Grafísk miðlun
Vor 2021 10. ÁRG. 8. TBL.
Hlaðvarp – námskeið nýtt tæki í fjölmiðlum og markaðssetningu
Á námskeiðinu verður fjallað um vöxt miðilsins, einkenni vinsælla hlaðvarpa og tekjumöguleika. Þá verður fjallað um aðferðir til að búa til hlaðvörp á einfaldan hátt, m.a. með ókeypis forritum og ódýrum upptökutækjum.
Vatnagarðar 20 │ 104 Reykjavík │ Sími 590 6400 │ idan@idan.is │ www.idan.is
Leiðari
Efnisyfirlit
Lokinsins komið að því! Nú er þessi önn að enda og við að klára síðustu verkefnin. Ég hlakka mikið til að útskrifast en samt á ég eftir að sakna skólans.
4 Um mig
6 Saga Árbæjarsafns
Embla mín fjallar um sögu Árbæjar, áhugaverðar spurningar og tæknisögu. Ég reyndi að hafa Emblu mína í mjög einföldum eða minamalist stíl. Ég er mjög ánægð með útkomuna.
8 Árbær
Ég vil þakka kennurum og samnemendum mínum fyrir skemmtilega og fróðleiksríka önn. Einnig vil ég þakka borgarsogusafn.is og visindavefur.is fyrir að leyfa mér að nota texta og myndir frá heimasíðum þeirra.
10 Er íslenski hesturinn smáhestur? 12 Hver smíðaði fyrstu tölvuna? 14 Fyrsti prentarinn á Íslandi
Hönnun og umbrot: Kristín Sif Pálsdóttir Prentun og frágangur: Kristín Sif Pálsdóttir Útgefandi: Upplýsingatækniskólinn Mynd af nemanda: Heiða Norðkvist Halldórsdóttir Pappír: Innsíður 150 g/m² Kápa 170 g/m² Letur: Univers 45 light – 9/13 pt Univers 55 roman – 9/13 pt.
KRISTÍN SIF
Ég heiti Kristín Sif Pálsdóttir og er fædd 25. febrúar árið 1991 í Reykjavík. Ég ólst upp í Seljahverfi. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að teikna, mála og að taka ljósmyndir. D raumurinn hefur verið að vinna við eitthvað þar sem ég get verið skapandi á minn eigin hátt. Ég hóf nám mitt í Tækniskólanum árið 2007 þegar ég var 16 ára. Ég var í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlagreina, en 2009 fór ég í langt námshlé. Ég sá það samt ekki fyrir mér sem námshlé og var viss um það að ég gæti ekki haldið áfram með námið. Í þessu hléi fór ég í meiri vinnu, flutti í nokkra mánuði til Liverpool og í janúar 2013 eignaðist ég frábæra litla stelpu.
Ég þráði samt alltaf að komast lengra í áminu og hafði meiri og meiri trú á mér að n ég gæti þetta núna. Þótt ég ætti erfitt með nám sem krakki og unglingur taldi ég að ég réði við þetta núna. Ég vann mig upp fyrst með því að prófa mig í námskeiðum. Frá 2527 ára aldri prófaði ég ýmsar námsgreinar. Í því kynntist ég grafískri hönnun og fann þar að þar var eitthvað sem heillaði mig. Ég vildi strax læra meira og kynnast þessu nánar. Vorönnina 2019, tíu árum eftir að ég hætt í náminu í Tækniskólanum, var ég svo komin aftur í skólann í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Nú eru tvö ár liðin síðan að ég hóf aftur nám og er mjög ánægð með að hafa staðið mig í þessu námi.
SAGA ÁRBÆJARSAFNS Minjasafn verður til
Upphaf Árbæjarsafns
Um miðja 20. öld tóku æ fleiri bæjarbúar að leiða hugann að því með nokkurri eftirsjá að „hin gamla Reykjavík“ væri að hverfa og myndi ekki koma aftur. Hreyfing komst fyrst á málefni minjasafnsins árið 1942 þegar bæjarstjórn Reykjavíkur barst skrifleg áskorun um stofnun þess. Áskoruninni var vel tekið og henni vísað til umsagnar Reykvíkinga félagsins, sem var einskonar átthagafélag höfuð staðarins. Um þetta leyti hófst söfnun á gögnum um sögu bæjarins og varð það grundvöllur að skjalasafni þess.
Um svipað leyti var gamla býlið, Árbær, sem lengi hafði verið áningarstaður fólks á leið til og frá Reykjavík, komið í eyði og bæjarhúsin illa farin vegna skemmdarverka og veðra. Árið 1957 sam þykkti bæjarráð að þar skyldi gamli bærinn verða endurbyggður og komið upp safni gamalla húsa, sem hefðu menningarsögulegt gildi. Safnið var opnað strax þá um haustið. Fyrsta verkefni Ár bæjarsafns var að endurbyggja Árbæinn. Fyrsta flutningshúsið, Smiðshús, var flutt þangað árið 1960. Ári síðar kom Dillonshús. Í dag eru yfir 20 hús á safnsvæðinu.
Næst bar það til tíðinda að árið 1945 keypti Reykjavíkurbær 118 málverk og teikningar eftir Jón Helgason biskup (1866–1942). Árið 1947 samþykkti bæjarstjórn Reykjavíkur síðan að stofna Bæjarsafn Reykjavíkur og efna til bæjarsýningar. Reykjavíkursýningin var haldin í hinu nýbyggða húsi Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu árið 1949. Af því tilefni var efnt til fyrsta söfnunar átaksins á reykvískum forngripum. Þetta varð til þess að árið 1954 var Skjala- og minjasafn Reykjavíkur formlega stofnað. Því var fengið húsnæði að Skúlatúni 2. Lárus Sigurbjörns son var ráðinn forstöðumaður þess og hóf hann söfnun forngripa af margvíslegu tagi.
Sameining Minjasafns og Árbæjarsafns Árið 1968 voru Minjasafn Reykjavíkur og Árbæjar safn sameinuð undir nafni hins síðarnefnda. Þá var einnig samþykkt í borgarstjórn að koma á fót embætti borgarminjavarðar og var fyrst ráðið í það starf 1974. Fyrsti borgarminjavörðurinn var Nanna Hermansson (1974–1984), síðan tók Ragnheiður Þórarinsdóttir (1984–1989) við, þriðja í röðinni var Margrét Hallgrímsdóttir (1989–2000) og þá Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2000–2014). Í maí árið 2006 opnaði Landnámssýningin í Aðalstræti 16. Þungamiðja sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu.
Þegar Árbæjarsafn var stofnað, 1957, var það spölkorn fyrir utan byggðina í Reykjavík. Síðan hefur borgin stækkað umtalsvert og nær nú langt út fyrir safnið. En þrátt fyrir bæði Höfðabakkabraut í austri og íbúðabyggð í norðri er landrými ennþá allnokkuð. Einnig nýtur safnið góðs af nálægðinni við Elliðaárdalinn, það gróskusama og víðáttu mikla útivistarsvæði. Raunar er aðdáunarvert hve framsýnir frumkvöðlar Árbæjarsafns hafa reynst í flestu tilliti. Þróunarmöguleikar safnsins virðast óþrjótandi um langa framtíð Borgarsögusafn Reykjavíkur Borgarsögusafn Reykjavíkur er nýtt sameinað safn í eigu Reykvíkinga sem tók til starfa þann 1. júní 2014 en undir það heyra: Árbæjarsafn, Landnámssýningin í Aðalstræti, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Viðey. Markmið sameiningarinnar er að efla starfsemi safnsins svo þjóna megi fjölbreyttum hópi safn gesta enn betur. Texti: www.borgarsogusafn.is Myndir úr einkaeign Borgasögusafns
Hvað gerist næst? Tryggjum framtíðina Kíktu til okkar og fáðu fría kynningu á tryggingapökkum okkar.
Heimilispakkinn Líf- og heilsupakkinn Líf og heilsa þín og þinnar er það mikilvægasta sem við höfum í okkar lífi. Þar á meðal líf annara. Þegar þú tryggir þig með okkar líf- og heilsupakka fer 20% af þinni fjárhæð í góðgerðamálið Heims Börn.
Ökutækjapakkinn Ökutækjapakkinn innifelur skyldu tryggingökutækja, kaskótrygging og bílaábyrgð.
Hringdu í 551 2389 og talaðu við ráðgjafa okkar!
Trygginafélagið Sunna Aðallind 4 102 RVK www.tryggsunna.is sunna@tryggsunna.is
ÁRBÆR Fyrstu heimildir um Árbæ Líklegt er að búskapur hafi byrjað í Elliðaárdalnum fljótlega eftir landnám. Árbærinn er þó fyrst nefndur í heimildum á 15. öld, en þess var heldur ekki að vænta um laklega meðaljörð að henni væri gefinn mikill gaumur. Í Árbæ bjó alla tíð óbreytt alþýðufólk sem stritaði myrkranna á milli fyrir brýnustu nauð þurftum, en átti strjálar ánægjustundir. Á 15. öld var jörðin í eigu Viðeyjarklausturs, hafði hugsanlega verið gefin þ angað í sáluhjálparskyni. Við siðaskiptin 1550 runnu allar eigur klaustra til Danakonungs og var Árbær þar á meðal. Við eyjarklaustur mun hafa verið nokkuð harður lands drottinn, en nú versnaði ástandið því að Bessa staðavaldið íþyngdi leiguliðum sínum stórum meira en almennt gerðist. Um ábúendur, jörðina og bústofninn Fyrstu glöggu myndina af Árbæ og búendum hans er að finna í jarðabók Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns frá 1703–1707. Lýsing á jörðinni er gagn orð: „Tún meinlega grýtt og þýfð. Engi mjög lítið... Torfskurður til húsagjörðar nægur, en til eldiviðar tekur hann mjög að þverra.“ Tvíbýli var á bænum. Annar ábúandinn var með þrjár kýr, kvígu og tvo hesta. Hinn ábúandinn hafði einnig þrjár kýr, naut, kálf og einn hest. Hvorugur þeirra hafði sauðfé. Þrátt fyrir lítinn bústofn voru álögur á búend ur miklar. Landskuld, þ.e. leiga af jörðinni, var reiknuð út frá jarðardýrleika eins og almennt gerðist og greidd með fé á fæti eða fiski. Bú stofninn var einnig í konungseigu og greiddist leiga af h onum í smjöri. Ofan á þetta bættust umtalsverðar vinnukvaðir: við sjóróðra frá Örfiris ey, veiðar í Elliðaánum, heyskap í Viðey, mótekju, hrístekju og fleira. Einnig bar landsetum að lána hross til ýmissa verka. Konungur hafði slegið eign sinni á laxveiði í Elliðaánum og lágu þung viðurlög við veiðiþjófnaði.
Upp úr aldamótunum 1800 fór konungur að selja jarðirnar við Elliðaár. Árið 1838 seldi hann Árbæ fyrir 270 ríkisdali. Til samanburðar má nefna að bærinn Ártún var seldur fyrir 210 rd., Kleppur fyrir 400 rd., Bústaðir fyrir 464 rd. og Elliðavatn fyrir 639 rd. Margrét og Eyleifur Árið 1881 fluttust að Árbæ hjónin Margrét Péturs dóttir og Eyleifur Einarsson. Fram að því höfðu ver ið tíð búsetuskipti á jörðinni, en nú varð breyting á því. Eyleifur bjó þar til dánardags árið 1907, en Margrét bjó áfram á bænum til 1935, er hún lést. Kristjana Eyleifsdóttir tók við búinu af móður sinni og bjó í Árbæ til 1948, en þá lagðist hann í eyði. Þau Margrét og Eyleifur byggðu upp bæinn og endurnýjuðu. Árið 1891 reif Eyleifur torfbað stofuna og reisti á grunni hennar hús sem var að mestu leyti úr timbri, hæð og ris, bárujárnsklætt. Þar var góð gestastofa með eldhúsi aftan til og baðstofu yfir. Árið 1911 lét Margrét reisa eina húslengju við norðurhlið baðstofunnar og hest hús þar norður af nokkrum árum seinna. Húsin standa hlið við hlið og snúa stafnar fram á hlað. Á þann hátt var húsaskipan gamla torfbæjarins haldið. Í núverandi mynd er Árbær á síðasta stigi í þróun íslenska torfbæjarins, nokkurs konar milli stigi frá torfbænum til timburhússins. Var það í samræmi við þróun mála á sunnanverðu landinu í lok 19. aldar.
Fjárhús og hesthús Tvö fjárhús voru austan við Árbæinn í tíð síðustu ábúenda. Veggir þeirra voru hlaðnir úr torfi og grjóti, bæði langveggir og gaflveggir. Þakgrind var úr rekaviði og reft yfir með torfi. Annað fjárhúsið hefur verið hlaðið upp að nýju og stendur nú við syðri stíginn að Árbænum. Hitt húsið stóð heldur ofar í túninu en er nú ekki sýnilegt. Hesthús, sömu gerðar og fjárhúsið, stendur í suðurjaðrinum á túni Árbæjar. Ekki er ljóst hvenær það var fyrst byggt. Árið 1991 hafði þak þess fallið og var það þá lagfært. Texti: www.borgarsogusafn.is Myndir úr einkaeign Borgasögusafns
Er íslenski hesturinn smáhestur?
Íslenski hesturinn
Íslenski hesturinn er eina hestakynið á Íslandi. Hann hefur ekki blandast öðrum hestakynjum og er því hreinræktaður. Íslendingar hafa alltaf kallað hann hest en ekki smáhest og sama málhefð er í öllum þeim rúmlega 30 löndum þar sem hann er haldinn. Víða erlendis er hefðin sú að eingöngu börn ríða smáhestum. Frá upphafi Íslandsbyggðar hefur hins vegar tíðkast að bæði fullorðnir og börn ríði íslenska hestinum enda var hann nauðsynlegur fararskjóti á veglausu landinu allt þar til vélknúin farartæki komu á 20. öldinni. Í dag er hann notaður af fullorðnum jafnt sem börnum í almennar út reiðar, hestaferðalög, í reiðskólum, fjölbreyttum keppnisíþróttum og sýningum í rúmlega 30 þjóð löndum. Það er því góð reynsla af því að bæði fullorðnir og börn ríði íslenska hestinum. Rannsóknir hafa líka staðfest að lífeðlisfræðilega ræður hann vel við að bera fullorðna knapa. Í raun hefur íslenski hesturinn verið ræktaður sérstaklega með það að markmiði að geta verið reiðskjóti fullorðinna. Allt frá því að farið var að nota stigskipta einkunnagjöf við mat á kynbótahrossum (1950) hafa gang tegundir þeirra, vilji og framganga verið metin í reið, þannig að ætla má að til framræktunar hafi verið valin þau hross sem hreyfa sig best undir knapa. Þeir eiginleikar hestsins sem styðja mest að hann verðskuldi að kallast hestur en ekki smáhestur eru einmitt hinir miklu reiðhestshæfi leikar sem hann býr yfir, fjölhæfni á gangi (fimm gangtegundir), hraðinn, krafturinn og úthaldið. Að þessu leyti stenst íslenski hesturinn samanburð við mörg erlend og stærri reiðhestakyn og hefur jafnvel meiri reiðhestshæfileika en þau. Það er þó hægt að færa ákveðin rök fyrir því út
Talið er að íslenski hesturinn hafi komið hingað til lands á landnámstímanum og hefur hann aðlagast náttúru og veðurfari á Íslandi mjög vel. Landnámsmenn komu með búfénað með sér frá Evrópu þar á meðal var úrval gæðinga. Hrossin sem landnámsmenn komu með sér voru af ýmsum uppruna þó aðallega germönskum. Heimildum ber ekki saman um hver uppruni íslenska hestsins er en talið er að hann eigi sameiginlegan uppruna með norska lynghestinum og eigi þau kyn ættir sínar að rekja til taminna hrossa í Mongólíu.
frá líkamsbyggingu og líffræðilegum eiginleikum íslenska hestsins að hann ætti að flokkast fremur sem smáhestur en hestur. Í fyrsta lagi er hann fremur smár, en víða erlendis er miðað við ákveðna hæð á herðar (147 cm) þegar skilið er á milli smá hesta og hesta. Meðalhæð íslenska hestakynsins hefur aukist umtalsvert frá upphafi skipulegs ræktunarstarfs um aldamótin 1900, en hún er núna um 141 cm, og stóðhestar eru að meðaltali stærri en hryssur. Það er einnig mikill breytileiki í stærðinni innan stofnsins og einhver hluti hans er hærri en 147 cm. Í öðru lagi eru margir lífeðlisfræðilegir eiginleikar svo sem fóðurþarfir, melting, efnaskipti og átgeta, sem greina á milli smáhesta og hesta. Til eru rannsóknir sem sýna að smáhestar hafa meiri hæfileika en hestar til að þrífast betur á trénisríku fóðri (grasi og heyi). Enn fremur hafa þeir oft heldur minni orkuþörf en hestar og eru gjarnan metnir vera þurftalitlir (e. easy keeper) og fitna margir auðveldlega (miklir fitusöfnunarhæfileikar). Samanborið við hesta ráða efnaskipti og melting smáhesta líka verr við mikið magn af einföldum kolvetnum í fóðri sem finnast í umtalsverðu magni í korni og kjarnfóðri. Það eru því rök bæði með og á móti því að kalla íslenska hestinn frekar hest en smáhest. Ákveðnir líffræðilegir og lífeðlisfræðilegir eiginleikar mæla á móti því að hann sé hestur en reiðhestshæfileikar, notkun og aldalöng málhefð mælir hins vegar með því að hann sé kallaður hestur. Þegar þetta er metið saman ættum við að halda okkur við að tala um íslenska hestinn sem hest en ekki smáhest. Texti: visindarvefur.is – Guðrún Stefánsdóttir Myndir: Studio REVOLT
Einnig kemur fram í heimildum að íslenski hesturinn sé skyldur „equus caballus scandinavicus“ hrossakyni sem var upp í Norður-Evrópu á meðan aðrir telja hann náskyldan breska smáhestinum Exmoor. Þrátt fyrir að íslenski hesturinn hafi verið að blönduðu kyni til að byrja hefur hann þróast síðan á 11. öld án blöndunar við aðra hesta stofna og hefur hann því haldið ýmsum eiginleikum sem hafa tapast hjá öðrum hestak ynum. Texti: Wikipedia síðan Íslenski hesturinn
Hver smíðaði fyrstu tölvuna? Margir telja að bandaríska reiknivélin ENIAC hafi verið sú fyrsta sem stóð undir nafninu tölva. Hún var smíðuð við Pennsylvaníuháskóla í Bandaríkj unum og var tekin í notkun árið 1946. Vinnslugeta hennar var á við lítinn vasareikni. Að baki því sem í dag heitir tölva liggur aldalöng þróun og ótal uppfinningar. Um aldir notuðu menn ýmis hjálpartæki við útreikninga, svo sem talna grind og reiknistokk. Talnagrindin er upp fundin í Kína, reiknistokkurinn í Evrópu. Á 12. öld birtist hugmyndin um reikniforskrift í ritum Al‘Khwarizmi frá Úzbekistan sem skrifaði meðal annars útbreitt rit um reikning. Alþjóðaorðið um slíkar forskrift ir, algorithm, er einmitt kennt við Al‘Khwarizmi. Reikniforskriftir eru formleg fyrirmæli um aðgerðir, nauðsynleg forsenda þess að tölvur verki rétt. Tveir 17. aldar menn eiga heiðurinn af því að smíða fyrstu sjálfvirku reiknivélarnar. Milli 1642 og 1644 smíðaði Frakkinn Blaise Pascal, sem var stærðfræðingur og heimspekingur, reiknivél til að aðstoða skattheimtumanninn föður hans við störf sín. Og Gottfried Wilhelm Leibniz, sem var rökfræðingur, stærðfræðingur og heimspekingur,
Sögulegar tölvur ENIAC fyrsta tölvan og reiknivél
setti saman aðra reiknivél árið 1673. Reiknivél Pascals var fær um að leggja saman, draga frá og margfalda, en vél Leibniz gat einnig fundið rót og hafið tölur upp í veldi. Árið 1833 hannar Bretinn Charles Babbage „greiningarvél“ sem var þó ekki smíðuð fyrr en árið 1991 í minningu hans. Babbage er þó nefndur faðir tölvunnar fyrir hönnun sína. Greiningarvélin gat tekið við skipunum af gataspjöldum og er sú hugmynd fengin úr vefstokkum þess tíma sem gátu lesið mynstur af pappaspjöldum með göt um og unnið eftir þeim. Vélin gat einnig geymt gögn í minni þannig að hún hafði til að bera alla grunnþætti nútímatölvu. Árið 1890 vinnur Herman Hollerith keppni í Bandaríkjunum um vélar til aðstoðar við manntal sem gekk annars afar hægt. Hann átti síðar þátt að stofnun fyrirtækisins IBM. Árið 1904, stuttu eftir uppgötvun rafeindarinnar, hafði Bretinn Sir John Ambrose Fleming sótt um einkaleyfi á útvarpslampanum sem gerði mönn um kleift að stjórna rafstraumi. Síðan þá hafa reiknivélar unnið með rafmerki, en ekki eingöngu
Hugarnir á bakvið tölvurnar Háskóli Pennsylvaníu
Ár 1946
IBM 610
John Lentz
Kenbak-1
John Blankenbaker
1971
MITS
1974
Steve Wozniak, Steve Jobs og Rob Holt
1977
Adam Osborne
1981
Macintosh Division
1984
Altair 8800 Apple II Osborne 1 fyrsta fartölvan Macintosh 128K fyrsta Mac tölvan
1948–1957
tannhjól og stangir líkt og áður hafði verið. Með þessu breyttist ekki sjálf rökvirknin, sömu aðgerðir eiga sér stað formlega, en lamparnir gerðu tölv urnar hraðvirkari og minni. – Sumir segja tölvu fyrst réttnefni eftir tilkomu útvarpslampans og nefna ENIAC (Electronic Numerical Integrator and Computer) fyrstu tölvuna. Hún var tekin í notkun árið 1946 í Pennsylvaníuháskóla í Bandaríkjunum. Hún vó 30 tonn og þakti á annað hundrað fer metra en reiknigeta hennar var sambærileg við vasareikni grunnskólabarna. Árið 1947 á sér stað annar stórviðburður í tölvu þróun þegar fyrsti smárinn (e. transistor) er smíð aður á rannsóknarstofum Bell símafyrirtækisins í Bandaríkjunum. Smárinn hafði sömu virkni og lamparnir en var miklu smærri (hver smári millí metrar á kant en lamparnir sentímetrar) og hitnaði mun minna. Aftur urðu tölvur hraðvirkari og minni. 1958 eru rafrásir, smárar og aðrir íhlutir fyrst prentaðir á sílíkonflögu – örflögu. Enn smækkuðu tölvur og urðu hraðari. Um 1970 gátu menn prent að þúsundir smára og annarra íhluta á nokkurra fermillímetra flöt. 1971 bjó fyrirtækið Intel til fyrsta örgjörvann – örflögu sem sér einn um alla reikn inga og rökvirkni tölvunnar. Í kjölfar hans fæddist einkatölvan, en fram að því höfðu tölvur fyrst og fremst verið eign skóla, banka og ríkisstofnana. Fyrsta einkatölvan var framleidd árið 1974 af litlu fyrirtæki sem hét MITS. Tölvan hét Altair og studdist við örgjörva frá Intel. Þessa tölvu og fleiri sem fylgdu í kjölfarið gátu tölvuáhugamenn keypt í hlutum og sett saman sjálfir. Fyrsta einkatölvan sem seld var samansett og tilbúin til notkunar var framleidd af tölvufyrirtækinu Apple og hét Apple II. Þetta var árið 1977. Text: visindavefur.is – Haukur Már Helgason
Mesta úrval landsins af myndavélum, linsum og aukahlutum. Smiðjuvegi 9 200 Kópavogur S: 487-4444 foto@foto.is Opið virka daga 10:00-19:00 Laugardaga 12:00-17:00
FYRSTI PRENTARINN Á ÍSLANDI Elsta kunna heimildin um prentun á íslensku er í „Rechnungsbuch der Sunte Annen Brod erschop der Islandsfahrer in Hamburg“ fyrir árið 1530. Ekki er upphæðin há og Björn Þor steinsson sagnfræðingur, sem rak augun í klausuna sagði: „Af því að ekkert er getið um efni textans, þykir mér sennilegast, að hér sé um að ræða eins konar tilraun til prentunar á íslenzku og sé hún gerð að undirlagi Íslendinga, sem hafa haft í hyggju að stofna prentverk á Íslandi.“ Hvort sem hér er vísun til prentunar bókar á íslensku eða á Íslandi, er heimildin eldri en nokkur önnur sem enn er kunn. Hugsanlegt er að tengja þetta við prentarann Jón Matthías son, sem yrði þá til að styrkja, að prentun hafi hafist hér um 1530 eða fyrr. Jón Matthíasson sænski Allar heimildir eru samsaga um, að Jón biskup Arason hafi fyrstur manna flutt prentsmiðju til Íslands, en ekki er ljóst hvaða ár það var. Einnig segja allir, að prentarinn hafi heitið Jón Matthíasson eða Mattheusson og verið kallaður hinn sænski. Elsta heimild um prentsmiðju Jóns Arasonar er í íslensku handriti frá seinni hluta 16. aldar í Uppsölum í Svíþjóð, DG. 9, bl. 11v: „Þá biskup Jón Arason hafði ríkt á stóli sínum, Hólum, 5 eða 6 ár, þá lét hann fyrstur allra manna innkoma prentverk á Ísland ...“ Ekki hafa menn orðið á eitt sáttir um hvernig þetta beri að skilja. Jón Arason fékk umráð yfir Hólastól 1520, var kjörinn biskup 1522, vígður 1524 og kom til stóls 1525. Klemens Jónsson skildi þetta svo, að prentsmiðjan hefði komið fimm eða sex árum eftir að Jón biskup kom til stóls „(þ. e. 1530–1531)“ og við fyrra ártalið
miðaðist bók hans, sem gefin var út í tilefni af 400 ára afmæli prentlistar hérlendis og kom út á afmælisárinu, 1930. Þorkell Jóhannesson taldi aftur á móti og vísaði þar til samtíma kvæða, að prentsmiðjan hefði komið 1525 eða 1526. Áður en fyrrnefnd klausa í Uppsalahandritinu kom í leitirnar hafði Páll Eggert Ólason fjallað um upphaf prentverks á Íslandi og komist að þeirri niðurstöðu, að það hefði komið 1534, en fyrsta bók prentuð 1535 eða 6. Á grundvelli klausunnar skipti Páll síðar um skoðun og taldi líklegast, að prentverk hefði komið hingað 1529–30. Er það í samræmi við ártal Klemensar, sem hefur verið talið afmælisár í íslenskri prentsögu og virðist nálægt lagi. Þar sem ekki er full vissa fyrir því hvenær prentsmiðjan kom til landsins er ekki held ur vitað hvenær prentarinn Jón Matthíasson kom. Ungar sagnir herma, að Jón sænski hafi flúið úr Svíþjóð af því að hann vildi ekki aðhyll ast kenningar Lúthers, sem þar komust á um 1527. Heldur þykir það ólíklegt, því að hann varð hér síðar lútherskur prestur. Ekki er vitað um aldur hans, en Páll Eggert Ólason giskaði á, að hann hefði verið „fæddur nálægt 1500“. Öruggt er að Jón kemur fyrst við bréf, og er þá titlaður prestur, 17. okt. 1535 og aftur 6. maí 1536 (DI. IX. nr. 619, nr. 634). Ekki er ástæða til, eins og Páll Eggert gerði, að telja að hann sé þá nýlega kominn til landsins. Jón Matthíasson hefur upphaflega stundað prentverk sitt á Hólum, en um 1535 fær hann Breiðabólstað í Vesturhópi, vildarbrauð sem erkibiskup veitti. Jón lét af embætti 1566 og dó árið eftir. Hann kvæntist Helgu Jónsdóttur, sem enn var á lífi 30. júní 1594. Sonur þeirra Jón var lengi prentari á Hólum. Við prestsem bættinu á Breiðabólstað eftir Jón Matthíasson sænska tók Guðbrandur Þorláksson, síðar Hólabiskup, ein skærasta stjarnan í íslenskri prentsögu. Texti: visindavefur.is – Einar G. Pétursson Mynd: Bearfotos
Þú hannar
við prentum Engin hugmynd of stór eða of lítil!
FORVINNSLA FORVINNSLA
Veldu umhverfisvænar leiðir.
Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er.
Hafðu samband FORVINNSLA og við skoðum málið með þér.
PRENTUN
Opið virka daga 8:00–16.00
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR FRÁGANGUR
SVANSVOTTAÐ
Skemmuvegi 4, blá gata | 200 Kópavogi Sími 540 1800 | FAX: 540 1801 litlaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is
FR
Hugum að
þínum
réttindum √ √ √ √ √
Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar
www.grafia.is Stórhöfða 31 •
3. hæð •
110 Reykjavík •
Kjaramál Lífeyrismál Sjúkrasjóður Orlofssjóður Fræðslustyrkir
GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
Sími 552 8755
• grafia@grafia.is