Skip to main content

Embla - Anný Tinna Aubertsdóttir

Page 1

Stöðugt vaxandi úrval námskeiða sem styrkir fólk í starfi Bj

ór

og

bj

ór ge

rð

Vinn uvé lar Adob e

Photo

shop

- fru

Mast ercla ss

mná

msk eið

úða

mb sla u

eið

l Fram Grafísk hönnun umbúða

Gríptu þinn bita. Skráðu þig núna! Sérfræðingar í fræðslu og ráðgjöf Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | idan@idan.is | idan.is | 590 6400


LEIÐARI

Nú líður að kaflaskiptum! Mikið hefur verið lært og töluverð vinna sem liggur að baki. Get í rauninni ekki mælt nógu mikið með Tækniskólanum eins skrýtið og þetta námsfyrirkomulag var á köflum þökk sé Covid. Þó stendur margt upp úr, þá sérstaklega að hafa fengið tækifæri á að kynnast frábæru fólki bæði innan skólans og utan. Nemendur og kennarar! Emblan mín fjallar um andlega heilsu á tímum covid og hvað maður getur gert mikið bara með því að gefa sér tíma fyrir sjálfan sig. Ásamt því fjalla ég um list og matarlist (listin við matarlyst), þar sem ég tek viðtal við einstaklega hæfileikaríkan eftirréttakokk sem sýnir mér listir sínar og talar um að fylgja hjartanu (eða í þessu tilviki, heimilisfræðikennaranum). Ég horfi bjartsýn til framtíðarinnar og hlakka til að nýta mér þá kunnáttu sem ég aflaði mér hér í skólanum.

Umbrot og hönnun Anný Tinna Aubertsdóttir

Hönnun forsíðu Anný Tinna Aubertsdóttir

Ljósmynd á forsíðu Sunday & White Studio

Prentun

EFNISYFIRLIT UM MIG [4] JÁKVÆÐ INNGRIP [6] LISTIN AÐ LIFA [9] MATAR LIST [ 10 ]

Upplýsingatækniskólinn

Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Bauhaus 93 Regular 34 Centaur Regular 68

Pappír Digi Finesse silk 130 gr Digi Finesse silk 170 gr

UPPSKRIFT [ 12 ] EMBLA [ 3 ]


Ég heiti Anný Tinna Aubertsdóttir, eða eins og margir þekkja mig „gellan með bláa hárið“. Ég er fædd, uppalin og staðsett í Kópavoginum. Síðan ég man eftir mér þá hef ég alltaf leitast í það að skapa, hvort sem það er með blýanti, olíupastel, leir, akrýl, olíumálningu og ég get talið áfram upp. Til að taka það saman, þá var ég handóð með ofureinbeitingu á að föndra og láta hluti líta fallega út í kringum mig. Ég man eftir því að hafa notað gömul blöð, heftað þau saman, skrifað mína eigin sögu og málað myndir með. Alltaf eitthvað föndurbrask. Þannig mér var m.a. hent í myndlistarskóla, þar sem ég lærði myndlist og teikningu. Enda átti það ágætlega við. Seinna meir hríslaðist ég frá þessum “áhugamálum” í þeim sjálfsagða sannleika að nú ætti ég að velja mér eitthverskonar fullorðinsstarf. Eitthvað rökrétt og lógískt. Eitthvað alvöru, og listin gæti verið bara eitthverskonar hobbý. Kannski var það líka ég að sannfæra sjálfa mig að ef ég myndi gera þetta að minni atvinnu þá myndi ég algjörlega fá leið á þessu braski. Þannig ég gleymdi “áhugamálinu”. Afvegaleiddist og druslaðist í allt frá tannlækninum, stjórnmálafræði, einkaflugmanninum og loks yfir í sálfræði. Þó að sálfræðin var eina námið á háskólastigi sem ég kláraði af þessum fögum.

Eftir útskrift í sálfræðinni, týndari í lífinu en nokkru sinni fyrr, þá flutti ég ein til Ástralíu. Þar sem ég ferðaðist og ferðaðist lengra yfir til Nýja Sjálands og þaðan til Asíu. Og hér er ég, komin tilbaka og fundin, með málningaslettur á peysunni, námsefni af grafískri miðlun í tölvunni og hor í nefinu. Flest verk mín eru innblásin af litríkum heim tilfininganna og mannlegra upplifana. Þar sem ég legg áherslu á mikla litagleði (eða alls enga stundum) og áferð. Það er svo margt fallegt sem ég hef séð í þessum heimi og mig langar til að skapa eitthvað í þennan heim sem endurspeglar það. Hvort sem það er í gegnum málverk, skrifuð orð, fangaðar ljósmyndir eða fallegar hannanir. Þá vona ég að mín hugsjón og sjónarmið gefi ykkur eitthverja upplifun og jafnvel veiti ykkur ánægju.

Takk fyrir mig, Anný Tinna Aubertsdóttir

EMBLA [ 5 ]


Jákvæð inngrip og áhrif þeirra Jákvæð sálfræði er vísindagrein sem einblínir á styrkleika einstaklinga í stað veikleika þeirra. Þar sem grunnhugmyndin er byggð á þeirri trú að einstaklingar leitast við að lifa hamingjusömu lífi sem hefur tilgang (e. meaningful) og er fullnægjandi (e. fulfilling). Talað er um að hamingja er 50% genatengd, 10% aðstæður og 40% breytileg (þ.e. hugsun, tilfiningar og hegðun) (Hefferson og Boniwell, 2011). Jákvæð inngrip eru þættir sem hafa áhrif á þessi 40%. Þ.e.a.s. æfingar sem stuðla að því að auka andlega heilsu og rækta jákvæðar tilfiningar, hegðun og hugsanir. Þessi inngrip eru þróuð með því sjónarhorni að auðvelda flæði jákvæðra tilfininga, auka vellíðan og stuðla að þroska og sköpunargáfu (Moss, 2016). Margar rannsóknir hafa verið gerðar til þess að kanna árangur þessarra æfinga og sýna niðurstöður þeirra flestra á aukna hamingju. Jákvæð inngrip byggja því á fræðilegum grunni – þ.e. rannsóknum og kenningum sem styðja skilvirkni þeirra. Til eru mismunandi tegundir af jákvæðum inngripum þ.á.m. þakklætisbréf, núvitundaræfingar, það að vinna útfrá persónulegum styrkleikum, sýna velvild, stunda hreyfingu og rækta félagsleg tengsl. Seligman, Steen, Park og Peterson (2005) gerðu rannsókn þar sem þeir báðu þáttttakendur um að skrá hjá sér þrjá jákvæða hluti eftir hvern dag og skýra hvernig þeir áttu hlut í þessum jákvæðu hlutum. Sex mánuðum síðar var skoðað vellíðan hjá þessum einstaklingum og hafði hún aukist til munar, þ.e. þátttakendur greindu frá því að þeir upplifðu meiri hamingju og minni depurð.


Núvitund byggir á að beina athyglinni meðvitað að núlíðandi augnabliki án þess að dæma. Æfingarnar eru m.a. að meðvitað njóta einstakra augnablika, hugleiða og upplifa meðvitað þær athafnir sem maður framkvæmir. Fredricksson og fl. (2008) gerðu rannsókn sem átti að kanna ,,broaden-and-build theory’’ þar sem þeir skiptu 139 þátttakendum í tvo hópa þar sem annar hópurinn stundaði núvitundaræfingar daglega. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndi fram á að hópurinn sem stundaði núvitundaræfingar daglega fann fyrir auknu flæði af jákvæðum tilfiningum og betri líðan. Þar af leiðandi upplifðu einstaklingarnir meiri tilgang og vellíðan í bæði starfi og leik. Einnig sýndu niðurstöður fram á að fólk sem stundaði núvitundaræfingar var ólíklegra til að fá flensu. Styrkleikar eru jákvæðir eiginleikar eða einkenni sem birtast í hugsunum, tilfiningum og hegðun okkar (Peterson og Seligman, 2004). VIA Styrkleikaprófið mælir 24 styrkleika sem flokkast í 6 yfirflokka þ.e. viska, kjarkur, mannúð, réttsýni, yfirvegun og yfirskilvitleiki. Styrkleikaæfingin

felur í sér þá æfingu að nýta sér þá styrkleika sem maður skorar hæst í við flestar aðstæður og verkefni. Seligman (2009) hélt því fram að nýta sér persónulega styrkleika við verkefnavinnu myndi auka líkurnar á að upplifa aukið flæði (e. flow). Wood, Linley, Maltby, Kashdan og Hurling (2010) sýndu fram á það í langsniðinni rannsókn að notkun styrkleika í verkefnavinnu minnkar streitueinkenni, eykur sjálfstraust og hækkar orkustig. Þá má einnig nefna rannsókn LittmanOvadia og Steger (2010) sem sýndi fram á að einstaklingar sem fengu tækifæri á því að nýta sér styrkleika í starfi upplifðu meiri vellíðan og starfsánægju. Á þessum skrýtnu tímum (covid) hef ég fundið fyrir miklu andlegu álagi, hvort sem það er óreiða í hausnum á mér, persónulega lífi eða jafnvel skólanum. Þá ákvað ég að setja sjálfa mig í félagslegt tilraunarverkefni í þrjár vikur. Það fólst í því að prufa þessar þrjár tegundir af jákvæðum inngripum. Fyrst að halda dagbókarfærslur með að skrásetja þrjá góða hluti á dag í viku og lýsa mínum

HRAÐI, GÆÐI OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA Veldu umhverfisvænari leiðir. Við tökum að okkur hvaða prentverk sem er.

– betri leið til að prenta Prentsmiðjan Stafur ehf · Borgartún 30 · 105 Reykjavík · Sími 563 3363 · stafur@prentstafur.is · www.prentstafur. is


þætti í þeim. Því næst voru núvitundaræfingar með appi sem kallast Bloom, þar sem prufað voru mismunandi núvitundaræfingar í 5 daga. Æfingarnar samanstóðu af mismunandi hugleiðsluæfingum þ.e. þrepin þrjú, öndunaræfingar, að skanna líkamann og velvild. Síðast var tekið styrkleikapróf þar sem fengust niðurstöður um þá styrkleika sem maður skoraði hæst í. Þar var áherslan lögð á að vinna útfrá styrkleikum sínum þ.e. velja einn styrkleika til að einbeita sér að og vinna útfrá á nýjan máta. Samantekt Fyrsta æfingin að skrásetja þrjá góða hluti á dag og fjalla um hvernig maður ætti hlut í þeim reyndist vera auðveldara en ég bjóst við. Fyrir þremur árum las ég mér til um hvernig hvernig ég gæti ,,forritað’’ heilann til að einblína á jákvæðar hugsanir. Það hjálpaði mikið á þeim tíma við að byggja upp jákvætt lífsviðhorf þ.e. að vera þakklátur fyrir hversdagslegum augnablikum. Ég taldi mig því vera nokkuð vel undirbúna til að framkvæma þakklætisæfinguna. Það sem kom þó mest á óvart var að eftir að hafa framkvæmt æfingarnar þ.e. skrásett þrjá hluti daglega í viku fann ég merkilegan mun. Sú aðgerð að skrásetja litlu atriðin sem maður var þakklátur fyrir og lesa þau yfir fékk mann ósjálfrátt til að meta minnstu hluti sem áttu sér stað á degi hverjum. Hvort sem það var góður kaffibolli eða hitta vini. Núvitundaræfingarnar fólust í því að gefa sér tíu mínútur á dag til að njóta einstakra augnablika. Stoppa aðeins við og finna fyrir andardrættinum, líkamsstöðu og núverandi líðan. Samfélagið sem við búum við í dag, þar sem er stanslaust áreiti krefst þess að við hugsum alltaf fram í tímann. Tíminn flýtir sér og við sem einstaklingar finnum fyrir mismunandi og mismiklum streitueinkennum. Eftir að hafa stundað þessar æfingar í aðeins fimm daga, þá fann ég fyrir minni spennu í líkamanum. Mestmegnið af deginum er maður að vinna í tölvu og maður fattar ekki hversu mikið maður spennist upp yfir daginn. Þannig partur af þessarri æfingu

[ 8 ] EMBLA

var að taka pásur, standa upp og hafa meiri flæði og hreyfingu yfir daginn. Og ekki að hlekkja sig við skrifborðið. Ásamt því átti ég auðveldara með að vakna á morgnanna. Þannig almennt betri líðan. Það að vinna útfrá styrkleikum sínum tók hvað mest á. Þ.e. að finna styrkleika sem maður ætti að einbeita sér að og vinna útfrá á nýjan máta. Ég tók persónuleikaprófið á VIA Institute of Characther þar sem ég fékk niðurstöður um þá styrkleika sem ég skora hvað hæst í og hveð lægst í. Ég vinn reglulega með mína efstu fimm styrkleika og eru þeir jafnvel orðnir rótgrónir í minn persónuleika, því ákvað ég að leita á önnur mið. Ákvörðunin var því að vinna með tvo styrkleika sem ég vildi bæta mig í. Ég fann að ef maður einbeitir sér að styrkleikum og hvernig maður getur nýtt þá í mismunandi aðstæðum minnkar streitueinkenni, eykur sjálfstraust og hækkar orkustig. Allar æfingarnar voru krefjandi að því leyti að maður þurfti að venja sig á að gefa sér tíma, en ágóðinn af því er meira virði en maður heldur. Hefði líklega ekki getað valið meira viðeigandi og uppbyggjandi verkefni fyrir sjálfa mig. Finn mun á mér eftir þessar þrjár vikur þá aðallega hvað ég er með meira jafnaðargeð og á auðveldara með að tækla hlutina, hvort sem það er skólaverkefni eða bara eiga samskipti við fólk. Engin öfgakennd jákvæði eða hamingjuflæði heldur ákveðið form af æðruleysi. Held að það sem ég hef lært mest á þessum covid rússíbana er að gefa sér tíma og augnablik fyrir sjálfan sig og njóta. Þar af leiðandi tekur maður meiri ánægju í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur í staðinn fyrir að keyra það áfram og drífa allt af. Málið er að við erum á lífi núna og því er alveg eins gott að nýta það í eitthvað sem manni finnst gaman og það sem veitir manni ánægju. Held áfram að rækta geðheilsuna, hvort sem það verði jafn einbeitt og metnaðarfullt og þessar þrjár vikur, það veit ég ekki. En ég ætla allavega að hafa áfram Bloom appið í símanum.


A Ð N I L T I S I

Bandaríski heimspekingurinn Arthur C. Danto hélt því djarflega fram að list væri ekki list nema í ljósi einhverrar kenningar s.s. eftirlíking, tjáning, sköpun og form. Þá að þessar kenningar væru gagnlegar um gildi listar og listaverka.

L

Sköpunargáfa er rótin, andleg og félagsleg aðferð þar sem nýjar aðferðir og hugtök eru búin til. Sköpun á einhverju nýju, endurbót á einhverju gömlu eða jafnvel endurtekning/eftirherma á eitthverju sem virkar. Talað er um að sköpunargáfa sé einmitt mjög mikilvæg í störfum tengdum viðskiptum, hagfræði, byggingarlist, iðnhönnun, grafískri hönnun, auglýsingum, stærðfræði, tónlist, vísindum, verkfræði, kennslu og..bíddu.. er hún þá ekki mögulega bara partur af öllu. Er þá sköpunargáfa eitthvað sem er fastskorðað í mannlegu eðli. Það er ekki til ein endanleg og opinber skilgreining á sköpunargáfu og listinni sem fylgir í kjölfarið. En maður sem skapar er talinn bera "skapari" (Are we god?!) eða öllu heldur listamaður/listakona! Sköpunargleði er einfaldlega hugsanamynstur sem leiðir af sér nýjar og nytsamlegar hugmyndir. Það að vera úrræðagóður er þannig í rauninni merki um sköpunargleði.

FA

Hvað er list? Er það löngunin til þess að skapa? Þörfin til að tjá sig? Afrakstur þarfarinnar og langanina? Sumum er í rauninni alveg sama, af hverju að skilgreina eitthvað sem kemur náttúrulega og bara er. Margir heimspekingar hafa þó velt listinni fyrir sér. Þar sem þeir brjóta hugtakið niður í vísindalegar öreindir s.s. flokkunarhugtak og matshugtak. Hvort eitthvað má flokka sem list og svo hvort það sé nógu góð sköpun til að vera kölluð list. Lengi vel var haldið í þá hugmyndafræði að list væri einhverskonar eftirlíking; þ.e. eftirlíking af lífinu, hvort sem það sé málverk af landslagi, portrett af útliti og skapgerðar persónu. En ljósmyndatæknin gerði þá kenningu úrelta, þar sem ljósmyndir voru nákvæm eftirmynd og fönguðu augnablik af raunveruleikanum. Þannig ný kenning tók við, þar sem list væri ekki eftirlíking heldur tjáning, og þá tjáning tilfinninga.

Það eru til margar leiðir til þess að nálgast útskýringu á listinni, hvort sem það er að brjóta hugtakið niður í öreindir, gefa henni vitsmunalegt gildi og skapa umræðu út frá ýmsum sjónarmiðum. Hvort sem það er um listina sjálfa, listahugtakið, sköpunargáfu og/eða gleði. En kannski er það einfaldlega svo - eins og ég nefndi áðan - að list er líf og lífið er list.

Vandinn við að kryfja hugtakið list er að það gleymist yfirleitt að tilgreina hvaðan hún kemur. Hvar uppsprettan liggur. Hvaðan sköpunargleðin kemur.

EMBLA [ 9 ]


Ég legg bílnum á iðnaðarsvæði, þar sem blokkir eru að rísa á ógnarhraða. Ég geng inn í eina af blokkunum sem lítur út fyrir að vera að mestu lagi tilbúin og hringi bjöllunni, þaðan fer ég upp í nýju íbúð viðmælandans. Viðmælandi minn að þessu sinni er Sebastian Valur, kokkur og í þessu tilfelli IKEA uppsetningarmaður. Hann liggur á hnjánum þegar ég labba inn og er í fullu fangi við að setja saman hillusamstæðu frá IKEA. Hvað var það sem kom þér í þennan iðnað eða á matreiðslubrautina? Ég byrjaði í bílaiðnaðnum, þangað til ég áttaði mig á að þetta væri ekki það sem mig langaði að gera. Síðan tók ég önn í íþróttafræði, en upplifði mig smá týndan. Þá fór ég að pæla hvað mér þótti gaman þegar ég var í grunnskóla þar sem ég rifjaði upp þau fög sem hann var í og mundu hversu gaman hann hafi haft í heimilsfræði. Svo þegar ég fór í Fsu og var í heimilisfræði þar, þá fann ég meiri spurningar vakna varðandi samsetningu á uppskriftum, afhverju er þetta gert svona og afhverju þetta hráfeni? O.s.frv. Ég hikaði ekki við að efast og spyrja heimilsfræðikennarann endalaust þangað til heimilsfræðikennarinn sagði einfaldlega við mig „afhverju verður þú ekki bara kokkur?!“ Og það gerði ég.

afhverju verður þú

ekki bara kokkur?! Ég hætti í Fsu, og sótti um starf í á stóru stöðunum, Hilton og Perlunni, og endaði á að fara í Perluna, þar sem gekk misvel að læra. „Mér gekk í rauninni alveg hræðilega, en þeir sögðu mér aldrei upp, þeir voru líklega að bíða þangað til ég myndi segja upp, þar sem það var svo mikið álag, en ég hélt áfram“ sagði hann. Það var ekki fyrr en einn daginn, þar sem ég komst á lagið með álagið og keyrsluna á veitingastaðnum. Það var að sumri til þegar ég var búin að vera vinna þarna í mánuð, þá allt í einu klikkaði eitthvað í hausnum á mér og ég náði að vinna í álaginu. Og þá varð þetta eiginlega bara meira gaman. „Það var ekki fyrr en seinna þar sem ég áttaði mig á því að það eru margir sem finnst gaman að elda og hafa áhuga á matargerð en svo kemur keyrslan og streitan, og þetta endar á því að vera ekki það starf sem einstaklingarnir gerðu sér í hugarlund. Það eru nefnilega ótrúlega margir nemar sem koma og fara.“ Oftar en ekki er maður að elda fyrir 100 manns á klukkustund, þannig þetta starf krefst ekki einungis áhuga og ástríðu, heldur kallar á skipulögð vinnubrögð, tækni og hæfni. Þar að auki, að geta unnið undir miklu álagi inn á milli. „Mér hefur alltaf fundist eftirréttir ótrúlega skemmtilegir“ Ég byrjaði upprunulega í bakaríi þegar ég var 15 ára ásamt unglingavinnunni. En ég missti svoldið áhugann á því vegna tímanna sem þeir þurfa að vakna, svo var kannski ekki viturlegast að vera vinna unglingavinnuna með því seinna um daginn. Það tók svoldið á andlega, þannig ég hríslaðist af þeirri braut og fór í íþóttafræðina og grunninn af bílaiðnaðaðinum, eins og ég nefndi áðan sem mér fannst alveg skemmtilegt svosem, en ekki nægilega skemmtilegt til að eyða restinni af lífi mínu að vinna við. Þannig ég hallaðist aftur að eldamennskunni og matargerðinni.


Hvenær byrjaðiru að vinna við þetta? „Ég byrjaði að vinna við þetta 2014, þannig ég er búinn að vinna við þetta í 7 ár, þó ég útskrifaðist ekki úr kokkinum fyrr en 2018“ Eftir útskrift tók ég hálfsárs pásu, til að vera hreinskilin þá hef ég verið að díla við imposter syndrome. Þó að umhverfið segir mér annað, þá held ég að partur af því að vera skapandi manneskja fær mann oft til að efast sjálfann sig og getu sína. Ég er búinn að vera vinna á Finnson bistro í næstum ár núna og eigandinn á Finnson treystir mér 100% með þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur. Og þar fæ ég meðal annars frelsi til að skapa og prufa mig áfram. Fórstu í eitthverskonar starfsnám? Já, heyrðu, ég fór út til Frakklands í starfsnám. Fór þar á Michelin veitingastað þá lærði ég allskonar nýjar tæknir og hvernig á að nálgast hlutina. Enda nýtti ég mér námið í tætlur og hikaði ekki við að spyrja afhverju og kafa dýpra í efnið. Það er líklega það sem er mikilvægast þegar kemur að því að kafa dýpra í pælingarnar á bakvið það sem maður gerir, að vera ekki hræddur við að forvitnast, grafa í hausinn á lærimeistaranum og spyrja! Mjólka upplýsingar úr þeim sem vita betur og læra Voru þá frönsku kokkarnir þínir mentorar eða hefuru eitthverntíma verið með mentor eða er eitthver sem þér finnst hafa kennt þér meira en annar? Yfirkokkurinn á Krisp á Selfossi líklegast, hann er maður sem lifir fyrir þetta. Hann ræktar hluti sjálfur, býr til sínar eigin sultur og er algjör séní. Hann dúxaði líka í kokkanáminu og er algjör pælari. Hann var eitthvernveginn með svör við öllu. Skipti ekki mála Hvaða spurningar mér datt í hug. Hann hvatti mig meira að segja áfram og nefndi það að

ég gæti meðal annars verið í kokkalandsliðinu. Ég lærði ekki beint uppskriftir frá honum, heldur grunnatriði hvað varðar matreiðslu, hvort sem það er að elda kjöt, karamelisera allann fjandann og fleira. Þó að ég endaði starfið ekki á góðum nótum, þá er ég samt þakklátur fyrir það sem hann kenndi mér. Hvað drífur þig áfram? Örugglega óendanlegir möguleikar og forvitni til að skoða þá, sérstaklega í íslenskri náttúru. Þá að sækja ferskar íslenskar afurðir, það er svo mikið sem landið okkar hefur upp á bjóða. Beint frá bónda, marglitaðar paprikur og allskonar ferskt íslensk hráefni sem gerir matinn að ævintýri. Mig dreymir um að nýta sumarið og farið í íslenska náttúru og matreiða nýjar uppskriftir með t.d. ferskum skelfisk, bláskeljum, birkigreinum og fl. Ég hef brennandi áhuga á þessu, en stundum tekur athyglisbresturinn yfir og þunglyndið þannig maður gleymir sér í hversdagslegri rútínu og gleymir að hlusta á sköpunargleðina. Hvað langar þér að elda fyrir mig í dag eftir IKEA samsetninguna? Sko, Það eru yfirleitt þrjár stöðvar í eldhúsi, kalda stöðin, heitin stöð og frontið. Mest allt af lífinu hef ég verið á köldu stöðinni. Þar sem er lítið eldað, heldur er séð um forrétti og eftirrétti. Enda á það vel við, þar sem upphaflega vildi ég náttúrulega fara í bakarann. Þannig ég var að pæla að deila með þér „my speciality”, Ítölsk ostakaka. Það er svona uppskrift sem allir ættu að prufa allavega einu sinni og hún klikkar aldrei. Yfirleitt nota ég Yuzu púrru í mína köku, en það er líklega ekki hráefni sem allir eiga heima hjá sér. Þannig til að hafa hana þægilegri og meira „home friendly“, þá tek ég púrruna út og bæti við frosnum berjum.

EMBLA [ 11 ]


MJÚK OSTAKAKA MEÐ ÍTÖLSKUM MARENZ & KIRSUBERJUM Ostakakan

Hvítsúkkulaði & Hafra crumble

5,6

stk

Matarlímsblöð

200

gr

Hafrar

500

gr

Rjómaostur (stofuhita)

100

gr

Púðursykur

60

gr

Sítrónusafi

100

gr

Smjör (stofuhita)

100

gr

Rjómi (stofuhita)

2

gr

Salt

500

gr

Rjómi

50

gr

Hvítt súkkulaði

1

gr

Vanilludropar

1/2

tsk

Sítrónuzest

92

gr

Eggjarauður

240

gr

Sykur

100

gr

Vatn

Aðferð Byrjið að setja matarlímsblöðin í vatn. Mixið svo saman rjóma ost, sítrónu safa, rjóma (100) og vanillu dropa, vinnið allt saman þangað til orðið smooth. Setið svo sykur og vatn saman í litlan sósu pott yfir háum hita og fáið að 118°c. Meðan sýrópið hitnar, byrjið að þeyta rauðurnar. Þegar rauðurnar eru þeyttar og sýrópið heitt þá helli sýrópið í jöfnu streymi í rauðurnar með vélina í gangi (medium), kreistið svo allt vatn matarlímsblöðin og setjið litla sósu pottin meðan hann er heitur og látið hann bráðna, hellið svo strax í rauðurnar og hrærið þangað til þær náa stofu hita. Foldið svo rjóma ost mixið í rauðurnar. Létt þeytið rjóman (500) og foldið svo rjóman við mixið. Geymið svo í gæli þangað til kakan sé orðin stíf svo í sprautupoka.

[ 12 ] EMBLA

Aðferð Setjið allt saman í hrærivélaskál fyrir utan súkkulaðið og hrærið saman með spaða, síðan setjið á smjörpappír. Setjið hvítasúkkulaðið á smjörpappír (fitu spreyjið gastro svo blaðið heldur föstum. Setjið svo allt í ofnin á 160°c og byrjið að hafa hvítsúkkulaðið í u.þ.b. 3 mín og beint inn á frystir, en crumblið á að vera í u.þ.b. 10-15 mín. Síðan meðan hafrarnir kólna það setjið hvítsúkkulaðið í matvinnsluvélina þangað til það er orðið af crumbli, síðan það sama við hafrana og mixið svo bæði saman.

Kirsuberjahúðaður Ítalskur marenz 300

gr

Sykur

120

gr

Vatn

120

gr

Eggjahvítur (stofuhita)

1/3

tsk

Sítrónusafi

Aðferð Byrjað að fitu hreinsa öll áhöld. Setjið svo eggjahvíturnar í hrærivélina skálina með safanum og hrærið á low, setjið svo sykurinn og vatnið saman í litlan sósan pott á háan hita og fáið sýrópið að 118°c. Þegar hvíturnar eru þeyttar


og sýrópið heitt er sýrópið hellt með jöfnum streymi yfir hvíturnar og þeytt þangað til þær nái stofu hita. Á meðan er sett smjör pappír á þurrkofn grindurnar. Þegar hvíturnar hafa náð stofu hita er notað kökuspaða til að dreifa því jafnt yfir smjörpappírinn ( 0,6 cm þykkt ). Myljið svo þurrkuðu kirsuberin jafn og þétt yfir marenzið og sett svo í þurrskáp á 50°c í 8 tíma.

&

VO I

LÀ

HEIMILIS OG MEÐFERÐARÚRRÆÐI TILHEYRA býður þér á jafnréttisráðstefnu sem verður haldin í Hörpu - Reykjavík þann næstkomandi 01.-02.05 2022. Með helstu fyrirlesurum verða m.a. Kristín Ómarsdóttir lýðheilsufræðingur og Svala Ragnheiðar - Jóhannesdóttir, sérfræðingur í Skaðaminnkun. Einnig verður boðið upp á ýmiskonar kræsingar og þétta dagskrá. Þið viljið ekki missa af þessu. Skráið ykkur á www.heimaerbest.is

Stuðningsaðilar:


[ 14 ] EMBLA


Við komum þínum hugmyndum á prent! Við státum okkur af einum fullkomnasta og fjölbreyttasta tækjakosti allra prentsmiðja á landinu. Vönduð og vel unnin prent– og handverk.

Skemmuvegur 4, Blá Gata, 200 Kópavogur | Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | litlaprent.is Opið mánudaga - fimmtudaga: 8:00–16:00 og föstudaga: 8:00–14:30


Þín kjör þín réttindi! Það skiptir máli að vera í réttu stéttarfélagi svo að þú fáir þín réttindi uppfyllt. Við hugsum um þín hagsmunamál!

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar á heimasíðu okkar www.grafia.is

Aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands

Stórhöfði 31 | 110 Reykjavík | Sími: 540-0100 | netfang: grafia@grafia.is | veffang: www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Anný Tinna Aubertsdóttir by Tækniskólinn - Issuu