Skip to main content

Embla - Kolbrún Kristjánsdóttir

Page 1

EMBLA

Grafísk miðlun 5.tbl. 10. árg. haust 2021


MEÐ SEIGLU OG ÁRÆÐNI FÖRUM VIÐ LENGRA

www.idan.is

IÐAN fræðslusetur er í fararbroddi í símenntun iðngreina og stuðlar að framþróun í iðnaði með fræðslu, miðlun og þjónustu. Skoðaðu úrval námskeiða á heimasíðu okkar Hlökkum til að sjá þig.

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | idan@idan.is


Efnisyfirlit

Þá er komið að lokum þessa áfanga en síðastliðið ár hefur verið óvenjulegt og skrýtið. Þegar við loks sjáum fyrir endann á heimsfaraldrinum, gýs upp fjöldi smita á ný, bæði hér á landi og erlendis. Þetta virðist ætla að verða nýr veruleiki hjá okkur næstu árin og verðum við að sætta okkur við breyttar aðstæður. Öll höfum við þurft að líta inn á við undanfarin tvö ár og hægja á okkur á sama tíma og tækniframfarir hafa aldrei verið hraðari. Þrátt fyrir slæmt ástand og aðstæður getum við lítið annað gert en að halda áfram að lifa lífi okkar þótt það sé með breyttu sniði og bæta við okkur þekkingu á mestu umbreytingartímum sem við höfum upplifað á 21.öldinni. Ég vil þakka fyrir góðan- og lærdómsríkan tíma í skólanum, kennurum fyrir óbilandi þolinmæði og stuðning. Sömuleiðis þakka ég samnemendum mínum fyrir gagnlegar og áhugaverðar umræður sem hafa minnt mig á hversu mikils virði góð samskipti eru á covid–tímum.

Í örfáum orðum

5

Frábær fjallaskíðatindur

6

Lofthræðsla

9

Frá hugmynd að veruleika

10

Bolafjall á vestfjörðum

11

Örugg leiðsögn

14

Umbrot og hönnun Kolbrún Kristjánsdóttir Forsíða Kolbrún Kristjánsdóttir Útgefandi Tækniskólinn Prentun Tækniskólinn prentstofa Letur Univers 45 light 9/13 Univers 65 bold 9/13 Pappír UPM digi 250 g/m2 UPN digi 150 g/m2


Kolbrún Kristjánsdóttir


Í örfáum orðum Eftir að hafa verið fyrst nemandi hér fyrir löngu er ánægjulegt að mæta hingað aftur og læra nýja iðn. Fyrir aldarfjórðungi lauk ég sveinsprófi í ljósmyndun og lífið hefur tekið margar og stundum óvæntar stefnur síðan. Ég hef verið búsett erlendis um árabil og það hefur verið sérstakt að koma nú til Íslands, í miðjum heimsfaraldri, og setjast aftur á skólabekk. Það var sérlega ánægjulegt að mæta til leiks‚ í gamla Stýrimannaskólann, byggingu sem ég hef alltaf verið hrifin af. Þetta er tignarlegt og fallegt hús með afar fjölbreyttu og fallegu útsýni. Ég starfaði lengi hjá Stöð 2 í Skaftahlíð og var með barn í Ísaksskóla og að vissu leyti finnst mér ég vera hér á heimaslóðum því héðan úr Hlíðunum á ég margar góðar minningar og þekki svæðið vel. Þegar ég hóf störf í fjölmiðlum þurfti ég að leggja ljósmyndunina til hliðar þangað til ég fór að vinna við útgáfu og myndvinnslu fyrir nokkrum árum. En þegar ég var nemi í ljósmyndun voru enn einhver ár í að stafræna formið liti dagsins ljós. Allt var tekið á filmur og framkallað í myrkrakompunni þar sem beðið var með eftirvæntingu eftir að töfrarnir spruttu fram. Eftir því sem hönnunarverkefnin urðu fleiri hjá mér og flóknari, fann ég síðan að þekking mín á helstu Adobe forritum var ekki upp á marga fiska.

Það var því happafengur fyrir mig að lífsins ferðalag leiddi mig á endanum í kennslustundir í grafískri miðlun. Í Tækniskólanum er fagfólk að störfum sem býr yfir mikilli og góðri þekkingu í faginu. Við mannfólkið þurfum nefnilega að uppfæra þekkingu okkar rétt eins og við uppfærum tækjabúnaðinn og forritin sem við notum. Lífið tekur breytingum og við vitum sjaldnast hvert það leiðir okkur. Sjálf er ég þannig úr garði gerð að ég sit sjaldan auðum höndum. Yfirleitt hef ég nokkur járn í eldinum og oftar en ekki finn ég mig í listsköpun. Hér á síðunni er hluti af safni abstrakt ljósmynda sem ég tók á skrifstofunni minni þegar útgöngubann stóð yfir. Það var mín leið til að iðka núvitund. Að beina myndavél símans að skuggum og sólarljósi dagsbirtunnar. Eins hef ég vott af söfnunaráráttu en til allrar lukku er þar ekki um veraldlega hluti að ræða, heldur lén og Instagram reikningar. Ég hef fyllt kvótann af Instagram reikningum og þann nýjasta þurfti ég að gera í nafni annars þar sem kvótinn minn var sprengdur: #kamalaquotes hefur því miður legið í dvala þar sem ég hef verið svo upptekin í náminu. Eftir útskrift verður því fyrsta verkefnið á to-do listanum að blása í lífi í instagramið um Kamala Harris, varaforseta Bandaríkjanna.

“A great experiment takes great determination.” Kamala Harris


Skíðamaður á Birnudalstindi 2020

Texti: Tómas Guðbjartsson. Myndir: Ólafur Már Björnsson.

Frábær fjallaskíðatindur Birnudalstindur er með skemmtilegri tindum íslenskum, hvort sem ferðast er á tveimur jafnfljótum eða á fjallaskíðum. Hann telst ekki til hæstu tinda á Íslandi, tæpir 1400 metrar, en einstak útlit og magnað tindaumhverfi bæta upp hæðina. Fáir tindar á Íslandi bjóða upp á annað eins útsýni og Birnudalstindur og brekkurnar ofan af honum eru einhverjar bestu fjallaskíðabrekkur landsins. Ekki er verra að nokkrar miskrefjandi leiðir eru í boði upp og niður af tindinum. Hér segir Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og fjallageit frá helstu göngu- og fjallaskíðaleiðum á þennan magnaða tind sem hann hefur margsinnis toppað gangandi og á fjallaskíðum. Birnudalstindur er einn fjölmargra tinda í sunnanverðum Vatnajökli, nánar tiltekið í Kálfafellsfjöllum upp af Suðursveit. Tindurinn er 1396 m hár og úr suðri minnir hann á sökkvandi skip, líkt og skuturinn á Titanic stingist í hvítan sæ Vatnajökuls. En það er ekki aðeins tindurinn og klettabeltið neðan hans sem vekja athygli því í næsta nágrenni hans er ógrynni tilkomumikilla tinda, m.a. bræður hans Kaldárnúpur (1406 m) og Þverártindsegg (1544 m). Landslagið minnir óneitanlega á Alpana, enda sundurskornir dalir Kálfafellsfjalla einhverjir þeir hrikalegustu sem fyrirfinnast á Íslandi. Skriðjöklar steypast niður snarbrattar hlíðar og í dalbotnum tekur við net jökulfljóta sem minna á kransæðar í mannshjarta. Þekktastur er Kálfafellsdalur og inn af honum

6 Embla

Þverártindsegg, sem er einhver skemmtilegasta jöklaganga hérlendis og skartar skriðjökli á miðri leið sem heitir því skemmtilega en viðeigandi nafni Skrekkur. Austan við Kálfafellsdal er opnari en ekki síður fallegur dalur, Staðardalur. Inn af honum til vesturs tekur við Birnudalur, sem ekki lætur mikið yfir sér í fyrstu. En þegar komið er inn fyrir mynni Birnudals opnast fjallaleikhús með einhverri mögnuðustu fjallasýningu sem í boði er á Íslandi. Best er að leggja til atlögu við Birnudalstind að vori til eða snemmsumars þegar snjór hylur brekkur sem annars geta verið lausar og erfiðar uppgöngu. Það tekur tæplega 5 klst. að aka úr höfuðborginni í Suðursveit en þar bjóðast margir spennandi gististaðir. Bæirnir Hali og Gerði liggja niður að sjó og bjóða upp á einstakt útsýni til vesturs að Öræfajökli. „Skyndilega blasir Birnudalstindur við í öllu sínu veldi og langar snjóbrekkur suður af honum.“ Ekið er að Kálfafellsstaðarkirkju sem staðsett er milli Kálfafells- og Staðardals. Frá henni er rúmlega 4 km ganga á jafnsléttu inn að mynni Birnudals og er fylgt jeppavegi. Hægt er að semja við landeigendur og keyra þennan jeppaslóða sem styttir gönguna um samtals 8 km. Haldið er upp stöllóttar hlíðar sunnan megin Birnudalsár og eru tilkomumiklir fossar á hægri hönd. Smám saman minnkar brattinn og þá er lag að koma sér yfir Birnudalsánna sem oftast má stikla á


steinum. Haldið er áfram inn eftir Birnudalnum og opnast fjallasalurinn sífellt meir eftir því sem innar er komið. Skyndilega blasir Birnudalstindur við í öllu sínu veldi og langar snjóbrekkur suður af honum. Þessum brekkum er fylgt áleiðis upp að klettabelti neðan tindsins en þá er sveigt til vesturs upp á hrygg sem síðan leiðir upp á tindinn. Síðasta brekkan getur verið varasöm og sérstaklega þarf að gæta að snjóflóðum. Ef gengið er upp á fjallaskíðum er skynsamlegt að ganga síðasta spölinn á mannbroddum með skíðin á bakpokanum. Á hálsinum vestan Birnudalstinds býðst eitt stórkostlegasta útsýni á íslensku fjalli. Þarna er bókstaflega horft ofan í hrikalegan Kálfafellsdalinn sem handan dalsins skartar Þverártindsegg og Skrekk í öllu sínu veldi. Aðeins norðar er torkleift og spísslaga fjall sem heitir Snæfell og er oftast kennt við Vatnajökul. Lengra í vestur sést í Öræfajökul, Sveinstind og Sveinsgnípu en í suðri sést í svarta suðurströndina sem teygir sig alla leið að Vestra Horni og Hornafirði. Af þessum

útsýnispalli er stutt á hátindinn en þar sést betur yfir austanverðan Vatnajökul. Þar er Skálafellsjökull í forgrunni, en í norður sést í Kaldárnúp og alla leið til Kverkfjalla. Á toppnum er tilkomumikið útsýni Af tindi Birnudalstinds bjóðast þrjár leiðir, allar frábrugðnar og miskrefjandi. Oftast er gengin sama leið niður, þ.e. eftir Birnudalnum sem er 15 km ganga í heildina frá mynni dalsins, en 8 km lengri ef bílar eru skildir eftir við Kálfafellsstaðarkirkju. Vant göngufólk í góðri þjálfun ætti að spá í svokallaða tindaleið en aðeins ef veður er gott og ekki hætta á snjóflóðum. Er þá gengið af Birnudalstindi í suðvestur eftir eggjum tindanna sem skilja að Kálfafellsdal og Birnudal. Þarna bætist hratt í tindasafnið enda þótt fæstir þessara glæsilegu tinda séu merktir með nafni á kortum. Í góðu skyggni er þessi gönguleið einstök upplifun en á sama tíma krefjandi. Þegar komið er á síðustu tindana ofan kirkjunnar á Kálfa-

Viltu lækka hitakostnaðinn? Við bjóðum upp á varmadælur fyrir heimili, sumarhús og atvinnuhúsnæði. RAUÐUR

HVÍTUR

SVARTUR

PERLU HVÍTUR

Lambhagavegi 5 | 113 Reykjavík | Sími 516 2600 | www.vorukaup.is


Gengið á skíðum upp Birnudalstind

fellsstað er mikilvægt að velja rétta niðurleið því þarna er auðvelt að villast og gönguleiðin brött. Þriðja leiðin á Birnudalstind er ekki síst spennandi fyrir fjallaskíðafólk. Útsýni á leiðinni til austurs er frábært og tindarnir sem stingast eins og kirkjuturnar upp úr jöklinum vestan megin eru mikið augnayndi. Þegar komið er að skipsskrokk Birnudalstinds opnast lítið skarð sem veit að brattri snjóbrekku sunnan tindsins. Brekkan er skáuð en því aðeins að ekki sé hætta á snjóflóðum. Þegar komið er vestur fyrir klettabeltið er haldið upp á útsýnisöxlina sem áður var lýst fyrir hefðbundnu gönguleiðina. Af hátindinum geta vanir skíðamenn skíðað samfellt niður Birnudal og verður bunan lengri eftir því sem ferðin er farin fyrr að vori.

8 Embla

Gæta verður að giljum og fossum sem geta verið á leiðinni og best að halda sér austan megin Birnudalsár uns komið er að staðnum þar sem áin er stikluð eða vaðin. Neðsta hlutann verður yfirleitt alltaf að bera skíðin á bakpokanum en á góðum degi má oft sjá hjarðir hreindýra ofan í Staðardal. Áður en haldið er heim á leið er tilvalið að koma við á Þorbergssetri á Hala. Þar fæddist og óx úr grasi Þórbergur Þórðarson rithöfundur (1888–1974), en náttúru Suðursveitar gerði hann ódauðlegaa í bókum eins og Steinarnir tala. Á safninu er ævi hans rakin og hægt er að kynna sér verk hans og tilvitnanir sem oft áttu sér kveikju í náttúru Suðursveitar umhverfi sem ekki lætur neinn ósnortinn sem þangað kemur.


Að fara þarna út á og halla sér yfir handriðið er eins og að vera í lausu lofti

Lofthræðsla

Texti: www.kms.is Mynd: Hafþór Gunnarsson

Lofthræðsla (height phobia) er yfirdrifinn eða órökréttur ótti við að vera í mikilli hæð. Þegar lofthræddir eru í aðstæðum sem þeir óttast finna þeir fyrir skyndilegum og ofsafengnum ótta sem getur tekið á sig form nokkurs konar kvíðakasta. Lofthræðsla leiðir iðulega til forðunar frá stöðum sem eru í einhverri lofthæð og þarf að valda mikilli vanlíðan eða hömlum á daglegu lífi fólks til þess að ná því að vera yfirdrifinn ótti við hæð eða það sem í sálfræði er kallað fælni. Þannig myndum við ekki kalla það fælni ef að manneskja sem óttast það að vera í mikilli hæð hefur sjaldan ástæðu til þess að vera á stöðum í mikilli hæð. Hafi manneskja á hinn bóginn það að atvinnu að keyra en forðast að keyra yfir brýr eða upphækkaða vegi vegna lofthræðslu myndum við greina slíkt sem fælni vegna mögulegrar truflunar sem það myndi valda viðkomandi í starfi. Þær aðstæður sem lofthræddir hræðast gjarnan eru stigar, húsþök, að standa uppi á stól eða borði, að ganga eða keyra yfir brú, að keyra á upphækkuðum vegum, að nota lyftur, að vera í glerlyftu, að fara upp háar byggingar, að horfa á kvikmyndir sem sýna mikla lofthæð, að nota brunastiga, að vera úti á svölum, að

sitja á svölum í bíó eða leikhúsi. Auðvitað er það svo að fólk með lofthræðslu sem fælni forðast ekki allar þessar aðstæður. Um það bil ein af hverjum fimm manneskjum eiga við töluverða lofthræðslu að etja en aðeins um 5% fólks hefur lofthræðslu á stigi þess sem við köllum fælni. Lofthræðsla er næstum því jafn algeng meðal karla og kvenna. Meðalaldur byrjunar á lofthræðslu er um 15 ára en hún getur þó komið fram á hvaða aldri sem er. Orsakir lofthræðslu Yfirdrifin lofthræðsla hefur hingað til verið talin myndast, eins og aðrar tegundir fælni, með lærdómi sem dreginn er af erfiðri reynslu. Nýlegar rannsóknir benda þó til að slíkar skýringar segi ekki alla söguna þegar yfirdrifin lofthræðsla er fyrir hendi. Nú er talið að yfirdrifin lofthræðsla, ásamt óttanum við mikinn og skyndilega n hávaða, sé meðfædd fælni sem þarf ekki að tengjast raunverulegri reynslu. Talið er að lofthræðsla sé arfur frá forfeðrum okkar þar sem fall úr mikilli hæð felur í sér raunverulega hættu.


Frá hugmynd að veruleika Fegurð Bolafjalls er stórkostleg og að er engin tilviljun að staðurinn er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Staðsetning ratsjárstöðvarinnar sem byggð var fyrir tæplega 30 árum árum setur líka allt umhverfi þarna uppi á fjallinu í annað samhengi. Þessi stóru mannvirkir gefa svæðinu dulúðlegan blæ í 638 metra hæð. Ratsjárstöðin var sett sett í gang í byrjun árs 1992 og var rekin í samvinnu varnarliðsins og NATÓ en er nú í umsjá Landhelgisgæslunnar. Það liggur brattur akvegur upp á Bolafjall og hefur vegurinn verið opinn bílum í júlí og ágúst. Ofan á Bolafjalli er rennislétt hrjóstrug háslétta og er þar útsýni til allra átta.

OFAN Á BOLAFJALLI ER RENNISLÉTT HRJÓSTRUG HÁSLÉTTA OG ER ÞAR ÚTSÝNI TIL ALLRA ÁTTA. Hugmyndin að uppbyggingu á Bolafjalli hefur nú orðið að veruleika og búið er að byggja veglegan útsýnispall sem gerir fjallið enn eftirsóknarverðara og dregur fram þá einstöku staðhætti og upplifun sem Bolafjall býður upp á. Hópurinn sem hannaði útsýnispallinn hefur lýst því að gögnin sem þau fengu voru mjög vel undirbúin og það hjálpaði mikið að ein út teyminu hafði nýlega heimsótt Bolafjall. Hönnunarhópinn lýsir því líka að þau hafi fundið fyrir feimni og hafi nálgast verkefnið af mikilli hógværð og fundist þau bera mikla ábyrgð að skila fallegu og góðu verki sem myndu gera fjallinu til hæfis. Hópurinn gætti þess að eiga gott samtal við alla sem komu að verkinu og velta upp hugmyndum sem síðan voru unnar áfram. Samtal sem leiðir til niðurstöðu er alltaf svo skemmtilegt í öllum verkum og leiðir til öðruvísi nálgunar og frjórra hugmynda. Það voru margar áskoranir á svæðinu sem við stóðum frammi fyrir og til að leysa þær áskoranir leituðum við í smiðju erlendra áfangastaða sem við skoðuðum bæði í máli og myndum og sáum fljótt hvað okkur líkaði

10 Embla

Loftmynd af útsýnispalli

Mynd: Sei Studio

og líkaði ekki fyrir Bolafjall. Akvegurinn upp á fjallið var endurskipulagður þar sem hringakstur ofan á fjallinu var frekur í umhverfinu og of áberandi því halda þarf í víddina sem manni verður ljós þegar staðið er ofan á fjallinu, með ratsjárstöðina sér við hlið. Víddinn varð að veruleika með með útsýnispall sem yrði hluti af fjallinu, en ekki mannvirki eða kennileiti í umhverfinu. Útsýnispallurinn er hluti af fjallinu og falinn í hvarfi yfir yfirborðinu og aðgengilegur fyrir alla. Tröppur um miðbik pallsins henta líka vel ef mönnum snýst hugur á miðri leið, og eða bara til að sitja í ef lofhræðslan tekur völdin. Fjallið sjálft er ennþá kennileitið með ratsjárstöðina sér við hlið. Þannig helst gamla upplifunin, þar sem maður stóð á fjallsbrúninni og horfði yfir hengiflugið, nú sem fyrr.


Bolafjall á Vestfjörðum Segja má að Bolafjall sé á mörkum hins byggilega. Það hefur, eins og flest önnur fjöll á Vestfjörðum lítið breyst frá lokum síðustu ísaldar. Stærsta breytingin á umhverfi Bolafjalls hefur líklega verið uppbygging ratsjárstöðvar á vegum bandaríska hersins sem Íslendingar, nánar tiltekið Bolvíkingar, hafa nýverið erft. Ratsjárstöðin er þó ekki aðal aðdráttarafl staðarins, þó svo að vissulega sé hún kennileiti svæðisins, heldur er það tímalaust og áhrifaríkt útsýni Bolafjalls í allar áttir sem dregur að. Þrátt fyrir stærð stöðvarinnar hefur svæðið yfir sér mjög ósnortið yfirbragð og er það einstök upplifun að vera á Bolafjalli og skynja smæð

sem keppt gæti við helstu ferðamannastaði landsins og þó víðar væri leitað. Ný aðkoma og hringleiðir Aðkomuvegur inn á svæðið endar á nýju bílastæði sem staðsett er sunnan við núverandi aðkomu. Frá bílastæði er akfær stígur að ratsjárstöðinni. Tvær hringleiðir göngustíga mætast á bílastæðinu þar sem 15 stæði eru felld í landið svo sjónræn áhrif ökutækja verði lítil sem engin. Ásýnd bíla frá meginstíg og göngupalli er falin með hlöðnum veggjum og fínlegri hæðasetningu en ný lega aðkomuvegar staðsetur stæðið neðar í hlíðinni og

Framkvæmdir við útsýnispallinn á Bolafjalli á lokastigi.

Mynd:Gullibyggir@stod2.is

mannsins. Með réttu inngripi gætu Bolvíkingar staðið upp með einstakan áfangastað í höndunum

í hvarfi frá útsýnispalli og umhverfi hans. Þessi nýja lega dregur líka úr áhrifum ratsjárstöðvar-

Svar Íbúakönnun var framkvæmd í október 2019 að beiðni Bolungarvíkurkaupstaðar. Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ert þú gagnvart því að útsýnispallur verði byggður á Bolafjalli?

Fjöldi

Hlutfall

Mjög neikvæð(ur)

9

5,5%

Frekar neikvæð(ur)

18

11,3%

Hvorki jákvæð(ur) né neikvæð(ur)

34

22%

Frekar jákvæð(ur)

21

13,7%

Mjög jákvæð(ur)

74

47,5%

Fjöldi þátttakenda

159

100%


innar þar sem aðkomuvegurinn liggur ekki beint að henni. Við bílastæðið er einskonar aðkomutorg afmarkað með grjóthleðslu úr flögugrjóti sem myndar hlið inn á svæðið. Aðkomutorgið er með flóruðu yfirborði, þarna er gert ráð fyrir að koma fyrir upplýsingaskiltum um staðinn og ratsjárstöðina. Bílastæðið er að öllu leyti unnið úr malarefnum líkast því sem fyrirfinnst á svæðinu s.s. möl í vegi og stíga ásamt grjóti til afmörkunar. Skilti eru gerð úr kortenstáli og unnum rekavið. Allir stígar eru þjappaðir malarstígar sem gerðir eru úr malarefni líkast því sem er á fjallinu, en aðalstígurinn sem liggur frá bílastæðinu að palli, er með aðgengi fyrir alla. Megin aðdráttaraflið er útsýnispallur en hann liggur beint norður af bílastæðinu og er staðsettur milli tveggja aðskildra hringleiða sem liggja meðfram fjallsbrúninni, austan og vestan af pallinum. Tenging milli palls og stígs er flórað yfirborð úr grjóti sem finnst á fjallinu. Stóri hangandi kletturinn við brúnina á Miðleitisgjá, sem er vinsæll viðkomustaður þeirra djörfustu, yrði látinn ósnertur. Útsýnispallur við fjallsbrún Nýr útsýnisstaður við Bolafjall myndar nýtt þrep í Stigahlíðina og verður hluti af klettabeltinu. Helsta einkenni útsýnispallsins er að hann hallar um 3° niður á við eftir langhliðinni. Sú hlið er 58,5 m og skagar um 4 metra fram fyrir fjallsbrúnina sem hann fylgir. Við upptök sín er pallurinn í

Ratsjárstöðin á Bolafjalli.

Mynd: Aðalheiður E.

landhæð en eftir hægan aðdraganda, þegar á enda pallsins er komið, er augnhæð komin niður fyrir landhæðina, og á einstöku augnabliki, þegar komið er handan fjallsbrúnarinnar, sér augað ekkert annað en fjallshlíðar Bolafjalls, hafið, Djúpið og firðina í kring. Með nálægðinni og snertinguna við fjallið verður til áður ómöguleg upplifun, sem skapar nánd og tengingu fyrir gesti við fjallið, þar sem fjallshlíðin er skyndilega áþreifanleg. Breidd pallsins er breytileg og tekur form sitt eftir formi fjallsins en pallurinn er 1,5 m þar sem hann er þrengstur. Megin áherslan í vali á byggingarefnum er að hámarka endingu, undirstrika léttleika og lágmarka áhrif snjóálags og skapa sem gegnsæjasta áferð þannig að pallurinn falli sem best inni í umhverfið. Í nálægð við norðurenda pallsins er komið fyrir tröppum, sem tengjast inn á hringleiðina, sem

Höfundaréttur Það skiptir miklu að höfundar að bókmennta- eða listaverki á eignarétt á því frumlega verki sem hann skapar. Eignarétturinn er mikilvægur þar sem að baki hugverkinu liggur My

framlag sem er oftast í formi vinnu og því er hugmyndin að tryggja m.a. fjárhagsleg

n d:

réttindi þess sem skapar verkið í allt að 70 ár frá andláti höfundar.

Ko lbr ún K ristjá ns d ó ttir

Allir geta notið þess að sjá verkið á opinberum vettvangi en meginreglan er að það þarf að afla samþykkis frá höfundi til að nota verk hans opinberlega og greiða sanngjarna þóknun fyrir. Stundum má birta verkin opinberlega í þágu almannahagsmuna, t.d. við fréttaflutning og í þágu menntunar en þá verður að geta heimildar og birtingin má ekki vera í fjárhagslegum tilgangi. Sem dæmi má nefna að ef tekin er ljósmynd af listaverki eða byggingu þá er það heimilt en ef ljósmyndin er seld eða notuð í markaðssölu þá á höfundur rétt á greiðslu. Sjálfvirk tækni til að fylgjast með notkun hugverka í stafrænum heimi hefur fleygt fram og í einhverjum tilvikum hafa notendur þurft að greiða þóknun og jafnvel skaðabætur til höfunda hafi þeir ekki gætt að því að afla heimildar.


ÚPS ! Gleymdist gjöfin ! liggur meðfram pallinum. Tröppurnar falla inn í náttúrulegt skarð og eru felldar að landslaginu líkt og allur pallurinn. Hæðarmunurinn sem tröppurnar brúa er um 1,4 metrar og eru þær fullkominn staður til þess að setjast niður og njóta útsýnisins í austur, eftir að hafa kannað allan pallinn eða til að tilla sér niður fyrir þá sem velja það að fara ekki fram af fjallsbrúninni. Hringleiðirnar sem liggja frá bílastæði liggja á milli nýrra útsýnisstaða sem gefa fólki tækifæri til þess að ganga fram á ystu brún fjallsins í fullkomnu öryggi. Á vel völdum stöðum við gönguleiðir um fjallið eru varðaðir staðir. Þar er komið fyrir litlum „útsýnisplatta“ fyrir þá sem ekki þora, eða þá sem kljást við lofthræðslu en langar til að upplifa það að komast nær brúninni. Þetta verða litlir útsýnisstaðir sem gefa fólki tækifæri til þess að ganga fram á ystu brún fjallsins í fullkomnu öryggi. Um er að ræða einhvers konar smápalla sem ganga nánast fram að fjallsbrún. Pallarnir taka form sitt og einkenni af stóra útsýnispallinum. Vörður verða hlaðnar við alla útsýnisstaðina, úr flögugrjóti sem finnast á svæðinu og munu hafa skýra tilvísun í eldri vörður á Vestfjörðum. Út frá hringleið til vestur er gert ráð fyrir stikaðri gönguleið eftir fjallinu. Innanlýst ratsjárkúla á Bolafjalli Lagt er til að kúla ratsjárstöðvarinnar verði endurbyggð, þar sem óreglulegt form flákanna, sem mynda kúluna, verður dregið fram. Kúlan verði endurbyggð úr hálfgegnsæju plasti, þannig að hægt verði að lýsa kúluna upp að innan við hátíðleg tilefni eða um einhvern tiltekinn tíma á veturna til þess auka aðdráttarafl staðarins utan háannatíma. Ljósin sem um ræðir verða sparneytnar LED díóður sem hægt verður að knýja með færanlegum aflgjafa, rafhlöðum eða litlum sólarpanel í tengslum við ratsjárstöðina. Aðkomuleiðin að ratsjárstöðinni hefur einnig verið aðlöguð að nýju bílastæði.

BLÓMA SJÁLFSALI

24/7

0

BLÓM GLEÐJA NÆRA GEFA

13

Blómasjálfsalinn tekur alltaf vel á móti þér, allan sólarhringinn. Gríptu með þér fallega blómaskreytingu á einfaldan og fljótlegan máta.

Garðatorg 4 | 210 Garðabær | 554 4040 | www.audurblom.is


Örugg leiðsögn Wapp-Walking app hefur að geyma safn fjölbreyttra GPS leiðarlýsinga fyrir snjallsíma um allt Ísland með upplýsingum um örnefni, sögur, náttúru og umhverfi til þess að njóta ferðarinnar sem best. Leiðarlýsingarnar notast við kortagrunn Samsýnar og þeim hlaðið fyrirfram inn í símann og svo notaðar án gagnasambands (offline). Ljósmyndir og eru í öllum leiðarlýsingum og er þar einnig að finna upplýsingar um árstíðabundinn aðgang, bílastæði, almenningssalerni og ef ástæða er til að benda á hættur eða önnur varúðarsjónarmið á leiðunum. Upplýsingapunktar koma fram á hverri leið sem er merkt sem leiðsögn og vísa í lífríki, jarðfræði, örnefni eða annað sögulegt sem tengist umhverfinu. Leiðarlýsingar sem eru merktar sem hreyfing innihalda ekki upplýsingapunkta. Leiðarlýsingarnar eru ýmist í boði styrktaraðila eða þær seldar notendum á vægu verði.

Texti: Einar Skúlason .www.wapp.is

Gps Í snjallsímum er GPS staðsetningartæki (Global Positioning System) sem getur fundið út staðsetningu símtækisins með því að tengjast gervihnöttum. Þjónustan kostar ekkert og er ekki í tengslum við áskrift hjá símafyrirtækjum. Símtækið þarf því ekki að vera í gagnasambandi. til að nýta þessa tækni. Athugið þó að gefa Wappinu leyfi til að tengjast staðsetningarbúnaði símans þegar Wappinu er hlaðið niður. Leiðarlýsing og kort Notandi þarf að skrá inn notendanafn sitt í Apple eða Google til að geta hlaðið inn leiðum. Viðkomandi eignast leiðarlýsinguna með korti eftir fyrstu kaup og getur ekki keypt sömu leið tvisvar. Hægt er að nýta leiðarlýsinguna á öðrum tækjum sem sami notandi hefur yfir að ráða og hann nýtir notendanafn sitt úr Apple eða Google. Ef leiðarlýsing er fjarlægð úr tæki er hægt að hlaða henni aftur inn síðar án þess að greiða fyrir. Mælt er með því að fjarlægja leiðir úr tækinu öðru hvoru því að stundum eru leiðir uppfærðar ef þörf

14 Embla

Myndin sýnir gönguleið í forritinu.

krefur með auknum upplýsingum eða leiðin færð til á kortinu. Sumar leiðarlýsingar eru ókeypis og merktar þannig á Wapp-Walking app. Vegna reglna hjá Apple og Google þá þurfa sömu skilaboð að koma fram við kaup á leið sem kostar og hleðslu á leið sem er ókeypis. Svo að notendur eru spurðir hvort þeir vilji örugglega kaupa leið hvort sem hún er frí eður ei. Notendur geta verið öruggir um að ef leið er merkt ókeypis þá munu þeir ekki þurfa að greiða neitt. Öryggi Wappið er í samstarfi við Neyðarlínuna þar sem notandi getur sent tilkynningu um staðsetningu sína með textaskilaboðum úr símanum til Neyðarlínunnar þegar hann leggur af stað. Þetta er valkvætt og einungis til öryggis og ekki er farið í að skoða gögnin nema ef viðkomanda sé saknað.


Góð hugmynd breytist í útprentað verk og jafnvel listaverk hjá okkur

Prentun sem stenst tímans tönn Vertu velkomin við tökum vel á móti þér

SVANSVOTTUN

FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

Vissir þú að við höfum starfrækt prentsmiðju frá árinu 1967? 1970

1982

1994

2006

2018

1967 > 1973 > 1979 > 1985 > 1991 > 1997 > 2003 > 2009 > 2015 > 2021 > > > > > > 1976

1988

2000

Skemmuvegi 4, Blá gata | 200 Kópavogi Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is

2012


F VIÐ LEGGJUM METNAÐ Í AÐ SNÍÐA STARFSEMINA AÐ ÞÖRFUM OKKAR FÉLAGSMANNA

NÁMSSTYRKIR • SJÚKRASJÓÐUR • FERÐASTYRKIR • ORLOFSHÚS og margt fleira Kynntu þér rétt þinn og fáðu nánari upplýsingar inn á heimasíðu okkar www.grafia.is

Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

Stórhöfða 31

110 Reykjavík

GRAFÍA 5400 100

www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Kolbrún Kristjánsdóttir by Tækniskólinn - Issuu