G R A F Í S K M I Ð L U N
3. tbl. 12. árg. haust 2023
Styrkur til starfa
a ð i e k ta að bæ áms
s n a frem naði. d g l o t ð r fyrs na í i á fjö t
pp u r e ð
Boði
e n NAR tarfsma N U Ð s erk I a og Hlutv fyrirtækj i hæfn
• Bílgreinar • Bygginga- og mannvirkjagreinar • Matvæla- og veitingagreinar • Málm- og véltæknigreinar • Nýsköpun
• Prent- og miðlunargreinar • Sjálfbærni • Stjórnun og rekstur • Tölvuteikning og hönnun
Vatnagarðar 20 – 104 Reykjavík – Sími 590 6400 – idan@idan.is – www.idan.is
Efnisyfirlit LEIÐARI
4
Um mig
Nú styttist í útskrift og þakklætið í hámarki fyrir allan þann stuðning sem ég hef fengið frá kennurum, samnemendum, fjölskyldu og vinum. Námið hefur verið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt enda ekki leiðinlegt að fara í gegnum svona nám með bestu vinkonu sinni sem hefur veitt frábæran andlegan stuðning.
6
Hundafimi
8
Rallý hlýðni
10
Canicross
11
Hlýðni
12
Hundasýning
14
Nosework
Við höfum lært að hanna og setja fram efni í prent-, net- og skjá miðla auk þess sem áhersla er á prentsmíði, grafíska hönnun, margmiðlun og stafræna uppbyggingu mynda og litstýringu. Áhuginn minn á greininni heldur áfram að vaxa og hlakkar mig til framtíðarinnar í þessu fagi. Vil enda á að óska samnemendum mínum góðs gengis í framtíðinni og takk fyrir mig.
Umbrot og hönnun Helga Anna Ragnarsdóttir
Hönnun forsíðu Helga Anna Ragnarsdóttir
Útgefandi Upplýsingatækniskólinn
Prentun Upplýsingatækniskólinn
Letur Universe 55 roman Universe 65 bold Universe 45 light 45 Light Oblique
Pappír Digi Finesse silk 130 gr Digi Finesse silk 170 gr
Embla — 3
4 — Embla
Helga Anna Ragnarsdóttir Ég heiti Helga Anna Ragnarsdóttir og er fædd 16. febrúar 1996. Ég er uppalin og bý í Mosfellsbæ. Bjó í Bandaríkjunum í tvö ár þegar ég var yngri í 4.–5. bekk í grunnskóla. Ég ólst upp með þýskum fjárhundum, áströlskum fjárhundum og chihuahua. Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á hundum og hef tekið þátt í hundasýningum síðan ég var 14 ára. Elska ekkert meira en að vinna með hundinum mínum henni Yrju sem er ástralskur fjárhundur. Við keppum saman í hlýðni keppnum og hundasýningum. Höfum einnig tekið þátt í hundafimi, rallý-hlýðni og stefnum á að halda áfram í því þegar það gefst meiri tími til. Ég kláraði stúdentspróf árið 2018 í Menntaskóla Mosfellsbæjar á íþrótta- og lýðheilsubraut. Hafði síðan ekki mikinn áhuga við að halda áfram í því og fór að vinna í 4 ár í sundlaug Mosfellsbæjar með vinkonu minni. Svo kom að því að finna sér eitthvað annað til að læra sem ég hafði áhuga á og við ákváðum að fara að leita að námi saman með von um að vinna aftur saman í framtíðinni og fundum grafíska miðlun. Ég hafði ekki mikla þekkingu eða pælt mikið í þessu fagi fyrr en ég fór að skoða það á síðu skólans en fannst það mjög áhugavert.
Embla — 5
HUNDAFIMI Uppruni Hundafimi er upprunnin í Englandi þar sem hún var fyrst aukagrein á hinni frægu hundasýningu á Crufts. Forsagan að þessari stórskemmtilegu íþrótt var sú að forsvarsmönnum Crufts fannst vanta atriði sem áhorfendur hefðu mikla skemmtun af. Hannaðar voru brautir og tæki sem sambærileg voru hindrunum fyrir hesta og bætt við nokkrum sérhönnuð um fyrir hunda. Til að gera langa sögu stutta þá sló íþróttin í gegn á þessari fyrstu hundasýningu. Ekki eingöngu skemmtu áhorf endur sér konunglega heldur finnst bæði eigendum og hundum þetta mikil skemmtun og hund arnir líta yfirleitt á hundafimi sem leik með eiganda sínum. Um íþróttina Hundafimi eða Agility á ensku er hindrunarhlaup með hund. Í hundafimi læra hundarnir að leysa ýmsar skemmtilegar þrautir svo sem að: skríða í gegnum göng eða poka, hoppa yfir margar gerðir af hindrunum og í gegnum dekk, jafnvægisæfingar á brú, klifra yfir vegg og ganga yfir vegasalt. Auk þess lærir hann að vinna með eiganda sínum með skipunum og bendingum. Með því að æfa hundafimi verður hundurinn meira meðvitaður um líkama sinn, lærir að vinna þrátt fyrir truflun frá öðrum hundum og fær andlega örvun sem gerir það að verkum að hundurinn verður rólegur og glaður heimilishundur
6 — Embla
sem fær að vinna, sem gerir þessa íþrótt mjög hentuga fyrir orkumikla og vinnusama hunda. Margir hundar, ekki síst í borgum og bæjum fá og litla hreyfingu. Þeir hvílast of mikið á daginn og safna orku sem þarf að fá útrás fyrir á einn eða annan hátt. Það er mikilvægt að við sem hundaeigendur getum stýrt þessari orku þannig að hún fái jákvæða útrás. Ef svo er ekki, getur þessi þörf hundanna fyrir útrás verið til vandræða s.s. árásargirni, eyðilegging á innanstokksmunum, stressi hjá hundinum o.s.fr. Að þreyta hund líkamlega getur verið erfitt, en að þreyta hann andlega þarfnast miklu minni orku af okkar hálfu. Kröfur Hundafimi gerir kröfu um aga, einbeitingu og athygli. Hundurinn þróar betri hreyfingar og betra jafnvægi. Þetta styrkir sjálfstraustið og byggir upp samband hunds og eiganda. Hundafimi er holl hreyfing fyrir hundinn og örvar hann á jákvæðan hátt. Enginn er neyddur til að keppa, það er hægt að þjálfa hundafimi bara vegna þess að hún er skemmtileg. Allir hundar geta tekið þátt í hundafimi, líka blendingar. Til að geta tekið þátt er mikilvægt að viðkomandi hafi góðann grunn í hlýðni ásamt góðu sambandi við hundinn. Án sambandi milli hunds og manns er mjög erfitt að kenna hundinum. Bæði smáhundar og stórir hundar verða að ná 12. mánaða aldri áður en þjálfun í hundafimi hefst.
Brautir Brautin er gerð úr fjölda hindrana og ræður staðsetning þeirra erfiðleikastiginu og hraðanum. Hundurinn þarf að klára brautina innan fyrir fram ákveðins tíma og fara í gegnum hindranirnar í réttri röð.
»
Almennt
»
» Svæðið sem notað er þarf að vera að minnsta kosti 30 x 40 m. Innan þessa svæðis þarf hringurinn sem brautin verður byggð á að vera að minnsta kosti 20 x 40m. Á innanhúsmótum getur þetta verið breytilegt. Notist tvær eða fleiri brautir verður að vera lokuð girðing eða gott bil á milli brautanna. (minnst 10 m.). Undirlagið í hringnum skal vera jafnt, stamt og má ekki vera hundi eða manni hættulegt. » Brautarlengd; 100–200 m, og þarf hundurinn að fara í gegnum að minnsta kosti 15 en
» » » »
ekki meira en 20 hindranir. Það fer þó eftir erfiðleikastiginu. Allavega 7 af þessum hind runum þurfa að vera hopphindranir (hopp, veggur eða dekk). Staðal keppnissett þarf að innihalda a.m.k. 10 hopphindranir. Langstökk hafa hámarkslengd: L - 30 cm, M - 40 cm, S - 55 cm Samsett hopp (hámark þrjú hopp sem teljast sem ein hindrun) hafa millibilið 2 m í litlum, 3 m í meðal og 4 m í stórum. Fjarlægðin milli tveggja hindrana er á bilinu 5–7 m. Þjálfarinn á að geta farið fram hjá hverri hind run upp á báðar hliðar. Þegar hoppkeppni er verður dómarinn að hafa minnst 14 hopp til notkunar. Undirlag og hindranir skulu vera kynntar og samþykktar af dómara eða mótsstjóra fyrir keppni. -Hundaræktarfélag Íslands
Faxafen 11 – Sími: 599 8888 – audnuspor@audnuspor.is
ÞINN VINUR Á ÞAÐ BESTA SKILIÐ UM JÓLIN Nýttu þér afsláttinn okkar! Allt að 50% af öllum vörum á netinu inn á www.audnuspor.is
RALLÝ-HLÝÐNI Um íþróttina Rallý-Hlýðni er skemmtileg hlýðniþjálfun þar sem gengið er braut með skiltum. Hver braut er með 10–15 mismunandi skiltum og hvert skilti sýnir æfinguna sem á að gera. Skiltin eru mörg en þau fara eftir styrkleikaflokkum. Alls eru 4 styrkleikaflokkar í íþróttinni. Rallý er jákvæð hundaíþrótt þar sem gleði og samvinna manns og hunds er í fyrirrúmi. Það er alltaf unnið út frá hraða hundsins. Rallý er mjög þekkt alls staðar úti í heimi og þá sérstaklega á Norðurlöndunum. Þar er jafnvel meiri eftirspurn eftir rallý-hlýðni heldur en venjulegri hlýðni. Það er líklega vegna þess að rallý er aðeins öðruvísi en hlýðni, reglurnar mildari en hlýðni, það má tala meira við hundinn í braut, þannig að það hentar betur fyrir flesta. Hægt er að byrja rallý þjálfun strax og maður fær hvolpinn í hendurnar og gömlu hundarnir hafa líka gaman af. Það hafa verið haldin nokkur
rallý námskeið á Íslandi og áhuginn fyrir þessari hundaíþrótt fer vaxandi. HRFÍ hefur viðurkennt rallý-hlýðni sem hundaíþrótt svo núna bráðlega er hægt að keppa og safna rallý titlum! Þátttakendur Allir geta skráð hund til þátttöku í vinnuprófum, nema þeir sem hafa verið sviptir þátttökurétti af HRFÍ eða erlendu hundaræktarfélagi viðurkenndu af FCI. Hafi einstaklingur verið sviptur þátttökurétti, má hann heldur ekki leiða hund til dóms eða vinna við undirbúning eða framkvæmd prófa. Stjórnandi með umboð frá eiganda getur skráð hund í próf. Svæðið sem prófið fer fram á þarf að vera aðgengilegt hreyfihömluðum þátttakendum svo fremi sem hægt er. Ef þátttakendur eru fleiri en einn dómari getur dæmt, má skipta þátttakendum á milli fleiri dómara. Hundar sem rétt hafa til þátttöku
Rallý keppni
8 — Embla
Ljósmyndari: Ágúst Elí Ágústsson
Vinnupróf eru opin öllum hundum 9 mánaða og eldri með þeim skilyrðum og undantekningum sem eru tiltekin í þessum reglum. Veita má undanþágu fyrir hunda sem verða 9 mánaða í þeim mánuði sem prófin eru haldin. Hundur skal vera bólusettur gegn þeim sjúkdómum sem við á hverju sinni og stjórnandi þarf að geta sýnt fram á að svo sé. Aðeins þeir hundar sem eru skráðir til þátttöku eru leyfðir á prófsvæðinu. Ekki er heimilt að mæta með hund ef hann er veikur, veiklulegur eða árásargjarn. Tík á lóðaríi, tík sem er gengin meira en 5 vikur á meðgöngu eða er með hvolpa yngri en 8 vikna er óheimil þátttaka í prófi. Allir hundar sem skráðir eru í próf skulu vera örmerktir. Starfsfólki í prófi er heimilt að lesa örmerki hunda á prófstað.
Nafnakall í vinnuprófum Þátttakendur í vinnuprófi, eru kallaðir til þátttöku samtímis. Innbyrðis rásröðun er ákveðin fyrir fram. Ef þátttakandi er ekki til staðar þegar hópurinn hans er kallaður inn getur teymið átt á hættu að missa þátttökurétt sinn í viðkomandi prófi. Ef þátttakandi er skráður með tvo hunda í sama flokki skal honum gefinn tími til að undirbúa sig fyrir aðra innkomu. Ef það koma upp aðrir árekstrar svo sem að hundur sé skráður í keppni (sýning, hundafimi eða annað) á sama tíma eða þátttakandi hefur skráð fleiri en tvo hunda í prófið, þá er það alfarið á ábyrgð þátttakanda að finna lausn á vandanum. -Hundaræktarfélag Íslands
Skemmtimót í Rallý
Ljósm: Sæunn Ýr
HEIMAGERT BANANA NAMMI Haframjöl Spelt hveiti
3 bolla 310 ml
Egg
2 stk.
Olía
60 ml
Hunang
125 ml
Mjólk
125 ml
Kramdir bananar
2 stk.
Embla — 9
CANICROSS Hvað er Canicross? Canicross er íþrott þar sem hundar og fólk hlaupa saman sem teymi. Hundurinn hleypur fyrir framan og keppandinn fyrir aftan og stýrir hundinum með orðaskipunum. Það er hægt að byrja á að leyfa hundinum að hlaupa við hlið þér og æfa sig þannig að því að hundurinn fari síðan fyrir framan. Það eina sem þú þarft er hundabeysli fyrir canicross, teygjanlegan taum, canicross belti og góða skó. Geta allir hundar æft? Hundar af öllum stærðum og tegundum geta tekið þátt, hafa þarf í huga að bera virðingu fyrir þoli og getu hundsins. Ef hundurinn er með einhver heilsuvandamál arf að hafa það einnig í huga annar er þetta frekar örugg íþrótt. Litlir hundar munu ekki geta hlaupið jafn hratt og þeir stóru en það þýðir ekki að þau geti ekki hlaupið með þér. Hundar ættu að vera full vaxnir, um 12–18 mánaða gamlir til að taka þátt. Hentugar tegundir Vinsælustu tegundirnar fyrir þessa íþrótt er snögghærður þýskur pointer, enskur pointer, belgískur malinois, husky, border collie og beauceron. Einnig eru oft líka blendingar af þessum tegundum vinsælt í íþróttinni. Þó þú sért ekki með þessar vinsælu tegundir er hægt að æfa með heimilis hundinn líka eins og margir gera. Allir hundar geta notið sín í þessari íþrótt enda góð æfing fyrir heila og líkama.
10 — Embla
HLÝÐNI Hvað felst í hlýðni þjálfun? Hlýðniþjálfun á oftast við að þjálfun á hundi og hugtakið er oftast notað í því samhengi. Hlýðni þjálfun nær frá einföldum hlýðni æfingum, eins og að kenna hundi að bregðast við ýmsum skipunum eins og „sitja“, „liggja“, „koma“ og „kyrr“, til keppnishlýðni með fleiri og flóknari skipunum, þar sem hund er dæmdur fyrir nákvæmni og framkvæmd æfinga. Hlýðni felur í sér að fylgja eftir skipun sem gefin er af stjórnanda. Svo að hundur getur talist hlýðinn en ekki aðeins þjálfaður í hlýðni, verður hann að framkvæma skipun sem honum er gefin fljótt og í hvert skipti sem skipun er gefin, af stjórnanda hans. Hundur getur farið í gegnum hlýðniþjálfun án þess þó að vera hlýðinn. Ef hundurinn á að
Sækja/skila yfir hindrun
geta talist hlýðniþjálfaður ætti hann að hlýða strax hverri skipun sem stjórnandi gefur honum. Í ströngustu merkingu ætti hlýðniþjálfaður hundur að vera hlýðinn hundur. Hundar sem geta gert áður nefndar skipanir og gengið fallega í taum auk annarra léttra æfinga geta tekið Bronsmerkjapróf á vegum HRFÍ. En í Bronsmerkjaprófi eru aðeins grunnhlýðni æfingar. » Skoða tennur » Ganga við hæl í taum » Liggja » Innkall » Standa á göngu » Liggja kyrr í 1 mín. Auk þess eru gefin stig fyrir samvinnu hunds og stjórnanda. Vinnuhundadeild HRFÍ
Ljósmyndari: Óþekktur
Embla — 11
HUNDASÝNING Hvað er gert á sýningum?
Þeir dómar sem hægt er að fá
Á hundasýningum eru hundar dæmdir eftir ákveðnum stöðlum en þessir staðlar koma frá heimalandi viðkomandi hundategundar. Dómarnir eru ræktunar- og byggingardómar og því eingöngu fyrir hreinræktaða hunda. Dómari metur stærð hundsins, feldgerð, lit og tennur upp á að bit sé rétt. Hann þreifar líkama hundsins, til að meta vöðvabyggingu, vinkla á framfótum og afturfótum, skottstöðu, eyrnastöðu og hvort eistun séu niðri á rökkum. Sýning fer þannig fram að stjórnanda og hundi er hleypt inn í hring. Inn í hringnum þarf stjórnandi að hlaupa með hundinn þannig að dómari geti metið hreyfingu hundsins bæði á hlið, að framan og að aftan. Síðan þarf hundur að standa kyrr á meðan dómari þreifar hundinn. Hundar sem taka þátt í sýningum eru í mismunandi flokkum, unghundaflokki, opnum flokki og meistaraflokki.
Excellent – Besta einkunn sem hægt er að fá en við hana er hægt að bæta meistarastigi eða meistaraefni. Meistarastigin geta verið tvennskonar, íslenskt og alþjóðlegt. Ef fleiri hundur en einn fær Excellent þá er raðað í sæti 1.–4. Eingöngu er gefið meistarastig fyrir fyrsta sæti. Annað sæti getur fengið meistaraefni. Dómari metur hvort hundur eigi erindi upp í næsta flokk fyrir ofan. Very good – Næst besta einkunn en við hana er hægt að bæta meistaraefni. Hundur getur ekki farið upp um flokk. Good – Góður dómur en hundur getur ekki farið upp um flokk Sufficient – Ásættanleg bygging en einhverjir útlitsgallar. Hundur er rekinn út af.
12 — Embla
-Auður Erlarsdóttir
STIG Alþjóðlegt meistarastig (CACIB)
Tryggingar
Á alþjóðlegum sýningum keppa rakkar og tíkur um alþjóðlegt meistarastig (CACIB) og vara-alþjóðlegt meistarastig (Res-CACIB), í keppni um besta rakka og bestu tík tegundar. Íslenskur meistari (ISCh) Til að hundur geti orðið íslenskur meistari verður hann að hafa fengið þrjú stig til meistara á þremur sýningum HRFÍ, hjá þremur mismunandi dómurum. Eitt af þeim stigum skal veitt eftir 24 mánaða aldur hundsins (24 mán.+ 1 dagur). Hundar af vinnuhundakyni, sbr. sérreglur um meistaratitil fyrir vinnuhunda, verða einnig að uppfylla kröfur um árangur í vinnuprófum.
KYNNINGARTILBOÐ! Við bjóðum upp á 20% af eftirfarandi tryggingum! • heimilistrygginar • dýratryggingar • bílatryggingar Við gerum okkar besta svo þér líði vel!
Norðurlandameistaratitill Til að hundur geti fengið Norðurlandameistaranafnbót (NORDUCH) þarf hann að hafa hlotið meistaranafnbót hjá þremur hundaræktarfélögum á Norðurlöndum (NKU). Eigandi getur sótt um þennan titil á þar til gerðu eyðublaði á skrifstofu HRFÍ. Með umsókninni skulu fylgja þau gögn sem sanna að hundurinn uppfylli þær kröfur sem gerðar eru hjá hundaræktarfélögunum á Norðurlöndum (FCI). Veiting á þessum titli er alfarið háð samþykki viðkomandi Hundaræktarfélaga.
Kíktu á síðuna okkar og nældu þér í snilldar tilboð!
-Auður Erlarsdóttir
Háteigsvegur 105 • 105 Reykjavík • www.bjork.is • bjork@tryggingar.is
NOSEWORK Hvað er Nosework NoseWork er íþrótt fyrir hunda og leiðbeinanda þeirra sem snýst um að hundurinn þefi upp og finni ákveðna lykt og er hún íþrótt sem byggð er á fíkniefna og sprengjuleit. NoseWork hentar vel fyrir hunda sem eru mjög örir og/eða stressaðir þar sem þefið hægir á hjartslættinum og hefur þar með róandi áhrif. Þetta er mjög góð leið til að byggja upp betri tengingu við hundinn á mjög skemmtilegan og náttúrulegan hátt sem allir hundar geta gert og kennir fólki að lesa hundinn sinn og hans líkamstjáningu betur. Hægt er að taka lyktarpróf þegar teymið hefur lært á lyktina og að því loknu geta þau keppt á vegum Íslenska NoseWork Klúbbsins. Hundunum kynnt fyrir lyktinni sem notað er og farið er mjög ítarlega í íláta og innanhúsleit, tveir flokkar af fjórum í NoseWork (utanhúss og farartækjaleit er kennt á framhaldsnámskeiði). Notað er “Rons aðferðin” til að kynna hund unum fyrir lyktinni, eftir það er unnið á hraða hvers og eins. Markmið Markmiðið er að byggja upp mjög öflugan grunn í leitaríþróttinni sem hægt er að byggja á hvort sem menn vilja fara að keppa eða einungis nota þetta heima við til að gefa hundinum meiri útrás. Þessi íþrótt hentar öllum hundum burt séð frá tegund, stærð eða aldur, NoseWork vinnur með náttúrulegum eiginleika hundsins til að nota nefið. Íþróttin er líka byggð á því að allt fólk getur stundað íþróttina, fólk með skerta hreyfigetu á alltaf að geta tekið þátt á þessum námskeiðum og keppt í íþróttinni
14 — Embla
GÆÐI Í ÞJÓNUSTUNNI – GÆÐI Í PRENTUN
Prentun er okkar fag. Hjá Litlaprenti starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun til margra ára. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki.
Opið alla virka daga kl. 8:00–16:00
Skemmuvegi 4, blá gata – 200 Kópavogi – S:540 1800 – litlaprent@litlaprent.is – www.litlaprent.is
ÞÍN RÉTTINDI SKIPTA OKKUR MÁLI Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig. Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameingarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu.
Frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar
www.grafia.is
ÞJÓNUSTA • • • • •
Kjaramál Lífeyrismál Sjúkrasjóður Orlofssjóður Fræðslustyrkir
Stórhöfða 31, 3. hæð – 110 Reykjavík – Sími 540 8755 – grafia@grafia.is – www.grafia.is