Skip to main content

Embla - Sól Aðalsteinsdóttir

Page 1

GRAFÍSK MIÐLUN

EMBLA

5. tbl. 12. árg. haust 2023


FÁÐU INNBLÁSTUR Augnablik í iðnaði IÐAN fræðslusetur rekur hlaðvarpið Augnablik í iðnaði þar sem umfjöllunarefnið er íslenskur iðnaður í öllum sínum fjölbreytileika. • • • • • • •

Filmun og húðun bíla Gervigreind í sjálfvirknivæðingu véla Rekstur prentsmiðja Ungt fólk í iðnaði Matvælagreinar Sjálfbærni Veitingarekstur og matreiðsla á Íslandi

.: Myndir

.: Bakgrunnar

Skannaðu kóðann til að byrja hlusta!

FRAMSÆKNI – VIRÐING – FAGMENNSKA – NÝSKÖPUN – SJÁLFBÆRNI Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | idan@idan.is | s: 590 6400


WHITESNAKE

JÓL Í SKÓKASSA

6

11

Kynningaropna

EFNISYFIRLIT

MANNLÍFIÐ Á NÍUNDA ÁRATUGNUM

4

9

MÝRMANN

12

GÓÐUR HESTUR BER ENGAN LIT

14

Umbrot og hönnun

ÁFRAM VIÐ Mig langar að byrja á því að þakka öllum sem hafa komið að náminu, öllum kennurum grafískrar miðlunar og fjölskyldu minni fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum námið, þá sérstaklega elsku mömmu sem styður mig í einu og öllu. Þakkir til pabba sem studdi mig og hvatti mig í gegnum námið. Mig langar einnig að þakka afa mínum honum Þresti Ingólfi Víðissyni fyrir að leyfa mér að taka viðtal og birta hans myndir í tímaritið. Honum Víði Mýrmanni Þrastarsyni fyrir að segja okkur aðeins sína sögu og frá sinni list. Að lokum vil ég óska öllum mínum samnemendum velgengni í framtíðinni. Áfram við! Takk kærlega fyrir ferðalagið kennarar og sam­nemendur!

Sól Aðalsteinsdóttir

Hönnun forsíðu Sól Aðalsteinsdóttir

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn

Prentun Upplýsingatækniskólinn

Letur Univers 65 bold 9/13 Univers 45 light 9/13 Univers 55 roman MInion pro

Pappír Digi Finesse silk 130 gr Digi Finesse silk 170 gr


4 | Embla


Sól Aðalsteinsdóttir Sól Aðalsteinsdóttir heiti ég og er uppalin í Laugar­dalnum. Ég er 27 ára gömul, fædd árið 1995. Ég bý núna í Norðlingaholti og sæki vinnu í Mosfellsbæ. Þegar ég var yngri gekk mér alltaf best í iðngreinum í skólanum, hvort sem það var smíði eða hönnun, þannig að ég hef alltaf haft áhuga á hönnun og sköpun. Það var ekki fyrr en ég fór í menntaskóla að ég fór að skoða nám í grafískri miðlun og það vakti mikinn áhuga. Árin liðu og ég einbeitti mér af bóklegu og verklegu námi á hestabraut í Framhaldskólanum í Mosfellsbæ, tók þar starfsnám hjá honum Eysteini Leifssyni hestamanni sem rekur og á fyrirtækið Export hestar.

vinkonurnar hófum þetta nám saman og ég gæti ekki verið ánægðari með ákvörðunina. Námið hefur verið mjög fróðlegt og krefjandi á sama tíma, en frábærir kennarar og góður stuðningur frá Tækniskólanum hefur gert námið skemmtilegt og hef ég náð góðum árangri í skólanum. Helstu áhugamálin mín eru hönnun, ljósmyndun, hestamennska og útivist. Ég hef stundað hesta­ mennsku í mörg ár en tók mér svo pásu 2019. Ég elska að ferðast og nýt mín best í sveitinni.

Eftir námið verð ég ólétt og eignast síðan dóttur mína þann 05.10.2019 en heitir hún Elísabet Eva og er orðin 4 ára gömul í dag. Þegar hún byrjaði síðan í leikskóla fór ég að velta fyrir mér hvaða nám ég ætti að taka í framhaldi af fyrra náminu. Ég og vinkona mín rákum þá augun í grafíska miðlun og ég var ekki lengi að sækja um enda alltaf haft áhuga á náminu. Nú eru liðin rúm tvö ár síðan við

Embla | 5


Myndir eftir: Þröst Ingólf Víðisson

Þröstur Ingólfur Víðisson áhugaljósmyndari Mannlífið í Reykjavík á níunda áratugnum Þröstur er fæddur árið 1953 og ólst upp á Stöðvar­­firði til 14 ára aldurs. Þaðan flutti hann á Fáskrúðsfjörð og bjó þar þangað til tveimur árum seinna þegar hann flutti til Reykjavíkur þá 16 ára gamall. Áhuginn á ljósmyndun kviknaði á Stöðvarfirði þegar æskuvinkona hans Antonía Sveinsdóttir kynnti hann fyrir ljósmyndun og framköllun. Þau notuðu þá gamlar kassamyndavélar að nafninu Kodak six-20 Brownie junior. Þau höfðu aðstöðu til að framkalla myndir í framköllunarherbergi og notuðu það fyrir alls kyns tilraunir í framköllun. Til að panta vörur fyrir framköllun frá Reykjavík á þessum tíma var notast við sveitasíma með sveif, Fyrst um sinn. Síðar meir komu skífusímar. Myndir frá Þresti hafa verið birtar oft í gegnum árin hjá Vísir.is og DV. Þar hefur hann sýnt frá mannlífi á níunda áratugnum. Myndirnar hér eru frá árunum 1980–1990. Þröstur hefur mestan áhuga á að mynda mannlíf á götum borgarinnar. Hann hefur gefið mér leyfi til að birta hér skemmtilegar myndir frá níunda áratugnum þar sem mannlífið og tískan var heldur öðruvísi á þeim tíma.

6 | Embla


Jólafatnaður í miklu úrvali. Nældu þér 20% jólaafslátt með því að skanna kóðann.

Gleðilega hátíð! Faxafen 11 | 108 Reykjavík | Sími: 599 8888 | www.leggurogskel.is | leggurogskel@leggurogskel.is


Víðir Mýrmann Þrastarson Um listamanninn Mýrmann býr og starfar í smábænum Hveragerði og er olían það efni sem helst hefur heillað hann síðustu tvo áratugi. Meðal helstu áhrifavalda má nefna umhverfið og upprunann. Menntunina sótti­­hann helst í heimalandinu, en 2011 nam hann undir handleiðslu hins þekkta norska málara Odd Nerdrum. Árið 2019 útskrifaðist Mýrmann með meistaragráðu frá hinum þekkta háskóla UCA í Bretlandi, sem er leiðandi á sviði lista og hönnunar. Þar hlaut hann eftirsótt verðlaun, BAMS Student Medal Project, sem er samstarfsverkefni The British Are Medal Society og The British Museum. Mýrmann hefur tekið þátt í fjölmörgum hópsýningum, ásamt því sem hann hefur staðið fyrir um tuttugu einkasýningum. Verk hans má finna í einkaeigu á Íslandi, í Bandaríkjunum, Bret­ landi, Ástralíu Þýskalandi og Noregi. Listamaðurinn talar: Áran í efninu Ég fæddist á Íslandi sem verður að teljast sér­ stæður staður á norðurhjara veraldar. Íslendingar búa yfir fjölmörgum menningartengdum hefðum og fólk hreykir sér af náttúrunni, bókmenntahefð­ inni og fornsögunum. Ég notast við hugmyndir um umbreytingarkraft, táknheiminn, rómantík, dulúð, andatrú og eigin uppruna og rætur. Hagnýting vinnu minnar tengist skissuvinnu, litavali, samsetningum og þeim anda sem tengist hverju mótívi. Verkin byggjast oftast á mannlegri sálfræði, íslenskri menningu og hugrenninga til einstakrar náttúru.

Eins og áður sagði þá eru það helst sex þættir sem teljast til minna helstu áhrifavalda og ber þar fyrst að nefna rómantík. Rómantíkin tengist þá hvernig tilfinningar eru tjáðar með því að upphefja náttúruna, lífið, það óþekkta, skaðvalda og það göfuga og háleita. Táknheimurinn er líka mótandi og lýsandi fyrir þær hugrenningar sem ég tjái með verkum mínum. Táknheimurinn sten­d­ur­fyrir hluti og hugmyndir um hluti, pers­ ónur, merkingu, tilfinningar og ekki síst sögur. Umbreytingarkrafturinn er mikilvægur enda byggir hann á heimspekinni um gullgerðarlistina þar sem einu efni, andlegu eða raunverulegu, er breytt í annað efni. Í þeirri heimspeki er líka fólgin hugmyndin um að í öllu leynist andi. Dulspekin er mér jafnframt hugleikin, enda tengist hún æðri meðvitund, guðdómi og andans málum. Ekki síst ber að nefna upprunann og ræturnar, því þannig fást svör við spurningum á borð við: Hver er ég? Hvaðan kem ég? Hverjar eru hefðir mínar og hvernig rúmast ég fyrir í samfélagi manna? Af hverju ættum við að varðveita menningarræturnar? Arfleifðin snýst um meira en að halda í og geyma gamla hluti og gamla siði og venjur, hún hefur allt með það að gera hvernig við sjáum fyrir okkur ólíka þætti lífs okkar. Í listinni þá ætti arfleifðin að vera endurspeglandi og bjóða upp á umræður og samtal. Hún takmarkast þannig ekki við efnislega hluti sem hægt er að sjá og snerta, heldur er órjúfanlega bundin sögunni, þekkingunni, hefðunum, handverkinu og ólíkum serimóníum.

8 | Embla


„Allir geta verið listamenn og allt getur verið list, svo fremi sem sá sem skapar geri það á einlægan og merkingarbæran hátt. Börn eru öll listamenn og það er ekki fyrr en á fullorðinsárum sem við missum þá tiltrú og aftengjumst rótum okkar. Þá er enn mikilvægara að finna innri ró og frið og leita að merkingu í öllum hlutum.“ – Mýrmann Að lokum hef ég heillast af andatrúnni því hún tengist sköpuninni, tilfinningum og hugsunum, og er ævaforn leið til að tengjast náttúrunni. ólíkri upplifun og ólíkri meðvitund. Táknin í verkum mínum segja sögu, sauðkindin, kýrnar, hrafnarnir, bátarnir, skipin og grimm íslensk náttúra, jörðin og önnur tákn. Þau gefa til kynna mínar innstu tilfinningar og hugsanir og eru ekki endilega hlutbundin sem slík, heldur hjálpa mér við að svara grundvallarspurningum eins og það hvað það er sem gerir mig að manneskju og listamanni. Er það reynslan, eða það sem er allt um kring og mótar sjálfið og viðhorfin? List ætti, að mínu viti, að snúast um dýpri merkingu og­­sögur í stað þess að vera háleit og ósnertanleg. Fegurðin er líka fólgin í ljótleikanum og er til þess fallin að valda tilfinningaróti sem ekki verður alltaf útskýrt. Málverkið gerir okkur kleift að tengjast rótinni og ætti alltaf að vera merkingarbær og tengjast mannsandanum, óháð menningarlegum bakgrunni, trúarskoðunum, stöðu og stétt. Öll eigum við eitthvað sameiginlegt, við viljum öll njóta ástar og höfum öll sögur að segja. Ég tel mig vera ríkan af lífsgjöfunum og með verkum mínum geri ég tilraun til að sýna það ósýnilega, og orða það óorðanlega. Ég reyni ávallt að vekja hughrif og áru í list minni. – Mýrmann

Embla | 9


HERE I GO AGAIN Whitesnake er rokkhljómsveit sem var stofnuð á Englandi árið 1978 af David Coverdale eftir brottför hans frá fyrri hljómsveitinni Deep Purple. Whitesnake naut mikillar velgengni í Bretlandi, Evrópu og Japan á fyrstu árum sínum. Plöturnar þeirra Ready an‘ Willing, Come an‘ Get It og Saints & Sinners náðu allar í topp tíu á breska plötulistanum. Um miðjan níunda áratuginn setti Coverdale stefnuna á að ná vinsældum í Norður- Ameríku, þar sem Whitesnake var að mestu óþekkt hljómsveit. Með stuðningi bandaríska útgáfufélagsins Geffen Records gaf Whitesnake út plötuna Slide it in árið 1987 sem varð þeirra stærsti árangur til þessa. Platan seldist í yfir átta millj­ ónum eintaka í Bandaríkjunum. Eftir að hafa gefið út plötuna Slip of the Tongue árið 1989 ákvað Coverdale að taka sér smá frí frá tónlistarbransanum og þar með varð hljómsveitin óvirk að mestu leyti til ársins 2003. Coverdale setti síðan saman nýtt line up til að fagna 25 ára afmæli hljómsveitarinnar. Síðan þá hefur Whitesnake gefið út fjórar plötur til viðbótar og farið víða um heiminn.

Whitesnake hefur verið tilnefnd til nokkurra verðlauna á sínum ferli, þar á meðal Brit Awards árið 1988 og einnig besta rokkhljómsveit allra tíma árið 2005 af LA Music Awards. Þann 4. júlí 1994 gaf EMI út Whitesnake‘s Great­est Hits í Evrópu. Það var síðan gefið út í Bandaríkjunum 19. júlí sama ár af Geffen Records. Platan náði fjórða sætið á breska plötulistanum. Coverdale hafði verið að plana sólóferð um Evrópu með bakhljómsveit sem hann líkti við Mad Dogs & Englishman eftir Joe Cocker áður en platan kom út. Vegna vel­ gengni plötunnar Greatest Hits var það flautað af og Coverdale beðinn um af EMI að túra sem Whitesnake. Með trega gaf Coverdale sig og sá þetta sem tækifæri til að spila og skemmta sér í beinni útsendingu. Adrian Vandenberg fyrrum gítarleikari White­ snake samþykkti að vera með aftur þar sem hann og Coverdale voru nú þegar að vinna að nýrri tónlist saman. Ferðalagið hófst í Evrópu 20. júní 1994. – Sól Aðalsteinsdóttir

SPONGIE/ FLICKR


KERRIN KEY/ FLICKR

FABIO BUSSOLA/ FLICKR CONTRERAS MANCILLA/ FLICKR

Núverandi meðlimir • David Coverdale – Aðalsöngvari (frá 1978) • Tommy Aldridge – Trommuleikari (frá 1987) • Reb Beach – Gítarleikari, bakraddir (frá 2003) • Joel Hoekstra – Gítarleikari, bakraddir (frá 2014) • Michele Luppi – Píanóleikari, bakraddir (frá 2015) • Dino Jelusick – Gítarleikari, bakraddir (frá 2021) • Tanya O‘Callaghan– Bassi, bakraddir ( frá2021)

Embla | 11


Mynd: Unsplash

KFUM/KFUK Hvað er jól í kassa ? „Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Hvert fara skókassarnir? Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er

12 | Embla

faðir Evheniy Zhabkovskiy sem komið hefur hingað til lands í heimsókn og m.a. kynnt sér starf KFUM og KFUK hér á landi. Hann starfar með KFUM í Úkraínu og er sjálfboðaliðum KFUM og KFUK innan handar þegar þau hafa farið til Úkraínu með gjafirnar. Móttökustöðvar Tekið er á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00–17:00 og á föstudögum frá kl 9:00–16:00 fram að síðasta skiladegi. Allar upplýsingar um móttökustaði og síðustu skiladaga er hægt að finna á www.kfum.is/skokassar. Síðasti móttökudagur verkefnisins fyrir jólin 2023 er laugardagurinn 11. nóvember kl. 11:00–16:00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík (gegnt Langholtsskóla).


RÁÐSTEFNA 1.–2. DESEMBER í HÖRPU BÖNNUM HVALVEIÐAR Á ÍSLANDI Gjafir í skókassana. Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka: • Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.

Skannaðu kóðann til að skrá þig!

• Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strok­ leður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni. • Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut. • Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur. • Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu. Hvað má ekki fara í skókassana? • Mikið notaðir eða illa farnir hlutir. • Matvara. • Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfanga­­­­her­ menn eða hnífar. • Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur. • Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl. • Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulíns­ dúkkur. • Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana. – KFUM/KFUK

BERJUMST FYRIR ÞEIM

SEM HAFA EKKI RÖDD

Mynd: Unsplash


Góður hestur ber engan lit Gamalt máltæki segir að „góður hestur beri engan lit” og það eru að vísu orð að sönnu, en auðvitað er gaman að fjölbreytninni og eftirsóknarvert er að viðhalda litafjöldanum í stofninum um leið og við ræktum gæðahross. Litafjölbreytni er eitt einkenna íslenska hestsins. Litir skipta tugum og með litaafbrigðum má segja að vel á annað hundrað lita séu til í íslenska hrossastofninum. Algengustu litirnir eru rautt og brúnt, en aðrir litir eru t.d. jarpt, bleikt, móálótt, bleikálótt, grátt, leirljóst, móvindótt og bleikt. Eins og taflan sýnir eru litirnir rautt og brúnt algengastir, báðir yfir 30%. Síðan kemur jarpt með rúm 16%, en tíðni allra annarra lita er undir 10%. Litir á einstökum hestum fara eftir því hverjir litirnir á foreldrum þeirra voru. Í hópi hrossa sem var skoðaður voru alls 5.388 skjóttir hestar eða 8,4%. Skjóttir hestar teljast því ekki sjaldgæfir. Á það verður þó að benda hér að skjótti liturinn er bara hvít skella eða skellur á hrossi sem er með einhvern annan lit, til dæmis rauðan eða brúnan. Það sama er að segja um litförótt hross sem voru 250 eða 0,4% í könnuninni. Þau eru með hvít hár innan um hár með öðrum lit. Skjótt og litförótt eru sem sagt ekki aðallitir og eru þess vegna ekki

tilgreind í töflunni hér að neðan. Þau geta komið fyrir í flestum aðallitum, að minnsta kosti þau skjóttu. Einnig eru ýmis önnur sérkenni sem prýða hesta. Þeir geta verið stjörnóttir, með stjörnu í enninu, eða tvístjörnóttir, með stjörnu í enni og á nefi, .Blesóttir, með blesu yfir allt andlitið. Svo geta þeir verið með sokka eða leista á fótum og margt fleira. Nokkrar góðar bækur eru til um liti íslenska hestsins og er gaman að lesa sér til um litina og hvernig þeir blandast og erfast. Sumir litir eru sjaldgæfari en aðrir, t.d. moldótt, vindótt og litförótt. Litförótti liturinn telst meira að segja í útrýmingarhættu, en átak hefur verið gert í að bjarga honum. Lesa má um erfðir á hrossalitum í bókinni Íslenski hesturinn - litir og erfðir eftir Stefán Aðalsteinsson með myndum Friðþjófs Þorkelssonar og teikn­ ingum Péturs Behrens, sem út kom hjá Orms­ tungu 2001.

Mynd: Unsplash

14 | Embla

Litur

Tíðni (%)

Rautt

31,7

Brúnt

30,1

Jarpt

16,3

Grátt

7,6

Bleikálótt

5,3

Leirljós

3,0

Móálótt

3,0

Vindótt

1,7

Moldótt

1,2

Hvítingjar

0,1


N U T N E R P Í U – GÆÐI

ST

U N Ó J Þ Í I Ð GÆ

Vantar þig uppsetningu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum eða umbrot á blöðum eða bókum?

OPIÐ MÁNUDAGA til FIMMTUDAGA: 8:00–16.00 OPIÐ FÖSTUDAGA: 8:00–14:30

Í forvinnslunni er tekið á móti alls kyns verkefnum til uppsetningar. Einnig er tekið á móti tilbúnum gögnum og þau undirbúin fyrir prentun.

Skemmuvegi 4, blá gata 200 Kópavogi

FORVINNSLA

PRENTUN

540 1800

FRÁGANGUR


ÞÍN RÉTTIND

– stéttarféla

I SKIPTA OK

g í prent- og

KUR MÁLI

miðlunargre

inum

Komin tími á endurmenntun?

GRAFÍA

Sæktu um námsstyrk rafrænt inn á www.grafia.is/thjonusta/namsstyrkir • Nám innanlands og erlendis • Tómstundanám • Ferðastyrkur landsbyggðarfélaga • Umsækjendur í virkri atvinnuleit

Stórhöfða 31, 3

grafia.

0 100 | grafia@

avík | Sími 540 .hæð | 110 Reykj


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Sól Aðalsteinsdóttir by Tækniskólinn - Issuu