EMBLA GRAFÍSK MIÐLUN | HAUST 2020 | 7. TBL. 9. ÁRG.
1
Endurmenntun í fjarnámi Hagnýtt nám fyrir þig! Endurmenntun ætti að hefjast strax að loknu námi. Aukin menntun gefur þér forskot og fjölgar tækifærum á atvinnumarkaðinum. Iðan - Fræðslusetur | Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | idan@idan.is | www.idan.is
2
Loksins, loksins! Þá er komið að því að stíga síðustu skrefin í átt að útskrift. Námið hefur verið krefjandi, fjölbreytt, fræðandi og síðast en ekki síst, skemmtilegt og er það með blendnum tilfinningum sem ég tölta síðustu metrana. Ég hef lært svo ótrúlega margt og þrátt fyrir óvænta heimsókn Coronaveirunnar, sem mætti með hamagangi, setti allt á hliðina og breytti náminu í fjarnám, þá komst ég nokkuð heil í gegnum þetta og stend nú frekar stolt með árangurinn. Þetta hefði þó aldrei gengið nema með aðstoð yndislegra kennaranna sem stóðu við bakið á mér eins og klettur og eiga þeir allir kraftmikið lófatak skilið, þið eruð hetjur! Með síðari verkefnum annarinnar var að gera tímarit og ber það nafnið Embla. Þar sem ég hef mikinn áhuga á listum langaði mig að fjalla um mismunandi póla af skapandi störfum og er það gegnumgangandi þema í blaðinu mínu. Ég hef líka mikinn áhuga á fólki og þar sem ég þekki marga skapandi einstaklinga fannst mér upplagt að fjalla um það merkisfólk og þau skemmtilegu verkefni sem þau hafa verið að vinna að. Ég vona að þú hafir jafn gaman af því að fletta í gegnum Embluna eins og ég hafið við að setja hana saman.
Takk fyrir mig!
Efnisyfirlit 4
Um mig
6 Hljóðkirkjan 8
Draugar fortíðar
10
Halloween, Ninna Karla
12
Fjölnir Gíslason
14
Wes Anderson
Umbrot og Hönnun María Björt Ármannsdóttir
Hönnun forsíðu María Björt Ármannsdóttir
Útgeftandi Upplýsingatækniskólinn
Prentun Upplýsingatækniskólinn
Letur Univers 45 light 9/13 Univers 55 roman 9/13 Unvers 65 bold 9/13
Pappír UPM digi 130 g/m2 UPM digi 250 g/m2
3
4
María Björt Ármannsdóttir Ég heiti María Björt Ármannsdóttir og er fædd og að mestu uppalin í Eyjafirði. Ég er sveitastelpa og sem barn sótti ég mikið í sköpun. Ef ég var ekki að syngja nýja frumsamda lagið mitt, þá var ég að safna hlutum í plastpoka til þess að föndra úr eða monta mig á einhverju snilldar listaverki sem ég hafði búið til. Þessi ást á sköpun hefur fylgt mér inn í fullorðinsárin og sæki ég ennþá mikið í að skapa, það er því ekkert skrítið að ég hafi rambað inn á grafíska miðlun þar sem það er mjög skapandi nám. Ég hef komið inn á margar greinar sköpunar og finnst ekkert skemmtilegra en að bæta í reynslubankann og læra eitthvað nýtt. Ég er söngkona í 2 hljómsveitum, hef hannað leikmyndir og búninga fyrir leiksýningar, ég smíða silfurskartgripi og tek ljósmyndir, ég hef líka mjög gaman af því að sauma föt og hef gert mikið af því í gegnum árin, þá mest á sjálfa mig. Ég hef unnið mikið með áhugaleikfélögum höfuðborgarsvæðisins bæði sem leikkona en einnig sem höfundur, leikstjóri og útlitshönnuður. Þetta er fullkomin vettvangur til þess að fá útrás fyrir sköpunargleðina og kemur sífellt á óvart.
Gangandi inn í námið vissi ég ekki alveg við hverju ég átti að búast. Ég kannaðist við einhverjar greinar en vefhönnun var það sem ég kveið hvað mest, ég er ekki mikið tæknigúrú og trúði því ekki að ég mynd geta skilið neitt af því sem þurfti til þess að kóða vefsíður. Það kom mér því mjög skemmtilega á óvart hvað mér þótti þetta gaman og var þetta með skemmtilegri áföngum námsins. Námið í grafískri miðlun nærir listaspíruna og opnar nýjan heim sköpunar, þetta er fullkomið fyrir alla sem hafa einhvern áhuga á hönnun og mæli ég eindregið með þessu. Draumurinn er auðvitað sá að geta unnið við það sem ég elska, hver vill það ekki? Ég vona að ég fái tækifæri til þess í framtíðinni. Eftir nám í grafískri miðlun opnast nýjar dyr sem bjóða upp á endalausa möguleika, hvort sem það er áframhaldandi nám eða atvinna. Ég er svo stolt af sjálfri mér fyrir að hafa tekið skrefið og farið í þetta nám og hlakka til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.
5
Hljóðkirkjan er hlaðvarpsamsteypa sem tengir saman og heldur utan um þau hlaðvörp sem hún vinnur og aðrir vinna í samstarfi við hana. Þannig styðja hlaðvörpin hvort við annað og gera hlustendur eins þáttar meðvitaða um hina. Hljóðkirkjan er stofnuð af bræðrunum Baldri og Snæbirni „Bibba“ Ragnarsonum og fór formlega af stað í byrjun maí 2020. Þá bættust tvö ný hlaðvörp við þau tvö sem fyrir voru, síðan hafa tvö í viðbót bæst við þannig að nú eru sex hlaðvörp undir hatti Hljóðkirkjunnar. Bræðurnir höfðu báðir verið með hugmyndir um einhvers konar hlaðvarpssamsteypu, þó í sitt hvoru lagi en eins og með svo margt ákváðu þeir að fara í þetta í sameiningu, það lá beint við, Baldur með upptökumál og tæknina og Bibbi með texta og ímyndarmál. Hlaðvörpin sem Hljóðkirkjan framleiðir eru: Á mánudögum er Dómsdagur, elsta hlaðvarpið undir hatti Hljóðkirkjunnar. Þar spjalla Baldur Ragnarsson, Haukur Viðar Alfreðsson og Birna Pétursdóttir um og gefa stjörnur, ýmsu sem venjulega þykir ekki ástæða til að gefa stjörnur. Á þriðjudögum er það Kokkaflakk í eyrun þar sem Ólafur Örn Ólafsson framreiðslumeistari spjallar við fólk um mat og matarmenningu.
6
Á miðvikudögum eru Draugar fortíðar. Baldur og Flosi Þorgeirsson, sagnfræðingur með meiru, draga fram einhvern atburð úr fortíðinni, Flosi sviðsetur atburðinn og svo spjalla þeir um eftirköst hans og fara þá gjarnan um víðan völl. Á fimmtudögum er Snæbjörn talar við fólk sem er akkúrat það. Bibbi býður áhugaverðu fólki heim í stofu og rekur úr því garnirnar. Á föstudögum eru svo tvö hljóðvörp. Annars vegar Besta platan þar sem Bibbi og Dr. Arnar Eggert Thoroddsen ræða um bestu plötu tónlistarmanna, að mati Bibba, með Baldur á hliðarlínunni til að halda þeim við efnið. Hins vegar er það hinn goðsagnakenndi spurningarþáttur Nei hættu nú alveg, þar sem Vilhelm Anton Jónsson spyr spurninga og liðstjórarnir Anna Svava Knútsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson reyna ásamt gestum að svara eftir bestu getu. Stefnan Hljóðkirkjunnar er að bæta við fleiri hlaðvörpum þegar fram í sækir en þó gæta þess að spenna bogann ekki of hátt svona fyrst í stað. Stefnan er á stærri og fjölbreyttari dagskrá og þá gjarnan með fleiri konum við stjórnvölin.
breyttvidhorf.is
Ljósm.: Baldur Ragnarsson
DRAUGAR FORTÍÐAR Eitt vinsælasta hlaðvarp landsins í dag er Draugar fortíðar sem er eitt af sex hlaðvörpum sem Hljóðkirkjan heldur úti. Umsjónarmenn eru þeir Flosi Þorgeirsson og Baldur Ragnarsson og voru þeir meira en til í að mæta í smá spjall. Segið aðeins frá ykkur sjálfum
B: Ég heiti Baldur og er 36 ára, fæddist á Húsavík en bjó á Laugum framan af en flutti svo til Húsavíkur. Ég er tónlistarmaður fyrst og fremst en í seinni tíð líka upptökumaður. Já og bara svona listamaður, hef verið að leika og gera hitt og þetta. Hef einblínt svolítið á að gera sem allra minnst af því sem mér finnst leiðinlegt. F: Sama hér, mikið til. Ég heiti Flosi Þorgeirsson og fæddist 16. febrúar 1968, í Reykjavík en er meira og minna alinn upp í Kópavogi. Hef búið í Stykkishólmi, á Húsavík og í Danmörku. Ég er bæði sagnfræði- og sjúkraliðamenntaður en tónlistin er nú uppáhaldið. Hvernig lágu leiðir saman?
F: Í gegnum Bibba, er það ekki? B: Jú, í gegnum Bibba bróðir minn árið 2003. Höfum verið töluvert í sambandi síðan og gert mjög margt saman. Hvaðan kom hugmyndin að hlaðvarpinu og hvaðan kemur nafnið?
einhvers kona hlaðvarp. F: Já ég er ofsalega hrifinn af þessu formati. B: Ég er búinn að þekkja Flosa svo lengi að ég veit að hann er einn af okkar allra bestu sögumönnum þannig að fyrir mér var þetta dauðafæri. F: Já fólk var að nefna það við mig að ég ætti að fara í útvarpið með þessa rödd. Ég prófaði að fara í útvarpið, var þar með þætti 2017 en mér finnst hlaðvarpið að mörgu leyti skemmtilegra format. B: Við þekkjumst það vel að við vitum vel um kosti og galla hvors annars og ég veit að ég gæti alls ekki gert svona hlaðvarp einn og Flosi jafnvel enn síður. F: Bara alls ekki. B: En við getum hins vegar gert þetta mjög vel tveir. F: Það er mjög gott að hafa tvo menn með mismunandi hæfileika. B: En ég beið líka með að heyra í þér með að byrja með þetta þangað til ég var búinn æfa mig það mikið að ég væri orðinn góður í að taka upp. Ég tók eitt og hálft ár í að taka upp Dómsdag áður en ég hringdi í þig. Maður verður að vita hvað maður er að gera. F: Ég kunni ekkert á tæknihliðina, ætlaði bara að taka eitthvað upp á símann minn. Þú tókst alveg fyrir það. B: Það hefði verið hryllilegt, þú með þessa rödd, tekinn upp á síma hefði bara hljómað eins og Gosi í gömlu teiknimyndinni.
B: Nafnið kom eiginlega á rauntíma í fyrsta þættinum. Ég man að ég sagði Fortíðardraugar og þú sagðir Draugar fortíðar. Við svona fundum út úr þessu. F: Brillíant nafn. B: Flosi var búinn að lýsa yfir áhuga á að gera
8
Hvers konar hlaðvarp er Draugar fortíðar?
B: Þetta er sagnfræðihlaðvarp gert af alúð, vitneskju og menntun í bland við kæruleysi, lífshamingju og lífsleiða. Þetta keyrir svolitið á langri vináttu.
F: Ég átti ekki von á spjallið okkar tæki svona mikið pláss. Margir hafa kommentað á að það sé mikilvægt fyrir kemistríið í þáttunum. B: Við áttuðum okkur ekki á að þetta væri ekki normið en svona höfum við bara alltaf talað saman. Fyrir utan þessa fyrstu viku sem við þekktumst þar sem ég var skíthræddur við hann og fannst hann alltof góður á bassa. F: Það er mikil saga í Draugum fortíðar. Björn Blöndal vinur minn sagði að þetta væri svona Vera Illuga mætir Tvíhöfða. Koma vinsældir hlaðvarpsins ykkur á óvart?
B: Ég ætla að segja nei. En þær hafa vaxið hraðar en ég átti von á. Ég er búinn að þekkja Flosa það lengi að ég vissi hvað hann væri að fara að gera. Svo það komi fram er Flosi mjög þunglyndur svo þetta gat verið spurning um dagsformið en í ljós kom að dagsformið skiptir ekki máli þegar búið er að ýta á rec. F: Það er ekkert víst að það haldist. Sérstaklega núna yfir dimmustu vetrarmánuðina. En þetta kom mér á óvart enda á ég aldrei von á því að neitt gangi vel. B: Við reyndum eitthvað að leikstýra þessu í byrjun, stytta spjallið áður en við fórum í efni þáttarins en svo sáum við að það var líka mikilvægt F: Leyfum þessu bara að vera eins og það er. Hvað er skemmtilegast við að vinna með Baldri/Flosa?
F: Þetta er vandræðaleg spurning því að tveir íslenskir karlmenn mega ekki tala vel hvor um annan á meðan þeir eru í sama herbergi. Það hefur verið bannað allt frá þjóðveldisöld. B: Ég var náttúrlega ekki uppi á þeirri öld þannig að ég á auðvelt með þetta. Það skemmtilegasta við að vinna með Flosa er að hann er svo ofboðslega fróður og sögumannseðlið í honum er svo hryllilega sterkt. Í bland við hversu óskaplega mannlegur hann er. F: Mér finnst gott að hafa Baldur hérna af því hann er fyndinn sem ég er alls ekki. Hann er hnyttinn, fljótur að koma með sniðug tilsvör. Maður sér það í umræðuhópnum að fólk er að pikka upp svona „catch phrases“ sem flestar koma frá honum. B: Ef það er fyndið þá er það oft ég en ef það er
mannlegur harmur og eftirsjá er það yfirleitt Flosi. F: Samstarfið er alla vega með miklum ágætum. B: Mér finnst gaman að heyra fólk sem hefur brennandi áhuga á einhverju tala um það, alla vega þegar það gerir það svona vel. F: Það hjálpar að þú hefur áhuga á flestum hlutum. Þannig að þér virðist aldrei leiðast. Hvað var það við hlaðvarpsformatið sem heillaði ykkur?
F: Það er þessi afslappaða stemming. Fólk hefur talað um að því finnist við vera orðnir nokkurs konar heimilsvinir sem koma í heimsókn í hverri viku og segja þeim frá einhverjum spennandi viðburði. B: Þetta verður persónulegra. F: Já útvarp er stífara og meira gamaldags. B: Þar þarf þátturinn að fylgja ákveðnum reglum og enda akkúrat þarna af því annar er að byrja. Mér finnst líka frábært að hver sem er getur gert hvað sem er. Og allir þeir sem hlusta á hlaðvarp hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að gera það. Þú þarft að finna þetta tiltekna hlaðvarp í tækinu þínu og velja að hlusta á það. F: Og fólk sem er kannski ekki nógu vel máli farið til að fá vinnu við dagskrárgerð í útvarpi en hefur brennandi áhuga á viðfangsefninu getur gert hlaðvarp. B: Brennandi áhugi skiptir miklu meira máli gott málfar. Hvaða verkefni eruð þið að vinna fyrir utan Drauga fortíðar?
B: Ég kem að öllum öðrum hlaðvörpum Hljóðkirkjunnar, mismikið þó. Svo eru það aðallega þessar hljómsveitir sem nú liggja í dvala eins og allt gott, Ljótu hálfvitarnir og Skálmöld. Svo bara tilfallandi verkefni sem yfirleitt tengjast tónlist eða upptökum. F: Ég er bara að basla við að halda mér vakandi og hafa sæmilegan áhuga á því sem er í kringum mig. Svo er ég að taka upp sólóplötu sem er mjög gaman. Það er svona gamall draumur sem er að verða að veruleika. Ég er líka farinn að starfa sem sjúkraliði eftir margra ára hlé. Svo er ég bara að reyna að hafa gaman af lífinu sem í mínu tilfelli er fullt starf.
9
Halloween og meira Halloween
Ljósm.: Ninna Karla Katrínardóttir
Ninna Karla Katrínardóttir er 35 ára, fædd og uppalin á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann á Laugarvatni en hefur búið í Reykjavík síðan. Nú býr hún ásamt dætrum sínum tveimur í Laugardalnum. Ninna er sjálfmenntuð í förðun og hefur náð góðum tökum á special effects förðun. Í október síðastliðnum birti hún eitt myndband á dag þar sem hún sýndi mismunandi Hrekkjavökuförðun og vakti það verðskuldaða athygli.
10
Hvaðan kom hugmyndin að verkefninu?
Einhver fleiri svona verkefni í bígerð?
Mig langar að ná lengra í makeup heiminum og taldi þetta góða byrjun til að koma mér á framfæri.
Já, ég ætla að henda mér strax í annað verkefni og gera jóladagatal núna í desember. Ertu að vinna að einhverjum núna?
Af hverju Halloween? Aðallega af því að mér finnst gaman að gera makeup look sem eru „óvenjuleg“ og finnst virkilega gaman að prófa mig áfram með latex og special effects makeup.
Ég er komin í samstarf við Ofsa glimmer, en með því að kaupa umhverfisvænt glimmer frá þeim styrkjum við útgáfu námsefnis um forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi. Ég ætla að flétta saman þessu verkefni við jóladagatalið mitt.
Hvaða bakgrunn hefur þú í sminki? Ég byrjaði að hafa áhuga á því fyrir um 5 árum síðan, fór í framhaldi af því að sjá um förðun í flestum verkefnum Hugleiks, áhugaleikfélags sem ég er í, og hef svo horft á ótal förðunarmyndbönd og prófað mig áfram endalaust.
Áttu önnur áhugamál? Það er fyrst og fremst hljómsveitin mín, Ekkert, en þar er ég söngkona. Við vorum að gefa út nýtt lag, Heima, sem ég mæli með að allir hlusti á. Hvert stefnir þú með sminkferilinn?
Á hvaða platformi birtirðu myndirnar? Ég birti myndbönd á Tiktok og deildi svo bæði myndum og myndböndum á Instagram og Facebook.
Draumurinn er að safna mér fyrir námi í förðun og special effects förðun og helst að fá starf við þetta í kvikmyndum, leikhúsi og/eða víðar.
Hvar fær maður það sem þarf í svona smink á Íslandi? Fyrir svona special effects verkefni mæli ég með Leikhúsbúðinni, leiklist.is. Þar eru að mínu mati allra bestu efnin sem þarf.
Ekki láta jóladagatalið hennar Ninnu framhjá þér fara. Hægt verður að fylgjast mér því á Instagram en þar er einnig hægt að skoða Halloween verkefnið sem
hún vann í október.
@ninnakarla
11
Fjölnir Gíslason Fjölnir Gíslason er 32 ára gamall leikari með fleiru. Hann fæddist í Keflavík og bjó þar fyrstu tvö ár ævi sinnar en flutti þá til Borgarfjarðar og þaðan til Akraness 15 ára gamall, þar sem hann stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Til Reykjavíkur flutti hann 24 ára gamall og fjórum árum seinna til Kaupmannahafnar, til að elta drauminn um leiklistarnám, en er nú aftur fluttur heim til Íslands Leiklistarnám í Danmörku Fjölnir stundaði þriggja ára nám í svokölluðu „Method acting“ í CISPA leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn en segir að í rauninni sé það lítið frábrugðið öðru leiklistarnámi, þetta snúist allt um mismunandi leiðir að sama markmiði, að búa til leiklist. Hann segir suma leikara aðhyllast tilteknar aðferðir við að skapa leikhús en mikilvægast sé að leikaranum líði vel með þá aðferð sem hann vinnur með, að hún veiti honum það sjálfstraust sem hann þarf til að skila sínu hlutverki trúverðuglega. Að hans mati fer það eftir hverju verkefni hvaða nálgun hentar best og stundum sé það ekki sú augljósa. Til dæmis nýtist trúðaleikur ótrúlega víða þótt það sé alls ekki endilega sýnilegt áhorfendanum þar sem hann byggir svo mikið á tímasetningum, að gefa og taka fókus, sem er grundvallaratriði í leiklist.
Ljósm.: Constantin Gindele
Mörg járn í eldinum
12
Fjölnir er þó ekki einungis leikari. Hann er líka menntaður rafvirki og hefur starfað sem ljósahönnuður við leiksýningar. Hann heldur einnig úti hlaðvarpinu Já, ok á RUV+ ásamt vini sínum, Villa Neto, og hafa þeir framleitt einn þátt á viku í rúmt ár, alls vel á áttunda tug þátta. Hann
vinnur um þessar mundir með leikhópnum 10 fingur að sýningunni Stúlkan sem stöðvaði heiminn í Borgarleikhúsinu en verkið verður frumsýnt um leið og Covid leyfir. Jafnframt er hann að leikstýra leikhópnum Frúardegi í Menntaskólanum í Reykjavík í frumsömdu verki. Inn á milli hefur hann svo leikið smærri hlutverk í sjónvarpsþáttum og bíómyndum. Hann segir að það sé gaman hvernig öll reynsla og menntun sem hann hefur aflað sér nýtist einhvern veginn í þeim verkefnum sem hann tekur þátt í en vill ekki meina að það sé vegna meðfæddra skipulagshæfileika sem það gangi upp að hafa svona mörg járn í eldinum, það hafi meira verið fyrir heppni. Oft hafi litið út fyrir að verkefni mundu rekast á en alltaf slyppi það fyrir horn. Þar hafi Covid hjálpað, það hafi sett margt á pásu þegar í óefni stefndi.
Það er ýmislegt í bígerð hjá Fjölni, hann er með hugmynd að nýju hlaðvarpi, hann er að skrifa leikrit, hann langar að stofna hljómsveit og nokkur hlutverk í sjónvarpsþáttum eru í farvatninu þegar ástandið leyfir. Hann segir að það þýði ekkert að svekkja sig á því sem maður ræður ekki við og segist heldur vilja einblína á það jákvæða. Það að fá að vinna við hlaðvarp á RUV+ og í leiksýningu í Borgarleikhúsinu séu forréttindi sem hann sé þakklátur fyrir og taki ekki sem sjálfgefnu. Það að vera sjálfstætt starfandi listamaður sé aldrei auðvelt og allra síst á tímum Covid en það þýði ekki að láta það stoppa sig, hann lifi samkvæmt mottóinu að eina ástæðan fyrir því hlutirnir gangi ekki upp er af því maður gefst upp sjálfur.
Ármúli 18 | 104 rvk | 567 8888 | info@jogamantra.is | jogamantra.is
Ekki gefast upp
Frábær jólatilboð! Alla daga í desember
Opnunartímar Opið frá kl.10 – 19 alla virka daga Opið frá kl.11 – 18 um helgar
13
Wes Anderson
Listi yfir nokkrar myndir
Wesley Wales Anderson fæddist 1 maí 1969 í Houston, Texas. Foreldrar Anderson skildu þega hann var mjög ungur og lýsir hann því sem mikilvægasta atburðinum í lífi þeirra bræðra en hann á 2 bræður, Eric og Mel. Hann byrjaði ungur að skrifa leikrit og gera kvikmyndir. Hann gekk í Westchester High School og síðan í St. John‘s einkaskóla í Houston, Texas, sem seinna varð innblásturinn fyrir myndina Rushmore (1998). Anderson stundaði nám í heimspeki við University of Texas en þar kynntist hann Owen Wilson leikara. Þeir urðu góðir vinir og byrjuð að gera saman stuttmyndir sem sýndar voru á litlum staðarbundnum sjóvarpsstöðvum. Ein af stuttmyndunum þeirra var myndin Bottle Rocket með Owen og bróðir hans Luke Wilson í aðalhlutverki. Myndin var sýnd á Sundance Film Festival við góðar viðtökur, svo góðar að þeir fengu styrk til þess að gera stuttmyndina að mynd í fullri lengd og kom hún út árið 1996. Bottle Rocket varð þó ekki hittari en safnaði þrátt fyrir það að sér sterkum aðdáendahópi en einn af þeim var kvikmyndaleikstjórinn Martin Scorsese. Vinsældir fylgdu myndum eins og Rushmore (1998), The Life Aquatic with Steve Zissou (2004), The Royal Tenenbaums (2001) og Fantastic Mr. Fox (2009) en seinni tvær myndirnar færðu Anderson tilnefningar til Osarserðlauna.
14
Nafn myndar
Útgáfuár
Lengd myndar
Isle of Dogs
2018
1klst 41min
The Grand Budapest Hotel
2014
1klst 40min
Moonrise Kingdom
2012
1klst 34min
Fantastic Mr. Fox
2009
1klst 28min
The Darjeeling Limited
2007
1klst 44min
The Life Aquatica with Steve Zissou
2004
1klst 58min
The Royal Tenenbaums
2001
1klst 50min
Rushmore
1998
1klst 33min
Umhverfisvæn prentun fyrir alla!
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
Opnið alla virka daga 8:00 - 16:00 Skemmuvegi 4 | Blá Gata | 200 Kópavogi | Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
Nám erlendis er nær en þú heldur! Fræðslusjóður styrkir nám og tómstundanám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum sem þó ekki er starfstengt hjá félagsmanni. Auk þess veitir sjóðurinn ferðastyrki vegna náms erlendis. Stóhöfða 31, 3.hæð | 110 Reykjavík | Sími 552 8755 grafia@grafia.is | www.grafia.is
GRAFÍA