TÓMAS ARNAR ERLINGSSON
FRÉTTABRÉF
VOR 2022
LETUR Mikilvægir punktar þegar unnið er með letur Þegar unnið er að framsetningu upplýinga þarf að huga að ýmsu og eitt það mikil vægasta er textinn. Hann þarf að vera þægilegur aflestrar, stærðin á honum þarf að passa efninu, ákveða þarf hversu breið ir textadálkarnir eru og hvernig þeir eru jafnaðir.
Ekki nota allar leturgerðirnar þínar í sama verkið Ef þú notar of margar leturgerðir í sama verkið er hætta á því að það sem þú vilt koma til skila týnist. Í hverri leturgerð er leturfjölskylda og algengast er að hún samanstandi af regular, bold, italic og bold italic. Til eru stærri leturfjölskyldur eins og Helvetica eða Univers en þær innihalda útfærslureinsogcondensed,thin,light,black, ultra black og fleira. Ef ein tegund er not uð eru fyrirsagnir og millifyrirsagnir úr leturfjölskyldunni eins og Bold og áherslur í texta Italic. Það er í lagi að nota eina leturgerð í fyrir sagnir og aðra í meginmál og má þá velja steinskrift í fyrirsagnir en alltaf þarf að velja þverendaletur í meginmál. Hægt er svo að endurtaka leturgerðina í fyrirsögninni aftur í millifyrirsagnir.
Stærð og gerð leturs Letur hefur verið flokkað í nokkra flokka eins og áður hefur komið fram en stein skrift (San serif ) og þverendaletur (Serif, Antiqua, Roman) eru þau letur sem notuð eru í meginmáltexta. Steinskrift er aldrei valin í langan texta þar sem hún erekki eins læsileg og þverendaletur. Það myndar betri myndir af orðunum og flýtir fyrir lestri og það ætti alltaf að vera markmið hönnuðarins að auðvelda lestur. Þverendaletur er letur eins og Times letrið og steinskrift eins og Arial. Bæði steinskrift og þverendaletur eru notuð í veggspjöld,
auglýsingar, í minni bæklinga og jafnvel ársskýrslur en í bækur með miklum texta verður að velja þverendaletur. Punktar eða pt. eru mælieining fyrir stærð leturs. Þegar stærð leturs er valin þarf að gera sér grein fyrir hver er að fara að lesa upplýsingarnar og hversu áhugaverðar þær eru. Velja þarf stærra letur fyrir börn en fullorðna og fer stærðin eftir lestrargetu. Börn sem eru að byrja að læra að lesa þurfa letur allt að 36 pt. en allt niður í 12 pt. fyrir 12 ára. Þegar fólk hefur náð góðum tökum á lestri er algengast að nota 8–12 pt. letur en það fer alveg eftir gerð letursins. Letur getur verið stórgert eða smágert og þess vegna þarf alltaf að gera leturprufur þegar unnið er með texta. Leturprufur eru gerðar þannig að layout prentgripsins er ákveðið og síðan er textanum rennt inn í það. Leturgerð er valin á textann og prentað út. Þannig þjálfast hönnuðurinn í að þekkja leturgerðir og hvernig þær haga sér í texta. Leturfótur eða línubil Leturfótur eða línubil í meginmáli ætti að vera 2–3 punktum stærra en letrið. Ef letrið er t.d. 10 pt. að stærð ætti leturfótur að vera 12–13 pt. í bókum. Hægt er að leyfa sér meira línubil þegar unnið er með stærra letur eins og í auglýsingu eða á veggspjaldi. Ef of þröngt er á milli lína í miklum texta er erfitt að lesa en það á líka við um of mikið línubil. Viðmiðunarregla er að ef þú ert með 10 pt. letur þá á að vera á minnst 12 pt. leturfótur (línubil/leading). Ef línubilið verður of mikið fer textinn að detta í sund ur og hættir að mynda heild. Leturlínan (breidd textaboxins) tekur líka mið af stærð letursins. Breidd á textadálki ætti aldrei að vera meiri en svona 12 sm eða 65 slög (stafir og bil í línu) en það fer svolítið eftir stærð letursins. Ef hann er breiðari þarf sá sem les að færa höfuðið fram og til baka við lestur og veldur því að sá hinn sami verður fyrr þreyttur að lesa og fer oftar línuvillt. Ef þú ert að lesa þennan texta í tölvu, prófaðu þá að stækka skjalið á skjánum og þú finnur strax hvernig hægist á lestrinum. Samræmi milli breiddar á dálkum og stærð á letri skiptir einnig miklu máli svo ekki myndist göt í texta. Ef valið er 10 pt. letur þarf línan að vera um 8–10 cm. Eftir því sem letrið stækkar lengist línan og svo öfugt. Dálka breidd stýrist af ýmsu
Textaflöturinn eða dálkurinn er fyrst og fremst háður stærð prentflatarins. Dálka breidd ætti aldrei að vera minni en um 5 sm en dálkar í fréttablöðum eru 4,7 sm og leturstærð er um 10 pt. Samræmi milli breiddar á dálkum og stærð á letri skiptir miklu máli svo ekki myndist göt í texta. Stór göt niður heilan textaflöt eru kölluð „lækir“ enda myndast oft form sem hægt er að fylgja niður allan dálkinn eins og læk ur. Bæði ár og mikið af orðskiptingum eru merki þess að dálkurinn sé of mjór miðað við stærð leturs. Þá er hægt að breyta ann aðhvort stærð leturs eða breidd dálksins. Ef orð skiptast á milli lína oftar en þrisvar í röð er það merki um slæmt samræmi í leturstærð og dálkabreidd. Einnig þarf að passa upp á orðskiptingar. Til eru forrit sem passa upp á þetta en hafa þarf í huga að þau eru ekki fullkomin svo alltaf þarf að lesa yfir og sjá hvort orðum er rétt skipt.
Mikilvægir punktar þegar unnið er með letur Læsileiki leturs byggist á leturgerð og leturstærð. Hæfileg notkun lofts getur lyft undir út litshönnunina en loft í óhófi getur orðið til þess að efnishlutar týnist eða verði munað arlausir (virðist án tengsla við efnið). Hæfileg notkun áhrifavalda er ætlað að undirstrika efni og efnisþætti. Óhófleg notkun áhrifavalda getur skapað sóðalegt útlit. Vandvirkni í uppsetningu er stórt atriði. Huga skal vel að dálkabreidd, orðabilum, skiptingu orða milli lína og áherslum. Góð aðgæsla smáatriða skiptir miklu máli. Huga skal að samræmi í bilum, að lesmáls línur standist á yfir síðu og opnu og samspil sé á milli mynda og fyrirsagna. Fagmennska í vinnubrögðum. Þegar alls þessa er gætt ætti fagmennska að skína af verkinu þegar því er lokið. Tekið saman af Brynhildi Björnsdóttur
2 | Grafísk Miðlun
RAFBÆKUR „Rafbók er efni á stafrænu formi sem myndar heild og er ætlað miðla upplýsingum með texta, táknum og myndum.“ Rafbók nær því yfir mjög vítt svið skjala á tölvutæku formi. Rafbækur geta til dæmis verið textaskrá (txt), ritvinnsluskjal (doc) eða vefsíða (html). Algengt er að skilgrein ing á rafbók sé þrengri, til dæmis sem staf ræn eftirmynd af útgefinni prentaðri bók. Sú skilgreining er að vissu leiti hamlandi eða villandi.
Hugtakið lófabók er þrengri skilgreining en hugtakið rafbók. Lófabækur sem geta til dæmis verið á ePUB, Kindle eða sem bókaforrit (BookApp). Þessar gerðir eiga það sameiginlegt að aðlaga sig að því tæki og lestrarforriti sem bókin er lesin í. Sumar gerðir bjóða lesandanum til dæmis aðbreyta stærð, gerð eða lit texta, aðrar innihalda myndir og sumar bjóða upp á margmiðlun og gangvirkni. Þetta gerir lófabækur mun aðgengilegri fyrir lesendur með ólíkar þarfir og hentar lestri á ólíkum og misstórum tækjum. Allir rafbókalesarar gera ráð fyrir lófabókum sem aðal rafbókaforminu.
Hver er munurinn á rafbók og lófa bók? Allar lófabækur eru rafbækur. Allar rafbæk ur eru hinsvegar ekki lófabækur. Hugtækið lófabækur nær aðeins yfir þær rafbækur sem hannaðar eru til þess að vera lesnar í smáum tækjum eða í rafbókaforritum. Lófabækur eru ekki fastmótaðar heldur er uppbygging þeirra hönnuð til þess að laga sig að því tæki sem notað er til lestursins.
Hver er munurinn á prentaðri bók og lófabók? Prentaðar bækur eru hannaðar þannig að þær notast við ákveðið letur, blaðsíðustærð, línubil, lit og fleira. Þar stjórnar útgefandi eðahöfundurstaðsetningutexta,málsgreina og mynda nákvæmlega. Lófabækur eru hannaðar þannig að hægt sé að lesa þær í tækjum sem eru af öllum stærðum og gerð um. Það eru engar „blaðsíður“ í lófabókum. Lófabókin gefur lesendanum vald að lesa eins og hann vill með þeirri textastærð sem honum þykir þægilegust og hann getur oft breytt leturgerð og lit texta eða „pappírs ins“. Það gefur lesandanum kost á að njóta efnisins án þess að láta umbúðirnar trufla sig. Rafbókin á ekki eftir að líta eins út í öllum tækjum. Lesendur vilja orð höfunda og hugmyndir, ekki útlitið á þeim. Tekið af www.emma.is
AÐ SKIPULEGJA UMBROTIÐ Áður en umbrotsskjal er búið til verður að ákveða skorna stærð verksins. Það getur jafnvel verið gott að ákveða þykkt (síðu fjölda) og pappírstegund, því hvorttveggja hefur áhrif á kjalbredd prentgripsins og ræður einhverju um liti í hönnuninni. Bók band hefur einnig sitt að segja í umbrotinu, m.a. getur það ráðið því hvernig leggja á myndir yfir innri spássíu. Gott er að gera útlitsteikningu (með síðuskissum) til að auðvelda skipulagninguna.
Á þessu stigi er einnig mikilvægt að velja tegund og fjölda lita, t.d. einn lit, fjórlit eða sérliti. Í sumum tilfellum getur umbrotsmaður einnig þurft að vita hvernig síðurnar koma til með að raðast á prentörkina. Þá má út vega sér brotsýni (dummy) hjá prentsmiðj unni sem sýnir hvaða síður munu
prentast saman. Þetta getur t.d. komið að gagni við að skipuleggja notkun á sérlitum, en einnig til að geta rætt hvernig setja á saman skammt af síðum handa prentsmiðj unni ef ekki ert hægt að senda allt efnið í einu. Á brotsýninu sést líka hvar tveggja blaða og miðopnur myndast í prentgripn um.
EUROSKILLS Keppt er í iðn- og verkgreinum í alþjóðlegu keppnunum, Worldskills og Euro skills. Ísland tekur þátt í Euroskills sem haldið er á tveggja ára fresti. Árið 2020 verður keppnin haldin í Austurríki. Íslandsmót iðngreina er einnig haldið annað hvert ár, árið á móti Euroskills keppninni. Ísland hefur þrívegis sent keppendur grafíski miðlun á Euroskills: • • •
Laufey Dröfn Matthíasdóttir keppti í Leipsig í Þýskalandi árið 2013 Axel Fannar Friðriksson keppti árið 2016 í Gautaborg í Svíþjóð. Haraldur Örn Haraldsson keppti árið 2018 í Búdapest í Ungverjalandi.
í LAUFEY
AXEL
HARALDUR
• Sjá má myndir frá keppnunum á heimasíðu Verkiðnar www.verkidn.is. Grafísk Miðlun | 3
Adobe InDesign býður þar að auki upp á eigin aðgerð TYPE » INSERT SPECIAL CHARACTER, til að bæta t.d. höfundar réttartákninu eða föstum stafabilum inn í textann. Grafísk miðlun, bls. 206
Sniðmát Týpógrafískar stillingar fyrir efnisgreinar (málsgreinar) eða einstök tákn má vista sem efnisgreina- og táknsnið (Paragraph- og Character Styles). Þau má síðan nota á aðra textabúta sem eiga að fá sömu stillingar. Ef efnisgreina- eða táknsniðum er breytt, gildir þessi breyting fyrir alla þá staði í textanum þar sem þessi snið voru notuð. Litablöndur er hægt að vista sem almenn snið, eða þá litaprufur, sem má beita á síðu þætti og breyta á sama hátt og efnisgreinaog táknsniðum er breytt fyrir texta.
HVAÐ ER GRAFÍSK MIÐLUN? Grafísk miðlun á rætur sínar og forsendur í prentiðnaðinum. Um er að ræða prentsmíð ina með breyttum áherslum. Starfssviðið felur í sér hönnun allra helstu tegunda prentgripa og tæknilegan frágang á þeim til útgáfu (vinnsla fyrir prentun) auk þess sem það tekur til hönnunar skjágripa. Starfsvettvangur er einkum í prentsmiðjum, auglýsingastofum og við útlitshönnun fyrir
Grafískur miðlari þarf að geta notað við eigandi hugbúnað við hönnun blaða, bóka, tímarita, umbúða, auglýsinga, auglýsinga efnis og skjámynda og geta unnið öll al geng vinnuskjöl á þessu sviði. Mikilvægt er að hann hafi góðan skilning á forsendum þess hugbúnaðar sem hann vinnur við svo hann geti auðveldlega lagað sig að nýjum og endurbættum hugbúnaði þegar þörf er
sjónvarp og netmiðla. Stór hluti starfsins felst í hönnun og umbroti þar sem unnið er með myndir og texta.
á.Störf á sviði grafískrar miðlunar eru afar fjölbreytt og krefjast víðtækrar fræðilegrar og tæknilegrar þekkingar og færni.
Grafískur miðlari þarf að kunna góð skil á textameðferð og setningu, þekkja vel leturgerðir og stílbrigði og hafa gott vald á myndbyggingu og táknfræði síðuhönnunar. Hann þarf að kunna reglur um íslenska greinarmerkjasetningu fyrir prentun og vera vel að sér í greinarmerkjasetningu algengra erlendra mála, svo sem ensku og dönsku. Hann þarf að kunna að ganga frá efni til prentunar, taka á móti gögnum og vinna þau áfram til vinnslu í prentvél í samræmi við gæðakröfur í prentsmiðjum og þarf einnig að þekkja til grundvallaratriða í prentun og bókbandi.
Tekið af www.tskoli.is
InDesign býður einnig upp á síðuþáttasnmát (Object Styles) sem í má geyma allar still ingar fyrir ramma, t.d. rammastrik, gegn sæi, skugga og innfellingarými. Þessu sniðu má svo beita á aðra ramma og breyta þeim miðlægt á sama hátt og efnisgreinasniði fyrir texta. Grafísk miðlun, bls. 197–198
GLYPHS Fontur inniheldur venjulega miklu fleiri stafi en þá sem sjálst á lyklaborði tölvunnar. Til að komast að þessum „földu“ stafaaf brigðum og rittáknum má halda niðri mis munandi lyklasamstæðum á lyklaborðinu, t.d. alt + einhver bókstafur. Það getur ver ið erfitt að festa sér þessar samsetningar í minni. Nokkrar hjálparleiðir eru til að finna falin tákn. Þegar um er að ræða táknfonta sem innihalda enga venjulega bókstafi eru þessar leiðir óhjákvæmilegar til að finna rétt tákn. Í Adobe InDesign má finna gluggann glyphs sem gefur góða yfirsýn yfir öll þau tákn sem fontur hefur að geyma. Þessi gluggi sýnir einnig sérstakar aðgerðir í OpenType-fontum þar sem sækja má ýmis tákn og samsteypur (e. ligatures).
4 | Grafísk Miðlun
Algeng Alt-númer: „abc fyrri gæsalöpp Alt 0132 abc“ seinni gæsalöpp Alt 0147 … þrípunktur Alt 0133 – þankastrik Alt 0150