Embla
Grafísk miðlun vor 2022 8. TBL.
Svo miklu meira en bara námskeið!
Kík t og u á fré hla ttir ww ðvörp w.id á an. is
Námskeið Ráðgjöf Raunfærnimat Námssamningar Sveinspróf Fyrirtækjaþjónusta Fræðslustyrkir Fréttir Hlaðvörp og fleira
Framsækni | Virðing | Fagmennska Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík 590 6400 idan@idan.is www.idan.is
LEIÐARI Embla er hluti af lokaverkefninu í grafískri miðlun, þar sem hver og einn nemandi hannar sitt tímarit. Mér hefur gengið vel með tímaritið og sameinar það alla þá færni sem við höfum lært í náminu. Umbrot og hönnun Helgi Jónsson
Í Emblunni minni fer ég yfir ferðarinnar okkar til Ítalíu og aðeins um menningu og tísku þar.
Hönnun forsíðu Helgi Jónsson
Nú fer að líða að námslokum og er ég ekki ennþá búinn að ákveða hvað næsta skref verður. Hvort það verði meira nám eða beint í vinnu veit ég ekki.
Ljósmyndir Nemendur á fyrri önn í ljósmyndun unsplash google
Við erum góður hópur sem hefur skapað skemmtilegar minningar og verður erfitt að kveðja hópinn og kennara.
Texti Helgi Jónsson
Útgefandi Upplýsingatækniskólinn
Pappír Digi Finesse Silk 130g/m2 Digi Finesse Silk 170g/m2
4
Um mig
6
Ítölsk tíska
7
Fræg ítölsk merki
8
Mílanó
10
Flórens
12
Bergamó
14
Andrea Bocelli
HELGI JÓNSSON
Helgi Jónsson Ég heiti Helgi Jónsson og er fæddur mánudaginn 28. júní 1993. Ég flutti til Danmerkur þegar ég var þriggja ára gamall á litla eyju á Suður Jótlandi sem heitir Als, í bæ sem heitir Sønderborg og ólst að mestu leiti upp þar. Ég var í „Sønderskov-Skolen“ fram að 6. bekk og eftir það fluttum við til Íslands til Keflavíkur. Ég fór í Heiðarskóla og útskrifaðist þaðan árið 2009. Eftir grunnskóla ákvað ég að ég vildi verða matreiðslumaður og hóf nám í grunndeild matiðnar. Eftir það fór ég á námssamning í Bláa Lóninu og kláraði samninginn þar. Ég hafði lítinn áhuga á að fara í skólann aftur og flutti til Arendal í Noregi og bjó þar í eitt ár. Stuttu eftir að ég kom heim aftur kynnist ég kærustu minni og eigum við 6 ára stúlku í dag sem heitir Karólína Kristín Helgadóttir. Þegar ég var í fæðingarorlofi pældi ég mikið í hvað ég ætti að gera og ákvað að fara í diplómunám í NTV í net- og kerfisstjórnun þaðan sem ég útskrifast með góða einkunn. Ég fór að vinna og dundaði mér á kvöldin í PhotoShop, Aftereffects, Sony Vegas Studio og fleiri forritum. Ég reyndi að finna nám sem hentaði áhugamálinu mínu. Ég fann grafíska miðlun hjá Tækniskólanum og eftir það var ekki aftur snúið
05
Ítölsk tíska Á 11. til 16. öld þegar listþróun var í hámarki varð ítölsk tíska mjög áberandi. Borgir eins og Mílanó, Flórens, Feneyjar og fleiri byrjuðu að framleiða lúxusvörur eins og t.d. hatta, snyrtivörur, skartgripi og fleiri dýrindis vörutegundir. Á þessum tíma var Frakkland helsti tískusmiður Evrópu. Ítölsk merki á borð við Gucci og Ferragamo fóru að keppa við frönsk merki á borð við Coco Chanel og Dior. Árið 2009 var Mílanó valin höfuðborg tísku í heiminum þar sem mörg af stærstu merkjum heims eru með höfuðstöðvar sínar þar t.d. merki á borð við Giorgio Armani, Dolce & Gabbana, Attico og mörg fleiri.
Nokkur atriði sem einkenna ítalska tísku Æpandi mynstur Æpandi mynstur eru undirstaða ítalskrar tísku. Þá hafa Versace sérstaklega vakið athygli um allan heim fyrir djörf mynstur. Þetta snýst um að hafa gaman og að gera tilraunir sem sýna hver þú ert og hvað þér líkar við. Þú þarft ekki að öskra til þess að láta taka eftir þér. Af hverju ekki að skera sig úr í klæðnaði. Tískan er t.d. innblásin af blómum, list, náttúru og dýrum. Dramatík Dramatík er kjarninn í því að vera ítalskur hvort sem það er handa látbragð, óperan eða tískan. Ítalir vilja alltaf segja sögu. Það sést í mörgum tilfellum vel á klæðaburði þeirra. Stórar yfirhafnir stórar ermar og ýktir litir. Sexy og elegant Ítölsk tíska snýst mikið um að láta þér finnast þú vera kynþokkafull/-ur þannig að það geisli frá þér þér sjálfstraustið. Ítalir sýna smá skinn en fara aldrei yfir strikið og eru mjög stílhreinir. Flíkurnar þurfa þó ekki endilega að vera aðsniðnar.
06
Sólgleraugu Árstími, veður, nótt, dagur, úti eða inni skiptir engu máli, Ítalir eru alltaf með sólgleraugu. Sólgleraugu eru ítalskt „fashion stable“. Þú færð sólgleraugu í öllum litum formum og stærðum og frá öllum helstu merkjunum. Skór Ítalskar konur elska háhælaskó. Það þarf helst að heyrast í þeim áður en þær mæta á svæðið. Það er eitthvað „powerfull“ við að vera í hælum. Þær elska háhæluð stígvél. Hönnunin þarf ekki að vera flókin og þú vilt velja þér tímalausa hönnun.
Fræg Ítölsk merki Prada
Dolce & Gabbana
Prada var stofnað 1913 af bræðrunum Martino og Mario Prada í Mílanó.
Dolce & Gabbana er stofnað 1985 af Domenico Dolce og Stefano Gabbana fatahönnuði.
Gucci
Versace
Gucci var stofnað árið 1921 af Guccio Gucci í Flórens.
Versace var stofnað 1978 af Gianni Versace í Mílanó. Í boði var fatnaður, aukahlutir o.fl.
Fendi
Giorgo Armani
Fendi var stofnað 1926 af Adele og Edoardo fatahönnuði.
Giorgio Armani var stofnað 1934 af Giorgio Armani. Giorgio var fatahönnuður.
Tískuvöruverslun
Fatnaður, skartgripir og aukahlutir í miklu úrvali
Lækjatorg 2 101 Reykjavík www.hjtiska.is 775 6777
Mílanó Milanó er höfuðstaður Langbarðalands (Regione Lombardia) sem er hérað á Norður-Ítalíu. Borgin er næst fjölmennasta borg Ítalíu og í henni búa um 1,3 milljónir manna. Mílanó er talin leiðandi borg á heimsvísu og hennar helstu styrkleikar eru hönnun, tíska og menningarlíf.
Daginn eftir var frjáls dagur sem ég nýtti í að skoða miðbæinn og svæðið í kringum Duomo (dómkirkjan í Mílan).
Í gegnum tíðina hefur borgin haft stór áhrif sem pólitísk miðstöð og nær aftur til fornaldar þegar hún þjónaði sem höfuðborg Vest Rómverska heimsveldisins. Þar má einnig finna Ítölsku kauphöllina.
Á safninu var
Arkitektúr
Allt á sýningunni var eftir ítalska hönnuði. Á neðri hæð safnsins sem við gátum því miður ekki skoðað var tískusýning í boði Milan Fashion Week. En við sáum samt sem áður brot þar sem að það var stórt op í miðjum salnum og sást í tísku sýninguna sem var mjög flott.
Stíllinn í Mílanó er mjög evrópskur en með ítölskum blæ. Mikið af styttum er í borginni og talsvert um mynstur á húsum frá dögum Rómaveldisins. Áhugaverðir staðir til að skoða Bosco Verticale Duomo di Milano Galleria Vittorio Emanuele II Pinacoteca di Biera Opera at Teatro alla Scala
Þriðja daginn var farið á ADI Design Museum sem er hönnunarsafn.
Grafísk listasýning með veggspjöldum. Farartæki Fatahönnunarsýning Húsgagnasýning
Eftir þetta var frjáls dagur þar sem restin af deginum fór í að versla, borða og skoða sig um. Um nóttina þurfti Bjarki okkar að fara heim því hann gat hvergi notað græna passann sinn og vildi ekki taka neina sénsa.
Ferðablogg Ferðalagið byrjaði með seinkun á flugi og vorum við komin mjög seint á hótelið í Mílanó en þar var engin til þess að taka á móti okkur. Loksins kom starfsmaður og innritaði okkur og þá gátum við loksins farið að sofa.
08
Síðasta daginn í Mílanó fór allur hópurinn upp á Duomo sem er dómskirkjan í Mílanó. Þar voru teknar myndir og við skoðuðum okkur um. Eftir Duomo var lagt af stað til Florence og tók ferðin hátt í þrjá klukkutíma.
Matarmenning Nútímaleg matarmenning í bland við hið hefðbundna matarmenningu einkennir Mílanó. Borgin laðar að sér marga af bestu matreiðslumönnunum frá Ítalíu og öllum heiminum. Ýmsir réttir frá Mílanó Costoletta alla Milanesse (kálfa kótiletta í raspi) Risotto alla Milanesse (hrísgrjóna réttur með osti, vín og saffron) Panetonne (sætt brauð/kaka) Ossobuco (kálfa skankar) Ég var ekki brjálaðslega hrifinn af matnum þó að ég hafi borðað ótrúlega góðan mat inn á milli og oft fannst mér hann bragðlítill og óspennandi. Pizzan var í mörgum tilfellum of blaut og pastað of hart. Klassísk uppskrift frá Mílanó: Risotto alla Milanesse 1 miðlungs laukur. 8 tsk. af ósöltuðu smjöri. 2 bollar af Ítölskum hrísgrjónum. ½ bolli af þurru hvítvíni. 6 bollar af kjúklingasoði. ½ tsk. af saffron þráðum. 1 bolli af fínrifnum parmesan osti. Salt og ný malaður svartur pipar eftir smekk. Undirbúningur Byrjað er á að steikja laukinn í tveimur teskeiðum af smjöri á meðalhita þangað til að hann er hálf gegnsær og ilmandi (ca. fimm mín.). Hrísgrjónunum er hrært saman við og eldað í u.þ.b. 3 mínútur. Síðan er víninu, tveimur bollum af soðinu og saffroninu bætt út í. Stillt er á háan hita til að sjóða niður megnið af soðinu. Ath. Það þarf hræra á ca. mínútu fresti (engin þörf er fyrir að hræra stöðugt). Næst þarf að bæta við einum bolla af soðinu og halda áfram að hræra og bæta við soði þangað til risottoið er „al dente“. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin þarf að hræra ostinum saman við og bæta við aðeins meira af soði. Síðan er restinni af smjörinu hrært út í og risottoið kryddað til með salt og pipar. Borið fram í skál eða á fallegum disk.
09
F lórens Flórens er stærsta borg Tuscany héraðs á mið Ítalíu. Í borginni búa um tæp 400 þúsund manns. Á miðöldum var borgin miðstöð viðskipta, fjármála og ein ríkasta borg þess tíma. Af mörgum sérfræðingum er hún talin vera fæðingarstaður endurreisnartímans. Það mætti því segja að Florence sé höfuðborg menningar á Ítalíu. Flórens laðar að sér milljónir ferðamanna á hverju ári. Hún er mest þekkt fyrir menningu sína, minnisvarða, endurreisnarlist og byggingarlist. Í borginni er að finna mörg fræg söfn eins og t.d. Uffizi, Palazzo Piti. Arkitektúr Stíllinn á byggingum í Flórens er af endurreisnar arkitektúr. Það er mikil byggingarlist Í Florence frá 14. öld til 16. aldar. Arkítektúrinn sýnir meðvitaða endurvakningu á rómverskum og forngrískum arkitektúr. Áhugaverðir staðir til að skoða Uffizzi Gallery Ponte Vecchio Florence Cathedral Boboli Gardens
10
Ferðablogg Eftir lestarferðina til Flórens var farið á hótelið sem er mjög miðsvæðis í borginni. Þegar við vorum búin að koma okkur vel fyrir fórum við á bar þar sem við pöntuðum okkur drykki og spiluðum jenga. Síðan náðum við í Magga á lestarstöðina. Annar dagurinn fór í að skoða Uffizzi Gallery. Á safninu voru málverk, styttur og margt fleira. Verkin voru eftir ítalska hönnuði eins og t.d. Leonardo Da Vinci, Michael Angelo og Koen Vanmechelen. Það sem eftir lifði dags fór í að skrifa uppkast, borða og skoða. Þriðja daginn var FIDI hönnunarskólinn í Flórens skoðaður og þar var farið yfir hvað skólinn hefur upp á að bjóða. Skólinn er í tveimur byggingum og eru byggingarnar mjög fallegar en þær eru byggðar í ekta ítölskum stíl. Eftir skólaheimsóknina fundum við stað til þess að borða á og eftir snæðinginn skoðuðum Ponte Vechio (elsta steypta brú í Evrópu). Á fjórða degi skoðuðum dómkirkjuna í Flórens og löbbuðum uppá Piazzale Michael Angelo hæðina. Það má síðan taka fram að við fengum bestu steik ferðarinnar á stað sem heitir Oggi, mesta snilldin við það var grana padona osturinn sem var settur ofan á.
Síðasti dagurinn í Flórens var úrvinnslu dagur og hann fór aðallega í að hlaða batterýin, skrifa um ferðina og skoða sig um.
Undirbúningur Grill eða panna er hituð upp á miðlungs hita. Steikin er þurrkuð og krydduð vel með salti og pipar, á báðum hliðum.
Matarmenning Flórensk matargerð er jarðbundin, sveitaleg og oft á tíðum ströng. Einfaldleiki er aðalatriðið og þrátt fyrir að matargerðin sé einföld er hún útbúin með stolti. Ekkert má fara til spillis og endurspegla margir réttir þá siðferðiskennd. Það eru reglur um hvað má borða og hvenær. Ýmsir réttir sem eiga uppruna sinn í Flórens Bistecca alla Fiorentina (þykk nautasteik á beini) Crespelle alla Fiorentina (pasta réttur) Zucotto (kaka) Fagiuoli (bauna réttur)
Rósmarín- og salvíubúntin eru bundin saman með garni til þess að búa til kryddjurta pensil. Kryddjurta pensillinn er notaður til þess að pensla steikina með ólífuolíunni. Steikin er sett á grillið/pönnuna og steikt ca. 12 mínútur á annarri hliðinni og 9 mínútur á hinni. Kjötið er látið hvíla í að minnsta kosti í 5 mínútur. Steikin er vanalega borin fram ein og sér en við Íslendingar elskum meðlæti þannig að kartöflur og góð sósa myndu eiga vel við.
Betri matur er í Florence en í Mílanó. Það var mikið lagt í matinn og mikið af kjöti. Vínið í Florence er sérstaklega gott. Klassísk uppskrift frá Florence: Bistecca alla Fiorentina 1 stór t-bone steik (minnst 7 cm þykk og 1–1,5 kg á þyngd) 1 búnt af fersku rósmarín 1 búnt af ferskri salvíu 2 tsk. af extra virgin ólífu olíu salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
11
Bergamó Bergamo er á Langbarðalandi (Regione Lombardia) í norður Ítalíu ca. 40 km norður af Mílanó. Þar búa u.þ.b. 122 þúsund manns. Bergamo er skipt í tvennt þ.e. efri bær (Citta Alta) og neðri bær (Citta Bassa). Hægt er að komast á milli bæjarhlutanna í kláfferju eða með hlykkjóttum göngustíg meðfram varnarmúrnum sem umkringir gamla bæinn og er hringlaga. Varnarmúrinn er frá Feneyjalýðveldinu. Arkitektúr Gamli bærinn er ekta ítalskur bær með þröng stræti, styttur, kirkjur og mikið af sögulegum stöðum. Neðri bærinn er aðeins nútímalegri með t.d. stærri stræti, búðir og veitingastaði frá stórum keðjum. Áhugaverðir staðir að skoða Citta alta Piazza Vecchia Cinta Muraria Maggiore Cathedral of Saint‘Allesandro
áttum við að taka myndir í takt við ljósmyndarann Luigi Ghirri. Ég tók u.þ.b. 500 ljósmyndir. Þegar við komum í skólann á öðrum degi hittum við skólastjórann sem sýndi okkur allan skólann í samvinnu við kennara og nemendur. Eftir að við höfðum skoðað skólann fórum við í hádegismat á frægum veitingastað sem heitir „Da Giuliana“. Eftir matinn fórum við með sporvagni til bæjar sem heitir Albíno og er í fjalli rétt fyrir ofan Bergamo. Planið var að fara lengra upp í fjöllin en kláfferjan sem við áttum að fara með var lokuð akkúrat þennan dag. Á þriðja degi mættum við í skólann til þess að vinna verkefni með ítölsku nemendunum. Við áttum að hanna plaggat í stíl við ítalska hönnuði. Eftir það fórum við út á skíðasvæðið sem er á skólalóðinni og fengum að prófa það. Skíðasvæðið er úr einhvers konar plasti sem ætti að líkjast því að renna á alvöru snjó. Að þessu loknu var frjáls dagur.
Ferðablogg Eftir ferðalagið frá Flórens fórum við beint á hótelið. Fyrsti dagurinn fór í að hitta Alberto, Gianluca, Valentina og nemendur frá Caterina Caniana sem er skólinn sem við vorum að fara að heimsækja. Þann dag fórum við í ferð um Bergamó með leiðsögn. Á meðan við skoðuðum gamla bæinn
12
Fjórði dagurinn byrjaði á því að klára plaggatið. Eftir það fórum við í rútuferð til bæjar sem heitir Iseo og þaðan með ferju út í eyjuna Monte Isola. Þar borðuðum við og skoðuðum okkur um í nokkra klukkutíma. Við komum til baka til Iseo með ferjunni og fórum í vínsmökkun á fallegum vínekrum sem heita Ferghettina.
Síðasti dagurinn í Bergamo fór í að sýna verkefnið okkar og að skoða ráðhúsið. Eftir það var frjáls dagur til klukkan 6. Við tókum síðan lest frá Bergamó til Lapensa flugvallarins þar sem við fórum á flughótelið og sváfum aðeins fyrir heimferð.
Landsins stærsta úrval af ítölskum gæða vespum er hjá okkur
Matarmenning Matargerðin í Bergamo er mjög sveitaleg og heimaleg. Maturinn er í mörgum tilfellum mun þyngri á þessu svæði en annars staðar á Ítalíu. Rótargrænmeti, sveppir, kjöt, maís og mjólkurvörur eru oft aðal hráefnin í réttum frá svæðinu. Ýmsir réttir sem eiga uppruna sinn í Bergamo Polenta Targana Casoncelli Risotto Gelato Klassísk uppskrift frá Bergamo Polenta targana 1 liter af vatni 120g bóghveiti 80g maísmjöl 250g hálf feitur ostur t.d. Fontina ½ tsk. af salti Undirbúningur Vatnið þarf að ná suðu og síðan þarf að bæta öllu mjölinu hægt og rólega út í og hræra á meðan að á því stendur. Síðan þarf að láta blönduna malla í 50–60 mínútur á miðlungs hita og passa vel upp á að hræra af og til í þannig að það festist ekki við pottinn. Þegar rétturinn er alveg að verða tilbúinn er smjörinu bætt við og það látið bráðna og saltið sett í. Þegar smjörið er bráðið er slökkt á hitanum, ostinum bætt út í blönduna og hrært í þangað til hann er hálf bráðnaður. Borið fram sem hliðarréttur t.d. í keramíkskál eða á skurðarbretti.
www.vespa.is Stórhöfði 10 543 1234
Andrea Bocelli Andrea Bocelli er heimsþekktur óperu tenór fæddur í Lajatico á Ítalíu árið 1958. Hann hefur verið blindur frá 12 ára aldri vegna meðfæddrar gláku og vegna höfuðhöggs eftir slys í fótboltaleik. Andrea hóf söngferil sinn seint á níunda áratugnum þar sem hann byrjaði á að koma fram á píanóbörum um Ítalíu. Árið 1993 skrifaði hann undir plötusamning. Það var upphafið á stórbrotnum ferli og er hann í flokki með bestu röddunum í bransanum. Andrea hefur unnið með mönnum eins og Luciano Pavarotti, Sara Brightman, Celine Dion o.fl. Þekkasti smellur hanns er „Con Te Partiro“ (Time To Say Goodbye) sem er dúett með Sara Brightman. Fjölskyldulíf Andrea kynntist fyrstu eiginkonu sinni Enrica Cenzatti snemma á tónlistarferli sínu og gengu þau í hjónaband 27. júní 1992. Þau eiga tvo syni Amos fæddur 1995 og Matteo fæddur 1997. Hjónin skildu svo árið 2002. Í dag er Andrea giftur Veronica Berti sem hann kynntist árið 2002 og eiga þau samann eina dóttir, Virginia. Þau búa núna í Forte dei Marmi við Miðjarðahafið. Nokktir hápunktar Árið 1999 gaf Andrea Bocelli út plötu sem heitir „Sacred Arias“ og er selda plata í klassískri tónlist. Yfir 20 miljóna eintaka seldist út um allan heim. Hann var einnig tilnefndur til „Grammy-verðlauna“ á sviði besta nýja tónlistarmannsins árið 1999. Ennþá þann dag í dag er hann sá eini sem hefur verið tilnefndur til verðlaunanna. Þessi klassíski söngvari hefur selt yfir 80 milljóna eintaka platna út um allan heim og gerir það manninn að söluhæsta sólólistamanns í klassískri tónlist.
14
Skemmtilegar staðreyndir um Andrea Bocelli Andrea Bocelli hefur selt yfir 75 milljónir platna yfir allan heim. Stórstjarnan Celine Dion sagði „ef guð gæti sungið, myndi hann hljóma eins og Andrea Bocelli“. Andrea getur spilað á gítar, trommur, trompet, flautu, saxafón, píanó og harmonikku. Andrea söng fyrir páfann John Paul II, í Róm 1. maí árið 2000.
Er þetta verk nokkuð of stórt? 14:30
Ekkert verk er of stórt fyrir okkur! 14:35 – Seen
Typing
Alhliða prentþjónusta
FORVINNSLA FORVINNSLA PRENTUN FORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR PRENTUN FRÁGANGUR FRÁGANGUR
Prentsmiðjan Litlaprent | skemmuvegur 4 , 200 Kópavogur | sími 540 1800 | www.prent.is | litla@prent.is
Fyrir þína framtíð! Grafía stéttarfélag varð nýlega eitt af aðildarfélögum rafiðnaðarsambands Íslands. Ávinningur sameiningar er mikill fyrir félagsmenn Grafíu. Kynntu þér réttindin þín á heimasíðu okkar www.grafia.is.
GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
Fræðslusjóðir | námstyrkir | ferðastyrkir og fleira ... Stórhöfða 31 | 110 Reykjavík | Sími: 552 8755 | grafia@grafia.is