Grafísk miðlun vor 2022 14. tbl. 11. árg.
MENNT ER MÁTTUR IÐAN fræðslusetur býður upp á fjölda námskeiða fyrir fagfólk í iðnaði.
Við bjóðum upp á: Símenntun gefur þér kost á betri
• Staðnám
tækifærum á vinnumarkaði.
• Fjarnám • Vefnámskeið
Skoðaðu úrval námskeiða inná www.idan.is
Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavik | Sími 590 6400 | idan@idan.is
Efnisyfirlit 4
Um mig
6
Flottir köfunarstaðir í heiminum
9
Frönsk súkkulaðikaka
10
FIDI
11
Viðtal við Aldísi Ósk Unnarsdóttur
12
Indónesía
14
Hvað er digital nomad?
Leiðari Nú líður að lokum í þessu frábæra en jafnframt krefjandi námi og sumarið er rétt handan við hornið. Tíminn er búinn að æða áfram, ég er búin að læra heilmikið og kynnast helling af æðislegu fólki. Námið hefur opnað fjölmargar dyr og möguleikarnir endalausir og ég er mjög spennt að sjá hvað tekur við. Þetta tímarit er einstaklings lokaverkefni hjá okkur og fjallar mitt tímarit um FIDI sem er skóli sem við heimsóttum í Ítalíu ferðinni okkar í mars, eina af mínum uppáhalds uppskriftum, nokkra flotta köfunastaði í heiminum og þrjár paradísar eyjur í Indónesíu. Gleðilegt sumar og njótið lestursins!
Umbrot og hönnun Sigríður Lára Stefánsdóttir Hönnun forsíðu Sigríður Lára Stefánsdóttir Mynd á kynningaropnu Nemendur á fyrri önn í ljósmyndun Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light Univers 65 Bold Bodini MT Regular Pappír Innsíður 130 gr. Kápa 170 gr.
4 | Embla
SIGRÍÐUR LÁRA
Ég heiti Sigríður Lára Stefánsdóttir og er 24 ára gömul, fædd og uppalin á Sauðárkróki. Mín helstu áhugamál eru ferðalög, ljósmyndun, list, hönnun, köfun, útivist og hreyfing. Ég kláraði stúdent í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2016 og vissi ekki hvað mig langaði að læra næst. Ég flutti því til Kosta Ríka eftir sumarið og fór í spænskuskóla og sjálfboðaliðastarf með villtum dýrum. Þaðan fór ég svo í mína fyrstu heimsreisu um Asíu og varð alveg heilluð af ferðalögum. Við tók tímabil þar sem ég til skiptis kom heim til að safna pening og fór í aðra reisu. Á ferðalögum mínum hitti ég stelpu sem starfaði sem grafískur hönnuður og ferðaðist um heiminn á sama tíma. Það veitti mér mikinn innblástur því það hefur alltaf heillað mig að geta starfað hvar sem er í heiminum og að geta sameinað það við áhugamál mín tengd list og hönnun varð til þess að ég ákvað að skrá mig í grafíska miðlun og sé ég alls ekki eftir því.
Embla | 5
Ljósm.: Krzysztof Odziomek
Flottir köfunarstaðir í heiminum Galapagos eyjar
Raja Ampat eyjar
Galapagos er eyjaklasi sem tilheyrir Ekvador. Eyjarnar eru virkilega vinsælar meðal kafara vegna þess að þar má finna eitt fjölbreyttasta sjávarlíf heims, þar er gott að kafa allan ársins hring og skyggni er ætíð gott.
Raja Ampat er eyjaklasi í austur Indónesíu. Svæðið er afskekkt og ekki auðvelt að komast þangað. Vegna þessa þá eru kóralrifin þar með þeim fallegustu í heimi því þau eru heil og litrík sem er sjaldgæft. En það er akkúrat það sem gerir eyjarnar virkilega vinsælar meðal kafara.
Texti: Sigríður Lára Stefánsdóttir
Köfunarsvæðin eru fjölmörg og hægt að sjá ýmsar tegundir af stórum hákörlum ásamt höfrungum, mörgæsum, sæljónum, skjaldbökum og sjávar eðlum (e. marine iguanas) sem finnast hvergi annars staðar í heiminum.
6 | Embla
Vinsælustu köfunarsvæðin eru án efa við Darwin og Wolf eyjar þar sem mestar líkur eru á að sjá hákarlategundir á borð við Galapagos hákarla, sleggjuháfa og hvalháfa. Roca Redonda er einnig vinsælt svæði en þar er hægt er að sjá neðansjávar eldfjall þar sem hákarlar og önnur dýr synda yfir. Besti tími ársins til að kafa í Galapagos er des ember til maí fyrir heitt veður og gott skyggni en júlí til desember fyrir meiri líkur á að sjá allra stærstu sjávardýrin en þá mun vera fremur kalt í veðri, mikill straumur og verra skyggni.
Sjávarlífið er einnig mjög fjölbreytt en þar hafa fundist yfir 1500 dýrategundir og í rannsókn sem var gerð töldust um 300 tegundir í aðeins einni köfun á takmörkuðu svæði. Kafarar ná því að sjá ótal margt í aðeins einni köfun. Vinsælustu köfunarsvæðin eru Melissa garden þar sem mestar líkur eru á að sjá hinn sjaldgæfa teppahákarl (e. wobbegong shark), Capre Ki því þar á að vera hægt að sjá sem flestar tegundir í aðeins einni köfun og hið fræga Abrorek Jetty þar sem þúsundir fiska umkringja mann. Best tími ársins til að kafa í Raja Ampat er október til apríl.
Maldíveyjar Maldíveyjar er eyjaríki í Indlandshafi og eru sam tals 1.192 talsins. Þær eru þekktastar fyrir sínar
skjanna hvítu strendur og tæra turkísbláa sjó. En þar er einnig gífurlega vinsælt að kafa, sjávarlífið er stórbrotið og kóralrifin litrík og heilleg. Þar eru líkur á að sjá allt það helsta eins og hvalháfa, höfrunga, skjaldbökur, nokkra metra stórar djöflaskötur, sleggjuháfa og minni tegundir hákarla ásamt allskyns litríkum fiskum og fallegum kóralrifum.
Rauða hafið Rauða hafið er flói eða innhaf úr Indlandshafi á milli Afríku og Arabíu skagans í Asíu. Það er einn af vinsælustu köfunarstöðum heims og af góðri ástæðu, en þar má nefnilega finna ótal mörg
Vinsælustu köfunarsvæðin eru Fotteyo Kandu í Vaavu Atoll fyrir fallega kletta, hella og fjölbreytt sjávarlíf, Dhigurah Island í Ari Atoll fyrir mestar líkur á að sjá stóru dýrin og Filitheyo Island í North Nilandhe Atoll fyrir virkilega falleg kóralrif, fjölbreytt sjávarlíf og kafa við skipsflakið Km Agro Mina Wreck. Besti tími ársins til að kafa í Maldíveyjum er ágúst til nóvember fyrir mestar líkur á að sjá stóru sjávardýrin en janúar til apríl fyrir besta skyggnið og heitara í veðri.
Skipsflaks köfun
Ljósm.: Sven Hanschei
RÁÐSTEFNA UM VERNDUN OG VELFERÐ VILLTRA DÝRA Í HÖRPU 1.–2. MAÍ Frábærir fyrirlestrar og hátíðarmálsverður við ráðstefnulok.
Skannaðu kóðann fyrir frekari upplýsingar.
Besti tími ársins til að kafa í Rauða hafinu er mars til maí þegar hitinn er passlegur og mestar líkur eru á að sjá hvalháf og einnig september til nóvember þegar hitinn er aftur orðinn passlegur eftir sumar mánuðina og mestar líkur eru á að sjá hinn sjaldséða skottháf (e. thresher shark) og stórar djöflaskötur.
Filippseyjar Filippseyjar er eyjaklasi í Suðaustur-Asíu og saman stendur af 7.641 eyjum. Þær eru ekki jafn þekktar meðal kafara eins og aðrir staðir en þær eru þó alls ekki síðri og eru sífellt að verða vinsælli. Skjaldbaka
Ljósm.: Tropic Dreams
skipsflök, heilleg kóralrif, litríka fiska, fjölda hákarl tegunda, höfrunga og síðast en ekki síst hina sjaldséðu sækú, sem marga kafara dreymir um að kafa með. Til að kafa í Rauða hafinu er algengast að fólk ferðist til Egyptalands og fari svo með bát á Rauða hafið, hægt er að bóka dagsferðir en til að komast á allra vinsælustu köfunarsvæðin þarf að bóka nokkra daga bátsferð. SS Thistlegorm Wreck er lang vinsælasta köfunar svæði Rauða hafsins en þar er skip sem sökk í seinni heimsstyrjöldinni og geta kafarar farið inn í flakið og séð mótorhjól, bíla og vopn sem skipið var að flytja á sínum tíma. Í kringum skips flakið er einnig fjölbreytt dýralíf. Önnur vinsæl köfunarsvæði eru The Blue Hole í Dahab þar er landslagið virkilega fallegt, kafað er í gegnum kletta og að lokum kemur maður að stórri blárri holu sem virðist ná endalaust langt niður og Shark og Yolanda Reef í Ras Mohammed sem hefur verið valið eitt af bestu köfunarsvæðum heims vegna fegurðar þess en þar er 800 metra hár klettaveggur með flottu sjávarlífi sem kafað er með fram þar til komið er að litríku kóralrifi.
8 | Embla
Þar er hægt að kafa við skipsflök frá seinni heimsstyrjöldinni, með stórum hópum af hval háfum, skjaldbökum, hundruð litríka fiska og sjá falleg kóralrif svo eitthvað sé nefnt. Við eyjuna Malapascua er einnig besti staður heims til að kafa með stórum hópum af skottháfum (e. thresher shark) allan ársins hring en þeir eru fremur sjaldséðir í heiminum og finnast ekki á mörgum stöðum. Vinsælustu köfunarsvæðin eru Tubbataha sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir stórbrotið landslag, heila kóralla og fjölbreytt sjávarlíf, sérstaklega af smáfiskum, Coron Bay og Apo Reef fyrir fall ega klettaveggi, hella, ellefu skipsflök frá seinni heimsstyrjöldinni og annað lengsta kóralrif heims og Malapascua til að sjá áðurnefnda skottháfa.
Kafarar
Ljósm.: San4ezzi
Frönsk súkkulaðikaka Aðferð Innihaldsefni 200 gr. suðusúkkulaði 200 gr. smjör 4 stk. egg 2 dl. sykur 2 1/2 dl. hveiti 1 tsk. lyftiduft
Meðlæti Vanilluís eða þeyttur rjómi Jarðaber
1.
Suðusúkkulaði og smjör brætt saman
2.
Egg og sykur þeytt vel
3.
Súkkulaði-smjörblöndunni er blandað varlega saman við þeyttu eggin og sykurinn
4.
Hveiti og lyftidufti er svo blandað varlega saman við
5.
Hellið jafnt í nokkur lítil eldföst mót eða í eitt stórt
6.
Bakið í 15 mínútur við 225°c
7.
Þegar kakan er tekin út er best að leyfa henni að kólna örlítið áður en borið er fram. Athugið að hún á að vera blaut í miðjunni
8.
Berið fram með ís eða þeytið rjóma.
9.
Jarðaber skorin niður og borin fram.
Embla | 9
Ljósm.: Ali Nuredini
Florence Institude of Design International Florence Institude of Design International eða FIDI eins og hann er einnig kallaður er alþjóðlegur hönnunarskóli staðsettur í miðborg Flórens í Ítalíu. Þar er hægt að læra grafíska hönnun, innanhúss hönnun, húsgagna hönnun og arkitekt. Í boði er diplómu nám, bachelor nám eða master nám. Einnig er hægt að taka fjögurra vikna sumar námskeið í júní ár hvert.
og eru kennslustofurnar settar upp með það í huga að veita innblástur og ýta undir skapandi hugsun. Nemendur finna sér húsnæði sjálfir á meðan náminu stendur en skólinn hjálpar til við það. Mælt er með að vera í miðbæ Flórens upp á að það sé stutt að koma sér í skólann.
Texti: Sigríður Lára Stefánsdóttir
Lögð er mikil áhersla á bæði listræna hönnun sem og tæknilegan frágang. Unnið er á öll helstu forrit sem notuð eru á evrópskum vinnumarkaði. Þar sem skólinn er staðsettur í miðbæ Flórens eru mörg helstu listasöfn borgarinnar ekki langt frá og því er reglulega farið í vettvangsferðir og eru þær hluti af náminu. Kennt er í tveim byggingum stutt frá hvor annarri og er mikill sjarmi yfir þeim. Þær voru byggðar um 1700 og eiga sér sögulegt gildi og var því passað að leyfa húsunum að halda sínu upprunalega útliti þrátt fyrir að vera breytt í skóla. Rýmin eru dæmi um konunglegu Baroque innanhússhönnunina þar sem málverk eru í loftunum og einstaka veggjum
10 | Embla
Flórens
Ljósm.: Bence Boros
VIÐTAL Aldís Ósk Unnarsdóttir Hvað heitir þú? Aldís Ósk Unnarsdóttir. Við hvað starfar þú? Ég er að leita mér að hönnunarstarfi á Íslandi. Hvar stundaðir þú nám? Ég fór í árs undirbúnings nám í grafískri hönnun við Florence Design Acedemy á Ítalíu. Síðan fór ég í Florence Institute of Design International (FIDI) og lauk síðan BA gráðu við Univeristy of Chester í hönnun, sem er í samstarfi við FIDI. Mæliru með FIDI? Mér fannst FIDI bjóða upp á fjölbreytta og per sónulega kennslu. Þetta er fínt nám fyrir þá sem vilja hefja sinn feril í grafískri hönnun og góður undirbúningur fyrir þá sem ákveða að fara í áframhaldandi háskólanám. Hvað var skemmtilegast við námið? Mér fannst skemmtilegt hvað við fengum að vera sjálfstæð í náminu og að kennararnir voru opnir fyrir mismunandi hugmyndum. Maður fékk að finna sinn eigin stíl en samt með góðri leiðsögn.
Aldís Ósk Unnarsdóttir
Ertu með einhver ráð fyrir þá sem eru að hugsa um að sækja um þar? Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að búa erlendis og þar sem að FIDI er alþjóðlegur skóli og kenndur á ensku er þetta einnig frábært tækifæri til að hitta mismunandi fólk og menningar frá öllum löndum. Það er því mikilvægt að vera opin fyrir og aðlagast nýjum menningarháttum. Var umsóknarferlið erfitt? Umsóknarferlið í FIDI var mjög einfalt. Ef ég man rétt þá þurfti að senda inn einkunnir úr framhalds skóla og svara umsóknareyðublaði. Þau eru mjög dugleg að svara tölvupóstum fljótlega og hjálpa manni í gegnum ferlið ef þörf er á. Er erfitt að finna húsnæði í Flórens?
En leiðilegast/mest krefjandi? Þau lögðu áherslu á hugsunarferlið á bakvið hug myndirnar á verkefnum. Lögðu mikla áherslu á að vera með frumlegar og nýstárlegar hugmyndir og oft fannst mér það krefjandi. Hvernig fannst þér að búa á Ítalíu? Ég bjó á Ítalíu í rúm 5 ár og samband mitt við landið þróaðist á þeim tíma, bæði á góðan og slæman hátt. Menningin og fólkið er ólíkt því sem maður er vanur á Íslandi en mér fannst fínt að búa á Ítalíu.
Það er mjög auðvelt að finna húsnæði nálægt skólanum í Flórens. Flórens er lítil borg og er þess vegna létt að labba í skólann hvaðan sem er, samgöngur í Flórens eru líka góðar. Leiguverð eru mjög mismunandi og hef ég reynslu á því að oft er svindlað á erlendum nemendum þannig það er gott að hafa hugmynd um ásættanlegt leiguverð áður en maður byrjar leit. Ég hef búið í fimm íbúðum í Flórens sem eru staðsettar nálægt skólanum og fann þær allar á innan við viku.
Embla | 11
Ljósm.: Sigríður Lára Stefánsdóttir og Ísak Atli Finnbogason
Texti: Sigríður Lára Stefánsdóttir
Indónesía Indónesía er er land í Suðaustur-Asíu sem saman stendur af 17.508 eyjum sem eru hver annarri fallegri. Hér verður fjallað um þrjár þeirra en þær eru Balí, Nusa Penida og Komodo. Balí Balí er lang vinsælust og þekktust af eyjum Indónesíu. Hún er virkilega falleg og bíður upp á allt fyrir alla enda er hún mjög fjölbreytt eftir landshlutum þó hún sé lítil á stærð. Í norðri er landið hærra frá sjávarmáli og því örlítið svalara þar en þangað ferðast fólk til að upplifa algjöra fossaparadís og æðislega náttúru.
Í austri eru hrísgrjóna akrar á hverju strái og stórbrotið útsýni yfir eldfjöll á borð við Mt. Agung og Mt. Batur. Vinsælt er að ganga upp á þau við sólarupprás og njóta útsýnisins. Í miðju eyjarinnar er borgin Ubud sem er miðja menningarinnar, þar eru vinsælir markaðir, manngerði apaskógurinn inn í miðri borg, mikil kaffiframleiðsla og stutt í marga fossa sem og hrísgrjónaakra. Í suðri eru vinsælu strandabæirnir á borð við Canggu og Uluwatu. Þar velja flestir „digital nomads” að búa, þar er mikið um surf, góða veitingastaði og kaffihús.
Það sem er gaman að skoða á Balí:
Norður Balí
Austur Balí
Miðja Balí
Suður Balí
Leke Leke Waterfall Nungnung Waterfall Handara Gate Hidden Hills Wanagiri Sekumpul Waterfall
Gista á Hideout Bali Titra Gangga Water Palace Bikit Cinta View Point Lempuyang Temple Blue Lagoon Beach
Ubud Market Monkey Forest Tegallalang Rice Terrace Blómabað á Udaya Resort Kanto Lampo Waterfall
Tegal Wangi Beach Surf námskeið Karang Boma Cliff Old Mans Melasti Beach
12 | Embla
Nusa Penida Nusa Penida er ein af þremur Nusa eyjum í kring um Balí. Hún fellur örlítið í skuggann á Balí en er þó alls ekki síðri. Hún er algjör ævintýra eyja en er þó þekkt fyrir slæma vegi og flestir enda á að sprengja dekk á vespunni sinni allavega einu sinni á ferð sinni um eyjuna. Það sem er gaman að skoða á Nusa Penida:
Diamond Beach Thousand Island Viewpoint Snorkla á Manta Point Kelingking Beach Angels Billabong Broken Beach Cristal Bay
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Verð frá aðeins 6.990 kr. Sjáðu úrval áfangastaða á heimasíðu okkar www.loftur.is
Kelingking
Ljósm.: Paolo Nicolello
LOFTUR Ármúli 11 | 108 Reykjavík | Sími 855 4585 | loftur@loftur.is
Komodo Komodo er eyja í austur Indónesíu, um klukkutíma flug frá Balí. Það eru nokkuð fáir sem ferðast þangað miðað við Balí og eyjarnar þar í kring, þannig ef maður vill fá frí frá fjölmennum túrista stöðum þá er þetta rétti staðurinn. Komodo er sérstök eyja vegna þess að þar búa einu drekar heimsins en það eru Komodo drekarnir og hægt er að fara í ferð til að sjá þá. Í kringum Komodo er einnig stórbrotið landslag sem er vert að skoða, einnig er gífurlega vinsælt að kafa þar.
Komodo dreki
Ljósm.: Sergey Uryadnikov
Það sem er gaman að skoða á Komodo:
Padar Island Pink Beach Komodo drekar Kelingking Beach Kafa á Manta Point Pink Beach
Ljósm.: Thrithot
Hvað er digital nomad? Digital nomad er fólk sem á ekki neitt fast heimili, vinnur í gegnum netið og getur því verið hvar sem er.
Texti: Sigríður Lára Stefánsdóttir
Stærsta stökkið þegar kemur að því að ger ast digital nomad felst í því stóra skrefi að stíga út fyrir þægindarammann, kveðja örugga 8–4 starfið og yfirgefa heimilið sitt. Það þarf hugrekki til að fara þá leið og yfirleitt er það nákvæmlega það sem heldur aftur af mörg um þegar kemur að því að láta drauma sína rætast. Fólk sem kýs þennan lífstíl þráir frelsi, að geta unnið hvar sem er i heiminum, ferðast, kynnst nýju fólki og ráðið sínum vinnutíma sjálft. Digital nomads vinna fjarvinnu og eina sem þeir þurfa eru fartölva og gott internet.
Gallinn við að vera digital nomad er að í upp hafi þarft þú að finna nýja vinnu sem getur verið streituvaldandi og þreytandi og það að vita aldrei nákvæmlega hvað þú færð útborgað hvern mánuðinn á meðan þú ert nýr í þessu.
Vinsælt er að vinna við samfélagsmiðla, ljós myndun, hönnun og forritun svo dæmi séu nefnd. Flestir vinna sjálstætt en einnig vinnur fjöldi fólks hjá fyrirtækjum sem hægt er að vinna hjá í gegnum netið.
Vinsælustu staðirnir sem digital nomads kjósa að vera á eru Balí í Indónesíu, Tæland, Mexico, Argentína, Malasía og Kólumbía. Ástæður þess eru hve ódýrt er að lifa þar, góða veðrið og nóg til að skoða á frídögum.
Við erum stærri en þig grunar
Við tökum að okkur forvinnslu, prentun og frágang.
Skemmuvegur 4 | 200 Kópavogur | Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is
Þín réttindi skipta okkur máli
Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.
Stórhöfði 31 | 110 Reykjavík | Sími 552 8755 | grafia@grafia.is
Kynntu þér réttindi þín og fáðu frekari upplýsingar inná heimasíðunni okkar www.grafia.is