Skip to main content

Embla - Margrét Lilja Stefánsdóttir

Page 1

GRAFÍSK MIÐLUN | VOR 2022 | 11. TBL. 11. ÁRG.


Símenntun

Lykillinn að velgengni Margar iðnaðargreinar þróast og breytast hratt. Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi. Iðan fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | idan@idan.is | www.idan.is


Efnisyfirlit Um mig

4

Ljúffeng döðlukaka

6

Leonardo da Vinci

7

Kúba - eins og að ferðast aftur í tímann

8

Kúba í myndum

10

Fallegar vörur fyrir heimilið

11

Viðtal - Hugrún Rúnarsdóttir

12

Vefskólinn 13 Safarí ferðir

14

Leiðari Nú er að líða að lokum á þessu frábæra en jafnframt krefjandi námi. Í náminu kynntist ég fullt af æðislegu fólki og lærði mjög mikið sem ég mun taka með mér áfram út lífið.

Umbrot og hönnun Margrét Lilja Stefánsdóttir Hönnun forsíðu Margrét Lilja Stefánsdóttir Mynd á kynningaropnu Nemendur á fyrri önn í ljósmyndun

Frá því að ég byrjaði í þessu námi hef ég fundið að þetta er eitthvað sem ég vil halda áfram að gera og jafnvel læra eitthvað meira. Námið hefur opnað á fjölda möguleika og ég er spennt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun

Þetta tímarit er lokaverkefni mitt í þessu námi og ákvað ég að fjalla um nokkra hluti sem tengjast mínu áhugasviði. Í tímaritinu er uppskrift af góðri köku sem og fjallað um list, ferðalög, fallegar vörur á heimilið, viðtal og svo enn meira um ferðalög, enda er það mitt helsta áhugamál. Ég vona að þú njótir lestursins og ég óska þér gleðilegs sumars!

Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír Innsíður 130 g/m² Kápa 170 g/m²


4 | Embla


Margrét Lilja Ég heiti Margrét Lilja og er 24 ára, fædd og uppalin á Sauðárkróki. Ég útskrifaðist með stúdentspróf árið 2016 af félagsfræði- og hagfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Eftir útskrift þaðan ferðaðist ég mikið, fór t.d. í tvær heimsreisur – eina tveggja mánaða reisu og eina átta mánaða reisu. Ég var því búin að hafa nógan tíma til að hugsa hvað mig langaði að læra, en ekkert nám var að heilla mig, þar til ég sá grafíska miðlun hjá Tækniskólanum. Það sem heillaði mig við námið var að ég sá hvað það væri skapandi og fjölbreytt og byði upp á marga möguleika eftir námið. Ég sá einnig að í náminu myndu nokkur af mínum helstu áhugamálum koma saman. Mín helstu áhugamál eru ferðalög, ljósmyndun, hönnun og list, samvera með fjölskyldu og vinum, köfun, hreyfing og útivist.

Takk fyrir og njótið!

Embla | 5


Ljúffeng döðlukaka með marssósu

Döðlukakan Hráefni Sykur Smjör Egg Hveiti Döðlur Matarsódi Kanill Salt Vanilludropar Lyftiduft

Magn 5 msk. 120 g 2 stk. 100 g 210 g 1 tsk. ½ tsk. ½ tsk. ½ tsk. 1½ tsk.

Marssósan Hráefni Mars Rjómi

Magn 4 stk. 2 dl

Aðferð Döðlukakan

Marssósan

•

Stilla ofninn á 180°C.

•

Skera Mars stykkin í bita.

•

Setja döðlurnar í pott og láta vatn fljóta yfir.

•

Setja Mars stykkin ásamt rjómanum í pott.

•

Þegar vatnið nær suðu taka pottinn af hellunni og láta hann standa í 3–4 mínútur.

•

Bræða saman í potti á vægum hita, passa að brenna ekki við.

•

Stappa döðlurnar aðeins með gaffli.

•

Kæla í ca. 5 mínútur.

•

Blanda matarsóda vel saman við döðlumaukið.

•

Hella sósunni yfir kökuna.

•

Leyfa blöndunni að standa í smá stund.

•

Þeyta smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós.

•

Bæta eggjunum saman við og þeyta.

•

Setja þurrefnin saman við ásamt vanilludropunum.

•

Þeyta í smá stund og bæta svo döðlumaukinu saman við.

•

Hella deiginu í hringlaga form.

•

Setja inn í ofn í 35–40 mínútur við 180°C.

6 | Embla


Leonardo da Vinci Leonardo da Vinci (f. 1452, d. 1519) ólst upp í litlum bæ sem heitir Vinci og er nálægt Flórens á Ítalíu. Þegar hann varð eldri fluttist hann til Flórens til að stunda nám, en borgin var á þeim tíma afar vinsæl fyrir unga og upprennandi listamenn. Leonardo lærði undir væng hins hæfileikaríka Andrea del Verrocchio. Verk eftir da Vinci eru m.a. að finna í Uffizi safninu í Flórens. En við nokkur úr útskriftarhópnum fórum í námsferð til Ítalíu núna á vorönninni og heimsóttum einmitt Uffizi safnið og sáum verkin hans sem þar eru. Frægustu verk da Vinci eru verkin „Mona Lisa“, sem er að finna á Louvre safninu í París, og „Síðasta kvöldmáltíðin“, sem er að finna í Santa Maria delle Grazie kirkjunni í Mílan.

Verk eftir da Vinci

Ljósm.: Unsplash

Texti: Margrét Lilja Stefánsdóttir

Ráðstefna um jafnrétti til náms Í Hörpu 1.–2. maí

SKRÁNING ER HAFIN Skannaðu kóðann fyrir frekari upplýsingar


Havana, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Kúba – eins og að ferðast aftur í tímann Að ferðast til Kúbu er smá eins og að ferðast aftur í tímann. Þar er að finna mikið af gömlum fallegum byggingum og maður sér nánast bara eldgamla fornbíla á götunum. Það er ekki annað hægt en að verða strax ástfangin af landinu, menningin er svo lifandi, litrík og skemmtileg og fólkið er svo hlýlegt og allir vilja hjálpa. Internet er takmarkað í Kúbu og ekki allir sem hafa efni á þeim munaði. Fólk er ekki með internet heima hjá sér og til þess að nota internet þarf að kaupa sérstök inneignarkort með interneti sem dugar aðeins í takmarkaðan tíma og nota þau svo á sér til gerðum „símasvæðum“, en það eru garðar sem eru merktir sem símasvæði og aðeins þar næst netsamband með inneignarkortunum. Vegna þessa þá upplifði maður það að sjá hvað heimamenn lifa meira í núinu. Þau hafa ekki jafn mikið af afþreyingu í símunum og tölvunum eins og tíðkast mikið í vesturlöndunum. Fólk sat í ruggustólum fyrir utan heimili sín og fylgdist með mannlífinu, eldri karlar sátu úti að spila Dominoes, unglingarnir hópuðust saman á götuhornum og spiluðu tónlist úr „boombox“ sem þau héldu upp á öxlinni á sér, krakkarnir höfðu engan leikvöll eða fótboltavöll og voru bara að leika sér með bolta á

8 | Embla

malarvegunum. Þó að sumir hefðu kannski ekki mikið á milli handanna þá sá maður hvað þau voru hamingjusöm og nægjusöm. Á ferðalögum mínum hef ég alltaf verið svolítið fiðrildi og plana vanalega ekkert mikið fram í tím­ ann, ég kaupi t.d. alltaf bara miðann út og sé svo til hvenær ég kem heim, ég er aldrei búin að plana alla ferðina mína og veit sjaldnast hvaða áfangastaður eða land sé næst. Þessi ferðamáti reyndist mér frekar erfiður í Kúbu þar sem maður þarf að vera frekar undirbúinn þegar maður kemur þangað… sem ég var ekki. En það endaði þó allt vel og gerði góða ferðasögu.

Karlar að spila Dominoes, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja


Það sem ég hefði viljað vita áður en ég fór til Kúbu innifelur aðallega það að vera búin að gera ráð fyrir að vera ekki með neitt internet þegar maður lendir og því vera búin að undirbúa mig í samræmi við það.

mikið planað hvað maður ætlar að skoða heldur bara rölta um og leyfa ferðinni að ráða, maður gæti eytt endalausu dögunum í að rölta um götur borgarinnar án þess að leiðast.

En hérna koma nokkur góð ráð… •

•

•

• •

•

Hlaða niður „offline“ korti af landinu. Það er bæði hægt í Google Maps en það er líka til app sem heitir Maps.me og þar er einnig hægt að hlaða niður „offline“ korti. Vera búinn að vista inn á „offline“ kortið heimilisfangið á stöðunum sem maður er að gista á. Vera með útprentun eða skjáskot af öllum bókunum og gögnum sem maður gæti þurft að hafa. Vera búinn að bóka gistingu fyrstu næturnar (ég var sem betur fer búin að því). Vera búinn að kynna sér hvar og hvernig maður finnur internet inneignarkort og hver­ nig þau virka. Vera búinn að kynna sér hvað það er sem maður vill skoða á stöðunum sem maður mun fara á og skrifa það niður svo maður þurfi ekki að eyða internetkortinu í það.

Það sem ég gerði, og mæli mikið með að gera er að gista heima hjá heimafólki í svo kölluðu „casa particular“. Það gerir upplifunina svo einstaka og maður kynnist menningu landsins mun betur.

Vinales, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Vinales Lítið sveitaþorp í vesturhluta Kúbu. Þar er lítið um bílaumferð en maður sér mjög mikið af fólki á hestbaki og mikið um að fólk noti kýr með kerrur í eftirdragi til að ferja hluti á milli. Í Kúbu er mikið um tóbaks- og vindlagerð og er sérstaklega mikið um það í Vinales, en ég mæli með að fara á „tobacco farm“ og skoða hvernig ferlið fer fram. Einnig rækta þau mikið kaffi og mér fannst einnig mjög fróðlegt að sjá hvernig það fór fram. Ég mæli einnig með að fara í hestaferð um Vinales Valley, ótrúlega skemmtileg upplifun og falleg náttúra. Trinidad Litríkur og fallegur lítill bær í vesturhluta Kúbu. Ég mæli með að rölta um bæinn og skoða öll litríku húsin, skoða kirkjuna og fara upp í turninn – þar er ótrúlega fallegt 360° útsýni yfir allan bæinn. Í nálægð við bæinn er svo að finna eina af fallegustu ströndunum á suðurströnd Kúbu, en hún heitir Playa Ancon. Einnig er mikið af fallegri náttúru í kringum Trinidad.

Havana, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Staðir sem ég mæli með að skoða á Kúbu: Havana Höfuðborg Kúbu, ótrúlega litrík og lifandi borg. Í Havana mæli ég með að hafa ekkert eitthvað of

Ég var í tvær vikur á Kúbu, en ég mæli með að vera a.m.k. í tíu daga. Kúba er magnað land sem hefur upp á svo mikið að bjóða. Texti: Margrét Lilja Stefánsdóttir

Embla | 9


Kúba í myndum

Havana, Kúba

10 | Embla

Ljósm.: Margrét Lilja

Havana, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Vinales, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Havana, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja


Fallegar vörur fyrir heimilið

Vuelta borðlampi | Epal | 29.990 kr.

Alvar Aalto bretti eik | Ittala búðin | 7.990 kr.

Ostahnífasett | Reykjavík Design | 5.490 kr.

Pond spegill | Bisou | 45.990 kr.

Chamomile ilmkerti | Bisou | 4.890 kr.

Shell blómapottur | Epal | 14.500 kr.

Embla | 11


VIÐTAL

Hvað fannst þér mest krefjandi við námið? Í minningunni er það útskriftarsýningin og þá undirbúningurinn að henni, hún var krefjandi en líka rosalega skemmtileg!

Hvað heitir þú? Hugrún Rúnarsdóttir.

Hugrún Rúnarsdóttir

Hvað ert þú gömul? 27 ára á þessu ári. Hvar og hvaða nám stundaðir þú? Fyrst kláraði ég náttúrufræðibraut frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, síðan lá leið mín í grafíska miðlun sem ég kláraði, ég sleppti þó sveinsprófinu og fór beint í Vefskólann þar sem ég útskrifaðist úr vefþróun. Mælir þú með náminu sem þú ert búin að læra? Já, 100%. Ég er mjög ánægð að hafa klárað grafíska miðlun og farið síðan í Vefskólann. Það sem ég lærði í grafískri miðlun kom sér síðan mjög vel í Vefskólanum. Bæði hönnunar grunnurinn, forritin sem við notuðum og að vera búin að læra grunninn í HTML og CSS. Hvernig finnst þér þessi tvö nám spila saman? Mjög vel, grafísk miðlun er frábær grunnur fyrir Vefskólann og sem stafrænn hönnuður hefur það oft komið sér vel að hafa lært prenthönnun líka. Hvað fannst þér skemmtilegast við námið? Hvað það er stór hlutur af því verklegur og síðan samfélagið sem myndast. Það er æðislegt að vera inn í bekk sem verður svona samheldinn.

12 | Embla

Hvaða möguleika fannst þér námið opna fyrir þér? Grafísk miðlun opnaði fyrir mér möguleikana á að fara t.d. í Listaháskólann sem var upprunalega planið mitt með að fara í grafíska miðlun. En síðan frétti ég af Vefskólanum og lærði smá í forritun í náminu mínu í grafískri miðlun og þá fannst mér það lang mest spennandi. En annars hefði ég auðvitað líka getað farið að vinna sem prentsmiður og ef ég hefði gert það hefði ég að öllum líkindum reynt að fá vinnu við að setja upp tímarit eða komast inn á auglýsingastofu. Hvað varðar Vefskólann þá opnaði það fyrir mér hugbúnaðargeirann og vefstofur. Ásamt því að geta farið í áframhaldandi nám í hönnun, forritun eða verkefnastjórnun svo eitthvað sé nefnt. Hvar starfar þú og við hvað? Í dag starfa ég hjá Aranja sem er hugbúnaðarhús. Þar starfa ég sem Digital Designer, eða stafrænn hönnuður. Hver eru þín helstu verkefni í vinnunni? Að hanna og skipuleggja uppsetningu á öppum, vefsíðum og hugbúnaði. Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína? Að fá að hanna flotta vöru með skemmtilegu „contenti“ í góðu flæði, það er lang skemmtilegasta sem ég geri. Hvað finnst þér mest krefjandi við vinnuna þína? Það getur verið mjög krefjandi að þurfa að vera „creative“ alla daga alltaf. Það getur farið rosalega eftir hvernig dagsformið manns er, hvernig það gengur. Það truflar mig stundum, að geta ekki „búið til“ endalaust.


Hvað er stærsta verkefni sem þú hefur unnið að í starfi þínu? Hjá Aranja væri það Hopp appið! Sem er alltaf í stöðugri þróun. Ertu með einhver ráð fyrir þá sem stefna á sama nám og þú lærðir? Fyrir utan auðvitað að standa sig vel myndi ég segja, tengslanet. Það hefur komið mér rosalega langt og í ótrúlega skemmtilegar vinnur og verkefni. Kynnast fólkinu í geiranum og mæta á viðburði. Það mun koma sér vel í framtíðinni.

Vefskólinn Vefskólinn býður upp á nám í vefþróun með áherslu á viðmótsforritun. Námsleiðin er sérsniðin í þróun, viðmóti, not­enda­upp­lifun og for­ritun. Námsleiðin er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er 2 ára nám á fagháskólastigi. Nám í vefþróun er eina námið hér á landi sem sam­einar kennslu í vef­hönnun, viðmóti og veffor­ritun. Sérstaða námsins felst í fámennum nem­enda­hópi, góðu aðgengi að kenn­urum og náms­um­hverfi sem stuðlar að sam­heldni og sam­vinnu nem­enda. Nú er ný búið er að endurskrifa námskrána í vefþróun yfir í verkefnastýrt nám. Við það var námið stytt niður í 3 annir (90 fein) með möguleika á að ljúka því á einu ári. Þannig myndu nemendur í fullu námi taka haustönn, vorönn og svo sumarönn þar sem unnið væri að lokaverkefni í samvinnu við fyrirtæki undir leiðsögn kennara. Það eru verkefnin sem ráða námsframvindunni. Nemandi getur þannig stjórnað á hvaða hraða hann fer í gegnum námið með verkefnunum.

VIÐ OPNUM GLÆSILEGA NÝJA VERSLUN

20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM DAGANA 10.–15. MAÍ

Sótt af www.tskoli.is

OPIÐ FRÁ KL. 10–18 ALLA DAGA Faxafen 11 | 108 Reykjavík | sími 599 8888 | huginn@huginnverslun.is


SAFARÍ FERÐIR Það er mjög vinsælt þegar ferðast er til framandi landa að fara í svo kallaðar safarí ferðir. En þá fer maður með reyndum leiðsögumönnum á jeppum eða fótgangandi inn í þjóðgarða eða friðlönd þar sem dýralíf er verndað og fær að sjá villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Það er eitt það magnaðasta sem maður getur upplifað. Eftir að hafa upplifað það eru margir sem fara aldrei í dýragarða aftur, aðallega af siðferðislegum ástæðum enda er allt annað að sjá dýrin í sínu náttúrulega umhverfi. Hér á eftir kemur smá upptalning yfir þjóðgarða sem vert er að heimsækja: Serengeti þjóðgarður, Tansanía:

Safarí ferð í Udawalawe, Srí Lanka

Ljósm.: Margrét Lilja

Hann er þekktastur fyrir að þar er að finna þau fimm stóru (e. the big five), þ.e. fíla, hlébarða, ljón, buffaló og nashyrninga. Einnig er þar að finna fleiri dýr eins og blettatígur, gíraffa, sebrahesta, hýenur, flóðhesta og fleira. Patagonía þjóðgarður, Chíle: Hann er þekktastur fyrir að þar er að finna fjallaljón, kóngamörgæsir, hnúfubaka, höfrunga, kóngasæfíla, patagoníusæljón og háhyrninga. Bwindi þjóðgarður, Úganda: Hann er þekktastur fyrir að þar er að finna mjög mikið af górillum og vinsælt að fara í „gorilla trekking“. Einnig er þar að finna fíla, buffaló og fleiri dýr. Udawalawe þjóðgarður, Srí Lanka: Hann er þekktastur fyrir að þar er að finna mjög mikið af fílum. Einnig er þar að finna apa, dádýr, vatnabuffaló og fullt af fuglategundum.

Vatnabuffalóar í Udawalawe, Srí Lanka

14 | Embla

Ljósm.: Margrét Lilja

Texti: Margrét Lilja Stefánsdóttir


Þarftu að prenta? Við bjóðum upp á fjölbreytta og persónulega prentþjónustu Við tökum að okkur forvinnslu, prentun og frágang. Þú þarft ekki að gera neitt annað en að hafa samband við okkur og við sjáum um rest.

Fáðu frekari upplýsingar inná heimasíðunni okkar www.litlaprent.is

Skemmuvegur 4, blá gata | 200 Kópavogur | Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is


Þekktu þín réttindi

Kjaramál - Námsstyrkir - Tómstundanám Fræðslusjóðir - Sjúkrasjóðir - Ferðastyrkir Orlofshús - Endurmenntun - Lífeyrismál

Fáðu frekari upplýsingar inná heimasíðunni okkar www.grafia.is

Stórhöfði 31 | 110 Reykjavík | Sími 552 8755 | grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Margrét Lilja Stefánsdóttir by Tækniskólinn - Issuu