• Fræðslusetur • Námskeið • Námssamningar • Edurmenntun • Fyrirtækjaþjónusta • Fræðsla • Hæfnismat • Raunfærnimat
Símenntun frá fyrsta degi... Prent-og miðlunargreinar eru skapandi og þróast hratt. Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi. IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík Sími 590 6400 Netfang idan@idan.is Veffang www.idan.is
4 Um mig
10 3D-hönnun
8 Saga bókarkápunnar
Comic Sans
6 Bókarkápur
12 Comic Sans
Leiðari Nú er þessi önn á enda. Hún er búin að vera ansi strembin vegna núverandi aðstæðna, fyrri önnin fór að mestu í gegnum fjarkennslu sem var mjög krefjandi. En þrátt fyrir þær hindranir er ég að far að klára námið.
Umbrot og hönnun Ísabella Ævarsdóttir
Námið sjálft var bæði fjölbreytt og skemmtilegt og kom mér á óvart hversu mikið það talaði til mín. Það skemmtilegasta við námið var að vinna þetta tímarit. Embla er nemendatímarit sem hver nemandi í Grafískri miðlun vinnur að á lokaönn. Hver og einn nemandi setur upp sitt eigið tímarit og í endanum eru allar Emblur nemenda settar saman í eitt stórt tímarit sem nefnist Askur.
Útgefandi Upplýsingatækniskólinn
Hönnun forsíðu Ísabella Ævarsdóttir
Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light Universe 55 Roman
Lagði ég mikinn metnað og tíma í þetta tímarit og ég vona að þér líki við Embluna mína. Góða skemmtun.
3
4
Ísabella Ævarsdóttir Ég heiti Ísabella Ævarsdóttir og fæddist í Reykjavík árið 1999 og er hálf hafnfirsk. Ég kem úr mikilli listamannafjölskyldu, en fáir hafa gert list eða hönnun að atvinnu. Ég hef alltaf haft gaman af list og sem barn sat ég oft á gólfinu í herbergi mínu og teiknaði. Þegar ég var yngri langaði mér að vera frægur listmálari, en ég átti aðeins fjórar málingartúpur sem barn og var þá erfitt að mála með því úrvali þannig að áhugi minn að mála dó við sjö ára aldur. Sá áhugi vaknaði til lífsins aftur eftir að ég flutti frá foreldrum mínum nítján ára og hafði frelsi til þess að versla fleiri málingartúpur. Mér langaði ekki lengur að verða listmálari heldur langaði mér að gera eitthvað annað með hönnun, en ég vissi ekki hvað. Ég byrjaði fyrst í formnámi í hönnunar- og
nýsköpunarbraut í Tækniskólanum því að ég hafði heyrt að sú braut væri fín fyrir óákveðna lista menn. Þar kynntist ég grafískri hönnun, Photo shop, Indesign og öðrum forritum og það vakti minn áhuga. Eftir því námi loknu skráði ég mig í grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina í sama skóla og seinna tók ég grafíska miðlun sem ég er að fara að útskrifast úr í vor. Þetta nám hefur komið mér á óvart. Ég vissi ekki hversu mikið þetta nám tengdi við mig og mér hlakkar til að sjá hvert það tekur mig. Framtíðarplön mín er að útskrifast einhvern tímann úr Listaháskólanum í Grafískri hönnun, helst fyrir þrítugt.
5
Bókarkápur Bókarkápur er mikilvægar fyrir bækur þar sem þær vernda bækurnar fyrir hnjaski og eru að segja frá innihaldi bókarinnar. Góð bókarkápa getur sagt frá meiru en lýsingin á baki bókarinnar. Bókarkápan er oft það fyrsta sem fólk sér af bókinni og er því mikilvægt að búa til eins grípandi bókarkápu og hægt er. Oft geta bókarkápur auðveldað manni val á bókum. Þegar fólk verslar bækur rennur það yfir bókahillurnar og oftast er tekið eftir þeirri bók sem kallar mest til manns. Fólk hefur mis munandi skoðanir og mismunandi áhugamál og er því mikilvægt að búa til góðar bókarkápur sem lýsa þeim skoðunum og áhugamálum sem best svo að fólk finni réttu bókina fyrir sig. Til eru hönnuðir sem sérhæfa sig í að hanna bókarkápur og er það betri lausn að fá hönnuð til verkefnisins heldur en að gera bókarkápuna sjálfur. Einstaklingar geta hannað góða bókarkápu og selt margar bækur með þeirri hönnun, en bókarkápuhönnuðir eru fag menn og hafa þekkingu á því sem fólk vill kaupa. Hönnuðir geta hannað
6
kápur sem segja frá sögunni sem tengist á þeim blaðsíðum sem kápan er utan um. Til dæmis ef verið er að hanna kápu á vísindaskáldsögu passar ekki að setja vöðvastæltan mann, beran að ofan að kyssa fallega konu því það lýsir ekki bókinni. Sagan gæti verið um vöðvastæltan mann sem klæðir sig aldrei í peysu eða bol og kyssir hverja konuna á fætur annarri í geimnum, en það er ekki það sem fólk er að leita að þegar það er að leita að vísindaskáldsögu. Frekar hanna fagmenn kápu tengt tækni, geimnum eða fjarlægum plánetum, eitthvað sem á við um vísindaskáldsögur. Myndin á kápunni er ekki það eina sem skiptir máli, letrið skiptir líka máli. Ímyndaðu þér hryllingsögu. Á kápunni eru blóðslettur frá óheppnu fórnarlambi morðingja sögunnar, í bakgrunni er dimmur og óhugnanlegur skógur og í miðjunni stara köld augu djúpt inn í sál þína. Ímyndaði þér síðan titilinn, í Comic Sans letrinu. Röng leturgerð getur drepið stemninguna sem kápan gefur. Kápuhönnuðir vita hvaða letur passar við hvert þema og eru fagmenn í að finna rétt letur.
Hversu stóru hlutverki gegnir bókarkápa við kaup á bók? Gerð var könnun á vegum Books Smugglers þar sem 612 tóku þátt í könnuninni og voru þeir spurðir hvort bókarkápa hefði einhver áhrif þegar þau væru að versla sér bók. Þar kom fram að 20 manns segja að bókarkápa hafi ríkjandi hlutverk þegar þau versla sér bækur. Fram kemur að 294
Hlutverk
telja að bókarkápur gegni stóru hlutverki í vali á bók. Um 250 manns telja að bókarkápur skipti litlu máli og 33 manns telja að bókarkápur skipti engu máli. Eru 15 manns í könnunni hlutlaus. Þar sem könnunin segir er að bókarkápur gegna meðal áhuga hjá fólki þegar þau eru að versla sér bækur.
Fjöldi manns
Prósentuhlutfall
20
3%
Stóru hlutverki
294
48%
Litlu hlutverki
250
41%
Nánast engu hlutverki
33
5%
Annað
15
2%
Ríkjandi hlutverki
Ráðstefna um réttindi flóttamanna 1.-2. maí í Hörpu Skoðaðu nánar inn á harpa.is
7
Saga bókarkápunar Miðaldir Á miðöldunum var byrjað að varðveita bækur með því að binda þær inn í handgreyptar eða upp hleyptar bindingar, fílabein, silki, klemmur eða leður ásamt því að skreyta þær með gimsteinum, útsaumi og gull- og silfurþráðum. Var aðallega verið að vernda biblíur og heilaga texta fyrir hnjaski. Eftir að prentvélin var fundin upp árið 1450 urðu bækur minna dýrmætari og því urðu bókarkápurnar minna glæsilegri.
15. – 18. Öld Um 15. öldina var byrjað að pressa viðarplötur milli tveggja efnis- eða leðurbúta sem síðan var fest við bókina. Í kringum þetta tímabil voru bækur oft keyptar án kápu og sá sem var að kaupa bókina gat látið binda kápu við hana og þá ráðið hvernig bókin ætti að líta út. Á 16. og 17. öld var byrjað að búa til svokallaðan marmarapappír í Evrópu og nota þann pappír við gerð bókarkápa, en með marmarapappír urðu bækur ódýrari og fallegri.
19. öld Við lok iðnbyltingunnar var hægt að binda bækur með hjálp prentara og því þurfti ekki lengur að láta sérfræðinga binda þær saman. Leður var líka að mestu leiti skipt út fyrir saumað efni. Með sérstökum pressum var hægt að upphleypa áferðir og einföld munstur, en aðeins í einum lít of var gulllitaður mjög vinsæll. Í kringum 1830 var byrjað að nota fjarlægjanlegar kápur, en þær voru notaðar til þess að hlífa bækur við flutninga. Þessar kápur vöfðu bókina inn eins og gjafapappír. Á þeim tíma var líka byrjað að myndskreyta kápurnar með teikningum eða vatnslitamyndum og áratugi seinna voru upphleypur og gylltar myndskreytingar vinsælar.
1840 Byrjað var að nota ljósmyndun til þess að fjöldaframleiða teikningar á kápur svo ekki þurfti að handgera hverja einustu kápu og með uppgötvun litgreiningu var hægt að prenta í mörgum litum. Kápur voru byrjaðar að vera prentaðar einungis á pappír og kiljur byrjuðu að vera vinsælar bókarkápur. Teiknaðar voru ýtarlegar myndir á kápurnar og prýddu manneskjur af ýmsum toga kápurnar. Bókarkápurnar voru að mestu gulleitar því þær voru búnar til úr ódýri viðarkvoðu sem lituðu þær gular. Fólki leist ekki á gulu kápurnar og voru þær ekki teknar vel á þeim tíma.
8
1930 Næstu tuttugu árin voru bókarkápur skreyttar með teikningum. Hönnuðir handteiknuðu myndir á kápurnar og einnig voru tímarit og kvikmyndaplaköt hönnuð í sama stíl. Einnig urðu kvikmyndastjörnur vinsælar og oft prýddu þær kápur á bókum sem nýjasta kvikmynd þeirra var byggð á, enda voru bækur byrjaðar að birtast á hvíta tjaldinu. Söguhetjur stóðu fremst á kápunum. Oftast var það nærmynd af þeim, með víðu hálsmáli og gljáandi hár.
1960 Á 7. áratugnum var byrjað að nota ljósmyndir til þess að skreyta bókarkápur, tímarit og auglýsingar. Á kápum prýddu ljósmyndir ásamt grafík og týpógrafíum. Ein af þessum kápum er fimmta endurprentunin af Lord of the Flies. Ljósmyndin á kápunni er úr útgáfu af bíómyndinni sem byggt er á bókinni árið 1963. Ljósmyndin er af persónunni Piggy sem leikinn var af Hugh Edwards. Teiknarar hættu smám saman að myndskreyta bækurnar með raunsæilegum myndum og byrjuðu að teikna út frá ímyndunarafli sínu til þess að keppast við ljósmyndakápurnar. Vísindaskáldsögur og fantasíur nutu mikilla vinsælda á 7. áratugnum og bókarkápur urðu meira listrænni til þess að lýsa innihaldi sögunar sem best.
Nútíminn Í byrjun 21. aldarinnar var byrjað að hanna bókarkápur sem myndu draga að sér fólk. Mikið er lagt í bókarkápurnar og eru þær oft eins og listaverk í stað bókakápna. Eru þær gerðar úr gæða pappír eða pappa svo listaverkið á kápunni fái að njóta síns sem fyllst. Er það komið í tísku að týpógrafía fylli út kápuna, þannig að aðeins texti er á kápunni. Bækur eftir fræga rithöfunda eru oft með nafn rithöfundarins í forgrunni. Ef gert er rétt getur týpógrafían komið vel út og dregur fólk að til að lesa hana.
Framtíðin Hvernig munu bókarkápur í framtíðinni líta út? Margir halda að vegna vinsælda á rafbókum munu bókarkápurnar innihalda hreyfimyndir. Kápurnar munu breytast í málverkin í Harry Potter. Aðrir halda að þrívíddarlist muni verða vinsælari og þannig munu bækur prýða þrívíddarkápum. Margir eru samt sammála að þökk sé rafbókum muni heimur bókarkápana stækka verulega. Samt veit engin fyrir vissu hvernig bókarkápur framtíðarinnar munu líta út. Við þurfum bara að bíða.
9
Þrívíddarhönnun er búin til með því að vinna margliða möskva og móta þá í hluti, persónur og senur. Þrívíddarhönnun er notuð til dæmis við gerð prentaðra auglýsinga, vefsíðna, sjónvarpsþátta, kvikmynda og tölvuleikja svo eitthvað sé nefnt. Þrívíddarlist byrjaði sem götulist, en götulistamenn teiknuðu myndir með krítum og ef horft var frá ákveðnu sjónarhorni litu myndirnar út eins og þær poppuðu út. Til eru hönnuðir sem sérhæfa sig í þrívíddargerð og eru verk þeirra allt frá raunverulegum myndum yfir í einföld form. Andrea Giordano Andrea Giordano er þrívíddargerðar- og áferðarlistakona frá Barcelona á Spáni. Giordano lauk við námi í list og hönnun í Barcelona árið 2001 með meistaragráðu í hreyfimyndagerð. Að námi loknu vann hún í fimm ár sem skapandi hönnuður á kynningarsviði, þar sem hún vann frá hugmynd til verkefnisloka. Árið 2006 flutti hún til Vancouver þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu í persónugerð og áferðum. Flutti hún til London og vann í níu ár hjá VFX Film Studios. Árið 2015 flutti Giordano aftur til Barcelona og vinnur nú sem sjálf stætt starfandi þrívíddarlistakona. Giordano er þekktust fyrir að vinna við áferð drekana í fyrstu þáttaröð af The Game of Thrones
og við það vann hún VES-verðlaun fyrir frammúrskarandi umhverfissköpun í út sendingarefnum eða auglýsingum árið 2012. Rithöfundar The Game of Thones létu Giordano fá myndir og skýringar um hvernig drekarnir ættu að líta út og vann hún við gerð drekana í áferðargerðarforritinu Mari. Meðal verkefna hennar vann hún einnig við: • Sherlock Holmes: A Game of Shadows sem áferðarlistamaður • Robocop sem áferðarlistamaður • Guardians of the Galaxy sem áferðarlistamaður • Paddington sem áferðarlistamaður • Fimm þættir af spænsku sjónvarpsþáttunum El Cid í sjónrænum áhrifum
Dreki eftir Andrea Giordano
10
Miagui Miagui er framleiðslustúdíó sem sérhæfir sig í aug lýsingamyndum. Stúdíóið er staðsett í borgini Porto Alegre í Brasilíu og leggur mikinn metnað í að framkvæma verkefni með fyrirfram ákveðnu verkflæði. Miagui er heimsþekkt fyrir stórfenglegar og oftast raunverulegar þrívíddarmyndir sem fanga athygli þína. Miagui byrjaði fyrst sem verkefni á vegum Neorama, fremstu efnisframleiðslu fyrir fasteignamarkaðinn í Brasilíu. Neorama var á þessum tíma að stækka sig með því að vinna með öðrum stofnunum við framleiðslu auglýsingaherferðum og þannig stækkaði litla verkefnið í eigið fyrir tæki að nafni Miagui. Eitt þekktasta verk þeirra er auglýsing sem stúdíóið gerði fyrir sjónvarpsþátt á vegum National Geographic. Á aug lýsingunni syndir krókódíl í litlum polli með gapandi gin. Er auglýsingin staðsett neðst á rúllustiga þannig að það líti út eins og krókódíllinn væri að fara að fara að borða þann sem kom niður stigann. Verkið var unnið í samstarfi við Gregory Kickow, sem var listrænn stjórnandi hjá Loducca Agency, en hann kom með ákveðna hugmynd og markmið Miagui var að passa uppá fagur fræðina sem þegar var skilgreind. Það er erfitt að taka mynd af lifandi krókódíl í þeim stellingum sem hentuðu þannig að tölvugera hann var besta, einfaldasta og öruggasta leiðinn. Helsta markmiðið var að líkja eftir sjónarhorni áhorfandans og láta myndina lýta eins raunverulega út og hægt var. Byrjað var á krókódílnum í þrívíddar forritinu Zbrush og var Photoshop notað til
þess að leggja lokahönd á rándýrið. Á hefðbundum degi hjá Miagui er dagurinn byrjaður með fundi þar sem rætt er hvernig best er að vinna ákveðin verkefni, skipta niður verkefnum og skipuleggja daglegt líf þeirra. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi þannig að starfsmönnum hlakkar til í að mæta í vinnu. Með hverju nýju verkefni læra starfsmenn Miagui eitthvað nýtt. Frá byrjun hefur Miagui viljað gera starfs mönnum sínum gæfumun og veita þeim innblástur með skýrum markmiðum og skapa skilyrði fyrir alla starfmenn til að vera mjög ánægðir með að vinna vinnuna sína.
11
Comic Sans Ekki er til manneskja í heiminum sem ekki hefur heyrt um né séð leturgerðina Comic Sans. Comic Sans er heimsfræg leturgerð og fólk elskar að hata hana. Comic Sans er einfalt og læsilegt, eins og það sé fyrir börn. Kannski er það hannað fyrir börn, hver veit. Kannski ef þú lest lengra kemstu að því. Vincent Connare Comic Sans var hannað af Vincent Connare þegar hann starfaði hjá Microsoft. Vincent Connare er leturhönnuður sem fæddist í Boston í Massachusetts-ríki í Bandaríkjunum árið 1960. Hann stundaði nám í ljósmyndum og myndlist við New York Institute of Technology. Hann starfaði sem ljósmyndari hjá The Worcester Telegram, sem er dagblað frá Massachusetts og seinna vann hann sem leturhönnuður hjá Compu graphic með þáverandi kærustu sinni árið 1987.
Connare umbreytti leturgerðarsafni þeirra úr ljós myndaformi yfir í starfræna notkun. Meðan hann starfaði hjá Compugraphic vann hann við hönnun leturgerðanna Intellifont, TrueType og Ikarus. Árið 1993 byrjaði hann að starfa hjá Microsoft. Þar bjó hann til upprunalega prufu-bitmap, betur þekkt sem strikamynd. Einnig gerði hann TrueType-leturgerðir til þess að prófa Tahomaletrið og útgáfu af Arial-letri fyrir Microsoft WebTV. Með Microsoft Excel breytti Connare Windows Baltic MS Sans-leturgerðunum og umbreytti sextánundakerfinu í tvíundakerfi. Hvernig Comic Sans varð til Árið 1994 var Connare látinn fá frumútgáfu af Microsoft Bob, en það var gagnvirkt myndasögu forrit fyrir börn. Í Microsoft Bob var lítill gulur hundur sem var skírður Rover sem birtist í byrjun. Rover var einskonar lukkudýr forritsins og hjálpaði
Staðreyndir um Comic Sans • •
• • •
•
12
Höfundurinn Vincent Connare hannaði einnig leturgerðirnar Trebuchet, Marlett, Magpie, og hluta af Webdings. Síðan 2009 hafa hollenskir útvarpsmenn haldið upp á Comic Sans-dag fyrsta föstudag hvers júlímánaðar, þar sem þau hvetja fólk til að senda póst og skrifa skjöl með Comic Sans. Comic Sans er fáanlegt á 99,13% af Windows-tölvum og 90,91% af Mac-tölvum. Aðeins 61% af Linux notendum hafa Comic Sans. Ef þú breytir letrinu á Skype messenger yfir í Comic Sans breytist broskall við hliðiná textareytnum í vanþóknalegan fýlukall. Samtökin „Bönnum Comic Sans" (e. Ban Comic Sans Movement) hafa safnað yfir 5,000 undirskriftum til þess að banna letrið alfarið. Connare hefur engan húmor fyrir fólki sem ekki líkar við Comic Sans. Hann sagði eitt sinn, ef þýtt á góða íslensku: „Fólk veit ekki hvers vegna það var búið til. Ef þau gerðu það myndu þau átta sig á því að það var það sem hönnunin snýst um, að hanna fyrir vöru með viðeigandi hönnun. Ekki Times New Roman. Þeir þurfa að draga höfuð sitt úr rassinum þeirra… þetta pirrar mig!“
fólki í gegnum forritið sjálft. Rover var með tal blöðru fyrir ofan sig og var textinn sem hundurinn sagði í Times New Roman-letri. Connare fannst letrið ekki passa við myndasöguumhverfið og ákvað því að búa til letur sem passaði. Letrið var aðalega búið til fyrir börn og var áætlað að letrið myndi vera notað í alls konar skemmtanir fyrir yngri kynslóðina, eins og teiknimyndir og myndasögur. Connare byrjaði að vinna í Macromedia Fontographer, sem er leturhönnunarforrit, og reyndi að fá innblástur af góðri leturgerð fyrir myndasögur með því að lesa myndasögur frá DC, Marvel og öðrum. Hann skoðaði leturgerðir myndasagnanna og reyndi að líkja eftir hand skriftarstíl þeirra. Letrið var ekki tilbúið þegar Microsoft Bob var formlega gefið út í ágúst árið 1995. Comic Sans var kynnt þegar Microsoft 95 Plus kom út og seinna var það eitt af kerfisletrum OEM-útgáfunar af Windows 95. Myndasögukvikmyndaforritið 3D Movie Maker notaði einnig Comic Sans. Talið er að ástæða vinsældar Comic Sans sé að fyrir fólk sem ekki eru leturhönnuðir eða grafískir hönnuðir lítur letrið einfalt út og er ekki of flókið eða of fíngert og þannig hafi það breiðst svo hratt út.
Fartölvur í úrvali Rafvöruverslunin Rafmagn býður upp á mikið úrval af raftækjum Kíktu við hjá okkur
Af hverju er Comic Sans hatað? Fyrstu árin var algengt að fólk noti Comic Sans við skriftir. Fyrir fólk sem ekki vann við hönnun leit það einfalt og vel út. En árið 2002 stofnuðu tveir leturfræðingar samtök gegn Comic Sans, „Bönnum Comic Sans samtökin" (e. Ban Comic Sans Movement). Samtökin náðu athygli um allan heim og hönnuðir létu í sig heyra um ógleði þeirra á leturgerðinni. Samtökin urðu svo stór að Connare sjálfur þurfti lífvörð þegar hann flutti ræðu í Hönnunarsafni Londons. Þrátt fyrir það finnst Connare fyndið hversu mikla athygli letrið hans hefur fengið og hvernig það hefur áhrif á fólk.
Smáralind rafmagn@rafmagn.is Rafmagn.is Sími: 577 5588
Nokkrar rannsóknir sem gefnar voru út í byrjun 21. aldarinnar af ríkisháskólanum í Wichita (e. Wichita State University) í Kansasríki í Banda ríkjunum benda til að fólk skynji að leturgerðir hafi sérstakan persónuleika og að skynjun fólks snúist um þrjá meginþætti, fegurð, spennu og karlmennsku. Rannsóknir sýna einnig að fólk velji leturgerðir fyrir skjöl, bréf og ferilskrár sem eru læsilegar og fallegar frekar en háværar og spennandi leturgerðir. Sem sagt, fólk hatar Comic Sans vegna þess að það var upprunalega ætlað fyrir óformleg efni eins og myndasögur og þannig passar ekki fyrir mikilvæg skjöl. Yfirhönnuður Twitters tísti eitt sinn að fólk kvarti mest yfir flugfélögum á Twitter, síðan Comic Sans og eftir því Justin Bieber. Að Comic Sans sé á undan Justin Bieber á kvörtunarlista Twitters segir mikið um hversu mikið fólk hatar Comic Sans.
Comic Sans jákvæðni Það er ekki eingöngu neikvæð umfjöllun um Comic Sans, því fylgir líka jákvæð umfjöllun. Til dæmis getur Comic Sans auðveldað lestur hjá lesblindum einstaklingum. Rannsókn sem gerð var í Princeton-háskólanum árið 2010 bendir til þess að þegar notaðar eru erfiðar leturgerðir eins og Comic Sans við lær dóm sé líklegrtil að muna þær upplýsingar sem skrifaðar voru niður. Letrið má oft sjá í yngri deildum grunn skóla og á leikskólum. Fyrir byrjendur í lestri er letrið skemmtilegt, einfalt og læsilegt. Sama hvort fólk hatar eða elskar Comic Sans þá skal fólk muna eitt. Þetta er bara letur. Það er fullt af öðrum hlutum sem þið getið haft áhyggjur af.
People who don‘t like Comic Sans don‘t know anything about design. Vincent Connare
14
ÞÚ
R A N
N A H
VIÐ
M U NT
E R P
Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Forvinnslu – prentun - frágangur. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi | Sími 540 1800 | FAX: 540 1801 | Opið virka daga : 8:00–16.00
Gröffum betri kjör
Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is Stórhöfða 31, 110 Reykjavík – 5400 100 – grafia@grafia.is– www.grafia.is