Vor 2022
3. tbl. 11. árg.
Staðnám? eða fjarnám?
IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prenttæknigreinum og matvæla- og veitingagreinum. Fjarnám er í boði á öllum námskeiðum þar sem verklegrar kennslu er ekki krafist og boðið er upp á stöðugt vaxandi úrval vefnámskeiða sem styrkja fólk í starfi.
Iðan - fræðslusetur Vatnagarðar 20 104 Reykjavík Sími: 590 6400 Netfang: idan@idan.is Veffang www.idan.is
Staðnám – fjarnám – vefnám
Leiðari Þá er komið að þessu, seinasta verkefnið fyrir útskrift. Ég trúi ekki hvað tíminn hefur verið fljótur að líða sérstaklega í covid tímunum, tíminn bókstaflega flaug og áður en maður vissi af var árið búið. Það hefur verið svolítið þannig með þessa önn, fyrst var það allir voru rosalega spenntir fyrir útskriftarferðinni til Ítalíu og svo
allt í einu er önnin búin í næsta mánuði. Það er búið að vera svakaleg keyrsla á öllum verkefnum og erfitt að halda utan um allt og skipuleggja sig en þetta tókst á endanum og ég er bara mjög ánægð við að hafa staðist við þetta nám og hlakka til að sjá hvaða hurðar opnast í framtíðinni.
Ritstjórn Ástrós Erla Pálsdóttir Samsetning
Efnisyfirlit
Ástrós Erla Pálsdóttir Forsíða Ástrós Erla Pálsdóttir
Hver er ég? 5-6 Banksy 7-8 Saga Rómar 10-11 Japan á miðöldum 11-12 Uppáhalds matur 13 Gyoza uppskrift Anime og manga
Útgefandi Tækniskólinn Nemandamynd Ástrós Erla Pálsdóttir Prentun Tækniskólinn Letur Univers 45 light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Univers 75 black 20/15 Univers 75 black 13,5 Pappír Innsíður: digi finesse silk 130 grm Kápa: digi finessesilk 170 grm
Ástrós Erla Ég heiti Ástrós Erla og er í námi við Tækniskólann að læra grafíska miðlun. Ég var ekki alltaf í grafískri miðlun; þegar ég byrjaði í skólanum fór ég á tölvubraut að læra forritun, en komst fljótt að því að forritun væri ekki fyrir mig, þannig að ég tók þá ákvörðun að skipta um braut og fór á grunnbraut í fjölmiðlun og grafískri miðlun. Eftir grunnbrautina valdi ég sérsvið í grafískri miðlun. Ég sé mig ekki vinna við þetta í framtíðinni. Mig langar að vinna við animation, eða hreyfimyndagerð. Mig langar líka að vera raddleikari fyrir tölvuleiki og teiknimyndaþætti. Það væri nú draumurinn að vinna við bæði! Hvað ég ætla að gera að námi loknu Að námi loknu ætla ég að fara í Háskóla Íslands að læra japönsku og nota þar tækifærið og fá námsstyrk til þess að fara sem skiptinemi til Japans til þess að læra í þessu frábæra landi. Eftir það langar mig að flytja annað hvort til Japans eða Kóreu og vinna þar við raddleik eða hreyfimyndagerð. Áhugamálin mín
hvað sem er. Að vita að þú hafir búið til það sem þú ert í og heldur á dregur fram ákveðið stolt og ánægju. Ég hef alltaf haft gaman af teiknimyndum, sérstaklega Disney, eeen það er eitthvað annað við japanskar teiknimyndir og þætti. Ég veit ekki hvort að það sé hvernig persónurnar líta út eða hvort það sé bara allt. Japanska hefur reyndar verið eitt af mínum uppáhaldstungumálum mjög lengi. Sagan í sumum þáttum eins og Attack on Titan er gjörsamlega frábær og það var engan veginn hægt að segja til um að 4. sería myndi taka risa snúning og breyta sögunni gjörsamlega og samt sem áður tengdist hún við allt sem hafði gerst! Þetta er einn af uppáhaldsþáttunum mínum og Attack on Titan var líka fyrsta mangað sem ég las til enda. Marvel er ein af stóru ástæðunum af hverju mig langar að vera myndasöguhöfundur… það gengur svona ágætlega, en ég er þó byrjuð að skrifa og teikna. Ég hef unnið í þessari sögu síðan ég var 14 ára. Sagan er um fjóra 18 ára krakka — álf, manneskju, hálfdjöful og vampíru sem leggja af stað í ævintýri til þess að breyta heiminum til hins betra.
Oof, hvar á ég að byrja? Cosplay virkar þannig að maður klæðir sig upp sem einhver persóna úr uppáhaldsteiknimynd, bók, mynd eða í rauninni hverju sem er. Það besta við það er samfélagið í kringum þetta allt saman. Það er mjög skemmtilegt að sjá hvernig aðrir sýna sína útgáfu af þeirra uppáhaldspersónu eða þegar þau klæða sig upp sem einhver persóna sem þau bjuggu til. Allir eru mjög góðir og hjálpsamir; þeir eru alltaf til í að gefa þér upplýsingar um hvar eitthvað var keypt eða hvernig þeir gerðu einhvern ákveðinn hlut. Annað sem er frábært við að „cosplaya“ er hversu mikið það dregur fram sköpunargleði, t.d. að búa til sína eigin búninga og leikmuni, mæta svo á einhverja nördahátíð og vera í búningnum sem maður bjó til og vera með sverðið eða hnífinn eða
5
Hver er Banksy Banksy er frægur götulistamaður frá Englandi. Hann er þekktur fyrir að blanda saman svörtum húmor og graffiti list. Þó að enginn viti hver hann er í raun og veru virðist samt eins og allir þekki hann. Allt sem hann hefur gert hefur verið gert í pólitískum tilgangi og hefur vakið til mikillar umræðu. Öll verk Banksy eru frábær á sinn hátt og segja frá alvarlegum hlutum sem hafa gerst. Verk hans skila sér algjörlega og segja nákvæmlega það sem þau eiga að segja. Eins og áður hefur komið fram er Banksy ekki bara listamaður, heldur var hann hetja á sínum tíma. Uppáhaldsverkið mitt eftir hann er Nablam; hann gerði það árið 2004 og það er eitt af hans áhrifamestu verkum hans. Banksy seldi ljósmyndir af verkum sínum á sínum tíma, en gerir það ekki lengur. Nú endurselur fólk myndir af verkum hans. En Banksy var ekki bara götulistamaður, heldur einnig kvikmyndastjóri, eða var það. Kvikmynd hans, „Exit Through the Gift Shop“ var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni árið 2010, árið 2011 var hún tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir bestu heimildamyndina og Banksy vann svo til verðlauna sem maður ársins árið 2014.
Góðsagnarkennd verk Nablam, 2004 Eitt af áhrifamestu verkum eftir Banksy er Nablam. Verkið sýnir Mikka Mús og McDonalds trúðinn að valhoppa með nakta grátandi stelpu í togi með sér. Ekki allir taka eftir því strax en þetta er stelpa frá mynd sem fannst árið 1972 í Víetnamstríðinu. Stelpan með blöðruna Þetta verk er eitt af langþekktustu verkum eftir Banksy. Hann byrjaði einhverskonar seríur og var þetta hans leið til þess að sýna stuðning sinn við ákveðnar herferðir eins og West Bank
6
Barrier og Syrian refugee crisis. Staðsetning verksins var á Waterloo brúnni. Önnur verk eftir hann voru einnig staðsett þar, en eru það ekki í dag. Bomb Hugger (Sprengjuknúsarinn) Verkið „Bomb Hugger“ var til þess að ýta burtu trúnni um að stríð væru mikilvæg fyrir lýðveldið. Verkið sýnir lítið barn að knúsa sprengju.
50%
af n við ýjustu bur ðum Hella skoðun í vatnajökli Þyrluflug Aðeins á 5.000 krónur
Ekki missa af frábæru tilboði Bankastræti 25, 101, Reykjavík sími: 579 0124 Netfang: viðburðarstjórn@gluggi.is veffang:gluggi.is
Saga Rómar Sagan segir að gamla Róm hafi verið stofnuð af hálfguðunum Romulusi og Remusi, 21. apríl 753 f.o.t. Þeir rifust harkalega um hvor þeirra ætti að stjórna borginni. Romulus drap bróður sinn og réði yfir borginni sjálfur. Stríð og stækkun borgarinnar Þótt Róm hafi gengið vel í viðskiptum á fyrstu árum var það í raun stríð sem gerði borgina að öflugustu borg fornaldar. Karþagóstríðin, sem eru betur þekkt sem púnversku stríðin, styrktu í raun vald Rómar og hjálpuðu borginni að vaxa og dafna. Eftir að Karþagó var sigruð náði Róm völdum nánast yfir öllu Miðjarðarhafinu, en sjóræningjar gerðu þeim ókleift að ná völdum yfir því öllu. Eftir því sem lýðveldi Rómar óx, þjáðist borgin af ei meiri spillingu, græðgi og of mikilli trú á erlenda þrælavinnu. Þeir sem gátu ekki unnið réðu sig út sem ræningjar til þess að gera samning við hvern þann í öldungaráðinu sem myndi borga þeim. Patricíar, þ.e. yfirstéttin, urðu ríkari og ríkari á kostnað lágstéttarmanna. Á 2. öld leiddu Gracchusarbræðurnir, Tiberius og Gaius, hreyfingu fyrir landbótum og almennum pólitískum umbótum. Þrátt fyrir að bræðurnir væru drepnir á meðan á þessu stóð, takmarkaðist hömlulaus spilling öldungaráðsins.
Lýðveldi Rómar Róm var skipt í tvær stéttir; yfirstéttin kallaði sig „optimates“, eða bestu mennirnir, á meðan lágstéttin var þekkt sem „populares“, eða fólkið. Nöfnin voru úthlutuð þeim sem voru með ákveðna pólitíska hugmyndafræði; þetta voru ekki stórir stjórnmálaflokkar og ekki voru allir yfirstéttarmenn optimates, né allir lágstéttarmenn populares. Marcus Licinius Crassus, Gnaeus Pompeius og Iulius Caesar mynduðu fyrra þremenningasamband Rómar. Þeir voru allir þrír jafn metnaðarfullir og þyrstir í völd. Þess vegna náðu þeir að halda utan um hvorn annan og hjálpa Róm að blómstra. Crassus var ríkasti maður Rómar og gjörsamlega spilltur; hann neyddi ríka borgarbúa til þess að borga honum „öryggis“ peninga. Ef þeir borguðu ekki tímanlega brenndi hann húsin þeirra og lét þá borga fyrir að slökkva eldinn. Pompeius og Caesar voru góðir hershöfðingjar sem gerðu Róm að ríkri borg. Crassus vildi sömu virðingu og þeir fengu fyrir árangur sinn og leiddi það til þess að hann sendi her sinn til Parþíu og var sigraður í orrustunni við Carrhae, sem er nú í Tyrklandi. Eftir að Crassus var drepinn vegna samningaviðræða sem fóru úrskeiðis, klofnaði þremenningasambandið í sundur og Pompeius og Caesar lýstu stríði á hendur hvors annars. Pompeius reyndi að útiloka óvin sinn á löglegan hátt með því að láta Caesar standa undir dómi. Í stað þess að mæta fór Caesar yfir Rubicon ána með her sinn árið 49 f.o.t. og þaðan til Rómar. Hann neitaði að svara ákærunum og einblíndi einungis á að útrýma Pompeiusi. Her Caesars
8
gjarnir og þyrstir í völd. Lepidus var hlutlaus þegar Antonius og Octavius ákváðu að hann skyldi stjórna Hispaníu og Afríku, Antonius austurhluta Rómar og Octavius vesturhlutanum. Afskipti Antoniusar af Kleópötru raskaði jafnvæginu sem Octavius var að vonast til þess að halda, sem leiddi síðar til stríðs og vann Octavius sameinaðan her Antoniusar og Kleópötru í orrustunni við Aktíum árið 31 f.o.t. Octavius, þekktur sem Augustus eftir þennan sigur, varð fyrsti keisari Rómar. Sagt er að sögu Rómar ljúki hér, en að saga Rómaveldis byrji.
sigraði her Pompeiusar auðveldlega í orrustunni við Farsalos í Grikklandi árið 48 f.ot. Pompeius flúði til Egyptalands í von um að finna frið, en hann var myrtur um leið og hann kom. Fréttir bárust hratt um að Caesar hafi unnið orrustuna við Farsalos og margir vinir Pompeiusar gengu í lið með Caesari, trúandi að hann hefði verið valinn af guðunum sjálfum. Eftir allt saman varð Caesar valdamesti maður Rómar. Hann batt enda á lýðveldið með því að láta öldungaráðið gera sig að einræðisherra. Hann var mjög vinsæll meðal fólksins og gerði Róm að stórri borg. Árið 44 f.o.t. var hann drepinn af nokkrum mönnum öldungaráðsins bara af því að hann var góður þingmaður. Samsærismennirnir Brutus og Cassius voru hræddir um að Caesar myndi verða of valdamikill og taka yfir öldungaráðið. Marcus Antonius gekk í lið með Gaiusi Octaviusi, frænda Caesars, og Aemiliusi Lepidusi og náðu þeir að sigra her Brutusar og Cassuiusar í orrustunni við Filippí árið 42 f.o.t. Antonius, Octavius og Lepidus stofnuðu síðara þremenningabandalagið, en eins og áður voru þeir alveg eins metnaðar-
9
Japan á miðöldum Heian tíminn 794-1185
Fujiwara ættarinnar sem var í raun búin að taka algjörlega yfir allt. Michinga náði að gifta dætur sínar keisurum og þannig hélt Fujiwara ættin völdum sínum innan keisaraættarinnar. Shirakawa reyndi að fara upp á móti þeim með því að leyfa syni sínum, Horkawa, að stjórna svo að hann sæi til. Fleiri keisarar gerðu það sama og þóttust vera hættir, en í raun voru þeir bara einhvers staðar annars staðar að fylgjast með.
Minamoto ættin og Taira ættin. Aðilar þeirra beggja voru oft í litlum samskiptum við keisarana. Þær höfðu með sér samurai her, sem gerði það að verkum að báðar ættirnar urðu mikilvægar í valdabaráttu Fujiwara ættarinnar sem braust út og var það Hogen truflunin árið 1156 og Heiji röskunin árið 1160. Kiyomori, foringi Taira ættarinnar, náði að sópa öllum óvinum í burtu og tók ætt hans við stjórn japönsku ríkisstjórnarinnar í tvær aldir. En í Genpei stríðinu stóð Minamoto ættin uppi sem sigurvegari og í seinasta Dannoura bardaganum frömdu Taira foringinn, Tomamori, og ungi keisarinn, Antoku, sjálfsmorð, sem gerði Minamoto að einum valdamestu herforingjum í Japan. Yoritomo varð fyrsti „shogun“ eða hereinræðisherra frá 1192 – 1199 og var hann fyrsti hereinræðisherra Kamakura tímans. Staða hans var í raun til þess hjálpa ríkisstjórninni og keisaraveldinu. Titillinn shogun hafði verið notaður áður (seii tai shogun), en var það ekki lengi; hann var í raun notaður fyrir herforingja í Ezo/Emeshi eða Ainu bardögunum. Yoritomo hélt titlinum með nýju þýðingunni þökk sé Go-Toba keisaranum sem vildi fá hervernd frá Yoritomo í staðinn. Tæknilega séð var keisarinn enn þá með meiri völd en hereinræðisherrann, en þó ekki, því í raun var það þannig að hver sá sem stjórnaði hernum stjórnaði landinu.
Kamakura tíminn 1185-1333
Muromachi tíminn 1333-1573
Á meðan Heian tíminn stóð yfir var dómstóll japanska keisarans enn þá mikilvægur, en var samt ýtt til hliðar á meðan Fujiwara ættin réði ríkjum. Á enda tímabilsins komu fram aðrir;
Muromachi tíminn var í raun ekkert nema leiðindi fyrir alla, þó að góðir hlutir hafi gerst líka. Fólk byrjaði að byggja betri hús og vatnshjól, sem hjálpaði búskapi og þess háttar
Á 10. öld lauk þeirri stefnu að útdeila skyldi landi til fólks og niðurstaðan varð sú að hlutfall lands í eigu einkaaðila varð meiri um tíma. 50% af einkalöndum var gefið sérstakar undanþágur vegna trúar og persónulegra ástæða, svo þau gætu komist hjá því að borga skatta. Ríkið fór næstum því á hausinn í kjölfarið. Ríkir landeigendur gátu keypt nýtt land, en það leiddi í enn þá stærra gat og keisarinn varð enn þá meira aðskilinn frá öllu. Þótt keisarinn væri enn þá með mestu völdin var hann líka aðskilinn í dómsalnum vegna
10
töluvert. Margar af mikilvægustu byggingum Japans voru byggðar á þessum tíma, t.d. Kinkakuji og Ginkakuji. Þessar byggingar voru notaðar undir fyrrverandi hermenn, en seinna meir var þeim breytt í Búddahof.
Onin stríðið (1467-1477) var borgarastríð á milli tveggja ætta, Hosokawa og Yamana, en fleiri ættir æddu inn í stríðið og Heiankyo var lögð í eyði. Stríðið gekk út á hver ætti að vera næsti shogun, sem skipti í raun engu máli af því að þeir gengdu engum tilgangi lengur. Þetta stríð var þess vegna algjörlega tilgangslaust. Muromachi tímanum lauk þegar stríðsherrann Oda Nobunaga drap shogun Ashikaga. Nobunaga stækkaði og stækkaði landsvæði sitt í kringum 1550/60 frá Nagoya kastalanum og vann alla þá sem reyndu að taka staðinn af honum. Hann náði loks völdum yfir Heiankyo árið 1568 og sendi seinasta shogun í útlegð. Þótt Ashikaga Yoshiaki hefði alltaf verið undir stjórn Nobunaga, var hann enn þá shogun til 1588, en hann var ekki með nein völd því að stríðsherrar réðu ríkisstjórninni og landinu. Nobunaga réði yfir mið-Japan sem var sameinaðri en áður fyrr alveg til dauðadags árið 1582. Japan hélt áfram á góðri leið eftir að Toyotomi Hideyoshi tók yfir.
Tími
Azuchi - Momoyama tíminn 1573-1603 Þetta tímabil var stutt, en mjög mikilvægur tími fyrir Japana. Japan var búið að vera ósameinað land í margar aldir, með mjög lélega ríkisstjórn og herforingja að rífast um smáhluti sem skiptu í raun og veru engu máli. Oda Nobunaga gerði sjálfan sig að hershöfðingja og Toyaotomi Hideyoshi, sem tók við af honum, hélt áfram vinnu hans, sem fólst í því að sameina allt Japan. Hideyoshi náði sér undan tveimur misheppnuðum innrásum í Kóreu og þessu tímabili lauk með því að Togugawa fékk titilinn Shogunate árið 1603. Edo tíminn 1603-1868 Edo tímabilið þróaði með sér mikið af nútímabyggingum. Kastalabæir urðu miðstöðvar fyrir verslanir og framleiðslu og millistétt kaupmanna og handverksmanna varð til. Þótt Togugawa hafi reynt að einangra erlend áhrif urðu samt til viðskipti utan ríkisins. Þar sem efnahagskerfið var úrelt og allt var hreinlega að fara á hausinn, neyddist Togugawa til þess að leitast til erlendar þekkingar og tækni til þess að viðhalda herstyrk sínum. Edo tímabilinu lauk með Meiji endurreisninni 3. janúar 1868 og völdin voru færð aftur til keisarans.
Byrjun
Endir
794
1.885
Kamakura
1.885
1.333
Muromachi
1.333
1.573
Azuchi-Momoyama
1.573
1.600
Edo
1.603
1.868
Heian
11
Uppáhaldsmaturinn er Katsudon Katsudon er það besta sem ég fæ. Þetta er grísakjöt sem sett er í egg og hveiti og svo steikt á pönnu. Það er hægt að hafa næstum því allt með þessum frábæra japanska rétti; það er oftast borið fram með steiktum hrísgrjónum og eggi í skál og svo má auðvitað bæta fleiru við, eins og einhverju grænmeti, t.d. smá graslauki og ferskri steinselju til þess að skreyta. Ekki nóg með að Katsudon sé gott á bragðið, heldur er það ekkert smá einfalt að gera. Hér kemur uppskriftin! 2 sneiðar af grísakjöti salt og pipar 1 egg 1 bolli af panko olía (notuð til þess að steikja upp úr) ½ kjúklingakraftur 2 tsk af sykri 1 msk af sojasósu 2 tsk af mirin 2 stór egg 1 laukur steikt hrísgrjón 1 rauðlaukur Aðferð Byrjið á því að krydda kjötið og setja smá hveiti yfir það. Hrærið eggin saman í einni skál og setjið panko-ið í aðra skál. Setjið smá olíu á pönnu við miðlungshita (olían er tilbúin þegar hún er byrjuð að sjóða smá). Dýfið kjötinu ofan í eggin, síðan í panko-ið. Setjið það varlega á pönnuna og leyfið því að steikjast í 5-6 mínútur eða þangað til að hliðin er orðin fallega brún. Gerið það sama við hina hliðina og setjið það svo á disk til hliðar. Á meðan skulið þið setja kjúklingakraftinn, sykurinn, sojasósuna og mirin í litla skál. Hrærið svo bæði eggin í annarri skál, bætið við matskeið af olíu á pönnu við miðlungshita og setjið laukinn á pönnuna. Steikja þarf laukinn þangað til hann er orðinn fallega brúnn. Setjið kjúklingakraftinn á pönnuna, skerið niður tonkatsu sveppi, setjið
12
þá á laukinn og hellið eggjunum varlega yfir allt saman. Eldið á miðlungshita þangað til að eggin eru tilbúin. Borið fram með steiktum hrísgrjónum og salati
Gyoza uppskrift Fylling ½ bolli af hvítkáli, skorið fínt 1 bolli af söxuðum hvítlauki 1 teskeið af salti 500 gr af nautahakki/svínahakki 1 tsk af engifer 1 tsk af sesamolíu 1 msk af maísmjöli 2 msk af sojasósu Aðferð Setja þarf hvítkálið og saltið saman í skál og leyfa því að sitja í 30 mín. Setjið allt saman í skál og notið hendurnar til þess að blanda saman. Einnig er hægt að nota matarprjóna. Gyoza 2 bollar af hveiti ½ tsk af salti ½ bolli af heitu vatni (notið eftir þörfum) Aðferð Setjið hveiti, salt og smá vatn í skál, hellið svo vatni í hveitið eftir þörfum á meðan verið er að blanda því saman. Síðan er deigið skorið í tvennt og gert að pylsu. Setjið deigið í plast og leyfið því að hefast í hálftíma. Aðferð Takið plastið af og skerið u.þ.b. ¼ af deiginu (það er allt í lagi ef bitarnir eru stærri). Að því loknu, rúllið bitunum í hring og setjið fyllinguna sem þið bjugguð til inn í. Setjið vatn á endana svo að það sé auðveldara að loka þeim. Síðan er Gyozað sett á pönnuna. Setjið nokkra bita í einu. Það er steikt þangað til að ein hliðin er orðin fallega brún, síðan er sett smá vatn og lokið sett á. Bíða þarf þangað til að vatnið er horfið svo Gyozað verði ekki blautt. Best borið fram Best með sojasósu og teriyakisósu blönduðum saman
Anime og manga Anime og manga er það besta sem til er á jörðinni, ég lýg því ekki. Það er svo mikið sem fer í þetta; ekki bara frábær saga eða skemmtilegar persónur, þó að það spili auðvitað að miklu leyti inn í allt saman, en ef maður hugsar aðeins út fyrir það, hvað annað gæti spilað inn í? Ég myndi segja listin. Ef listin er ekki góð er mjög erfitt að horfa á eða lesa; það skiptir ekki máli hvort sagan sé góð eða ekki. Það sama gildir um raddleikarana. Ef þeir eru ekki góðir, get ég alls ekki horft á þáttinn. Það er kannski asnalegt að segja svona en það er nú bara sannleikurinn sagður.
2009 og kláraði það 2020. 100 milljón eintök hafa verið seld út um allan heim frá árinu 2019, enda er þetta eitt af mest seldu manga í heiminum. Hann hefur líka unnið til verðlauna fyrir aðra manga bók sem hann skrifaði; hann vann Kodansha manga verðlaunin árið 2011 og Harvey verðlaunin árið 2014.
Góðir manga höfundar Hirikoshi er einn af bestu manga höfundum í Japan þessa dagana. Hann varð frægur fyrir Omagadoki Dobutsuen, Barrage og My Hero Academia. Allar þessar mangabækur koma fyrir í frægu japönsku mangablaði, Shonen Jumb. Hirikoshi er fyrrverandi aðstoðarmaður Yasuki Tanga, sem skrifaði Summer Time Rendering seríuna. Hann fékk mikinn innblástur frá Naruto, Akira og Katekyo: Hitman Reborn þegar hann skrifaði My Hero Academia. Hann sagði sjálfur í viðtali að hann væri mikill áhugamður um bandarískar myndasögur, sérstaklega Marvel og þaðan kom hugmyndin um My Hero Academia. Hirikoshi hefur unnið til margra verðlauna fyrir My Hero Academia, þau nýjustu eru Harvey verðlaunin, sem hann vann árið 2019. Hajime Isuyama er uppáhaldsmangahöfundurinn minn. Hann skrifaði uppáhaldsmangaseríuna mína, Attack on Titan, sem varð að besta anime í heimi. Hann byrjaði að skrifa mangað Attack on Titan gerist í heimi þar sem fólk býr innan veggja sem verndar það gegn títönum. Sagan fjallar um Eren Yeager og vini hans Mikasa Ackerman og Armin Arlert. Þegar risatítani kemur og brýtur vegginn koma aðrir títanar hlaupandi inn og ráðast á allt fólkið. Mamma Erens deyr og með því sver hann að drepa alla títana. Hann ákveður að byrja í „survey corps“, herdeild sem berst gegn títönum. Attack on Titan annálar sögu Erens og ferð hans í gegnum lífið.
14
er St u ór ge u rð ve hj rki á ng ok ku FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
r
Skemmuvegur 4, Blá Gata 201 Kópavogi Sími: 540 1800 | FAX: 540 1801 Netfang: litlaprent@litlaprent.is Veffang: wwwlitlaprent.is
Opið mánudaga - fimmtudaga : 8:00-16:00 Opið föstudaga : 8:00-14:30
GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
Hagsmunir Öryggi Réttindi
Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eru eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig
Kjaramál Lífeyrismál Sjúkrasjóður Orlofssjóður Fræðslustyrkur
Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðu okkar grafia.is
Stórhöfði 31, 3. hæð 110 Reykjavík Sími: 552 8755 Netfanf: grafia@grafia.is Veffang: wwwgrafia.is