Vor 2022 Grafísk miðlun 15. tbl.
Fyrir nánari upplýsingar hringdu í síma 590 6400 eða hafðu samband við idan@idan.is Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | www.idan.is
Leiðari Embla er einstaklingstímarit sem nemendur loka annar í grafískri miðlun gera. Tímaritin eru svo samansett í eitt stórt tímarit sem heitir Askur. Í þessu tímariti getið þið lesið viðtal við frá bæran grafískan miðlara sem hefur tekið að sér verkefni fyrir stórfyrirtæki eins og Disney, þið getið fræðst um sögu kaffimenningarinnar á Ítalíu, og þið rekist kannski á fleiri fróðleiks mola í leiðinni.
Efnisyfirlit
Þá er ekkert annað að gera en að demba sér í lesturinn. Njótið.
Um mig Viðtal við grafíska miðlarann og hreyfi hönnuðinn Axel Fannar Friðriksson Lykillin að velgengni Marvel Studios Kaffimenning á Ítalíu
Umbrot og hönnun Sóley Guðmundsdóttir
Hönnun forsíðu Sóley Guðmundsdóttir
Ljósmyndir Nemendur á fyrri önn í ljósmyndun Unsplash.com
Texti Sóley Guðmundsdóttir
Útgefandi Upplýsingatækniskólinn
Pappír Digi Finesse Silk 130g/m2 Digi Finesse Silk 170g/m2
4|
Um mig Ég heiti Sóley Guðmundsdóttir og er fædd árið 2003 í Reykjavík. Ég er alin upp að mestu leiti í Vesturbænum og er eins og sagt er „algjört borgarbarn“. Ég elska að fara á kaffihús til að læra eða bara slaka á og ég er stór aðdáandi Marvel kvikmyndanna. Ég spila einnig á víólu mér til skemmtunar og finnst gaman að gera hluti með höndunum. Það átti stóran þátt í því að ég endaði í Tækni skólanum að læra grafíska miðlun. Ég ákvað eftir 10. bekk að meira bóklegt nám væri ekki fyrir mig. Tilhugsunin um að halda áfram í hefðbundnu skólabókarnámi í þrjú ár í viðbót höfðaði bara ekkert til mín. Ég fór því að skoða nám í Tækniskólanum og leist vel á grafíska miðlun. Ég er mjög ánægð með brautarvalið hjá mér og ég hef lært marga gagnlega hluti. Ég kann til dæmis vel að nota hönnunarforrit í tölvu, ég kann megin reglurnar á bak við kennimerkjagerð og ég kann að setja upp aug lýsingaherferðir fyrir búðir og fyrirtæki. Allt í allt hef ég lært mikið af gagnlegum hlutum, sem getur verið góður grunnur fyrir hvaða nám eða starf, sem ég vel mér næst. Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, en ég veit að eins og er langar mig að skoða heiminn betur, áður en ég sest niður fyrir framan tölvuskjá að hanna eða brjóta um. En hver veit. Það sem ég hef lært á án efa eftir að gagnast mér í framtíðinni.
|5
Viðtal við grafíska miðlarann og hreyfihönnuðinn Axel Fannar Friðriksson Ég hafði samband við fyrrum nemanda úr Upplýsingatækniskólanum. Hann heitir Axel Fannar Friðriksson og er eigandi og framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu Studio Fin. Hann er hreyfihönnuður og sveinn í grafískri miðlun. Það sem náði athygli minni var að hann hefur tekið að sér nokkur verkefni frá Disney og þar af leiðandi Marvel. Ég sendi lista á hann með nokkrum spurningum varðandi þessa vinnu og Axel var meira en til í að hjálpa mér. Hvenær komstu að því að þú hafðir áhuga á grafískri miðlun og hönnun? Þegar ég var í grunnskóla þá eyddi ég miklum tíma í tölvunni, fiktaði mikið í Photoshop og lék mér með allskonar myndir og grafík, allt mjög hrátt og barnalegt auðvitað. Þetta kveikti alltaf mikið í mér en þetta var bara áhugamál og fyrir mér var þetta ekkert starf. Að vera listamaður eða grafískur hönnuður var bara fyrir eitthvað annað fólk, sem var rosalega gott í að teikna. Í 10. bekk fór skólinn í ferð á Verkiðn, Íslands mótið í verk- og iðngreinum, og eftir rölt um alla sýninguna sá ég lítinn bás með nokkrum ungum einstaklingum, drekkandi kaffi með heyrnatól að búa til pasta matseðil. Þá vissi ég að ég gæti drifið mig strax að gera það sem ég vildi gera og það væri auðvelt fyrir mig að byrja.
6|
Hvernig byrjaði ferillinn þinn? Eftir að ég fékk fínan nemasamning hjá Mogg anum þá hætti ég um leið og ég var kominn með sveininn. Ég prufaði að vinna á lítilli hönnunar stofu, sem heitir Jökulá og er töluvert stærri í dag og gerir magnaða viðmótshönnun til dæmis. Eftir það vann ég á kaffihúsi og hafði þá fínan tíma og rými til að taka að mér eins mörg verkefni og bauðst. Þar á meðal nokkur lógó, pósters, tímarit og allskonar litlir illa borgaðir hlutir, sem eru samt svo mikilvægir til að læra á iðnaðinn og sjálfan sig. Það sem hjálpaði mér mest þá og enn í dag, er að halda við áhugamálið sitt og reyna að finna sér afsökun til að búa til nýja hluti, sem enginn borgar þér fyrir. Þá er ástríðan og stoltið sterkast. Ég gerði það með allskonar „fan art“ og það borgaði sig meiriháttar því þannig fékk ég þessa tengingu.
Fórstu í eitthvað frekara nám efti Tækniskólann eða hélstu beint út á vinnumarkaðinn?
Hvernig byrjaðir þú að vinna fyrir Disney og hver voru viðbrögðin þegar þú fékkst að búa til illustrations fyrir þau?
Eftir að ég kláraði yndislegt nám við Upplýsinga tækniskólann og fékk lukkulega flottan starfs samning hjá Árvak/Morgunblaðinu, þá fékk ég vinnu hjá Jökulá í nokkra mánuði og hélt síðan út fyrir landsteinana. Það kom oft hugsunin að skoða frekara nám en ég fann ekki fyrir þörfinni á því, hvorki í mínum hæfileikum né að mig vantaði meira upp á til að fá atvinnutækifæri. Ég myndi mæla með því fyrir alla að skoða frekara nám. Tækniskólinn er rosalega flottur grunnur og gefur manni tólin til að skilja hvernig þessi heimur virkar, en það er ótal meira hug lægt, sem þú gætir grætt á að heyra í listahá skóla eða erlendis. Mér finnst rosalega gott að læra á hlaupum og þurfa að fatta hlutina á gólfinu, vinna með fólkinu og komast þannig inn í málin.
Til þess að forðast einhvern misskilning, þá vinn ég ekki í beinum samskiptum við Disney heldur starfa ég hjá/með stofu í London, sem vinnur fyrir stóran skala af kvikmyndastúdíóum, en þá helst með Disney. Þegar ég starfaði hjá Jökulá var ég alltaf að stefna erlendis, en ég vissi bara ekki hvað ég ætlaði að gera þar. London var draumurinn og ég hafði augun opin hvert ég gæti farið að vinna eða í skóla. Vefsíðan PosterSpy var mikill innblástur fyrir mig, fínn vettvangur fyrir kvikmyndaáhugamenn plús hönnuði, sem gerðu sínar útgáfur af vegg spjöldum fyrir kvikmyndir og fleira, en einn daginn var lítil stofa í London sem heitir GlassEye, sem auglýsti eftir hönnuðum. Ég sótti um og lukkulega var einn eigandinn akkúrat í fríi á Íslandi um það leyti. Við hittumst og náðum vel saman, svo eftir heimsókn til London og tvo mánuði af prufu
Bíó lottó! Viltu vinna ótakmarkaðar bíóferðir í heilt ár? Taktu þátt í lottóinu okkar!
Sóleyjargata 17 101 Reykjavík biosol@biosol.is Sími 171 7171 www.biosol.is
Skráðu þig hér
Þátttökugjald 1.000 kr.
verkefnum flutti ég út og var fjórði starfsmaðurinn þeirra en töluvert yngstur þá (19 ára). Þetta var rétt áður en Doctor Strange kom út árið 2016 og þau voru að fá sitt fyrsta Marvel verkefni. Ég var því sterk viðbót af því ég hafði brennandi áhuga á myndunum og var lauslega ráðinn sem „Marvel Expert“ innanhúss. Núna hef ég unnið með þeim í tæp sex ár og þetta er eins og fjölskylda. Samböndin eru sterk, verkefnin eru góð og allir dagar eru betri sama þó það sé brjálað að gera. Ég fékk alltaf góð viðbrögð frá þeim og þeim þótti ég efnilegur, en mjög óreyndur þegar ég byrjaði fyrst. Það hentaði stofunni vel þar sem ég gat þá mótast að þeirra vinnuháttum, stíl og flæði en í dag hef ég líka mótað stofuna með því sem ég hef lært með tímanum. Að hafa hönnunar augað hjálpaði, en að hafa opinn hug og góðan vinnuanda hjálpaði mér að haldast inni.
Hvernig fara samskiptin fram við svona stórt fyrirtæki? Samskiptin geta verið flókin og þetta verður smá innanhúss pólitík um leið og þetta fer ofar í stiganum. Það hefur komið fyrir að við vinnum eitthvað flott myndband, sem fer á samfélags miðla, sem breska Disney teymið skoðar síðan og líst vel á og sendir því til Bandaríkjanna. Teymið þar skoðar þetta yfir og allir eru sáttir en vel þekkt ur leikstjóri kíkti á þetta og leist ekki nógu vel á hvernig karakterarnir voru birtir og því var þetta drepið án frekari breytinga. Þetta var því súrsætt að segja að einn af mínum uppáhalds leikstjórum sá eitthvað sem ég gerði, en honum leist ekkert á það.
Ertu á samning hjá þeim eða tekurðu bara að þér einstaka verkefni? Ef ég væri að starfa fyrir Disney beint væri þetta flóknari samningur og almennt gera þau bara viðskipti við stofur eða vinna hlutina innanhúss. GlassEye vinnur aðallega verkefni fyrir evr ópskan markað, en allt sem kemur frá Banda ríkjunum er flóknara og flottara, enda fær það oft töluvert betri framleiðslugæði og oft gert í samráði við leikstjóra til dæmis. Núna starfa ég bara undir hattinum Studio Fin, sem er litla nýja stofan mín. Við vinnum beint með fólkinu í London en erum líka að taka að okkur markaðsetningu og framleiðslu á efni fyrir íslenskan kvikmyndamarkað. Þarftu að skrifa undir non-disclosure agreement? Strax og ég fékk eitthvað almennilegt frá þeim, aðallega Marvel til dæmis, þá skrifaði ég undir þykkan samning sem hefur flækt allt heldur mikið. Það gerir portfólíó flóknara þar sem ég get ekki birt hluti sem þau birta ekki. Eins get ég ekki rætt hvaða myndir ég er að vinna í eins og er eða sýnt neitt „work in progress“.
8|
Þessi mynd var reyndar önnur reynsla en deilingarnar voru fleiri en við höfðum séð áður og þar á meðal Chris Pratt sem gaf þessu mikla athygli. Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína? Það er svo mikilvægt að finna gleðina í hverjum degi. Einhver snjall sagði „Do what you love and you’ll never work a day in your life“ og ég get tekið undir það. Suma daga geri ég ekkert nema að skipta um letur, taka til í skjölum annara og skrifa tölvupósta. Aðra daga fæ ég að hanna og teikna og hreyfa eitthvað alveg magnað en ég myndi aldrei höndla það á hverjum degi. Vinnan mín er skemmtileg af því að fólkið sem
ég vinn með er skemmtilegt og mér þykir vænt um þau. Bretarnir, sem ég spjalla við á hverjum degi, eru eins og systkini og á næstu misserum kemur Eyvindur Einar (grafískur miðlari) inn í stúdíóið og það er alltaf gaman að vinna með honum. Hvað finnst þér erfiðast við að vinna fyrir Marvel? Það er mjög erfitt að drepa börnin sín, ég afsaka hversu gróflega þetta er orðað, en það er alveg satt. Í byrjun hvers verkefnis eða þegar ný herferð hefst þá fer hugurinn af stað og allskonar fallegar og stórar hugmyndir fljúga af stað. Þegar allt fer að fara niður á blað, en fiðrildin manns kremjast, þá stundum líta hlutir ekki nógu vel út eða henta ekki nógu vel. Þá er vont og mjög erfitt að þurfa að kveðja hugmynd, sem hefði annars getað verið flott og áhugaverð, en væri of flókin í framkvæmd til dæmis. Samþykki frá Bandaríkjunum geta verið ansi flókin.
á að vera tilbúið á morgun en manni vantar allt efni. Þá er gott að hafa gott teymi og leyfa sér ekki að pirrast á þessu. Hversu mikið frelsi hefurðu við hönnunina? Það er svakalega misjafnt. Almennt er mikið frelsi í byrjun á öllum verkefnum. Við finnum góða reference punkta og innblástur, mótum saman hvaða útlit við ætlum að skoða en líka hvaða hug myndafræði er á bak við það. Hönnun án hugsunar er bara krot. Með tímanum þá hverfa oft allskonar smáatriði og flækjustig en ég hef líka séð margar flottar pælingar fá að lifa og fara út, maður má ekki gefast upp. Eins er líka mikilvægt að reyna að finna frelsið hverju sinni, kannski er letrið og litir allt niðurneglt en það er samt svo margt sem er hægt að móta með takmörkunum. Oft hentar það mér betur að hafa smá sandkassa með settum línum og fá að móta innan þess. Hvernig er launum háttað?
Hvað finnst þér skemmtilegast við að vinna fyrir Marvel? Skemmtilegast er að sjá hlutina sína fara í loftið (þá aðallega á samfélagsmiðlum) og sjá viðbrögð fólks, kannski ná að deila þessu með vinum og fjölskyldu. Eftir að ég flutti aftur til Íslands þurfti ég líka að kveðja alla viðburði, sem ég hafði áður aðgang að. Rauðir dreglar, einkasýningar hjá Universal eða „fan-events“ þar sem ég náði að tala við Benedict Cumberbatch og Tom Holland til dæmis. Allt þetta gerir erfiðið aðeins léttara. Hverskonar vandamál koma upp sem þú þarft að leysa? Ef þú ert ekki hönnuður, þá efast ég um að þú nennir að lesa þetta. Mínir stærstu hausverkir eru 20gb skjöl sem ég þarf að niðurhala til þess að nota 100mb af og helst minnka skjalið allt þannig að næsta manneskja eigi auðveldara með þetta. Líka skipti ég mikið um letur í heilu möppunum af skjölum eða vista út ótal útgáfur af sömu mynd inni af því að kúnninn er ekki viss hvernig orðalag við viljum hafa. Þetta eru allskonar þurr og ómerkileg vanda mál, þó mesti hausverkurinn er líklega þegar allt
Það hefur breyst með tímanum en fyrst þá voru verktakalaun, sem ég rukkaði mánaðarlega. Með reikning sendi ég líka tímaskjal svo þau sáu hvaða verkefni fengu hversu marga tíma. Það er al mennt frekar svipað í dag nema núna rukka ég hærri taxta, engan VSK (erlend viðskipti) og fyrir verktaka sem ég er með hjá mér. Ef þú gætir farið aftur í tímann, myndirðu breyta einhverju í sambandi við starfsferil þinn? Það eru alltaf einhver verkefni sem maður sér eftir, hvort sem það var að rukka of lítið eða setja léleg mörk við kúnnann. Eitt verkefni gefur mér ennþá gæsahúð, svakaleg myndvinnsla, enginn treysti mér og ég var að fá símtöl um miðnætti að þetta væri ekki nógu svona eða nógu hinsegin. Mikið álag og engin virðing, svo nánast enginn peningur fyrir þetta. Þetta er bara „paying your dues“ eins og það kallast og allt sem ég gerði þar var mikilvæg lexía í bankann. Ég sé ekki eftir neinu og reyni að gera betur á hverjum degi og vonandi hjálpa nýjum ferskum hönnuðum að verða ennþá betri en ég gæti orðið.
|9
Marvel verkefni frá Axel
10|
Fimm vinsælustu Marvel myndirnar í dag samkvæmt Box Office
Kvikmynd
Ár
Innkoma
Sæti á heimslista
1
Avengers: Endgame
2019
362.007.414.975 kr.
2
2
Avengers: Infinity War
2018
265.037.268.570 kr.
5
3
Spider-Man: No Way Home
2021
244.364.603.685 kr.
6
4
The Avengers
2012
196.519.212.517 kr.
9
5
Avengers: Age of Ultron
2015
181.509.526.380 kr.
12
Lykillinn að velgengni Marvel Studios Marvel Studios hafa algjörlega slegið öll met þegar kemur að velgengni og lengd kvikmynd aseríu. Hin svokallaða Marvel Cinematic Uni vers (MCU) myndasería er ein sú lengsta, sem gerð hefur verið. Hún samanstendur í augna blikinu af 28 kvikmyndum og 6 þáttaröðum, og fullt af fleiri verkefnum í vinnslu. Eins og sjá má á töflunni hér fyrir ofan á Marvel fjórar myndir á topp tíu efstu myndum hjá Box Office Mojo. Ár eftir ár gefur kvikmyndafyrirtækið út nýtt efni og sýnir engin merki um að hægja á sér í bráð. En hver er lykillinn að velgengni þeirra? Marvel Studios sker sig frá öðrum kvikmynda framleiðendum, með þeim hætti, að þau eru óhrædd við að prófa nýja hluti, taka áhættu þegar kemur að ráðningu leikara og leikstjóra, fara óhefðbundnar leiðir með karakter þróun persónanna og sveigja burt frá hinni hefð bundnu uppbyggingu ofurhetjumynda. Ég gæti talið svona upp endalaust. Taka má sem dæmi fyrstu MCU myndina: Iron Man. Myndin kom út árið 2008 og náði miklum vinsældum. Aðalleikari myndarinnar heitir Robert Downey Jr. en hann var vafa samt val á þessum tíma. Eins og kom svo í ljós, var hann fullkominn í hlutverkið. Aðrir hefðu ekki tekið þessa áhættu en hver veit… án RDJ hefði myndin kannski ekki skilað eins miklum árangri og þá hefði MCU heimurinn jafnvel ekki orðið til. Marvel Studios gerir hverja mynd áhuga verða af því þau halda sig ekki við eina ákveðna formúlu. Hver mynd hefur sitt eigið
yfirbragð. Sinn eigin tón. Þó að síðasta mynd hafi gengið vel þýðir það ekki að næsta mynd verði alveg eins í uppbyggingu af því það er örugga leiðin. Nei, kvikmyndafyrirtækið passar uppá að hver mynd og þáttasería sé einstök. En þrátt fyrir að prufa sífellt eitthvað nýtt, er passað upp á að halda samræmi á milli kvikmyndanna. Það er alltaf einhver, sem vann að síðustu mynd, sem kemur að þeirri næstu. Þannig er haldið í meginreglurnar á meðan nýliðarnir koma með óhefðbundnar og skapandi hugmyndir. Það er jafnvægi á milli þess gamla og nýja. Mikil vandvirkni fer í hverja einustu mynd og þáttaröð. Hvort sem það er ráðning leikar anna, nákvæmni handritsins, tökurnar, bún ingarnir, stunt-vinnan eða annað. Það er lagt 100% í alla þessa hluti, sem skilar sér í grípandi og áhugaverðum söguþræði fyrir áhorfendur. Stúdíóið gengur meira að segja skrefinu lengra. Í lok nánast hverrar einustu myndar eru ein eða tvær post/mid-credit senur, sem byggja upp forvitni hjá áhorfandanum um það sem er framundan, og tryggir þannig að hann kaupi sér miða á næstu mynd. Þegar allt kemur til alls, hef ég komist að því, að lykillinn að farsælum kvikmyndaferli Marvel Studios er sífelld eftirvænting. Fyrirtækið hefur sýnt fram á að aldrei skuli búast við því sama frá þeim. Með því að byggja upp þessa spennu og forvitni, auk vandvirkninnar sem fer í hvert einasta verkefni, hefur Marvel Studios tryggt sér víðan og sterkan aðdáendahóp og góðan árangur í kvikmyndabransanum.
|11
Kaffimenning á Ítalíu Ég byrjaði að vinna á kaffihúsi fyrir um það bil þremur árum – eða árið 2019 – og frá fyrsta degi, þegar mér var kennt að búa til einfalda kaffidrykki hef ég haft mikinn áhuga á kaffigerð og mismunandi kaffidrykkjum. Ég er alls enginn sérfræðingur þegar kemur að kaffi og finn yfirleitt ekki mikinn mun á mismunandi tegundum nema kaffið sé afskaplega vont eða ódrykkjarhæft. Ég kann þó sitt hvað í faginu og finnst æðislega skemmtilegt að búa til drykki eins og cappuccino, latte, espresso, íslatte og fleira. Þegar kom að því að velja efni til að skrifa um í Embluna, fannst mér tilvalið að tala aðeins um kaffi og kaffimenningu á Ítalíu, kaffilandinu sjálfu, þar sem ég var nú einu sinni á leiðinni þangað í skólaferð. Uppruni kaffimenningar Ítalíu Til að byrja með ætla ég að tala aðeins um sögu kaffis á Ítalíu. Hvenær það kom til landsins og hvernig það þróaðist út í að vera eitt af aðal kenni merkjum Ítalíu. Ítalir kynntust fyrst kaffi árið 1670 þegar ítalski læknirinn og grasafræðingurinn Paduan Prospero Alpino kom heim frá ferðum sínum í austri með nokkra sekki af kaffibaunum. Hann var uppruna lega frá bæ rétt hjá Feneyjum (Venice), kallaður Marostica. Drykkurinn náði miklum vinsældum í Feneyj um en var í fyrstu einungis seldur í apótekum. Það voru aðeins efri stéttirnar sem höfðu efni á kaffinu þar sem það var fremur dýrt til að byrja með. En með hratt rísandi hylli yfir drykknum varð hann aðgengilegri fyrir almúgann og um árið 1763 voru komin 218 kaffihús í Feneyjum. Það var þó ekki fyrr en árið 1901, sem hin fræga kaffiblanda Ítala var uppgötvuð. Espresso. Það var verkfræðingur frá Mílanó að nafni Luigi Bezzera sem fékk þá hugmynd að þrýsta vatni í gegnum þétta síu fulla af möluðum kaffibaunum til þess að fá sterkan kaffidrykk. Eftir þessa uppgötvun fór kaffimenning Ítalíu virkilega af stað og eru þeir í dag þekktir fyrir einstaklega góða espresso drykki.
12|
Bara hvað sem þú gerir. Ekki kalla drykkinn expresso. Mokkakannan kemur einnig frá Ítalíu, en hún gerir fólki kleift að útbúa sinn eigin espresso drykk heima í eldhúsi, án þess að eiga allar fínu græjurnar. Þegar Ítalía fór að selja þessa vöru á heimsvísu, varð þjóðin brátt talin vera hin eina sanna kaffiþjóð. Mín vitneskja um kaffi á Ítalíu Ég hafði heyrt sitthvað um kaffimenningu á Ítalíu áður en ég kom þangað, en eitt af því var að eftir hádegi á helst ekki að fá sér öðruvísi kaffidrykk en espresso. Cappuccino er einungis drukkinn á morgnana enda inniheldur hann mjólk og er talin vera meiri morgundrykkur en síðdegisdrykkur. Annað, sem ég komst að, var að latte er ekki til í landinu. Latte þýðir mjólk á ítölsku og því er best að vara sig ef beðið er um latte. Segja þarf caffè latte til að fá ekki mjólkurglas. Þó væri best að biðja um cappuccino með mikið af mjólk. Einnig fannst mér merkilegt að Ítalir kalla espresso einfaldlega caffè. Ef þú vilt fá kaffi blandað með vatni þarftu að biðja um americano. Saga americano Americano var ein af fyrstu kaffiblöndunum, sem ég lærði að gera, enda er þetta eflaust einn einfaldasti kaffidrykkur sem hægt er að gera, en hann samanstendur einfaldlega af espresso skoti og heitu vatni. Ég fór eftir smá tíma að velta því fyrir mér hvaðan nafnið „americano“ kom. Það þarf lítið til að gera sér grein fyrir því að nafnið er dregið af Ameríku og íbúum þeirrar heimsálfu. Mín fyrsta ályktun var að drykkurinn hefði orðið til í seinni heimsstyrjöldinni þegar amerískir hermenn dvöldust á Ítalíu og gátu ekki drukkið sterkan einkennisdrykk heimamanna. Espresso drykkurinn var því þynntur út með vatni. Ég leitaði þetta uppi á netinu og viti menn, ágiskun mín var rétt. Americano er ítalska orðið yfir amerískan mann og þegar hermennirnir vildu fá vatns blandaðan kaffidrykk fóru Ítalirnir að kalla kaffið americano.
Fyrir byrjendur
Algengir kaffidrykkir
Viltu læra listina á bak við – Hið fullkomna espresso – Silkimjúka áferð mjólkurinnar – Aðdáunarverðu munstrin
Hefur þú áhuga? Nánari upplýsingar er að finna hér
14.-15. maí Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Leiðbeinandi námskeiðsins er Sóley Guðmundsdóttir
Mín upplifun af ítalskri kaffimenningu Ég kíkti á nokkur kaffihús á ferð minni um Ítalíu og á fyrsta kaffihúsinu, sem ég fór á, var af skaplega vinalegur ítalskur maður að afgreiða mig, en hann talaði heldur litla ensku. Ég tók ítölskunámskeið mér til skemmtunar áður en ég fór út en ég verð að viðurkenna að ég guggnaði á því að panta á ítölsku eins og ætlunin var og skildi ekki helminginn af því sem kaffibarþjónninn sagði við mig. Ég pantaði mér kaffi og croissant, sem hann lagði fyrir framan mig á barborð, þar sem aðrir Ítalir stóðu að gæða sér á morgunmat. Ég vissi að margir Ítalir kjósa að borða morgunmatinn sinn svona standandi og klára hann hratt áður en þeir halda leiðar sinnar, en það var ekki ætlunin hjá mér. Ég ætlaði að setjast niður fyrir utan og njóta góða veðursins með kaffibollann minn. Ég leit á afgreiðslumanninn örlítið ráðvillt, þar sem ég átti eftir að borga, og ég vildi ekki labba út með matinn áður en ég hafði gert það eins og venjan er á Íslandi. Eftir stutta stund spurði ég „Should I pay?“ en hann benti einfaldlega á matinn fyrir framan mig og sagði „pronto, pronto“ sem þýðir tilbúið, tilbúið. Hinir gestir kaffihússins hjálpuðu mér svo að spyrja hann hvort ég mætti setjast út með kaffið, sem ég gerði á endanum, alveg gáttuð á því að það ætti að borga eftir á. Eftir þetta fór ég á fleiri kaffihús og skoðaði kaffiseðlana. Drykkirnir, sem voru á flestum stöð um, voru espresso, espresso macchiato, capp uccino og stundum affogato, en það er espresso borið fram með ís og rjóma. Ekkert var um sætu síróps drykkina, sem þekktir eru á mörgum öðrum stöðum í heiminum, en þó kom nánast alltaf sykur með kaffinu. Eftir ferð mína um Ítalíu hef ég komist að því að Ítalir kjósa að fá sér einfalda en sterka kaffidrykki frekar en stóru mjólkur og sírópsdrykkina.
14|
Mokkakannan Mokkakannan – the Moka Pot – var fundin upp árið 1933 af Ítalanum Luigi di Ponti. Nafn könnunar er innblásið af hafnarbænum Mokha í Yemen þar sem hann er þekktur fyrir útflutning á kaffibaunum. Verkfræðingurinn Alfonso Bialetti setti mokkakönnuna í fram leiðslu og varð varan brátt vinsæl meðal fólks. Menningarlega séð er mokkakannan mikil vægur punktur í sögu espresso kaffisins. Espresso var ekki lengur einungis drykkur, sem fékkst utan heimilisins, heldur var hann orðin venjulegur drykkur í nánast hverju húsi á Ítalíu. Þó þarf að hafa í huga að espresso drykkir gerðir í stóru fagmannsvélunum eru mikið sterkari en þeir, sem eru heimalagaðir með mokkakönnunni. Sagt er að hönnuður mokkakönnunar hafi fengið hugmyndina frá gömlu þvottavélunum. Þær notuðu hita til að sjóða sápuvatn og þrýsta því í gegnum pípu sem lá beint að þvotti. Mokka k annan virkar á svipaðan hátt. Kannan er lögð á hellu, sem leiðir til þess að vatnið sýður og þrýstist upp á við í gegnum malað kaffi. Það heldur svo áfram í gegnum rör, sem leiðir kaffiblönduna upp í annað hólf. Blandan er þá tilbúin til drykkju.
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
Bæklingar, dagatöl, bækur og fleira. Hafðu samband við okkur og við græjum hvað sem þig vantar, allt frá forvinnslu að frágangi.
Opnunartímar: mánudaga til fimmtudaga 8:00-16:00 föstudaga 8:00-14:30 Skemmuvegi 4, Blá Gata | 200 Kópavogi Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | litlaprent.is
Vesen á vinnustaðnum? GRAFÍA býður félagsmönnum sínum upp á viðtalstíma með lögfræðingi þeim að kostnaðarlausu!
Skráðu þig núna
Stórhöfða 31, 3.hæð 110 Reykjavík Sími 552 8755 grafia@grafia.is grafia.is
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
GRAFÍA