12. tbl. 9. árg. vor 2020
EMBLA GRAFÍSK MIÐLUN
1
VEFNÁM NÝ FRÆÐSLULEIÐ
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík 590 6400 idan@idan.is www.idan.is
UM MIG
SUNDLAUGAR Í REYKJAVÍK
VIÐTAL, HÖRÐUR ÓLAFSSON
HÚSAMEISTARI RÍKISINS
LEIÐARI Samkomubann skollið á, skólum lokað, takmarkað aðgengi að verslunum og landinn heldur sér að mestu heima til. Það er skrítið ástand í samfélaginu í augnablikinu og enn skrítnara að vera nemandi á meðan maður gengur í gegnum þessa fordæmalausu tíma. Mig langar eiginlega að tileinka þennan leiðara kennurum okkar sem hafa unnið alveg ótrúlegt starf. Þrátt fyrir að hafa þurft að tileinka sér glænýjar kennsluleiðir hefur þeim tekist að vera okkur alltaf innan handar og stutt við bakið á okkur í gegnum þetta mikla óvissuástand sem ríkir nú í landinu. Þau eiga lof skilið, í alvöru.
Njótið vel!
EMBLA Ritstjórn Tjörvi Valsson Útgefandi Tækniskólinn Forsíðumynd Tjörvi Valsson Prentun Tækniskólinn Letur í meginmáli Univers 55 , 9/13pt
AÐEINS UM MIG Ég einn af eldri nemendum hópsins. Nýlega orðinn þrítugur en því fylgja auðvitað blendnar tilfinningar, eða þannig. Ég er fæddur og uppalinn í Garðabæ þar sem ég bjó í hart nær 23 ár. Þar kláraði ég bæði grunnskóla og stúdent í Fjölbraut í Garðabæ. Eftir stúdentinn tók við tímabil þar sem ég prófaði alls konar hluti, ég fór í háskóla en fann mig þar ekki. Ég lærði flug um stund og vann á leikskóla en að lokum endaði ég á tölvudeild Landspítalans þar sem ég vinn enn sem kerfisfræðingur. Í kjölfarið kláraði ég nám í kerfisfræði við NTV skólann
Ljósmyndun og hönnun Það hefur alltaf blundað í mér einhver þörf að tjá mig í listrænum tilgangi. Það var hins vegar ekki fyrr en í kringum árið 2011 sem að ég fór að stunda ljósmyndun af alvöru en ég hugsa að það sé að mestu leyti honum pabba mínum
4
að þakka sem var mikill ljósmyndari og kenndi meðal annars ljósmyndun í Hagaskóla. Eftir það var ekki aftur snúið. Ljósmyndun hefur átt hug minn allan og þá sérstaklega landslags og náttúruljósmyndun. Íslenskt landslag er síbreytilegt og bakgrunnur minn í ljósmyndun leyfir mér að fanga eigin upplifun af landinu á hverjum tíma. Um leið skráset ég listræna þróun mína sem breytist í takt við náttúruöflin.
Framtíðin Eftir námið í Tækniskólanum liggur leiðin vonandi í Listaháskólann í frekara nám í grafískra hönnun. Eftir það stefni ég síðan á að geta einn daginn stofnað mitt eigið fyrirtæki. Námið í Tækniskólanum hefur gefið mér ótrúlega sterkan grunn til þess að takast á við það sem fram undan er og ég er ansi bjartsýnn á að það muni fleyta mér áfram í leit að leiðum til þess að skapa nýja spennandi hluti
Ljósmynd breytt í vectorform: Tjörvi Valsson
5
LAUG AR Hvað er þetta með sund? Á Íslandi er rík hefð og menning fyrir sundi, hefð sem ristir alla landsmenn djúpt inn að beini. Sundlaugar er að finna í nánast öllum bæjarfélögum landsins. Við eigum flest okkar sælu minningar um sundferðir í þessum laugum. Ég veit ekki alveg hvaðan við Íslendingar fáum þessa brjáluðu þráhyggju fyrir sundi. Er það vegna þess að landið bíður upp á nánast ótakmarkað magn af heitu vatni sem hægt er að nýta eða gæti ástæðan verið íslenskt veðurfar þar sem fólk hópast í heitu laugarnar í flótta frá frostinu. Hvað sem það er þá hugsa ég að þessi áhugi á sundi sé að mörgu leyti sér íslenskur.
Sagan Saga lauga á Íslandi nær alla leið aftur til landnáms ára en í dag er vitað um þrettán laugar sem notaðar voru til forna. Af þeim eru enn fjórar nothæfar. Sú frægasta er líklega Snorralaug í Reykholti og telja margir fræðimenn að hún sé fyrsta manngerða laugin á Íslandi. Árið 1824 var fyrsta sundfélag
6
Íslendinga stofnað og fékk það nafnið Sundfélag Reykjavíkur. Það var síðan ekki fyrr en árið 1908 sem fyrsta steypta sundlaugin var gerð. Hún var staðsett í Laugardalnum í Reykjavík og þar var notað heitt vatn úr þvottalaugunum sem voru staðsettar þar og blandað saman við kalt vatn úr Gvendarbrunni. Fyrsta innilaug landsins leit síðan dagsins ljós árið 1937 en það var Sundhöll Reykjavíkur, meira verður fjallað um hana á næstu opnu. Eftir árið 1930 fjölgar byggingu sundlauga á Íslandi mikið og á árunum 1931 til 1940 og 1941 til 1950 voru 44 sundlaugar byggðar.
Hvenær förum við í sund Samkvæmt upplýsingum frá sundlaugum borgarinnar eru tölur um viðveru sundgesta svolítið á reiki. Íslendingar fara talsvert meira í sund á veturna en þar kemur veðurfarið líklega inn þar sem okkur þykir notalegt að busla í heitu vatni í kuldanum. Algengustu viðveru tímar eru snemma á morgnanna og eftir vinnu á virkum dögum en helgar eru langvinsælastar fyrir barnafjölskyldur.
Sundhöllin í Reykjavík, ljósmynd: Tjörvi Valsson
HAND ÞVOTTUR Skolaðu hendur og bættu við sápu
Nuddaðu sápunni vel í lófa
Farðu líka á milli fingra
D R A G Ð U Ú R S Ý K I N G A R H Æ T T U M E Ð H A N D Þ VÆ T T I
www.landlaeknir.is
www.landspitali.is
Vissir þú? Að konum er heimilt að fara berbrjósta í sund í öllum laugum landsins að Bláa lóninu undanskildu en þrátt fyrir það hefur konum hefur verið vísað úr laugum fyrir að vera berar að ofan.
8
Sundhöllin í Reykjavík Sundhöllin í Reykjavík var byggð og tekin í notkun árið 1937. Arkitekt byggingarinnar var enginn annar en Guðjón Samúelsson en hann vann sem byggingar arkitekt ríkisins. Meira verður fjallað um Guðjón seinna í tímaritinu. Sundhöllin er einstök bygging en hún er fyrsta sundlaug landsins sem opnuð var fyrir almenning. Hönnun byggingarinnar er minimalísk og sækir innblástur sinn í Art Deco
byggingarstílinn sem var vinsæll á þessum tíma og einkenndist af sterkum einföldum línum og nýmóðins byggingaraðferðum. Í upprunalega hluta byggingarinnar er að finna 50 metra langa innilaug ásamt stökkbretti og heitum pottum sem staðsettir eru á svölum fyrir utan bygginguna. Nýlega var byggð viðbót við laugina sem er með útilaug ásamt vaðlaug og heitum pottum. Einstök upplifun.
Opnunartími sundlauga á höfuðborgarsvæðinu: Sundlaugar
Gjaldskrá
Opnunartími
Laugardalslaug
1050 kr.
06:30—22:00
Garðabæjarlaug
720 kr.
06:30—22:00
Álftaneslaug
720 kr.
06:30—21:00
9
Sveiflast fram og aftur
10 Hรถrรฐur ร lafsson, ljรณsmynd: Tjรถrvi Valsson
Viðtal Hörður hefur unnið við grafíska hönnun í um 10 ár og er því orðinn ansi sjóaður þegar kemur að faginu. Hann fór hins v egar óhefðbundnar leiðir til þess að komast á þann stað sem hann er dag en segir að það sem skipti mestu máli sé að einstaklingurinn geti sýnt fram á að hann sé einhvers virði til fyrirtækisins eða kúnnans.
Hvenær áttaðir þú þig fyrst á því að þig langaði að vinna/læra eitthvað hönnunartengt? „Góð spurning. Ég hugsa að það hafi verið eitthvað í kringum 2006–07, en það var um það bil þegar ég byrjaði í skólanum. En ég teiknaði mikið sem krakki og hef alltaf verið mikið viðriðinn tónlist.” Hörður fór í tækniskólann og útskrifaðist af Almennri hönnunar- og listnámsbraut þegar hún var og hét. Hann útskrifaðist þar bæði með stúdent og síðan af listnámsbrautinni. Hann segir að skólinn hafi gert mikið fyrir sig. Eftir skólann hafði hann skýrari sýn á því hvað honum langaði að gera í lífinu.
Hvernig tóku fjölskylda og vinir því þegar þú ákvaðst að fara þessa leið? „Ég held að það hafi nú allir bara verið glaðir með að ég hafi ákveðið að fara í skóla þar sem ég var búinn að vera vinnandi síðustu sex árin eftir því að hafa hætt í menntaskóla án þess að klára stúdentinn. Ég held að þetta hafi allt verið frekar náttúrulegt, ég var náttúrulega búinn að grúska mikið í tónlist og myndlist áður en ég byrjaði.“ Eftir skólann fékk hann sumarstarf hjá litlu startup fyrirtæki í tölvuleikjagerð.
Það reyndist síðan vera starf sem hann vann við í um fimm ár og segir að það hafi í rauninni verið þar sem hann hafði lært hvað mest. „Þetta var lítið fyrirtæki þar sem allir voru í öllu. Ég hafði aldrei opnað illustrator áður en ég byrjaði þarna en var mjög fljótur að læra og samstarfsfólkið kenndi mér mikið.”
„Þegar ég kláraði skólann þá var ég alltaf meðvitaður um að ég ætlaði ekki að verða grafískur hönnuður “ Í dag vinnur Hörður hjá LS retail sem er fyrirtæki sem bíður upp á ýmsar lausnir fyrir fyrirtæki til þess að auðvelda rekstur. Þar starfar hann sem grafískur hönnuður þó að hann sé ekki menntaður sem slíkur. „Ég veit ekki alveg hvað ég má kalla mig í dag, þetta eru náttúrulega vernduð starfsheiti en starfstitillinn minn er allavega Grafískur hönnuður. Ég held að mín leið í þessu sé mjög óhefðbundin.
Hvenær finnst þér þú vera mest skapandi? „Ég er nú frekar heppinn með það að ég lendi mjög sjaldan í einhvers konar sköpunar harðlífi en ég held að það sé mjög mikilvægt að vera duglegur að fylgjast með í kringum sig, sjá hvað aðrir eru að gera og jafnvel herma eftir einhverju sem aðrir hafa gert til þess að geta skilið betur hvernig það er gert og síðan útfært það á sinn eigin hátt.”
11
Hörður Ólafsson, grafískur hönnuður og myndlistarmaður
„Það verður samt ekki sagt nógu oft að stundum verður maður bara að eyða tíma í hlutina og gefa sér tíma í að prófa sig áfram með ákveðinn hlut, sérstaklega þegar þú ert kominn í einhvers konar teymisvinnu sem er algengt á vinnustað. Þá myndast oft einhverjar ákveðnar samræður þar sem að aðilar skiptast á hugmyndum og þannig getur hugmyndin þróast gríðarlega. Það verður samt að hafa í huga að maður er ekki alltaf að finna upp hjólið og skapa eitthvað glænýtt.” Það er oft algengt hjá hönnuðum sem eru nýlega komnir á vinnumarkaðinn að þeir festist í einhverjum ákveðnum pælingum og nái ekki að slíta sig frá þeim. Hörður segir að þá sé mikilvægt að geta lagt það til hliðar og jafn vel hætta alveg að hugsa um það því það
12
er einmitt þá sem að lang bestu útfærslurnar af hverri hugmynd fyrir sig koma upp í hugann. Þá segir hann að það skipti öllu máli að vera meðvitaður um að þú sért alltaf að vinna fyrir kúnnann og að þú verðir að geta tekið gagnrýninni og jafnvel leggja einhverjar pælingar sem að þú varst með til hliðar.
Finnst þér þetta hafa áhrif á fjölskyldulífið? „Ég tók svolítið meðvitaða ákvörðun um að sá tími sem að ég átti inn á milli færi í tónlist, einfaldlega af því að það togaði meira í mig. En eins og staðan er núna þá hef ég haft tíma fyrir hvorugt en mér finnst það ekki hafa svo mikil áhrif á mig af því að ég fæ að vinna við skapandi hluti. Ég myndi ekki segja að þetta sé mikið fyrir mér en stundum getur verið svolítið erfitt að hætta þegar maður er byrjaður.”
MUNUM TVEGGJA METRA
REGLUNA
2m
2m
VIRÐ UM SAMKOMU B ANN
Through the Void, grafísk pennateikning
RÆTUR G U Ð J Ó N S A M Ú E L S S O N , H Ú S A M E I STA R I R Í K I S I N S
Guðjón Samúelsson er án efa okkar lang þekktasti arkitekt. Hann á stóran sess hjá þjóðinni og hefur hannað mörg af helstu kennileitum Reykjavíkurborgar. Hann er af mörgum talinn vera einn af áhrifaríkustu einstaklingum sem Ísland hefur alið af sér.
Uppeldi, nám og starf Guðjón fæddist á Hunkubökkum í Kirkju bæjarhreppi árið 1887. Foreldrar hans fluttu til Reykjavíkur og byggðu hús að Skólavörðustíg 35 þar sem hann var lengst af búsettur. Guðjón lauk námi í trésmíði árið 1908 en eftir það lá leið hans til Kaupmannahafnar þar sem hann kláraði nám í byggingarlist og var hann fyrsti Íslendingurinn til þess að ljúka námi í arkitektúr. Þegar heim var komið var hann
skipaður sem húsameistari ríkisins sem hann gegndi til dauðadags. Guðjón var ekki við eina fjölina felldur en ásamt því að vinna sem arkitekt var hann líka frábær myndlistarmaður og málaði mikið í frítíma sínum. Þá teiknaði hann hús í ýmsum stílum og má geta nýklassískan stíl, fúnkístíl og rómantískan stíl. Hann var líka mikill áhugamaður um skipulagsmál og sat lengi vel í skipulagsnefnd ríkisins.
Helstu byggingar Eins og kom fyrir í byrjun teiknaði Guðjón mörg af helstu kennileitum borgarinnar en þar má helst nefna byggingar eins og Landspítalann, Hótel Borg, Sundhöllina í Reykjavík, Hallgrímskirkju og Þjóðleikhúsið.
Mörg stórhýsa Guðjóns hafa veðrast illa vegna þess hve stór og háreist þau eru en mörg þeirra hafa verið gerð upp.
14
Þjóðleikhúsið, vectormynd: Tjörvi Valsson
Umhverfisvænt Fjölskyldu Fyrirtæki
Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi 540 1800 litlaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is
GRAFÍA STÉT TARFÉLAGIÐ FYRIR ÞIG
Grafía stéttar félag varð nýlega eit t af aðildar félögum Rafiðnaðarsambands Íslands. Ávinningur sameiningarinnar er mikill f yrir félagsmenn Grafíu.
Námsstyrkir
Sjúkrasjóður
Ferðastyrkir
Kjaramál
KYNNTU ÞÉR ÞÍN RÉTTINDI Stórhöfði 31 - 110 Reykjavík - 5 400 100 - www.grafia.is - www.rafis.is