Skip to main content

Embla - Torfi Kristinn Ólafsson

Page 1

Grafísk miðlun 12. tbl. 10.árg. vor 2021


Fáðu vindinn í seglin Hjá Iðunni bjóðum við uppá fjölbreytt úrval af námskeiðum fyrir fagfólk. Við erum í miklum samskiptum við aðila á vinnumarkaði og þannig erum við með puttan á púlsinum hvað varðar þínar þarfir. Kíktu á heimasíðuna okkar idan.is og kynntu þér hvað við höfum uppá að bjóða.

Iðan – fræðsluetur Vatnagarðar 20 104 Reykjavík Sími 590 6400 Netfang idan@idan.is Veffang www.idan.is

2 | EMBLA


Efnisyfirlit 5 Kynning 6

Wassily Kandinsky

10 Bauhaus 12 Súrdeig 14

Lincoln in the Bardo

Leiðari Þegar líða fer að útskrift er ekki annað hægt en að líta yfir farinn veg. Námið í grafískri miðlun er skemmtilegt, sérstaklega á þessum skrítnu covid tímum en það hefur verið lærdómsríkt að stunda seinni hluta námsins að hluta til í fjarnámi. Í tímaritinu ætla ég að fjalla um nokkur af mín­ um helstu hugðarefnum. List, hönnun, brauð og bækur er eitthvað sem hefur vakið áhuga minn í gegnum tíðina og var gerð þessa tímarits kjörið tækifæri til að skoða það nánar og vekja athygli á með umfjöllun. Að lokum vil ég þakka fjölskyldu og vinum fyrir veittan stuðning og ekki síst kennurum Tækniskól­ ans sem eiga hrós skilið fyrir að tækla síbreytilegt kennsluumhverfi undanfarið ár.

Embla Ritstjórn Torfi Kristinn Ólafsson

Umbrot og hönnun Torfi Kristinn Ólafsson

Ljósmynd á kynningarsíðu Heiða Norðkvist Halldórsdóttir

Letur Univers 45 light 9/13 pt Univers 55 roman 9/13 pt Univers 65 bold 9/13

Prentun Upplýsingatækniskólinn

EMBLA | 3


Torfi Kristinn Ólafsson Torfi Kristinn Ólafsson hér, 39 ára Hafnfirðingur. Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á tónlist og hún átt fastan stað í hjarta mér en með árunum hefur áhugi einnig vaknað á annarskonar list og menningu. Árið 2015 stóð ég tímamótum í lífi mínu þar sem ég áttaði mig á því að ég hafði verið á vinnumarkaði í 15 ár og var tími kominn til að breyta til. Þá fór ég að líta í kringum mig og kynna mér námsmöguleika, fór á ýmis námskeið þar sem meðal annars var einn gítar smíðaður, staldrað við í bakaranámi en nám í grafískri miðlun vakti áhuga og átti vinninginn. Það var svo haustið 2019 að ég hóf nám í grafískri miðlun við Tækniskólann. Strax frá fyrsta degi í náminu kviknaði áhugi á faginu og hefur hann aukist síðan. Tækifærin til að leyfa listrænum hæfileikum að njóta sín öðru hvoru hefur verið gefandi. Þegar litið er til baka þá hefur námið verið fjölbreytt og krefjandi en alltaf ánægjulegt og hafa kennarar og samnemendur átt stóran þátt í því. Nú þegar útskrift nálgast fyllist maður tilhlökkunar við að hefja nýjan kafla í lífinu.

EMBLA | 5


Wassily

Kandinsky

Wassily Kandinsky var rússneskur listamaður (1866–1944) þekktur fyrir að vera einn af frumkvöðlum abstrakt listar. Hann stofnaði samtökin Der Blaue Reiter (The Blue Rider) sem voru samtök listamanna í Þýskalandi og áttu þau mikinn þátt í þróun abstrakt listar.

Þú finnur réttu bókina hjá okkur Æskan og skógurinn og Hús feðra minna eru komnar í Melkorku og verða á tilboðsverði út vikuna. Erum með mikið úrval af bókum í öllum flokkum, allt frá barnabókum, fræðslubókum eða spennubókum. Kíktu til okkar í Faxafen 11 og farðu í ferðalag um heiminn. Opið alla vika daga frá 10–18 Opið um helgar frá 10–20

Melkorka | Faxafen 11 | 108 Reykjavík melkorka.is | melkorka@melkorka.is | Sími 599 8888


Munich Árið 1909 eignaðist Kandinsky, ásamt þýska listamanninum Gabriele Munter, hús í bænum Murnau í suðurhluta Bavaria héraðs. Hann skipti tíma sínum milli Murnau og Munich og byrjaði að þróaði list sína yfir í að vera eingöngu abstrakt verk. Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út árið 1914 flutti Kandinsky aftur til Rússlands og hafði huga á að aðlagast rússnesku lífi aftur og var hvattur til þess af hinni nýju sovésku stjórn sem var mikið í mun að vinna hylli Avant Garde listamanna. Árið 1918 fékk hann stöðu sem prófessor við Moscow Academy of Fine Arts og hjálpaði til við að koma á fót 22 listasöfnum. Árið 1920 var hann gerður að prófessor við háskólann í Moskvu. Á tíma sínum í Sovétríkjunum kom hann að stofnun ýmissa listastofnana og skóla en flutti aftur til Þýskalands árið 1921 eftir að Sovéska stjórnin tók sveigju frá Avant Garde list yfir til social realisma. Bauhaus Árið 1922 var honum boðin kennarastaða við Bauhaus í Weimar sem var nýstofnaður skóli í arkitektúr og hagnýtri list. Í fyrstu var kennsla hans í skólanum fyrirlestrar um form og námskeið

8 | EMBLA

í litafræði, síðar stýrði hann einnig vinnustofu í vegglist. Þrátt fyrir þessi frekar hefðbundnu störf við skólann virðist hann hafa nýtt tíma sinn þar og umhverfi til að þróa hinn „rúmfræðilega abstract“ stíl áfram og árið 1925, þegar skólinn flutti frá Weimar til Dessau, fór hann að kenna „frjálsa“ listsköpun. Með fram því að kenna gat hann málað og verkin frá þessum tíma einkennast af hringjum og beinum línum og voru litir notaðir til að tjá einhverjar tilfinningar, t.d. var gulur notaður til að lýsa hljómi trompets og blár hljómi pípuorgels. Paris Árið 1933, þegar Bauhaus var lokað af nasistum, flutti Kandinsky til Parísar. Listsköpun hans var orðin samblanda frá tímum hans í Munich og Bauhaus og verkin „lífræn og rúmfræðileg“ og mikil ró yfir þeim. Á tímum seinni heimsstyrjaldar­ innar var mikið um efnisskort og þurfti Kandinsky að mála verk í minni sniðum. Hann lýsti þessum tíma í sinni listsköpun sem eins konar fögru ævintýri og lést hann á heimili sínu í úthverfi Parísar árið 1944. Texti eftir Torfa K. Ólafsson – heimild britanica.com Myndir wassily-kandinsky.org

Yellow-Red-Blue (1925). Verkinu er hægt að skipta í tvo hluta, vinstri hliðin hefur bjartari liti, grunnformin og beinar línur en hægri hliðin hefur dekkri liti og fer meira út í abstrakt form.


Composition VIII (1923). Verkið e málað 10 árum efir Composition VII og er eðlileg þróun frá óreiðunni sem ríkir þar yfir í rúmfræðilegan takt sem hér er allt um liggjandi. On White II (1923). Kandinsky hlustaði oft á tónlist þegar hann málaði og má segja að þetta verk er hans innri vitund að túlka þá tónlist.

The Blue Rider (1903), jafnvel hans ­mikilvægasta verk. Hérna sýnir hann tengingu við impressíónista eins og Claude Monet og Vincent van Gogh.

Composition VII (1913). Með tillitit til stærðar, undirbúnings, flókin þemu og ekki síst hlutlæga myndræna einingu er litið á Composition VII sem eitt af hans meistaraverkum.

EMBLA | 9


Bauhaus

Berlin Dessau Weimar

1919–1933


Árið 1919 stofnaði þýski arkitektinn Walter Gropius skóla sem gekk undir heitinu Bauhaus (Staatliches Bauhaus) og var tilgangur skólans að sameina allar listgreinar undir sama þaki. Skólinn var einnig miðstöð fyrir framsækna listamenn en á meðal kennara við skólann voru Josef Albers, Wassily Kandinsky og Paul Klee. Weimar 1919–1925 Í Weimar lagði Gropius grundvöll fyrir framsæknum hugsjónum þess tíma. Samkvæmt stefnuskrá og áætlun hans átti list að þjóna félagslegu hlutverki og áhersla greina samþætt. Í Weimar var stofnuð vinnustofa í sviðslistum (stage workshop) og var henni ætlað að sameina myndlist og sviðslist með áherslu á faglega nálgun. Vinnustofan var mikilvægur þáttur í menntuninni og var henni stýrt af Lothar Schreyer árin 1921 til 1923 og af Oskar Schlemmer árin 1923 til 1925.

Berlin 1932–1933 Skólinn flutti til Berlínar og var til húsa í yfirgefinni símaverksmiðju. Vegna vaxandi þrýstings frá nasistum og niðurskurðar í fjármögnun var tak­ mörkuð vinna unnin á þessum tíma. Í apríl árið 1933 var byggingunni lokað af lögreglu og sveitum nasista. Starfsemin var svo endanlega leyst upp í júlí árið 1933 en þrátt fyrir varanlega lokun skól­ ans héldu áhrif og fagurfræði stefnunnar áfram og náðu hámarki með Bauhaus hreyfingunni (Bauhaus movment). Texti eftir Torfa K. Ólafsson – heimild mymodernmet.com Myndir google.com

Marina City turnarnir í Chicago hannaðir af Bertrand Goldberg og og eru undir áhrifum af Bauhaus stefnunni

Dessau 1925–1932 Skólanum var lokað í Weimar af pólitískum ástæð­ um en það tókst að opna hann aftur í Dessau. Á tíma hans í Dessau var stefnan tekin á að hanna nýjar vörur til fjöldaframleiðslu og eru flestar þekktustu vörur og hönnun, sem komið hafa frá Bauhaus, frá þessum tíma. Það var líka í Dessau sem Gropius teiknaði og byggði hina frægu Bauhaus byggingu sem hýsti starfsemi skólans.

Bauhaus hreyfingin (Bauhaus movment) Stíllinn sem er einkennandi fyrir Bauhaus er samblanda af Arts and crafts og módernisma. Þannig að dæmigerð hönnun, hvort sem um ræðir málverk, arkitektúr eða innan­ hússhönnun, er með litlu skrauti og er áhersla á jafnvægi í formum og abstrakt lögun. Áhersla var á virkni og að koma listinni inn í hversdagslegt líf. Í dag má víða sjá áhrif Bauhaus í nútíma arkitektúr og húsgagnahönnun.

Wassily stóllinn sem var hannaður af Marcel Breuer.

EMBLA | 11


Súrdeig Uppskrift 1 brauð

2 brauð

3 brauð

Hveiti

500 gr

1000 gr

1500 gr

Vatn

350 gr

700 gr

1050 gr

Súr

100 gr

200 gr

300 gr

Salt

10 gr

20 gr

30 gr

Byrjum á því að gera súrinn tilbúinn fyrir deigið með því að blanda saman jöfnum hlutföllum af hveiti og volgu vatni saman við súr. Misjafnt er hvað það tekur súrinn langan tíma að vera tilbúinn en gott er að miða við að hann þrefaldi rúmmál sitt í krukkunni. Til að vera viss um að hann sé klár þá er hægt að nota „flotpróf“, þá er tekin um teskeið af súr og sett í volgt vatn. Ef hann flýtur er hann tilbúin, ef ekki þarf hann lengri tíma. Þegar súrinn er tilbúinn þá útbúum við deigið, blöndum saman í skál hveiti, súr og vatni (skiljum eftir um 50 gr af vatninu) og hrærum þangað til allt er komið vel saman. Gott er að passa að ekkert þurrt hveiti sé eftir og þá deigið mótað í bolta. Við látum það standa í um 40 mínútur en þetta ferli er kallað autolyse. Næst er salti og 50 gr af vatni, sem voru geymd áður, bætt við deigið og blandað vel saman.

svo ef það er heitt í eldhúsinu getur það tekið styttri tíma en maður verður að meta það hverju sinni. Gott er að nota ofninn til að stýra hitanum við hefunina, setja skálina með deiginu inn í ofn en ekki kveikja á ofninum nema kannski ofnljósinu. Með því næst jafn hiti meðan að hefun á sér stað. Næst er svo að „fletta og teygja“ deigið, þ.e. toga í eina hlið deigsins og því flett yfir deigið á sirka þrem til fjórum hliðum þess og móta deigið svo í kúlu og leyfa því að hvíla áfram í skálinni. Deigið getur verið klístrað og er gott að bleita hendina áður en flett og teygt er. Áætla má að fyrsta hefun taki um 4 klukkustundir og á þeim tíma má fletta og teygja deigið á 30 mín. fresti fyrstu 2 tímana en svo á klukkutíma fresti eftir það.

Næst tekur við fyrsta hefun en hún getur tekið mis langan tíma og ræðst af aðstæðum í eldhúsinu hverju sinni. Hitastigið hefur þar stórt hlutverk,

Þegar deigið er orðið mjúkt og loftkennt er næsta skref að móta það og undirbúa fyrir seinni hefun. Við tökum það úr skálinni og setjum á borðið með eins litlu hveiti og mögulegt er og látum það hvíla á borðinu í smá stund. Næst tökum við eina „fletta og teygja“ og látum það hvíla í um 30 mín. á borðinu. Því næst er kúla mótuð og sett í hef­

Allt komið saman og hefun hefst.

Flett og teygt nokkru sinnum.

12 | EMBLA


unarkörfu, passa skal hér að leyfa „saumunum“ að snúa upp. Karfan er því næst sett í ísskápinn en seinni hefuninni á sér stað þar og tekur um 12–18 tíma. Gott er að leyfa því að vera yfir nótt og baka brauðið daginn eftir.

Ö rk in ð

hi

m

la

m

ga

kb

bó og

fa

sto

ds

an

iá n d nig á b a in ók ð e um ar í b vi erð kk o r u g ku jóð ið til ok b g v ar ð og i o urn vi d m al æk m fu ku ðh b i æ bó í v lu m rh f u sé i a ust gö líf. ð t n i ag n in ppl þjó me nýt rk Ö a u iða du eim já rr hl m H æ al Ko m þ sm p á m. efu up ku ð g vi

bó

Texti og myndir eftir Torfa K. Ólafsson

itu ve rð Va

Þegar komið er að því að baka brauðið er ofninn hitaður í 250°C. Deiginu hvolft á bökunarplötu eða í pott. Ef notaður er pottur er hann hafður inn í ofni svo að hann sé heitur þegar deiginu er hvolft í hann. Áður en deigið fer í ofninn er skorið í það með beittum hníf til að það springi fallega út við bakstur. Hér er um að gera að leyfa listræn­ um hæfileikum njóta sín við að mynsturgerð. Ef bakað er í potti er lokið haft á til að raki haldist á brauðinu og gefi því fallega skorpu. Gott er að miða við að baka brauðið í um 40 mín. eða þar til það hefur náð fallegum lit. Ef notaður er pottur þá baka fyrstu 25 mín. með lokinu á og svo síðustu 15 mín. án loksins.

Deigið komið í körfu, tilbúið til seinni hefunar.

Nýkomið úr ofni og bara njóta hér eftir.

Örkin bókbandsstofa | Stakkholt 2a | 105 Reykjavík orkin.org | orkin@orkin.org | Sími 649 4948


Lincoln in the Bardo Öðruvísi draugasaga

Febrúar árið 1862. Þrælastríð geisar milli Norð­ ur- og Suðurríkja Bandaríkjanna. William „Willie“ Lincoln, ellefu ára gamall sonur Abrahams Lincoln og eiginkonu hans, Mary Ann Lincoln, er með taugaveiki sem dregur hann til dauða. Hann er lagður til hvílu í grafhvelfingu í Oak Hill-kirkju­ garðinum í Georgetown. Yfirkominn af sorg vitjar Abraham Lincoln líks ástkærs sonar síns, ófær um að sleppa takinu af drengnum. Þetta eru aðstæðurnar sem lesandinn gengur inn í nóttina örlagaríku í upphafi skáldsögu bandaríska rithöfundarins George Saunders, Lincoln in the Bardo, sem út kom á liðnu ári. Fyrir verkið hlaut Saunders bresku Man Booker-verðlaunin eftir­ sóttu. Lincoln in the Bardo er fyrsta skáldsaga höfundar en hann hafði þó áður getið sér gott orð á ritvellinum, aðallega fyrir tilraunakenndar smásögur. Öðruvísi draugar Lincoln in the Bardo er engin venjuleg draugasaga þar sem draugar ganga um litverptir milli svefns og vöku í tilbreytingasnauðri tilvist til eilífðarnóns. Hún hefur þó að geyma mörg stef og vísanir sem við þekkjum úr öðrum álíka sögum. Í bardó eru ákveðnar leikreglur og lögmál sem draugarnir þurfa að beygja sig undir. Í fræðum Búddista er mannshugurinn í hávegum hafður en þó eru honum settar skorður af umbúðunum sem hann hylja, þ.e. höfuðkúpunni. Í bardó er þessu ekki þannig farið þar sem heilinn er ekki takmarkaður af holdlegum líkama og því magnast allar tilfinn­ ingar upp og verða svo gott sem hömlulausar. Það mætti kannski líkja huga drauganna við kýr sem sletta úr klaufum að vori til þegar þær sleppa úr básum sínum. Skáldskapur og sagnfræði í eina sæng Á meðan Lincoln er að takast á við sonarmissinn standa hann og fylgismenn hans höllum fæti í baráttu sinni gegn aðskilnaðarsinnum í Suður­ ríkjunum. Það er því ekki bara sonarmissirinn sem ásækir forsetann heldur finnur hann fyrir ríkri ábyrgð gagnvart öllum þeim ungu mönnum – eiginmönnum, sonum og bræðrum – sem heyja lífshættulega baráttu fyrir þeim málstað sem hann

14 | EMBLA

trúir á og stendur fyrir. Sálarstríð Lincolns snýst því um að hann þarf að axla ábyrgð og leita leiða til að sleppa takinu af minningunni um Willie svo hann geti tekið að sér föðurhlutverk heillar þjóðar sem á um sárt að binda og þarfnast leiðtoga og föðurímyndar. Það er erfitt að útskýra í stuttu máli hvernig skáld­ saga Lincoln in the Bardo er. Tilraunakennd er hún vissulega þar sem mörkin milli sagnfræði­ legrar túlkunar á sannleikanum og ótakmarkaðs ímyndunarafls skáldskaparins eru stundum óljós. Fyrir utan það er bókin virkilega erfið aflestrar og krefst óskiptar athygli lesandans. Oft er erfitt að henda reiður á hvað er að gerast þar sem form og stíll sögunnar er harla óvenjulegt, sögumennirnir eru margir, tala hver ofan í annan og eru þar að auki misáreiðanlegir. Frásögnin vinnur þó á þegar lesandinn hefur áttað sig á formgerð hennar og leyfir sér að fljóta áfram með textanum. Lincoln in the Bardo spyr líka ótal spurninga sem ná út fyrir hið sögulega viðfangsefni: Hvað er skáldsaga? Og hvert er hlutverk og ábyrgð höfundarins þegar hann þurrkar út mörk skáldskapar og sagnfræði? Lincoln in the Bardo er frumleg og öðruvísi drauga­ saga sem nær að vera bæði falleg og mannleg þrátt fyrir allan óhugnaðinn og sorgina sem tekist er á við; vel skrifað verk, fágað, fyndið og fullt af sóðalegum húmor. Texti eftir Jens Pétur Kjærnested


Hjá Litlaprent bjóðum við uppá fjölbreytt úrval prentgripa. Við sjáum um þinn prentgrip frá a–ö og tryggjum þannig vandað og gott prentverk. Umhverfismálin er okkur mikilvæg og hefur prentsmiðjan hlotið Svansvottun.

Skemmuvegi 4, blá gata | 200 Kópavogi | Sími: 540 1800 Netfang: litlaprent@litlaprent.is | Veffang: www.litlaprent.is


Láttu okkur sjá um kjaramálin Að vera í stéttafélagi er mikilvægara en margan grunar. Gefðu þér tíma til að kynna þér kjara- og réttindamál þín. Það gæti haft meiri áhrif á laun þín og frítíma en þig grunar. Kíktu á heimasíðuna okkar grafia.is eða sláðu á þráðinn.

Við erum hér fyrir þig varðandi: • Kjaramál • Sjúkrasjóð • Orlofssjóð • Námsstyrki

Stórhöfða 31, 3. hæð 110 Reykjavík Sími 552 8755 Netfang grafia@grafia.is Veffang www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Torfi Kristinn Ólafsson by Tækniskólinn - Issuu