

Ólíkt öp­um sem eru mjög virk­ir og skipta fljótt um tré, skipta kó­ala­birn­ir sjald­an um tré. Þeir halda sér við sama tré eins lengi og mögu­legt er en færa sig ef það er af­ar nauð­syn­legt. Kó­ala­ birn­ir hreyfa sig að­eins ef þeir eru að borða eða mak­ast. Kó­ala­birn­ir eiga lít­ið er­indi á jörð­ina en það er gríða­lega sjald­gæft að sjá kó­ala­björn ná­ lægt vatns­bóli.

6

EM B LA

Nafn­ið „Kó­ala“ merk­ir á tungu frum­byggja Ástr­al­íu „ekk­ert vatn“ en sú nafn­gift er sprott­in út­frá því að þessi dýr drekka aldr­ei vatn, held­ur fá all­an þann vökva sem þau þurfa frá safa­rík­um lauf­blöð­um euc­alypt­us trjáa.


Litlir heilar Kó­ala­birn­ir eru með óvenju litla heila. Það væri ekki rangt að segja að kó­ala­birn­ir búi yf­ir minnsta heila (hlut­fall af höf­uð­kúpu­holi) í dýra­rík­inu. Dýra­ fræð­ing­arn­ir og dýra­rann­sókn­ar­að­il­arn­ir sem hafa skoð­að kóla­birni hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að heili þeirra sam­an­stend­ur af u.þ.b. 60% rúm­ máli heild­ar höf­uð­kúpu­hols. En auka rým­ið er ekki tómt, þar er ákveð­inn vökvi sem vernd­ar heil­ann frá högg­um. Það virk­ar í raun eins og inn­byggð­ur hjálm­ur og kem­ur það vel ef kó­ala­björn­inn dett­ur úr tréi. Það ger­ist sjald­an, en það kem­ur fyr­ir. Klamydía

Höfundur: Hulda Sól

Nærr­um því all­ir kó­ala­birn­ir eru með klamyd­íu. Kyn­sjúk­dóm­ur­inn smit­ast í gegn­um sam­far­ir eða þeg­ar ung­inn borð­ar „pap“ frá móð­ur ­sinni. Að­eins á „Kang­aroo Island“ eru til kó­ala­birn­ir sem eru ekki sýkt­ir. En hvern­ig fengu kó­ala­birn­ir klamyd­íu til að b ­ yrja með? Tal­ið er að eft­ir að fluttar voru inn kind­ur og kýr til Ástr­al­íu hafi kó­ala­birn­ir feng­ið sjúk­dóm­inn í gegn­um meng­að­an úr­gang úr inn­fluttu dýr­un­um.

Þú opnar Ora dós og gæðin koma í ljós! - SÍÐAN 1952 -

EM B LA

7


„I am in pain, all the time. My whole life.

8

EM B LA

And you have no idea.“


Bojack Horseman

Netflix hef­ur fram­leitt marg­ar gríp­andi og frum­ leg­ar þátt­as­er­íur. Ef þú skim­ar yf­ir Netflix þá get­ur þú rek­ist á banda­ríska teikni­mynda­þætt­ina Bojack Horseman. Við fyrstu sýn fær mað­ur þá hug­mynd að þess­ir þætt­ir eru ein­fald­lega grunn­ir full­orð­ins grín­þætt­ir á borð við Family Guy eða American Dad. En Bojack Horseman eru þætt­ir sem fara dýpra en mað­ur áð­ur skyldi halda. Þætt­irn­ir eru bjart­ir og lit­rík­ir en fjalla um erf­iða hluti eins og þung­lyndi, fíkn, áföll, sjálf­skemm­andi hegð­an­ir, kyn­þátta­for­dóma, kynja­mis­rétti, kyn­ferði, til­gang lífs­ins og hvað það merk­ir að vera mann­eskja. Per­són­urn­ar eru flókn­ar og hrá­ar með per­sónu­ ein­kenni sem sýna best hvað mann­eskj­ur eru mis­mun­andi og langt frá því að vera full­komn­ar. Þátt­ur­inn er stút­full­ur af skemmti­leg­um uppá­ kom­um, góðu gríni og vel skrif­uð­um ka­rakt­er­um. Bojack Horseman er fræg­ur hest­ur í manns mynd sem sló í gegn í Hollywood á 10. Ára­tug­in­um þeg­ar hann lék að­al­per­són­una í fjöl­skyldu grín­ þætt­in­um „Horsin’ Around“. Í fyrsta þætt­in­um af Bojack Horseman fá­um við að kynn­ast Bojack 18 ár­um eft­ir að „Horsin´ Around“ lauk sýn­ingu í sjón­varpi. Bojack hef­ur ekki tek­ið að sér verk­efni síð­an þá og leit­ast eft­ir að gera eitt­hvað nýtt. Hann gerði samn­ing við út­gef­anda að skrifa ævi­sögu sína. Bojack nær hins veg­ar ekki að skrifa neitt

vegna kvíða og frest­un­ar­ár­áttu. Hann ræð­ur til starfa rit­höf­und­inn Diane Nguyen til að skrifa bók­ina fyr­ir sig. Bojack mynd­ar tengsl við Diane eft­ir að þau eyða öll­um sín­um dög­um sam­an til að vinna í bók­inni. Diane fær að kynn­ast því hvað Bojack er óör­ugg­ur, eig­in­gjarn, nei­kvæð­ur, þrjósk­ur og hef­ur slæm áhrif á fólk­ið í lífi sínu. Á þess­um tíma­punkti á Bojack voða fáa vini, einu mann­eskj­urn­ar í lífi hans eru Princess Carolyn, um­bjóð­andi sinn og Todd, óvel­kom­inn her­berg­ is­fé­lagi. Bojack er ein­mana og þung­lynd­ur með áfeng­is­vanda­mál; hann ýt­ir öll­um í burtu en á sama tíma þrá­ir að all­ir elski sig og hugsi um hann. Bojack hat­ar sjálf­an sig og reyn­ir allt sem hann get­ur til að kom­ast hjá því að horf­ast í augu við líf sitt með því að not­ast við sjálf­skað­andi hegð­an­ir eins og of­át, ofdrykkju og eit­ur­lyfja­notk­un. Hann hef­ur náð að hunsa að­stæð­ur sín­ar þar til hann les bók­ina sem Diane skrif­aði um hann. Þar brotn­ar allt nið­ur. Bojack sér loks­ins hrein­skilna spegl­un á hver hann er og hvað hann er ekki. Þætt­irn­ir fara dýpra í ferða­lag hans að horf­ast í augu við sjálf­an sig, hvern­ig fram­koma hans hef­ur áhrif á fólk­ið í kring­um sig og til­raun­ir hans að verða mann­eskja.

EM B LA

9


Diane Nguyen Diane er ein af að­al­per­són­um þátt­anna, hún er hálf ví­et­nam­ísk og hálf banda­rísk og starf­ar sem rit­höf­und­ur. Hún er vina­leg, gáf­uð, ástríðu­full og skyn­söm kona. Hún er fem­ín­isti sem hef­ur sterk­ar skoð­an­ir og vill láta í sér heyra. Diane ólst upp í Boston, Massachusetts. Hún er yngst af fimm syst­kyn­um og þar af eina stúlk­an. Diane náði aldr­ei að falla inn í syst­kyna­hóp­inn og upp­lifði sig út­und­an. Fjöl­skylda henn­ar gerði lít­ið úr henni í æsku, til­finn­ing­ar henn­ar og skoð­an­ir voru ekki virt­ar. Að­stæð­urn­ar voru ekk­ert skárri í skól­an­um, þar var hún lögð í ein­elti. Í æsku upp­lifði hún sig út­und­an en einu sinni í viku fékk hún að gleyma vanda­mál­um sín­um þeg­ar hún horfði á vin­sælu þætt­ina „Horsin´ Around” með Bojack Horseman í að­al­hlut­verki. Um tví­tugt flutti Diane til Los Angeles, California. Hún byrj­aði að vinna sem kaffi­bar­þjónn þar til hún kynnt­ist Mr. Peanutbutter, fræg­um leik­ara. Þau byrja sam­an og hún flyt­ur inn til hans. Sjö ár­um

síð­ar kynn­ist Diane Bojack Horseman, stjörnu þátt­anna „Horsin´ Around”. Hann fær Diane til að skrifa ævi­sögu sína. Diane fær því að kynn­ast Bojack og mynd­ar tengsl við hann. Hún kemst að því að hann er ekki jafn heill og hún hélt. Þau eiga það sam­eig­in­legt að vera með brotna æsku og skilja hvort ann­að vel. Diane skrif­ar bók­ina af mik­illi hrein­skilni sem Bojack var ekki hrif­inn af. Hann vill ekki að all­ir sjái hver hann er í raun og veru. Bojack vill ekki gefa út bók­ina en Diane vill ekki að margra mán­aða vinna henn­ar hafi ver­ið til einsk­is og er sann­færð að bók­in mun breyta lífi hans. Þau ríf­ast og Diane ákveð­ur að leka nokkr­um köfl­um úr bók­inni á net­ ið. Al­menn­ing­ur verð­ur mjög hrif­i nn af bók­inni. Bojack sam­þykk­ir að lok­um að gefa út bók­ina. Þrátt fyr­ir að Diane sé bú­in að skrifa fyr­ir hann halda þau áfram að vera vin­ir en það end­ar ekki vel fyr­ir hana.

„You‘re responsible for your

own happiness, you know? “

„Good Lord, that‘s depressing.“

10

EM B LA


Princess Carolyn Princess Carolyn er ein af að­al­per­són­um þátt­ anna. Hún er bleik kisu kona sem starf­ar sem um­boðs­að­ili Bojack en er líka fyrr­ver­andi kær­asta hans. Princess Carolyn er metn­að­ar­full, vinnu­fús, keppn­is­söm, ákveð­in, snjöll og lausn­ar­mið­uð. Hún er háð starfi sínu og snýst allt henn­ar líf um að redda kúnn­um sín­um góð­um verk­efn­um í Hollywood. Hún á til að vera þrjósk og ger­ir allt sem hún get­ur til að fá það sem hún vill. Princess Carolyn ólst upp fá­tæk hjá ein­stæðri móð­ur sinni sem var með áfeng­is­vanda­mál. Oft á ung­lings­ár­um sín­um neydd­ist Princess Carolyn að fylla í skarð­ið fyr­ir móð­ur sína þeg­ar hún var of full til að mæta í vinn­una. Princess Carolyn þurfti að axla mikla ábyrgð ung og á full­orð­ins ár­um sín­um set­ur hún sig aldr­ei í fyrsta sæti

en það hef­ur nei­kvæð áhrif á henn­ar líf. Hún vill allt­af vera til stað­ar til að redda mál­un­um fyr­ir aðra eins og hún red­daði móð­ur sinni. Princess Carolyn vill frek­ar laga vanda­mál ann­ara í stað þess að laga henn­ar eig­in vanda­mál. Bojack og Princess Carolyn hafa þekkst lengi. Þau voru sam­an í nokk­ur ár en Princess Carolyn ákveð­ur að hætta með hon­um því hún sér að það er eng­in fram­tíð með hon­um, en held­ur áfram að vera um­boðs­að­ili hans. Bojack reið­ir sig mik­ið á Princess Carolyn að finna út úr vanda­mál­um sín­um og hún hik­laust hjálp­ar hon­um með nán­ast allt sem kann að koma upp þótt það bitnar illa á henni.

Todd er ein af að­al­per­són­um þátt­anna, hann er full­orð­inn mað­ur sem lif­ir eins og hann sé enn­þá tán­ing­ur. Hann er at­vinnu­laus, ber eng­ar skyld­ur og er ro­sal­ega lat­ur. En hann er mjög list­rænn og verð­ur metn­að­ar­full­ur þeg­ar hann finn­ur sér verk­efni sem hann hef­ur áhuga á, þrátt fyr­ir það klár­ar hann sjald­an það sem hann tek­ur sér fyr­ir hend­ur. Hann hopp­ar úr einu verk­efni yf­ir í ann­að þeg­ar hon­um fer að leið­ast. Todd er mjög hjálp­ sam­ur, góð­ur, kjána­leg­ur og bjart­sýnn. Hann á til að vera ut­an við sig og er ekki skarp­asti hníf­ur­inn í skúff­unni. Móð­ir Todd henti hon­um út eft­ir að hann varð háð­ur tölvu­leikj­um og neit­aði að fá sér vinnu. Í byrj­un þátt­ana býr Todd á sóf­an­um hans Bojack. Todd end­aði þar eft­ir partý hjá Bojack þar

sem Bojack sagði í vímu við Todd að hann mætti búa hjá sér. Bojack man ekki eft­ir því og seg­ist ekki vilja hafa Todd heima hjá sér en er í raun­inni ein­manna og hend­ir hon­um ekki út. Bojack er mjög leiði­leg­ur við Todd þrátt fyr­ir að Todd er besti vin­ur hans. Bojack ger­ir grín af hon­um, huns­ar hann í sam­töl­um og not­ar hann þeg­ar hann þarf á hon­um að halda en gef­ur ekki til­baka þeg­ar Todd þarf hann. Todd tek­ur það ekki nærri sér í byrj­un en eft­ir að Bojack verð­ur með­vit­að­ur um hegð­un sína, held­ur áfram að vera leiði­leg­ ur og svík­ur Todd, þá ákveð­ur Todd að flytja frá hon­um. Eft­ir það heyr­ast þeir af og til en vin­skap­ur­inn verð­ur aldr­ei eins.

EM B LA

11

Höfundur: Hulda Sól

Todd Chavez


Vísindavefurinn: spurningar og svör Af hverju eru trýni á hundum blaut? Nef hunda er venju­lega rakt. Á trýni hunda eru frum­ur sem seyta vökva (e. mucus) og þann­ig helst trýn­ið rakt og hund­arn­ir við­ halda sínu gríð­ar­lega næma þef­skyni, en nef­ið er sjálf­sagt það skyn­færi sem hund­ar styðj­ast helst við. Hunda­eig­end­ur kann­ast vel við að hund­ar sleiki á sér trýn­ið. Vökv­inn sem frum­urn­ar á trýn­inu seyta út fang­ar lykt­ar­ sam­eind­ir úr um­hverf­i nu og þeg­ar hund­ur­inn sleik­ir nef­ið er hann að meta upp­lýs­ing­arn­ar sem kunna að leyn­ast í sam­eind­unum. Auk þess halda hund­ar trýn­inu hreinu með því að sleikja það. En trýni hunda get­ur ver­ið rakt af ýms­um öðr­ um ástæð­um. Það má segja að hund­ar svitni í gegn­um trýn­ið og lopp­urn­ar. Trýn­ið leik­ur eitt af lyk­il­hlut­verk­um í kæ­lingu dýrs­ins á heit­um degi. Marg­ir hafa h ­ eyrt að heitt og þurrt trýni þýði að hund­ur­inn sé veik­ur - en það er ekki svo ein­falt. Raka- og hita­stig trýn­is­ins get­ur sveifl­ast vegna veð­ur- og um­hverf­i s­skil­yrða og trýn­ið get­ur ver­ið mis­rakt yf­ir dag­inn. Hund­ar geta einn­ig haft rakt trýni þótt þeir séu veik­ir. Má gefa garðfuglum steiktan lauk? Nokkr­ar teg­und­ir mat­væla hafa mjög óæski­leg áhrif á heilsu fugla. Það á með­al ann­ars við um lauk og skipt­ir þá litlu máli hvort hann er hrár eða steikt­ur. Éti fugl­ar lauk get­ur það leitt til ástands sem dýra­lækn­ar nefna á fræði­máli hem­olyt­ic an­em­ia eða blóð­leysi. Í lauk eru brenni­steins­sam­ bönd sem valda því að rauð blóð­korn springa þeg­ ar efna­sam­bönd­in ber­ast í æða­kerf­i ð. Þetta veld­ur blóð­leysi í fugl­un­um og lífs­hættu­legu ástandi sem get­ur dreg­ið þá til dauða. Það er nokk­uð al­gengt að góð­hjart­að fólk beri út ým­is kon­ar fæði fyr­ir fugla í þétt­býli, með­al ann­ars steikt­an lauk sem sáldr­að er á jörð­ina. En því mið­ur, eins og þessi um­fjöll­un leið­ir í ljós, er

12

EM B LA

ver­ið að gera fugl­un­um ljót­an grikk með steikta laukn­um, þótt þeir séu af­ar sólgn­ir í hann. Ýms­ar aðr­ar fæðu­teg­und­ir eru einn­ig mjög óæski­leg­ar fyr­ir fugla, svo sem súkku­laði, epla­fræ, svepp­ir og lár­ pera (av­óka­dó). Þá má einn­ig nefna að í leið­bein­ing­um frá sam­tök­um dýra­lækna í Banda­ríkj­un­um er alls ekki mælt með því að gefa fugl­um áfengi! En von­andi dett­ur eng­um slíkt í hug. Hversu lítil göt komast hagamýs í gegnum? Mýs kom­ast í gegn­um merki­lega lít­il göt. Ólíkt mönn­um þá stopp­ar breidd axla ekki mý­snar held­ur er það senni­lega breidd haus­kúp­unn­ar og þá neðri kjálka sem tak­mark­ar helst um­ferð músa í gegn­um gluf­ur og hol­ur. Kom­ist höf­uð­ið í gegn fylg­ir búk­ur­inn á eft­ir. Við gerð þessa svars fund­ust ekki nið­ur­stöð­ur vís­inda­legra rann­sókna á því hversu smá göt mýs geta troð­ið sér í gegn­ um. Hins veg­ar hafa leik­menn gert ým­is próf og er hægt að sjá sum þeirra á vefn­um. Þessi próf hafa sýnt að við venju­leg­ar að­stæð­ur kom­ast full­vaxn­ar mýs auð­veld­lega í gegn­um gat sem er 19 mm breitt og jafn­vel 17 mm.


Eru mörgæsir með hné? Þeg­ar horft er á stand­andi mör­gæs­ir sjást stutt­ir og kubbs­leg­ir fæt­ur en eng­in hné. Engu að síð­ur hafa mör­gæs­ir hné. Lær­legg­ur (fem­ur) mör­gæsa er hlut­falls­lega stutt­ur mið­að við legg­inn og fjaðra­ham­ur­inn hyl­ ur hann þann­ig að það sést bara í legg­inn. Þess vegna virð­ast þær líka vera hnjá­laus­ar. Það er ekki nóg með að lær­legg­ur­inn sé stutt­ur held­ur ger­ir af­staða fót­leggj­anna líka sitt til þess að fæt­ur mör­gæsa virð­ast svona stutt­ir og hnén sjást ekki und­an fiðr­inu. Fót­legg­irn­ir eru nefni­lega ekki bein­ir líkt og hjá mörg­um öðr­um teg­und­um held­ur er um 100° beygja við hnén eins og þær sitji til hálfs. Af hverju er tungan í köttum hrjúf? Þeir sem hafa ver­ið „þvegn­ir“ af heim­il­is­kett­in­um þekkja vel hversu hrjúf tunga katt­ar­ins er. Hún minn­ir meira á sand­papp­ír en mjúka tungu okk­ar eða tungu gras­bíta. Það sama á við um villta ketti, hvort sem þeir eru mörg hundr­uð kílóa stór­kett­ir eða smá­vaxn­ir sand­kett­ir, all­ir hafa þeir brodda á tung­unni. Flest í fari líf­vera hef­ur ein­ hvern til­gang. Brodd­arn­ir auka yf­i r­borð tung­unn­ar og kett­irn­ir eiga þess vegna auð­veld­ara með að lepja vatn. Einn­ig telja sum­ir þró­ un­ar­fræð­ing­ar að brodd­arn­ir gegni mik­il­vægu hlut­verki þeg­ar dýr­ið hreins­ar eig­in feld og síð­ast en ekki síst að þeir komi að góðu gagni við að sleikja kjöttægj­ur af bein­um.

Harpa 1. — 2. maí

Tískuiðnaðurinn hefur breyst mikið á síðustu árum til hið verra. Fyrirtæki í vestræna samfé­ laginu misnota stöðu landa með verra efnahagslíf og lægri lágmarkslaun til að framleiða föt á hræódýran hátt. Miðstöð íslenskra neytenda eru ný sam­ tök sem halda ráðstefnu þann 1.–2. maí í Hörpu. Ráðstefnan skoðar sérstaklega neysluhegðun íslendinga, hverjar af­ leiðingarnar eru og hvað við getum gert til að sporna við þessari þróun. MÍN vonar að með þessari ráðstefnu skapist uppbyggjandi umræður og meiri meðvitund þegar kemur að innkaupum.

Skráning er hafin á harpa.is

Efni af Vísindavef Háskóla Íslands er birt með góðfúslegu leyfi ritstjórnar Vísindavefsins og Jóns Márs Halldórssonar, höfundar svaranna.

EM B LA

13


Prump?

Höfundur: Edda Elísabet Magnúsdóttir

Lang­flest spen­dýr og fjöl­mörg skrið­dýr prumpa og ropa. Prump og rop staf­ar af loft­teg­und­um sem safn­ast fyr­ir í melt­ing­ar­vegi dýra. Upp­söfn­un lofts í melt­ing­ar­vegi staf­ar helst af því að líf­ver­ an gleyp­ir mik­ið loft en einn­ig vegna of­fjölg­un­ar ákveð­inna gerla í melt­ing­ar­vegi eða vegna ófull­ kom­ins nið­ur­brots á fjöl­sykr­um úr fæðu. Helstu loft­teg­und­irn­ar í prumpi og ropi eru lykt­ar­laus­ar; gas­teg­und­ir eins og súr­efni, nit­ur, kol­tví­ildi (einn­ig nefnt kol­tví­ox­íð), vetni og met­an. Lykt­in staf­ar helst af brenni­steins­sam­eind­um sem til­tekn­ar bakt­er­íur mynda. Af þess­um gas­teg­und­um er met­an áhrifa­mesta gróð­ur­húsa­loft­teg­und­in. Þess vegna hafa vís­inda­ menn áhuga á að vita hversu mik­ið met­an ólík­ir dýra­hóp­ar gefa frá sér á tíma­ein­ingu. Gras­bít­ar eru best þekkti hóp­ur­inn, sér­stak­lega jórtr­andi bú­fén­að­ur, svo sem naut­grip­ir og sauð­fé. Að með­al­tali losa gras­bít­ar mun meira af met­ ani en kjöt­æt­ur. Ástæð­an er sú að plönt­urn­ar sem þær éta eru tor­melt­ar. Sem dæmi los­ar kjöt­æta á borð við úlf, rétt um 0,7% af met­an­fram­leiðslu jórt­ur­dýra á klukku­stund. Full­vaxta naut­grip­ur los­ar um 120 kg af met­ani (CH4) á ári, kind los­ar um 8 kg, svín um 1,5 kg og mað­ur rétt um 0,12 kg. Til gam­ans er brot úr lista hér fyr­ir neð­an þar sem hóp­ur vís­inda­manna tók sam­an og gef­ur yf­ir­lit yf­ir dýr sem prumpa!

14

Dýrategund

Vísindalegt heiti

Afrískur villihundur

Lycaon pictus

Já

Rauðgaupa

Lynx rufus

Já

Kría

Sterna paradisaea

Nei

Leðurblaka

Chiroptera

Já

Kræklingur

Mytilus edulis

Nei

Fýll

Fulmarus glacialis

Nei

Höggormur

Vipera berus

Já

Brúnrotta

Rattus norvegicus

Já

Grápadda

Armadillidium vulgare

Já

Heimilisköttur

Felis catus

Já

EM B LA

Prump?


PREPP, PRENT & PEPP! Síðan 1967 hefur ekkert verkefni verið of stórt fyrir Litlaprent. Hafðu samband og við reddum þessu! xoxo Litlaprent <3

Skemmuvegi 4, Blágata, 200 Kópavogi

540 1800

litlaprent@litlaprent.is

litlaprent.is


Samstarf til framtíðar Sjúkrasjóður

Fræðslusjóður

Heilsurækt, sálfræðiaðstoð,

Tómstundir, tölvunám

sjúkraþjálfun og fleira

og starfstengt nám

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar

www.grafia.is

Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

GRAFÍA

Stórhöfða 31, 3. hæð 110 Reykjavík

Sími: 540 0100 grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
EMBLA by Tækniskólinn - Issuu