EMBLA
Grafísk miðlun
2. tbl.
9. árg.
Haust 2020
Bættu við þig þekkingu! - og auktu í leiðinni mögleika þína á atvinnumarkaði. IÐAN fræðslusetur býður upp á fjölda námskeiða fyrir fagfólk í iðnaði. Í boði eru fagnámskeið fyrir: • • • • • • •
bíliðngreinar matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar bygginga- og mannvirkjagreinar málm- og véltæknigreinar prent- og miðlunargreinar námskeið í AutoCAD og Inventor tölvunámskeið
IÐAN býður einnig upp á þverfagleg námskeið, fræðslu sniðna að stjórnendum iðnfyrirtækja, sérhönnuð fyrirtækjanámskeið og ýmsar vottanir og þjálfun í fyrirtækjum. Skráning á námskeið fer fram hér á vef IÐUNNAR.
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík 590 6400 idan@idan.is www.idan.is
Efnisyfirlit
N
úna er þessi óvenjulega önn senn á enda. Námið á sérsviði í grafískri miðlun líkt og sjálfsagt í öðrum greinum hefur markast af aðstæðum í þjóðfélaginu þar sem Covid-19 veiran hefur sett okkur skorður. En þrátt fyrir að hafa þurft að aðlaga sig að breyttum aðstæðum þá hefur þessi tími þó verið mjög lærdómsríkur og skemmtilegur. Mikið af góðu og áhugaverðu fólki hafa bæst í kunningjahópinn og hafa verkefnin verið margvísleg, krefjandi og umfram allt skemmtileg. Vil ég þakka kennurum og samnemendum fyrir skemmtilegan og fræðandi tíma.
5
Kynning 6
Sean Connery 8
Twin Peaks 10
Kraftwerk 12
Heimskautsgerðið á Raufarhöfn 14
Saul Bass
HÖNNUN OG UMBROT Brynjar Emil Friðriksson FORSÍÐA Brynjar Emil Friðriksson ÚTGEFANDI Upplýsingatækniskólinn PRENTUN Upplýsingatækniskólinn LETUR Univers 45 Light 9/13, Univers 55 Roman 9/13, Univers 65 Bold 9/13 PAPPÍR UPM digi 130 g/m2, UPM digi 250 g/m2 NEMENDAMYND Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason
4
Brynjar Emil Friðriksson Nafn mitt er Brynjar Emil Friðriksson, fæddur 29. september árið 1978. Ég er uppalinn í Reykjanesbæ þar sem ég hef búið alla mína ævi. Frá unga aldri hef ég haft mikinn áhuga fyrir allskyns listsköpun. Frá því ég man eftir mér hef ég verið hugfanginn af tónlist sem og skáldsögum, arkitektúr, kvikmyndum og grafík. Allt frá því ég fór að kynna mér námið í grafískri miðlun hefur fagið heillað mig. Fyrir um 12 árum síðan byrjaði ég í fjarnámi þar sem ég kláraði grunnnámið að mestu. Síðan hefur sú hugsun sótt á mig í ríkara mæli að taka skrefið til fulls. Þá fyrir einu og hálfu ári síðan sagði ég starfi mínu lausu og hóf nám við Tækniskólann á sérsviði í grafískri miðlun. Þetta er ákvörðun sem ég er mjög sáttur við í dag.
5
SEAN CONNERY 1920-1930 Skoski stórleikarinn Sean Connery lést þann 31. október 2020, níræður að aldri. Hann var fyrstur manna til að leika njósnara hennar hátignar James Bond á hvíta tjaldinu. Connery á áratuga langan feril að baki en auk þess að túlka Bond í alls sjö kvikmyndum lék hann auk þess í myndum á borð við Indiana Jones and the Last Crusade og Hunt for Red October. Hann fékk einu sinni Óskarsverðlaunin, fyrir besta leik í aukahlutverki í myndinni The Untouchables árið 1988. Fjöldi annarra verðlauna féll Connery í skaut á löngum ferli. Fyrstu æviárin Thomas Sean Connery fæddist í verkamanna hverfinu Fountainbrigde í Edinborg 25. ágúst 1930. Fjölskyldan var kaþólsk og bjó við mikla fátækt, faðir hans ættaður frá Írlandi og móðir hans rakti ættir sínar til skosku eyjarinnar Skye. Sean Connery átti bróður Neil að nafni, átta árum yngri, sem starfaði lengst af sem múrari en lék í einnig í nokkrum kvikmyndum. Connery hefur lýst því hvernig hann gerði sér ekki endilega grein fyrir í æsku sinni að fjölskyldan byggi við kröpp kjör, „okkur skorti ekkert, og höfðum svo sem engan samanburð heldur,” sagði hann þegar hann tók við verðlaunum bandarísku kvik myndastofnunarinnar (AFI) fyrir ævilangt framlag sitt til kvikmyndanna árið 2006. Skólagöngu Connerys lauk þegar hann var þrettán ára, þá gerðist hann mjólkurpóstur þangað til hann gekk til liðs við konunglega breska sjóherinn þremur árum síðar. Hann fékk magasár og yfirgaf herinn þegar hann var nítján. Meðan hann var á sjónum lét hann húðflúra á sig orðin „Mamma og pabbi” og „Skotland að eilífu”. Eftir að Connery sneri aftur til Edinborgar stundaði hann ýmis störf, þar á meðal sá hann um að lakka líkkistur hjá útfararstofu í borginni.
6
Kvikmyndaferillinn Connery stundaði líkamsrækt af kappi og tók þátt í keppninni Hr. Alheimur sem opnaði honum dyr inn í heim kvikmyndanna. Fyrsta myndin sem hann lék í var Lilacs in the Spring frá 1954 en nafns hans er hvergi getið þar. Fyrsta aðalhlutverk Connerys var í Another Time, Another Place frá 1958 þar sem hann lék á móti stórstjörnunni Lönu Turner. Eftir að hann varð fyrir valinu til að leika njósnara hennar hátignar James Bond í kvikmyndinni Dr. No sem frumsýnd var árið 1962 var Hollywood-björninn unninn. Sean Connery hefur leikið í ótal stórmyndum á löngum ferli og hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum fyrir frammistöðu sína. Seinast kom hann fram sem þulur í heimildamyndinni Ever to Excel árið 2012. Fjölskyldumálin Connery var tvígiftur. Hann kvæntist áströlsku leikkonunni Diane Cilento árið 1962 en þau skildu 1973 eftir stormasamt hjónaband. Þau eiga einn son, Jason sem fetaði í fótspor föður síns á leiklistarbrautinni. Tveimur árum eftir skilnaðinn við Diane gekk Connery að eiga frönsku listakonuna Micheline Roquebrune. Hann var aðlaður árið 2000 og var harður stuðningsmaður sjálfstæðis Skotlands. Connery bjó á Spáni og Bahamaeyjum undan farin ár í sjálfskipaðri útlegð vegna þungrar skattbyrði í heimalandinu. Sean Connery hlaut friðsælt andlát í svefni á heimili sínu á Bahamaeyjum aðfaranótt 31. október. Markús Þ. Þórhallsson, Hallgrímur Indriðason, Sunna Valgerðardóttir. (2020, 31.10). Sean Connery látinn. Ríkisútvarpið. Sótt af ruv.is
10 stigahæstu myndir Sean Connery skv. IMDb: Nr.
Titill
Ár
1.
Indiana Jones and the Last Crusade
1989
Professor Henry Jones
8,2
2.
The Untouchables
1987
Jim Malone
7.9
3.
The Hill
1965
Joe Roberts
7.9
4.
The Longest Day
1962
Pvt. Flanagan
7.8
5.
The Man Who Would Be King
1975
Daniel Dravot
7.8
6.
Goldfinger
1964
James Bond
7.7
7.
The Name of the Rose
1986
William von Baskerville
7.7
8.
The Hunt for Red October
1990
Marko Ramius
7.6
9.
The Rock
1996
John Patrick Mason
7.4
1977
Maj. Gen. Urquhart
7.4
10. A Bridge Too Far
Hlutverk
Einkunn
Ljósmynd: Djamilla Rosa Cochran
Alhliða hársnyrting fyrir dömur og herra. Nú getur þú einnig bókað tíma með appinu Noona. Sjáumst hress!
Tjarnabraut 24 260 Reykjanesbæ 421 7100
Í Tvídröngum er sakleysið ógeðslegt Sjónvarpsþættirnir Twin Peaks, eða í vel heppnaðri íslenskri þýðingu: Tvídrangar frá árinu 1990 eru sérstakir fyrir margar sakir. Þeir koma úr smiðju leikstjórans David Lynch sem af mörgum er talinn einn áhrifamesti kvikmyndagerðarmaður samtímans. Hann er sannkallaður ó-tör (auteur) eða höfundur verksins í víðasta skilningi, og handbragðsins gætir langt út fyrir leikstjórn eða handrit. Fortíðardaður Í Tvídröngum snerti David Lynch alla fleti verksins og brá sér jafnvel í hlutverk sögupersónu á einum stað. Þættirnir mörkuðu sannarlega vatnaskil þegar þeir voru fyrst sýndir, enda var hinn frumlegi David Lynch óhræddur við að feta ótroðnar slóðir og ákvað því, í fyrsta sinn í sjónvarpssögunni, að slá saman sjónvarpsþáttaformum. Þættirnir dönsuðu á milli hryllings og gaman, drama, sápuóperu og súrrealískrar tilraunamennsku í kvikmyndagerð svo að úr varð kokteill sem varla var hægt að horfa á, en á sama tíma algjörlega ómögulegt að slíta sig frá. Eitt helsta einkenni þáttanna var afgerandi andrúmsloft sem þekktist hvergi annars staðar, en Lynch lék sér að því, líkt og í öðrum verkum, að daðra við fortíðina, og undir sterkum áhrifum frá bandarískri smábæjarmenningu sjötta og sjöunda áratugarins, sem voru einmitt hans eigin uppvaxtarár. Það er síðan gaman að horfa á
8
þættina á seinni tímum og sjá að samtímaáhrifin voru líka sterk, og smekkur og stíll tíunda áratugarins er afskaplega augljós að auki. Og á löngum köflum voru þættirnir draumi líkastir, eða öllu heldur martröð. Lynch, sem er menntaður myndlistarmaður, notar liti og form á hátt sem fáir í bransanum geta leikið eftir. Táknfræði litanna er líkt og heill karakter sem heimsækir söguna aftur og aftur. Hver man ekki eftir rauða brunabílnum í upphafi kvikmyndarinnar Blue velvet. Þessi rauði bíll sem var svo óþægilegur, þó að hann væri ekki einu sinni í útkalli, þar sem hann keyrði löturhægt í gegnum hlýlegt bandarískt úthverfi. Garðslangan sem lúrði á grasflötinni á sólríkum degi, sofandi snákur, feigð. Kaflaskil í sjónvarpssögunni Það liggur alltaf eitthvað að baki hjá Lynch, og yfirleitt er það óhreint. Sakleysið verður hættulegt, jafnvel ógeðslegt. Táknin eru alls staðar og jafnvel háralitur fólks getur orðið að táknmynd fyrr innrætið. Ljóshærðar persónur Lynch eru yfirleitt í aðalhlutverkum og með bjartara og hreinna eðli en hinar dökkhærðu meðleikkonur þeirra. Sem er kannski dálítið hallærislegt og margnotað af öllum frá Disneyframleiðendum til Spaugstofugengisins. En látum það vera. Inn
Kaffi og kirsuberjabaka er í miklu uppáhaldi hjá Dale Cooper, aðalpersónu Tvídranga.
í Twin Peaks blönduna setti Lynch síðan þekkt minni úr poppkúltúr, og jafnvel poppstjörnur á borð við Chris Isaak fengu sinn sess í þáttunum. Það eru til margar lærðar ritgerðir og vafalaust misgóðar um notkun David Lynch á kvenpersónum. Flestar konurnar eru staðalmyndir kvenlegra gilda: saklausar jómfrúr með ljóst hár, tálkvendi, þær eru dauðar og heilagar eða gamlar og krumpaðar, svo að við látum Bectdel prófið alveg eiga sig í þessari umfjöllun. En útkoman varð þrátt fyrir allt svo afgerandi verk, svo eftirminnilegt, og svo fersk úrvinnsla á þeim straumum sem áttu sér stað í kvikmyndum og poppi á þessum tíma, að David Lynch skrifaði sig inn í sjónvarpssöguna og lagði ekki undir sig eina blaðsíðu heldur heilan kafla, og skrifaði þar að auki formálann.
landið, en íslenski kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson kom að framleiðslu gömlu þáttanna. Sjötti þáttur fyrstu þáttaraðar byrjar á þá leið að aðalpersónan, Dale Cooper, er vansvefta vegna háreysti og söngs drukkinna Íslendinga sem syngja Þingvallasöng hástöfum. Er það síst til að minnka furðutilfinningu íslenskra áhorfenda við áhorfið. Í framhaldinu koma atriði þar sem Íslendingar eiga að koma við sögu, en þar eru þó ekki íslenskir leikarar á ferð. Nína Richter. (2017, 9.6). Í Tvídröngum er sakleysið ógeðslegt. Ríkisútvarpið. Sótt af ruv.is
Ljósmynd: Chris Saunders
Allt sjónvarp sem við sjáum í dag er undir áhrifum frá Twin Peaks, fullyrti einn kennarinn minn úr Kvikmyndaskólanum fyrir nokkrum árum síðan. Og ég held að það sé rétt hjá henni. Þættirnir breyttu öllu. Þeir mörkuðu slóða sem margir fylgdu eftir, og höfðu áhrif út í fleiri form en bara sjónvarps- og kvikmyndagerð. Bókmenntir urðu líka fyrir áhrifum frá þessum tilraunum með blönduð form. Hefðu sögurnar um galdrastrákinn Harry Potter orðið til ef ekki hefði verið fyrir Tvídranga sem sögðu okkur að núna væri vel hægt að segja fjölskyldusögu, fantasíu, hryllingssögu og þroskasögu í einu og sama verkinu, sem var skrifað fyrir börn? Hvað með morðgátu-grínþættina Desperate Housewifes, ég myndi ekki vilja þurfa að verja það að áhrifin frá Twin Peaks væru ekki til staðar þar á bæ. Fyrir utan þá staðreynd að sjálfur Kyle McLachlan, leikarinn sem fór með aðalhlutverkið í Twin Peaks, var einmitt þar í aukahlutverki. Íslendingar og Tvídrangar Þættirnir eiga stóran aðdáendahóp hér á landi og að auki hefur verið stofnaður íslenskur aðdá endaklúbbur. Tvídrangar eiga skýra tengingu við
David Lynch
9
Einskonar kraftaverk… • Sum tónlist er sífersk og sígild, sama hversu mikið elli kelling ber á henni • Hin þýska Kraftwerk breytti þannig tónlistarsögunni á áttunda áratugnum • Einungis Bítlarnir hafa valdið jafnmiklum straumhvörfum
Merkilegt hvað sum dægurtónlist heldur áfram að koma manni í opna skjöldu, já fær hárin hreinlega til að rísa þegar maður heyrir hana. Og skiptir þá engu þótt maður hafi heyrt hana hundrað sinnum áður. Þetta er víst það sem orðið „sígilt“ á að lýsa; það sem skapað var í fyrndinni nær enn að hafa sterk áhrif á samtímahlustendur og er enn jafn leitandi og áhrifaríkt og það var daginn sem það kom út. Þessar pælingar hafa verið í gangi að undanförnu hjá mér hvað þýsku sveitina Kraftwerk varðar en ég hef verið á bólakafi í verkum þeirrar eðlu sveitar síðustu vikur og á vart til orð til að lýsa snilldinni. Svona skeið hef ég tekið reglulega
10
með þessari hljómsveit og alltaf er ég jafngapandi. Já lesandi góður… þetta bara varð að komast út! Gangskör Ég veit ekki alveg af hverju ég datt inn í þetta núna. Þetta gerist venjulega fremur tilviljanakennt þegar maður fer svona á bólakaf í ákveðin bönd. Ég hef samt haft hálfgert samviskubit í garð plötunnar Computer World (1981) en það er sú plata Kraftwerk sem ég hef hvað minnst hlustað á!? (ófyrirgefanlegt, ég veit). Alltént, nú skyldi gangskör gerð. Á sínum tíma, þegar ég var að dýfa tám sem
víðast – og af nokkru offorsi eiginlega – í allra handa dægurtónlist, las ég viðtal við Kraftwerk í Melody Maker. Þetta var í tengslum við endur hljóðblöndunarplötuna The Mix sem kom út 1991. Ég hafði þá engan veginn gert mér grein fyrir því hversu ótrúlega áhrifarík þessi sveit hafði verið hvað samtímapopp áhrærði. Hlutverk hennar sem brautryðjandi í tölvutónlist verður seint ofmetið. Heilu tónlistarstefnunum var hrundið af stað fyrir tilstilli hennar – stundum fleiri en einni í einu og sama laginu. Hipphopp, teknó, hústónlist, „industrial“, nýrómantík; öll þessi fyrirbæri eiga allt sitt meira og minna undir Kraftwerk. Biblían Eftir að hafa lesið þetta viðtal í Biblíunni minni pikkaði ég upp Trans-Europe Express og Man Machine fyrir slikk í plötubúðinni Þrumunni á Laugaveginum. Ég man þegar fyrstu tónarnir frá „Europe Endless“ hófu að óma í litla herberginu mínu í Árbænum. Mér fannst þetta dálítið ein kennilegt (ég var mestmegnis að hlusta á hávaðanýbylgju og pönk á þessum tíma) en það var eitthvað þarna sem ég hreifst af. Ég og bróðir minn kær hlustuðum svo endalaust á þessar plötur og hann tók fljótlega fram úr mér í Kraftwerkáhuganum. Hann hefur mikið mært Computer World og nú er ég kominn á þá
skoðun að hún sé hápunkturinn á ferli sveitarinnar. Skoðum þetta aðeins: Autobahn (1974) bar með sér tímamót en platan sem heild er ójöfn. Sama má segja um Radio Activity (1975). Trans-Europe Express er fyrsta meistaraverkið en ég viðurkenni að lög eins og „The Hall of Mirrors“ eru í það tilgerðarlegasta. Man Machine er sannarlega mögnuð en nánast of poppuð og dálítið hrá; það er enn verið að slípa dæmið til. En öllum vopnum er svo glæsilega safnað saman á Computer World (1981). Bara upphafstónar titillagsins senda þægilega höggbylgju í magann á manni. Algerlega ótrúlegt! Eftir þessa plötu missti Kraftwerk svo eiginlega fótanna, Techno-Pop, platan sem átti að koma í kjölfarið, tafðist óheyrilega vegna sívaxandi fullkomnunaráráttu, þekkt minni í sögu okkar helstu poppsnillinga (Brian Wilson t.d.). Það er eitthvað skringilegt við það að helstu arkitektar alls þess sem var nýtt í popptónlist lifi í dag á fornri frægð, hvort heldur sem er á tónleikum eða í hljóðversvinnu. Eigum við ekki bara að segja að Ralf, Florian og þeir allir hafi bara klárað kvótann hratt og vel og séu því skuldlausir að þessu leytinu til? Arnar Eggert Thoroddsen. (2011, 11. 08). Einskonar kraftaverk… Morgunblaðið. Sótt af arnareggert.is Ljósmynd: Peter Boettcher
Umfjöllun um Kraftwerk í Vísi frá 1981 Tölvuvætt kraftaverk Frumherjarnir í tölvurokki, þýska hljómsveitin Kraftwerk, sendi á dögunum frá sér plötuna „Computer-World“ eða „Tölvu-Heimur“. Þetta er fyrsta plata Þjóðverjanna í hartnær þrjú ár eða frá því „Man Machine“ fékkst keypt fyrir sanngjarnt verð árið 1978. Þá fussuðu flestir við tölvutónlist og margir óskuðu sér þess að slík tónlist mætti aldrei þrífast. Önnur varð raunin. Á síðustu tólf mánuðum eða svo hefur tölvurokk eða rafeindadiskó (mér er sama hvað það er kallað) náð gífurlegri útbreiðslu og einkanlega hafa Bretar stutt við bakið á þessari tegund tónlistar. Rokkáhrif eru að sönnu miklu meiri hjá bresku tölvurokkurunum en Kraftwerk og vasatölvurnar eru ekki jafn áberandi! Ein af fyrstu bresku hljómsveitunum sem gekkst undir áhrif frá Kraftwerk var Human League en síðan hafa þær fyllt tuginn og vel það. Þeir segja að þetta sé framtíðin!?
11
Heimskautsgerðið á raufarhöfn
Heimskautsgerðið er sprottið upp úr vanga veltum Erlings Thoroddsen um hvernig hægt er að virkja endalausa víðáttu, þar sem ekkert skyggir á sjóndeildarhringinn, heimskautsbirtuna og miðnætursólina. Inn í þessum vangaveltum kom hugmyndin að nota dvergatal Völuspár og Snorra Eddu og dusta rykið af fornum sagnaheimi og færa til nútíðar. Utan um þennan hugarheim rís Heimskautsgerðið á Melrakkaási við Raufarhöfn. Haukur Halldórsson listamaður tók þátt í hug myndavinnu með Erlingi, gerði skissur og líkan sem stuðst er við. Heimskautsgerðið er um 50 metrar í þvermál, 6 metra há hlið vísa til höfuðáttanna. Í miðju hringsins er 10 metra há súla á fjórum stöplum, sem áform eru uppi um að skarti kristaltoppi sem brýtur sólarljósið og varpar geislum sólar um allt Gerðið. Fjórir skúlptúrar eru inní Gerðinu hvert með sínu sniði. Pólstjörnubendir sem vísar á Pólstjörnuna. Hásæti sólar þar sem birtan í ákveðinni stöðu boðar sumarkomu. Geislakór er rými á milli hárra stöpla þar sem hægt verður að setjast niður, tæma hugann og endurnýja orku sína. Altari elds og vatns sem virkjar frumkraftana. Inni Gerðinu verður árhringur dverga, steinar sem hver um sig tákna ákveðinn dverg. Þessir dvergar eru alls 72 talsins og er getið í íslenskum fornbókmenntum. Með þeim fjölda á hver dvergur sitt „vik” í árinu, ef miðað er við 5 daga viku. Með því að tengja nöfn dverganna við árstíðir,
12
eins og til dæmis nafnið Vetrarfaðir á fyrsta vetrardag þá ganga nöfnin upp eftir því hvar í árinu þeir lenda sem myndar 72 vikur. Árhringur dverga er þannig orðinn einskonar almanak, þar sem hver dvergur ræður 5 dögum. Til dæmis Várkaldur í viku vors, Bjartur í viku sumars þegar nætur eru bjartar og Dvalinn í haustviku þegar allt leggst í dvala fyrir veturinn. Enginn hefur getað útskýrt tilurð eða hlutverk dverganna í Völuspá nema þeirra Austra, Vestra, Norðra og Suðra, sem halda uppi himninum. Í hugmyndafræði Heimskautsgerðisins hefur öllum dvergum verið gefið hlutverk og þeir verið persónugerðir. Þannig er hægt að tengja dvergana við afmælisdaga og mynda tengsl við þá. Dvergarnir eru svo hluti af tímabilum goðanna sem eru gömlu mánuðirnir. Þegar á árið er litið sést að það eru 6 dvergar sem tilheyra hverjum (gamla) mánuði og hver mánuður tilheyrir ákveðnu goði. Hliðin, Austri, Vestri, Norðri og Suðri, á milli stöplanna vísa mót höfuðáttunum, þannig að miðnætursólin sést frá suðurhliði gegnum miðsúlu og norðurhlið, á sama hátt og sólarupprás sést frá vesturhliði í gegn um miðsúlu og austurhlið. Samspil ljóss og skugga sýnir eyktamörkin. Nánari upplýsingar um hugmyndafræði Heim skautsgerðisins er að finna á heimasíðunni www. heimskautsgerdi.is. Heimskautsgerðið er 50 km frá Kópaskeri, 54 km frá Þórhöfn og 154 km frá Húsavík. Markaðsstofa Norðurlands. Heimskautagerði. Sótt af www. https://www.northiceland.is
Raufarhöfn Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrsta alla þorpa á Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heimskautsbaugur er rétt við ströndina og á ásnum fyrir ofan þorpið er Heimskautsgerðið, stærsta útilistaverk á Íslandi sem tvinnar saman íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi við sérstæðar náttúruaðstæður. Útgerð hefur ávallt verið undirstöðuatvinnuvegur á Raufarhöfn og á síldarárunum var hér ein mesta uppskipunarhöfn landsins og iðandi mannlíf. Nú ríkir meiri kyrrð yfir þorpinu og þar er gott að dvelja um hríð, fara í gönguferðir, veiði, siglingar og njóta miðnætursólarinnar. Umgjörð kaupstaðarins er einstaklega falleg. Höfnin liggur í skjóli Raufarhafnarhöfða og yfir henni vakir falleg kirkja, byggð eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar árið 1927 Melrakkaslétta er kunn fyrir hlunnindi, fiskveiðar, fjörubeit, æðarvarp, eggjatöku, og gjöful veiðivötn. Þarna er einstök náttúrufegurð á vorin og sumarkvöldum og fjölskrúðugt fuglalíf. Af Rauðanúp er stórkostlegt útsýni og návígi við fuglalífið í dröngunum Karli og Kerlingu. Nyrst á sléttunni er Hraunhafnartangi, nyrsti hluti Íslands. Þar er Þorgeirsdys sem talin er vera haugur fornhetjunnar hugprúðu, Þorgeirs Hávarssonar, en frá vígi hans í frækilegum bardaga segir í Fóstbræðrasögu Á Raufarhöfn er öll grunnþjónusta heilsugæsla, apótek, matvöruverslun, banki, pósthús, sundlaug, heilsurækt, tjaldstæði, bifreiðaverkstæði, sjálfsali fyrir eldsneyti, hótel, gistiheimili, og kaffihús. Á hverju ári eru haldnir menningardagar sem enda á Hrútadögum, fyrsta laugardag í október. Mikið er um að vera í þorpinu þessa daga og gaman að koma og upplifa menningu íbúa á þennan hátt. Markaðsstofa Norðurlands. Raufarhöfn. Sótt af www. https://www.northiceland.is
Taktu þitt pláss! Ráðstefna í Hörpu 1.– 2. desember 2020
saul bass Saul Bass er í hópi áhrifamestu grafískra hönnuða síðustu aldar. Eftir hann liggja ótal heimsþekkt vörumerki á borð við Minolta, AT&T, Kleenex og Warner Bros. Veggspjöldin sem Bass (1920-1996) hannaði þykja með því besta sem þekkist, ekki síst blómaskeiðið frá 1955-1975 en þá dældi hann út hreinustu listaverkum í formi kvikmyndaplakata og meðal leikstjóra sem hafa fengið hann til liðs við sig voru Stanley Kubrick, Otto Preminger, Alfred Hitchcock og Martin Scorsese. Veggspjöldin er eftirsótt sem heimilisprýði og ekki að ósekju eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Óhætt er að fullyrða að veggspjöld í þessum stíl sjást sjaldan í seinni tíð, illu heilli, en vonandi rennur aftur upp gullöld bíóveggspjalda þar sem listræn tjáning fær að njóta sín í ríkari mæli. (2011, 17. 11). Maðurinn á bak við plakötin. Morgunblaðið. Sótt af www.mbl.is
Ljósmynd: Tony Barnard
Kennimerki eftir Saul Bass:
Fróðleiksmoli: Umslag plötunnar Oft spurði ég mömmu með Sigurði Guðmundssyni og Memfismafíunni er stæling á verkum grafíska hönnuðarins Saul Bass, sérstaklega kynningarplakatinu fyrir kvikmyndina The Man With the Golden Arm (1955).
Saul Bass í vinnustofu sinni.
14
Ekkert verk er okkur óviðkomandi FORVINNSLA
PRENTUN
Litlaprent er fullkomin alhliða prentþjónusta sem býður upp á afar fjölbreyttar prentlausnir fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki. Hjá okkur starfa reyndir prentarar með mikla fagmenntun og þekkingu til margra ára. Við
FRÁGANGUR
tökum að okkur hvers kyns forvinnslu fyrir uppsetningu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum sem og umbrot á blöðum og bókum. Einnig er tekið á móti tilbúnum gögnum og þau undirbúin fyrir prentun.
Umhverfisvottuð prentsmiðja
Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi | 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is
Hefurðu kynnt þér styrkina sem við höfum upp á að bjóða? Fræðslusjóður styrkir nám og tómstundanám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum sem þó ekki er starfstengt hjá félagsmanni. Auk þess veitir sjóðurinn ferðastyrki vegna náms erlendis. Greiðendur í sjóðinn eru félagsmenn Grafíu sem starfa í prent- og auglýsingaiðnaði í samræmi við kjarasamninga SA og SÍA við Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar.
Stórhöfða 31, 3. hæð, 110 Reykjavík | 552 8755 | grafia@grafia.is | www.grafia.is